Tíminn - 26.01.1928, Side 4
18?
TIMINN
F IX I La I F S
B-SFENNUTÆKI
Meðan útvadpið var á byrj unarstigi, voru flest viðtækin fyr-
ir einn, tvo eða >rjá lampa. „Plötustraumurinn" var mjög lítill
í þessum lömpum, og venjulegir þurir B-spennu rafvakar voru
nægilegir, til að halda við plötuspennunni.
En framfarimar urðu hraðstígar á útvarpssviðinu. Nú láta
menn sjer ékki nægja þessi gömlu viðtæki. Nú er heimtað af
tækjum, að þau skili útvarpinu hátt og hreint í geliir. En til þess
þarf bæði fleiri lampa og afkastameiri.
Þessir nýju lampar (Kraftforstærker Rör), þurfa háa B-
spennu og plötustraumur í þeim er mikill. Af því leiðir að þurir
B-spennu rafvakar tæmast tiltölulega fljótt, og þurfa oft að endur-
nýjast. En það er bæði kostnaðarsamt og veldur margskonar
óþægindum.
PHILIPS hefir bætt úr þessu með hinu svonefnda B-spermu-
tæki, sem kemur í stað þuru rafvakanna, og hefir næga spennu
og straummagn handa alt að tólf lömpum.
B-spennutækin eru sett í samband við ljóslögnina, með streng,
eins og venjulegur borðlampi, og eru til, bæði fyrir rakstraum og
riðstraum. Þurir rafvakar, gefa.bestan árangur, meðan þeir eru
nýir, en spennan lækkar fljótt, og um leið verður árangurinn
lakari. PHILLIPS B-spennutæki gefa altaf jafngóðan árangur, þvx
spenna og straummagn, er altaf eins. Straumeyðsla þeirra er
hverfandi (3—5 watt). Viðhald er ekki annað en að endumýja
þarf afriðilslampa, sem getur enst 2 til 5 ár, með meðalnotkun.
PHILIPS B-spennutæki eru dýrari í fyrstu heldur en þur
rafvaki, en verða margfalt ódýrari, þegar til lengdar læt-
ur, og þægindin og ánægjan, sem það veitir notandanum, verð-
ur ekki metið til peninga.
Fyrir eyrað: — PHILIPS radio-lampinn.
Fyrir augað: — PHILIPS gló-lampinn.
Umboðsmenn fyrir PHILIPS RADIO A/S.
Snorri P. B. Arnar Júiíus Bjðrnsson
Box £54, Raftækjaverslun. Rafvirkjnn.
Reykjavik. Reykjavík. — Sími 837.
T. W. Buch
(Iiitasmiðja Buchs)
Tietgensgade 64. Köbenhavn B.
LITIR TIL HEIMALITUNAR:
Demantssorti, hrafnsvart, kastorsorti, Parísarsorti og
allir litir, fallegir og sterkir.
Mælum með Nuralin-lit, á ull, baðmull og silki.
TIL HEIMANOTKUNAR:
Gerduft „Fermenta“, eggjaduft, ávaxtadropar, soya,
matarlitir, „Sun“-skósvertan, „ökonom“-skósvertan,
sjálfvinnandi þvottaefnið „Persil", „Henko“-blæsódinn,
„Dixin“-sápuduftið, „Ata“-skúriduftið, kryddvörur, blámi,
skilvinduolía o. fl.
Brúnspónn.
LITAR VÖRUR:
Anilinhtir Catechu, blásteinn, brúnspónslitir.
GLJÁLAKK:
„Unicum“ á gólf og húsgögn. Þomar vel. Ágæt tegund.
HOLLENSKT EXPORT KAFFI-SURROGAT:
Besta tegund, hreint kaffibragð og ilmur.
Fæst alstaðar á íslandi.
Leíðrétting
Herra ritstjóri!
Eg mæltist til þess að íá rúm í
hinu heiðraða blaði yðar íyrir leið-
rjettingu á mishermi í grein Áma
Eylands i 56. tölublaði Tímans f.
