Tíminn - 15.05.1926, Side 1
Cðjaíbferi
og afgt'ei6sluira&»r Cimans er
Stflurgeir ^tiltifsfen,
Sambcmfesbásmu, Heyfí<n>if
^ýgreiböía
C f m a n s ec f Samianbsljástni.
®pm bctgle$a 9—i* f. I).
Sfrrti 996.
X. ár.
Koykjuyik 15. maí 1926
24. blað
Frá úílöndum.
Breska verkfallið.
Helstu kolahéruðin í Bretlandi
eru þrjú. I Norður-Englandi
kringum Tyne, þar vinna um V2
miljón verkamanna. Svo eru nám-
urnar í Mið-Englandi og vinna
þar um 200 þús. verkamenn. I
Wales eru miklar námur, þar sem
vinna um 250 þús. verkamenn.
í Suður-Skotlandi eru einnig nám-
ur, þar sem vinna næstum 200
þús. verkamenn. Starfræktar nám-
ur munu vera nokkuð á fjórða
þúsund. Bretar voru um eitt
skeið mesta kolavinsluþjóð heims-
ins. En þjóðverjar og Bandaríkja-
menn eru keppinautar þeirra á
því sviði og kolaframleiðsla hinna
síðarnefndu er nú komin langt
fram úr framleiðslu Breta. Árið
1922 framleiddu Bretar 256 milj.
smál., en Bandaríkjamenn 417
milj. smál. og þjóðverjar 141 milj.
smál. Kolanámið hefir verið mik-
ilsverður þáttur í þjóðlífi Breta,
en samkepnin við aðra hefir auk-
ið hættuna. Einnig hefir raforku-
notkun farið vaxandi í Bretlandi
á seinni árum, og talið er að
aðeins fullur 5. partur af vants-
orku í landinu sé nú tekinn til
starfrækslu.
Margvíslegur ágreiningur hef-
ir áður risið af kolanámurekstr-
inum í Bretlandi, og oft skollið á
skæð verkföll. Við verkfallið 1921
taldist hagfræðingum að landið
hefði beðið um 200 milj. punda
hnekki. Togstreita, erjur og undir-
búningur undir þetta verkfall hef-
ir nú staðið tæpt ár.
Um mitt síðastliðið sumar lá
nærri deilum og verkföllum út
af kolanámurekstrinum og kaup-
inu. En þá var málinu skotið á
frest til 1. maí þ. árs og vand-
ræðunum afstýrt í bili, á þann
hátt að stjómin og flokkur henn-
ar ákváðu að ríkið skyldi greiða
námueigendum tekjuhallann, sem
af rekstrinum hlytist. Búist er
við, að ríkisstyrkur þessi fari
fram úr 20 milj. sterlingspunda
á himum umsamda tíma. Skipuð
var nefnd til þess að rannsaka
þetta vandræðamál og koma fram
með tillögur til úrlausnar. Nefndin
hefir skilað tillögum sínum og
hafa þær ekkert greitt úr þeim
ágreiningi, sem áður var og enn
er milli námueigenda og verka-
manna. Nefndin féllst ekki á
kröfur verkamannafl. um þjóð-
nýtingu kolanámanna. Jafnframt
þjóðnýtingai’kröfunni hafa verka-
lýðsfélögin gert tillögur um að
fyrirkomulaginu á námurekstrin-
um yrði breytt frá rótum; á það
geta námueigendur ekki fallist;
og' nú er stormurinn skollinn á:
Verkfallið hafið.
