Tíminn - 11.02.1928, Blaðsíða 3

Tíminn - 11.02.1928, Blaðsíða 3
TIMIKS Sl Þegar gamli mótorinn gefst upp kemur Kelvin í staðinn. Mbl. verður þessvegna algerlega að (iga um það við M. Guðm. hvort hér er um vítavert hirðuleysi að rœða. Hann hefir álitið að ekki vœri meira hœgt í málinu að gera og látið það niður falla. Tíminn hefir aflað sér upplýsinga um að mál þetta hefir verið þrjú ár á döfinni hjá G. Sveinssyni. Að hans tilstilli voru nokkrar rithandir manna i Skaftafellssýslu sendar til rannsókrar hjá besta rithandarfrœð- ingi Dana. Meðal þessara rithanda voru tvær eftir nána vandamenn Lárusar i Klaustri, og er óhætt að fullyrða, að G. Sv. muni mjög hafa óskað eftir að sckt þeirra sannaðist, og ímyndað sér að svo myndi verða. En það fór á annan veg. Rithandar- fræðingurinn taldi þessa menn alveg saklausa. Eftir að dómur sérfræðings þessa var genginn, og í öfuga átt við það sem ofsóknarmenn Lárusar í . Klaustri vildu vera láta, ákvað fyrver- | andi stjórn og svo sem af líkum ma ráða í félagi við G. Sv. að málið væri | tromt. Jón Kj. getur skemt sér fram- j vegis við að ásaka íhaldsstjómina | fyrir ódugnað og sleifarlag í þessu máli. Tíminn mun ekki blanda sér jj i þær heimilisdeilur ihaldsins. i -.. . ' :| ----o----- ;| s Fréttir, Úr BorgarfirSl er skrlfað: Bænda- námsskeið var haldið á Hvanneyri vikuna 29. jan. til 5. febr. Sóttu það um 50—60 fastir gestir, en fjölgaði er á ieið, uns um 80 næturgestir voru á Hvanneyri síðustu nætur námsskeiðs- Auk þess allmargt manna er kom A daginn af næstu bæjum. Og síðasta daginn var talsvert á 4. hundrað manns að meðtöldu heimafólki. All- ur beini var hinn besti, og húsráð- endur, Halldór skólastjóri méð sinni iiressandi drengilegu framkomu og hin ágæta húsfreyja hans, Svafa þórhallsdóttir, kappkostuðu að gera dvöl gestanna sem ánægjulegasta Fyrirlestra fluttu allir kennarar skol- ans og auk þess Ágúst Bjamason prófesBor, Ragnar Ásgeirsson, Guðm. Jónsson frá Torfalæk, Kristleifur á Kroppi og Helgi Hannesson. Var margt vel sagt í fyrirlestrunum, er vekur, fræðir og skemtir í vetrar- kyrðinni. Hafa fyrirlesararnir heila þökk þeirra er á hlýddu. Vanalega vom fluttir 5 fyrirlestrar á dag, en á kvöldin vom málfundir, þar sem rædd voru ýms mál. Langmesta at- hygli vakti alþýðuskólamál héraðs- búa. Eins og kunnugt er hefir all- lengi verið haldið úppi alþýðuskóla á Hvítárbakka. En þar eru hús ófullnægjandi og staðurinn á ýmsan hátt ekki talínn ákjósanlegur. Hreyf- ing hefir nokkur orðið á síðustu tím- um — einkanlega í Ungmennafélög- unum — að heppilegast væri, úr því að varla verði hægt að komast á milli bæja í hásveitum eða að minsta kosti nóg til hess að mjög mikill hluti kjósenda geti ekki notið atkvæðisréttar. Að vísu getur farið fram lögleg kosning í héraði, þó að tiltölulega mjög lítill hluti af kjósendum sæki kjörfund í sveitum þar sem haustveðrið er venjulega verst. En bændaþátttaka í landkjörinu yrði tiltölulega mjög lítil. 