Tíminn - 14.08.1926, Blaðsíða 1

Tíminn - 14.08.1926, Blaðsíða 1
og afgteiðsferra&ur Simaits et Sigurgeir ^ttfcrifsfcn, Sxrmfean&sbásiriu, SeffjauH. X. Ar. *£&fgz£ifo&ía Clmans « í Sambanbs^ásinu ©pin baQleqfl 9—(2 f. I}. Shni $96- Ksíykjftvík 14. ágást l»2fi 38. blað IJtanárheiini. Bjargiáðastjórn FraJkka. Áður er sagt frá því, að Herriot feldi stjórn Briands með því að fá þingið til að neita stjórninnium alræðisvald í fjármálum þar til í nóvember í haust. Forsetinn bað hann að mynda stjóm og tókst það greiðlega að fá nógu marga ráðherra í sætin. En samhliða gerðist ókyrð mikil í landinu. Frankinn hraðféll úr 192 ster- lingspundið og komst lægst í 245. Blöðin voru nálega öll móti stjóm- inni, og fall myntarinnar hafði áhrif eins og yfirnáttúrleg mót- mæli gegn stjórn sem taldi það sitt aðalhlutverk að rétta við gengið. Fall frankans var að tölu- verðu leyti kauphallarbragð frá innlendum gróðabrallsmönn- um, sem vildu fá íhaldsstjóm að húsinu og bað stjóminni og sér- staklega yfirráðherra óbæna. staklega yfirráðherrann ábæna. Eitt svæsnasta íhaldsblaðið hvatti til að drepa Herriot, sagði að ef einhver örkumlaður hermaður vildi stytta honum aldur væri ólíklegt að nokkur franskur dóm- stóll fengist til að dæma slíkan velgerðamann. Þar sem ráðuneyt- ið mætti, var því tekið með ís- kaldri þögn. Aðstaða stjórnarinn- ar var verri fyrir það, að Herriot hafði að því er virtist ráðist í að steypa stjórninni án þess að fiokkur hans hefði gert sér grein fyrir hvað þá tæki við. Fjármála- ráðherrann viðurkendi að ríkis- sjóður væri að heita mætti tóm- ur og gjaldþrot landsins fyrir dyrum, nema ef gripið væri til verulegra bjargráða. Til að verj- ast áföllum í bili kvaðst hann mundi grípa til leifanna af Morg- an-láninu frá Ameríku. Það hafði eiginlega átt að vera gengislán, og var nokkuð eftir. Þetta þóttu alt vond tíðindi. Stjórnin bað um traust, en það var felt með nokkr- um atkvæðamun. Forsetinn bað þá Poincaré, sem þykir einna fremstur af íhaldsmönnum, að mynda nýja stjóm. Blöðin og raddir allsstaðar að úr landinu heimtuðu samsteypustjóm, þar sem allir flokkar ættu fulltrúa, svo að þjóðin stæði óskift í þess^- um voða, eins og þegar stríðið skall á 1914. Á tveim dögum myndaði Poin- caré bjargi'áðastjórnina. Eru í henni foringjar allra flokka nema verkamanna. Sex af núverandi ráðherrum hafa áður verið yfir- ráðherrar. Poincaré er sjálfur fjármálaráðherra, því að það þyk- if nú vandinn mestur. Briand hef- ir áfram utanríkismálin. Herriot er mentamálaráðherra. Tveir fyr- verandi yfirráðherrar voru eftir- skildir. Það eru þeir Millerand og Caillaux, og þótti ýmsum mein að, er þeir voru eftirskildir. Að líkindum hefir Poincaré ekki vilj- að taka Caillaux, því að fjármála- stefnur þeirra eru nokkuð ólíkar. Þá er þess. til getið, að Herriot hafi ráðið því, að Millerand var ekki tekinn. Fyrir tveim árum var það fyrsta verk Herriots að reka Millerand úr forsetastöðu, eftir hinn mikla kosningasigur frjáls- lyndra manna. Mest umtal í landinu vakti það, að Herriot skyldi verða ráðherra áfram. Hann var foringi stærsta flokksins í þinginu, og Poincaré mun ekki hafa treyst sér að hafa þann flokk allan í andófi. Hins- vegr gekk Herriot í nýja ráðu- neytið, án þess að ráðgast um við flokk sinn, sem tæplega muiidi hafa samþykt það. Meírihluti hinna frjálslyndu lætur þó þar við sitja og styður stjómina. Um leið og Poincaré tók við stjórn hækkaði frankinn þegar í stað, og komst í 198 sterlings- puhdið, eins og var áður en Herriot byrjaði æfintýri sitt. Þótti nú vinum Poincaré fara að líkum. En sú dýrð stóð ekki lengi. Eftir fáa daga fór frankinn enn að falla, hægt að vísu, og þykir það ekki boða gott. Stjórnin hefir gífurlegan meirihluta í þinginu og knýr fram með harðri hendi alt sem hún vill. Leggur hún á nýja skatta, og ætlar á svipstundu að fá í ríkissjóð 11 miljarða franka. Mest af tekjum þessum fæst með óbeinum sköttum, en lækkað á stóreignamönnum, í von um að þeir flytji síður auðæfi sín úr landi. 