Tíminn - 28.07.1928, Qupperneq 3
TlMINN
183
fjár. Átti þar að vera hægt að frysta
mestallan þann fisk, sem veiðist á
Nýfundnalandsmiðunum, en flytja
hann síðan á markað í Frakklandi.
Fyrirtæki þetta hefir borið lélegan
árangur, og olli það tvent að miklu
\ar til þess kostað og markaðurinn
í Frakklandi reyndist þröngur, Voru
um tíma horfur á, að hætt yrði að
nota byggingar þessar í hinum upp-
iiaflega tilgangi og þær yrðu teknar
til olíugeymslu. En nú hefir félag
skipaeigenda tekið þær í sínar hend-
ur og býst við að geta rekið fyrir-
tækið áfram, svo að hagnaður verði
að. Jafnframt ætlar það að reka verk-
smiðju, sem vinnur fóðurmjöl úr
fiskúrgangi.
— Samvinnufélögin í Búlgaríu biðu
feiknatjón af jarðskjálftanum þar í
vor. 237 félög mistu gersamlega hús-
eignir sínar, áhöld og vörubirgðir. Er
sá skaði metinn 6—7 milj. kr. Bygg-
ingar samvinnubankans búlgarska
lirundu til grunna og auk þess vöru-
geymsluhús samvinnuheildsölunnar.
Jafnframt er þess getið, að 50 þús.
samvinnumenn og fjölskyldur þeirra,
séu húsnæðislausir og hafi orðið fyrir ]
eignatjóni, sem nemur 20 milj. kr. I
— Alheimssamband samvinnumanna
hefir skorað á samvinnumenn hvar-
vetna um heim að veita hinum bág- i
stöddu skoðanabræðrum sínum styrk
nokkurn.
— Kunnasti maður á Balkanskag- |
anum um þessar mundir er eflaust
giiski stjórnmálamaðurinn Venizolos. í
Hann er nú forsætisráðherra Grikkja
og hefir verið það fjórum sinnum
áður. Mjög hefir skift í tvö horn
um gengi iians i iandinu, og um eitt
skeið var hann gerður útlægur. Fyrir
iians atbeina hefir kosningalögunum
grisku verið breytt, á þann hátt aö
tekin eru upp lítil kjördæm, þar sem
einlaidur meirihluti ræður, i stað
lilutlallskosninga, sem áður voru. i
þykja iiiutfallskosningarnar hafa orð-
ið til þess að ijöiga stjórnmálaflokk-
um þingsins úr hófi fram og koma
stjórnaríári öliu á ringulreið. Stjórn
Venizelos hefir látið iausan Pangalos
liei’siiiöiðingja, sem um tima var ein- j
vaidur í landinu, en hefir setið í fang- !
eisi tvö síðustu árin.
— Fjórir franskir ferðamenn fór- ,
ust nýlega á fjallgöngu í Ölpunum. I
þrír þeirra í'éllu niður í 600 metra
djúpa gjá. Sá fjórði stöðvaðist á gjár-
barminum ,en beið þó bana af fall-
inu. Slys þetta þykir eitt hið hroða-
legasta, sem orðið hefir i Ölpunum
síðustu 25 árin.
— Enska stjórnin fyrir nokkru síð-
an 70 þús. kr. veiðlaunum fyrir að
búa til sjálflilaðnar hermannabyssur.
Hefir nú tekist að gera slík vopn, og
ætla menn, að þau muni hafa mikla
þýðingu í hernaði. Er talið að hinar
nýju byssur séu alveg eins einfaldar
að gerð og auðveldar meðferðar og
þær, sem venjulega eru notaðar, og
að hermennimir muni ekki eiga að
neinu leyti erfiðara með að læra
notkun þeirra. En munurinn er sá,
að byssan hleður sig sjálf, og her-
maðurinn þarf hvorki að beita hönd-
unum til að taka gamla skothylkið
burt eða setja nýtt í staðinn. Telja
sérfræðingar að með hinni nýju að-
ferð sé hægt að skjóta alt að 35 skot-
um á mínútu, en það er helmingi
meira en hæst var hægt að komast
áður. Hermaðurinn getur nú skotið í
sifellu með því einu að hreyfa „gikk-
inn“ á byssunni. Á hann þá jafn-
framt hægra með að miða og má þvi
búast við meiri árangri af iðjunni!
