Tíminn - 02.05.1925, Blaðsíða 2

Tíminn - 02.05.1925, Blaðsíða 2
82 TlMINN Aðflutningsbann á áfengi. Hvað hefir gerst síðan íslenskir kjósendur kváðu upp úrskurð sinn' með bannlögunum? Margt hefir gerst. Mörgu hef- ir sannarlega verið umturnað, svo að nú veit niður það sem þá vissi upp. En ekki ein einasta af þeim niðurstöðum vísindanna, sem bannmennirnir bygðu á, hef- ir afsannast. Ef eg fer með rangt mál, þá bið eg um leiðréttingu. En auk þess sem hinar gömlu stoðir standa óhaggaðar, hafa nýjar bæst við, nýjar staðreyndir banninu í vil. þjóðin okkar var forgönguþjóð 1908. Hún bar vit og gæfu til þess að ganga á undan öðrum þjóðlöndum í þessu máli. En síð- an hafa ýms ríki önnur gengið þessa sömu braut, þar á meðal Bandaríkjamenn Norður-Ameríku og eru þeir þó ekki að jafnaði taldir öðrum þjóðum óvitrari. Og enn aðrar þjóðir hafa á þessu tímabili verið að starfa að því í fullri alvöru og eru enn að starfa að því að lögleiða hjá sér aðflutn- ings- og tilbúningsbann á áfengi. Ýmsir merkustu stjórnmálamenn heimsins hafa látið uppi það álit sitt, að fullkomið áfengisbann sé eina hugsanlega leiðin til að forða þjóðfélögunum frá einum stærsta voða hvíta kynflokksins, áfengis- bölinu. Séu nú þessar þjóðir og þessir menn óvitar, en andbanningarnir íslensku vitrir, þá eru víst farin að verða endaskifti á nokkuð mörgu. Og hvað hefir gerst hér á þessu landi síðan 1909? það mundi ef til vill vera aðalkjarni málsins. Eg skal segja ykkur hvað hefir gerst. I fyrsta lagi hefir það gerst, að þrátt fyrir mjög ófullkomin bann- lög, sem alt af hafa verið skemd meira og meira, og þrátt fyrir mjög slælegt eftirlit af hálfu löggæsluvaldsins, og þrátt fyrir það, þótt stundum hafi átt að gæta laganna menn, sem af ýms- um orsökum eru gersamlega óhæf ir til þess starfs, — þrátt fyrir alt þetta hefir þó það gerst, að stór svæði af landinu hafa orðið alveg „þur“. Eg hefi ferðast um sveitir hér á landi og átt tal við gamla drykkjumenn. Dx-ykkju- mennirnir gömlu drukku frá sér vit og rænu í hverri kaupstaðar- | ferð og oft endi'anæi’, alt þangað til bannlögin gengu í gildi. Nú segjast þeir ekki hafa smakkað deigan dropa í mörg ár, og þeir segja það með sárum söknuði — sumir. Bindindissinnuðu mennirn- ir vilja gjarnan halda uppi Good- Templarastúkum í þessum sömu bygðarlögum. þær þrífast þar vel á fyrsta tug aldarinnar. Nú segja þeir, að þetta sé ókleift, af því að áfengisnautn þekkist þar ekki; það sé ekki við neitt að berjast. En í öðrum hlutum landsins, einkum í kaupstöðum og sjó- þorpum, og allra helst hér í höf- uðstaðnum, hefir gerst annað enn merkilegra. það er þetta: Fyrstu ái’in eftir að bannið var lögleitt, þetta ófullkomna bann með þessu ófullkomna eftirliti, mátti heita að drykkjuskapur hyrfi. Áfengis- nautnin minkaði svo mjög, að góð von var um að hún legðist alveg niður á tiltölulega skömmum tíma. En svo koma tilslakanir á iögunum, hver á eftir annari, og síðast sú stórfeldasta, undanþág- an 1922. Og með hverri tilslökun hefir di’ykkjuskapurinn aukist og mest við þá síðustu. Hvað sannar þetta? það sannar það, sem menn með opin augu vissu áður, að því full- komnari sem bannlögin eru, þess minni er áfengisnautnin, og því ófullkomnari sem lögin ei’u, þess meira er drukkið. - Röki'étt hugsun segir: Reynsla vor hefir kent, að fullkomið bann með samviskusamlegu eftirliti minkar áfengisnautnina ,svo mik- ið, að hún alt að því hverfur með öllu. Afnám allra hafta á sölu og aðflutningi áfengis eykur drykkjuskap svo mjög, að vér, sem nú lifum, höfum