1 Ár- nessýslu, haustið 1919, var svo slæmt veður, að Sigurður heitinn Sigurðsson fullyrti um miðjan dag að hann væri fallinn, sem og líka var, af því að í upphreppun- um var hríðarveður, svo fólk komst ekki á kjörstað. Það er auðséð, hver niðurstaða myndi verða af slíkum kjördegi, það myndi verða kosnir þrír íhalds- menn, sem berðust fyrir hags- munum bæjanna, tveir Alþýðu- flokksmenn, sem líka berðust fyr- ir hag bæjanna, þó að nokkuð sé á annan hátt, og svo einn Fram- sóknarflokksmaður. Upp úr þess- ari kosningu hefði þá bæjaveldið fimm menn, en bændur aðeins einn, og þessu má altaf búast við um landskjör 1 vetrarbyrjun. Þegar bændur landsins fara að athuga það, hversu kaldrifjaður hv. 8. landsk. (J. Þ.) hefir verið í þeirra garð með þessu, þótt það lcomi sér vel fyrir hans flokk, með höfuðvald sitt í kauptúnun- um, þá þykir mjer akki ósenní- Kelvin fæst nú með afar hag- kvæmum kjörum. Fyrsta greiðsla aðeins 10%. þyrfti að endurreisa skólann, aö flytja hann þá þangað, sem hægt væri að nota jarðhita. Kom þaö í ljós við umræður að það var í fullu samræmi við vilja námsskeiðsgesta. Má ráða af verkunum að hér fylgdi hugur máli, því seinasta námsskeiðs- kvöldið var hafin fjársöfnun til styrkt- ar því að reisa skólann „á heitum stað“. Halldór skólastjóri byrjaði með því að gefa 1000 kr. og alls safnaðist um kvöldið, peningar eða loforð um þá, á 5 þús. krónur og auk þess lof- orð um yfir 300 dagsverk, þegar að bvggingu skólans kæmi. Auk þátt- takenda þarna voru allmargir er tjáðu sig hlynta málinu og hétu því stuðningi sínum, þótt þeir ákvæðu enga sérstaka upphœð þá á stund- inni. Er búist við að sumir af þeim verði rausnarlegir í þessu máli. Sjómannafélag er nýstofnað á Ak- ureyri og nefnist Sjómannafélag Norðurlands. Lungnabólga í sauSfé hefir gjört mjög vart við sig í Húnavatnssýslu. Að tilhlutun rikisstjómarinnar fór dýralæknirinn á Akureyri vestur þangað til þess að athuga veikina. Sýslumannsembættlð i Barðastrand- arsýslu hefir verið auglýst laust til umsóknar. Réttarpróf standa nú yfir í bruna- málunum á Stokkseyri. Nýlega eru famir norður til Akur- eyrar Stefán Jóh. Stefánsson lðgfr. og Björn Steffensen endurskoðandi, til þess að framkvæma endurskoðun hjá bæjarfógetanum þar. Björn er sonur Valdemars Steffensens læknis á Akur- eyri, en fóstursonur Bjöms Krist- jánssonar alþm. og hefir numið end- urskoðun í Englandi. Hafa þeir Ste.f- án og hann fyrir skömmu endur- skoðað hjá bæjarfógetanum í Hafn- arfirði, og er þeirra síðar von til fleiri sýslumanna í sömu erindum. ----O----- Bréf út Dalaaýsln. ... það sem okkur hér í Dölum van- hagar mest um, er að fá greiðar samgöngur við Reykjavík um Borgar- nes, þ. e. veg sem tengir saman Dala- sýslu og Mýrasýslu. Gætum við þá látið slátra fje okkar i Borgamesi og boðið Reykvikingum okkar góða kjöt, en eins og nú er, er þetta ómögulegt, því að engin ieið er að flytja slátur, og annan innmat úr fé frá Borgarnesi hingað vestur, svo langa leið, nema með bíl, til þess að það geti verið óskemt. Okkur virðist því að miklu meiri þörf sé að koma veginum vestur yfir Bröttubrettu, eða hvar hann nú verður lagður á milli sýslnanna, heldur en norður yfir Holtavörðuheiði, því vegurinn vest- ur yfir í Dalina er fyrst og fremst nauðsynlegur til vömflutninga. Af- koma héraðsins veltur algerlega á Jörð tll ábúðar PHILIP’S hleðslufæki. í Stokkseyrarhreppi. Áveituland ' fylgir. Semja má viö Pál Bjama- | son kennara í Vestmannaeyjum. : Sími 40. Jör ðin Stóra-Hof í Gnúpverjahreppi fle»t til ábúðar í næstu fardögum, og kaups ef um