Tíminn - 16.01.1926, Blaðsíða 4
12
TlMINN
ferð Roalds Amundsens til norð-
urheimsskautsins á næsta vori.
Flugvélin hefir þegar verið keypt,
við hlutfallslega lágu verði, af
sjóhernum ítalska. Heitir flugvél-
in nú: Noregur. Tilraunaflug eiga
að fara fram um næstu mánaða-
mót suður á Italíu. Alls eiga 16
menn að taka þátt í förinni. 1
aprílbyrjun á flugvélin að koma
til Noregs og þaðan fljótlega til
Svalbarðs. þaðan á að hefja
sjálft heimsskautsflugið í maí, og
sennilega verður flogið til Alaska
frá heimsskautinu. Er áætlað að
alt flugið frá Svalbarða til Al-
aska þurfi ekki að taka nema 48
klukkustundir. Áætlað er að kostn
aður við ferðina verði 1 milj. og
600 þús. kr.
— Katólska kirkjan mun ætla
að halda allsherjar kirkjuþing von
bráðar. Er álitið að páfinn ætli
meðal annars að leggja það und-
ir úrskurð þingsins að kirkjan
falli frá kröfunni um veraldleg
yfirráð páfa.
— Tcitcherin, utanríkisráð-
herra Rússa var á ferð í París og
Berlín, seint í fyrra mánuði.
þýsku blöðunum sagði hann með-
al annars þessar fregnir um
stefnu Rússastjórnar í utanrík-
ismálum: Rússland væri reiðubú-
ið til samninga við England en af
Englands hálfu hefði ekkert kom-
ið fram sem benti til að það vildi
ná samkomulagi. Núverandi stjóm
Englands hefði hafnað samningi
þeim sem fyrri stjórn hafði gert
við Rússland, og Rússland gæti
ekki hafið nýjar samningaumleit-
anir fyr en það vissi hvað Eng-
landsstjórn hefði haft út á gamla
samninginn að setja. Væri óvíst
hvort Englendingar yfirleitt
kærðu sig um nokkurt samkomu-
lag. — Rússland mundi eftirleið-
is, eins og hingað til, vera utan
við Alþjóðabandalagið og teldi sig
vinna betur að því að tryggja
friðinn með því. Rússland myndi
ekki samþykkja alþjóðagerðar-
dómstól. Milli Frakklands og Rúss-
lands .væru samningar komnir vel
á leið og myndi þeim verða hald-
ið áfram er hinn nýi sendiherra
Rússa kæmi til Parísar í janúar.
— Loks lét Tchitcherin það álit
í Ijós að Locarnosamningurinn
myndi síst verða til þess að
tryggja Norðurálfufriðinn, enda
væri honum mjög stefnt gegn
Rússlandi.
— „Fríríkið" Danzig var skap-
að í Versalafriðnum og sett undir
yfirstjórn sérstakrar nefndar Al-
þjóðabandalagsins. Hefir sú nefnd
nú sent nýjan yfireftirlitsmann
til Danzig, Hollending. Fær hann
eru það bógstykkin, sem skemd
eru, læri sjaldnar og miðstykkin
ekki nema skemdimar séu því
stórfeldari.
Helst virðast skemdir hafa
komið fram í saltkjöti í heitum
og votviðrasömum haustum. —
Haust 1923 var kalt og þurviðra-
samt, enda heyrðist þá ekki getið
neinna skemda, sést á því að hægt
er að komast hjá þeim. I vot-
viðrasömum haustum er vand-
farið með kjötið og hætt við að
það óhreinkist í meðferðinni, en
við það verður að gæta mestu
varúðar. þegar rakt er og hlýtt í
veðri verður líka að gæta þess,
að láta ekki skrokkana hanga of
lengi, áður en þeir eru saltaðir,
því þó áreiðanlega sé best að
skrokkamir gegnkólni áður en
þeir eru saltaðir, er hætt við að
kjötið geti skemst, ef það hang-
ir lengi í rökum og loftlitlum
húsum, og þá er hættuminna að
koma kjötinu sem fyrst í saltið.