31. júlí. J. J. -o- frá stjórn Búnaðarfélags Islands um ,,áburðarmáliðu og’ frávikning búnaðarmálastjóra. Undanfarið hefir allmikið verið ritað í blöð landsins um hið svo- nefnda „áburðarmál" og frávikn- ing Sigurðar Sigurðssonar búnað- armálastjóra. Þar sem ýmsar mið- um áreiðanlegar fullyrðingar hafa komið fram í skrifum þessum og af þeim dregnar miður réttar ályktanir, hefir stjóm Búnaðar- félags íslands talið rétt, eftir að allir stjómamefndarmenn eru aft- ur staddir í bænum, að segja sögu málsins í stórum dráttum og gera grein fyrir afstöðu stjórnarinnar til málsdns. Að öðru leyti mun stjóm Búnaðarfjelags íslands ekki taka þátt í ritdeilum um málið, heldur leggja, á sínum tíma, gögn sín í hendur þeirra aðila, sem kjósa stjórnina, Búnaðai'þings og landbúnaðarnefnda Alþingis. í lok síðasta Búnaðarþings, er háð var í ársbyrjun 1925, var all- mikið rætt um verslun með til- búinn áburð. Auk þess sem tekin var afstaða til frumvarps til laga um kaup og sölu á tilbúnum á- burði, sem einn Búnaðarþings- manna hafði borið fram, voru bornar fram tvær tillögur í mál- inu. Hin fyrri var frá Bimi bónda Hallssyni á Rangá: „Búnaðarþingið beinir því til stjórnar Búnaðarfjelagsins, að hún hlutist til um, að Búnaðar- fjelgið hafi á hendi umboð fram- vegis, um kaup á erlendum á- burði“. Hin síðari frá Sigurði bónda Baldvinssyni á Komsá: „Búnaðarþingið felur fjelags- stjórninni að sjá um, að einstak- ir menn og fjelög fái áburð á ódýran og hagkvæman hátt, og þeir fái hann án álagningar, sem greiða hann gegn farmskírteini“. Báðar þessar tillögur voru sam- þyktar. Hin fyrri með 7 atkv. gegn 1. Hin síðari með 8 sam- hljóða atkv. Kom það fram í umræðunum, mjög greinilega, að hið sjerstaka tilefni tillagnanna var verslunin með Noregssaltpétur. Verslun með hann hafði farið fram á veg- um Búnaðarfjelags íslands undan- farin ár og var nokkur deila um það á þinginu hvemig þeirri verslun hefði verið háttað. Orða- lagið í tillögunum „að Búnaðar- fjelagið hafi á hendi umboð fram- vegis“ og að einstakir menn og fjelög geti fengið áburðinn „án álagningar“, áttu því einkum við um Noregssaltpéturinn. Á tveim fyrstu fundunum, sem stjórn Búnaðarfjelags íslands hjelt að afloknu Búnaðarþingi, fyrri og síðari hluta dags hinn 5. mars 1925, er svo tekið fyrir að kveða á um sölu á Noregs- saltpétri fyrir vorið. Fjarstaddur var á þeim fundum,vegna lasleika, hinn nýkjömi stjómarnefndar- maður: Oddur Hermannsson skrif- stofustjóri. En báðir hinir stjórn- arnefndarmennimir þáverandi: Tryggvi Þórhallsson og Valtýr Stefánsson og Sigurður Sigurðs- son búnaðarmálastjóri sátu fund- ina. Ennfremur sátu fundina: Magnús bóndi Þorláksson á Blika- stöðum og Eyjólfur Jóhannsson frá Mjólkurfélagi Reykjavíkur og Carl Olsen stórkaupmaður frá firmanu Nathan & Olsen. En þau firmu höfðu einkum fengist við sölu á tilbúnum áburði undan- farið. Sigurður Sigurðsson búnaðar- málastjóri lagði málið fyrir stjórn- ina. Er svo bókað í gerðabók stjórnarinnar að