Tíminn - 21.05.1927, Blaðsíða 3

Tíminn - 21.05.1927, Blaðsíða 3
TfMINN 85 Tæpir 1000 skrokkar seldust strax fyrstu dagana og alt kjöt- ið seldist fyrir áramót, en með þeim samningum þó, að síðustu 5000 skrokkamir voru teknir smátt og smátt og greiddir um miðjan febrúar. Söluverð kjötsins var sem hér segir: 1 skr. 8 5/8 d pr. lb. 56 — 8 1/2 d pr. lb. 109 __ 8 3/g d pr. Ib. 895 — 8 1/4 d pr. lb. 1466 — 7 a/4 d pr. lb. 15 — 7 5/8 d pr. lb. 295 — 7 Yz d pr. lb. 1352 — 7 1/4 d pr. lb. 965 — 7 V8 d pr. lb. 6007 — 7 d pr. lb. 10 — 6 1/2 d pr. lb. 25 — 6 V4 d pr. lb. 10 — 5 5/8 d pr. Ib. Meðalverðið er sem næst 7V4 d. pr. lb. Uppskipun, húsaleiga og annar geymslukostnaður var um V4 d. pr. lb. Sölukostnaður (um- boðslaun) um V6 pr. lb. Kjötið var alt selt í London. Meðalverð yfir árið 1926 fyrir frosið lambakjöt frá neðangreind- um löndum, samkvæmt verð- skráningu á Smithfield markaði í London, var sem hér segir: Nýja Sjáland . . 9 7/8 d. pr. lb. Ástralía.......8 3/4 d. pr. lb. Argentína . . . . 8 V& d. pr. lb. Verðskráning í síðastl. apríl- mánuði var: Nýja Sjáland 8—9 Y% d. pr. lb. Ástralía 6 3/4—7 s/4 d. pr. Ib. Argentína . . 7—7 1/2 d. pr. lb. Verðskráning er venjulega heldur hærri en raunverulegt söluverð. Félögin, sem fluttu út kjötið fá greitt fyrir það kr. 0,981/2 pr. kg. Er þá frádreginn flutnings- og sölukostnaður og frysting, en ekki annar kostnað- ur svo sem útskipun, vinna, slátr- un 0. fl. Það er nokkumveginn víst að verðið fyrir frosna kjötið er heldur hærra, en meðalverð á því kjöti, sem flutt var út saltað. Enn er ekki búið að gera endan- lega reikninga um saltkjöt Sam- bandsfélaganna, svo ekki verður með vissu sagt, hvaða verð fé- lögin geta borgað til bænda fyrir það kjöt, sem saltað var til út- flutnings, en líklega nær það tæp- lega 90 aurum pr. kg. Auk frosna kjötsins vora einn- ig fluttir út 1800 skrokkar af nýju kjöti í kælirúmi á „Gull- foss“. Þetta kjöt var sent til London og féll því á það mikill kostnaður. Skipið kom til Bret- lands um miðja viku, svo ekki varð komist hjá að selja kjötið strax, þar sem það mundi hafa skemst, ef eitthvað hefði orðið að geymast fram yfir helgi. Fylgir sá ókostur útflutningi á kældu kjöti, að annaðhvort verð- ur að' frysta það strax þegar það er tekið úr skipi, eða selja samstundis, því nýtt dilkakjöt þolir illa geymslu. Telja kjötinn- flytjendur í Bretlandi mjög var- hugavert að flytja héðan kælt kjöt, nema þá í mjög smáum stíl, aðeins fáein hundrað skrokka í einu. Kjötið frá Reyðarfirði lík- aði ágætlega og seldist fyrir hátt verð, eða frá 7V4 d. til 93/4 d. pr. lb., enda var kjötverðið held- ur hærra í Bretlandi framan af haustinu. Frosna kjötið líkaði mjög vel. I bréfi sem hr. Guðm. Vilhjálms- ! son skrifaði frá London, þegar | kjötið kom, farast honum svo | orð: „Öllum kemur saman um að ] kjötið líti mjög vel út og sé góð vara. Þó er því fundið það til foráttu að lítil fita sé á lærum og bógum. Telur W. W. & Co. engan vafa leika á, að kjötið muni ryðja sér til rúms á mark- aðnum, ef hægt verður í fram- tíðinni að senda kjötið reglulega á markaðinn nokkra mánuði á árinu“. Á meðan útflutningur frosna kjötsins . er á tilraunastigi mun rétt að fara gætilega. Þó þær til- raunir, sem þegar hafa