Eg gat þess áður, að skemdir
koma helst fyrir í þykkustu kjöt-
stykkjunum, t. d. bógstykkjum.
Til að fyrirbyggja það, er best
að höggva í sundur brjóstrifin og
gera allstóra stungu milli bógs-
ins og rifjanna og fylla með salti.
Sé kjötið óskemt þegar saltað er,
Gjöf Jóns Sigurðssonar.
Samkvæmt reglum um „Gjöf Jóns Sigurðssonar“, skal hjermeð
skorað á alla þá, er vilja vinna verðlaun úr téðum sjóði, fyrir vel
Bamin vísindaleg rit, viðvíkjandi sögu landsins og bókmentum, lögum
þess, stjórn eða framförum, að senda slík rit fyrir lok desember-
mánaðar 1926, til undirritaðrar nefndar, sem kosin var á Alþingi
1925, til þess að gera að álitum, hvort höfundar ritanna séu verðlaun-
anna verðir fyrir þau, eftir tilgangi gjafarinnar. — Ritgerðir þær, sem
sendar verða í því skyni að vinna verðlaun, eiga að vera nafnlausar,
en auðkendar með einhverri einkunn. Nafn höfundarins á að fylgja í
lokuðu bréfi með sömu einkunn, sem ritgerðin hefir. —
Reykjavík, 8. jan. 1926.
Hannes torsteiussou. Ólafur Lárusson.
Sigurður Nordal.
ærið að starfa, því að deilumálin
eru nálega óteljandi milli „frírík-
isins“ og Póllands. þegar Pólland
var endurreist, með friðarsamn-
ingunum í Versölum, og gert svo
stórt að íbúatalan varð 27 milj-
ónir manna, varð ekki hjá því
komist að veita því aðgang að sjó.
Til þess var Prússland skorið í
sundur og búnar til „pólsku
dyrnar“, alþýskt landflæmi, til
sjávar, lagt undir Pólland. Dan-
zig liggur þarna við sjóinn, í
„dyra“-gættinni. Eru íbúar henn-
ar langflestir þýskir og því var
borgin ekki lögð undir Pólland, en
gerð að fríríki. En í stjórnarskrá
hennar eru Pólverjum trygð rétt-
indi til að nota borgina til inn-
og útflutnings og yfirstjórn
borgarinnar falin sérstakri nefnd
Alþjóðabandalaksins. En deilum-
ar milli borgarinnar og Póllands
hafa orðið mai’gar. þjóðverjar í
borginni halda því fram að Pól-
verjar vilji innlima hana, og rói
að því að snúa íbúunum til fylgis
við sig, og er það vafalaust rétt.
Hinsvegar fer það ekki dult að
þjóðverjar, bæði innan og utan
borgarinnar vinna að því af kappi
að „loka dyrunum“, til þess að
sameina aftur austur og vestur
Prússland. „Póstkassadeilan“ svo-
nefnda stóð lengi yfir og var sótt
og varist af mestu heift. Var
skotið til úrskurðar Alþjóðabanda-
lagsins, sem veitti Pólverjum rétt
til að hafa sína eigin póststjórn
í vissum borgarhluta. Síðasta deil-
an er út af vopna- og skotfæra-
innflutningi Pólverja. Flytja þeir
mikið inn af slíku, einkum frá
Frakklandi, því að Pólverjar
leggja hina mestu áherslu á að
vígbúast sem best. En þar sem
um slíkan flutning er að ræða,
telja þeir sér alveg nauðsynlegt
að láta her manns gæta hergagn-
anna og vopnanna, undir eins og
á land kemur. Verður það annað-
hvort að vera í sjálfri Danzig eða
í nánd hennar, á landi, sem henm
heyrir til. En þjóðverjamir í
Danzig mótmæltu harðlega. þeir
óttast, að ef Pólverjar fái að hafa
her manns í borginni, eða á landi
hennar, muni þeir smátt og smátt
búa þannig um sig, bæði með
landher og flota, að sjálfstæði
borgarinnar verði í voða á hverju
augnabliki sem er. Alþjóðabanda-
lagið úrskurðaði að Pólverjar
mættu eltki koma sér upp föst-
um aðsetursstað fyrir her í borg-
inni eða á landi hennar, en leyfði
Pólverjum hinsvegar að hafa þar
herflokk til þess að gæta vopna-
og hergagnaflutningsins, með ýms
um skilyrðum. Hafa Pólverjar því
á þetta að vera örugt til vamar
skemdum, enda sé þess gætt að
fylgja að öðru leyti gildandi fyr-
irmælum um söltun og pæklun.
