Tíminn - 04.10.1924, Qupperneq 4
158
T 1 M I N N
Á víð og dreíf.
Kenning Ingvars Pálmasonar.
Á þinginu í fyrravetur eyddi íhalds-
flokkur þingsins góðu máli fyrir Ing-
vari Pálmasyni, en ekki mun saga
þess þar með búin. Ingvar vildi koma
allsherjarskipulagi á fisksöluna, og
gat sannað með opinberum skýrslum
að slíkt fyrirkomulag myndi hafa spar
að landinu óþarfa eyðslu, sem nam
miljónum króna. Hann vildi tryggja
öllum fiskframleiðendum sannvirði
fyrir vöru sína. þetta orð þoldu þeir
verst, samnefndarmenn hans, Jóhann
úr Eyjum og B. Kr.
Mesta þjóðmálið
er að fjölga sjálfstœðum heimilum
í sveitinni. Takist það ekki, flýr kjarn-
inn úr hinni uppvaxandi kynslóð í
aðrar álfur, eða neyðist til að l'ía
gleðivana lífi í kjallaraholum í Rvik.
Skilyrðin fyrir fleiri heimilum í sve.it
eru þessi helst: 1. kœli- eða frystiskip,
eitt eða fleiri. 2. Betri samgöngur á
landi og með ströndum fram. 3. Að fá
ódýrt fé til langs tíma handa þeim,
sem rœkta vilja land, byggja ný heim-
ili og afla sér bústofns. þetta fé mun
naumlega fást á heppilegan hátt
nema með því að koma á lögbundinni
ellitryggingu, og nota sjóðinn að
mestu á þennan hátt.
-----o----
Helgi Bergs hefir verið ráðinn
framkvæmdastjóri Sláturfél. Suð-
urlands í stað Hannesar Thorar-
ensens. Hefir Helgi undanfarin ár
verið aðalstarfsmaður félagsins
með Hannesi. Helgi er bróðir Lár-
usar bónda Helgasonar í Kirkju-
bæjarklaustri.
Heiðursdoktor. Sigfús Blöndal
bókavörður í Kaupmannahöfn hef-
ir dvalist hér í bænum í sumar, til
þess að leggj a síðustu hönd á hina
miklu orðabók sína. Hinn 4. des.
næstk., á tveggja alda afmæli síra
Björns Halldórssonar í Sauðlauks-
dal, fyrsta orðabókarhöfundar á
íslenska orðabók, kemur síðasta
heftið út af orðabók Sigfúsar. En
sjálfur varð Sigfús fimtugur í
fyrradag og þess tilefnis hefir
heimspekisdeild Háskólans sæmt
hann doktorsnafnbót.
Réttarfarið.
Einn þjófurinn reiddist og dóm-
arann drap.
þá drafaði landsstjómin rög:
„Já, tarna var norrænt og nátt-
úrlegt skap. —
Vér nemum burt hegningarlög".
■ $?'
Umsóknarfrestur um prestsem-
bættið hér í Reykjavík var út-
runninn um mánaðamótin. Hafði
enginn sótt annar en síra Friðrik
Hallgrímsson. Verður hann því
sjálfkjörinn.
Góður gestur. Hér hefir verið á
ferð undanfarið besti píanóleik-
ari Dana, ungfrú Johanne Stock-
marr, og hélt hljómleika í Nýja
Bíó síðastliðinn miðvikudag. Var
frábær unun að heyra leik hennar.
En höfuðstaðarbúum var það til
litils sóma hve salurinn var fá-
skipaður.
Strand. Tvö mótorskip af Akur-
eyri, Báruna og Hvítanes, rak
norðanvindur á land á Húsavík
nýlega. Annað skipið, Hvítanes,
brotnaði mikið, svo að vonlaust er
að því verði bjargað. Báran skemd
ist aftur á móti lítið.
Jakob Kristinsson hefir þýtt og
endursamið merkilega bók um
skapgerðarlist eða siðspeki. Verð-
ur sagt frá efni hennar í næsta
blaði.
