Tíminn - 01.08.1925, Blaðsíða 4

Tíminn - 01.08.1925, Blaðsíða 4
138 TÍMIXN Frh. af 1. síðu geti dregið 1 efa, að það sé alveg sjálfsögð skylda löggjafa, lands- stjómar og gengisnefndar þó al- veg sérstaklega, að taka til at- hugunar hvort áfram eigi að halda að hækka krónuna, með það fyrir augum að festa á gamla gullverðinu. þar sem svo þungvæg rök liggja til að sýna hversu mikla erfiðleika það kosti, hversu ótrygg' leiðin sé og hversu óvíst sé að ■ þá sé réttlæti framið ■— er alveg sjálfsagt að athuga til þrautar hvort ekki sé réttara að fara hina leiðina og stýfa krón- una. Frá Alþingi er og komin kraf- an um að það sé gert, þó að var- Iega væri frá öllu gengið að sjálfsögðu. Engan kinnroða mun eg því bera fyrir þennan málaflutning. Mál málanna er gengismálið nú fyrir íslendinga — allra helst einmitt nú er danska og norska krónan stíga svo ört. Ekkert mál ættu íslenskir sjómmálamenn fremur að ræða alvarléga. Fyrir alla heildina er það mál málanna. En eg skal játa að fyrst og fremst tel eg skyldu mína, af því að eg fulltrúi land- búnaðarins í gengisnefndinni að fylgja málinu bændanna vegna. Enda eiga sennilega engir meir undir endanlegúm úrskurði en þeir — þegar alt kemur til alls. Tryggvi þórhallsson. Sfðasta hneykslið. Aldrei hefir íslenska þjóðin vakið eftirtekt alheims á sér jafn merkilega og þá, er samþykt var, með yfirgnæfandi meiri hluta at- kvæða, við alþjóðaratkvæða- greiðslu, að gera áfengisbölið út- lægt úr landi með aðflutnings- banni. Forgöngu hafði íslenska þjóðin þá um eitt hið háleitasta sið- ferðismál. Eitt mesta stórveldið hefir síðar komið í slóðina og önn ur fleiri ríki einnig. Af engu verð ur núlifandi kynslóð á Islandi jafnfræg og af þeirri forgöngu. Munu allir góðgjamir menn og áhugasamir um siðferðismál, af því draga réttar ályktanir um þroska og menningarástand Is- lendinga. Fyrir Island sjálft hefir lög- festing aðflutningsbannsins og tvímælalaust orðið hið mesta heillaspor — og ekki síst það að bannið fekk að standa einmitt þau árin sem það stóð. Óendan- lega miklu afleiðingaverri hefðu stríðsárin orðið, ef þá hefðu ver- ð hér iSpánarvín, eða með öllu óheftur innflutningur víns. Um margfalt sárara væri þá nú að binda. Eins og þá losnaði um öll bönd, mun óhætt að gera ráð fyr- ir, að ef vínstraumurinn hefði verið óheftur er glannaskapurinn stóð sem hæst, stæði íslensk króna nú helmingi eða mörgum sinnum lægri — svo eitt einstakt dæmi sé nefnt. Stórt skarð hefir verið höggið í múrinn síðan. En íslenska þjóð- in er samt enn bannþjóð. Óhrakin stendur yfirlýsing alþjóðar um að vilja gera áf 'igsbölið land- rækt með aðflutnlngsbanni. Að- flutningsbannslögin eru einu ís- lensku lögin sem standa á grund- velli alþjóðar atkvæðagreiðslu. þessara hluta vegna ber yfir- vcldum og landssijóm alveg sérstök skylda til að gæta þess- ara laga. En í því efni hafa mistökin orðið mest. Um framkvæmd mesta siðferðismálsins, sem ís- lenska þjóðin heimtaði fram- lwæmt, hafa valdha.hmir framið stærstar syndir. það er íslandi til jafnmikils vansa, sem laga- setningin sjálf var til heiðurs. Og sá vansi skellur á mikinn hluta þjóðarinnar að þola yfir sér árum saman þá vaidhafa sem svo bregðast skyldum sínum. þá vald hafa þolir þjóðin yfir sér enn í dag og fótumtroða þeir þjóðar- viljann