Eg sé ekki ástæðu til að fjöl-
yrða meira um kjötsöltunina, en
vil aðeins leggja áherslu á það, að
réttileg notkun á saltinu ásamt
nægilegri söltun, er ömggasta
leiðin til að forðast skemdir. það
er t. d. ekki nægilegt að nota 8
—10 kg. af þursalti í tunnu, ef
þess er ekki jafnframt gætt að
þursaltið liggi vel á milli allra
laga og varni því að kjötstykkin
renni saman í þéttar hellur, sem
verða svo þykkar, að pækillinn
nsér ekki að gegnvæta kjötið nægi-
lega fljótt.
Sauðfjárræktin er mikilsverð-
asta og arðsamasta tekjugrein
landbúnaðarins og andvirði út-
fluttra sauðfjárafurða, er það,
sem á að geta gert miklum hluta
sveitabænda mögulegt að auka
ræktunina, girða tún og engjar,
byggja sæmileg hús yfir sig og
búpening sinn og yfirleitt að
kaupa það af nauðsynjum, sem
ekki verður framleitt á heimilun-
um.
þegar á það er litið, hve mik-
ill hluti þjóðarinnar lifir á fram-
leiðslu landbúnaðarins, gegnir
fengið sitt fram í aðalatriðum, en
Danzigbúar, hinir þýsku, eru af-
skaplega reiðir. Halda þeir því
fram, að Alþjóðabandalagið sé
hlutdrægt í úrskurðum, því að
Frakkland og. England veiti Pól-
landi; en vænta að heldur batni er
þýskaland gengur í Alþjóðabanda-
lagið.
— Löngum hefir deilan verið
harðvítug milli frjálslyndra guð-
fræðinga og innratrúboðsmanna í
Noregi — miklu harðari en ann-
ars staðar á Norðurlöndum.Bar við
atvik rétt fyrir jólin sem sýnir
það. Innratrúboðsfélagið hafði
boðað til fundar í Christiansand.og
meðal annara átti einn norsku
biskupanna að flytja þar erindi.
Jafnframt átti aðalleiðtogi innra-
trúboðsmanna, Hallesby prófess-
or, að tala, en neitaði að gera það
er hann frétti að biskupinn ætti
einnig að tala. Stjórn trúboðsfé-
lagsins ákvað þá að tilkynna bisk-
upinum að hann fengi ekki að tala.
Ástæðan til neitunar Hallesbys er
sú, að biskup þessi stuðlaði að því,
með öðrum, að einn af hinum
merkustu frjálslyndu guðfræðing-
um varð biskup í þrándheimi fyr-
ir fáum árum.
t
— Frést hefir að miljónamær-
ingurinn Henry Ford ætli að kosta
flugferð til norðurheimsskautsins
á næsta sumri og eigi Vilhjálmur
Stefánsson að vera foringi farar-
innar. Ýmsir frægir vísindamenn
frá Bandaríkjúnum eiga og að
vera með í förinni.
— Gert hefir verið upp endan-
lega manntal í New York og
reyndust íbúarnir að vera 5873356.