Búnaðarfélag Is- lands á kost á að fá 200 smá- lestir af Noregssaltpétri frá Norsk Hydro og á stjómin að gera ráðstafanir um sölu á hon- um. Var því beint til hinna við- stöddu fulltrúa fyrir Mjólkurfélag Reykjavíkur og firmað Nathan og Olsen, á fyrri fundinum, að reyna að ná samkomulagi um skifting þessa áburðar sín á milli og sölu hans, í samræmi við samþykt Búnaðarþings. Á síðari fundinum lýstu þeir því yfir að þetta sam- komulag hefði náðst. Var áburð- inum skift þeirra í milli á þeim grundvelli og ákveðið verð á áburðinum, samkvæmt þeim upp- lýsingum sem fyrir lágu, tveim krónum lægra fyrir 100 kíló, þeim sem borguðu hann fyrirfram og tóku hann við skipshlið. Sömu stkilyrði áttu að gilda á fjórum aðalhöfnum á landinu. Fyrir stjórn Búnaðarfélags ís- lands lá málið því þannig fyrir, að hún hlaut að líta svo á að hún hefði fult ráðstöfunarvald yfir áburðinum. Allar kröfur hennar, í samræmi við samþyktir Búnað- arþings, voru teknar til gi’eina. Hún hafði því enga ástæðu til að halda að aðstaða Búnaðarfélags- ins til þessarar áburðarverslunar hefði á nokkurn hátt breyst, eða mundi breytast. Tryggvi Þórhalls- son, sá af stjórnamefndarmönn- unum, sem enn á sæti í stjóminni, vill sérstaklega taka fram, að hann leit á Mjólkurfélag Reykjavíkur sem sjálfsagðan fulltrúa, fyrir notendur áburðarins, og taldi vel fyrir séð er það gekk að sam- komulaginu. Um sölu Noregssaltpéturs á ár- inu 1925 var ekki þörf frekari aðgerða af stjórnarinnar hálfu. Foi.*maður, sem þá var orðinn, (Tr. Þ.) leiddi í tal við Sigurð Sigurðsson búnaðamiálastjói'a oft- ai en einu sinni, síðar á árinu, að ráðstafa þyi'fti þessari áburð- arsölu fyrir árið 1926, á þeim grundvelli sem Búnaðarþing ætlað- ist til. Var tilefni til þess meðal annai's það, að frá Mjólkurfélagi Reykjavíkur hafði formanni bor- ist ósk um að málið yrði tekið fyrir áður langt liði. Búnaðarmála- stjóri tók vel í þá málaleitun og að fundui' yrði haldinn með Mjólkur- félagi Reykjavíkur um málið. Ilann gat þess ekki með einu orði að nein breyting hefði átt sér stað í málinu. Ilinn 15. des. 1925 var svo hald- inn fundur um málið. Öll stjórn Búnaðarfélagsins var á fundinum — Vigfús Einarsson var mættur sem varamaður í forföllum Odds Hermannssonar og hefir síðan ávalt gengt störfum hans — og Sigurður Sigurðsson búnaðar- málástjóri. Ennfremur af hálfu Mjólkurfél. Reykjavíkur: Magnús Þorláksson bóndi á Blikastöðum og Guðmundur Ólafs bóndi í Nýjabæ, etjórnarnefndarmenn og Eyjólfur Jóhannsson fram- kvæmdastjóri. Þá er farið var að ræða málið lýsti Sigurður Sigurðsson búnað- armálastjóri því yfir að óvíst væri að Búnaðarfélag íslands gæti nú ráðin nokkru um sölu áburðarins, því að hann hefði í vor látið Norsk Hydro vita, að hann vildi ekkert hafa að gera með söluna á áburðinum. Kom þessi yfirlýsing, a. m. k. undirrituðum st j ómarnef ndar- mönnum mjög á óvart. Benti formaður þegar á að þessi framkoma væri í fullu ósam- ræmi vi.ð yfirlýstan vilja Búnaðar- þings og vitnaði í tillögur þær, sem birtar eru hjer að framan, einkanlega hina fyrri. Svaraði búnaðarmálastjóri því, að sér hefði verið þetta heimilt, því að hann „prívat“, en ekki Bún- aðarfélag Islands, hefði haft á hendi viðskiftin við Norsk Hydro. Var málið nokkuð frekar rætt, en engin ákvörðun tekin á þeim fundi. En á næsta fundi, 19. des., — Valtýr Stefánsson var ekki á þeim fundi — var ákveðið, að formaður sendi símskeyti til Norsk Hydro og óskaði, sam- kvæmt ályktun Búnaðarþings, að Búnaðarfélagið fengi einkasölu á N oregssaltpétri árið 1926 og ósk- aði eftir tilboði í 400 smálestir. Svar við því skeyti var það að þetta gæti Búnaðarfélagið ekki fengið því að firmað Nathan & Olsen væri orðið einkasali á áburð- inum og bæri að snúa sjer til þess. Út af þessum tíðindum voru gerðar eftirfarandi ráðstafanir. 