Tíminn - 23.07.1927, Page 2

Tíminn - 23.07.1927, Page 2
124 TlMlNN P.W.Jacobsen&Sön Timburverslun. Símnefni: Granfuru. Stofnað 1824. Carl Lundsgade Köbenhavn Afgreiðum frá Kaupmannahöfn bæði stórar og litlar pantanir og heila skipsfarmu frá Svíþjóð. — Sís og umboðssalar annast pantanir. Eik og efni i þilfar til skipa. Frá útlöDduin. — í Vínarborg hafa orðið róst- ur allmiklar út af sýknunardómi á þrem keisarasinnum, sem skot- ið höfðu á lýðveldissinna og drep- ið tvo þeirra. Hófust fyrst verk- föll og samgöngur stöðvuðust. Var ráðist ,á háskólann og þing- húsið og kveikt í dómkirkjunni. Lýðurinn óð inn á skrifstofur íhaldsblaðaxma og prentsmiðjur og braut og bramlaði. Kommun- istar reyndu að koma af stað byltingu í sambandi við óeirð- imar, en mistókst. í götubardög- um féllu nokkur hundruð manna. Gerðu jafnaðarmenn þá kröfu, að stjórnin færi frá völdum, en stjómin var hin stæltasta og taldi sig færa um að sefa óeirð- irnar. Tókst það og að lokum. Handteknir voru tvö hundruð og fimmtíu menn, þar á meðai tveir starfsmenn Soviet-Rúss- lands. — Uppreisnarmenn í Nicaragua hafa ráðist á nokkra tugi amer- ískra hermanna. Flugvélar voru sendar til hjálpar og skutu á uppreistarmenn. Féllu af þeim þrjú hundruð. ----o--- , Vefnaðarnámsskeið Heimilisiðnaðarfélags Talands, Heimilisiðnaðarfélag Islands hefir nú um nokkur undanfarin ár á hverju hausti haldið uppi námsskeiði í vefnaði, og hafa þau verið eins vel sótt og hægt hefir verið að taka á móti, og er því enn í ráði að halda náms- skeið á hausti komandi. Tilgangur námsskeiðanna er vitanlega sá, að kenna til fulln- ustu allskonar vefnað, svo að nemendurnir séu fullfærir í vefn- aði til heimilisþarfa og heimilis- prýði fyrir sjálfa sig og aðra. Til þess að þessum tilgangi verði náð eru auðvitað fyrstu skilyrðin þau, að nemendurnu' færi sjer kensluna vel í nyt og geti svo keypt sjer vefstól og hafi önnur skilyrði til að geta stundað vefnað, þegar heim kem- ur. En þetta hefir því miður enganveginn verið svo með alla nemendur, sem námskeiðin hafa sótt. Margir þeirra hafa verið svo fátækir, að þeir hafa varla getað kostað sig á námsskeiðin, auk heldur keypt vefstól eða haft nokkrar ástæður til að geta stundað vefnað, þegar heim kom. Fyrir þessa nemendur er nám- ið því tiltölulega lítils virði. Vefn- aður er vandasamt og margbrot- ið starf, svo að þótt þetta fólk geti ef til vill einhvem tíma eign- ast vefstól, þá er hætt við, að það hafi svo týnt niður sinni kunnáttu, að það þurfi aftur að fara á námsskeið til þess að hafa hans full not. Þessi námsskeið eru mjög dýr fyrir Heimilisiðnaðarfélag Is- lands. Það stendur mikið fé í 10 —15 vefstólum með öllum útbún- aði. Húsaleiga er líka dýr. En félagið fær iítinn styrk, svo að það getur því miður hvergi nærri boðið eins góð kjör og vera þyrfti. Nemendumir þurfa að kosta sig að öllu leyti, leggja sér til alt efrd og greiða auk þess nokkurt gjald til félagsins, og svo þurfa þeii' síðast en ekki síst, að kaupa sér vefstól, ef vei á að vera. Þetta verður fátæku fólki alveg um megn. Nú eru auðvitað margir af þeim, sem ár huga hafa á vefnaði og æskilegt væri að lærðu hann, íátækir; þess vegna væri mjög æskilegt, að hægt væri að koma því svo fyrir, að þetta fólk gæti notið styrks einhvers staðar að. Hefir stjóm Heimihsiðnaðarfél. Isl. í því efni helst