Tíminn - 16.01.1926, Page 1
©faíbfeti
ag afgteifcslur’a&ur Ctmans et
Sigurgeir ^rifcrifsfon,
Scrmban6s básinu. ReYfjcmif
Reykjavík 16. janóar 1926
8-
til sölu.
Verslunarhús, vörnblrgfðir,
útistandandi
Utanúrheimi.
Kina og stórveldin.
Síðan heimsstyrjöldinni lauk
hafa stórveldin alls látið smíða
329 ný herskip — af þeim hefir
England ekki smíðað nema aðeins
11. Hefir England, mun meira en
öll hin stórveldin, dregið úr víg-
búnaði síöari árin, bæði á sjó og
landi. Einkum hefir Miðjarðar-
hafsflotinn verið minkaður og
ilotadeildin við Kína — og heyr-
ast nú háværar raddir um það á
Englandi að þetta hafi verið mið-
ur Uyggiiega ráðið.
Bandaríkin og Japan hafa lagt
mest kappið á að hervæðast á
sjónum og margir búast við að
næsta stóra styrjöldin verði háð
í Kyrrahafi. Washingtonfundur-
inn dró ef til vill eitthvað úr
styrjaldarhættunni austur þar. En
síðari mánuðina hefir ástand.ö
í Kína aftur gert ilt verra.
Fulla hugmynd er erfitt að fá
um það sem gerst hefir og er að
gerast í Kín.a En víst er um það
að þjóðernisbarátta er þar háð,
gegn áhrifum og valdi útlending-
aima, og fyrst og fremst er hatr-
inu snúið á Englendinga. pað er
og víst að verslun Englendinga í
Kína hefir orðið fyrir stórkost-
legum hnekki undanfarið. Ensku
blöðin tala, jafnvel um að Eng-
lendingar séu að missa alveg úr
höndum sér þá afstöðu, sem reynt
hefir verið að skapa síðan 1840.
Er hér um að ræða stórkostlega
þýðingarmikið fjárhagsatriði fyr-
ir England. Minkun enska flotans
við Kína, undir þessum kringum-
stæðum, getur haft alvarlegar af-
leiðingar. Að vísu má vera að
ekki verði byssumar látnar tala,
en í Austurlöndum getur það haft
sína miklu þýðingú að geta a. .m
k. sýnt öflugan flota.
En þjóðernishreyfingunni í Kína
er einnig beint gegn Bandaríkjun-
um og ekki síst gegn frændunum
í Japan. Og Japan þolir það enn
síður en England, að láta bola sér
út úr Kína. Japanski iðnaðurinn
þarf að flytja inn stórkostlega
mikið af kolum og járni, því að
landið sjálft er af þessu fátækt,
en í Kína eiga Japanar miklar
kola- og jámnámur. Atvinnuleysi
er mjög mikið fyrir í Japan, svo
að það er fullvíst að Japan lætur
ekki með góðu taka af sér nein
réttindi sín í Kína. Er nálega
óhugsandi annað en kröfur Japana
komi í bága við vilja þjóðemis-
sinna í Kína. Má vera að það
verði jafnað með friðsamlegum
samningum — en hitt er ekki síð-
ur líklegt, að mikil deila og jafn-
vel styrjöld hefjist af.
Bandaríkin eiga líka mikilla
hagsmuna að gæta í Kína. En
bæði England og Bandaríkin eru í
svo langri fjarlægð, að búast má
við að það verði Japanar, fyrstir
stórveldanna, sem muni láta til
skarar skríða gagnvart væntan-
legum kröfum sigursælla kín-
verskra þjóðemissinna.
----o-----
„Sigríður í Skál“. Indriði í Fjalli
ritar ritstjóra Tímans til skýring-
ar kvæðinu: „Um Sigríði Pét-
ursdóttur á Ytri-Leikskálaá —
Sigríði í Skál, eins og hún nefnd-
ist — læt ég mér nægja að taka
það eitt fram nem útheimtist
kvæðisins vegna. Sigríður fæddist
á Tjörnesi og ólst þar upp. Gift-
ist hún þar fyrra manni sínum og
misti hann í sjóinn eftir ör-
skamma sambúð. Annars ól hún
mestan aldur sinn í Náttfaravíkum
(bjó þar á öllum — 3 — bæjun-
um: Naustavík, Kotamýrum og
Vargsnesi) og Útkinn. Hún var
hin grandvarasta gæða kona og
mátti ekki aumt sjá, og allvel
greind. Hún andaðist í öndverð-
um mars 1922. Var um þær
mundir fágæt öndvegistíð hér í
sýslu og allsstaðar norðanlands.
