Tíminn - 20.02.1926, Síða 4
32
TÍMINN
SAMBAHD ÍSL SAMVINNUFÉLAGA
útvegar allskonar landbúnaðarvélar og verkfæri og skal hér upptalið nokkuð af því helsta:
Steingálgar
til að rífa upp og lyfta grjóti.
Sáðvélar til að sá grasfræi og korni.
Rófnasáðvélar.
Plógar
K. K. Liens,
Kyllingstad
Arfa og hreykiplógar
o. fl. gerðir.
Diskaherfi
Fjaðraherfl
Mosaherfi
norgk
HANKFIO Ávinsluherfi
Flahultherfi
sænsk
Spaðaherfi o. fl. gerðir.
Lokræsaskóflur. Stúnguskóflur.
Heygaflar. Stúngugaflar.
Forardælur. bæði keðjudælur og venjulegar dælur.
Forardreifarar. Forarkranar.
Sfálljáir (einjárningar).
Kerrur og kerruhjól með öxlum.
Heyvagnar. Sleðar og önnur flutningatæki.
Rakstrarvélar. Snúningsvélar.
Brýnsluvélar. Steinar í brýnsluvélar.
Heybindingsvélar og heybandsvír.
Heylyftur tH að koma fyrir heyi í hlöður.
Sjálfvirkur brynningaumbúnaður í fjós og önnur peningshús.
„Alfa Laval“ skilvindur, strokkar og önnur mjólkuráhöld.
„Herkúles“ sláttuvélar og aðrar heyvinsluvélar. Nýja
Herkúles sláttuvélin slær frámunalega vel, og er sérstaklega
traust og ódýr.
Af Herkúles fást 3 stærðir, allar með þéttfingraðri greiðu,
framhemlum og dráttartaugum. 3 l/s feta vélar, hæfilegar til
að slá venjuleg tún; 4 feta vélar sérstaklega heppilegar þar
sem engjar eru greiðslægar; og 4‘/a feta vélar handa þeim
sem hafa sérstaklega góðar vélaslægjur.
Ath. Stærð vélanna er í fullu samræmi við ljálengdina,
eins og vera ber. Hér er því ekki að ræða um eina og
sömu vél með mismunandi greiðum, sem ýmist ber vélina
ofurliði, eða er of stutt í hlutfalli við breidd vélarinnar.
Herkúles vélunum fylgir íslenskur leiðarvísir með fjölda
mynda.
Nokkrar sláttuvélar af annari gerð seljast með tæki-
færisverði.
Q^Svnntuspennnr
f Upphlutsmillur og
^og alt til upphluts.
Trúlofunarhriugarnir
þjóðkunnu. Mikið af steinhringum.
Sent með póstkröfu út um land
ef óskað er.
Jón Sigmundsson gullsmiönr.
Sími 383. — Laugaveg 8.
„19. JÚNt“.
Við síðustu órgangaskifti
stækkaði blaðið nær því um helm-
ing, er verð þess hélst óbreytt.
Blaðið hefir smámsaman aflað sér
rgjkilla vinsælda meðal lesenda
sinna og náð útbreiðslu um land
alt. Ættu konur jafnt til sjávar
og sveita að kaupa blaðið, því það
flytur margt það er heimilunum
mó í hag koma og einnig, geta
konur með hjálp þess fylgst með
því er konur starfa,bæði hér heima
og erlendis og hver eru áhugamál
þeirra. — tJtgáfa blaðsins er
vönduð; í því eru margar góðar
myndir. Brotið er hentugt, og
þegar nokkrir ápgangar eru
komnir saman, er það eigulegasta
bok. þeir sem gerast kaupendur
að yfirstandandi árgangi, fá í
kaupbæti allan síðasta árgang.
Hina árgangana 7 má en fá á
afgxeiðslu blaðsins og kosta 1 kr.
hver. — Blaðið alt frá byrjun til
ársloka 1926 kostar kr. 10,00 og
auk þess ókeypis fylgirit. En þeir
sem vilja sinna þessu boði þurfa
að hafa hraðann á, því að lítið
er orðið eftir af upplaginu.
Pöntun sendist afgreiðslu „19.
júní“, Sólvöllum, Reykjavík. Box
41. Sími blaðsins er 1095.
Konur, styðjið yðar eigið blað!
Kaupið „19. júní“ eitt ár til
reynslu og þið munuð halda áfram
það næsta.
Ennfremur: Gaddavír, girðingastaurar, vírnet, tilbúinn áburður og grasfrs.