1. I samráði við aðra stjórnar- nefndarmenn ritaði formaður Norsk Hydro rækilegt bréf um málið. Sagði sögu málsins og ályktanir Búnaðarþings. Lýsti að- stöðu Búnaðarfélags íslands. Gat þess að fulltrúi kæmi frá félag- ir.u til viðtals um málið og nýrra samninga ef unt væri. 2. Það kom mjög til tals að ein- ( hver stjórnarnefndarmanna færi utan til þess ef unt væri að kippa málinu í lag, en það gat þó ekki orðið. I stað þess var ákveðið að Pálmi Einarsson ráðunautur, sem var á förum utan í öðrum er- indum, rannsakaði málið jafn- framt, með því að tala við Norsk Hydro og gæfi skýrslu um það. Jafnframt fékk hann umboð til að reynai að ná samböndum um áburð af félagsins hálfu. 3. Ut af yfirlýsingu búnaðai- málastjóra, að hann hefði prívat haft viðskiftin við Norsk Hydro, sendi Vigfús Einarsson fyrir- spurnarskeyti um það og fékk 31. des. eftirfarandi svar: „Kun Búnaðarfélag Islands in- dehadde var eneforhandling ind- til Nathan—Olsen overtok agen- turet februar 1925“. (Á íslensku: Aðeins Búnaðarfélag Islands hafði á hendi einkasölu fyr- ir oss, þangað til Nathan & Olsen töku við umboðinu í febrúar 1925) 4. Loks skrifaði formaður, og lét hina stjórnarnefndarmennina og búnaðarmálastjóra vita um það, öllum búnaðarþingsmönnum um málið, þeim, er hann náði til og gerði ekki ráð fyrir að ná til munnlega, og beiddist umsagnar þeirra og tillagna. II. Hinn 14. febrúar 1926 er Pálmi Einarsson ráðunautur bú- inn að hafa tal af Norsk Hydro um málið, og ritar þá, frá Kaup- mannahöfn, skýrslu um málið til stj órnar Búnaðarfj elagsins. Eftirfarandi atriði úr skýrslu hans varpa ljósi yfir gang máls- ins. I samræmi við símskeytið frá Norsk Iíydro, til Vigfúsar Ein- arssonar, sem áður er um getið, segir Pálmi í skýrslunni: „Norsk Hydro hefir á árunum 1923, 1924 og fram til 5. febrúar 1925 skoðað Búnaðarfélag Islands sem einkasala sinn á Islandi". Um þetta hafa þó ekki verið neinir bindandi samningar, sem undirritaðir væru af hálfu beggja aðila, hvorki áður né eftir að viðskiftin komu í gang. Vegna þessa, að engir fastir samningar voru gerðir, orðar Pálmi það svo síðai' í skýrslunni, að Norsk Hy- dro muni ekki hafa talið sér skylt „að bjóða Búnaðarfélaginu einka- söluumboðið framvegis". Ennfremur segir í skýrslu Pálma: „Skoðun Norsk Hydro hefir altaf verið að Sigurður Sigurðs- son búnaðarmálastjóri á vegum Búnaðai'félags Islar.ds, aðeins framkvæmdi pantanir á áburðin- um; frá þess hálfu hefir því aldr- ei verið að ræða um einkavið- skifti við hann í neinni mynd“. Því næst eru rakin í skýrsl- unni viðskifti Búnaðarfélags Is- lands og Norsk Hydro árin 1923 og 1924. Því næst er þess getið, að í des- ember 1924, skömmu fyrir síð- asta .Búnaðarþing, hafi Búnaðar- félag íslands spurt um, hvort það gæti fengið 200 smálestir af Noregssaltpétri til ársins 1925. — Sá stjórnamefndarmaður (Tr. Þ.), sem einn á enn sæti í stjórn Búnaðarfélags íslands af þeim, sem þá voru í stjóm, telur sig muna, að það hafi verið gert í samráði við stjómina. — Svaraði Norsk Hydro þeirri málaleitun játandi. En svo segir í skýrslu Pálma: „Með bréfi dagsettu 29. janúar 1925, fer Búnaðarfélag

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.