Tíminn - 07.04.1928, Síða 2
66
TlMINN
i
rásum verið svarað ? Nálega
aldrei með blaðagreinum, því blöð
Framsóknarmanna standa í þjón-
ustu almennra mála. Rógberunum
hefir verið svarað með því, að
fela Jónasi Jónssyni hverja trún-
aðarstöðuna annari ábyrgðar-
meiri. Níðið hefir verkað eins og
dúnkraftur. — Trúnaðartraust
landsmanna á Jónasi hefir aukist
stórum við hverja einustu níð-
grein, og svo mun veröa enn.
Það skiftir engu máli hvort J.
Þ. viðurkennir að æskulýður
landsins sé andvígur allri íhalds-
mensku. Kosningarnar síðustu
slöngvuðu þeim staðreyndum
framan í Ihaldið, að það voru
ekki aðeins yngri kjósendur, held-
ur og fjöldi eldri manna og
kvenna, sem vildu losa þjóðina
við hið „gætilega" eftirlit fyrv.
stjórnar, með sjóðum og sýslu-
mönnum og hina „gætilegu"
rannsókn á fölsuðum kosningum.
Bak við hina „gætilegu fjármála-
stefnu“ grilti þjóðin í opinbera
starfsmenn, sem söfnuðu „lausa-
skuldum“ við ríkissjóðinn og aðr-
ar opinberar stofnanir.
Þegar J. Þ. hefir tekið upp
„gætilega“ stefnu um meðferð
sannleikans, og þegar hann hefir
áttað sig eftir skellinn, mun það
skýrast fyrir honum, að hann
varð að hypja sig úr valdastóli
einmitt vegna þess, að við síð-
ustu kosningar voru það fleiri en
„hópur ungra manna nálægt
ræðustól, sem gáfu mjög til
kynna velþóknun sína“ á Jónasi
Jónssyni. Fundarmaður.
Föðurlandssvik
mega það heita, sem Ihalds-
menn hafa tekið sér fyrir hend-
ur, er þeir hafa símað til þýskra
blaða lognar frásagnir af umræð-
um á Alþingi, til þess eins að
búa sér til árásarefni á dóms-
málaráðherrann. Birtist nýlega í
þýsku blaði skeyti frá Rvík, þar
sem skýrt er frá að dómsmála-
ráðherrann hafi í ræðu bendlað
breska ríkið við olíustöðvamar
við Skerjafjörð. Ráðherranxi hefir
aldrei nefnt neitt stórveldi í sam-
bandi við málið, heldur aðeins
bent á þá augljósu hættu, sem
hlutleysi landsins geti stafað af
svo stórum olíugeymslustöðvum,
ef ófrið bæri að höndum. Um leið
og þau óráðvöndu flón, sem stýra
pennum íhaldsins, gera sér upp
föðurlandsumhyggju, hika þau
ekki við, að vinna fyrirlitlegustu
verk, sem föðurlandssvikarar
einir geta látið sér sæma.
Á víðavangí.
Kr. Linnet og tolleftirlitið.
Hvalreki varð á fjöru Mbl. 4.
þ. m. er Kr. Linnet sýslum. Vest-
mannaeyinga segir þar frá fram-
göngu sinni við tollheimtu þar í
Eyjum. Ut af smágrein Tímans
„Tolleftirlitið‘ ‘ gefur sýslumaður-
inn til kynna, að kaupmaður sá
er þar átti í hlut hafði verið
Gísli J. Johnsen konsúll. Komst
Kr. Linnet að þeirri niðurstöðu
að grein Tímans hafi verið til
þess gerð, að sýna „ágæti tolleftir-
litsins, hrekkvísi kaupmanna og
úrræðaleysi yfirvalda" og að
dæmið hafi verið illa valið. En
hversvegna var það illa valið ?