verið gerðar, bendi ótvírætt í þá átt, að hægt sé að vinna kjötinu markað í Bretlandi, þá er kjöt- verð lágt þar sem stendur og ó- víst hvenær breyting verður á því. Hefir verið harðvítug sam- kepni um markaðinn milli nokk- urra voldugra kjöthringa undan- farin ár og ekki séð fyrir endann á þeirri samkepni enn. Á næsta hausti eru líkur til að hægt verði að flytja út kjöt frá 3 frystihúsum. Séu húsin notuð eins og hægt er, ætti að mega haga svo til að frysta mætti í þeim um 20—25000 skrokka. Þetta kjötmagn ætti að nægja til árlegra tilrauna í 2—3 ár og þá varhugavert að ráðast í bygging- ar á fleiri frystihúsum að svo komnu. j. Á. -----o---- Helgi Hjörvar: Ferðabrjef. Mussolini. Niðurl. ----- Jeg hef nú lýst því nokkuð, hversu Mussolini kom mjer fyrir sjónir. En víst mun hann þar ekki allur, sem hann er sjeður. Tveir eða þrír eru þeir þjóða-foringjar, sem hæst ber á ölduföldum síðustu ára: Lenin, Mustafa Ke- mal og Mussolini. Hörðum höndum hafa þeir allir tekið á fjöndum sínum, og blóði drifinn er stjóm- völurinn í greipum allra þeirra. Víst hefur Lenin átt flesta afbragðsmenn í flokki sínum, og verk hans verður langvíðtækast að afleiðingum. Hann og hans menn ætluðu sjer ekki Rússland eitt, heldur gervallan heiminn. Þar var geysileg sókn hafin. Mussolini hefur meir snúist til vamar. Hann ætlar sjer Italíu og það, sem ítalskt er. En sjálfur læst hann munu segja til um það, hvað Ítalía á og hvað henni ber. Mussolini reis að lokum hvað helst gegn Lenin og liði hans, gegn öldum rússnesku byltingarinnar. Sú viðureign hefur enginn gamanleikur oi’ðið, og víst hafa ítalir ekki sjeð fyrir endann þar á. Margir líta nú á þessa tvo menn og verk þeirra eins og bardag- ann mikla í Opinberunarbókinni, þar sem guð og djöfullinn eigast við um velferð heimsins. Sumir sjá nú djöfulinn sjálfan, þar sem Lenin var, og þeir eru margir og brynjaðir sterkri brynju trúarinnar; öðr- um þykir Mussolini vera sem dýrið mikla og höfð- ingi alls hins illa. En eins og sterktrúaðir menn hafa óvart hugsað sjer guð og djöfulinn býsna líka í mörgu, svo mun raunar vera um Lenin og Musso- lini. Allir slíkir menn eru í mörgu líkir. Enginn mað- ur hefði verið vísari til þess en Mussolini að rísa gegn gamla tímanum í Rússlandi, skjóta keisai’ann og alla hans ætt. Eðli mannsins ræður u?n það, hvort hann vinnur afrek nokkur, en atvikin ráða miklu um hitt, hvers háttar afrekin verða, hvert verkefni maðurinn velur sjer. Það er einhver hin almennasta og hvemleiðasta heimska, er menn halda það, að hver maður mundi vera einn og samur í skoðunum og gerðum, hvenær á tímum og hvar í landi sem væri. Þetta halda menn, bæði um sjálfa sig og aðra, og er þetta undirrót margra hinna verstu hleypi- dóma. Ekki veit jeg það, hvert álit jeg hefði á Mussolini, ef jeg væri italskur þegn og undir hans stjóm gef- inn. Mig grunar, að jeg hefði orðið fylgismaður Lenins, væri jeg Rússi, en jeg efast nokkuð um fylgi mitt við Mussolini, og ekM hef jeg hjer til óskað honum gengis svo mjög. Jeg kom raunar til Ítalíu með megnustu óbeit á harðstjórn og illvirkj- um fasista. En jeg fór þaðan aftur með alt öðrum hug. Nú má enginn ætla, að mikið sje byggjandi á stuttri dvöl útlends manns í svo framandi landi sem Italía