— Dagarnir 8.—14. júlí s. I. eru
sólríkasta vikan, sem runnið hefir
upp yfir England síðan í júní 1925.
í London voru taldar rúml. 90 sól-
skinsstundir eða 13 stundir til jafn- i
aðar á dag. Eru Lundúnabúar óvan- ‘
ir slíkri birtu. — Jafnframt var hit- j
inn meiri að meðaltali, en verið hefir i
á jafnlöngum tíma síðan 1921.
—. Dómstólarnir í Ungverjalandi j
hafa nú til meðferðar mál, sem m. a.
er merkilegt að því leyti, að í því eru j
um 2000 verjendur. Sækjandi málsins :
er maður, sem Harder heitir og mun
vera af þýskum ættum, en átti fyrr-
um heima í borginni Omsk i Síberíu
og stundaði þar verslun. Á stríðsár-
unum sendi rússneska stjórnin fjölda
si herföngum, liðsforingingjum frá
þýskalandi, Austurríki, Ungverja-
landi og Búlgaríu, austur til Síberíu
og dvöldust þeir þar árum saman.
Harder var mjög vinveittur þessum
mönnum og hjálpaði þeim á margan
hátt, með því að greiða fyrir bréfum
þeirra, útvega þeim atvinnu og jafn-
vel lána þeim fé. í byrjun ársins 1918
hjálpaði hann að lolcum fjölda þess-
ara fanga til að flýja burt úr Síberíu.
l.ánaði hann þeim til ferðarinnar all
p.r eigur sínar, en fékk í staðinn ávís-
anir á austurríska og ungverska
banka. En skömmu síðar varð hann
sjálfur að flýja land, en skildi þá eft-
ir ávísanirnar, af ótta við að hann
yrði sviftur þeim á leiðinni. Leið
svo fram til ársins 1926, er þær bár-
ust honum aftur í hendur. Telur
hann sig nú fúsan til að gefa eftir
helminginn af því fé, sem hann lán-
aði upphaflega, en lánþegarnir vilja
fá meiri afslátt. Munu þeir bera fyrir
sig gengisbreytingar, sem orðið hafa
síðan 1918. En ekki sýnast þeir minn-
ugir á velgerðir.
-----o-----
Fréttif.
Jónas Jónsson dómsmálaráðherxa,
frú hans og dóttir lögðu af stað héð-
an í morgun austur í Skaftafellssýslu.
Dvelja þau þar eystra um tíma.
Halldór Júlíusson sýslumaður er
nýkominn hingað til bæjarins. —
Hnífsdalsmálinu er enn eigi lokið.
Gögn þau, viðvikjandi fölsuninni,
sem send voru til Scotland Yard i
seinna sinn eru ókomin. En þeirra
er von innan skamms.
Endurskoðun. Bjöm Steffensen end-
urskoðandi og Helgi Briem hagfræð-
ingur leggja bráðiega af stað héðan
til endurskoðunar hjá sýslumönnum,
samkvæmt ráðstöfun dómsmálaráðu-
neytisins.
Kússar hafa nú greitt að íuilu síld
þá, er þeir keyptu héðan í fyi’ra.
Sigurour Skagfeidt söngvari er ný-
kominn hingað tii iands og skemti
bæjarbúum i gær i Gamla Bió. Sig-
uiður er með fremstu söngmönnum !
islenskum. 3 siöustu árin hefir hann !
dvalið erlendis, lengst i þýskalandi.
Sira Röguvaldur Pétursson i VVinni
peg heíir verið gerður að heiðurs-
doktor í guðíræði við háskólann í
Cliicago.
IVieðaf farþega á norska l'erða-
mannaskipinu „Mira" var Sigurd
Beil, ráðunautur Búnaðarfélags Roga-
lands. Meðan skipið iá hór notaði
hann trniann tii að skoða ýmislegt
viðvikjandi isi. landbúnaði og fór
Metúsalem Stefánsson búnaðarmála-
stjóri með lionum austur að Sáms-
stöðum í Fljótslilíð og sýndi honum
íræræktarstöð Búnaðarfél. íslands
þar. þótti honuin allur gróður þar
fjölskrúðugur og jft'óttmeiri en hann
ætti að venjast í Noregi. Sigurd Bell
skoðaði einnig Gróðrarstöðina x
iieykjavik og var hann undi’andi yfir
live vel ait var sprottið. Kvaðst hann
iivergi í Noregi hafa séð jafnfalleg-
ai gulrófur og kartöilur. Og byggið
kvað liann einnig þroskameira hér
en þar.
