Tíminn - 06.12.1924, Qupperneq 4
194
T I M I N N
Notað
um allan
heim.
Árið 1904 var
i fyrsta sinn
þaklagt i Dan-
mörku úr
— Icopal. —
Besta og ódýrasta efni í þök. Tíu ára ábyrgð á þökunum.
Þurfa ekkert viðhald þann tíma.
Létt -------- Þétt --------- Hlýtt
Betra en bárujárn og málmar. Endist eins vel og skífuþök.
Fæst alstaðar á Islandi.
Jens Villadsens Fabriker,
Köbenhavn K.
Biðjið um verðskrá vora og sýnishorn.
fcó ^ ^f> W W W W ^ W(
C/\ C?\ 4>\ C?s Cr\ £2\ Cr^ 42\ C2\ /O /O /O /O /O /O /O /O /O /O /O /
“■ ^ Biðjið um
Capsian, |
Navy Cuí I
Medium *|
reyktöbak. |
Verð kr. 4,60 dósin, ‘/4 pund ^
ísfirðingum. Lauslegt samband
var stofnað og var P. J. formaður
þess.
1 „Ófeigs“greininni víkur P. J.
að þessari tilraun, sem var á und-
an tímanum, einskonar góugróð-
ur. Sjálfur hafði hann verið þar í
fararbroddi. Nú er vesalings
Fenger svo sljór, að hann heldur
að P. J. hafi ekki ætlast til að
Sambandið næði yfir nema þrjú
félög, þó að hann stýrði hálfu
stærra sambandi 1895, og núver-
andi Sambandi með um 40 félög-
um síðustu árin sem hann lifði.
það þarf „moðhausavit“ til að
gera ráð fyrir því, að P. J. hefði
árum saman verið formaður í fé-
lagi 13 sinnum stærra en hann
vildi láta það vera. P. J. tekur
beint fram, að Sambandið þurfi að
hafa verslunarmálin með höndum.
Að félögin (þau voru þá í flestum
landbúnaðarhéruðum) þurfi að
koma fram sem ein persóna út á
við. Hann hefir einmitt sjálfur
það orð, að þau þurfi öll að vera
solidarisk út á við, þ. e. hafa sam-
ábyrgð sín á milli, til að geta afl-
að sér veltufjár með hagkvæmum
lánum. þau verði að hafa fulltrúa
erlendis til að kaupa og selja vör-
urnar erlendis. 1 stuttu máli: P. J.
ætlar kaupfélögunum að mynda
yfirfélag, heildsölu eða samband,
eins og nú er orðið. Réttum 10 ár-
um áður hafði föðurbróðir Garð-
ars Gíslasonar, Einar í Nesi, sem
var jafnmikið afbragð að greind
eins og G. G. er að gagnstæðum
eiginleika, lýst skipulagi Sam-
bandsins, eins og það er nú. þar á
meðal gerir hann ráð fyrir sam-
vinnublaði til að fræða almenning
um verslunarmálin og hnekkja
blekkingum kaupmanna. Og föð-
urbróðir Garðars segir 1891, að
þetta blað þurfi að komast „inn á
hvert heimili", eins og Kirkjublað-
ið. Einar í Nesi, Benedikt á Auðn-
um, Sigurður í Ystafelli og Pétur
Jónsson vissu allir um samtök og
skipulag erlendra kaupfélaga og
stefndu að því marki, sem nú er
náð: Alls'nerjarsambandi kaupfé-
laga á íslandi. Fenger segir, að P.
J. hafi ætlast til að öll kaupfélög
væru skuldlaus um áramót. Vita-
skuld var hugsjón hans og annara
Alfa-
Laval
skil vindnr
reynast best.
samvinnumanna enn hærri, sú, að
félögin væru aldrei skuldug, þ. e.
að þau ættu sjóðeignir, sem væru
nægilegt veltufé. það er vafasamt
hve vel Fenger ferst að brigsla ís-
lenskum bændum um skuldamál.