er fyrir norrænan mann. En mjer fanst það á öllu, að fasistar væru ekki fámennur flokkur, sem kúgaði mikinn hluta þjóðarinnar, heldur væri hinn veg farið, að fasisminn er mikil og almenn þjóðar- vakning, þar sem undiraldan er hrein og sterk þjóð- ernistilfinning og þj óðannetnaður, ekki síður nú en á dögum Garibalda. Mussolini safnaði í fyrstu um sig flokki og sigldi ýmissa skauta byr, en nú hefur hann orðið eins og kjörinn frumherji mikillar vakn- ingar, stórkostlegra þjóðarvona. Þetta fanst mjer. Ekki gat jeg annað en fundið til með ítölum, hinni glæsilegu fornfrægu þjóð. Einu sinni voru þeir, Rómverjarnir, öndvegisþjóð heims, ekki rjett í bili, heldur öld eftir öld. Þeir fluttu menningu mörgum þjóðum, mörgum löndum: vegi,' vatnsleiðslur, fagrar borgir, skóla, nýtt mál, nýja siði. Snillingar þeirra endursköpuðu alla hina vestrænu menningu á miðöldunum. En nú hafa þeir öld eftir öld verið sundraðir og kúgaðir, land þeirra fótaskinn útlendra yfirgangsmanna, sem hafa prang- að með borgir þeirra og ríkisvöld, barist um þá sjálfa í þeirra eigin landi. Og þetta er ein sú þjóð, sem fjölmennust er í heimi og best af guði ger. Loks þykjast þeir varskiftir og sviknir af hinum vold- ugri bandamönnum sínum, sem gintu þá með sjer í styrjöldina með fögram loforðum. Hvað vilja fasistar? — Þeir vilja halda uppi veldi og virðingu þjóðar sinnar. Þeir vilja skipa henni sess meðal öndvegisþjóða heims, þar sem hún hefur löngum sæti átt. Þeir vilja byggja endurreisnina og framtíðina á hinum gömlu rómversku dygðum: lög- hlýðni, sparneytni, iðjusemi og þrautseigju, á skyldurækni, á trúmenskunni, sem fyr meir gerði Róm að heimsveldi. Þeir vilja gera alla þjóðina eitt, einn flokk, sem ekkert vill annað en þetta. Það er sagt, að þeir fari hart fram. En mjer fanst jeg al- staðar hafa veður af þessum hugsjónum, og mjer fanst, að Eggert og Baldvin Einarsson og Bjami frá Vogi hefðu raunar verið fasistar okkar Islendinga. En þetta var hugboð mitt og tilfinning, fremur en niðurstaða af rannsókn og rökum. Jeg gerði mjer far um að sjá alt hið betra, og jeg svalg sem jeg mátti allan unaðsleik þessa fræga lands. Jeg horfði á hendur Mussolinis, hvort þær væru blóðugar. Ekki var það. Aldrei mun hann þó af sjer þvo blóðblettina, hver sem dómur sögunnar verður um hann og hversu mikill, sem hann kann að þykja í framtíðinni, en því um síðm’, ef sagan og framtíðin snúast gegn honum. Rómverska þjóðarfleytan vai' komin á rek og lá flöt fyrir hverjum sjó, sem að hefði borið.- Musso- lini tók stjómina, mikið lá við, 0g ekki hefur hann verið mjúkhentur. Hryðjusamt hefur verið um- hverfis hann. Hann hefur látið vinna ill verk, og með illvirkjum hefur hann verið talinn. „En hvað var það hjá hugarangri hverja stund á vegferð langri, sem jeg fyrir land mitt leið? —“ Þetta gæti hann kanski með sanni sagt. Og þar er kjarni málsins. Berst hann af heilum hug fyrir vel- ferð landsins, eða er hann að fleyta sjálfum sjer? Hver sem sjálfan sig upphefur, hann mun niður- lægjast. Sannist það um Mussolini, þá mun hann um eilífð verða ljettvægur fundinn. Lögmál lífsins rekast á og kremja mannskepnum- ar milli sín eins og hafísjakar mylja veika fleytu. En sumir reisa rönd við örlögunum, brjóta annað