Tíminn - 03.09.1927, Side 1
%
©jalbfeti
og afgrei&slumaöur limans er
SannDeig þ o r s t e \ n s&ó tlir,
Sambanösljúsinu, Keyfjaoíf.
2^fgteibsía
Cimans er i Sambanösljúsinu.
0pin öaglega 9—\2 f. tj,
Sínti 490.
XI. ár.
JJtanurheir i
Deilan um Rínai’löndin.
Samkvæmt Versalasamningnum
áttu Frakkar og Englendingar að
hafa setulið í Rínarlöndunum um
alllangt árabil. Tilgangurinn með
þessari ákvörðun var sá, að sjá
um að Þjóðverjar gætu ekki víg-
búist nálægt landamærum Frakk-
lands, og svo að neyða Þjóðverja
til að greiða sem fyrst skaðabætur,
því fátt er meira særandi fyrir
stórþjóð, en að hafa erlendan her
innan landamæra sinna. Út af
þeirri ráðstöfun hafa orðið sífeld-
ar deilur milli stórþjóðanna und-
anfarandi ár, og Frakkar og
bandamenn þeirra hafa slakað til
hvað eftir annað, og dregið úr
hinum upphaflegu kröfum sínum.
Nú var svo komið að í Rínar-
löndunum voru eftir 70 þúsund
franskra 0g enskra hermanna. Á
alþjóða þingmannafundi, sem hald
inn var í París, bar Loebe forseti
þýska ríkisdagsins þ. 26. ágúst
fram áskorun til Frakka, um að
þeir kölluðu heim setulið sitt fyr-
ir næstu áramót. Jouvener, sem
talaði fyrir hönd Frakka, and-
mælti þessu og kvað Frökkum
nauðsynlegt að hafa setulið í Rín-
arhéröðunum og mintist á landa-
mæri Póllands í því sambandi og
hvað Locarnosamningana ekki
tryggja þau nægilega.
Loksins komu Frakkar og Eng-
lendingar sér saman um að fækka
setuliðinu um 10 þús. manns, en
einn af áhrifamestu mönnum Eng-
lands Robert Cecil fellst á kröfur
Þjóðverja og heimtaði að alt setu-
liðið væri kallað heim. Þegar því
fekst ekki framgengt bað hann
um lausn frá embætti sínu.
Það þykja sjaldan mikil tíð-
indi þó einn ráðherra segi af sér,
en hér er öðru máli að gegna.
Cecil er einn af mest metnu mönn
um meðal enskumælandi þjóða.
Hann er sonur Salisbui'ys lávarð-
ar, sem þrisvar var forsætisráð-
herra. Ættin Cecil hefir í nær-
felt 400 ár ráðið miklu á Englandi
og nú eru fjórir synir Salisburys
í Parlaméntinu. Persónuleg áhrif
Robert Cecils eru því mikil, en
það er einnig líklegt að hann hafi
tekið þessa ákvörðun í samráði
við hinn gætnari hluta breska
íhaldsflokksins. Cecil lávarður hef
ir gegnt ýmsum ráðherraembætt-
um og hefir verið helsti fulltrúi
Englands á ráðstefnum Þjóða-
bandalagsins og aðalforvígismað-
ur kenningarinnar um friðsam-
lega samvinnu þjóðanna, þar sem
öllum deilumálum væri ráðið til
lykta á alþjóðaráðstefnum. Hann
lýsti því yfir að hann teldi tak-
markanir á herbúnaði nauðsynleg-
ar, og kvaðst vera óánægður með
stefnu ensku þjóðarinnar í afvopn
unarmálinu og þess vegna gæti
hann ekki lengur unnið með
henni.
I þessum mánuði halda fulltrú-
ar Þjóðabandalagsins mikilvæga
ráðstefnu í Genf, en þar mætir
Robert Cecil ekki fyrir Englands
hönd eins og vant hefir verið. En
þá er spuniingin. Getur hann og
félagar hans haft þau áhrif á
pólitík Englendinga, að þeir séu
fúsir til að verða við bænum Þjóð-
verja og kalla herinn heim úr Rín-
arlöndunum? Þetta er eitt merki-
legasta atriðið í stjórnmálum
Norðurálfunnar nú sem stendur.
Meðan franskar og enskar her-
sveitir halda vörð í þýskum borg-
um, er ekki von til þess að frið-
samleg og vingjarnleg sam vinna
geti átt sér stað milli þessara
stórþjóða. Það hefir því afarmikla
þýðingu fyrir allan heiminn, að
sem fyrst verði bundinn endi á
deilurnar um Rínarhéröðin.