varla eða ekki séð þess dæmi, því að fæstir af oss muna þá tíð, er engar höml ur voru í þessu efni. þjóðin bað um bannlög til þess að útrýma áfengisnautn úr land- inu. Reynslan hefir sýnt, að þetta var x’étta leiðin. Hvers vegna skyldi þá þjóðin hafa skift um skoðun síðan 1908? Krafa þjóðarinnar er því enn og vei’ður alla tíð, uns fullnægja er fengin, þessi sama: Látið oss Smásöluverd má ekki vera hærra á eftirtöldum tóbakstegundum, en hér segir: "V in.cila.r. Fleur de Luxe frá Mignot & de Block Fleur de París — sama London Bristol Edinburgh Perla Copelia N. Törring sama sama E. Nobel. sama . Kr. 1.20 pr. ’/io Pk; 1.45 1.45 1.25 1.10 1.00 10.95 — Vx 6.60 — */* Vio V10 Vio V» VlO ks. Phönix Opera Whiffs frá Kreyns & Co. Utan Reykjavíkur má verðið vera því hærra, sem nemur flutn- ingskostnaði frá Reykjavík til sölustaðar, en þó ekki yfir 2°/0- laandsverslun íslands. Kappreiðar. Á annan í hvítasunnu, mánudaginn 1. júní n. k. efnir hestamanna- félagið Eákur til kappreiða á Skeiðvellinum við Elliðaárnar. Verðlaun verða kr. 200 — 100 — 50 — fyrir hvorutveggja skeið og stökk og auk þess 15 kr. handa fljótasta hestinum í hverjum flokki á stökki. Lámai’kshraði til I. verðl. á skeiði er 25 sek. á 250 metrum og lámarkshraði til I. verðl. á stökki er 24 sek. á 300 metrum. Enginn skeiðliestur færfverðlaun, sem lengur er að renna sprettfærið en 27 sek. Gera skal aðvart urn hesta þá, sem reyna skal, Daníel Daníels- syni. dyraverði í stjórnarráðinu eigi síðar en fimtudaginn 28. maí á hádegi. Þeir hestar, sem keppa eiga/ skulu vera á Skeiðvellinum föstu- daginn 27. maí kl. 6 síðdegis. Félagið annast urn sölu á reiðhestum kappreiðardaginn ef óskað verður en tilkynna verður Daníel Daníelssyni viku áður. Stjörnin Vagnhjól skólinn yrði reistur á Laugai’- vatni, þá var það ékkei’t frekar ætlun hreppsbúa eða mín, að jörð- in yrði keypt; heldur að skólinn fengi lóð, afnot af hvei’num, byggingarefni, sem fyrir hendi er og þ. h. En þess var strax kraf- ist á sýslufundi, þar sem þetta boð kom fyist fram, að eg gæfi jörðina fala. þetta veit nefnd sú, er með mál þetta hefir farið mjög vel. þetta boð stendur enn, ef vill. Eg læt þessa getið af því, að eg hef heyrt, að ýmsir teldu það óþarfa stofnkostnað, að kaupa jörðina. í því sambandi vildi eg aðeins benda á, að mjög er þá horfið frá þeirri hugmynd, að búa bændur og húsfreyjur í sveit sem best undir lífsstarf sitt, jafnt verklega sem andlega, ef skólinn þarf ekki að eiga góða bújörð. En um þetta hefir annai’s og má enn velja hvað viðkemur Laugarvatninu. öðru hefir og verið hampað. Hverinn á nú ekki að vera not- hæfur af því vatnið renni í hann svo hann sé kaldur öðru hvoru. í þau 36 ár sem eg hefi þekt þarna til, hefir þetta komið eitt- hvað 4—5 sinnum fyrir, í aftaka vorleysingum, og stendur aðeins yfir part úr dægri og er þá hver- inn auðvitað oi’ðinn jafnheitur og áður, næsta dag. Annars vii’ðist nú sýnilegt, að þetta gæti ekki komið fyrir, ef steypt væri yfir hverinn til að ná gufunni. Fleira hii’ði eg ekki um að svo stöddu. Laugai’vatni 16. api’íl 1925. Böðvar Magnússon. frá Moelven ZBmJLg- o- fást hjá Sambandí isl. samvínnufélaga. fá fullkomin bannlög og fram- fylgjið þeim samviskusamlega. þessi fundur á að undirstryka þessa ki’öfu með því að sam- þykkja svolátandi tillögu: „Fundurinn telur aðflutnings- bann á áfengi sjálfsagt og krefst þess, að lög um það verði svo úr garði gerð, að þau komi þjóðinni að fullum notum“. Sig. Jónsson. ----o----- Athugasemd. Út af ýmsum missögnum um tilboð mitt um sölu á eignarjörð minni Laugarvatni, til skólaset- urs fyrir Héraðsskóla Suðui’lands vildi eg gefa almenningi þessar upplýsingar. 