Tíminn - 21.07.1928, Page 3

Tíminn - 21.07.1928, Page 3
TIMINN 129 byggingar- og landnámssjóður fé til varanlegra húsbygginga á sveitabýlum og til að byggja upp nýbýli, nálega vaxtalaust, en lán- in afborgast á 42—50 árum. Upp- hafsmaður þessarar sjóðshug- myndar, Jónas Jónsson ráðherra, hafði, eins og ýmsir aðrir, veitt því eftirtekt, að vegna féleysis gátu bændur alment ekki bygt vandaðri og varanlegri hús á jörðum sínum en svo, að þau ent- ust aðeins um einn mannsaldur og það með stöðugu og dýru við- haldi.J. J.. benti á leiðina út úr ógöngum þessum, með frumvörp- um sínum um byggingar- og land- námssjóð. íhaldsmenn brugðust mjög illa við, töldu þessar vaxta- lausu lánveitingar ölmusugjafir til bænda og bændur þá, er þægju, ölmusulýð. Var þeim oft bent á að svo væri ekki, að vísu væri bændum hjálpað til að koma upp varanlegum byggingum með mjög hagstæðum kjörum, en það væri engu síður gert vegna afkomend- anna, en þeirra er verkið fram- kvæmdu. Og þó þeir nytu hinna góðu lánskjara eða vaxtaeftir- gjafanna, þann hluta æfinnar, sem þeir ættu ólifað þegar þeir framkvæmdu þær húsa- og jarða- bætur, sem sjóðurinn veitti lán til, þá borguðu þeir óbeinlínis styrk þann, sem þeim væri veittur, með því að afsala sjer verðhækkun jarðanna, sem beinlínis stafaði af hinum hagkvæmu lánskjörum byggingar- og landnámssjóðsins. Þessar ástæður, sem hér hafa ver- ið tilfærðar, létu Ihaldsmenn eins og vind um eyru þjóta. Lán úr sjóðnum væru ölmusugjafir og bændumir, sem lánin tækju, öhn- usulýður. Nú er komið annað hljóð í Ihaldsstrokkinn. Þeir Pétur og Jón telja það „voðalegan galla“, að í lögin um sjóðinn eru sett ákvæði, sem koma í veg fyrir það, að jarðimar lendi í braski, sem hækki þær svo í verði, að óbú- andi verði á þeim. Ekki bendir Jón beinlínis á neitt ráð til að forðast þennan voða, en Pétur er það slingari, að hann sér „eitt ráð fyrir bændur út úr þessum ógöngum“ og það sé að kjósa íhaldsmenn á þing við næstu kosningar. Þeir muni breyta 9. gr. laganna. Þetta er líklega rétt hjá Pétri, en hann hefði eins vel getað bætt því við, að þeir mundu breyta öllum lög- unum, því það er eins víst og tveir og tveir eru fjórir að þeir mundu ekki einasta breyta þess- um lögum, ef þeir kæmust í al- gerðan meirihluta, heldur afnema þau með öllu. Fjandskapur Ihalds- flokksins gegn byggingar- og landnámssjóðnum frá byrjun, réttlætir þessa staðhæfingu fylli- lega. Þráinn. Frá útHindmn. — Miklar steinolíulindir hafa fund- ist á eyjunni Sakalin við austur- Asíu. Sú eyja er áður alkunn vegna þess, að keisarastjómin rússneska geymdi þar fanga sina. Unnu þeir í kolanámum og sœttu hræðilegri með- ferð. — Sagt er að olíumagn þessara nýju linda sé eigi minna en í hinum miklu Bakulindum í Kákasus. — pjóðverjar tveir, Ristic og Zim- mermann, flugu nýlega hvíldarlaust í 65 klukkustundir og settu með því heimsmet í þolflugi. — Stórt flutningaskip fórst fyrir skömmu við Chilestrendur í Suður- Ameríku. Með því var fjöldi verka- manna og fjölskyldur þeirra. Ofviðri var á, er skipið fórst. 286 menn druknuðu en einir 4 björguðust. — Amerísk stúlka, Miss Earhart, fór nýlega í flugvél yfir Atlantshafið. þykir það tíðindum sæta, enda er hún eina konan, sem hefir leyst þá þraut af hendi. Hafði önnur amerísk stúlka reynt það skömmu áður, en fórst ásamt manni þeim, sem flug- vélinni stýrði. — Á sléttunum miklu í Norður- Ameríku verða oft ákaflega snöggar hitabreytingar. Orsökin er, að þær eru opnar fyrir loftstraumum bæði norðan úr íshafi og sunnan frá mið- jarðarlínu. Nýlega gekk „hitabylgja" yfir mið- og austurhluta Bandaríkj- anna og fórust 53 menn af völdum hennar. Giovanni Giolitti, frægur ítalskur stjórnmálamaður og fyrverandi for- sætisráðherra er nýlega látinn. Hann var liáaldraður, fæddur 1842. Fékk hann snemma orð á sig fyrir stjórn- málakænsku og mælskuhæfileika sina. Hann varð fyrst ráðherra 1890, i ráðuneyti Crispi. Sagði hann af sér í árslok 1890 og vann síðan á móti Crispistj órninni. 