Tíminn - 02.07.1927, Blaðsíða 3
TlMINN
117
l&eidhestiix',
jarpur,
mark: G-agnbitað hægra, hefir tapast. Sá er var
yrði hests þessa, geri aðvart gegn góðri þóknun til
Féturs Gudmundssonar
„Málaranum“.
Símar 1498 og 1224.
Kjöttunnur,
L. Jacobsen,
Köbenhavn
Símn.: Cooperage
V a 1 b y
alt til beykisiðnar, smjörkvartel o. s. frv. frá stærstu beykissmiðjum
í Ðanmörku. Höfum í mörg ár selt tunnur til Sambandsins og margra
kaupmanna.
hafa verið á ferð aðallega í öðr-
um erindum. Úr þoi'pinu og úr
Ilúnavatnssýslunni komu sára-
fáir. Ætli það sé af þessari á-
stæðu að Mbl. þegir alveg um
Strandafundina og fullyrðir alls
ekki að Bjöm „sé viss“ eða hafi
„mjög mikið unnið á?“
Samningar hafa nú tekist um
kaup togaraháseta og annara um
síldveiðatímann. Þykjast báðir
aðilar hafa unnið glæsilegan sig-
ur. Undarlegt mætti það virðast,
hve erfiðlega gengur yfirieitt að
ná slíkum samningum, því að
undantekningarlítið teljast báðir
hafa sigrað í lokin.
Tveir andamiðlar danskir hafa
samkomur hér í bænum þessa
dagana.
Látinn er hér í bænum Jakob
Havsteen heildsali, einkasonur
Júlíusar amtmanns.
Togaramir eru nú sem óðast
að búast á síldveiðar og sumir
eru þegar famir. Hafa bátar
undanfaiið fengið góðan síldar-
afla á Eyjafirði.
Aðalfundur Búnaðarfélags Is-
lands var haldinn að Þjórsártúni
síðastliðinn laugardag, og stóð
alllengi. Pulltrúi á Búnaðarþing
til 4 ára var kosinn Jón Þor-
bergsson bóndi á Bessastöðum,
eftir endui*tekna kosningu. Fékk
hann 29 atkvæði en Tr. Þ. 26.
Lýsti Tr. Þ. því yfir milli kosn-
inganna að hann skifti engu hvor
yrði fremur kosixm, enda á Tr.
Þ. sæti á Búnaðarþingi hvort sem
er sem formaður félagsins. —
Menn þeir, helst úr Reykjavík,
sem mest hafa reynt að vekja
deilur innan Búnaðarfélagsins, og
tortrygni til þess, höfðu dregið
saman lið mikið á fundinn og
hafið mikinn undirróður. Átti nú
að láta kné fylgja kviði. Bám
að vatnarannsóknum, leiðbein-
ingum um klak og hverskonar
starfsemi á þessu sviði. Iiafa
stjómimar skipað þriggja manna
nefnd til þess að hafa yfirstjóm
framkvæmdanna: Kristján Bergs-
son forseta Fiskifélagsins af
þess hálfu, Metúsalem Stefáns-
son búnaðarmálastjóra af hálfu
Búnaðarfélagsins; þriðji maður
nefndarinnar er fiskifræðingur
iandsins: Bjarni Sæmundsson.
Lágu fyrir stjómunum rökstudd-
ar og sundurlföaðar tillögur um
starfsemina næstu árin frá Pálma
Hannessyni náttúrufræðingi,
kennara á Akureyri og hafði
Bjarni Sæmundsson að sínu leyti
fallist á þær í aðalatriðum. Verð-
ur Pálmi Hannesson starfsmaðin-
félaganna í þessum málum og er
þess að vænta að áður en langt
líður verði mikill og góður á-
rangur af þessari starfsemi.
Verkfæratilraunir Búnaðarfé-
lagsins hafa farið fram undan-
fama daga á Blikastöðum í Mos-
fellssveit. Hafa þeir dvalist þar
uppfrá við tilraunimar Halldór
á Hvanneyri og Ámi Eylands.
Magnús bóndi á Blikastöðum er
þriðji maður nefndarinnar.
Jónas Kristjánsson búfræðing-
ur frá Víðigerði í Eyjafirði er
nýlega kominn heim eftir rúm-
lega tveggja ára bóklegt og verk-
legt nám í Danmörku og Noregi
í mjólkurmeðferð. Er í ráði, en
þó ekki fullráðið, að hann veiti
forstöðu slíku búi í Eyjafirði.
Hann flutti mjög rækilegt erindi
um þessi mál á aðalfundi Búnað-
arfélags Islands um síðustu helgi.