----o---
Stjórninni fagnað.
Ummæli blaðanna.
Sjaldan munu íbúar höfuð-
staðarins hafa beðið með jafn-
mikilli eftirvæntingu eftir stjórn-
arskiftum og nú. Enda er það
ekki að furða. Allir bjuggust við
því, að við völdunum mundu taka
nýir menn, sem ekki hafa áður
átt sæti í ráðuneytinu, og hin
nýja stjórn á alt aðalfylgi sitt
utan Reykjavíkur. Lesendum
Tímans út um land mun þykja
fróðlegt að sjá, hvernig Reykja-
víkurblöðin hafi tekið á móti
stjórninni. Það er almennur sið-
ur í þingræðislöndum er ný stjóm
tekur við völdum, þá láta and-
stæðingablöðin hana vera í friði
um stund, þangað til hún hefir
aðhafst eitthvað. Þetta kalla Eng-
lendingar að gefa stjórninni „fair
trial“. Nú skulum vér sjá hvemig
Reykjavíkurblöðin hafa hagað
sér.
Visir segir svo: „Um alla þessa
nýju ráðherra er það að segja,
að þeir hafa staðið framarlega
eða fremstir í fylkingu fram-
sóknarliðsins á undanförnum ár-
um og markað stefnu flokksins.
Eins og kunnugt er, hafa þeir
Tryggvi og Jónas skrifað manna
mest um ávirðingar og yfirsjónir
annara flokka og stjóma á síð-
ustu tímum og er því vel til fall-
ið að þeir fái nú að reyna sæt-
leik valdanna um skeið. — Verð-
ur að telja það maklega gert og
rétt ráðið af framsóknarmönn-
um, að setja þá við stýrið, er
flokkurinn komst til valda. . . .
Búast má við, að hin nýja stjóm
taki nú til óspiltra málanna og
leitist við að koma hugsjónum
sínum í framkvæmd, eftir því
sem til vinst. Hafa þeir félagar,
Jónas og Tryggvi, verið all-um-
svifamiklir hin síðari árin, svo
sem kunnugt er, brotið upp á
mörgu og ýmsu viljað breyta og
umturna. En meðal helstu áhuga-
mála þeirra má vafalaust telja
stýfingu krónunnar eða verð-
festing, endurstofnun tóbaks-
einkasölu og ýmsar aðrar ráð-.
stafanir til hnekkis athafna-
frelsi þjóðarinnar og frjálsri
verslun landsmanna“.
Menn minnast þess, að Vísir
hefir jafnan barist harðast fyrir
samkepnisstefnunni og má skoð-
ast sem málgagn verslunarstétt-
arinnar.
Morgunblaðið flutti áður en
stjórnin fékk staðfestingu.
óvenjulega svívirðilega grein um
dóms- og kenslumálaráðherrann.
Og til smekklætis prentar það
svo upp kafla úr skammagrein, er
Kr. Albertson skrifaði um J. J.
fyrir þremur árum! Sýnir þetta
í einu áhrif Kristjáns hjá þjóð-
inni og smekkvísi og hugkvænmi
Morgunblaðsritst j óranna. Þess
skal getið Reykvíkingum til
maklegs lofs, að þessi grein hefir
alstaðar fengið þungan dóm.
Reykjavík, 3. september 1927.
M IHOl-ÉiiimnÉiiÉlir lyrii skíla.
Sýnishorn (1 skrfggamyidavél og 1 kvimyndavél) fyrirliggjandi
hjá undirrituðum aðalumboðsmanni verksmiðjanna. Þessar skólavélar
eru liérlendis notaðar í mentaskóla Reykjavíkur og gagnfræðaskólan-
um á Akureyri.-Sendið pantanir yðar og fyrirpurnir til verksmiðjanna
í Dresden. A21, Schandauerstrasse 76, eða til
v G. HE. Bjðrnsson,
Skólavörðustíg 25. Reykjavík.
Alþýðublaðið: „Það fer varla
hjá því, að einhver breyting verði
til batnaðar á ýmsum sviðum á
landi hér næstu árin . . . Skoð-
anir ,,Framsóknar“-flokksins í
ýmsum málum eru nýtar mjög.
Má þar til nefna verslunarmálin.