En úr næstu löndum suður og
austur spurðust frosthörkur mikl-
ai' og óvenjulegt vetrarríki og
lengra að austan heyrðist óþrot-
legur gnýr styrjaldarinnar, þar
sem blóðugir bai'dagar og misk-
unnarlaus hryðjuverk voi-u dag-
legar athafnir. — Hugðu ýmsir
vongóðir menn hér að albatnað
myndi tíðarfar. En þeim varð að
öðru. Hinn 24. mars, úr hádegi,
skall yfir, hér í þingeyjarsýslu,
hin grimmasta norðan stórhríð,
er varaði fullan sólarhring. þá
fórst evfirska fiskiskipið Talis-
man fyrir Vestfjörðum og varð
manntjón mikið. Urðu og fleiri
skaðar af byl þessum liér nyrðra.
Jarðarför Sigríðar fór fram að
Stað í Kinn hinn 30. mars; hafði
verið frestað vegna hinnar svip-
legu ótíðar. Hafði eg þar um hönd
erindi nokkurt og að auki kvæði
það, sem hjer er um að ræða —
lítið eitt breytt og aukið. —
petta sem hér er á drepið hefir
sett sinn blæ á kvæðið. Annara
skýringa þarf varla. Söguna um
konuna er har lykla marga á
sylgju sinni, en átti fáar hirsl-
urnar, munu menn kannast við“.
„Nýi sáttmáli".
Allmikið hefir þegar verið rit-
að um þá bók, en eftirtektarvert
er það að málgögn landsstjómar-
innar þora ekkert um hana að
segja „Aðalmálgagnið" nefnir
ekki einu sinni útkomu hennar.
Jóhannes Jóhannesson bæjarfó-
geti ritar S. p. langt brjef sem
birtist í Morgunblaðinu. Vill
hann verjast ádeilunni um rann-
sóknina á máli Guðjóns Finns-
sonar o. fl. Mun bæjarfógetanum
oft hafa tekist betur að verja
málstað. En fáir munu sannfær-
ast af bréfinu. Hefir frést að S.
p. hafi svarað þessu bréfi, en
ekki hefir það svar birst á prenti.
Sigurður Eggerz bankastjóri
ritar langa svargrein í Vísi í gær.
Nefnir hann greinina: Landráða-
pésinn, og á það að vera heit-
ið á bók S. p. Verður af því séð,
að S. E. talar mjög um það at-
riði bókarinnar, sem veit að sjálf-
stæðismálunum. Er þess áður
getið hér í blaðinu að langómerki-
legastur var sá kafli bókarinnar
og veitist S. E. það létt verk að
svara þeim atriðum. En rétt er
að hitt komi fram svo að allur
almenningur viti, að Sigurður
þórðarson stendur áreiðanlega
ekki einn uppi með þá skoðun. að
frelsi íslands og sjálfstæði sé
orðið fullmikið. I Ihaldsfíokkn-
um, sérstaklega þeim hluta hans
sem er nærstæðastur fjármála-
ráðherranum, er áreiðan^ega mik-
ið til af löngun í að komast aftur
undir vemdarvæng dönsku
mömmu.
Er „Nýi sáttmáli" ritaður í
ákveðnari innlimunartón en heyrst
hefir á Islandi lengi og má vel
vera að hann eigi svo mikil ítök
Hlutafélagið Hinar sameinuðu
íslensku verslanii- í Kaupmanna-
höfn hefir ákveðið að selja eftir-
talda 8 verslunarstaði og versl-
anir:
1. Djúpivogur. Ibúðarhús og
sölubúð, geymsluhús, bræðsluhús,
peningshús, bryggja, alt með lóð-
arréttindum, verslunaráhöld, vöru-
birgðir og útistandandi skuldir.
2. Eskifjörður. Ibúðarhús og
sölubúð, mörg geymsluhús, ís- og
frystihús, sláturhús, steinolíuhús,
lýsisbræðsla, peningshús, stór-
skipabryggja með öllum áhöld-
um, tún, mikið landsvæði, 5 íbúð-
arhús einstakra manna, verslun-
aráhöld, vörubirgðir, útistand-
andi skuldir o. fl. Ennfremur á
sama stað eignir h.f. Islandia,
síldveiðahús, geymsluhús, síldar-
nætur og önnur áhöld.