Nú er eigi aðeins barist um
.kaup og lengd vinnutíma, heldur
um skipulag þess atvinnureksturs,
sem telja má hornstein iðnaðar-
og atvinnulífs í Bretlandi; þegar
námureksturinn hallast eða tepp-
ist, þá stöðvast að mestu leyti
aðrar atvinnugreinir. Kolaútflutn-
ingur Breta minkar óðum, og er
nú miklu minni en fyrir stríðið,
enda eru litlar líkur til að hann
aukist aftur. Kolamarkaðurinn
hefir takmarkast. Skipin eru far-
m að nota olíu í stað kola, raf-
magnsnotkun eykst og viðskifta-
samböndin við Rúlssa og Mið-
Evrópu verða naumast endurreist
1 pessu eíni.
a mnn bógixrn iiamlar pao
mestu neima iyrir, aö reasturs-
aoieroir 1 K.oiauamunum eru mjog
urenar og' onagamegai'.
laiiú er ao pjoonyung út ai
iyrn sig mum enia næta ur pvi
— pess vegna eru iiuttai' sam-
nnoa peirri itroíu, uuogui' um aó
treysta eKKi a utiiutmng koia — 1
neiaur reisa íonaoai'iyrir'tæKi 1 1
ianamu sjanu, rékin meo Koium, *
eöa vmna ur penn yms eini. þaö J
er serstaKiega verKamamialiokk-
urmn, sem lyign- pessum tiiióg-
um iram og viiiigeroreyta lönaöar-
hn ríretianas ira rótum. — Namu-
eigenaurnir vnja sem mmst ieggja
1 kostnao tii umoota a námu-
reKstrmum, neiaur viija þeir, aö
námurnar geti geiió sein mestan
aio meö mmstum tiikostnaöi —
peir nennta iágt kaup og sem
iengstan vnmutima. — Um þetta
er nu uarist 1 Bretiandi.
Sióustu írétth': r iramhaldi af
því, sem sagt var 1 siöasta blaði
skai þess getiö, samkvæjmt sím-
skeytum, aö 1 Giasgow urðu al-
variegust iriöarspjöii í landinu.
Skotgaröavirki voru iiiaöin á
götum, og öii vagnaumí'erð stöðv-
uö. Verkfalismenn haia hindrað
íiutnmg' til borgarinnai- og frá
henni.
8. þ. m. var talið aö miklii' bar-
dagar heiðu hindi'að, að hægt væri
að úthluta matvælum irá aðal-
stöðiimi i Hyde Park, sjálfboða-
lögreglulið JLiUndúnaborgai' hafði
þá verið aukið alls um 50 þús.
manns og kallað vopnað konungs-
iið. Biskuparnir í York og Canter-
bury reyndu að miðla málum, en
tókst ekki, vildu þeir að launatil-
laga kolanámueigenda væri aftur-
kölluð, ríkisstyrkurinn framlengd-
ur og núverandi kaupgjaldi hald-
ið; stjórnin neitaði þessari til-
lögu. I einu skeyti segir, að hæsti-
réttur hafi úrskurðað allsherjar-
verkfallið ólöglegt. Landssam-
band verkamanna telur úrskurð
hæstaréttar ólöglegan. — Blað
breskra jafnaðarmanna telur sam-
tök verkamanna traust, en að
hernaðarráðstafanir stj órnarinnar
séu ósanngjarnar og óþarfar, |
óeyrðir séu litlar og aðeins um '
kaupdeilu að ræða; annars er sú !
skoðun alment ríkjandi að or-
sakir verkfallsins séu að miklu
leyti pólitískar. — I kolanámuhér-
uðunum er hvergi talið að um
nein friðarspjöll hafi verið að
ræða. — Blöðin eru aftur að
byrja að koma út í arkarbroti;
og jámbrautarlestir að hefja
göngu sína.
9. mai. Aðvörun dönsku verk-
lýðsfélaganna um samúðarverk-
fall, vakti mjög undrun í Eng-
landi. 1 Skotlandi er víða óeirða-
samt — hraðlestin sem fer á milli
Lundúna og Edinborgar, fór frá
Lundúnum í fyrsta slinn í gær,
síðan allsherjarverkfallið hófst.
Bjálkar höfðu verið reyrðir á
brautarteinana, 13 km. fyrir
sunnan Edinborg, en það var upp-
götvað fáum mínútum áður en
lestin kom á staðinn, og olli því
eigi slysum. — Breska verka-
mannasambandið hefir sent til-
kynningu um það til Moskva, að
það neiti hjálpartilboði þaðan, 0g
endursendi peningaávísun þaðan.