Linnet staðfestir frásögn Tímans
í öllum greinum: í fyrsta lagi,
að tollþjónn lét vigta vindlinga-
sendinguna. I öðru lagi að á-
greiningur varð um innheimtu
tollsins og að verslunin vildi
skifta um umbúðir áður tollur
væri reiknaður. I þriðja lagi, að
yfirvaldið Kr. Linnet, var í vafa,
úr því að hann „leitaði úrskurð-
ar fjármálaráðuneytisins" um
málið. Á kaupmanninum og versl-
uninni verður ekki gerður grein-
armunur meðan hún er rekin á
ábyrgð kaupmannsins og ætti lög-
fróðum manni ekki að missýnast
um það. Hið eina, sem virðist
vanhermt í grein Tímans, er það,
að Kr. Linnet leitaði sjálfur úr-
skurðarins. Um hitt mun honum
ókunnugt að tollþjónninn gerði
slíkt hið sama og hefði því ekki
átt að fullyrða neitt um það.
Tveir stjómendur.
Eimskipafélags íslands, þeir
herrar Hallgr. Benediktsson og
Jón Þorláksson hafa að undan-
förnu rekið siglingasamkepni við
sitt eigið félag, þar sem þeir hafa
haft skip í förum til Hambofgar
til þess að flytja þaðan sement og
fleiri vörur fyrir sig og aðra.
Hefir slíkt þótt kynl^g félagsum-
hyggja þessara stjómenda og ris-
ið af því umtal. Er sú niðurstaða
þess máls, að þeir félagar hafa
látið niður falla þessa samkepni
við Eimskipafélagið.
Málum blandað.
I Verði 17. mars síðastl. birtist
ræða Jóns á Reynistað um fyrir-
vara þeirra félaga í fjárveitinga-
nefndinni. Er þar sagt, að
„stjómarblaðið“ telji það siðspill-
ingarkenningar að þeir vilji
hækka framlög til samgöngubóta
og verklegra framfara. Hér er
lítilmannlega vikist undan sann-
leikanum. Tíminn hefir ekki vítt
þá stefnu hvorki hjá Jóni á
Reynistað né öðmm. En hann
hefir vítt hitt, sem ber-
lega kom fram í fyrirvara þeirra,
að þeir mundu freista að knýja
fram umræddar útgjaldahækkan-
j iri þó af því hlytust tekjuhalla-
| fjárlög. Verklegar framkvæmdir
| þær, er J. Sig. telur upp og kveð-
! ur ónauðsynlegri vegum eru
| reyndar allar, að undantekinni
i sundhöllinni, aðeins heimilaðar.
| — Ur máli þessu hefir reyndar
! gieiðst svo að þeir J. Sig. og P.
Ottesen hafa ekki þurft að standa
við sína fávíslegu hótun með því
að tekjuaukalög hafa heimilað
rífleg fjárframlög til samgöngu-
bóta með einhuga samþykki
þingsins.
!
„Þar á eg úlfs von,-------“.
j Um það bil er sýnt þótti, til
hvers myndi draga um úrslit síð-
I ustu kosninga, kváðu við samtím-
is tvær raddir í blöðum Ihalds-
flokksins. Var önnur á þá leið, að
pólitískt vald bænda væri of mik- j
ið og bæri því nauðsyn til að fá
I breytt kjördæmaskipun í landinu.
— Hin var sú, að foringjar 1-
haldsflokksins kynnu lítt til póli-
tískra vinnubragða. Var um það
l talið ólíkt háttað forystumönnum
Framsóknarflokksins, eigi síst
foringj a hans, Jónasi Jónssyni,
núv. ráðherra. Væri sá maður sí-
talandi við menn úr öllum lands-
hlutum og mundi Framsóknar-
flokkurinn eiga sigur sinn að
miklu leyti að þakka þessari þrot-
lausu árvekni hans og annara
forystumanna Framsóknarflokks-
ins. — Þessar tvær raddir, komn-
j ar fram samtímis við atburðina
i 9. júlí síðastl. gefa ljósa hug-
mynd um innræti íhaldsflokksins
gagnvart bændum landsins: Jafn-
framt því sem blöðin telja nauð-
synlegt að auka vald bæjanna á
kostnað bænda, eru burgeisar
Reykjavíkur, oddvitar í hags-
1 munasamtökum fésýslustéttanna,
atyrtir fyrir tómlæti um að taka
j bændur tali og lokka þá til fylg-
! is við sig, — ekki af umhyggju-
; semi fyrir málstað bændanna,
j heldur til þess að svíkja þá í
trygðum og svifta þá pólitísku
valdi! —
Menn og málavextir.
