Tíminn - 24.07.1926, Blaðsíða 1

Tíminn - 24.07.1926, Blaðsíða 1
^JaíMed afgtei&síumaftHr CimaHS er Sigar^eir ^tifcvtfsfan, Satnktnfesliásitm, Keyffapt? ^fgrei&^ía C í m a n s er í Saml>an6sí}úsinu OOovc, fctt^íc^a 9—!£ {. i). Sísni X. ár. Beykjavlh 24. júlí 1926 35 blart Gyn- og klaufnaveiki. Sýki þessi gerir hinn mesta usla á búpeningi hvarvetna þar sem hún nær að breiðast út. Er hún talin mjög smitandi og á að geta borist með heyi, hálmi, kjöti og húðum, dýrum o. fl. Það er líka mjög almenn skoðun að menn beri veikina. Er sumstaðar, t. d. í Noregi, haft strangt eftirlit með því, að menn, sem til landsins koma úr sýktum löndum, ekki sýki skepnur. Undanfarin ár hef- ir sýkin verið mjög skæð víða í nágrannalöndunum. í Danmörku skiftir tjónið, sem af veikinni leið- ir, miljónum króna á ári, og það þó ekkert sé tekið til igreina alt hið óbeina tjón, sem sýkin hefir í för með sér, því það verðun ekki með tölum talið. Er nú algert bann á innflutningi kjöts og gripa frá Danmörku til Bretlands, og miklar hömlur á innflutningi í Noregi, en í þessum löndum, eink- um Bretlandi, er aðalkjötmark- aður Dana. Kjötverð var svo lágt í Danmörku í maímánuði síðastl. að talið var að það væri 25% lægra en fyrir stríð, og síðan hef- ir það þó lækkað. Fyrir tveimur árum gerði gin- og klaufnaveikin stórtjón á bú- fje, (nautum, sauðum og svínum), í Bretlandi. Var það þá til bragðs tekið, að skera niður féð í hinum sýktu héruðum. Hefir síðan tek- ist að halda sýkinni í skefjum. Og til þess að koma í veg fyrir að hún bærist til landsins aftur, hefir verið lagt innflutningsbann á gripi og nýtt kjöt frá megin- landi Evrópu. Það er sérstakt lán fyrir okkur Íslendinga, að veikin hefir aldrei borist hingað, því ef það væri ekki alveg örugt, er víst um það, að innflutningsbann Breta hefði einnig gilt fyrir Island, og þó ekki sé enn um neinn verulegan markað að ræða fyrir íslenskt kjöt, í Bretlandi, þá er nú alveg sérstök ástæða til þess að reyna að vinna þar markað og halda öll- um leiðum opnum, svo sem hægt er. Það er þó ekki nema að mjög litlu leyti okkur sjálfum að þakka að gin- og. klaufnaveikin ekki hefir færst enn hiugað, því sárlítið hef- ir verið til þess gert að vama því. Reyndar hefir veríð bann við innflutningi húsdýra hingað til lands um langt skeið, en ekkert eftirlit á því haft, að sýkin ekki berist hingað á annan hátt. Hing- að flyst kjöt, húðir, hey, hálm- ur og margt fleira frá útlöndum, þar sem sýkin er landlæg. Til eru þó heimildarlög fyrir landsstjórnina, til að gera nauð- synlegar ráðstafanir, til að spoma við því, > að sýkin beríst hinigað, en stjórnin hefir ekkert gert. — Þyrfti að bregða fljótt við og hefta innflutning allra þeirra vara frá útlöndum, þar sem sýkinnar hefir orðið vart, sem hætta getur stafað af. Er t. d. engin trygging fyrir því, að það smjör, sem flyst hingað frá Danmörku, sé hættulaust í því efni. Ekkert eft- irlit er heldur haft með þeim mönnum, sem hingað koma frá útlöndum, og á meðan það er al- ment álit erlendis, að menn geti boríð veikina, er óafsakanlegt af okkur að loka augunum fyrir þeirri hættu, sem af þeim getur stafað. Ríkisstjórnin verður að bregða fljótt við til aðgerða í þessu máli. Hér er ekki eingöngu um þá hættu að ræða, sem stafar af því, að veikin berist hingað til lands, heldur getur slælegt eftir- lit og kæruleysi orðið þess vald- I. Mestu tíðindi sem gerst hafa í sögu íslands undanfarna manns- aldra, eða jafnvel um nokkrar