árs og nefnist „Bændaskólamir og
jarðræktin", og þér sögðust leyfa
stutta athugasemd. Ennfremur gat
eg þess þá í símtali við yður, að mér
hefði þótt viðeigandi, að greinin
hefði verið send skólastjóranum á
Hólum til umsagnar, áður en hún
birtist, svo að jafnframt henni hefðu
birst réttmætar athugasemdir. 0g er
enn á sömu skoðun.
1. það er ekki rjett hermt að búið
sé að byggja á Hólum, þegar nýja
húsið, sem er 1 smíðum þarf ekki að
afhendast til notkunar fyr en næsta
haust, samkvæmt ákvæðissamning-
um um bygginguna. Ennfremur fer
fram gjörbreyting á gamla steinhús-
inu, t. d. skólastofunum breytt i
íbúðir o. s. frv. Vita því kunnugir, að
sérstaklega hefir verið lítið um hús-
rúm á Hólum, enda þótt nemendur
væru fáir teknir. Hefir staðið á sí-
feldum flutningum milli hexbergja
vegna breytinganna.
2. Ekki býst eg við að skólastjóra-
skifti þurfi að verða, til þess að Hóla-
skóli verði að „nýtilegum bænda
skóla“ (þ. e. verklegum ekóla), þvi
að það hefir verið eindregið álit
skólastjóra og kennara á Hólum, að
skólinn ætti að rekast algjörlega sem
opinber stofnun og vera bæði bókleg-
ur og verklegur. Visast í því efni til
greinargerðar frá okkur, sem við
bárum upp til athugunar og sam-
þyktar á bændanámskeiði á Hólum
1925. Og var hún samþykt í einu
hljóði, en á námskeiðinu voru yfir
300 manns. Síðan var greinargerðin,
samkvæmt ósk námskeiðsmanna,
send til birtingar i Tímanum, en
hefir ekki birst ennþá; væri æski
legast að hún birtist nú, eða endur-
sendist að öðrum kosti.
3. Ekki verður greinin rökföst
kölluð. í öðru orðinu er talað um
búfræðikandidata og búfræðisstarfs-
menn, sem ekkert verklegt handtak
kunni, en í hinu orðinu, að það sé
ósvífni að krefjast meira af þeim,
það sé fyrirkomulagið, það séu
stofnanimar sem séu dæmdar til
fordæmingar. En i sömu andránni
er talað um búnaðarkennara, sem
engan skilning hafi á þýðingu plóg-
hnífs og ráðunaut, sem ekki þekki í
sundur tilbúinn áburð og verði þvi
að hafa „ólærðan" (= lærðan?)
mann til aðstoðar o. s. frv. Slík um-
mæli sem þessi kalla eg dylgjur og
atvinnuróg og er best fyrir greinar
höfund að nefna nöfn — ganga
hreint til verks. Vitanlagt «r að um
fáa starfsmenn er þama að ræða.
k
W W' amW^ -w-
Munið hin skýru orð Vestur-íslendingsins Ásmundar Jóhannssonar á síðasta að.alfundi Eimskipafélagsins:
„Sú króna, sem fer út úr landinu, er kvödd í síðasta siun“.
Kveðjið þér ekki yðar krónu í síðasta sinn, þar sem þess þarf ekki með.
Vátryggið alt, á sjó og landi, hjá Sjóvátryggingartélagi Islands.
<
J
g mm —■ ■■» ^
B. P. KALMAN
hæetaréttarmálaflutningsmaður.
JÓN ÓLAFSSON
cand. juris.
Málflutningnr,
skuldainnheimta.
Hafnarstræti 15. Rvík
....... —M—i.nn. ........—
Best. — Odýrast.
Innlent.
Kef ávalt
fyrirliggjandi:
Bárujárn galv. 24 og 26. 6—10 f.
Slétt jám galv. 24 og 26, 8 f.
Þaksaumur 2V2 galv.
Þakpappi nr. 1 og 2 og pappa-
saumur.
Ofnar, svartir og emaill.
Eldavélar, svartar og emaill.
Ofnrör, eldf. steinn og leir,
Þvottapottar, svartir og emaill.
Skipsofnar.
C. Behrens
Sími 21. Reykjavík. Pósth. 457.
Pantanir afgreiddar gegn
póstkröfu.
Fjallkonu-
"\n skó/
svertan
) er
best.
Hlf. Efnagerd Reyhjavíkur.