— 1 Osló höfðu verkamenn tekið
ákvörðun um að neita enskum
skipum um afgreiðslu.
10. mai: Baidwin íorsætisráð-
herra hefir sagt í víðvarpsræöu,
að pótt hann væri íriðarsinni, þa
viidi hami verja frelsi og rétt-
indi borgaranna. Vegna bardag-
anna væri nauðsyn á að aiisherj-
arverkíallið yröi afturkallað; og
aö fulitrúai' aöilja fái takmai'ka-
iaust vaid tii sáttmáiagerða í
koiamáiinu. — Verkamenn áfelia
stjórnina fyrir iiiutdræjgni, hún
hafi ekki útvai’pað tilL biskup-
anna; hún heimti verkíaliið aítur-
Kaiiað, en geri engar kröfur- tii
atvinnurekenda. þeir kreíjast
þess að verkbannið verði aftur-
kallað mn leið.. og verkfallið.
11. mai. Upþskipun hefir farið
fram i íiestum höfnum nema
London. Stjórnin sendi 4 kíióm.
langa vörubílaiest niður að höfn-
inni og lét ílytja mjöl og sykur í
Hyde Park. Garðurinn er varinn
með fallbyssum og pansarabílum.
Fimm vopnaðii' menn eru í hverj-
um bíl. Herdeiidii' með byssu-
stingi hafa löggæslu á hendi á
götum borganna. Frést hefir um
þrjú járnbrautarslys frá New-
castle, Stakesford og Edinborg.
Margir dauðir, fjöldi særður.
Óæft járnbrautarlið var orsök 2ja
j árnbrautarsly sanna.
12. maí. Hvorki verkamenn eða
stjómin þora að hefja tilraun til
sátta, af hræðslu við almennings-
áltið af því svo verðí litið á, að sá
aðilinn, sem liefji sáttatilraun
hafi gefist upp. — Aðalráð verka-
manna samþykti í gærkvöldi, að
senda stjórninni tilkynningu um
að það æskti viðtals við hana.
Fundur var haldinn kl. 11—12
um hádegi, en þá sendi aðalráð
verkamanna út opinbera tilkynn-
ingu um afturköllun allsherjar-
verkfallsins sldlyrðislaust. Vinna
sjálfboðaliða hófst í gær — sér-
staklega flutningavinna.
Lloyd George vinnur að því bak
við tjöldin, að frjálslyndi flokk-
urinn verði miðlunarmenn. —•
Dönsku verkalýðsfélögin hafa
ákveðið að styrkja ensku félögin
fjárhagslega og verja 50 þús. kr.
til þess.
13. maí. Mikil gleði í London
yfir úrslitum allsherjarverkfalls-
ins, og borgin prýdd flöggum,
svo að einsdæmi er talið síðan
vopnahlésdaginn 1918.
14. mai. Talið er að friðarhorfur
fari aftur versnandi, sumpart af
því að verkamenn hafa gert mót-
spyrnu gegn afturköllun verk-
fallsins, en sumpart vegna þess
að atvinnurekendur hafa gert til-
raunir til launalækkunar. Mörg
verklýðsfélög hafa opinberlega til-
kynt verkfall. Miklar æsingar við
höfnina í London og í Doncaster
kolanámusvæðinu. 1 fyrradag
komst upp um tilraun til þess
að sprengja í loft upp hluta af
járnbrautarteinunum á milli Edin-
borgar og Glasgow.
— Vesturheimsmaðui’inn Byrd
og Amundsen hafa verið að undir-
búa flugferðir til Norðurpólsins
og voru báð;r komnir til Sval-
barða. Byrd lagði á stað frá
Kingsbay 9. þ. m. í flugvél og
kom aftur eftir tæpan sólarhring,
og telur sig hafa flogið til pólsins.