aldir, eru þau, sem igerst hafa síðasta mannsaldurinn: að þunga- miðja þjóðlífsins hefir flust úr sveitunum til kauptúnanna. Mik- ill hluti þjóðarinnar hefir á ein- um mannsaldri algerlega breytt til um lifnaðarhætti. Fyrir rúmum mannsaldri ólst meginhluti þjóðarinnar upp í sveit. Nú eru ekki nema 40% af Is- lendingum búsettir í sveit. Stefni áfram, sem stefnt hefir, líða ekki nema örfáir áratugir þangað til aðeins 20% eða 10% eru eftir í sveitinni. í þetta sinn skal það ekki end- urtekið, sem áður hefir verið minst á hér í blaðinu, en þarf þó að ræðast enn miklu rækilegar: að þýðingarmesta verkefni núlif- andi kynslóðar og stjórnmála- mannanna sérstaklega, sé það, að finna ráðin til að snúa þessum straumi. Það hefir verið rakið og sýnt að heilbrigði, hreysti og menning kynslóðarinnar er í hættu, verði áfram stefnt sem stefnir, og er þar um hið dýr- mætasta að ræða sem ísland á. Það hefir ennfremur verið rakið og sýnt að fjárhagsleg afkoma þjóðarinnar er næsta ótrygg, eigi hún að langsamlega mestu leyti að vera undir hinum ótrygga sjávarútvegi komin og hin nýj- ustu tíðindi hafa sorglega sann- að það. í þetta sinn skal að hinu vikið, hver er ein höfuðástæðan til þess að þessi stórkostlega mikla og jafnframt hættulega breyting á búskaparlagi og lifnaðarháttum íslendinga gat yfirleitt komist í framkvæmd og orðið svo gag"nger, á svo stuttum tíma, og jafnframt bent á í því sambandi hver er ein höfuðleiðin til að snúa þess- um straumi. II. Það sem fyrst og ' fremst þurfti til þess að hleypa þessum mikla vexti í kauptúnin og sjáv- arútveginn er mikið fjármagn. Húsin sem reist hafa verið í Reykjavík og öðrum kauptúnum síðustu 30—40 árin hafa kostað tugi miljóna króna. iSkipin, fiskverkunarstöðvamar og tæki öll til útgerðarinnar hafa sömuleiðis kostað tugi miljóna króna. Hvaðan hefir þetta fjármagn komið? Að langsamlega mestu leyti hefir það, í upphafi, komiði sem lánsfé frá peningastofnununum, sem sumpart ráðstöfuðu til þessa því sparifé sem landsmenn höfðu trúað þeim fyrir, sumpart öfl- uðu til þess erlends lánsfjár. Miljónir og aftur miljónir króna hafa peningastofnanimar lánað til þess að hleypa þessum vexti í kauptúnin og sjávarút- veginn. andi, að þær nágrannaþjóðir okk- ar, sem sýkina vilja forðast, banni innflutning á kjöti héðan, og væri það verri búsifjar en lands- menn mættu undir rísa. Jón Árnason. Miljónir og aftur miljónir króna hafa peningastofnanimar lánað til þess að reka útgerðina, verslunar- og iðnaðarfyrirtækin í kaupstöðunum, það lánsfé gerði atvinnurekendunum það mögu- legt að auka úthaldið sífeldlega og seyða fólkið til sín úr sveitun- um með háum kauptilboðum. Fyrir því eru það bankarnir sem bera einna mesta ábyrgðina á hinum stórkostlegu straum- hvörfum sem orðið hafa í þjóð- lífi íslendinga síðasta mannsald- urinn og á fslandsbanka kemur ábyrgðin mest, því að úr hans hendi hefir mest af hinu nýja fjármagni beinst til kaupstaða og kauptúna. Undanfarinn mannsaldur hafa bankarnir beint nálega öllu veltu-' fé sínu, veltufé landsmanna og erlendu lánsfé, til húsagerða, sjávarútvegs, verslunar og hvers- konar atvinnureksturs í kaup- túnunum. Á sama tíma hafa bankarnir verið nálega lokaðir fyrir bænd- um landsins, auk þess sem1 láns- kjör við landbúnaðarins hæfi hafa varla þekst og þekkjast ekki enn í líkum stýl og í öðrum lönd- um. Peningarnir leggja til kraftinn til framkvæmdanna.. Þennan kraft til framkvæmda hafa peningastofnanirnar veitt nálega