Aldrei fyr mun það hafa kom-
ið fyrir að blaðið „Freyr“, sem
átt hefir að vera fagblað í land-
búnaðarins málum, tekur upp
þann sið að hefja ádeilur bæði á
Alþingi og á stjóm Búnaðarfé-
lags Islands. Ritar einn ritstjór-
anna slíka grein í síðasta blað,
og honum verður það á sumpart
að fara með ósannindi, sumpart
að fella niður það sem máli
skiftir.
Ólafur Thórs og Konunúnistar.
Fjölmennur kosningafundui- var
haldinn í bamaskólaportinu síð-
astliðið laugardagskvöld. Þar
bar það til tíðinda að ólafur
Thórs sneri máli sínu til Kom-
múnistanna í bænum og skoraði
á þá að greiða íhaldslistanum
atkvæði. Fór haxm um það mörg-
um orðum hve þetta væri sjálf-
sagt frá Kommúnistanna sjónar-
miði. — Ekki veit sá er þetta
skrifar, hvem árangur bera
muni þessi biðilsför ólafs Thórs
til Kommúnistanna. En nú verð-
ofbeldi á mddalegan hátt, með
því að sýna fyrirlitningu og með
því að útiloka sig frá samneyti
við Austurlandabúann. Við enxm
orðnir langþjáðir á þessari sam-
búð. Heimsófriðurinn hefir með
öllu ósannað sögnina um yfir-
burði Vesturlandabúans. Þessa
vegna er það alls ekki óeðlilegt,
að í baráttunni sem nú stendur
yfir, kemur fram nokkur andúð
gegn aðkomumönnunum í Kína.
Mig hefir undrað, að sú tilfinning
hefir ekki látið meir á sér bera
hingað til.
Því hefir verið haldið fram
víða um heim, að barátta okkar
nú væri ofsókn gegn útlending-
um. Frá sjónarmiði okkar Kín-
verja snýst hún blátt áfram um
það, að ná því aftur sem við vit-
um að við eigum með rétti. Skoð-
anir eru skiftar um það í Kína
hvaða aðferð eigi að beita til að
ná réttinum. Jeg efa ekki að það
er vilji Kínverja að koma fram
með stillingu, en ef beitt er of-
beldi á móti geta Vesturlandabú-
ar neytt okkur ínn á aðrar braut-
ir. —
Vesturlandaþjóðixnar telja sig
vei’a mjög hræddar við áhrif
Rússa í Kína. Hver er sannleik-
urinn í því efni? Dr. Sun-Yat-sen
var fulltrúi þjóðeraissinnaxma og
ur fróðlegt að heyra hvað Farí-
seinn Kr. A. segir um þetta.
Hann rækir það starf að gera
Fi*amsóknarflokkinn tortryggi-
legan fyrir samstarf við hæg-
fara Jafnaðarmenn, en húsbóndi
hans, Ólafur Thórs, sækist eftii
samstarfi með hinum æstustu
Kommúnistum. Ef Faríseinn er
sjálfum sér samkvæmur þá les
hann Ólafi pistilinn í blaðinu sem
út kemur í dag. Við sjáum nú
hvað setur.
Ekkert orð hefir Faríseinn Kr.
A. enn sagt um það að Ihalds-
menn og Jafnaðai*menn eiga sam-
eiginlegan frambjóðanda í Suð-
ur-Þingeyjarsýslu. Hvílík sam-
bræðsla! Hvílíkur er heiðarleiki
Faríseans Kr. A. að svívirða
Fi*amsóknarmenn annarsvegar
fyrir samstarf með Jafnaðar-
mönnum, en eiga svo sjálfur
frambjóðanda sameiginlegan með
þeim? Og berja sér á brjóst um
leið og hrósa sér fyrir dygðir
sínar.
Ásgeir Ásgeirsson kom heim i
fyrradag úr ferð um kjördæmi
sitt. Samdægurs segir Mbl. frá
því að kosning þar sé tvísýn,
„því séra Böðvar kvað hafa unn-
ið mjög mikið á“. Sannleikurinn
mun vera sá, að engum manni
vestra dettur einu sinni sá mögu-
leiki í hug að síra Böðvar verði
kosinn; og það lítið sem til var
af Ihaldsatkvæðum mun fremur
hafa minkað við fundina. Það
er skammgóður veimir, Moggi
sæll, að fara með slík ósanmndi.
Hvað segir Faríseinn hér um?