lög- málið, en halda hitt. Þetta gera byltingamennimir, þeir sem ærlegir eru. Þeir fremja óguðleg verk í krafti sinnar heilögu köllunar. Það sje fjarri mjer, að viðhafa slíka líMngu um sum þau verk, sem bor- in era á Mussolini. En engan byltingamann, engan stórhuga stjórnmálamann má dæma út fró sjónar- að keyptu ísl. saltkjöt, og jafn- vel síðar, því auk söluumleitana í Danmörku og Svíþjóð voru einnig gerðar ítrekaðar tilraunir til sölu í Þýskalandi, Finnlandi og síðari hluta vetrar einnig í Rússlandi. Vegna þess að horfur um kjöt- sölu voru slæmar, lögðum við meiri alúð við að auglýsa kjötið í Noregi, en undanfarið, reyndar kosta blaðaauglýsingar nokkurt fé, en við teljum þó að þessum peningum hafi verið rétt varið. Þegar ekkert traflar eðlilegan gang kjötsölunnar í Noregi, kaupa innflytjendur venjulega all- mikið í byrjun kauptíðar og leggja áherslu á, að fá það kjöt út sem allra fyrst, eða frá 15. til 20. okt. Eftir að fyrsta kjötið kemur út verður venjulega hlé á kaupum þangað til í byrjun nóvember, en þegar kemur fram í þann mánuð fara fyrstu birgðimar að minka og markaðurinn getur tekið á móti nýjum birgðum til sölu 1 nóvembermánuði. I desember- mánuði er jafnan lítil kjötsala Þá birgja kjötkaupmenn sig með nýmeti til jólanna. Sala á ís- lenska saltkjötinu byrjar svo venjulega ekki aftur fyr en í fe- brúar eða marsbyrjun. Sé þá eft- ir óselt saltkjöt er venjulega góð sala allan marsmánuð og fyrri hluta aprílmán. Þá fer að hitna í veðri og dregur þá úr sölunni einkum austan fjalls 'í Noregi. Á vestur- og norðurlandinu má selja ísl. saltkjöt fram eftir sumri. Hin mikla sölutregða framan af vetri stafaði af ýmsum ástæðum. Á meðan verið var að ferma fyrstu kjötskipin til Noregs var veðrátta mjög óhagstæð og töfð- ust skipin svo miMð vegna óveð- urs, að í stað þess að koma til Noregs 15. til 20. okt. eins og venja er til, komu þau ekM þang- að fyr en um mánaðamót. Á þenn- an hátt tapaðist um hálfur mán- uður af besta sölutímanum í Noregi og orsakaði þessi dráttur líka, að kjötsalan í nóvember varð mjög lítil, vegna þess að ætíð verður að líða nókkur tími frá komu fyrstu kjötfarmanna, þangað til inflytjendur og smá- salar geta farið að kaupa á ný. Vegna gengishækkunar norsku krónunnar varð kjötið alt of dýrt miðað við nýtt kjöt. Sala ísl. kjötsins til almennings var því með allra minsta móti, enda kaupgeta lítil vegna fjárhags- örðugleika almennings. Norskir bændur höfðu við mikla örðugleika að búa og urðu að slátra með mesta móti af bú- stofni sínum í fyrrahaust. Slátr- un byrjar í Noregi um svipað leyti og á Islandi, en stendur lengur fram eftir hausti. Vegna þess hve mikið barst af innlendu kjöti á markaðinn, einkum í Vestur- og Norður-Noregi seldist þar sama sem ekkert af ísl. kjöti. Kjötverðið var þar líka mjög lágt. I nóvembermánuði var verð á nýju nautakjöti í 10 kg. stykkj- um selt á torgi í Bergen kr. 1,30 pr. kg. Sambandið hafði alls til sölu- meðferðar 13.521 tn. af dilka- kjöti og 1265 tn. af kjöti af rosknu fé, sem saltað hafði verið til útflutnings. Alls var saltað til útflutnings á landinu, eftir skýrslu yfirkjöts- manna og öðrum upplýsingum sem eg hefi aflað mér, um 22.500 tn. Kaupmenn og félög utan Sam- bandsins hafa þá haft um 