Samningar eru nýlega gerðir
milli útgerðarmanna og sjómanna
um kaupgjald á togurunum til 1.
okt. 1925, að undanskildri síldar-
vertíðinni. Fasta mánaðarkaupið
háseta hækkar um 18%, úr 220
kr. sem það var og aukaþóknunin
Frá landssímanum.
Vegna gengishækkunar krónunnar lækka símskeytagjöld til út-
landa og loftskeytagjaldið frá 1. næsta. mánaðar að telja. T. d. lækkar
gjaldið fyrir 10 orða skeyti tii Danmerkur og Englands úr kr. 7.05
niður í lcr. 6.15, til Noregs úr kr. 8.40 niður í kr. 7.30, til Svíþjóðar
úr kr. 10.70 niöur í kr. 9.30 og hlutfallslega til annara landa.
Reykjavík, 29. september 1924.
O. Forberg.
Hin heimsfrægu
Barratt’s baðlyl
eru best og ódfrust.
Til kaupfélaga!
H.f. Smjörliliisgerðin í Reyltjavílí er stofnuð í
þeim tilgangi, að koma hér á smjörlíkisframleiðslu, sem geti fyllilega
jafnast á við samskonar iðn erlendis, bæði hvað gæði og verð snertir.
Eflið íslenskan iðnað.
Biðjið um ,Smára‘-smjörlíkið.
á lifrartunnu hækkar úr 25 kr. í
30 kr.
Stórkostlega góða sölu á ísfiski
síðustu veiðifarar sinnar hefir
togarinn Belgaum fengið á Eng-
landi. Söluverðið var 3455 ster-
lingpund. Með núverandi gengi
sterlingspundsins er það meir en
100 þúsund krónur íslenskar.
Kaupgjaldsdeilur eru í aðsigi á
Akureyri. Hafa vinnuveitendafé-
lagið og verkamannafélagið birt
sinn kauptaxtann hvort og er taxti
vinnuveitendafélagsins 2% hærri
en gamli taxtinn frá í fyrrahaust,
en verkamannafélagstaxtinn 30—
50% hærri.
Guðmundur Vilhjálmsson fram-
kvæmdastjóri Sambands íslenskra
samvinnufélaga á Englandi er
staddur í bænum og dvelst hér í
vikutíma.
Kvennaskóli Reykjavíkur átti
50 ára afmæli í þessari viku.
„Hlín“, ársrit sambands norð-
lenskra kvenna, 8. árgangur, er al-
veg nýkominn hingað suður.
Ágætt rit að vanda. Er fylsta
ástæða til að hvetja menn og kon-
ur um alt land til að eignast rit-
ið. Ritstjórinn er Halldóra Bjarna
dóttir, Háteig Reykjavík. Fjöldi
höfunda ritar í Hlín, konur og karl
ar, hvaðanæfa að af landinu, og
mest fjallar ritið um heimilisiðn-
að, heilbrigðismál, garðyrkju,
uppeldismál og mentamál kvenna.
Verður síðar meir sagt af riti
þessu.
Svargrein bíður næsta blaðs, til
Berlémes stórkaupmanns, sem rit-
ar í útlend blöð um íslandsbanka-
málið.
----o----
ffir landamarin.
— Fenger, Egill Jacobsen og aðrir
útgefendur Mbl. bera sjaldan við að
svara greinum fyr en eftir 3—4 daga.
Heilinn starfar óvenjulega hægt, ef
eitthvað reynir á skilninginn. Síst
furða, þótt þeir álíti þörf á sterkum
vinum til að örfa.
Fenger ræðst illúðlega á J. M. í blaði
þeirra út af stjórnarráðsfiskinum.
Dróttar að seljanda, sem var stjórn J.
M., að fiskurinn hafi verið svikinn og
spilt markaði ytra. En stjórn J. M.
seldi fiskinn sem fyrsta flokks vöru,
og var það skráð í uppboðsbækurnar
í Viðey. Undirmaður J. M., dómarinn
í Hafnarfirði, útnefndi síðan menn, er
endurtóku umsögn landsstjórnarinnar
um að hér væri fyrsta flokks vara.