semur. Upplýsingar gefur bankastjór- inn á Selfossi. Af 17 fiskibátum sem bygðir voru síðastliðið ár á Skotlandi voru 14 með Kelvin mótor. því hvort þessi vegur kemur í bráð eða ekki, hvort heldur við höldum áfram að framleiða sláturafurðir, * 1 eða breytum til og förum að fram- leiða mjólkurafurðir. Hið síðartalda, sem okkur væri líklega fyrir bestu, er með öllu ómögulegt, nema að samgöngur batni til stórra muna frá því sem nú er. Hér í Dölum fylgjast menn mjög vel með í landsmálum og munu al- þingistíöindin alment lesin. Mikið umtal hafa vakið orð sem Jónas Kristjénsson hinn landkjömi hefir látið sér um munn fara í þingræðu á síðasta þingj. Orðin eru þau, að Jónas Jónsson frá Hriflu, nú dóms- málaráðherra, hafi „sleftungur í hverjum einasta hreppi á landinu". Minna má nú ekki vera en að ætlast megi til, að þingmaðurinn sé svo gáfaður, að hann viti hvaða mein- ing felst í orðum þeim, sem hann leyfir sér að tala innan þinghelg- innar. þessi tilfærðu orð eru Jónasi ráðherrn óviðkomandi, en þau eru versti rógur til einhvers eða ein- hverra ákveðinna manna í hverjum einasta hreppi á landinu. þetta leyfir þá þingmaðurinn sér, að niða svona óviðkomandi fjarstadda menn, ofan á það níð, sem hann leyíðl sér að ausa á nemendur Samvinnuskólans í þessai-i sömu ræðu, án þess að hægt sé að sjá að þetta geti á nokkum hátt komið við því þingmáli, sem þá var til umræðu. Eg vil nú leyfa mér að nota hér tækifærið og skora é þingmanninn Jónas Kristjánsson, að nefna þá menn hér í Dalasýslu, sem hann kallar sleftungur Jónasar fré Hriflu. Tilgreini hann aö minsta kosti einn mann í hverjum hreppi sýslunnar, sem hann kallar svo. Geri hann það ekki, vona eg að hann telji ekki óeölilegt þótt hann hér eftir verði alment nefndur mesti rógberi landsins. Dala-Freyx. Dönsku herskipin nota Kelvin. Ensku herskipin nota Kelvin. Hingað til haía útvarpsnotendur orðið að vera öðrum háðir, með hleðslu rafgeyma sinna, og kemur það’ sér oft illa. Það er með það eins og alt annað, að best er að vera engum háður, heldur sem mest sjálfstæður. Til þess að fá rafgeyma sína hlaðna, hafa menn orðið að senda þá til hinna svonefndu hleðslustöðva, sem annast hleðsluna. Þessu . fylgja ýmsir ókostir, og verður töluvert kostnaðarsamt, þegar til lengdar lætur. Einnig getur sýTan á rafgeyminum helst niður, á gólfteppi og annað, sem hún þá eyðileggur. PHILIPS hafa komið með hleðslutæki, sem eru sérstaklega gerð fyrir útvarpsnotendur, til notkunar í heimahúsum. Geta menn þannig hlaðið rafgeyma sína sjálfir, án þess að þurfa að vera öðr- um háðir. PHILIPS hleðslutæki spara mönnum óþægindi sem stafa af flutningi rafgeymisins, og rafmagnseyðsla tækisins er lítil, aðeins 30 watt. Hleðslutækin eru ákaflega einföld í meðferð, og hlaða al- gerlega sjálfkrafa og þurfa ekkert eftirlit. Af þeim stafar engin eldhætta, svo óhætt er að hlaða að nóttu til, sé þess óskað. Útvarpsnotendur, hlaðið rafgeyma yðar sjálfir, heima hjá ykk- ur, með PHILIPS hleðslutækjum, og þægindin sem þau veita yður eru mjög mikil. Þeir, sem einu sinni hafa notað þau, vilja ekki án þeirra vera. Biðjið vun verðskrá og aðrar upplýsingar viðvíkjandi hleðslutækj unum. Fyrtr eyrað: — PHILIPS radio-lampinn. Fyrir augað: — PHILIPS gló-Iampinn. Umboðsmenn fyrir PHILIPS