En hitt dylst þó Jafnaðarmönn-
um ekki, að hér er aðeins um
millistig að ræða, sem þjóðin
gengur í gegn um á tiltölulega
skömmum tíma.
Jafnaðarmenn vilja eins og
kunnugt er, gerbreytingu á þjóð-
félagsástandinu . . . en eins og'
kunnugt er, þá er „Framsóknar“-
flokkurinn andvígur þessari skoð-
un og stendur þar við hlið íhalds-
flokknum.
Þó svo sé, að Jafnaðarmenn séu
í öllum aðalatriðum ósammála
,Framsóknar‘-flokknum, vildu þeir
ekki að óreyndu verða til þess að
leggja stein í götu við stjórnar-
myndunina . . .
Það má að síðustu segja
„Framsóknar“-flokknum til hróss,
að hann gat ekki myndað sterk-
ari og hæfari stjórn, en þessa
innan flokksins, og að hann vai'
fljótur að mynda hana“.
ísland, málgagn Sjálfstæðis-
manna (frjálslynda flokksins) vill
engan dóm kveða upp yfir stjórn-
inni, fyr en hún hefir sýnt hvem-
ig hún leysir af hendi þau verk-
efni er bíða hennar. Annars finst
blaðinu Framsóknarílokkurinn
helst til íhaldssamur.
Vörður: Eftir að Kr. Alberts-
on hefir sent Tr. Þ. og J. J.
nokkrar hnútur upp á gamlan
kunningsskap, kemst hann svo að
orði:
„En úr því sem komið er, úv
því að Framsókn er orðin stærsti
flokkur þingins og hlaut að
taka við völdum, þá er það í alla
staði eðlilegt að þeir J. J. og Tr.
Þ. taki sæti í stjóminni. Flokkur-
inn hefir sigrað á bardagaaðferð
þeirra, — það er maklegt að þeir
kjósendur, sem hafa verðlaunað
hana með atkvæði sínu, fái nú
að njóta þeirrar ánægju að vita
báða þessa menn í ráðherrasæti.
Vér munum spara oss allar
hrakspár um framkvæmdir hinn-
ar nýju stfórnar. V ö r ð u r hefir
margsinnis viðurkent, að einn af
ráðherrum hennar, J. J., væri
þrátt fyrir mikla ókosti gæddur
góðum hæfileikum og ríkum
framsóknar - á h u g a. Það er ein-
læg ósk vor, að hinum nýju ráð-
herrum megi haldast svo á v i t i
sínu, að áhugi þeirra beri ein-
hverja ávexti, sem mildi dóm
sögunnar um valdabaráttu þeirra
á síðustu árum“.
Þess skal getið, að Vörður segir
íétt frá afstöðu Alþýðuflokksins
til stjórnarinnar og hagar sér
ekki eins og Morgunblaðið, sem í
vonsku sinni og einfeldni heldur
því fram, að Jafnaðarmenn á
þingi ráði yfir gerðum Framsókn-
armanna.
Þetta er nú aðalinntakið í um-
mælum Reykjavíkurblaðanna.
Verðu'r ekki annað sagt, en að
heldur andi kalt til hinnar nýju
stjórnar úr herbúðum íhaldsins.
En það var ekki á öðru von.
Sumir forkólfar íhaldsflokksins
gengu til kosninga í þeirri trú, að
þeir myndu fá algerðan meiri
hluta við kosningarnar. Það er því
ekki að furða, þó þeim svíði
snoppungurinn, sem þjóðin rétti
þeim á kjöi'degi. En þó sálar-
ástand margra íhaldsmanna nú
sem stendur sé þannig, að þeir
séu brjóstumkennanlegir — og
slíkum mönnum má fyrirgefa
mikið — þá eru þó áðurnefndar
greinar Morgunblaðsins fyrir neð-
an allar hellur. Þær eru líklega
einsdtemi í þingræðissögu Norður-
álfunnar.
----0----
Emjan Ihaldsins.
Það er mark á hverjum nýtum
dreng, að hann segir fátt og ær-
ist ekki, ef honum gengur mikið
á móti. Og þykir manni einhver
óhæfa í frammi höfð, þá eru það
heimskir menn einir, sem hafa
um slíkt mörg hávaða orð og
óhljóð ein. Ef manni, sem hefir
hug og þor, rennur í skap út af
slíku, þá er tilfinning hans djúp
og sterk, og orðin falla sjálf-
krafa að hugsunum þaris, bitur
og þung og drengileg.