— Tíðindi mega það kallast að
tyrkneska þingið samþykti í áre-
lokin að breyta til um tímatal og
taka upp tímatal Norðurálfu-
manna. Er þetta eitt af mörgu
sem Tyrkir gera nú til að sníða
siðu sína eftir Norðurálfumönn-
um. Fyrir nokkru bönnuðu Tyrk-
ir fjölkvæni, en sumir ríkir Tyrk-
það furðu, hve þing og stjórn
virðast hafa verið tómlát ,um
flest, sem þessum atvinnuvegi við-
kemur.. það má oft á litlu marka
hugi hinna ráðandi manna til at-
vinnuveganna. það er kunnugt, að
saltfisksverkun Islendinga er
mjög góð, og orkar það ekki tví-
mælis, að mest er það þakkað
fiskimatsmönnunum og þá eink-
um þorsteini heitnum Guðmunds-
syni. þetta hefir líka verið viður-
kent með því að vanda val þessara
manna sem best og launa þá svo,
að þeir geti gefið sig óskiftir
við starfi sínu. þeir hafa verið
látnir ferðast til markaðslandanna
til að kynnast kröfum neytend-
anna og þeir halda fundi að
minsta kosti árlega, til að bera
saman ráð sín um alt, sem lýtur
að starfi þeirra. þetta eru sjálf-
sagðar og virðingarverðar ráð-
stafanir. En manni verður á að
spyrja: Hvernig hafa forráða-
menn landsins hagað sér gagnvart
kjötframleiðendum í þessu efni?
Hér eru fjórir yfirkjötmatsmenn
og er þeim ætlað að leiðbeina um
kjötverkun, hverjum í sínu um-
dæmi, og upphaflega var gert svo
ráð fyrir, að þeir ferðuðust eitt-
hvað til leiðbeiningar meðan slát-
urtíð stæði yfir, en þeir hafa
ir, sem áttu stór kvennabúr, hafa
tekið þeim lögum illa. I árslokin
vann einn þeirra það til að blanda
eitri í mat sinn og 36 kvenna
sinna, fremur en að hlýða lögun-
um. öll biðu bana.
-----o----
Alvarleg áminning. þrjár kosn-
ingai’ nýafstaðnar mega teljast
aíar alvarleg áminning fyrir
Ihaldsflokkinn. Bæði á ísafirði og
Seyðsfirði fóru fram kosningar
til bæjarstjórnar. Á báðum stöð-
um unnu andstæðingar íhalds-
manna hinn glæsilegasta sigur,
komu tveim mönnum að á báð-
um stöðum, en íhaldsmenn ekki
nema einum. En bæði þessi kjör-
dæmi eiga íhaldsmann á þingi.
— þá er hin nýafstaðna kosn-
ing í Gullbringu- og Kjósarsýslu.
Bar Ólafur Thórs að vísu hærri
hlut, eins og allir vissu fyrir-
fram, hlaut 1318 atkvæði, en Har-
aldur Guðmundsson 958. En ef
borið er saman við atkvæðatöl-
umar við síðustu kosningar, í
þessu vissasta íhaldskjördæmi,
sést að um stórkostlega afturför
er að ræða fyrir íhaldið. Ágúst
Flygenring fékk þá 1457 atkvæði
en Björrw Kiistjánsson 1369, sam-
tals 2826 atkvæði, eða 1413 að
meðaltali á mann. Jafnaðarmenn-
imir vom einnig tveir: Sigurjón
Ólafsson fékk 708 atkv. og Felix
Guðmndsson 566, samtals 1274,
eða 637 atkvæði á mann að með-
altali. Sést af þessu að atkvæða-
tala ólafs Thórs er ca. 100 at-
kvæðum lægri en meðaltal síðast,
en atkvæðatala Haialds rúmlega
300 atkvæðum hærri en meðal-
tal síðast. Haldi eins áfram falla
Ihaldsmennimir við næstu kosn-
ingar í þessu einu öruggasta
Ihaldskjördæmi. — Og Morgun-
blaðið segir að Ihaldsflokkurinn
hafi unnið „glæsilegan sigur“.
En vinni það marga slíka eru
fengið fyrirmæli um að eyða sem
allra minstu í þessi ferðalög og
jafnvel verið bannað að ferðast.