þykir erfitt úr því að skera, en
för hans talin íþróttaafrek, og
er mikill fögnuður Ameríkumanna.
— þýska stjórnin er fallin.
Vantraustsyfirlýsing var samþykt
með 176 atkv. gegn 145. Lögregl-
an varð þess vör, að stjómarbylt-
ing hefir verið undirbúin af hálfu
keisarasinna með aðstoð íþrótta-
félaga. Undirróður talinn stafa
frá Vilhjálmi fyrv. keisai’a. Hús-
rannsókn var gerð hjá sumum
leiðtogunum, en flestir þeirra
flýðu.
— Amundsen lagði nýskeð í
leiðangur yfir norðurheimskautið
á loftskipinu „Norge“. Símskeyti
herma svo að hann hafi farið yf-
ir Norðurheimsskautið kl. 1 að-
faranótt 12. þ. m. — þá var
norska, ítalska og ameríska fán-
unum varpað fyrir borð. Samkv.
skeyti frá 13. þ. m. á að hafa
sést til loftskipsins frá Point
Barrow.
— Norska þingið ákv. að almenn
atkvætðagreiðsla fari fram í októ-
ber í haust, um bannmálið í Nor-
egi.
•--o——-
Jóhannes Fðnss
operasöngvari.
V'egna þess að höfuðstaður ís-
lands vex hratt, alveg án hlut-
falls við mannfjölgun og bygging
úti um sveitirnai', er það alvar-
iegt íliugarefni fyrir þá, sem vilja
trúa á framtíma þjóðernis vors,
hve feikna skaðvæjnlegt er tóm-
læti vort um stofnun þjóðleik-
húss í Reykjavík. „Heimurinn“
er fyrir oss erlend veröld. þrá
æskuimar eítir þeirri list, sem er
markverðust fyrir menningu kyn-
slóðanna, fær enga fullnæging;
og sé eitthvað reynt í þá átt, er
það að mestu ennþá kák, sem
fremur veldur svartsýni og von-
leysi um að þjóðlíf vort geti bor-
ið slíkan ávöxt. Siglingar Islend-
inga til næistu stórborga á Norð-
urlöndum eru dýrai-i en metið
verði til fjár —• og því óþarfari
þjóðmegun vorri, að meginhvötin
er oftlega einungis sú, að sjá og
heyra það, sem vér gætum nú
fullvel veitt oss sjálfum,ef bhndni
alþingis 0 g afbrýðissemi fjár-
plógsmanna þeirra, er legið hafa
á landssjóði, hefði ekki látið leik-
listina sitja á hakanum.
Af þessum hræðilegu mistökum
verðum vér nú að horfast í augu
við þjóðhættulegt óyndi og sökn-
uð venjulegrar menningar. Hver
sá, er hefir kynst og notið áhrifa
af dýrri list, getur þolað að búa
við þessa lágstöðu, einmitt meðal
þeirrar þjóðar sem einna há-
greindust mun vera um slíka hluti
að eðlisfari og uppruna?
Mér virðist það réttmætt að eg
geti þess hér, að eg fyrir nokkr-
um tíma samdi áskorunarskjal,
er eg fékk undirritað af mörgum
helstu leikurum Reykjavíkur, þar
á meðal frú Stefáníu heitinni Guð-
mundsdóttur, í þá átt, að landið
hlutaðist til um bygging þjóðleik-
húss og stofnun leikarakenslu hér
á staðnum o. s. frv. þessi hreyf-
ing varð einungis til þess, að tek-
ið var til bragðs að leggja smá-
vægilegan skatt á skemtanir m.
f m. sem ekki þarf að skýra nánar
frá hér. En rétt er þó að taka
það fram, að tafið var einungis
fyrir málinu með þessari smá-
munalegu 0g skammsýnu stýfing
á tillögum skjalsins. Vér stöndum
engu nær; því kröfur til viðun-
andi leikhúss stíga hraðar fram
en smáskattur einn getur bætt úr.