íhaldsmenn hafa nú í mörg ár
varið mestöllu blaðarúmi sínu og
öllu viti sínu til þess að skamma
og svívirða einn einasta mann. En
þegar slíkir hlutir komast upp í
vana, þá verður það loks hálf-
kæringur og hvert orð kjarnlaust
í munni þeirra manna, sem slíkt
iðka, hljómlaus orð og merglaus.
Þegar nú Jónas frá Hriflu á að
taka við einu af æðstu embætt-
um á landinu fyrir augunum á
þessum mönnum, þá ætti þeim að
vera næsta nóg boðið. Það er nú
sök sér, þó að þeir hafi beðið
lægra hlut. En þeir hafa lýst
þessum manni svo, að hann væri
eftir þeirra dómi miklu meiri
stj órmálasvikari en vjer höfum
áður nokkur dæmi til; ekki á
þann hátt, að hann hafi svikið
einhverja fyrri flokksbræður
sína, heldur sé hann með fyrir-
fram ráðnum hug að svíkja til
fylgis við sig alla bændastéttina,
til þess síðan að ofurselja hana
með húð og hári í hendur bolsi-
víka og ránsmanna, sem Morgun-
bláðsmenn hafa jafnframt lýst
svo sem kunnugt er.
Það er hægt að setja sig í
spor þeirra manna, sem árum
saman og af hreldu hjarta hefðu
varað þjóð sína við þvílíkum
svikum og þvílíkum glötunarvegi,
en árangurslaust. Þeir hafa
drukkið hinn beiska kaleik spá-
mannanna. Þjóðin, sem þeir elska
og voru sendir til að bjarga, hún
39. blað.
Best. — Odýrast.
Innleut.
trúir þeim ekki og hlustar ekki
á varnaðarorð þeirra. Hún kýs •
yfir sig þennan mann, sem þeir
sjálfir vita að ætlar að svíkja
hana. Hún felur honum æðstu
umsjón laga og réttar; þeir horfa
upp á þetta, og vita svo vissu-
lega, að þegar hann hefir náð
völdunum, þá ætlar hann að
framselja þjóðina og taka af
hverjum manni alt, sem hann á.
En nú er þessum mönnum ekkert
heilagra en eigurnai', eða það,
sem guð hefir gefið manninum af
gæðum þessa heims.
Hver meðalmaður, sem ætti að
horfa upþ á slíkt, honum mundi
ganga þetta svo til hjarta, að
hver hugarh'ræring hans yrði
sterkari og hreinni og hvert orð
hans þyngra og máttugra. En
reyndar mundi hver dugandi
drengur segja því færra, sem
honum væri meira niðri fyrir.
En Ihaldsmenn segja ekki fátt.
Nú horfa þeir upp á þessa skelf-
ingu, sem þeir hafa reynt að af-
stýra. En þeir hafa ekki á sjer
rósemi og göfgi þess manns, sem
tapaði réttu máli og veit, að mik-
ið er í húfi. Ihaldsmönnum ferst
ekki eins og góðum drengjum,
sem gæta sín þá best, þegar mest
bjátar á, heldur ferst þeim nú
svo, að þeir missa alla stjóm á
sér og emja og skrækja í blöð-
um sínum eins og óðir menn.
Þegar mest liggur við, þá sleppa
þeir sér og gerast dýrum líkir.
Enginn hlutur er náttúrlegri en
þetta. Þessir menn hafa vísvit-
andi flutt falskan boðskap. Spá-
mannsköllum þeirra er upplogin
af sjálfum þeim, og alt verður
hjáróma og svikið, hvert orð úr
munni þeirra og hljóðin og vein-
in líka. Því að þessir menn, sem
skrifa Morgunblaðið og önnur því-
lík skrif, þeir líða enga þjáning
vegna þjóðar sinnar. Þeir hafa
emjan og kveinan eins og leigðar
grátkonur, en hjartað er kalt og
hugurinn tómur af öllu því, sem
gefur orðum mannsins hljóm og
líf. -----
----o----
Góður heyskapur. Af túninu á
Hólum í Hjaltadal fengust 1400
hestar af töðu. Hefir töðufengur
aldrei orðið meiri þar.
„Mánudagur til mæðu“. Morg-
unblaðið var að fárast um að
nýja stjómin skyldi taka við á
mánudegi. Þá var kveðið.
Það mun batna þjóðarhagur
þegar Framsókn tekur við,
þá verður margur mánudagur
til mæðu fyrir íhaldið. B.
----o----