Pantanir verða afgreiddar með aðstoð manns, sem er sérfræðingur í öllu sem að
landbúnaðarverkfærum lýtur.
Hjartans þakkir öllum þeim, sem
sýndu mér hluttekningu og veittu
mér aðstoð við hið skyndilega frá-
fall míns elskaða eiginmanns, Lár-
usar Jónssonar. Vil eg einkum votta
þakklœti mitt Skúla Eyjólfssyni
bónda á Gillastöðum, og þeim systr
CTörð til sölu..
Jörðin Seljatunga í Plóa fæst tii kaups og ábúðar í næstkomandi
fardögum, borgunarskilmálar mjög góðir.
Semja ber við eigandan Sigurð Einarsson bónda á Seljatungu
eða Þ. Magnús Þorláksson Biikastöðum.
Gíslasyni skósmið í Reykjavík,
Ragnheiður, gift Einari þórðar-
syni bónda á Skeljabrekku i Anda-
kíl, Dómhildur, ógift og heilsubil-
uð á sjúkrahúsi, og María, ógift
heima hjá móður sinni.
Jónas var í náinn ættlegg kom-
inn af merku bændafólki í Árnes-
sýslu. Foreldrar hans voru Sig-
valdi Ingimundarson frá Vestur-
koti á Skeiðum og Guðrún Jóns-
dóttir, merkisbónda í Reykjanesi,
og verður ætt hans ekki rakin hér
lengra rúmsins vegna. En fróðir
menn segja hann verið hafa 11.
mann frá Torfa ríka sýslumanni
í Klofa og 14. mann frá Lofti ríka
á Möðruvöllum.
Jónas á Björk, eins og hann var
oftast neifndur, var nafnkunnur
bóndi í Ámessýslu og víðar, og
bar mangt til þess. Hann var um
langt skeið í röð hinna bestu
bænda í sinni sveit, og að mörgu
á undan samtíð sinni í búnaði,
einkum að því er fjárrækt og fén-
aðarmeðferð snerti. Hann var bú- i
höldur góður og afburða fjör-
maður og afkastamaður til allrar
vinnu, byggingamaður með af-
brigðum og snyrtimaður í allri
umgengni, enda búnaðist honum
vel, þrátt fyrir erfiðleika er á vegi
hans urðu, svo sem langvarandi
heilsuleysi konu hans og bama.
Og á seinni áram hans hafði gigt-
in svo þjakað honum, að hann
komst ekki frá rúminu nema við
tvo stafi, eftir það vann hann í
sessi alla daga frá morgnr til
kvölds, því áhuginn og atorkan
var óþrotlegt fömneyti hans. Jón-,
as var fremur lágur maður vexti,
en vel vaxinn oig fríður sýnum,
hvatlegur og snarlegur í öllum
viðvikum. Hann var glaðlyndur,
góðlyndur og bjartsýnn, og tfylgd-
ist vel með i mörgu, því hann var
skemtinn í viðræðum, ákveðinn,
hreinlyndur og hispurslaus við
hvem sem í hlut átti, tryggur og
vinfastur og ábyggilegur í öllum
viðskiftum, og félagsmaður hinn
besti. Gestrisinn og góðgjörða-
samur heim að sækja, jafnt við
menn og skepnur, sem að garði
bára, því hann var hvorttveggja
í senn, mannvinur og dýravinur.
Með honum er til moldar genginn
maður, sem lengi mun í minnum
hafður hjá þeim, sem þektu hann
best. Hann var ástríkur eiigin-
maður og góður og umhyggjusam-
ur faðir.
Blessuð veri minning hans.
M. J.
----o----
„Segðu mér hverja þú umgengst —
Ólafur, eigandi „marðar", þykist
særður yfir því, að út af manndráps-
hótunum Kr. Alb. hefi eg minst á
„hraklýð". Ólafi þykir undarlegt að
sumurn af samstarfsmönnum hans sé
valið slíkt nafn. Nokkur dæmi munu
skýra réttmæti orðsins. 1. Á fundi við
þjórsárbrú, rétt fyrir siðasta land-
kjör, talaði Ólafur til stuðnings J. M.