dottið í ihug ung- mennafélögin. Þau hafa helst tek- ið heimilisiðnað á $ína arma úti um sveitir landsins. Ættu því þeir, sem áhuga hafa á að læra vefnað og lítil efni hafa á að kosta sig af eigin ramleik, að reyna að snúa sér til þeirra. Hitt væri þó enn betra, ef ungmenna- félögin vildu sjálf beinlínis beit- ast fyrir því, að efnilegt og á- hugasamt fólk lærði þessa þörfu iðn, styrktu það til þess, ef þyríti, og sæju um, að það gæti keypt sjer vefstól og hefði að- stæður til að geta unnið að vefn- aði, þegar heim kæmi. Fólk, sem kæmi með styrk og meðmæh eða á vegum ungmennafélaga eða annara fjelaga, t. d. kvenfjelaga, yrði þá látið ganga fyrir, ef fleiri sæktu en hægt væri að taka á móti, en það geta í mesta lagi verið 15 á sama námskeiði. Væri mjög æskilegt, að slík samvinna milli ungmennafélaga eða annara félaga út um land og Heim. Isl. gæti tekist. Yrði það mikil trygging fyrir góðum árangri af námskeiðunum, og félögin gætu á þennan hátt fengið góða kennara aftur handa sér fyrir minni heimanámskeið. Á þetta þó eink- um við um annan heimihsiðnað en vefnað. Vefstóla hefir félagið ætíð til sölu. Surnir virðast halda, að þeir geti fengið vefstóla með ódýrara móti sjálfir, en þetta er hinn mesti misskilningnr. Fé- lagið kaupir svo marga vefstóla á ári hverju, að það nær engri átt, að einstakhngar geti komist að betri kjörum. Svo er mjög áríðandi, að vefstólarnir sjeu úr völdu efni, og sambönd Heim. IsL eru einmitt valin með þetta fyrir augum, svo að betri vefstólar verða ekki fengnir. Heim. Isl. hefir ágætum kenslu- konum á að skipa, og fullyrða þær, að tveggja mánaða náms- tími sé fylhlega nógur, ef nem- endur leggi sig vel fram og hafi áhuga fyrir náminu. En á það hefir þótt nokkuð bresta hjá ýms- um nemendum á hinum síðari námskeiðum, og er það, auk þess, sem áður er á minst, ástæðan til, að stjórn Heim. Isl. óskar að beina þessum athugasemdum til almennings. M. J. M. fai \m\i öijBluaiiúilr. Þó að jeg sje ekki búinn að vera lengi farkennari, þá geng jeg þess ekki dulimi, að sumt er öðruvísi í kensluaðbúnaði og skilningi á starfi farkennarans en vera ber. Jeg drep nú á það helsta. Með kensluaðbúnaði á jeg eink- um við skólastofumar og hitun þeirra, en á kensluáhöldin ætla jeg lítið að minnast. Kenslustof- umar eru nær ávalt of litlar, sem von er, því að þær eru til annars reistar en að vera skóla- stofur. Það er mikill bagi, er börnin hafa tæpast svigrúm til að ganga frá sætum sínum að benda á landabréf eða veggtöflu sé hún til. Allir kennarar munu skilja, hve þetta tefur og skemm- skemmir kensluna. Þó er annað verra, en það er hitunin. Tíðast er að hita stofur þessar með glaslausum olíuofnum. Venjuleg- ir kolaofnar eru fágætir í stof- unum, því að þær eru einkum ætlaðar til sumamotkunar. Hiti af olíuofnum þessum gerir loft- ið meinþrungið og skaðvænt heilsunni. Þó þarf að hita stof- urnar oftlega í frostum, þótt litlar séu, og er leitt að vita af tæru fjallaloftinu úti. Þetta þarf að breytast. Gasvél- ar svonefndar, taka olíuofnunum lítið fram, en glasofnar eru vel viðundandi. Kolaofnar koma ekki til greina, þar sem kent er á mörgum stöðum. Þeir þættu of dýrir. En hitun með rafmagni eða rafljós í farkenslustofum, verður nú að telja til draumóra enn lengi. Þá sný eg mér að öðru. Eg talaði við bónda einn hér í sveit- inni um þessi