1892 myndaði Giolitti sjáifur stjórn. Vann hann að ýms- um sparnaðarráðstöfunum til þess að bæta fjárhag ítala, og vann mikinn sigur í kosningunum í nóv. það ár, en varð að fara frá í nóv. 1893 vegna bankahruns (Banca Romana), er hann var eitthvað bendlaður við. Ár- ið 1901 varð hann innanríkisráðherra i ráðuneyti Zanardelli’s og frá því um haustið það ár þangað til i mars 1905 forsætisráðherra. Árin 1901—14 var Giolitti talinn aðalstjórnmálaleið- togi Ítalíu. Hann var vinveittur pjóð- verjum, endurnýjaði 1912 þrívelda- samninginn og 1913 leynilegan flota- samning við miðveldin. Hann kom þó í veg fyrir, að Austurríki réðist á Serbíu 1913. Árið 1914 tók Salandra við stjórnartaumunum, en Giolitti gaf sig þó enn að stjórnmálum um hríð og vann að því, að Ítalía varðveitti hlutleysi sitt í heimsstyrjöldinni, en er stefna hans var ofurliði borin, dró hann sig í hlé, þegar Orlando lét af völdum 1919 fór hann að gefa sig að stjórnmálum á ný og myndaði fimta ráðuneyti sitt í júní 1920. Síðan Mussolini kom til valda 1922 hefir verið hljótt um nafn Giolitti. ---«--- Fréttir. Skýrsla um störf Landssímans áriö 1927 er nýkomin út. Á árinu voru lagðar 10 landssímalínur, 344% km. að lengd. Lengst þeirra er Barða- strandarlínan — frá Króksfjarðamesi til Patreksfjarðar — rúml. 140 km. Sumstaðar voru staurar fyrir en að- eins lögð ný leiðsla. — Tekjur sím- ans voru kr. 1506022,25 en gjöldin kr. 1033385,32. Gjaldskyld símskeyti voru 246282 og símtöl (viðtalsbil) 465090. Morðtilraun sannaðist fyrir fám dögum hér í bænum. Maður nokkur ætlaði að fyrirfara barni sínu tæp- lega ársgömlu með því að gefa því inn eitur. Sem betur fór mistókst að fá barnið til að renna eitrinu nið- ur og varð því ekki meint af. Ódæðis- maðurinn er naumast talinn með réttu ráði. Aðvörun svohljóðandi tilkynti at- \ innumálaráðuneytið 14. þessa mán- aðar: „Út af því að ýmsar sendingar flytjast enn hingað í hálmumbúðum, þrátt fyrir skýlaust bann gegn inn- flutningi á hálmi í lögum nr. 11, 23. apríl 1928, eru menn hér með aðvar- aðir um það, að frá 1. ágúst næst- komandi verður sektarákvæðum téðra laga stranglega beitt, jafnframt því sem bannvaran verður gerð upptæk samkvæmt 6. grein laganna". Vatnsaíl á íslandi nemur — eftir því sem skýrt er frá í nýútkomnu hefti Verkfræðingatímaritsins — um 4 milj. hestöflum alls. þar af eru 2% milj. hestöfl í stórum vatnsföll- um og Vel fallin til stóriðju. Um 1 milj. hestafia er í litlum vatnsföllum, smáám og lækjum, sem auðveit er að virkja til heimilisnotkunar. — Elsta rafstöðin, þar sem vatnsafl er notað hér á landi, var reist af Jó- liannesi Reykdal i Hafnarfirði árið 1902. Var sú stöð notuð til að lýsa kaupstaðinn til 1926. Nú eru rafstöðv- ar — með vatnsorku — í 9 kauptún- um og rúml. 50 sveitabæjum, og vatnsaflið, sem þær nota, um 3600 hestöfl. Mikið er eftir! Skýrsla um Kennaraskólann hefir Timanum borist. 