En svo mikið má segja, að mörg
íslensk kaupfélög eru nú skuldlaus
út á við um áramót. Nokkur eiga
inni. Sum skulda, en öll minna en
verslun Fengers sjálfs. Og þær
deildir Sambandsins, sem skulda
eitthvað, eru minna skuldugar nú
en síðustu missirin sem P. J.
stýrði Sambandinu. Er það ekki
sagt honum til ámælis, heldur að
gefnu tilefni, vegna þess, hversu
braskaralýður landsins vill rang-
lega eigna sér hann og starf
hans.
,,Ófeigs“-greinin ber með sér að
P. J. var svo sannfærður um gildi
og réttmæti samábyrgðarinnar, að
í þessari grein býr hann kaupfé-
lagsmenn þingeyinga undir að
gera þurfi samábyrgðarákvæðin
skýrari í Kaupfélagi þingeyinga.
Ennfremur segir hann, að sam-
ábyrgð eigi að vera í hinu fyrir-
hugaða sambandi. í þriðja lagi var
hann með til að setja samábyrgð-
ina inn í sambandslögin 1916 og
stýrði Sambandinu með þeim
reglum meðan hann lifði. I fjórða
iagi greiddi hann 1921 óhikað at-
kvæði með því, að lögfesta sam-
ábyrgðina, sem séreinkenni kaup-
félaga á Islandi.
Hér með er tæmandi lýst af-
stöðu P. J. til Sambandsins og
samábyrgðarinnar. Berléme og
Fenger munu héðan af varla þora
að láta blað sitt falsa frásögn um
þessa hlið á æfi P. J. — En um
hitt, að P. J. hafi verið á öndverð-
um meið við Framsóknarþing-
menn eða Tímann um mikilsverð
þingmál, þá er það með öllu ósatt.
M. a. studdi Tíminn P. J. nálega
einn allra blaða er hann bar fram
korneinkasölufrumvarp sitt, þegar
„dótið“ sveik hann. Væri æskilegt
að Fenger fengi „moðhausinn" til
að ganga gegnum þingtíðindin frá
1916—1921 og vita, hve mikinn
ágreining er hægt að finna þar
milli P. J. og Framsóknarmanna
um hin stærri mál. Gæti þá svo
farið, að hinir gömlu félagar Pét-
P&ntanir annast lr.aupfé-
lög út um land, og
Samband ísl. samv.félaga.
T. W. Buch
(Iiitasmiðja Buchs)
Tietgensgade 64. Köbenhavn B.
Litir til heimalitunar:
Demantssorti, hrafnssvart, kastorssorti, Parísarsorti og allir
litir, fallegir og sterkir.
Til heimanotkunar:
Gerduft, „fermenta“, eggjaduft, ávaxtadropar, soya, matar-
litir, „Sun“-skósvertan, „Ökonomu-skósvertan, sjálfvinnandi
þvottaefnið „Persilu, „Henkou-blæsódinn, „Dixinu-sápuduftið,
„Atau-skúriduftið, kryddvörur, Blaanelse, Separatorolie o. fi.
Brúnspónn.
Litarvörur:
Anilinlitir, Catechu, blásteinn, brúnspónslitir.
Gljálakk:
„Unicumu á gólf og húsgögn. Þornar fijótt. Agæt tegund.
Fæst alstaðar á íslandi.
urs, J. M., J. þ. og Guðjón á Ljúfu-
stöðum gætu sanníært ara. að
þeim mun engin heill eða sæmd
standa af því, að ónáða dáinn
mann í gröf sinni og reyna að út-
breiða falskar hugmyndir um að ;
hann hafi svikið meginhugsjón 1
sína. J. J. 1
Ef ekki eru önnur ráð, þá sé úr
skorið með nýjum kosningum
hvort yfir þjóðina á að riða sú
miskunnai’lausa afturhaldsalda
óbrotin, sem nú er hafin.