Langai' fréttasyrpur birtir
Morgunblaðið af og til um frá-
bæra framgöngu Ihaldsframbjóð-
endanna á fundum, og sumpart
er þeim talinn sigurinn vís, sum-
pai*t hafa þeir unnið mjög mikið
á! Þeim mun undarlegra er það
að blaðið skuli engar fréttir
segja af slíkum fundum í
Strandasýslu. Varla er það aí'
því að blaðið telji alveg sjálfsagt
og réttmætt að gamli þingmaður-
inn verði endurkosinn, enda
hefði þá ekki verið sendur með
honurn hraðritari’ frá íhaldinu á
fyrsta fundinn. Ætti og eitthvað
að vera í frásögur færandi af
fundunum, því að fjórir hafa þeir
verið og sjálfur atvinnumálaráð-
herrann sótti þá alla með fram-
bjóðandanum og fimm saman
teymdu þeir undir Birni um sýsl-
una. Síðasta fundinn héldu þeir
á Borðeyri á sunnudaginn var.
Þar bar það til tíðinda að utan
þorpsins kom úr kjördæminu
einn — segi og skrifa einn —
maður á fundinn, og mun sá
hann sneri sér til ýmissa ríkja til
þess að fá styrk til að koma hug-
sjónum okkar í framkvæmd.
Honum var allsstaðar vísað á
dyr. Þá sneri hann sér, að síð-
ustu, til Rússlands. Jeg veit ekki
hvað Rússar hugsa í eigin hjarta,
en hitt er vitað að þeir höfðu
skarpskygni nóga til að skilja
þjóðemishreyfinguna í Kína og
að trúa á að hún myndi verða
sigursæl að lokum.
Aðalhættan sem nú vofir yfir,
er sú, að það takist að útbreiða
byltingakenningar meðal hins
mentunarlausa lýðs. Þar sem all-
ur þorri fólksins á við að búa
mjög erfiða fjárhagsafkomu, er
þar um að ræða móttækileika
fyrir byltingakenningar. En eftir
því sem eg hefi kynt mér aðstöð-
una í nokkrum fylkjum, vil eg
halda að hættan sé ekki mikil til
langframa. Byltingaménnirnir
’þurfa að borða, eins og aðrir
menn. Þegar atvinnulífið verður
fyrir þeirri röskun, að ómögu-
legt er að reka framleiðsluna
lengur, þá munu byltingamenn-
imir ranka við sér. —
Hvað á eg að segja um að-
stöðu Bandaríkjanna nú, þegar
við erum staddir miðja vega í
þessum miklu viðburðum?
Við vonum að þið munið ennþá
nú, eins og ávalt áður, sýna okk-
ur vináttu og skilning. Stjórn-
málamenn ykkar, svo sem t. d.
John Hay og Roosevelt forseti,
kaupsýslumenn, kennarar og
trúboðar, sem frá ykkur hafa
komið, hafa aflað ykkur þeirrar
tiltrúai* í Kína, sem er ykkur ó-
endanlega miklu meira virði, líka
í verslunarlegu tilliti, en öli lönd-
in og sérréttindin, sem ýmsar
aðrar þjóðir hafa hrifsað af okk-
ur síðastliðin 80 ár.
Við vonum að þið leyfið okk-
ur að smíða sjálfir gæfu okkar.
Áhrif utan að eða ofbeldi, geta
hindrað baráttuna eða frestað
henni í bili. En ekkert vald getur
héðan af hindrað framrásina að
lokum.
Því er haldið sterklega fram í
Vesturlöndum, að það eigi að
beita ofbeldi til að berja niður
sjálfstæðishreyfinguna, undir því
yfirskyni að berja jafnframt nið-
ur Bolchevismann. Eini árangur-
inn af slíkri framkvæmd mundi
verða sá að endurtaka það sem
ýmsir hafa orðið fyrir á undan-
förnum árum í skiftum við
Rússa. Ef þið tækjuð þátt í því
munduð þið gefa byltingamönn-
unum hér í Kína tækifæri til að
koma fram eins og bjargvættir
þjóðarinnar gegn yfirgangi út-
lendinganna og þið mynduð kasta
hinum frjálslyndu í fangið á
byltingamönnunum.
Við vonum að þið munið á-
kveða afstöðu ykkar til okkar
hvað sem öðrum þjóðum líður.
Við minnumst þess að hinar
ýmsu Vesturlandaþjóðir hafa
hver sinna hagsmuna að gæta í
Kína. Yms lönd hafa sent her-
skip og herlið til Kína, en ávalt
hefir viðkvæðið verið hið sama.
„Einungis til þess að vemda líf
og eignir“. Kínverjar vilja gjama
trúa því ef Bandaríkin segja það,
en ekki þó að ýms lönd önnur
segi.
I meir en hálfa öld hefir hin
mikla barátta verið að búa um
sig. Loks er eitthvað að koma
fram sem sker úr. Frá ykkar
sjónarmiði má vera að svo verði
litið á, sem þetta sé mjög óþægi-
legt og komi í veg fyrir friðsam-
leg viðskifti. Frá okkar sjónar-
miði er barist um líf eða dauða
fyrir okkur, böm og barnaböm.