7700 tn. af útflutningskjöti. Um áramót var óselt af kjöti Sambandsfélaganna 5300 tn. af dilkakjöti og 1050 tn. af ærkjöti, en ekki er mér kunnugt um, hve miMð kaupmenn og félög utan Sambandsins hafa átt óselt, en eg hygg það hafi ekki verið undir 3.000 tunnum, því um miðjan marsmánuð lá óselt í Bergen, Oslo og Kaupmannahöfn fullar 2.000 tunnur, sem taldar voru eign ísl. útflytjenda og erlendra kaupmanna, sem reka verslanir hér. Eitthvað var þá óselt hér á landi og frá áramótum og fram að miðjum mars seldist eitthvað af útflutningskjöti bæði hér heima og erlendis. Eg bendi á þetta af því reynt hefir verið að bera út meðal al- mennings, að Sambandið væri eini útflytjandinn, sem ekM hefði „viljað“ selja áður en markaðs- verðið féll. Nokkra eftir áramót byrjaði kjötsala lítilsháttar. Verðið var þá fallið niður í n.kr. 115—120 pr. tn. og salan var ákaflega dræm. Var það mest því að kenna, að innflytjendur og smá- salar í Noregi lágu enn með dýr- ar birgðir frá haustinu, sem þeir voru tregir að fella í verði og eftirspum á íslensku kjöti meðal almennings var því ákaflega lítil. Umboðsmenn Sambandsins við kjötsöluna í Noregi eru allir duglegir menn og búnir að vinna fyrir Sambandið í mörg ár, einn þeirra síðan Sam- bandið byrjaði kjötsölu fyrir fé- lögin. Er hann þektur dugnaðar maður bæði hér á landi og í Noregi. Umboðsmennirnir töldu vonlaust að hægt yrði að selja alt það kjöt, sem við áttum óselt um áramót. I byrjun mars fór eg til Noregs til að hitta umboðsmenn okkar og viðsMftavini að máli og at- huga hvað hægt væri að gera til að selja eftirstöðvar kjötsins. Þegar eg kom til Noregs reyndi eg fyrst að gera mér grein fyrir hve mikið væri óselt af íslensku kjöti, sem líkur væru til að boð- ið yrði út í Noregi. Áttu þá Sam- bandsfélögin óseldar um 5000 tn., ýmsir aðrir ísl. og danskir út- flytjendur, eftir því sem næst varð komist, um 2000—2500 tn. i Kbhvn, Bergen og Osló og eitt- hvað hér heima, sem eg þó gerði ráð fyrir að seldist í landinu að mestu. Samtals var þetta um 7000—7500 tn. og á höndum norskra innflytjenda giskaði eg á að lægju óseldar um 1500 tn. og studdist sú skoðun mín við við- tal við fjölda þeirra. Þetta vora þá alls um 8500—9000 tn. og þó ekki meðtalið það sem lá óselt hjá smásölum. Nú var mér ljóst, að til þess að koma meginhlutan- um af kjöti út, áður en hitnaði til muna í veðri, varð umsetning- in að verða mjög ör. Jafnframt þessu athugaði eg útsöluverð íslenska kjötsins 'hjá smásölunum, strax eftir að eg kom til Noregs. Það vai’ mjög breytilegt. I einum bæ spurði eg eftir verðinu í 5 sölubúðum, sem seldu íslenskt saltkjöt. Verðið var, í einni búðinni kr. 1.30, í tveimur kr. 1.40, í einni kr. 1.80 og einni kr. 1.90 pr. kg. Allsstað- ar var salan dræm. I öðram bæj- um var verðið mjög svipað, eða frá kr. 1.30—1.70 pr. kg. Um leið athugaði eg til saman- burðar smásöluverð á nýju kjöti og fleski í Osló. Nýtt flesk kost- aði kr. 1. 20, 1.40, 1.60 og 1.80 pr. kg. eftir gæðum. „Skinke“ kr. 2.00 pr. kg. Besta nautakjöt um kr. 2.00, súpukjöt kr. 1.20 pr. kg. og ungkálfakjöt frá kr. 1.00 pr. kg. Kjötverðið á Vestur- landinu og í Norður-Noregi var þó lægra, því þar átti fólk kost

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.