RADIO A/S. Snorri P. B. Arnar Júlíus BJðrnsson Box 854, Raftækjaverslun. Rafvirkjtm. Reykjavík. Reykjavík. — Sími 837. Fjallkonu- n skó; svertan !T best. M Hlf. EfiuujenJ Reyhj.ivíkuv. Bændaskólarnir og Jarðræktin Með þessari fyrirsögn reit eg grein- arkom í Timann 21. des. síðastliöinn. Síðan hefir blaðið flutt tvær greinir cr eiga að teijast andmæli gegn nefndri grein. Eg óskaði eftir umræð- um um þetta efni en greinar þeirra tvímenninga, hr. Guðmundar Jóns- eonar op hr. Vigfúsar Helgasonar, hafa valdið mér vonbrigðum. Hr. G. J. byrjar með þvi að telja grein mina; „að mestu leyti þung- ar ádeilur og stór orð", og telur það einkenna hana; „að þar em ongin rðk að finna". þess vegna verði grein Jörðln Mjóidalur í Bólstaðarhlíðarhreppi í Húna- vatnssýslu er til sölu. Á jörðinni er gott íbúðarhús úr timbri. Stærð 12X14 álnir. 350 til 400 hesta tún og 1000 hesta út- heysslægjur. Peningshús eru í góðu lagi og heyhlaða fyrir 200 hesta. Frekari upplýsingar gefur eig- andi og ábúandi jarðarinnar Björn Geirmundsson. min „ekki annað en sleggjudómur". pá er vel ef að ádeila mín er þung, ekki mun af veita. pað var ekki meining mín að hafa neinn hálfvelgju svefnblæ á greininni. Og ekki mun það rýra gildi greinarinn- ar þó að hún sé ekki þmngin af rökum. Hún rekur nokkur atriði máls, sem er svo alkunnugt, og auð- sætt öllum, sem um það hafa hugs- aö, að það þurfa engin rök til þess að minna á málið, — minna á að það þurfi að ganga feti framar en að viðurkenna það sem aflaga fer. pað þurfi að Iaga og bæta búnaðarfræðsl- una, og þær umbætur þoli enga bið. pessi atriði verða ekki rakin betur og áhrifaríkar á annan hátt, en að legt, að þessi útreikningur hans verði honum til lítillar ánægju, þegar hann fer að tala við sveita- menn um það, hve vel hann unni þeim alls góðs af stjómmálavaldi þeirra í landinu. Hér hefir verið samþykt í deildinni í dag annað frv., sem búið er að fella fjórum sinnum í þessari hv. deild. Það hefir ávalt verið samþykt í Nd., en felt hér, og við vitum, að það er fyrir meting og kapp tveggja manna hér í bæ, sem standa að fyrver- andi meiri hl. í þessari hv. deild. Við skulum nú hugsa okkur það, að hér væri kominn í Ed. varan- legur stöðvunarher, eins og sá, sem beitt var á móti hinu svo- nefnda rakarafrv. íhaldsflokkur- inn gæti ef breyting þessi nær fram að ganga, fengið stöðvunar- vald í Ed., þótt hann værl í minni hl. í landinu og þinginu. Þess verður nefnilega að gæta, að fái sá flokkur, sem vill beita sér fyrir kyrstöðu í Ed., þrjá full- trúa við landskjör, getur hann fengið jafntefli þar, þótt hann kunni aðveraí minni hlí Nd.,þ.e. haft nóg afl til þess að fá fjóra menn kosna upp í Ed. að nýaf- stöðnum kosningum, þá er svo komið, að búið er að skapa sjö manna vald í Ed., sem getur stöðvað alla framfaralöggjöf I landinu um óákveðinn tíma. Það eina, sem getur brotið slíkan flokk á bak aftur, «r að«iiui jftfn gagngerður ósigur íhaldsins og var í vor, og grunur minn er sá, að hv. 8. landsk. (J. Þ.), með sinni laglegu tölvísi, hafi fundið það, að íhaldsflokkurinn gæti líklega aidrei fengið meiri hl. í Ed., en með þessari breytingu gæti hann e. t. v. gert sér von um að f á neitunarvald hér og þar með því að skapa líkt ástand og það, sem eyðilagði alt