Nú gerast þau tíðindi, sem ráða
gæfu eða ógæfu margra kynslóða.
Eg bið ykkur þess vegna að sýna
okkur þolinmæði og halda áfram
að treysta okkur“.
——o------
þeir fram tillögu um að víta Bún-
aðarþingið fyrir afgreiðslu þess á
búnaðarmálastjóramálinu. Þeirri
tillögu var vikið frá með yfir-
gnæfandi meirihluta atkvæða og
önnur samþykt í hennar stað
sem engan áfeldi. Þá var borin
fram vantraustsyfirlýsing til
eins úr stjóm B. I., Magnúsar
bónda Þorlákssonar á Blikastöð-
um. Bar Tr. Þ. fram rökstudda
dagskrá sem vísaði þeirri tillögu
frá. Dagskráin var samþykt með
meir en fimmföldum meirihluta
atkvæða. Svo hræðileg var útreið
þessara ófriðarmana, enda var
frammistaða þeirra í umræðun-
um miður vegleg.
Adalfundm*
Búnaðarsambands Suðurlands.
Ár 1927, 25. júní var aðalfund-
ur Búnaðarsambands Suðurlands
haldinn að Þjórsártúni.
Á fundinum vom mættir:
Formaður Sambandsins og með-
stjómendur; fulltrúar frá 21
búnaðarfélagi og 11 æfifélagar.
Sýslufulltrúar voru mættir þeir
Eggert hreppstj. Benediktsson
fyrir Árnessýslu og Runólfur
hreppstj. Halldórsson fyrir Rang-
árvallasýslu.
Tekið' var fyrir:
1. Formaður las upp aðalreikn-
ing Sambandsins fyrir síðastl.
ár, endurskoðaðan, án athuga-
semda. Var hann samþyktur í
einu hljóði. Skuldlaus eign kr.
10259,85.
2. Framkvæmdatillögur:
a. Plægingastarfsemi:
Svohljóðandi tillaga kom fram
frá Helga Hannessyn:: „Fundur-
inn ályktar að halda skuli áfram
plægingastarfsemi af hálfu Bún-
aðarsambands Suðurlands, en
sambandsherfingar falli algjör-
lega niður“. Tillaga þessi var feld
með 16:5 atkvæðum.
Þá bar formaður upp tillögu
stjómarinnar: „Plægingastarf-
semi haldist næsta sumar, og
leggur Sambandið aðaláherslu á
plæginguna. Verkþegi greiði 80—
90 kr. fyrir alunna dagsláttu“.
Samþ. með 18:6 atkv.
b. Verðlaun fyrir áburðarhirð-
ingu haldist eins og verið hefir
50 kr. fyrir I. fl. áburðarhirð-
ingu og fái 4 á ári. 1 þetta sinn
Stefán Guðmundsson bóndi Skip-
holti, Páll Bárparson bóndi Skóg-
um, Guðjón ólafsson bóndi Stóm-
Mörk og Jón ólafsson bóndi
Austvaðsholti. Samþykt.
c. Styrkur til baðtækja.
Svohljóðandi tillaga kom fram
frá Helga Iiannessyni:
„Styrkur til baðtækjabygginga
falli niður“. Feld með öllum atkv.
gegn 2. Þá var borin upp tillaga
stjómarinnar: „Til böðunartækja
veitist eins og áður kr. 20 á nýja
baðþró“. Samþykt með miklum
meiri hluta.
í d. Til leiðbeiningar við hagnýt-
ing vatnsafls:
Tillaga frá stjómixmi að áætla
kr. 1000,00 í því skyni. Samþ.
í einu hljóði.
e. Garðyrkjunámsskeið vill
Sambandið styrkja, og vill verja
til þess ca. 500 kr. Samþykt.
3. Formaður skýrði frá starf-
semi félagsins s. 1. ár.
4. Formaður las upp fjárhags-
áætlun fyrir næsta ár.
5. Stjómin vill veita Erasmusi
Gíslasyni á Vatnsenda 100 kr.
viðurkenningu fyrir sérstakan á-
huga á votheysgerð og til hvatn-
ingar á þeim starfsemi hans.
Samþ. með samhlj. atkv.
6. Laun trúnaðarmanna:
Samþ. aðí stjóm Sambandsins
semji um kaup trúnaðarmanna
við þá.
7. Svohljóðandi tillaga kom
fram: „Funduriim ákveður að
Búnaðarsambandið verji fyrst
um sinn alt að kr. 1000,00 á ári
til að senda jarðyrkjumaxm um