Sigliugalögin. Aiþingi siðasta skor-
aði á landsstjórnina að láta endur-
skoða siglingalögin og leggja fyrir
næsta þing breyting á þeim lögum,
sem gengi í svipaða átt og þau sjó-
mannaiög sem nú gilda annarsstaðar
á Norðui-löndum. Hefir stjórnin falið
Kristjáni Bergssyni, foi’manni Fiski-
félagsins, og Sigurjóni Óiafssyni for-
manni Sjómannafélagsins að undir-
búa þetta. Sömu mönnum hefir ver-
ið falið aö athuga veðurstofuna sam-
kvæmt áskorun Alþingis.
Sótthreinsun fjárhúsa. Eins og
kunnugt er gekk í Húnavatnssýslu á
siðastliðnum vetri smitandi lungna-
bólga, samkvæmt því sem norðlenski
dýralæknirinn áleit, en hann var til
þess sendur þá af landsstjórnmni að
reyna að stemma stigu fyrir veikinnx
og lækna. Nú eru _ Húnvetningar
hræddir um að veikin muni taka sig
upp aftur i haust, þvi að talið er að
fjeð geti smitast af húsunum. Á
kaupfélagsfundi á Sveinsstöðum 1
vor, var þvi beint til landsstjórnar-
innar að hún sendi dýralækni á ný,
til þess að i'ramkvæma sótthreinsun
ijáiiiúsanna. Hefir stjórnin nú ieitað
áiits dýraiækna, sem áiita sótthreins-
un æskilega, en hinsvegar svo ein-
faida að óþarfi sé að dýralæknir sé
á staðnum. Hefir nú verið lagt fyrir
noiðienska dýralækninn að semja
nákværnar reglur um sótthreinsunina,
og verða þær sendar i sýsluna og
sömuleiðis nægilega mikið af lyfjum
til sóttlneinsunarinnar.
Mjólkurbú á Rcykjum í Ölfusi.
Fundur var haldinn á Ki’öggólfsstöð-
um i Ölíusi 22. þ. m., til þess að ræðu
um stoínun mjólkurbús á Reykjum.
Mætti þar nefnd sú, sem skipuð var
af stjórninni til þess að gera tillögur
i osta- og smjörbúamálinu og um
ijörutiu bændui’. Á fundinum var
samþykt að stofna mjólkurbú á
Reykjum. Til þess að hafa forgöngu
á liendi um stofnun búsins voru þeir
lcosnir i stjórn Kristinn Gunnlaugsson
bóndi á þórustöðum, Jóhann Sigurðs-
son bóndi Núpi og þorvaldur Óiafs-
son bóndi i Ai’narbæli.
Eldur kom upp i Hótel Goðafoss
á Akureyri 23. þ. m. Hefir senni-
iega kviknað út frá reykháí. Tókst
að slökkva eldinn, áður en alt húsið
brann, en annars er það stórskemt.
Siidarafii mikill er fyrir Norður-
iandi.
A Suöuriágiendiuu er sláttur nú
viðast hvar byi’jaður í'yrir viku síð-
an, þótt spretta só yfirleitt mjög lé-
itg. Tún eru sumstaðar varla slæg,
í.ema á stöku blettum. Engjar eru
líka mjög lélegar, nema þar sem
áveituvatn náðist. Á Skeiðunum náð-
ist víða eklti i nóg áveituvatn, og er
rnikið tjón að því.
Egill Jónsson frá Egilsstöðum er
skipaður læknir i Seyðisfjarðarhér-
aði.
Dánardægur. Valtýr Guðmundsson
prófesspr andaðist i Khöfn 22. þ. m.
eftir langvinn veikindi. Hann var
kunnur maður og tók mikinn þátt i
íslenskum stjórnmálum um skeið.
Tímaritið „Eimreiðin“ stofnaði hann
og gaf út lengi.