Fenger sýnist hér nokkuð frekur í
skiftum við stjórn J.M., er hann vill
sanna á hana æruleysi.
Jón Magnússon og Valtýr virðast
hafa tekið undarlega vel eftir þeim
orðum í Komandi árum, þar sem tai-
að var um drykkjuslark sumra ísl.
stúdenta í Khöfn, og að of margir hafi
þar farið í hundana siðferðislega.
Sýnist andi þeirra svífa yfir kvein-
stöfum Mbl. í kvæðinu Hafnarsælan
segir Matthias um svona lánleys-
ingja:
„Sárt er þeim föður, er sendi þig um
haf,
ef soninn veit hann sitja við svínanna
draf“.
Ilér er sennilega átt bæði við þá sem
á æskuárum hafa eyðilagt heilsu og
manndóm með drykkjuslarki og
óreglu í Khöfn, og hina, sem þar hafa
gert samning við útlenda menn um
að vinna móti landi sínu fyrir fasta
féfúlgu. Um hvorutveggja má segja,að
liiutaðeigendur sitja við „drafið“.
Garðar er orðinn hræddur við svika-
heimspekina, er hann sér að brodd-
unum kunni að verða stefnt að versl-
un hans, og vill líklega vinna til að
hætta að ofsækja bændur vestra til að
sleppa við umtalið um síldarbraskið
og tímann, þegar hann lá og lét lítið
á sér kræla. Væntanlega hefir hann
getað skrifað í Mbl. frá útlöndum,
eins og Mbl. áleit að Tíminn gæti feng
ið greinar úr öðrum löndum.
Fenger er nú að renna niður norska
brennivíninu. Sýnist ekki þora á út-
lenda vígvöllinn. Býst líklega við að
frjálslyndir menn i Noregi, sem halda
brennivínsliðinu þar niðri, muni ekki
blikna eða blána, þótt Tíminn endur-
taki skoðun meiri hluta norsku þjóð-
arinnar, um hvatir íhaldsins tii að
auka áfengisbölið þar í landi.
Fenger og Garðar játa með þögn-
inni, að erlendis spyrji fáir eftir hvað
þeir leggi til almennra mála. Lesend-
ur Mbl. munu af sorglegri reynslu
skilja ástæðuna. pvi beiskari mun
þeim kumpánum sá kaleikur, að eitt
af höfuðblöðum íhaldsins danska fer
að bergmála ræður andstæðinga
þeirra hér á landi. En kenna mega
þeir enn um glópsku sinni. Enginn
hefði borið saman þessa hlið á Tima-
mönnum og „dótinu", ef þeir hefðu
ekki gcfið tilefni.
Hver er brauðfæðandi Valtýs? Ekki
Garðar, Fenger eða Proppé, þótt ein-
hver þeirra kunni að greiða honum
nokkra silfurpeninga mánaðarlega.
Sá er hinn eiginlegi brauðveitandi
Valtýs, sem knýr eigendur blaðsins til
að eyða tugum þúsunda á ári í pappír
og mannaleigu. X.
Með hinni gömlu, viðurkendu
og ágætu gæðavöru
Herkules þakpappa
sem framleidd er á verksmiðju
vorri „Dortheasmindeu frá því
1896 — þ. e. í 28 ár — hafa
nú verið þaktir í Danmörku og
Islandi.
ca. 30 milj. fermetra þaka.
e
Fæst alstaöar á Islandi.
Hlutafélagið
jens WÉm Fobrikker
Köbenhavn K.
Ríkharður Jónsson
myndhöggvari
Smiðjustíg 11
kennir teikningu og heimasmíðar
i vetur.
Markaskrá fyrir landnám Ing-
ólfs Arnarsonar á að búa undir
prentun í vetur, og markasöfnun
að fara fram nú í októbermánuði.
Ilvert mark á að skrifa greinilega
sér á seðil, er sé á stærð við fjórða
hluta úr póstpappírsörk, þannig,
að í fyrstu línu sé hægra mark, í
2 línu vinstra, í 3. línu brenni-
merki (ef til er), í 4. línu nafn
markeiganda, í 5. línu heimili og
sveit, og sé ekkert annað ritað á
seðilinn. Aðrar upplýsingar eiga
markasafnendur að geta gefið, og
þeir taka við markgjaldinu. Kunn-
ugt er um þessa markasafnara:
pingv. Einar á Kárastöðum,
Grafn. Kolbeinn á Úlfljótsvatni,
ölv. Steindór á Egilsstöðum, Selv.