einhliða aðeins öðrum höf- uðatvinnuveginum, s j ávarútveg- inum og þeim hluta landsbúa sem býr í kauptúnum. Sú stjórn peningamálanna hef- ir valdið hinum mikla vexti kaup- túnanna. Eitthvert greinilegasta og jafn- framt sorglegasta dæmið um það hver andi hefir ríkt í þessu efni undanfarið, hjá þeim sem farið hafa með yfirstjórn fjármálanna, er það sem gerðist haustið 1924. Þá neitaði Jón Þorláksson fjár- málaráðherra að framkvæma lög- in frá Alþingi um stofnun Bún- aðarlánadeildarinnar og lýsti yf- ir að ekki væru til 250 þús. kr. til að lána til landbúnaðarfram- kvæmda gegn fullkomnustu tryggingum, þegar á sama tíma voru keyptir fjölmargir nýir tog- arar sem kostuðu miljónir króna og sem þurftu miljónir króna í rekstrarfé árlega. Slíkur atburður hefði vart get- að gerst í neinu menningarlandi öðru en Islandi. Verði framvegis, eins og hing- að til, nálega öllu fjármagni bankanna beint til kauptúnanna er eyðing sveitarina fyrirsjáan- leg. III. Á skal að ósi stemma. Eigi að gera viðreisn sveitanna mögulega, eigi að gera það kleift að snúa straumnum aftur frá kauptúnum til sveita, verður að beina þangað kraftinum til fram- kvæmda, peningunum. Það liggur í augum uppi, að eitt það helsta sem þeir menn verða að vinna að, sem telja það skyldu sína framtíðar landsins vegna, að hefja alhliða viðreisn sveitanna, er að beina veltufé bankanna þangað í hæfilega stór- um stýl og við þeim kjörum, sem eru við sveitabúskaparins hæfi. En jafnframt liggur annað í augum uppi, að þar sem nálega alt veltufé landsins er nú sem stendur fast hjá kauptúnunum, og þar sem það er vitanlega tak- markað, þá kostar það vitanlega mikla baráttu að fá þetta fé laust handa sveitunum, því að að einhverju meira eða minna leyti vei’ður það að takast frá kaup- túnunum. Sú barátta hefir verið háð á Alþinigi undanfarin ár, síðast all- hörð á síðasta þingi. Sú barátta verður áfram háð, uns úr sker á annanhvorn veginn, og hún er svo merkileg og afleiðingarík, að hún hlýtur að marka stór spor. IV. Lögin um stofnun Búnaðar- lánadeildar Landsbankans voru fyrsta sporið sem stíga átti til að leiðrétta það misrétti sem land- búnaðurinn hefir orðið fyrir. Þau áttu aldrei að vera annað en byrjunarspor, enda áttu þau ekki að gilda nema takmarkaðan tíma. Alkunn er mótspyrnan gegn þeim lögum og framkvæmd þeirra frá formanni Ihaldsflokks- ins, fjármálaráðherranum. Kom hann þeim alveg fyrir kattarnef. En þó er það svo enn, að þeir fáu sem lán fengu úr Búnaðar- lánadeildinni búa nú við betri lánskjör en allir aðrir. Ræktunarsjóðurinn kom í stað- inn, stórum bættur frá því sem Jón Þorláksson vildi vera láta, en þó algjörlega ófullnægj andi láns- stofnun. Kjörin, 6% vextimir, mega teljast sæmileg lánskjör til að reisa hús í sveitum. En í engu menningarlandi öðru en íslandi er boðið upp á slík lánskjör til rækt- unar og annara jarðabóta. Þess- ir háu vextir stafa af töpum, sem engin eru af ræktunarlánum. Þess vegna eiga slík lán enga vaxtahækkun að bera vegna áhættu af tapi. Svo vofir það yfir að lánskjörin geti enn versnað í Ræktunar- sjóði, eða útlánsfé hans þrotið. Að því líður eins og skipulag hans er, að hann eigi alt sitt und- ir jarðræktarbréfasölunni. En nú eru að koma á markaðinn ný veð- deildarbréf. Verði þau seld með sömu afföllum og verið hafa, er mjög hætt við að sala jarðrækt- arbréfanna minki stórlega, séu þau aðeins seld affallalaust. Þá vantar Ræktunarsjóð von bráðar starfsfé. Verði farið að selja bréfin