þeim hefir einu sinni — segi og
skrifa — einu sinni verið gefinn
kostur á að koma saman á fund
til að bera saman ráð sín 1 þau
7 ár, sem þeir hafa starfað. Eng-
inn hefir hreyft því, að gagnlegt
gæti verið að senda einn og einn
kjötmatsmann til útlanda með
nokkurra ára millibili 'og ekki
einu sinni verið ymprað á því við
kjötútflytjendur, að þeir skýrðu
matsmönnunum frá kröfum
manna í markaðslöndunum. Eg
veit ekki einu sinni hvort svo
mikill áhugi hefir verið á hærri
stöðum fyrir starfi þessara
manna, að þeim hafi verið gefinn
kostur á að kynnast kjötrannsókn-
um Gísla Guðmundssonar, sem
hafa leitt í ljós mikilsverðar uppt-
lýsingar um meðferð saltkjöts.
Sambandið hefir farið fram á
það við landsstjómina, að kjöt-
matsmennimir verði kallaðir sam-
an á fund í vetur, en ekki er enn
komið ákveðið svar við því, hvort
í þetta stórræði verður ráðist.
Frh. Jón Ámason.
Ritstjóri Tryggvi þórhallsson.
Prentsmiðjan Acta.
H.f. Jón Sigmundsson & Co.
Trúlofunar-
hringarnir
þjóðkunnu, úrval af
steinhringum, skúf-
hólkum og
svuntuspennum,
margt fleira. Senf
með póstkröf u út um land,ef óskað er.
Jón Sigmundsson gullsmiður.
Sími 888. — Laugaveg 8.
Sjó- og bruna-
vátryggingar.
Símar:
Sjótrygging .... 542
Brunatrygging . . . 254
Framkvæmdarstjóri . 309
Vátryggið
hjá
íslensku
féldgi.
Smiuudagsblaðið.
Myndablað gefið út til skemtunar og
fróðleiks. Ritstjóri Axel Thorsteinson.
Utanáskrift: Póstbox 956. — Verð
fimm krónur árgangurinn. Skilvísir
kaupendur II. árgangs, s.em nú eru
yfir 20 blöð komin út af, fá tveggja
krónu bók í kaupbæti, eins og áður
liefir verið auglýst í Tímanum.
Sunnudagsblaðið kostar því i raun og
veru aðeins þrjár krónur og er því
langsamlega , ódýrasta blaðið, eftir
stærð og frágangi að dæma.
dagar þess taldir áður en varir.
Nýi doktorinn, Jón Helgason.
varði ritgerð sína í fyrri viku.
Fór athöfnin fram í neðrideildar-
salnum í Alþingishúsinu. Páll E.
ólason flutti aðalræðuna af há-
skólans hálfu. — Doktorsritgerð-
in er stór bók og prýðilega út
gefin, prentuð í Kaupmannahöfn.
Rekur höf. æfi og ritstörf Jóns
Grunnvíkings með afbrigðum ná-
kvæmlega. Framúrskarandi mikil
vinna og nákvæmni virðist liggja
að baki. Er ekki að efa að doktor
Jón Helgason verður merkilegur
og afkastamikill vísindamaður, ef
honum endist heilsa og aldur,
eftir því sem orðin er hans fyrsta
ganga. Er gott til þess að vita að
fá ungan og ötulan mann til
starfs í hinum þjóðlegu fræðum.
— Doktor Jón Helgason er Borg-
firðingur að ætt og kvæntur dótt-
ru Bjamar bónda í Grafarholti.
Hann mun vera á förum héðan til
Oslóar. Sest hann þar í það kenn-
arasæti í norrænum fræðum, er
áður var boðið Sigurði Nordal.
Manntjón. Enn berast fregnir
um manntjón. Mótorbáturinn,
Goðafoss, frá Vestmannaeyjum
kemur ekki fram og mun engin
von um hann lengur. Hafa með
honum farið í sjóinn fimm rösk-
ir drengir. — Enn fórst enskt
saltskip við Vestmannaeyjar í
vikunni. Komu að íslenskur og
enskur togari til hjálpar og gátu
bjargað átta mönnum, en fimm
fórust.