Málefnum Islendinga hefir á
1 undanfömum árum verið skotið
undir pólitískan vopnadóm, þar
j sem stofnað hefir verið til ærins
j liðsmunar. Annarsvegar hafa
Ihaldsmenn varið gífurlega miklu
1 fé til útgáfu 6—8 blaða, auk ým-
1 issa flugrita, með þeim höfuðtil-
gangi að fá stöðvað vöxt fram-
sóknarflokksins og komið fyristu-
mönnum hans, sérstaklega Jónasi
G r a s f r æ
Sökum slæmrar nýtingar í fyrrasumar, víðast hvar um
Norðurlönd, er óvenjulega örðugt að ná í gott grasfræ af norræn-
um uppruna.
Oss hefir samt tekist að tryggja oss þær tegundir af gras-
fræi, að vér í vor getum selt góða grasfræblöndu.
I blöndunni verður fræ af þessum tegundum:
Vallarfoxgrasi, ræktað í Noregi.
Hávingli, ræktað í Svíþjóð.
Língresi, ræktað í Noregi.
Háliðagrasi, ræktað í Finnlandi, og
Vallarsveifgrasi, ræktað í Canada.
(Norrænt fræ af Vallarsveifgrasi hefir því miður reynst ófá-
anlegt).
Þeim sem vilja tryggja sér gott fræ er áreiðanlega fyrir
beetu að koma tafarlaust með pantanir sínar.
Seljum einnig norska grænfóðurhafra.
Samband ísl. samvinnnfél.
Jónssyni á kné. — Hinsvegar hafa
Framsóknarflokksmenn haldið úti
tveimur blöðum. Þrátt fyrir liðs-
muninn hafa Ihaldsmenn biðið úr-
slitaósigur á stórum svæðum í
landinu. Gæfumunurinn er sá, að
hin yngri sveit hefir háð baráttu
sína móti dögun; hin í rökkri
fornrar kyrstöðu og einstaklings-
hyggjunnar. — Ýmislegt getur
valdið breytilegri vindstöðu í
stjórnmálum landanna, eins og
tímabundnar ástæður, þroski og
hugarfar fólksins. En samkvæmt
máli eilífrar viðleitni sigra að lok-
um þeir, sem af einlægum hug
starfa að málefnum framtíðarinn-
ar. öld umskiftanna virðist vera
að renna yfir heiminn. Kyrstöðu-
vald úrelts skipulags fellur nú
víða í löndunum. Slíkt hið sama
er að gerast hér á landi.
— Mundi íhaldsritstjórinn, sem
vítti þá, J. Þorl. og M. Guðm.,
fyrir skort á haldgóðum vinnu-
brögðum fá skilið, hversvegna all-
ur blaðakostur íhaldsins kom að
svo litlu liði? Mundi hann skilja
að þessum foringjum íhalds
manna hlaut að vera annan veg
háttað en Jónasi Jónssyni og
Tryggva Þórhallssyni, af því að
hinir fyrnefndu menn hafa aldrei
átt hugsjónir eða gerst oddvitar
í stórum_ framtíðarmálum? Ráðn-
ingin er ofur einföld: Þjóðin vill
geta fundið einlægan vilja og
framtíðarhugsanir á bak við orð-
in!
Offjölgun stúdenta.