Af þessum fáu skýringum mun
mönnum skiljast hve mikils það
er vert, að fá slíkar heimsóknir
erlendi'a listamanna í þessum
greinum, sem kunna að ílytja
Doosnap hárrar snhldar fyrir oss
Ug pess háttar gest höium ver
nu meðal vor par sem er hr. do-
hannes Lönss, írægur um heim-
inn fyrir ágætustu djúprödd áií-
unnai'. þau hlutverk sem hann
neiir ieyst i áheyrn Reykvikinga
væru betur flutt og heyrö einnig
á öörum hinum fjöimennustu
hafnastóöum landsins. Bá sem heí-
ir eitt sinn heyrt mátt og mennt
þessa einstaka söngvara, Jhelii'
auögast að minning sem honum
mun seint fyrnast.
Mönnum kann ef til vili að
þykja þaö fjarsótt, er eg minn-
íst hér á hina heríilegu vanræksiu
um styrk og reisn þjóðlegrai'
listai' í leik, söng', framburði og
.dansi iyrst og fremst í höiuðstað
vorum, þar sem eg- set þetta í
samband við einn söngvai’a, sem
er nú gestur vor. En því valda al-
veg sérstakar ástæður og munu
slikar hvergi finnast í neinu öðru
siðmönnuðu landi. Fyrii- engri
þjóð stendur líkt á. Land vort er,
í samanburði við framleiðslumátt,
landsvíðáttu, þjóðernisarf og
tungu á eina hlið og á aðra hlið
við íbúatölu, stjómarfar og rétt-
arstöðu meðal þjóðanna, algerlega
einstætt. Engir aðrir hundrað-
þúsund ferkilometrar á jörðinm
geta jafnast íslandi í náttúru-
auði. Engin önnur menningarþjóð
nútímans talar óbreytt fornalda-
mál sitt meðal almennings. Ekk-
ert annað siðað ríki býr við
stjórnleysi, án nærveru stöðugs
valdhöfðingja. Og loks höfum vér
tekið rikisnafn án vopnaskyldu
um varnir hlutleysis vors; og
mun þessi viðburður vera sá
fyrsti af því tagi í sögu Evrópu-
þjóða. i
þessi fáeinu orð nægja til þess
að gjöra grein hverjum þeim er
ber að garði vorum, til þess að
flytja hér erindi máls eða hljóm-
listar, að djúpar orsakir ráða um
sérleg einkenni þjóðaranda vors.
þjóðlegur söngandi er tæplega
vaknaður enn. Aldaauður af
rammíslenskum söngþönkum frá
þeim tíma, er hvert heimili átti
„kvæðamann“ hefir horfið að
mestu niður í kirkjugarðana, af
því að heiður vor og andlegu
fjársjóðir voru of illa geymdir
undir pappírsvaldinu. Aðeins örfá
merki eru farin að sjást til þess
að íslenskur, nýr tónskáldskapur
sé að stíga fram undan fargi ald-
anna.
þegar eg heyrði hr. Fönss
syngja hér 11. þ. m. veitti eg því
mesta eftirtekt hvað hann átti
auðvelt með það að ná undireins
samræmi við ókunna áheyrendur.
Hver maður fann að hann sló
strengina einmitt svo sem átti að
vera, til þess að kynna sig sjálf-
an. Söngur er rödd hjartans. þeg-
ar hann leit yfir þennan hóp af
íslendingum sem hlýddu á hann
skygndist hann inn í eðli þeirra
og sál. — Hann flutti söngvana
með framúrskarandi krafti,
áreynslulaust. Leikur hans var fá-
gætlega áhrifaríkur, vegna þess
að allt féll honum svo létt og
eðlilega. Hann bar orðin þannig
fram að þau réttlættu hverja
hreyfing. Best kom þetta fram í
vísu Drachmanns: „Eg ber minn
hatt á þann hátt sem eg vil“
(WeStvang). Aria Leporellos í
Don Juan (Mozart) var ágætlega
Frh. á 4. afte