Tíminn - 20.09.1924, Blaðsíða 2

Tíminn - 20.09.1924, Blaðsíða 2
148 T 1 M 1 N N [í gær var opnuð sýning á smjöri og ostum i húsi Búnaðarfél. íslands. Sig- urður Sigurðsson búnaðarmálastjóri flutti við það tækifæri eftirfarandi erindij: pessi sýning er fátækleg og hef- ir fáar og veikar rætur. En vér vonum, að það fari líkt með árang- ur hennar og með frækornið, sem er sáð í frjósaman jarðveg, að ef það nýtur góðrar aðhlynningar, þá vex það og þróast, hin unga og veika planta getur orðið að stóru tré með löngum og sterkum rót- um. ísland er ónumið. Jarðvegurinn geymir gnótt jurtanærandi efna. Jurtirnar geta ummyndað þessi efni í ágætis fóður. Taðan okkar, flæðiengjaheyið og grasið í sumarbithögunum, er samkvæmt rannsóknum einhver bestu fóðurgrös, sem hægt er að afla, betri en víða þar sem veðr- áttan er hlýrri en hjá oss. Sérstak- lega má ætla, að grasið okkar sé ríkt af bætieínum, „vitamínum". Og þess vegna ætti hér að vera hægt að framleiða betri búpenings- afurðir en víða annarsstaðar. Reynslan bendir einnig ótvírætt í þá átt. Kjötið okkar er viðurkent gott, um það þarf ekki að fjöl- yrða. Á gullöld íslendinga var flutt út mikið af feitmeti og ostum. það þóttu góðar vörur. — þetta féll niður á miðöldunum. Á 18. og 19. öldinni var talað um að endurreisa það, og nokkrar tilraunir gerðar í þá átt. Árangurinn var lítill. Með 20. öldinni byrja fyrst alvarlegar tilraunir. Árið 1900 er stofnað fyrsta smjörbúið (Selsbúið). Aðal- hvatamaður þess er Ágúst bóndi í Birtingaholti. Á eftir fyrsta smjör- búinu fylgir strax stofnun fleiri smjörbúa, enda styður stjórn og þing þessa framfaraviðleitni, með hagfeldum lánum og verðlaunum fyrir útflutt smjör. Árið 1906 eru 34 smjörbú starf- andi, og sama talan 1908, en úr því fer þeim að fækka. 1915 eru þó 24 smjörbú starfandi, en á stríðsár- unum fer alt út um þúfur, svo að 1921 eru aðeins 5 bú eftir starf- andi. Nú eru þau aftur að vakna til lífs, og í ár starfa 11 smjörbú. pessi hreyfing, með stofnun smjörbúanna, hefir unnið búnaði vorum töluvert gagn. Með henni eygjast nýir möguleikar, og út- flutningur á smjöri byrjar. Mest smjör búanna var flutt til útlanda og selt á erlendum (enskum) markaði. þessi smjörútflutningur var mestur 1912. þá nam hann 193000 kg., sem var selt fyrir 342,000 kr. Eftir þetta fer útflutn- ingur á smjöri minkandi, og hætt- ir eftir 1916 á tímabili. Á árunum 1898 til 1916 telst svo til, að út hafi verið flutt um 1,840,000 kg. af smjöri, og að fyrir það hafi feng- ist 3,090,000 kr. En úr þessu snýst blaðið við, og vér förum að flytja inn smjör, sem nánar verður lalað um síðar. Á síðastliðnu ári (1923) byrjar útflutningur smjörs aftur að nýju. þá eru flutt út 19400 kg. Á þessu ári verður útflutningurinn að lík- indum hálfu meiri. þetta er árangurinn af smjör- eða rjómabúastarfseminni hér á landi, í stuttum dráttum. En hvernig er það með ostana? Á gullöld vorri er talið, að vér höfum flutt út osta. En þetta hvarf fljótt úr sögunni, og engar verulegar tilraunir með ostatilbún- ing eða útflutning »á ostum hafa verið gerðar, fyr en á hinum síð- ustu áratugum. Á bændaskólanum á Hvanneyri var byrjað að búa til osta 1907. þar hafa verið búnar til þessar ostategundir: Undanrennuostar og hálffeitir ostar (með 20% nýmjólk), auk þess ejdamerostur og gráðaostur, og hafa allir hepnast vel. Ostar þessir hafa verið seldir í Reykja- vík. Fyrir 10 árum