með afföllum hljóta láns- kjörin að versna. Á síðasta þingi var til umræðu Landsbankafrumvarpið. Með því átti að lögfesta nýtt skipulag um seðlaútgáfuna og stjórn bank- ans. Eg hélt því fram þegar við fyrstu umræðu, að þessu sam- hliða yrðu að koma ákvæði í frumvarpið, sem kvæðu á um, a. m. k. að einhverju leyti í aðalat- riðum, hvernig veltufé bankans ætti að skiftast milli atvinnuveg- anna og með hvaða kjörum. Við aðra og þriðju umræðu bárum við Halldór Stefánsson íram breytingatillögur í samræmi við þetta. Frumvarpið gerði ráð fyrir að jafnhliða því sem Lands- bankinn fengi seðlaútgáfuna væri hann skyldaður til að hafa þriðj- ung sparifjárins í tryggum verð- bréfum. Tillaga okkar hné í þá átt að helming þessa fjár fengi Ræktunarsjóður og þyrfti ekki að gjalda af í vexti nema V4% yfir sparisjóðsvexti. Um enga áhættu var að ræða fyrir Landsbankann og sem enga fyrirhöfn. Að því leyti var því um fylstu sanngim- iskröfu að ræða. Með þessum hætti hefði mátt beina nokkurum miljónum króna til landbúnaðarins, til að byrja með, til ræktunarlána og annara jarðabótalána var það vitanlega hugsað. Og afleiðing hefði orðið vaxtalækkun úr 6% í 5%, eða jafnvel lægra nú, og vonin um meiri lækkun síðar, þá er hinir óeðlilega háu sparisjóðsvextir lækka. Þetta var svo sanngjörn krafa og sjálfsögð, að jeg vildi ekki gera ráð fyrir að henni yrði mót- mælt. Sannarlega á öllum að vera orðið ljóst hversu sorglega land- búnaðurinn hefir verið látinn af- skiftur í þessu efni undanfarið og hversu alvarlegar afleiðing- arnar eru þegar af því orðnar. En þessi tillaga mætti afar- harðri mótspyrnu og fremstur í flokki yar vitanlega formaður íhaldsflokksins, Jón Þorláksson, með flokkinn allan í neðri deild að baki sér með einni einustu undantekningu. Honum tókst líka enn, sem fyr, að brjóta þessa réttlætis- kröfu landbúnaðarins á bak aft- ur. En tillagan fékk þó 12 at- kvæði af 27 sem greidd voru, svo að Jón Þorláksson má vita, að að þeirri hugsun sem í tillögunni fólst, stendur mikill hópur þing- manna. Og hann skal vita hitt, Jón Þorláksson, Íhaldsformaður- inn, að að þessari kröfu hlýtur íslenska bændastéttin að standa nálega óskift og allir þeir menn sem hafa þá lífsskoðun, að al- hliða viðreisn landbúnaðarins sé stærsta verkefni nútíma kynslóð- arinnar. Því að annaðhvort verður að fullnægja þessari kröfu um að afla mjög aukins veltufjár til landbúnaðarins með aðgengileg- um kjörum, eða ef veltufénu verður einhliða eins og hingað til, haldið í kauptainunum, þá er saga landbúnaðarins von bráðar úti. Og sé nýtt veltufé ekki til, þá verður að taka það frá þeim sem nú hafa það, þá verður að þrengja að kosti kauptúnanna, til þess að leiðrétta ranglætið sém verið hefir. V. Því er borið við á móti þessari kröfu, að Landsbankinn igeti ekki orðið við þeirri kröfu að lána til landbúnaðarins með þessum kjör- um. Hann standist það ekki. Við nánari athugun reynist þessi mótbára mjög röng. Árið sem leið, varð Landsbank- inn að afskrifa sem tapað rúm- lega hálfa þriðju miljón króna. Stuttu áður hafði hann orðið að afskrifa sem tapað á útbúinu á Isafirði einu yfir miljón króna og í fyrra á útbúinu á Eskifirði, auk þess sem afskrifað var nú síðast, yfir 600 þús. kr. Töp Landsbankans síðustu árin nema orðið samtals ekki fáum miljón- um króna. Og ekki munu þau vera minni töpin sem íslands- banki hefir beðið. Framh. á 4. síöu. --o- Baráttan um veltuféð

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.