fram- kvæmdavald í Danmörku fyrir aldamótin. Eg hygg, að þeir menn, sem þekkja vinnubrögðin íhaldsins hér í deildinni á undan- fömum árum, myndu trúa þeim mönnum til að stöðva hin stærstu og bestu mál, og það með því meiri ánægju, sem þau væri stærri Eg býst þess vegna við, að almenningur muni mjög undr- ast, þegar honum er ljós orðin sú undarlega léttúð, sem jafnan hefir komið fram hjá fylgismönn- um hv. 3. landsk. (J. Þ.) í stjóm- arskrármálinu, hvemig reynt hef- ir verið að láta afturhaldskenda fleyga loða við hverja verulega breytingu og þegar svo hefir til komið, og flokkurinn hefir getað fengið liðveislu annara til að koma frv. i gegnum þingið, þá hefir verið ómögulegt að fá hann til þess að fella úr fleygana. 1 fyrra bauð eg og hv. 2. þm. S.-M. (I. P.) þrásinnis stuðning til þess að samþykkja frv., ef flokkurinn vildi fella úr þessa fleyga. Hv. þm. Seyðf. (Jóh. Jóh.) neitaðí þessu boði mjög eindregið, og al- veg sanm átti sér stað árið 1924 á milli mín og Jóns heitins Magn- ússonar, sem þá var í stjóm- arskrámefnd. Nei, það var ekki við það komandi, aitaf skyldu fleygamir vera með. Og svo vildi það til að á því sama þingi, árlð 1924, þegar íhaldsflokkurlnn var nýtekinn við stjóm, þá drepur flokkurinn frv. fyrir sinum eigin foringja, Jóni heitnum Magnús- syni. Það var þó síður en svo að þeir hefðu nokkra ástæðu til að drepa stjómarskrá með fyrirmæl- um um þinghald annaðhvert ár þá, því að þeir voru í meiri hluta í báðum deildum, og sérstaklega í sterkum meiri hl. hér 1 Ed., og gátu gert hvað sem þeir vildu. Niðurstaðan af þessum langa leik, síðan 1922, er þá sú, að | aldrei hefir ihaldsflokkurinn eða ! spamaðarbandalagið fengist til að 1 fást við breytingu á þinghaldi, svo að það yrði aðeins aimað- hvort ár, nema einhverjir bak- þankar hafi jafnan verið með, ' og einu sinni hafa þeir drepið | frv. fyrir sínum eigin fórkólfi. 1 ! fyrra neituðu þeir allri samvinnu 1 og spottuðu þá, sem vildu fylgja aðalhugmyndinni án fleyga, með | því að breyta frv. þannig að gera það sem óaðgengilegast fyrir frjálslynda menn í landinu. í í fyrra var laudskjörsbreytingin sú lævísa hagsmunabreyting íhaldinu í vil, sem var látin fylgja aðalat- riðinu, þingafækkun. Eg býst þess vegna við, að hv. 8. landsk. (J. Þ.) geti ekki tekið það illa upp fyrir þeim, sem hann er að reyna að leika í þessu máll, þótt þeir leggi sig ekki alveg und- ir öxina. Eg hefi skilið óheilindi íhalds- manna í þessu máli frá því eg kom á þing 1923, og að jafnaði orðið að taka þátt í meðferð málsins hér í deiidinni. Eg verð að segja, að enda þótt eg með mikilli þolinmæði hafi biðið þar til nú með að fletta ofan af hinu innra samhengi málsins, þá er það ekki of mikill greiði við í- haldið, þegar litið er á þá fyrir- greiðslu, sem fyrverandi stjóm gerði framsóknarflokknum, með því að leysa þingið upp í fyrra- vor og hafa kosningar þá. Það var að vísu fyrst hugsað sem heiv kænskubragð, átti að gagna kyr- stöðunni í landinu, þótt leikslok yrðu önnur. Vertíðln er nú byrjuð sunnanlands. Ilefir verið góður aíli á Suðurnesj- um og á Akranesi, en tregur í Vest- mannaeyjum. Úr biéfi: „Vélin hefir altaf gengið eins og klukka og ekki slegið eitt einasta „feilpúst“.“ Kelvín.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.