kom Jón Guð- mundsson ostafræðingur hingað til lands. Hann hefir síðan ötullega unnið að því að búa til gráðaost, á ýmsum stöðum. Tvö gráðaostabú eru nú stofnuð, annað í þingeyjar- sýslu (1921), hitt í Önundarfifði (1924). þessar tilraunir með gráðaostagerð hér á landi hafa sýnt, að hér er hægt að búa til góðan gráðaost, sem hægt er að selja fyrir viðunandi verð á erlend- um markaði. Síðan 1918 hefir árlega verið flutt út nokkuð af þessum ostum. Mest síðastliðið ár, 7800 kg. Verð- ið hefir verið 3 til kr. 5,40 kg. Síð- astliðið sumar lét Búnaðarfélag íslands gera nokkrar tilraunir með ostagerð við smjörbúið á Rauða- læk í Rangárvallasýslu. þar voru búnir til undanrennuostar úr kúa- og sauðamjólk, stundum blandað- ir með 18 eða 20% nýmjólk, goudaostur og gráðaostur. Ostarnir voru góðir. Fult eins góðir og tilsvarandi útlendir ostar. Á síðustu árum hafa smjörbúin byrjað með ostageið, aðallega af XDZROZFZtsT-eld.a.-v^élixx er sérstaklega búin til með það fyrir augum, að eldiviðurinn notist sem best og sem minst af hitanum fari til spillis. Eldhólflð er stórt, svo hægt er að brenna allskonar eldivið. Suðuhólfin eru mjög stór í blutfalli við stæi-ð eldavélarinnar. Bakaraofninn sömuleiðis, og svo haganlega fyrirkomið, að betri eldavél fæst ekki til bökunar. Loft- rásina má takmarka og veita reyknum ýrnist kringum bakaraofninn eða undir suðuhólfin, með lítilli sveif framan á vélinni. Engin laus spjöld, sem ganga niður í gegnum plötuna. Reykgangana er mjög létt að hreiusa. Allur útbúnaður DRAFNAR er sterkur og einl'aldur og útlitið laglegt. DRÖFN fæst í fjórum stærðum og með margskonar útbúnaði eftir vild kaupendanna. Verðið er afarlágt og jafnt í hvaða kaupstað sem er á landinu. Gerið fyrirspurnír og þið fáið svar um hæl. SveixiTojörzra. Jónsson, byggingafræðingur, Akureyri. Strandgata 1. Sími 103. áfum. þetta hefir hepnast allvel. Tilgangur þessarar sýningar er að ía vitneskju og samanburð á því, hve góða osta og smjör hægt sé að búa til hér á landi. Vér verð- um að keppa að því að verða sem mest sjálfbjarga, sækja eigi til annara það sem vér getum aflað sjálfir, og í þessum efnum er eg viss um, að vér stöndum vel að vígi. Vér getum búið til smjör og osta, sem jafngildir því besta, sem hægt er að búa til annarsstaðar af þesskonar vörum. þetta mun þessi litla sýning sanna. En því þá að sækja þetta til útlanda, eins og vér höfum gert á undanförnum ár- um? Af smjöri var flutt hingað til lands að meðaltali árlega: 1915-19 4292 kg. á kr. 22,104 1921 . . 19899 kg. á kr. 112,453 1922 . . 14648 kg. á kr. 74,776 Af ostum var flutt til landsins að meðaltali á ári: 1915-19 60243 kg. á kr. 86,203 1921 . . 91814 kg. á kr. 183,939 1922 . . 93223 kg. á kr. 170,503 þannig er ástandið. Vér sækjum það til annara, sem vér auðveldlega gætum framleitt sjálfir. Kaupum dýrum dómum lé- legri vöru en hægt er að búa til í landinu. Á þessu þarf að verða breyting. Smjör- og ostabúin eru vísir til mikilla framfara í þessum efnum. Hlutverk þeirra er að breyta mjólkinni í smjör og osta. það á að vanda til smjör- og osta- gerðarinnar, svo að það, sem búið sé til, sé fyrsta flokks vara. þessi sýning, og aðrar, em væntanlega verða haldnar á næstu árum, á að sýna mönnum hverjir komist lengst í þessum efnum. Á sýning- unni eiga menn að læra hver af öðrum, þar er hægur samanburð- ur, og ef nokkuð á að verða ágengt, þarf að gera glöggan