glottandi og þykir sómi að skömmunum, að því er virðist. Tilefni þessara athugasemda er eitt nýtt hneyksli af ótal, sem allkunnugt er nú orðið. Hinn 11. júní síðastliðinn fór lögreglan í Reykjavík út í Gull- foss til þess að innsigla áfengis- bingðir og líta eftir að ekki yrðu framin tollsvik. Brytinn á Gull- fossi, Guðjón Jónsson, gaf upp áfengisbirgðimar „upp á æru og samvisku" og voru þær innsigl- aðar innsigli lögreglunnar. Litlu síðar fær lögreglan grun um að annað áfengi muni vera í skipinu. Fóru löigregluþjónar því aftur út í skipið til þess að rann- saka. Fundu þeir þá 750 flöskur af áfengu öli í vörslum bvytans og 200 flöskur af áfengu öli á öðru farrými, sem skotið hafði verið undan innsigli. þetta áfengi gerði lögreglan upptækt að sjálfsögðu og var brytinn þegar tekinn og yfir- heyrður, og aðstoðarmaður hans. Játaði brytinn að hann ætti áfengið og var bæjarfógeta því næst afhent málið fullrannsakað til dóms. Bæjarfógeti dæmdi brytann í 50 króna sekt, en í dómnum var ekkert um það sagt hvað ætti að gera við hið upptæka áfengi. Eins og að líkum ræður gat lög reglan ekki unað slíkum dómi. Lögreglustjóri sneri sér því til dómsmálaráðuneytisins og krafð- ist þess að málinu yrði áfiýað. Úrskurður stjórnarráðsins kom eftir nokkra bið og var á þá leið að málinu skyldi ekki áfrýjað og brytinn skyldi fá aftur áfengið sem lögi’eglan hafði gert upp- tækt. Við þessi úrslit málsins situr. þannig framkvæmir íhalds- stjórnin alþjóðarviljann í að- flutningsbannsmálinu. Er skylt að geta þess að Jón Magnússon dómsmálaráðherra var ekki í bænum er þessi stór- furðulegi úrskurður stjórnar- ráðsins var feldur. Magnús Guð- mundsson varð maklega frægur í fyrra er hann sagði hin land- frægu orð: „Eg er ekki dóms- málaráðherrá!" En nú er það sýnt hvernig hann gefst þegar hann er dómsmálaráðherra, því að hann fór með það embætti meðan J. M. var fjarstaddur. Við þessi úrslit situr væntan- lega fyrst um sinn til Alþingis og ef til vill næstu kosninga. Ekki er líklegt að mær breyti vana sínum. Með slíkri framkvæmd bann- laganna má telja að alt eftirlit af lögreglunnar hálfu með bann- lögunum sé gert að engu. þeir hafa ekki mikla áhættu brytarnir á skipunum, með þessu lagi. Nokkurra króna sekt fá þeir ef þeir skjóta undan innsigli, ef upp kemst. En áfengið fá þeir sér afhent aftur, til þóknanlegr- ar meðferðar. Liggur nærri að spyrja þá er slík endemi koma fyrir: Fyrir hvað var eiginlega verið að sekta brytann? því var lögreglan ekki sektuð fyrir óþarfa ýfingu? Getur sá er þetta skrifar ekki varist sáryrðum er þannig er farið að því að framkvæma al- þjóðar vilja um hið mesta sið- ferðismál. Er það hörmuleg til- hugsun að jafnframt þvi sem enginn óblindur getur varist að sjá hversu stórkostlega áfengis- nautnin vex nú aftur í landinu og ávextir áfengisbölsins magn- ast, skuli svo átakanlega slapp- lega véra haldið á refsivendi lag- anna yfir hofði þeirra manna sem í gróðaskyni brjóta lögin. En meðan íhaldið fer með völd- in á fslandi er engin von um að batni. Til botns verður þjóðin að Iiaus prestsstada. Prests og forstöðumannsstaðan við frísöfnuð Reyðarfjarðar er laus til umsóknar frá þessum degi til síðasta september næstkomandi. Staðan verður veitt frá 15. nóvember þ. ár. Umskækendur tiltaki launaupphæð (árslaun) í umsóknum sínum. Óskað er eftir, ef óvígðir guðfræðingar sækja um starfann, að þeir láti fylgja með umsókninni meðmæii fræðara sinna. Umsóknir stýlast til fulltrúaráðs frísafnaðar Reyðarfjarðar, og sendast hr. Árna Jónassyni Svínaskála, sem einnig svarar væntanlegum fyrirspurnum. Eskifirði þann 21. júní 1925. Fyrir hönd frísafnaðar Reyðarfjarðar Arni Jónasson Jón Björnsson (I’ulltrúar). H.f. Jón Sigmnndsson & Co. afxeoBxrcep ■■m og alt til upphluts sérl. ódýrt. Skúfhólkar úr gulli og silfri. Sent með póstkröfu út um land, ef óskað er. Jón Sigmundsson gullsmiöur. Sími 383. — Laugaveg 8. Y efnaðarnámskeið verður haldið í Stykkishólmi í febrúar og mars næsta vetur. Kenslugjald er ákveðið 30 kr. fyrir hvern nemanda, yfir allan tímann. Umsóknir séu komnar fyrir 30. sept. næstkomandi til Heimilisiðnaðarfélags Stykkishólms. Kvennaskólinn á Blönduósi. Kensla hefst á skólanum hinn 15. október í haust og stendur til 14. maí í vor. Kent er: hússtjórn, vefnaðar, alskonar kvenfatasaumur og önnur handavinna og karlmannafatasaumur í sérstakri deild. í bóklegu er aðal-áhersla lögð á íslensku, reikning og náttúrufræði. Inntökuskilyrði á skólann eru þessu: a. Að umsækjandi sé ekki yngri en 14 ára; undanþágu má þó veita ef sérstök atvik mæla með. b. Að hann hafi engan næman sjúkdóm. e. Að hann hafi vottorð um góða hegðun. d. Að helmingur af skólagjaldi og fæðisgjaldi sé greitt inntöku, og ábyrgð sett fyrir eftirstöðvum. e. Að umsækjandi sanni ineð vottorði, að liann hafi tekið fullnað- arpróf samkvæmt fræðslulögum, ella gangi undir inntökupróf þegar hann kemur í skólann. Skólagjald er 75 kr. um námstímann. Nemendur hafa haft matarfélag og skólinn sér um allar nauðsynjar. Skólinn leggur námsmeyjum til rúmstæði með dýnum og púðum. Annan sængurfatnað verða þær að leggja sér til. Umsóknir um inntöku á skólann sendist formanni skólastjórnar- innar, alþm. Þórarni Jónssyni á Hjaltabakka, fyrir miðjan september n.k. tæma þann beiska bikar að hafa sent á þing þá menn sem íhalds- stjóm skipa yfir landið og hafa bannlagabrjót í fonnannssessi flokks síns. Á Alþingi verður stjórnin að vísu krufin reiknings skapar. En það er lítil von um að skjaldborgin bili. ----o----- Hættulegur leikur þótti það jafnan í gamla daga að vekja upp drauga. þeir gátu reynst eins og berserkirnir Vermundi mjóva. það var oft erfitt að kveða þá niður aftur. — Ihaldinu hefir orðið að því í þetta sinn. Marga pólitiska drauga vakti það upp á síðasta þingi, ræður við fáa, en einn verst og' vildi nú gjama kveða niður, en það er með öllu ómögu- legt. það er hin grimma skatta- málastefna sem landsstjómin opinberaði á þinginu, fylgdi fram með ofurkappi, en kom ekki í framkvæmd í þetta sinn. En nú vill hún, í orði a. m. k. hopa frá öllu saman. — Grimmari íhalds- stefna í skattamálum hefir al- drei fyr verið borin fram á ís- landi. Annarsvegar aukning nef- skattanna á allan almennig: tvö- földun prests og kirkjugjaldsins og tillagan um að breyta mörg hundruð þúsund króna berkla- kostnaðinum í nefskatt á almenn- ing. — Hinsvegar hinar óheyri- legu eftirgjafatillögur handa lang- samlega . tekjuhæstu mönnum landsins. — Svo ferlegur póli- tiskur draugur hefir aldrei fyr verið vakinn upp á Islandi. Og nú em þeir orðnir hræddir við hann íhaldsmenn