1 fyrstu, þegar Laugardals- hreppur bauð að gefa til skólans 10 þús. kr. með því skilyrði, að Rafvirkjun í sveitum. Eftir Höskuld Baldvinsson, rafmagnsverkfræðing. þörfin fyrir íafmagn. öllum þeim, sem eru kunnugir í sveitum lands vors mun vera ljóst hve afar-óvistleg húsakynnin eru, víð- ast hvar a. m. k. Gömlu toi’fbæjirnir eru dimmir rakir og víða kaldir. Nýrri timb- urhúsin og steinhúsin eru víðast hvar köld og saggafull. Eitthvert alstærsta verkefnið sem liggur Eggjarnar deyfðar. íhaldsflokkurinn hefir nýlega fengið í lið með sér „hæfileika- mann“ um að halla réttu máli, sem í þetta sinn kallar sig Hrein Hreinsson, og hefir hann tekist á hendur að andmæla í Morgun- blaðinu ádeilugrein sem eg skrif- aði í Tímann í vetur, undir fyrir- sögninni: Bak eða lófi, um ráða- breytni íhaldsins í garð landbún- aðarins. Sýndi eg í grein þessari fram á misræmið sem væri milli orða og athafna Ihaldsflokksins þegar landbúnaðurinn og menning sveit- anna ætti í hlut. þegar um stærstu áhugamál bænda væri að ræða, þá þyrði flokkurinn ekki að standa óskiftur á móti þeim á þingi, en þegar þeir hefðu að- stöðu til, þegar þeir skipuðu land- stjórn og hefðu fjárráð lánsstofn- ana, þá yrði minna úr á borði. Rökstuddi eg þetta með fram- kvæmd jarðræktarlaganna, við- spyrnunni sem landbúnaðarlána- deildin hlaut hjá íhaldsstjórninni, misréttinu sem væri á um lán- veitingar til verklegi’a fram- kvæmda við sjó og í sveitum, skýrskotun til íhaldsbréfsins sæla sem heimtaði kyrstöðu í sveitun- um jafnhliða óhindruðum húsa- byggingum við sjávarsíðu og tog- ara- og veiðiskipakaupum útgerð- armanna í • stærri stýl en oftast áður. Ennfremur var mint á hið sérstaka eftii’iæti við kaupmenn sem fengju óhóflegar undanþág- ur frá innfluningshöftum, sam- hliða því að hrópað var á bændur, uð spai’a. I stuttu máli var sýnt fram á það að vegur fhaldsins væri und- tr því kominn, að ófremdarástand sveitanna héldist sem lengst. það eru ekki aðeins bændurnir sem hafa fundið að hér var farið með rétt mál. Leiðtogar fhalds- ins hafa fundið þetta líka. þeir hafa verið að gera smá upphróp- anir til sveitafólksins um að þetta væri ekki satt. En rökin hefir- vantað, og hrópendurnir hafa fundið það sjálfir, að þá vantaði sannfæi’ingarstyrkleikann í i’öddina. þessvegna hefir þessi sjaldgæfi spámaður nú i’isið upp úr sinni bannfæi'ðu gröf. Er hann eini rit- höfundui’inn í þessu landi sem hefir á tvöfaldan hátt skrifað sig dauðan. Meðan hann skrifaði und- ir nafni, var nafnið sjálft eyði- legging á ritsmíðunum, en auk þess var hann settur í í’itbann af húsbændum sínum. Iíreinn Hreinsson tekur aðeins eitt af þeim atriðum til meðferðar sem eg ræddi um, jarðræktar- lögin. Reynir hann að telja mönnum trú um að þau séu eingöngu að þakka íhaldsmönnum. Magnús Guðmundsson telur hann föður þeirra og aðalfrömuð og margir Ihaldsmenn aðrir hljóta lof af þessu hjá Hreini, svo sem Valtýr ritstjóri. En Framsóknarmenn eru ekki látnir koma við sögu nema þá til ills eins. Sannleikurinn er þessi. Hug- myndina um Jarðræktarlögin átti Fi’amsóknarþingmaðurinn Eiríkur Einai’sson útbússtjóri á Selfossi. Klemens Jónsson fól Búnaðarfé- lagi íslands að búa málið í hendur Alþingis. Sigurður búnaðarmála stjóri með þeim Hallgrími Krist- inssyni og Guðjóni Guðlaugssyni sem þá vox-u í stjórn Búnaðarfé- lagsins, lögðu til allan andann í löggjöf þessa, og ráðunautarnir