greinarmun á því sem gott er og lélegt, því þá munu menn brátt læra, að vanda sig í þeim efnum, og eigi verða hér skortur á smjöri og ostum, bæði til notkunar í land- inu, og svo til útflutnings, það sem umíram er. Af reynslu þeirri, sem fengin er um smjör- og ostagerð, má margt læra. það er búið að sanna, að hér má búa til ágætis smjör og osta. Smjör- og ostabúin hafa ílest ver- ið bygð af vanefnum, byggingar, áhöld og annað eigi svo vandað sem skyldi, og því furða hvað unnist hefir. Úr þessu þarf að bæta smátt og smátt. þegar smjör- eða ostabú eru stofnuð, þarf mönnum að vera ljóst, hvert stefna á. það er ekki nóg að stofna smjör- eða ostabú- ið, og ætlast svo til, að alt komi af sjálfu sér. Nei, það þarf margra ára starf til að fullkomna það og koma því á fastan fót. þá stofnað er til þessara búa, eru ástæðurnar víðast hvar þannig, að sú mjólk, sem hægt er að láta til þeirra, er lítil og dreifð. þetta gerir starf- rækslu búanna erfiða og dýra. Til þess að bæta úr þessu þarf að auka ræktunina og fjölga mjólkur- peningi, svo búin fái meiri mjólk ár frá ári, og búi til meira af smjöri og ostum. þá verður starf- rækslan ódýrari og hagurinn af smjör- og ostagerðinni meiri. Á Suðurlandsundirlendinu er verið að koma upp dýrum og stór- um áveitum; hvort þær blessast er undir því komið, að hinum aukna gróðri verði breytt í arðvænlegar afurðir. Sem sakir standa nú, er hér aðallega að ræða um mjólkur- framleiðslu, því þurfa hlutaðeig- endur að vera sem best undir það búnir, að hagnýta sér þessa mögu- leika. það þarf einnig að auka tún- ræktina sem mest, svo að fram- leiðsla mjólkur verði meiri.Smjör-, osta- og mjólkurbú þurfa að geta starfað alt árið, svo að menn geti komið mjólkinni í verðmætar af- urðir allan ársins hring. Síðan fyrsta smjörbúið var stofnað hér á landi, hafa allar ástæður tekið miklum breytingum til batnaðar. í fyrstu þurftu búin að vera lítil. Flutningur aðallega á hestum, en nú em vegirnir orðnir betri, svo til mála getur komið að stofna stærri bú, og draga mjólkina að á bif- reiðum. Stærri búin geta verið bet ur útbúin með byggingar og áhöld. þau ættu hægra með að starfa alt árið, og hafa meiri möguleika til að búa til betra smjör og osta. Sem sagt, vér erum betur stadd- ir nú en nokkru sinni áður, til að auka smjör- og ostagerð, og að þessu verður að vinna á komandi tímum. þing og stjórn verður að I styðja þessa viðleitni og hlutaðeig- endur að skilja, að hverju er stefnt, og keppa að því marki. Vér vonum, að þessi sýning verði eitt spor í rétta átt, til þess að þessu marki verði náð. Hér sést, hvað hægt er að búa til. Fleiri þurfa að taka þátt í starf- inu, með lífi og sál, bæði beint og óbeint, og þá mun vel farnast. ---.n--- Vopnaburður. í síðasta tölublaði Tímans var grein, sem hét „íslenskt ríki“. Morgunblaðið telur greinina „aug- lýsa hið bera bolsainnræti“ og eign ar hana Jónasi Jónssyni, en þár sem greinin var nafnlaus og eg sá um ritstjórn Tímans, var hún vit- anlega eftir mig. Að því hefði ekki þurft að spyrja. Eg þarf ekki þeirrar „góðgirni“ með, að mín skrif séu eignuð Jónasi, enda er góðgirnin görótt. „Eigi getur (Ás- geir hafa) skrifað svívirðingar um unglingana, sem sóttu Ólaf heim“, segir Mbl., „hann hét þeim liði sínu, er sýndu það í verki, að þeir virtu meira landslögin en útlærð- an bolsann, Ólaf. Ásgeir fanst ekki þegar til átti að taka, en hann var ótrauður