En alt i kring voru fyllibyttumar úr
Rvik, með illum látum, að þjóna
sama málstað, trufluðu m. a. ræðu
Hallgrims Kristinssonax. 2. Einn af
togurum Ólafs var i fyrra dæmdur 1
stórsekt fyrir veiðiþjófnað við Suö-
umes. Að sögn Flygenrings er tog-
urunum hjálpað úr landi til að geta
framið þetta svívirðilega afbrot
Hvaða samstarfsmaður Ólafs visaði
á landhelgina? — Og hvaða nafn
verðskuldar slikur maður? Kr. A. hef-
ir játað, að tveir af þeim sem mikið
hafa ritað i blað Ólafs, skriíi „sal-
emisstýl“. það þýðir að rit þeirra
séu ekki í húsum hæf. Annar þessi
maður er fyrsti ritstjóri Ólafs, núver-
andi ritstjóri Storms. Orkar ekki tví-
mæla um að sá maður sé og hafi
Verið neðan víð siðað mannfélag. 4.
Næsti ritstjóri Ólafs er Amerikuíar-
inn, sem Kr .A. hefir lýst þannig, aö
ef satt væri, ætti hann að geymast
undir lás og loku. 5. þriðji ritstjór-
inn er Kr. A. sjálfur, sem fyrir utan
allan andlegan vanmátt hefir gerst
til að ætla að breiða yfir alvarlegt
stjórnmálaimeiksli ílokks síns með
hótunum.. það brot er þess eðlis, að
pilturinn yrði að sitja um stund í
betrunarhúsi, ef kært væri, og dæmt
án hlutdrægni. 6. Ólafur lætur ljós
sitt stundum skína i blaði „ullarjót-
ans“, og þaö blað studdi hann frek-
lega við kosningar á dögunum.. Rit-
stjórar þess eru frægir af endemum
fyrri að haí* birt klám í þlaðinu uro
erlenda konu og orðið að biðja fyrir-
gefningar á glópsku sinni. — þessi
fáu einföldu dæmi, ættu að verða til
þess, að Ólaíur yrði aldrei framar
hissa þótt minst væri á „hraklýð"
i samhandi við íramkomu sumra
samherja hans.. Viðkvæmni Ólafs er
í þvi efni jafn óþörf, eins og ef
negrar teldu sér misboöið í hvert
skifti þegar hvítir menn minnast á
hinn avarta bjór þeirra. J. J.
----o-----
Hvannir heitir nýútkomin bók
eftir Einar Helgason. Bókin fæst
hjá útgefanda og kostar 6 kr.
Verður hennar getið síðar hér í
blaðinu.
Neðanmálsgreinin: „Nokkur orð
um bækur og bókmentir“, er eftir
Hallgr. Hallgrímsson bókavörð.
Slys. I óveðrinu 13. þ. m. varð
öldruð kona fyrir bifreið hér í bæn-
um og beið bana af. Hún hét Guð-
björg Ingvarsdóttir og átti heima
í Bjamaborg. Bifreiðarstj. gat
ekki verið um að kenna, að frár
sögn þeirra, er í bílnum voru. —
Bam varð undir bifreið á Vesturg.
nýlega og slasaðist töluvert, en er
á batavegi.
Ritstjóri Tryggvi þórhallsson.
Prentsmiðjan Acta.
kinum, Guðrúnu Jónasdóttur og Jó-
hannesi Jónassyni á Sámstöðum, sem
öll reyndust mér eins og bestu syst-
kini við þetta sorglega tilfelli. Eg bið
guð að launa þeim og öllum öðrum
nágrönnum mínum, eem reyndust
mér tryggir vinir í raunum mínum.
Hömrum í Laxárdal, 31. des. 1925.
HólmfriSur Sigurðardóttir.
„Ekki brást
hann „Vitazgjafi* enn“.
þorgrímur læknir þórðarson í
Keflavík og kona hans hafa nú í
fjögur ár samfleytt sent mér
hundrað krónur að afmælisgjöf
23. desember ár hvert. þessar
höfðingsgjafir bið eg algóðan
Guð og, alheimsdrottinn að endur-
gjalda þeim og þeirra með tíman-
legum og eilífum gæðum.
Höfn við Hornafj. 1. jan. 1926.
Eymundur Jónsson.
Jörð til sölu.
Jörðin Vatnsnes í Grímsnesi
fæst keypt og til ábúðar í næstu
fardögum. Jörðin er ein af bestu
heyskaparjörðum í Grímsnesi, auk
þess mikil skilyrði fyrir lax- og
silungsveiði, nánari upplýsingar í
síma að Minni-Borg, en semja ber
við eiganda og ábúanda jarðarinn-
ar þórð Jónsson.
Benedikt Fr. Magnússon frá
Spákonufelli, nú í Reykjavík —
Grundarstíg 3 —, tekur að sér
að reka erindi hér í höfuðstaðnum
fyrir menn út um land geign sann-
gjamri borgun.