*
3. Vestdalseyri. Sölubúð, mörg
geymsluhús, sláturhús, fiskþvotta-
hús, járnbrautir, bryggjur, 9 íbúð-
arhús, jörðin Vestdalseyri, jörðin
Vestdalur, 3 mótorbátar, lítils-
háttar vörubirgðir og útistand-
andi skuldir.
4. Borgarfjörður. N.-Múlas. I-
búðarhús og sölubúð, ýms
geymsluhús, ís- og frystihús,
geymsluhús á Unaós, sláturhús.
Jarðeignirnar Bakki og Bakka-
gerði, Vs úr jörðinni Njarðvík,
íbúðarhús og sjóbúð í Glettinga-
nesi, bryggja, 4 íbúðarhús, 20
hesta Danmotor, verslunaráhöld,
vörubirgðir og útistandandi skuld-
ir.
5. Vopnaf jörður. Ibúðarhús,
sölubúð, ýms geymsluhús og íbúð-
arhús, bryggjur, frystihús, versl-
unaráhöld, vörubirgðir og úti-
standandi skuldir.
í íhaldsflokknum að ástæða sé til
að víkja að nánar.
Út af greininni í síðasta tölu-
blaði hefr Sigurður þórðarson rit-
að ritstj. Tímans svohlj. bréf:
„Fyrir ummæli yðar, herra rit-
stjóri, um rit mitt „Nýja sátt-
mála“ í blaði yðar 9. þ. m., hefi
eg auðvitað fylstu ástæðu til að
vera yður þakklátur, og þó eink-
um fyrir það, sem eg þykist mega
ráða af grein yðar, að þér mun-
uð vera því' fylgjandi, að tekin
verði upp aftur rannsókn út af
dauða Guðjóns Finnssonar frá
Melum.
þér segið í greininni: „Höf,
segir það hiklaust, að hamx er
skuldir m. m.
6. Hesteyri. Ibúðarhús og sölu-
búð, geymsluhús, síldarplan með
vatnsveitu, lóðarréttindi.
7. Bolungavík. íbúðarhús og
sölubúð, mörg geymsluhús og
fiskihús, verbúðir, mörg íbúðar-
hús, lóðarréttindi, fiskreitir, 2
mótorbátar og hlutar í 4 mótor-
bátum, verslunaráhöld, vörubirgð-
ir, og útistandandi skuldir m. m.
Ennfremur þessar jarðeignir:
Ytribúðir, Árbær og i/2 Grundar-
hóll.
8. Flateyri. Ibúðarhús, sölubúð,
mörg geymsluhús, bátar, bryggja
með síldarplani, lóðarréttindi,
fiskreitir, jámbrautir, lýsis-
bræðsla, peningshús m. m., versl-
unaráhöld, vörubirgðir og úti-
standandi skuldir.
Tilboð í framangreindar eignir
óskast sendar undirrituðum í síð-
asta lagi 28. febrúar 1926. Til-
boðin óskast í hvem verslunar-
stað um sig með öllu tilheyrandi
þar á meðal vömbirgðum og úti-
standandi skuldum. Einnig má
gera sérstaklega tilboð í einstak-
ar eignir, svo og í eignimar allar
í einu, í útistandandi skuldir á
öllum verslunarstöðunum, o. s.
frv.
Eignimar seljast í því ástandi,
sem þær nú eru, eða þegar sala
fer fram. Upplýsingar um ástand
eignanna m. m. má fá hjá núver-
andi umboðsmönnum Hinna sam-
einuðu íslensku verslana á hverj-
um stað um sig. Um aðrar upp-
lýsingar geta menn snúið sér til
undirritaðs eða Jóns konsúls Ar-
nesens á Akureyri. Tilboð, sem
koma kunna, óskast sem skírust
og greinilegust, bæði um það hvað
óskast falið í kaupunum, um borg-
un kaupverðsins og annað. Kaup
geta fljótt farið fram, með því að
eg hefi umboð til sölunnar.
Ihaldsmaður". þetta kemur mér
nokkuð á óvart. Eg segi hvergi
neitt um það í ritinu, hvort eg er
íhaldsmaður í landsmálum eða
ekki. Annað mál er það, hvað
menn þykjast geta ráðið um það,
af því sem eg held fram í ritlingn-
um. En ef íhaldsmaður (með stór-
um upphafsstaf) á að merkja
hið sama og þér segið fullum fet-
um annarsstaðar í greinni, að eg
sé íhaldsflokksmaður, þá er það
ekki rétt. Eg er ekki í Ihalds-
flokknum, hefi aldrei verið beðinn
að ganga í hann og aldrei beiðst
inntöku í hann .Eg tel mig vera
utan flokka.