BúnaðaiTánadeiídin.
Frh. af í. síðu.
Framsókn má hvergi eiga sér
stað á íslandi nú. Ihalda í algleym-
ingi á nú að ráða á íslandi.
Yfirdrepsástæður eru fundnar
til afsökunar. þær eru allar fyrir-
sláttur og ekkert annað.
Sanna ástæðan er þessi:
Ihald, vægðarlaust afturhald á
að ríkja á íslandi: Háir vextir,
þrátt fyrir góðærið, hár verðtoll-
ur á neysluvörur, svo breiðu bök-
in þurfi ekki að borga tekjuskatt,
allar opinberar framkvæmdir
stöðvaðar og umfram alt ekki
stofna Búnaðarlánadeild fyrir
bændur. þeir mega ekki með neinu
móti sækja rfam.
Sannarlega kafna þeir ekki und-
ir nafni íhaldsmennirnir íslensku
— mennirnir sem að dómi Jóns
þorlákssonar sjálfs einblína á sína
eigin pyngju og hafa hag þjóðar-
innar ekki fyrir augum (sbr. Lög-
rétta 10. tbl. 1908).
Hversu lengi ætla bændur ís-
lands og borgarar að þola yfir sér
svo takmarkalaust afturhald, sem
allra skaðvænlegast er landbúnað-
inum?
Afturhald er versti fjandmaður
landbúnaðarins.
Framsóknin er lífsskilyrði hans.
Einum rómi ættu bændurnir ís-
lensku að hrópa:
Steypist af stóli sú landsstjóm,
sem vill kæfa allar framfarir hjá
bændastéttinni!
Steypist af stóli sú landsstjóm,
sem beitir því gerræði að svifta
bændur þeirri réttarbót, sem Al-
þingi hefir veitt þeim!
H.f. Jón Signiundsson & Co.
Mannslát. Gísli Jónsson útvegs-
bóndi frá Vík í Grindavík varð
bráðkvaddur um síðustu helgi, í
bifreið milli Reykjavíkur og Hafn-
arfjarðar.
Myndarleg gjöf. Alþýðumaður í
Reykjavík afhenti dómkirkju-
presti nýlega 1000 kr. gjöf til
Hallgrímskirk j unnar.
Mentamál. Mentamálablað, með
því nafni er byrjað að koma út.
Ritstjóri Ásgeir Ásgeirsson kenn-
ari og alþm. Afgreiðsla er í Lauf-
ási.
Merk kona lést hér í bænum í
fyrradag, frú Bryndís Zoega, kona
Geirs rektors. Ættuð var hún úr
Breiðafirði, fædd í Flatey 1857,
dóttir Sigurðar kaupmanns Jóns-
sonar í Flatey. Framúrskarandi
fríðleiks og gæðakona var frú
Bryndís og óvenjulega myndarleg
húsmóðir á stóru heimili. Eignuð-
ust þau hjón sex börn og lifa
fimm: Geir landsverkfræðingur,
Guðrún kona þorsteins hagstofu-
stjóra, Sígríður ljósmyndari, Ás-
laug kona Hallgríms Benediktsson-
ar stórkaupmanns og Jófríður
cand phil.
Jarðarför Guðmundar Magnús-
sonar prófessors fór fram í fyrra-
dag að viðstöddu alveg óvenjulega
miklum mannfjölda.
Vínsmyglun enn. Fengsæl er lög
reglan enn. Um miðja vikuna varð
það uppvíst að miklar vínbirgðir
voru fólgnar í hinu mikla kola-
skipi sem hér hefir verið á höfn-
inni lengi undanfarið . Leikur
grunur á að áfengið hafi verið
flutt hingað á „Veiðibjöllunni" og
hafa menn verið settir í gæsluvarð
hald til yfirheyrslu. Lögreglan
hefir alls flutt í land: 119 kassa
og alt til upphluts sér-
lega ódýrt. Skúfhólkar
úr gulli og silfri. Sent
með póstkröfu út niu
land, ei óskað er.