tíðu kennaraskifti hér, sem víðar, og spurði eg hann hvort þeim bændunum þætti þau ekki leið. „Nei“, sagði hann, „það þykir okkur bara tilbreyting, að fá nýjan kennara". Eg varð bráðforvita, og því meir, sem eg vissi að þetta var gildur bóndi og orðin í alvöru töluð. En þetta er reginmisskilningur, nema skift sé til batnaðar, og hvemig á það vera, þegar tíð eru skiftin? Að vísu dettur mér ekki í hug að halda, að orðið „okkur“ í setningu bóndans eigi við um marga. Það á bara við fáa eina, en það á ekki að eiga heima um neinn. Með nýjum kennara koma undan- tekningariaust einhverjar nýjar aðferðir eða breyttar, ýmist betri eða verri en þær, sem bömin hafa vanið sig á. Séu aðferðim- ar betri, er þetta gott, en þær verða þá að vera vani hjá böm- unum lengur en eitt ár eða tvö. Þegar eg tók við bömunum hér í haust, var búið að kenna þeim, að til þess að skrifa vel, þyrfti einungis að skrifa fljótt. Eg skyldi þegar að þessi kenn- ing var ættuð frá Steingrími Arasyni, kennara við kehnara- skólann, en til hans komin frá Ameríku. Jeg tek þó fram, að ekki segi eg Steingrími þetta til lasts og því síður kennaraskólan- um. En við þetta gat eg ekki felt mig og lét bömin skifta, því að það er íslensk reynsla, gömul og góð, að fyrst er að vanda sig við skriftamám, en svo að láta hraðann koma og verður þá fall- eg skriftin. Vera kann, að næsti kennari hér venji bömin á út- lendu aðferðina, og sjá þá allir ringulreiðina, þótt í smáu sé. Þetta, með öðm, getur valdið losi í kenslunni og haft ósjálf- rátt áhrif á fleira en námsgrein- arnar, svo sem uppeldisfræðin segir. Og tíðu kennaraskiftin snerta annan streng viðkvæmari, en hann er hlýleiki barnanna til kennarans. Geti kennari orðið umkomulausum börnum það, sem Magnús Helgason best' til ætlast, og nefnt er í „Uppeldismálum“, þá er það hæpið með umræddum skiftum. Þar með er ekki sagt að við gætum það allir, þótt við fasta skóla væri, en þó meiri líkui-nar. Annars myndi margt það, sem miður fer í fræðslu- málunum minka eða hverfa, ef Uppeldismál væru alment lesin og breytt eftir þeim. Öllum er líka ljóst, að mein mikið er að kenna á mörgum bæjum, því að þá nema bömin svo lítið og farkennurum stór- leiðist að vera víða. Orsakar þetta, meðal annars, að hæfustu farkennararnir sækja til sjávai'- skólanna, þar sem kjörin eru betri, og ættu þó sveitimar engu síður skilið að njóta þeirra, því að þær hafa fóstrað þá flesta. — Eg vil þó nefna, að hér í 1 Nauthúsagili. Núna í sumar em hðin 30 ár síðan frú Guðbjörg Þorleifsdóttir í Múlakoti gróðursetti fyrsta reynirinn í garðinum sínum heima við bæiim. Og þar naut reynirinn ungi góðrar umhyggju og þreifst ágætlega, enda mun óvíða vera eins veðursælt eins og í Fljótshlíðinni. En Guðbjörg lét ekki staðar numið, heldur gróður- setti fleiri smáplöntur í garðinum og hjónin í austurbænum í Múla- koti fóra að dæmi hennar og gróðursettu einnig smá reyni- plöntur heima við húsið. En smáplöntur þessar vóru sóttar austur í Nauthúsagil. Hve vel þessi nýlunda hepnað- ist, sést best þegar maður kemur austur að Múlakoti, — því nú standa aðeins þökin af húsunum upp úr skógarviðnum. Og margir era þeir orðnir sem komið hafa að Múlakoti og skoðað og dást að hinum fögra trjágörðum hjá þedm Múlakotshjónum. Síðan orð fór að fara af Múla- kotsgarðinum hafa ýmsir farið að útbúa skrautgarða