þér getið þess að eg hafi látið
Sveinn Björnsson,
hæstarjettarmálaflutningsmadur.
Reykjavík. Símnefni: „Isbjörn“.
C ' m a n í er i Sambanösbusims
(Dpin óaglega 9—\2 f. 6
Simi 4Q6.
3. blað
hjá líðaaðminnast á Krossanesa-
málið svonefnda. En iþað var
fyrst og fremst af þeirri ástæðu,
að eg er ekki farinn að kynna
mér það mál enn i dag. Eg las
hið fyrsta sem kom fram um það,
en sá brátt að eg myndi ekki geta
gefið mér tíma til að fylgjast
með öllu, sem ritað var um það,
og gaf það því frá mér. Eg hefi
ekki gert annað til að afla mér
þekkingar á því máli en það, að
eg hefi spurt nokkra menn, sem
eg hélt að myndu segja mér satt,
um álit þeirra á því, og þeir hafa
allir sagt að þeir sæju ekki að
landsstjórnin væri vítaverð fyrir
afskifti sín af því. En hvort þeir
haf rétt fyrir sér, get eg ekkert
um sagt.
Sigurður þórðarson".
Fárra orða gerist þörf út af
þessu bréfi. Ritstj. Tímans efar
ekki að það er rétt, sem S. þ.
segir í bréfinu, að formlega hefir
hann ekki sótt um inngöngu í
íhaldsflokkinn, enda munu inn-
gönguskilyrði vart þröng í þann
félagsskap, né formlegrar um-
sóknar krafist. En af ummælum
höf. í „Nýja sáttmála" á blað-
síðu 133, um báða aðalstjóm-
málaflokkana og Ihaldsflokkinn
sérstaklega, verður það hiklaust
ráðið að raunverulega er hann
íhaldsmaður(með stórum upphafs-
staf) ,þó að hann sé það ekki form-
lega. — það er leitt að S. þ. hefir
ekki kynt sér Krossanessmálið,
því að valt er að byggja á sögu-
sögn annara, og þar sem þetta
mál hafði vakið svo geysi-
mikið umtal hefði verið réttara
af S. þ. að rannsaka það, úr því
að hann tókst á hendur það þarfa
starf að dæma um valdhafa og
löggjafa. — S. þ. víkur ekki að
hinum öðmm ávöntunum, sem
Tíminn talaði um.
Suður-þingeyjarsýslu 27. des.:
Tíðarfar er hér allhart, eins og
vera ber — á þessum tíma. Hinn
7. og 8. þ. m. voru hér mögnuð
vatns- og krapaveður. Frysti síð-
an og hleypti öllu í gadd. Síðan
mun að mestu haglaust fyrir
sauðfé í allri sýslunni, nema við
sjávarsíðu, þar sem til þara nær.
Hafa nú um jólin og fyrir þau
verið allsnarpar norðanhríðar, og
nær enginn dagur svo að ömgt
væri að fara ferða sinna. Póstur
hefir setið teptur í Reykjahlíð
undanfarna daga, sakir hríða og
ófærðar. Hafði komist til Reyk-
jahlíðar frá Grímsstöðum við
illan leik um miðnætti hinn 22.
og orðið að ganga frá hestum
sínum austan við Námaskarð. —
Undanfarna vetur og lengur hefir
hinn orðlagði fjallagarpur Bene-
dikt Sigurjónsson frá Grímsstöð-
um verið á eftirleit, aleinn, á
Austurfjöllum. Undmðust menn
enn, sem löngum áður, kjark hans
og áræði, sem sumir gætnismenn
hafa kallað gapaskap og of-
dirfsku. Hafði nú ekki spurst til
Benedikts um hríð og töldu marg-
ir úti um hann. En í gærkvöld
kemur B. heill á húfi í Reykja-
hlíð. Hafði hann þá, að sögn,
farið alla leið fram í Grafarlönd
og fundið 9 kindur á öræfunum.
Benedikt á engan sinn líka hér í
sýslu og þó að víðar sé leitað.
En — hvert er það heiðursmerki
og sú viðurkenning sem honum
væri boðleg og honum hæfði að
þyggja fyrir frammistöðu hans í
því að bjarga fjölda fjár úr helj-
argreipum öræfanna?