andstæðingur ölafs í orði“. Satt er það, að eg var einn þeirra mörgu, er fóru þungum orðum um óhlýðni ólafs við fyrirskipanir heilbrigðisstjórn- arinnar, en hitt er rangt, að eg héti nokkrum liði mínu, eins og Komandi ár. íslendingar komust að vísu aldrei svona langt eftir braut foreldralegrar umhyggju. En í öllum löndum, rík- um og fátækum, stórum og smáum, er þó sami undir- straumur i viðleitni íbreldranna. pau vilja hlúa sem mest að börnunum. pau vilja líða fyrir börnin, ef með þarf, en aðallega með því að láta þau erfa fjármuni, sem allra mesta fjármuni, eða aðstöðu til að fá fjármuni. pótt undarlegt sé, virðast foreldrar ekki alment veita þvi eftirtekt, að.þessi mikla viðleitni nær skamt. Lang- flest börn fá annaðhvort engan peningalegan arf eftir foreldra sína, eða ef hann er einhver, þá er upphæðin svo lítil, að hún skiftir engu fyrir erfingjana. petta liggur í því, að þrátt fyrir hina miklu viðleitni, er allur þorri manna efnalaus. pegar fólksfjöldinn í Englandi var 43 miljónir fyrir fáeinum árum, birti merkur hagfræðingur þar í landi skýrslu um efnahag þjóðarinnar. Ein miljón manna var rík. Fjórar miljónir voru efnaðar. prjátíu og átta voru fátækar. Svipuð eru hltuföllin í öðrum löndum og hafa jafnan verið. pessi leit foreldranna eftir arfi handa börnunum er þessvegna langoftast draumsjónin ein. Bar- átta, sem hlýtur að enda með ósigri. Von, sem er aðeins tál. En sumum hepnast óneitanlega að afla fjármuna og ti'yggja arf handa börnunum. Hve mikill er þá ávinning- urinn? Erlendis tekst alloft, ef um mjög miklar eignir er að ræða, að halda þeim í ættinni mann eftir mann, venju- lega með því að svifta eigandann að nokkru yfirráðun- um til að eyða fénu. Á íslandi er raunin oftast sú, að arfa- féð eyðist skjótt, jafnvel ótrúlega fljótt. Harðsnúinn fé- hyggjuamður hafði með mikilli elju og hörku dregið sam- an um 300 þúsund krónur. pegar hann lá banaleguna, gerði hann sambæjarmönnum sínum upp orðin: „Illur íengur, illa forgengur", myndu þeir segja, er fréttist um lát hans og arfinn mikla. Eftir nokkur missiri voru erfingj- arnir tveir búnir að eyða öllu fénu og annar orðinn gjald- þrota. Hvorugur erfinginn stóð þá betur að vígi, nema siður sé, fyrir fórn foreldranna. Að öllu samtöldu verður ekki sagt, að fjármálabarátta íslenskra foreldra hafi haft mikinn árangur. Flestir erfa ekki neitt, og verða að brjóta sér leið sjálfir. Og þeir, sem eitthvað erfa, sýnast mjög oft hafa lítinn varanlegan ávinn- ing af erfðinni. Næst fémunum snýst umhyggja foreldranna um vel- gengni líkamans, í grynstu merkingu. pegar veikindi bei'a að höndum, er læknir sóttur. pegar tennurnar eru eftir langvinnar þjáningar molnaðar eða hafa verið dregnar úr tanngarðinum með töng, eru tilbúnar tennur settar í stað- inn. Vitaskuld er þetta nauðsynlegt, að lækna sjúkdóm- ana. pó er hitt enn nauðsynlegra, að fyrirbyggja þá. En þar hefir foi'eldraástin oftar en skyldi vei'ið hirðulaus, meðan tími var til. pað er mjög undarlegt, hve tiltölulega fáir foreldrar hafa áttað sig á því, að hinn eini arfur, sem nokkru slciftir, er likamshreysti, þekking, manngildi og venjur unglinganna, er þeir yfii'gefa hús foreldranna og byrja sjálfstæða lífsbaráttu. í þessari missýningu foreldranna er fólgið mikið af böli kynslóðanna. pað er lögð feiknamikil vinna og fórn í að ná íakmarki, sem sumpart er ónáanlegt, sumpart ekki vert baráttunnar. En