59 nemendur nutu kenslu í skólanum síðastl. vetur og 20 luku kennaraprófi. Skólinn er nú 20 ára. þann tíma allan hefir sr. Magnús Helgason haft á hendi stjórn hans, en mannaskifti hafa orðið í öllum föstum kennarastöðum öðrum en hans, og sumum oftar en einu sinni. Tveir af fyrri kennurum skól- ans, dr. Björn Bjamarson og dr. H'elgi Jónsson eru látnir. Hinir hafa horfið að öðrum störfum. Ásgeir Asgeirsson fræðslumálastjóri, Jónas Jónsson í-áðherra, dr. Ólafur Daníels- son og Sigurður Guðmundsson skóla meistari liafa allir verið fastir kenn- arar við skólann áður fyr. — Á fyr- irkomulagi skólans var gerð nokkur breyting árið 1924. Námstíminn var lengdur um einn mánuð árlega og bætt við kenslu í ensku, efnafræði og jarðfræði. Alls hafa 353 nemendur lokið kennaraprófi við skólann þau 20 ár, sem liðin eru frá stofnun hans. Mánaðarritið „Straumar", 6.—7. tbl., L J A I R „Góðir einjámungar með hörðu seigu stáli í miðju blaði, bestu ljáir". Halldór Vilhjálms- son skólastjóri. Handbók fyrir bændur. Rvík 1926, bls. 144. Fimm síðustu árin hafa verið gerðar ítarlegar til- raunir til þess að útvega bændum bitgóða ljái. Hafa verið reyndar ýmsar gerðir af einjárnungum. Þeir ljáir er best hafa reynst eru tví- mælalaust hinir svokölluðu Eylandsljáir. Þeir eru handsmiðaðir úr völdu og dýru efni ogtaka öllum öðrum ljáum fram að bitgæðum og bitþoli. Gleymið því ekki, að það er mikill munur á þessum ljáum og vélsmíðuðum ljáum, þótt útlitið sé svipað. Á Eylandsljáunum stendur: R. Brusletto & Sönner og nafnið Bi’usletto er mótað á þjóið á ljánum. SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉLAGA. er nýkomið út. í 6. tbl. er prófræðu Jakobs Jónssonar cand. theol., sem nú • er meðal umsækjenda um Húsavíkur- ! prestakall. Vakti ræða þessi sérstaka I athygli vegna þess, að biskupinn dr. ! Jón Helgason, sem er prófdómandi í við guðfræðipróf háskólans, fór þess j á leit, að kafli úr henni yrði feldur niður og eigi fluttur í dómkirkjunni, svo sem venja er til. En Jakob flutti ræðukafla þennan eigi að síður. í tilefni þessa atviks ritar Luðvig Guð- mundsson skólastjóri í sama tbl. Stiauma grein, er hann nefnir „Kirk- J juvaldið og skoðanafrelsi”. Áfellir iiann þar mjög framkomu biskups. - Verður og naunmst séð, að í ræðu þessari sé haldið fram öðrum kenn- ingum en þeim, sem daglega eru við- urkendar manna á meðal. En um þaö geta þeir dæmt, sem Strauma iesa. — í 7. tbl. er m. a. mjög góð grein, „Trú og vani", eftir Lúðvig Guðmundsson, ennfremur „Hamar og sigð eftir sr. Sigurð Einarsson i i’iatey, „Vor" eltir sr. Pál þorleiís- son og „uómai'" eítir sr. Björn Magn- usson. Búnaðarsamband Austurlands hélt aðalfund sinn á Egilsstöðum 22. og 23. júní. þar var minst 25 ára af- mælis sambandsins. Eru nú í því 30 búnaðarfélög, og starfa flest með á- huga og dugnaði. Pálmi Hannesson fJutti erindi um laxaklak og var sprenging laxastiga í Lagarfoss og klak í fljótinu mikið rætt. Var stjóm- inni falið að rannsaka það mál enn ítarlegar og leggja það fyrir næsta fund, og var þá búist við að byrja mætti að klekja að vori eða sumri 1929. Páll Zóphoníasson hélt fyrirlest- ur um nautgripi og var ákveðið að reyna að koma sem víðast upp naut- griparæktarfélögum, og ákvað fund- urinn að styrkja þau til nautakaupa Úr stjórninni gekk Hallgrímur þórar- insson og var endurkosinn. Benedikt Blöndal var' kosinn fulltrúi á Bún- aðarþing til næstu 4 ára. — Slæmt útlit með grassprettu á Austur- og Norðurlandi. Sifeldir kuldar og þurk- ar. Óhreysti víða í sauðfé á Austur- landi siðari hluta vetrar og í vor. Athygli skal vakin á auglýsingunni hér í blaðinu, viðvíkjandi lýðháskó! anum í Voss. Skólinn er orðinn mjög