Dr. Siglús Blöndal bókavörður hefir
beðið Tímann að geta þess, að hann
hafi ekki sótt um prófessorsembættið
bókagjöf frá hinum ágæta ame-
ríska íslandsvin próf. Williard
Fiske, þess hins sama, sem stofn-
aði íslenska bókasafnið mikla við
Cornell háskólann í Ameríku. Fyr-
ii hans atbeina var komið skipu-
lagi á safnið og ákveðið að koma
upp lestrarstofu fyrir nemendur
inni í skólahúsinu. En hún var
síðar lögð niður til þess að hægt
væri að bæta nemendum í skól-
ann. Bókasafnið var nefnt íþaka
til minningar um heimili próf.
Fiske vestra.
Gjafir hinna erlendu ágætis-
manna eru skólanum nú til engra
nota. Rúmleysi veldur. Eftir hús-
inu endilöngu eru raðir af skáp-
um, sem ná gólfa í milli, fullir af
bókum, sem aldrei eru notaðar.
Mikið af bókum þessum er úrelt
og væri sjálfsagt eins vel geymt
á öðrum stað, t. d. í Landsbóka-
safninu. í einu horni hússins er
lítið herbergi ætlað sem lesstofa,
en fá dæmi munu til þess, að það
hafi verið notað í þeim tilgangi.
Núverandi rektor skólans, Þorleif-
ur H. Bjarnason, sem lengi hefir
verið í stjórn íþöku hefir tjáð
blaðinu, að hann mundi fyrir
löngu síðan hafa reynt að koma
upp lesstofu við safnið, ef nokk-
urt rúm hefði verið til þess í skól-
anum. En mentamálastjómin
sýndi samskonar vanrækslu gagn-
\art safninu og öðru, sem skólan-
um kom við. Á fjárlögum voru
veittar til þess 200 kr. árlega og
við það látið sitja af hálfu hins
ppinbera. Nemendur hafa lagt á
sig gjald, 3 kr. hver á ári, til
bókakaupa. Mun Þorl. H. Bjama-
son hafa lagt sig fram til að út-
vega safninu bækur með vægu
raerði og haldið sparlega á fé þess,
því að það á nú um 1800 kr. í
sjóði.
Með því að koma einhverju af
bókunum til geymslu annarsstað-
ar mætti líklega koma upp sæmi-
legri lesstofu, og væri þá náð til-
gangi þess ágæta útlendings, sem
bókhlöðuna gaf. Bókasafnið á að
sjálfsögðu að eiga drjúgan þátt í
að auka menningu nemenda. En |
nú er það undantekning, ef nokk-
ur hefir þess not. Óhætt mun að
fullyrða, að í mentaskólanum
hafa verið nemendur, sem naum-
ast vissu að það var til. Sá, sem
þetta ritar dvaldi einn vetur í
skólanum. Þann tíma kom hann
einu sinni í safnið til að fá lánaða
bók og aðeins einu sinni aftur —
til að skila bókinni. Ætla má að
fleiri hafi haft svipuð kynni af
þessari ágætu eign skólans.
Þess var áður getið, að austan- i
vert við skólahúsið er bakhýsi
| lítið og lágt. Yfirkennari lærða
; skólans hafði eitt sinn umráð
! yfir þessu húsi og notaði það
: fyrir fjós og hlöðu. Var það til
■ þeirrar notkunar vel fallið. En á
| siðustu árum, er nemendafj öld-
i inn tók að færast að hámarki, var
í húsið þiljað í sundur og gerðar
: i því þrjár kenslustofur. Mun fá-
! títt, að íslensk fjós hefjist svo
| til vegs og virðingar. En með því
| að höfundur hússins hefir eigi
1 gert sér grein fyrir hugkvæmni
! mentamálastjórnar íhaldsmanna,
| reyndist það miður vel fallið til
! síns nýja hlutverks, og afleiðing-
I in varð sú, að ein kenslustofan
! er gluggalaus. Þetta mun vera
| einsdæmi í mentastofnunum
i hvítra manna. En fyrverandi yf-
irstjórn mentamálanna íslensku
! hefir komið því til leiðar, að ekki
; þarf lengur að hlæja að Bakka-
; bræðrum.
Þak skólahússins og veggir hef-
| ir eigi verið málað síðustu 8 árin.
En hæfilegt þykir annarsstaðar
að mála hús utan á 4 ára fresti.