Guðni Jónsson stud. mag. eys
upp mikilli þynku í Mbl. 27. mars
síðastl. „Um takmörkun stúdenta-
fjöldans í Háskólanum". Grein
hans er af sama toga og brugðin
sömu illkvitni í garð kenslumála-
ráðherrans eins og verið hafa
fyrri skrif stúdenta um þessi efni
í blöðum íhaldsmanna. — Öll
rökleysa þeirra byggist á þeim
höfuðmisskilningi, að þjóð, sem
hefir stofnað skóla, hafi engan
rétt til þess að kveða á um stærð
skólans, heldur skuli aðsóknin ein
ráða vexti hans. Á þessari firru
er bygð sú krafa, að ef fleiri
sækja að deildum Háskólans en
húsrúm og aðrar ástæður leyfa,
þá beri að stækka skólann og ef
fleiri sækja að embættum lands-
ins en þau geta á móti tekið, þá
beri að fjölga deíldum við háskól-
ann. Alt annað sé kúgun við
námfúsa æsku o. s. frv.! Er og á
sama misskilningi bygð sú stað-
hæfing, að stofnun lærdóms-
deildar á Akureyri og takmörkun
stúdentafjölgunar geti ekki farið
saman og þá jafnframt allar að-
dróttanir til kenslumálaráðherr-
ans um óheilindi og ósamkvæmni
í sambandi við þá skipun. — Hér
er verkefni skift milli skóla eftir
staðháttum, þannig að Menta-
skólinn sinni einkum þörfum
Reykjavíkurbúa, en Akureyrar-
skóli fjarlægum landshlutum og
verði einkum við hæfi fátækari
nemenda, sem geta ekki byrjað
skólanám fyr en undir þroskaald-
ur. — Þessi vitleysa, að þjóðin
og löggjafarvaldið eigi ekki að
ráða stærð skólanna á hverjum
tíma og taka fleira til greina en
örlyndi og kröfur æskumanna, er
ósamboðin þeim, sem þykjast
vera færir um að knésetja þing
og stjórn í mentamálum. Hitt
verður álitamál, með hverjum
hætti vexti skólanna verði stilt í
hóf.
----o—----
Lög
um Byggingar- og landnámssjóð.
1. gr.
Af tekjum ríkissjóðs skal ár-
lega leggja 200 þús. kr. 1 sjóð,
er nefnist Byggingar og land-
námssjóður.
2. gr.
Tilgangur sjóðsins er að við-
halda býlum í landinu og fjölga
þeim með þessum hætti:
1. með því að veita lán:
a. til að endurbyggja íbúðar-
hús á sveitabýlum.
b. til að byggja upp nýbýli á
landi, sem er í einkaeign
eða í eign sveitar- og
bæjarfélaga.
c. bæjarfélögum og kauptún-
um, sem eru sérstakur
hreppur, til að koma upp
nauðsynlegum byggingum
fyrir kúabú á ræktuðu
eignarlandi bæjar- eða
hreppsfélagsins.
2. með því að verja fé sam-
kvæmt ákvörðun landsstjóm-
arinnar til að byggja upp ný-
býli á landi, sem ríkið á eða
kaupir í því skyni.
Nýbýli í lögum þessum telst
hvert það býli, sem reist er af
nýju, annaðhvort á gamalli eyði-
jörð eða landi, sem skift er úr
jörð, sem er í ábúð, hvort sem
því í upphafi fylgir nokkurt
ræktað land eða ekki.
3. gr.
Skilyrði fyrir láni úr sjóðnum
eru:
1. til endurbygginga samkv. 2.
gr. 1. a.:
a. að lántakandi sé íslenskur
ríkisborgari og fullráða.
b. að hann sanni með vottorði j
tveggja skilríkra manna, i
sem nákunnugir eru hög- '
um hans, að hann sé dug-
legur, reglusamur, spar-
samur og fyrir uppeldis-
og þroska sakir vel fallinn
til landbúskapar.
c. að hann sanni, að hann
eigi svo mikil efni, sem
nauðsynleg eru til bú-
skaparrekstrar á jörðinni,
en geti ekki af eigin ram-
leik reist þær byggingar,
er nauðsynlegar eru fyrir
ábúð á henni.