þektur og það að góðu einu, enda hefir hann oftast verið fjölsóttur. Skólinn hefir ágætum kennurum á að skipa t. d. þeim feðgum Öystein Eske- land skólastjóra og Lars Eskeland fyrverandi skólastjóra o. fl. þeir feðg- ar eru mjög hjálpsamir og góðir nem- endum sínum. þeir eru miklir fs- landsvinir, svo þeim er mjög að skapi að fá íslenska nemendur í skólann á hverjum vetri. Heimavist er í skól- anum. Síðastliðinn vetur kostaði fæði, húsnæði, ljós og hiti 60 norskar krónur um mánuðinn. Sr. Hálfdán Helgason hefir verið settur til að þjóna þingvallapresta- kalli. Síðasta Alþingi samþykti að ieggja niður prestse.tur á þingvöllum vegna þeirra breytinga, sem friðun staðarins hefir í för með sér. Lyfjabúð er nýstofnuð á Siglufirði. Eigandi hennar er Aage Schiöth frá Akureyri. Bær brann að Hurðarbaki í Ámes- sýslu aðfaranótt 6. m. Voru húsin úr timbri. Nokkru var bjargað af innan- stokksmunum. Sennilega hefir kvikn- að út frá ofnpípu. Bærinn var vá- trygður að einhverju leyti. — Bónd- inn að Hurðarbaki heitir Guðmund- ur Gíslason, ungur maður, og á átta böm í ómegð. Frá Borgarnesi til Akureyrar var nýlega farið í bíl á 22 klukkustund- um. Vegalendin er rúml. 320 km. Bifreiðarstjórinn var þorkell Teitsson í Borgarnesi. Úr Minningarsjóði Eggerts Ólafs- sonar verður veitt fé á þessu ári til útgáfu vísindalegra ritgerða um ís- lenska náttúrufræði. Eiga þær að birtast á víðlesnu erlendu tungumáli. þeir, sem ætla sér að sækja um út- gáfustyrk úr sjóðnum eiga að senda umsóknir til Guðm. Bárðarsonar kennara Rvík fyrir 1. ágúst næst- komanda. Foreldrar mega aldrei herða á eða ofbjóða eðlilegri þróun barnanna. Kaupið Mæðrabókina eftir prófessor Monrad. Kostar kr. 4,75. (Augl.). Nú vakna menn við vondan draum, alt er í óefni með mjólkur- söluna og afurðir hennar. Nýjar umbætur og nýtt starf þarf að hefja. Umbrot í þessa átt hafa átt sér stað hin síðari árin. Til- raunir með ostagerð, einkum gráðaosta hafa verið gerðar all- víða. Möguleikamir eru sannaðir, en mistökin hafa verið of mörg til þess að þetta sé komið á fast- an fót. Mysuostagerð við hvera- hita er nýung, sem gefur góðar vonir. Jón Guðmundsson er þar brautryðjandi. Niðursuðuverksmiðjan á Beig- alda og í Borgamesi hefir getað framleitt ágæta vöru, en mistök- in hafa einnig gert þar stórt tjón. Síðustu tilþrifin í mjólkurmál- inu er stofnun mjólkursamlagsins á Akureyri. Kaupfélag Eyfirðinga hefir haft þar forgöngu. Máhð er vel undirbúið. Fyrst sendur maður — Jónas Kristjánsson — utan, til að læra mjólkuriðnað og kynna sér alt er að því lítur. Hann dvaldi 3 ár erlendis. Þegar heim kom var farið að byggja mjólkurbúið og síðastlið- inn vetur tekur það til starfa. Að mjólkurbúi Akureyrar er flutt mjólk úr öllum Eyjafirði, Kræk- lingahlíð, Hörgárdal, Amames- hreppi og Svalbarðsströnd. Dag- legt mjólkurmagn hefir verið 2500 til 3000 1. Nokkuð af mjólk- inni er selt í Akureyrarbæ, úr hinu er gert smjör, ostur (einnig mysuostur) og skyr. Allur útbúnaður hússins er eft- ir nýjustu tísku og til alls vel vandað. Mjólkurmálum Eyfirð- inga er því komið í gott horf. Lengi er búið að tala um stofn- un mjólkurbús í Flóanum í sam- við hinar miklu áveitur, sem byrj- að var að starfa að 1912, enda er hér brýnni nauðsyn en víðast hvar annarsstaðar, vegna hinna þungu byrða, er áveiturnar leggja mönnum á herðar. Á Alþingi 1926 voru Flóamönnum veitt sérstök hlunnindi til framkvæmda mjólk- urbúsmálinu o. fl. Síðan hefir ver- ið unnið að undirbúningi málsins og nú dregur að framkvæmdum. Á síðasta