Tíminn - 29.09.1928, Page 3
TÍMINN
171
Kaupverðið sem sé 35000 kr. fyr-
ir hið milda og ágæta hús, hið
sama og fyrir hrófið á Borðeyri.
— Mikið er hvað Sameinuðu eru
óhepnar að fá ekki að semja við
hann Magnús, sem er svo góður
við íhaldsmenn. —n.
íhalds-heitið.
Á landsmálafundinum, sem ný-
lega var haldinn í Kjós, leitaðist
Árni Pálsson bókavörður við að
sýna fram á, að íhaldsflokkurinn
hefði tekið sér óviðunandi rang-
nefni. Heíir hann þar tekið í sama
strenginn og Gísli Sveinsson
sýslumaður, sem varaði flokkinn
í upphafi við þessu nafni. Una
þessir menn illa þeirri stjórn-
málahreinskilni, sem komið hefir
fram í vali nafnsins og eru um-
kvartanir þeirra ekkert annað en
dulbúnar tillögur um, að nú skuli
flokkurinn taka að sigla undir
fölsku flaggi. — Grundvöllur
flokkaskipunar í hverju þjóðlandi
er í raun réttri ágreiningurinn
um skipulag í atvinnurekstri, við-
skiftum og um eignarrétt. Vill
Árni Pálsson neita því, að flokkur
hans sé réttnefndur íhaldsflokkur
í skipulagsmálum ? Ef svo er,
ætti hann að láta blöðin flytja
rök sín.
Úlfshár úr sauðargæru.
Á landsmálafundinum í Kjós
mátti skilja á ræðum íhalds-
manna, Magnúsar Guðmundssonar
og Ólafs Thors, að þeir vilja láta
breyta kjördæmaskipuninni í
landinu á þá lund, sem Thor
Thors leggur til í greinum sínum
um það efni. Með þeirri skipun
yrðu bændur nálega gersviftir
því pólitíska valdi, sem þeir njóta
enn í dag og sveitimar þar með
lagðar algerlega undir hæl kaup-
staðavaldsins. Kalla má að úlfs-
hárin gægist nú úr sauðargæru
Magnúsar Guðmundssonar. Um
ólaf Thors undxast enginn. Allir
vita að „sveitaumhyggja“ hans
er fyrirlitlegur leikaraskapur. En
Magnús Guðmundsson mála-
færslumaður mun eiga erindi með
úlfshárin í Skagafjörð.
----o----
Silfurbrúðkaup. Hjónin í Fagradal
á Hólsijöllum, Jóhannes Eyjólfsson og
Kristín kona hans, áttu silfurbrúð-
kaup sunnud. 9. sept. Buðu þau til
sin um 80 gestum, vinum og vanda-
mönnum úr nágrenni og næstu sveit-
um. Var þar veitt í-ausnarsamlega og
dvöldu allir boðsgestir til mánudags.
Hafa þau hjón húsað vel bæ sinn
með miklum kostnaði.
ust hafa unnið þrekvirki litlu
minna en Grettir, er hann gekk
undir Goðafoss, enda máttu þeir
kveða eins og hann: „Gekk eg í
gljúfrið dökkva“. — Við hinir
þóttumst hafa ærinn lífsháska við
að klífa upp bergstabbann og
skygnast niður í gjána. — En á
bergsnösum uppi yfir sat hópur
barna frá Hamragörðum og ef til
vill fleiri bæjum og veifuðu til
okkar. Virtust þau ekki loft-
hræddari en fuglar himins.
Eyjaf jöll.
Seljalandsfoss og Skógafoss
eru báðir undir Eyjafjöllum. Þeir
eru vel kunnir af myndum. Selja-
landsfoss er allra fossa hæstur
og Skógarfoss fríðastur. En ekki
er Skógafoss að sama skapi svip-
mikill.
Eyjafjöllin öll eru samfelt
listaverk; — fjölmótaðar draum-
myndir skaparans. Móbergsfjöllin
skera sig mjög úr allri íslenskri
landssmíð um myndauðgi og
mjúkar línur. Hvergi getur feg-
urri bygðarsetur. Bæirnir sitja
víða í hálfluktum fjallaörmum
og umhverfið alt er skreytt fjöl-
breytilegum bergmyndum og
gróðrarprýði, en lækir kliða stall
af stalli niður allar hlíðar. Og
frá rótum fjallanna breiðir sig
bygðin um skrúðgrænt sléttlendið
alt í fjörur fram.