d. að ekki sé fyrirsjáanleg
hætta á, að dómi trúnaðar-
manna sjóðsins eða þeirra
manna, er stjóm sjóðsins
kveður til, að jörðin eyðist * 1 * * * * * 6 7 8
af ágangi vatna, sandfoki,
sjávarflóðum eða þess-
háttar.
e. að húsin séu gerð úr var-
anlegu efni og gerð þeirra
innan og utan sé samþykt
af stjóm sjóðsins.
f. að húsin séu vátrygð fyrir
upphæð, er nemi fullu
kostnaðarverði þeirra.
g. að hlutaðeigandi sveitar- i
stjóm, eða hreppstjóri ef !
sveitarstjóm á í hlut, mæli
með umsókninni og telji
jörðina svo vel í sveit
setta, að ráðlegt sé að end-
urreisa íbúðarhús á henni.
h. að sannað sé með vottorði
hreppstjóra, að húsakynni
séu óhæf til íbúðar vegna
hrömunar, eða með vott-
orði héraðslæknis, að heim-
ilisfólki sé þar búið heilsu-
tjón.
2. til nýbýla samkv. 2. gr. 1. b.:
a. skilyrði þau, er greind eru
undir 1. a.—g. og enn-
fremur,
b. að lántakandi eigi ekki
annarsstaðar jörð eða
býli, sem fjölskylda geti
haft lífsframfæri af.
c. að hann standi ekki í skuld
fyrir lán, er hann hefir áð-
ur fengið til húsagerðar á
annari jörð eða nýbýli.
d. að landið, þar sem húsa á,
sé lagt býlinu til æfinlegra
nota með þegar ákveðnum
landamerkjum,
e. að býlið geti, að dómi trún-
aðarmanna sjóðsins, veitt
fjölskyldu sæmileg skilyrði
til framfærslu, þegar það
er komið í fulla rækt.
3. Skilyrði fyrir láni samkv. 2.
gr. 1. c. er, að kúabúið sé
rekið af bænum eða hreppn-
um, íbúunum til afnota, en
ekki selt á leigu eða rekið
sem gróðafyrirtæki.
4. gr. ^ J
Lán til að endurreisa íbúðarhús ;
á sveitabýlum, svo og til að reisa j
! bæjarhús á nýbýlum, sem hafa '[
i ræktað land að einhverju leyti, i
i skulu, þar til annað verður á-
! kveðið með lögum, sitja fyrir lán-
um til að reisa nýbýli á óræktuðu
landi.
Lán samkv. 2. gr. 1. a. skulu á-
vaxtast og endurborgast með !
jöfnum greiðslum, þannig að ár- ;
legt gjald sé 5% af allri lánsupp- !
hæðinni í 42 ár.
!
5. gr. i
Lán til að reisa nýbýli á rækt- i
uðu landi, eða til að reisa býli, I
sem ræktað land fylgir, skulu á-
vaxtast og endurborgast með
jöfnum greiðslum, þannig að ár-
legt gjald af allri lánsupphæðinni
sé 3í/2% í 50 ár.
Lán til nýbýla, sem reist eru á
óræktuðu landi og ekkert ræktað
land fylgir, eru bæði afborgunar-
og vaxtalaus fyrstu 5 árin. Síðan
skal endurborga höfuðstólinn með
jöfnum afborgunum á 50 árum,
en enga vexti greiða.
6. gr.
Lán samkv. 4. og 5. gr. má
nema: 1) alt að verði aðfengins
byggingarefnis, þar til telst þó
ekki sandur, möl, steinn, torf,
mór, eða mosi, þótt afla verði ut-
an landareignar, 2) og tveim
þriðju hlutum af kaupi stein-
smiða og trésmiða, er nauðsyn-
lega þurfa að húsagerðinni að
vinna.
7. gr.
Lán samkv. 3. gr. 8. mega nema
alt að »/6 hlutum byggingar-
kostnaðar, þó ekki yfir 30 þús.
kr., og skulu ávaxtast og endur-
borgast með jöfnum greiðslum,
þannig að árlegt gjald af allri
lánsupphæðinni sé 5% í 42 ár.
8. gr.
Sá, er byggir nýbýli eða við