sjálfir. Frá því flóttinn barst fyrst í liðið í efri deild hafa þeir verið á sífeldum flótta. Einum rómi afsaka þeir sig nú hver af öðrum. þetta hafi alls ekki verið full alvara. — Allra vandræðalegust er afsök- unin sem gefin er út laugardag í fyrri viku í „aðalmálgagninu" á ábyrgð Ihaldsstjórnarinnar. þar er verið að böglast við að fegra þessa skattamálastefnu með því að hún sé íslensk! Hvílík býsn og vitleysa. Að einhver skatta- málastefna sé íslensk fyrst og fremst. Og þeir stjórnmálamenn ættu að vera henni sérstaklega fylgjandi sem eru studdir af út- lendum kaupmönnum. — Sann- leikurinn er vitanlega sá að þessi skattamálastefna landsstjómar- innar er alþjóðleg. það er sama skattamálastefnan sem borin er fram af íhaldsmönnum í öllum löndum. Ihaldsstefnan er sem sé alþjóðleg. Sömu hneigðina hafa íhaldsmenn í öllum löndum, þá hneigð sem Jón þorláksson Iýsti svo vel — áður en hann varð íhaldsmaður — að vilja velta skattabyrgðinni af sér, af sínum breiðu bökum, yfir á allan al- menning, yfir á smælingjana. þessa skattamálastefnu hefir íhaldsst j órnin opinberað svo greinilega að ekki verðui' um vilst. Enginn athugull kjósandi íslenskur getur héðan af verið 1 vafa um að stefna íhaldsflokks- ins í skattamálum er sú að hækka nefskattana á almenningi, en lækka beinu skattana á tekju- hæstu mönnunum. — þessi draug- ur ætti að ríða Ihaldinu að fullu við næstu kosningar. þeir óttast að hann geri það og því vilja þeir reyna að kveða hann niður. En þeir geta ekki kveðið hann niður. öll þjóðin íslenska er vott- ur að því hvernig hann var vak- inn upp og magnaður. „Siðbótarmaðurinn“ Kr. A. sendir ritstjóra Tímans langa kveðju í síðasta „aðalmálgagni Ihaldsins“. Hann lýsti því hátíð- legá yfir, Kr. A., þá er hann hóf blaðamensku, að hann ætlaði að verða siðbótarmaður í starfinu. •En nú' veit alþjóð að hann eu úvandaðastur um rfthátt allra íslenskra blaðamanna. I þessari síðustu grein hans koma t. d. HELOTTE Aðalumboðsmenn: Á. ÓLAFSSON & SCHRAM Simn.: Avo. Simi: 1493 SliiinnongfS Monnment-Ale- lier, Oster-Fai'imagsgade 42, Khöfn. Stærsta og góðfræg'- asta legsteinasmiðja á Norður- löndum. Umboðsmaður á Is- landí: Suæbjörn Jónsson, stjórnarráðsritari, Rvik. SJó- og bruna vátryggíngar. Símar: Sjótrygging .... 542 Brunatrygging . . . 254 Framkvæmdarstjóri . 309 Vátryééið hjá íslensku íélagi. Lesið! Ódýrasta og besta skæðaskinn- ið verður fyrir unga og gamla að nota bifreiðaslöngur í skó. Einn- ig langbestar til gúmmíviðigerða. Sendar hvert sem er gegn póst- kröfu. Einnig ágætt gúmmílím. Gúmmívinnustofa Reykjavíkui' Laugaveg 76 þór. Kjartansson. fyrir þessi orð, lauslega saman týnd: „margfaldar lygar“, „lýgi“, „lýgi“, „lýgin“, „þjóðmálaglæfra- menn“, „lýgi“, „lygalaupar", „lýgur“, „forherta blaðalygara", ,,landsmálafantar“, „rógburðar- efni“, „þrælmenskulegu nýði“. — þannig ritar „siðbótamaðurinn“ í blaðamensku. þannig rækir hann aðalverkefnið sitt. Fer vel á því að slíkur maður skuli vera rit- stjóri „aðalmálgagns lhaldsins“ því að vel hæfir spónn kjafti. Alt gert á ábyrgð miðstjórnar Ihalds- ins. — Ættu aðrir í hlut hefði Danski Moggi líklega sagt að slík „siðbótarstarfsemi“ gengi „á krukkum". Ritstjóri: Tryggvi þórhallsson. Prentsmiðjan Acta.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.