Ritvélaii*
L. C. Sxnith.
og Corona (í köfsum)
Nýkomnar verðið ujög lágt
Samband isl. saifinmifálaga
Árió 1904 var
í fyista sinu
þaklagt i Dan
mörku úr
:s ICOPAL. ::
Notað
um allan
hcim.
Besta og ódýrasta efni 1 þök. Tíu ára ábyrgð á þökunui
Þurfa ekkert viðhald þann tíma.
Létt. ----- Þétt. ----- Hlýtt.
Betra en bárujárn og málmar. Endist eins vel og skífuþö
Fæst alstaðar á lslandi.
)ens Villadsens Fabríkei
Köbenhavn K
Biðjíð um verðskrá vora og sýnishorn.
ALFA-LAVAL
mjaltavélar
eru bestar.
Samband ísl. samvinnufél.
4. Sem betur fer er bændaskóla-
mentunin notadrýgri en af er látið. 1
Má í því sambandi nefna, aö undan
tekningarlítið eru allir bestu bænd-
umir af yngri kynslóðinni, — það
eg þekki — búfræðingar. En þó ex
engum ljósara en þeim, sem starfa é
þessu sviði, að mikilla umbóta þarf
við, oð þurfa þau mál að ræðast með j
festu og einurð. Tillögur um verk- '
legt búnaðarnám sem íslandsdeild i
N. J. F. F. samþykti, birtast sjálfsagt
bráðlega. — Og nú kemur til kasta
hins háa Alþingis að ráða fram úr
þessu mikilvæga máli: Fyrirkomu-
lagi hinnar verklegu búnðarkenslu í
landinu.
5. það eru ekki meiri brögð að því
að búíræðingar hverfi frá sínu áíorm-
aða lífsstarfi, heldur en aðrir sérfræð-
ingar, en um það eru tæplega nokkr-
ar skýrslur til. En þetta er það raun-
verulega, að ýmsir ungir menn
hvaríla írá einu í annað, og mun
það haldast svo, að þri er snertir
suma búfræðinga, jaínvel þótt þeir
megi nefnast búfræðingar án tilvís-
unarmerkja.
6. það stappar nærri, að því sé
haldið fram, að Búnaðarháskólinn i
Kaupmannahöfn gefi íslenskum nem-
endum ýmsar undanþágur, líklegast
að því er verklegan undirbúning
snertir. En fjairi fer því, að slíkt
eigi sjer stað.
7. Eg býst við að tilgangur með
greininni sé öllu betri heldur en
ályktanimar, sem út af henni verða
dregnar.Andinn í greininni er svo ön-
ugur og ankanalegur, að meginþorri
lesenda mun misskilja hana. Og
greinarhöíundur skilur ekki sjálfur
hvað hann er að fara.
Greinarhöfundur segir, að það
þurfi að rótast um með viti, svo
sögur fari aí við nýræktarstörfin.
þar erum við sammála. — En hann
hefir tekið sér fyrir hendur að rót-
aet um, og láta sýnast, að ekkert sé
nýtt í búnaðarskólamentun vorri eins
og henni er nú fyrir komið. þstta er
að rótast um, svo sögur íari af, —
að endemum, en ekki viíi.
Slíkt hugarþel er til niðurdreps en
ekki uppbyggingar.
Pt. Reykjnvik 19. jau. 1928.
Vlgiús Helgason.
Aths. Athugasemd höf. um að grein
A. G. E. hefði átt að sendast skóla-
stjóranuni á Ilóium áður liún birtist,
er ástæðulaus. í greininni var bein-
línis tekið fram aö það væri „ó-
svífni" gagnvart skólastjóranum aö
álíta að mannaakifti mundu lækna
meinsemdirnar. Á skipulagið Var
deilt en skólastjórann eklci. — Um
„greinargerð" þá er höfundur minn-
ist á er núverandi ritstjóra blaðsins
ókunnugt, en telur ckki likur til að
hún verði hér cftir birt. Og líklegt
má telja að þeir á Hólum oigi frum-
rit af svo merkilegu plaggi. RitstJ.
Ritatjóri: Jónas ÞorbergBaon,
LokAstíg 19. Síml 221t.
R intsmiÖjiui Acta.