á meðan er gleymt því, sem mestu skiftir. Pei'sónulegum þroska og gildi mannsins. Best má sjó, hversu þjóðin lítur á þessa hluti, með »ð taka hlutkend dæmi. Hver tannlælmir, hver neflæknir, hver magalæknii', sem sest að i kauptúni eða sjóþoi'pi á íslandi, er viss með að fá miklar tekjur og ríkulegt lífs- uppeldi. Til slíkra manna leita menn eftir hjálp og eru fúsir að greiða mikið. En hversu mundi fara, ef vitur mannlífslæknir, Tolstoy, Ruskin eða sjálfur Sókrates, sett- ist að á íslandi og seldi lífsvisku handa sonum og dætrum borgaranna? peir mundu ekki verða hálfdrættingar á við þá, sem lækna skemdar tennur. Og þó er enginn vaii á því, að hvar sem er í siðuðum löndum nú á tímum, þá er það hreystin, líkamleg, sálar- leg, og afl þekkingarinnar, sem er hinn „hvassi síðu- nautur" nútimamannsins, hinn gullni lykill að völundar- húsi lífsbaráttunnar. Á hverju ári er flutt inn tóbak og vín til íslands fyrir margar miljónir króna. í í-auninni vita allir, að hver ein- staklingur og þjóðin öll væri betur á vegi stödd, ef hvor- ug þessi eiturvara kæmi inn i landið. En á Alþingi taldi gx-eindur maður, einn af læknum landsins, það algerða brjálsemi, að liugsa til að eyða nokkrum tugum þúsuuda á ári tii að gefa út á íslensku fræðibækur og góðan skáld- skap handa almenningi að lesa. Svo blindur er hugsunar- hátturinn. Miljónir fyrir eitur, sem veiklai' þjóðlikamann, veldur óþrifnaði, sjúkdómum, brjálsemi og glæpum. En jafnvel læknar telja, að það gangi glæpi næst að eyða ör- litlu brotni af þessari upphæð tii að flytja geisla frá sól vísindanna og listanna inn á hvert einasta heimili i landinu. Fyrir nokkrum mánuðum tók til starfa baðhús við barnaskólann í Reykjavík. En áratugum saman hafði mörg þúsund börnum verið kent í þessum skóla án þess að þar væri bað. Og þó var vitanlega ekki bað nema á sár- fáum heimilum í bænum. Kennararnir og skólanefndin höfðu látið þetta afskiftalaust. Og foreldrarnir, þúsundir foreldra, sem hafa átt þarna börn, höfðu sofið rólega, þó að þessum lið væri ófullnægt í uppeldi barna þeirra. Meira að segja, þegar sárfáir áhugamenn, sem fyrir slysni voru kosnir í skólanefnd eitt ár, hrintu baðhúsmálinu i framkvæmd, þá urðu þeir menn óvinsælir fyrir sínar að- gerðir, og foreldraviljinn lét það viðgangast, að þeim mönnum væri bægt frá umráðum með börnunum, sem höfðu gert það mögulegt, að hvert barn í Reykjávík fái svo sem tvisvar i viku verulega gott bað, meðan það cr á skólaaldri. Auðvitað þykir foreldrunum óstjórnlega vænt um börnin, og vilja mikið fyrir þau gera. En þessi mikli kraft- ur rennur að miklu leyti í sjóinn, af því að aflinu er ekki stjórnað mcð forsjá, sem skykli. I stað þess að efla hina ungu kynslóð að líkamlegu, andlegu og siðferðislegu afli, þ. e. efla manninn sjálfan, svo að liann sé verkfær í bestu merkingu, þá leggur allur fjöldinn mesta umhyggju í að gylla umbúðirnar, sumpart mcð fjármunalegri meðgjöf, sumpart með prófum, er gefi aðgöngu að vissu lífsupp- eldi o. s. frv. En á meðan gleymist, að líkaminn er veikl- aður af skaðlegum nautnum, og andinn af skaðlegum venjum. Framtiðarmál hverrar heilbrigðrar þjóðar er að breyta stefnumiði eða viðfangsefni foreldraumhyggjunn- ar, þannig, að framvegis verði það æðsta hugsjón foreldr- anna að rækta manninn og manngildið, en láta arfinn og umbúðirnar mæta afgangi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.