Er fróðlegt að bera saman inm’a
borð þaksins, súðina og aflviðina,
sem enn eru ófúnir eftir 82 ár og
járnið utan á því, sem er að því
komið að ryðga í sundur fyrir
vanhirðu á undanförnum árum.
Sá samanburður ber ekki vott um,
að umhyggja stjórnarvaldanna á
síðasta áratug fyrir mentamönn-
um landsins hafi verið meiri en á
fyrra hluta 19. aldar. Hitt er
sanni næst, að hið traustbygða
skólahús hefir verið vanhirt
herfilega á síðari tímum.
Ekki er víst, að fé verði fyrir
hendi til að mála húsið utan á
þessu sumri. En ákveðið er að
gera nú þegar við neðri hæð
þess að innan. Gólf öll verða
dúklögð, svo að hægra sé að
halda þeim hreinum. Loft og
þiljur verða fóðruð með striga og
máluð. Salernum verður fjölgað
um helming. Loks verður með
öllu komið í veg fyrir þann óvana
að geyma blaut föt í kenslustof-
unum. I þeim tilgangi verður ein
kenslustofa á neðri hæðinni tekin
til fatageymslu. Verður hún þilj-
uð sundur í 6 klefa, einn handa
hverjum bekk. Herbergi á efsta
lofti, sem nú er notað fyrir nátt-
úrugripasafn skólans verður
stækkað allmikið, og getur þá lík-
lega farið þar fram kensla í nátt-
úrufræði.
Eitt af fyrstu verkum núver-
andi stjórnar var að láta koma
fyrir loftræstingu í skólanum. Sá
útbúnaður, sem til þess þurfti, er
mjög einfaldur og ódýr. Var því
engu öðru en hirðuleysi eða van-
þekkingu um að kenna, að hún
var eigi fyr komin. Loftið í skóla-
stofunum er nú endurnýjað á
þann hátt, að hreinu lofti er þrýst
inn 1 þær með dælu sem komið er
fyrir uppi á skammbitalofti húss-
ins. Óhreina loftinu er veitt úr
kenslustofunifm ýmist fram á
ganga og þaðan út úr húsinu eða
út í gegnum reykháfana gömlu,
sem nauðsynlegir voru meðan
húsið var hitað með kolaofnum.
Hreina loftið streymir inn um
lítinn kvist á austurhlið hússins.
En áður en það fer inn í dæluna
er það leitt gegn um loftsíu, sem
hreinsar úr því ryk. Ennfremur
er sérstakur útbúnaður til að
hita það á leiðinni, svo að ekki
verði of kalt í kenslustofunum.
Dælan getur þrýst 3200 rúm-
metrum af lofti inn í húsið á
klukkustund og nægir það til að
endurnýja loftið í kenslustofun-
um þrisvar sinnum.
Um það þarf ekki að deila, að
mentaskólinn hefir verið vanrækt-
ur herfilega á seinni árum. Jafn-
framt því, sem leyfð hefir verið
ótakmöi’kuð innganga nemenda í
skólann, hefir ríkt hið megnasta
og vítaverðasta afskiftaleysi um
líðan þeirra í honum. Hver ein-
asti kimi, jafnvel fjósið og hey-
hlaðan fyrverandi, er tekið til
kenslu. Nemendur ei*u sviftirles-
stofunni og um leið afnotum bóka-
safnsins, aðeins til þess að hægt
sé að láta skólann vaxa. Ekkert
hefir verið gert til að hafa holl á-
lirif á smekk nemenda eða hvetja
þá til snyrtilegrar umgengni.
Sjálfir hafa nemendur efri bekkj-
anna aurað saman fyrir myndir
til að prýða kenslustofumar. Nú-
verandi stjórn hefir viðurkent
þessa viðleitni nemendanna með
því að koma nokkrum af mál-
verkum ríkisins fyrir í skólanum.
Enginn veit, hverjar afleiðing-
ar hafa orðið af hirðuleysinu um
skólann. En geta má nærri að lít-
í norrænum íræðum við háskólann
í Kliöfn. í vor var það fullyrt hér í
Rvík, að dr. S.Bl. væri meðal um-
sækjenda, en sú fregn mun, eftir þvi
sem hann sjálfur segir, vera sprottin
aí misskilningi á tilgátu danskra
biaða um það, að hann myndi sækja
um stöðuna. Tíminn varð til þess
ásamt íleiri islenskum blöðum að
fiytja þessa frétt, og leiðréttist hún
hér með.