Alþingi var stjóm- inni veitt sérstök heimild til að lána fé og styrkja til stofnunar smjör- og ostabúa. Þessar heim- ildir hljóða svo: „Heimilt er stjóminni að lána úr Viðlagasjóði, ef fé er fyrir hendi í honum: 2) Til þess að koma á stofn osta- og smjörbúum alt að helm- ingi stofnkostnaðar, gegn þeim tryggingum, er stjómin metur gildar. Búin séu rekin á samvinnu- grundvelli og reist á þeim stað, sem af Búnaðarfélagi Islands telst hentugastur fyrir hlutaðeig- andi hérað. Vextir séu 6%, lánin afborgunarlaus fyrsta árið, en greiðast svo með jafnum afborg- unum á 25 árum“. „Stjórninni er heimilt: III) Að veita styrk í eitt skifti fyrir öll til þess að koma á stofn osta- og smjörbúum (sbr. 22. gr. 2), sem nemi alt að XA stofnkostn- aðar. Styrkurinn sé því aðeins greiddur, að fyrirtækið sé fullbúið til starfrækslu“. Með þessum ályktunum hefir Alþingi viðurkent nauðsyn þessa máls, enda hafa menn nú víða hug á því að hefjast handa í þess- uhi efnum. 1 vetur var skipuð sérstök nefnd, er nefnist Flóa- og Skeiða- nefnd, og átti hún meðal annars að athuga um og koma með tii- lögur um mjólkurbúsmál Sunn- lendinga. Sæti í þessari nefnd eiga þeir verkfræðingarnir Guðmund- ur Hlíðdal og Steinn Steinson og höfundur þessarar greinar. Um mjólkurbúsmálið hefir nefndin nú gefið álit. Út í það verður eigi farið, en tillögur nefndarinnar eru þessar: 1. Að kostur verði gefixm á, að þegar á þessu sumri verði farið að undirbúa og byrja byggingu smjör- og ostabús í nágrenni Ölf- usár og annars á Reykjum í ölf- usi. Ríkissjóður veitir lán og styrk til þessara búa eftir þeim lögum og reglum, sem þar til standa. 2. Stærð nefndra búa verður ákveðin af hlutaðeigendum í sam- ráði við ríkisstjómina. Bæði búin verði gerð þannig, að þau, auk venjulegrar mjólkurvinslu til smjör- og ostagerðar, geti tekið í-jóma til smjörvinslu úr fjarliggj- andi sveitum, er þess kynnu að óska, og á Reykjabúinu verði sérstakur útbúnaður til mysuosta- gerðar með hverahita. 3. Mjólkurbúin séu rekin sem sjálfstæð samvinnufélög. 4. Að forstöðumenn búanna verði ráðnir, svo fljótt sem unt er, og að þeir hafi umsjón með bygg- ingu og útbúnaði búanna. 5. Að ríkissjóður veiti hlutfalls- legan styrk, eins og til stofnkostn- aðar mjólkurbúa, til endurbóta rjómabúa, sem ætlast er til að starfi alt árið. 6. Að leitast verði við að koma á samvinnu og föstum reglum um sölu mjólkurafurða á Suðurlandi og helst um lands alt. 7. Að opinberu mati verði kom- ið á smjör. Þann 10. þ. m. var haldinn fundur um málið við ölfusárbrú. Þar var mættur atvinnumálaráð- herra, nefndarmenn og fulltrúar fyrir alla hreppa í Flóanum, Skeiðum, ölfusi og tveir menn úr Rangárvallasýslu. Á fundinum voru tillögur nefndarmanna rædd- ar og þar samdist svo um milli Flóamanna og atvinnumálaráð- herra, að þegar yrði hafinn undir- búningur og framkvæmd með byggingu mjólkurbús við Ölfus- árbrú. Mjólkurbúsfélagið skyldi vera sjálfstætt samvinnufélag, sem fengi lán og styrk með lík- um afborgunar- og vaxtakjörum og önnur lán verða, sem veitt eru til áveitunnar. Fundur með ölfusingum út af Reykjabúinu er ráðgerður á næst- unni. Nú kemur því loks til fram- kvæmda með þetta margumtalaða mjólkurbú í Flóanum. Með þeirri framkvæmd er stigið nýtt spor til að gera áveituna arðsama. En því má eigi gleyma, að við bygg- ingu bús þessa og starfrækslu þarf mikla hagsýni, samhug og félagsþroska. Vér væntum að reynslan sýni að svo verði og þá mun öllu vel farn- ast.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.