á öðrum bæjum þar eystra og mikið þakk- læti og viðurkenningu eiga þau Múlakotshjónin skilið og þá eink- anlega frú Guðbjöig Þorleifsdótt- ir, sem fyrst allra þar tók smá- plöntur og flutti heim í garð. — Víða hér mætti skreyta og fegra kringum bæina, svo miklu meira en nú er gert, og víða geta tré eða runnar þrifist, þó að hins- vegar sé óvíst að gróðurinn myndi ná eins miklum þroska eins og í Múlakoti, því vaxtarskilyrði virðast vera einstök þar eystra og einkum þó góð í Innhlíðinni. óvíða er fegurra en í Fljóts- hlíð. Að vestan heiðin með hamrabeltum og fossum. Þar inn af Þórólfsfell og Þórsmerkur- fjöllin, en fyrir austan er hiim tignarlegi Eyjafjallajökúll. En milli jökulsins og Fljótshlíðar- innar leika stórfljótin lausum hala. Þverá hefir sem kunnugt er leikið Hlíðina hart og skorið hið frjósama undirlendi miskunnar- laust burt. Og þar sem áður voru grænir móar er nú víða grýtt og gróðurlaust. En það eru fleiri lit- ir fagrir en græni liturinn og oft slær undursamlega bláum lit á hin gróðurlitlu svæði, „aurana“, og sjaldan er fegurra í Fljóts- hlíð en á kvöldin, þegar litið er yfir græn tún og bláa aura og sólroða slær á jökulinn. Eg fjöl- yrði ekki um það, en víst er, að það landslag hefir hepnast hjá skaparanum. Þið sem komið austur í Fljóts- hlíð og á Innhlíðarbæina — horf- ið þið um stund yfir að jöklin- um. Takið þið vel eftir hinum hrikalegu giljum og skorum sem ganga inn í jökulinn að norðan- verðu. Ein af þessum dökku skorum er Nauthúsagil. Það mun láta nærri að það sé ein dönsk míla frá Múlakoti og yfir að Nauthúsagili. Ef þið gáið vel að þá sjáið þið að sunnan við Nauthúsagil er allstórt moldar- flag, en aftur norðan við það — og neðarlega í gilinu sjáið þið dálítinn grænan blett. Það er reyniviðurinn í Nauthúsagili sem margir hafa heyrt getið um en færri hafa séð. Þetta er ekki nein smáræðishrísla eins og þið getið getið nærri, þar sem hún sést alla leið frá Múlakoti, og efalaust er hér að ræða um langstærsta reynirinn á íslandi — og sennilegt að jafnstór og gild reynitré séu sjaldgæf annars- staðar á Norðurlöndum. öll þau ár, sem eg dvaldi í Danmörku, og fór eg víða um þar og athug- aði gróður, sá eg engan reynir, sem mér finst jafnast á við þenn- an. Síðan eg fekk vitneskju um reynirinn í Nauthúsagili hefi eg nokkrum sinnum farið að skoða hann og því meira finst mér til hans koma sem eg hefi séð hann oftar. | ; í Nauthúsagil sókti Guðbjörg í Múlakoti fyrstu smáplöntumar í garðinn sinn og er því hinn aldraði reynir faðir trjánna í Múlakotsgarðinum. Og nú þegar minst er á 30 ára afmæli elstu trjánna í Múlakoti vildi eg nota tækifærið til þess að segja frá ýmsu af því sem eg veit um gamla tréð í gilinu. Þó stutt sé frá Múlakoti og yfir í Nauthúsagil, þá skyldi þó eng- inn ókunnugur fara það fylgdar- laust, því straumvötnin eru oft viðsjárverð og sandbleytur sum- staðar. En með kunnugum fylgd- armanni er það leikur einn. Nauthúsagilið er ekki stórt borið saman við sum önnur gil- in þama 1 jöklinum, en þó er það tilkomumikið og hrikalegt og víða yndisfagurt sökum gróð- ursins sem þar er á gilbörmun- um. Og víða eru gilveggirnir einnig algrónir burknategundum og er þetta alleinkennilegt að sjá í hálfrökkri því sem þar er. I gilinu rennur allstór lækur stall

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.