Landar vorir í Vesturheimi eru því
miður komnir i hár saman út af
heimförinni 1930. Heimferðamefnd-
inui, sem kosin var til að annast
undirbúning fararinnar, hafði tekist
að útvega fjárframlög tii starfsemi
sinnar frá stjórnarvöldum í Canada.
En ýmsir málsmetandi menn meðai
íslendinga risu þá upp til andinæla
og töidu ósvinnu að þiggja styrk
þennan.Hafa orðið um málið harðar
deilur i blöðum og á mannfundum.
Andstæðingar heimferðarnefndarinn-
ar hafa kosið nýja nefnd til að ann-
ast framkvæmdir og hefir hún sam-
iö við guíuskipafélag nokkurt um
fólksflutninga hingað 1930. þegar sið-
ast bárust fregnir að v.estan var enn
ekkei’t samkomulag fengið. Af mönn-
um, sem um málið hafa ritað má
r.efna sr. Ragnar E. Kvaran og Jón
Biidiell, sem halda fram málstað
lxeimíerðarnefndarinnar og Sig. Júl.
Jóhannesson og Hjálmar Bergmann
lögfræðing sem eru meðal andstæð-
inga hennar.
Vaka, 2. hefti II. árg., er fyrir
skömmu komin út. það merkasta í
þvi hefti eru Bókmentaþættir próf.
Sigui’ðar Nordal. Svarar S. N. þar m.
a. greininni „Flóttinn", sem síra
llagnar E. Kvaran reit í Iðunni i
vetur.
Bjarni Runólfsson frá Hólmi hefir
ferðast um Norðurland í vor og leið-
beint bændum um byggingu og notk-
un rafmagnsstöðva. Setti hann sjálf-
ur upp stöðvar á 9 bæjum í Suður-
þingeyjarsýslu.flestar í Bárðardal og
Kinn. Á ýmsum bæjum í Eyjafirði
og Skagafirði gerði hann áætlun um
virkjun. Kom hann að norðan fyrir
nokkrum dögum og hélt austur tii
bús sins.
Gísli J. Ólafson er skipaður lands-
simastjóri.
Foreldrarl Barnið yðar á að hafa
fengið allar 8 framtennurnar, þegar
það er ársgamalt. Kaupið Mæðrabók-
ina eftir próf. Monrad. Kostar 4.75.
Augl.
ið heilnæmi fylgi námi í glugga-
lausum herbergjum eða fata-
þurki í kenslustofum. Og víst er
það, að heilsufari nemenda hefir
verið ískyggilega ábótavant síð-
ustu árin.
Jón Ófeigsson kennari sagði í
vetur á fundi í Stúdentafélagi
Rvíkur, að hann hefði nýlega
heimsótt rúma 20 mentaskóla er-
lendis og af þeim væri aðeins
einn í lakai’a ástandi en skólinn
hér.
Hverjir bera ábyrgðina? Því er
fijótsvarað. Ihaldsmenn bera á-
byrgðina. Allar götur síðan 1914
og þangað til núverandi stjórn
kom til valda, hefir mentamála-
ráðherra landsins verið úr þeirra
flokki.
Það er eftirtektarvert, að frá
hálfu þeirra blaða, sem Ihalds-
flokkurinn gefur út, kom enginn
fulltrúi til að vera viðstaddur
skoðun skólans. Á því er ekki
nema ein skýring: Ihaldsmenn
treystast ekki til að horfa á sín
eigin fingraför á stærstu menta-
stofnun landsins. Undanfamar
vikur hafa þeir verið orðmargir
og munnframir um ráðstafanir
núv. kenslumálaráðherra gagn-
vart skólanum. Sjálfum sér og
framhleypni blaða sinna mega
þeir um kenna, er það er gert
lieyrum kunnugt, hve mjög þeir
hafa brugðist skyldum sínum við
skólann,
Síðar verður ef til vill tækifæri
til að geta nánar um meðferðina
á mentaskólanum og ýms atvik í
sambandi við hana. En blöð í-
haldsmanna hliðra sér auðsjáan-
lega hjá að ræða það mál.
-----o----