Jón Sigmundsson gullsmiður.
Sími 383. — Laugaveg 8.
Auglýsíng.
Tapast hefir hestur, rauður að
lit, ljós á fax og tagl, með litla
stjörnu í enni. Mark: Sýlt bæði
eyru.
Verði einhver var við hestinn,
er sá vinsamlega beðinn að gera
undirrituðum viðvart,gegn ómaks-
launum.
Blönduósi, í ágúst 1924.
Steingr. Davíðsson.
af spíritus og voru 40 lítrar í
hverjum kassa.
Fiskflutningaskipið „Thorun“,
sem talið var af, kom til Seyðis-
fjarðar í gær. Hafði hrept hrakn-
inga mikla, en allir menn voru
heilir.
Slys. Botnvörpungurinn Otur
kom inn með fimm memi meidda
nýverið. Kom sjór yfir skipið, er
peir voru að gera að fiski, og köst-
uöust þeir til og meiddust.
Mislingainh- eru heldur í rénun
hér í bænum og breiðast lítið út
um landið enn.
Frá Leikfélagi Akureyrar hefir
Tímanum borist sú athugasemd,
að mynd sú úr Fjalla Eyvindi, er
var 1 Review of Reviews, og um
var getið í 41. tbl. Tímans, hafi
ekki verið af Andrési heitnum
Björnssyni, heldur af Haraldi
Björnssyni, er hlutverk Arnesar
iék nyrðra.
Leiðrétting. I auglýsingu frá
Rakarastofu Sigurðar Ólafssonar
í síðasta blaði misprentaðist orðið
sléttur í stað léttur.
Yfir landamærin.
Grimsby-lýðurinn hérlendi þykist
ætla að skapa bókmentafrömuði til
jafns við Snorra Sturluson. Skyldi
þeim ekki standa nær að eignast fyrst
mann sem er sendibréfsfær?
Valtýr segir, að byltingarkendur
kvöldskóli hafi eitt sinn verið í Sam-
bandshúsinu. > Einn ve.tur hefir þar
verið kvöldskóli. Nemendur náiega ein
göngu ungar stúlkur úr sveit, sem
lærðu tungumál og íslenska bók-
mentasögu. Engin þeirra hefir víst
komist i kynni við aðra byltingu um
dagana en að heyra „fjólupabbann"
„byltast" eftir stigum hússins.
Marðar-fólki þykir heldur verða lít-
ið úr þórarni á Hjaltabakka, er hann
þorir ekki að svara til um rógmælgi á
íundum i fyrra og áður auðsýndan
læpuskap gagnvart ofbeldistilraun i
garð Alþingis.
Mbl. segir, að Halldór Steinsson sé
nú orðinn forkólfur fyrir verkamanna-
félagi i Ólafsvik. Samkvæmt kenning-
um Mbl. er maðurinn „bolsi“. Ætlar
Halldór að svíkja dótið, verkamenn-
ina eða báða?
í fyrstu grein sem „Sjö-vikna-
Lúter" blaðamenskunnar ritaði fyrir
síldarfólkið um prúðmannlegt orð-
bragð, voru þessar „Ólafs (Thors)
fjólur": strákslegt og skrílslegt orð-
bragð, lúaleg tök, fiflskapur, negra rit-
háttur, skrifa sem tuddalegast, lubba-
legt og rætið orðbragð, hrakleg fram-
korna, svívirðileg herför (er þ. G.
fletti ofan af Fenger), taumlausar
blckkingar, níð, verstu gróðrarstíur.
Siðavandarinn endaði á því, að „Mörð-
ur“ hefði alt af verið fyrirmynd í hóg-
værð og kurteisi! X.
Ritstjóri: Tryggvi jþórhallason.
PrentsmiBjan Acta.