þórarinn á Bjarnastöðum, Gr.vík
Guðmundur á þorkötlustöðum,
Hfhr. Guðmundur á Staðarhóli,
Gerð. Jón Ásm. Rafnkelsstöðum,
Kflv. Andrés á ólafsvelli, Vlstr.
Erlendur á Kálfatjörn, Hf. þor-
varður frá Ófriðarrtöðum, Rvík
þórður á Bjarmalandi, Mosf. Björn
í Grafarholti, Kjal. Ólafur í
Brautarholti. (óvíst um safnara á
Miðn., Bess. Ghr., Seltj. og Kjós).
Grh., 2. okt. 1924.
B. B.
Mesti sægur fólks hefir streymt
til bæjarins undanfarna daga.
öll skip full farþega, sem komið
hafa, mest af því er vitanlega
námsfólk.
H.f. Jón Sigmundsson & Co.
SYuntuspennur
Skúfhólkar,
Upphlutsmillur og
og alt til upphluts.
Trúlofunarhringarnir
þjóðkunnu. Mikið af steinhringum.
Sent með póstkröfu út um land
ef óskað er.
Jón Sigmundsson gullsmiður.
Sími 383. — Laugaveg 8.
Faðir minn, porvaldur Erlendsson,
lést á heimili mínu í dag.
þaS tilkynnist hér meS vinum og
vandamönnum.
Litlubrekku, 28. sept. 1924.
GuSmundur porvaldsson.
Við undirskrifuð bönnum hér
með alla rjúpnaveiði í löndum okk-
ar, án samþykkis okkar. Brjóti
nokkur þetta bann okkar, verður
hann tafarlaust kærður.
Halldóra Pétursdóttir,
Efstabæ.
þorkell Pétursson,
Litla-Botni.
Helgi Jónsson,
Stóra-Botni.
Undirritaðir bönnum hér með
alla rjúpnaveiði í löndum okkar í
haust.
Beinteinn Einarsson,
Grafardal.
Jón Pétursson,
Draghálsi.
Jón Einarsson,
Glammastöðum.
Bjami Bjarnason,
Geitabergi.
Ólafur Magnússon,
þórustöðum.
Guðmundur Guðbrandsson,
Stóru-Drageyri.
Guðmundur Jónsson,
Litlu-Drageyri.
Hestur tapast.
Frá Esjubergi á Kjalarnesi tap-
aðist seint í ágúst bleikgrár hest-
ur, 6 vetra, mark: Stýft hægra,
heilrifað vinstra. Hver sem hittir
hest þenna er beðinn að tilkynna
það Kjartani Stefánssyni, Eski-
hlíð, Reykjavík, eða í síma 1305.
Tapast hefir, úr geymslu frá
Efra-Hvoli, hestur móálóttur að
lit, ómarkaður, nýjárnaður skafla-
skeifum. Finnandi vinsamlega beð
inn að koma honum til Einare
hreppstjóra, Garðsauka.
Bækiir bókaféla.g’sins
Islandssaga Jónasar Jónssonar,
fyrra hefti, og dýrafræði annað
hefti, fást í Reykjavík í Bókabúð-
inni Laugavegi 46, og í búð þorst.
Gíslasonar í húsi Magnúsar
Ben j amínssonar.
SaimfinnumQtuneftið
í ungmennafélagshúsinu hefir sér-
staklega þjóðlegan mat, kartöflur
frá Reykjum, gulrófur frá Bessa-
stöðum, kjöt af feitustu sauðunum
úr Bárðardal og Mývatnssveit,
reyktan silung frá mestu veiðijörð
við Mývatn og hangikjöt reykt við
eini úr Aðaldalshrauni.
Ritstjóri: Trvggvi þórhallsson.
Prentsmiðjan Acta.