sennilega látnir tala með um þá hluti sem heyrðu til sérgreinum peirra. Magnús Guðmundsson var fenginn til þess eins að sjá um formshlið frumvai*psins, þ. e. vinna verk, sem hver sæmilegur lögmaður hefði getað unnið, og fyrir það eitt kallar Hreinn hann „höfund jarðræktarlaganna“. Kl. Jónsson gerði frumvarp nefndar- innar ekki að stjórnarfrumvarpi fyrir það að honum fanst vanta tengilið milli þingsins og Búnað- arfélagsins þegar fjárframlögin yrðu svo mjög aukin, fékk 'hann þessvegna landbúnaðarnefnd Nd. málið í hendur og félst hún á mál- stað Klemensar og lagði til að tveir af þremur stjórnendum fé- lagsins skyldu kosnir af Alþingi. þá reynir Hreinn að gera mik- ið úr því að eg hafi ekki deilt hinu nánasarlega fjárframlagi til framkvæmdar j arðræktarlögunum nákvæmlega með hreppatölunni, og verður það vísast hið eina í greininni sem hann getur með rökum hengt hattinn á. Eg hafði orðað það svo, að hundrað krónu seðill kæmi í hverja sveit, en ná- kvæmlega tiltekið verða það 167 krónur 47 aurar, umrætt ár, og hygg eg að bændur finni líkt til undan hvorri háðunginni sem er. öll hin atriðin í grein minni leiðir Hreinn hjá sér. Ihaldsbréfið sem sent var í hverja. sveit, ekki afsakað með einu orði, ráðabreytni Ihaldsins um landbúnaðarlánadeildina, mis- skifting lánsfjárins, misbeiting innflutningshafta, alt eru þetta sakir á Ihaldið, þar sem það kem- ur engum vörnum við. Annars er aðalkjarninn hjá Hreini Ilreinssyni sá, að alt sem Framsóknarmenn beitast fyrir til viðreisnar sveitunum, sé fals og fláræði, en hinsvegar geri íhalds- flokkurinn alt af einlægni, og þá fyrst og fremst vegna bændanna. það er vitanlega með hag al- mennings fyrir augum, sem þið á þessu þingi sviftið ríkissjóð hundruðum þúsunda króna með breytingunni á tekjuskattslögun- um, og veitið ráðherra ykkar auk þess heimild til að gefa skattinn að fullu eftir í einstökum tilfell- um, og af sama toga er það auð- vitað að þið leggið niður einkasöl- una á tóbaki og sviftið ríkisfjár- hirsluna árlega fjárhæð sem nægja mundi til þess að gera brýr yfir tvö þrjú stórvötn árlega, ell- egar koma upp heilsuhæli berkla- veikra á Norðurlandi, og hvoru- tveggja þessar fjárfórnir ykkar til ykkar eigin gæðinga, stórút- gerðarmanna og kaupmanna, mundu á allra næstu árunum geta komið upp og borgað að fullu landsspítalann og kæliskipið, sem hvortveggja verður nú að lúta í lægra haldi fyrir ykkar „aðferð“ við að vinna almenningsgagn. Og hvað aðra þessa ráðstöfun snertir, hefir ykkur þó verið bent á það hve mikil vörn gegn toll- smyglun er fólgin í einkasölufyr- irkomulaginu á tóbaki. Getið þið svaiið fyrir að toll- svik hafi freistað sumra þeirra manna, sem þið eruð nú að færa þessa fórn, og það á meðan að tollfjárhæðin var hverfandi í sam- anburði við það sem hún er nú. Rekur ykkur ekki minni til þess að maður einn úr ykkar hópi hefð- ist að tollsvik sem námu stórfé? Eg man að Réttvísin sættist á 10 þúsund króna bætur og sökudólg- urinn mun hafa þóst sleppa vel, þótt hann fengi þúsund króna hegningarsekt í viðbót. Ekkert landsmálablaðanna gat um þetta fyrirbrigði það eg man, svo að fullskýrt væri. Lítil tóbaks- auglýsing einhversstaðar úti í horni, um hið smyglaða tóbak, mun hafa komið þar að einhverju leyti til greina. þetta var áður en Tíminn varð til, og áður en þeii menn fóru að gefa sig að stjórn- málum, sem honum standa næstir. Og líklega er þetta ekki fyrsta hneykslið sem stofnað hefir til í þeirrar „samábyrgðar" sem forð-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.