Jón Baldvinsson og Haraldur
tóku sér gistingu í Hvammi hjá
Tveir fandir.
Fyrir skömmu hafa að tilhlut-
un minni, sem landkjörins þing-
manns, verið haldnir tveir fundir
um tvö stærstu mál Sunnlendinga,
járnbraut yfir Hellisheiði og fyr-
irhleðslu og brúargerð við Mark-
arfljót. Tilgangurinn með þessum
fundum var að vekja almennari
áhuga heldur en verið hefir sýni-
legur áður, um þessi tvö stórmál,
og flýta fyrir endanlegri lausn
þeirra.
En svo undarlega hefir við
brugðið, að sumum íhaldsmönn-
um hefir sér fundist mein gert
með því að koma hreyfingu á mál
þessi. Sjálfir hafa þeir skilið við i
málin bæði í ófermdarástandi, j
og stjórn þeirra alls ekki séð sér :
fært að bera fram um þau ákveð- j
in frumvörp. Undirbúningi beggja ;
málanna er svo áfátt, að ósenni-
legt er að nokkur stjóm myndi,
á þeim grundvelli, sem nú er til,
byrja á bráðum framkvæmdum.
Mér var ljóst að um bæði þessi
mál gildir hið sama. Þau verða
ekki leyst fyr en þeim er hrundið
áfram, vegna samhuga áhuga og
átaka þeirra, sem hafa þar mestra
hagsmuna aðgæta. Fyrsti undir-
búningurinn í þessum málum er
sálarlegur; sá, að skapa samtökin
og áhugann, trúna á góðann á-
rangur af framkvæmd verksins.
Andstæðingai' mínir sumir
hverjir hafa haldið því fram, að
dómsmálaráðherrann mætti ekki
beita sér fyrir samtökum um
lausn mála, sem ekki tilheyrðu
hans skrifstofu. En á sama hátt
og mér tókst á sinni tíð sem
landskjörnum þingmanni að
hrinda áfram byggingu Eiðaskói-
ans, Heilsuhælis Norðurlands og
húsmæðraskóla á Vesturlandi, án
þess að vera í stjórn landsins,
svo mun eg enn, hvað sem svefn-
værir afturhaldsmenn kunna um
það að segja, halda áfram að láta
til mín taka nauðsynjamál kjós-
enda mihna, hvar sem er á land-
inu, þó að þau séu á of miklu
frumstigi, til þess að stjórn lands-
ins hafi ástæðu til að beita sér
fyrir formlegri lausn þeirra á því
stigi sem þau eru.
Þegar rúm leyfir mun Tíminn
flytja ítarlega frásögn um báða
þessa fundi, eftir skýrslu tíðinda-
rnarrna, er þar voru staddir. Mun
almenningi þá gefast kostur á að
sjá hversu háttar skoðunum
manna um mál þessi.
Sigurjóni bónda Magnússyni.
Varð það að ráði, að skilja þar
eftir fylgdarmanninn, til þess að
varna því, að þeir Jón og Harald-
ur sýndu neinn bolsevískan yfir-
gang í fjárnámi og byltingatil-
tektum! En Kristján gegndi
skyldu sinnar miður en skyldi,
því hann strauk heim til kon-
unnar! Þó kom það ekki að sök.
Við Framsóknarmennirnir héld-
um að Hoiti og áttum alúðarvið-
tökum að fagna hjá séra Jakobi
Lárussyni og konu hans Sigríði
Kjartansdóttur.
Næsta morgun var veðurútlit
ótryggilegt; þungir þokubakkar í
hafi en alskýjað loft og austan-
kaldi. Var regni spáð og rættist
það von bráðar. Er skemst af því
að segja að við fengum hið mesta
foraðsveður beint í fangið aust-
ur yfir sanda og alla leið í Vík
í Mýrdal. Var ausandi regn og
svo mikið stórviðri að hestarnir
áttu fult í fangi með að komast
áfram. Helstu árnar á þessari leið
eru Bakkakotsá, Klifandi og Haf-
ursá, að ógleymdum Fúlalæk eða
Jökulsá á Sólheimasandi. Voru
allar ár í foráttu vegna úrfellis-
ins og virtist okkur Hafursá vera
engu minni en Markarfljót. En á
Vesturleið var mjög úr ánum
runnið, enda er vatnsmagn þeirra
og straumafar sískiftilegt og tek-
ur stórfeldum breytingum.
ógurlegasta vatnsfallið á þessari
leið er Jökulsá á Sólheimasandi,
En það eitt skal sagt að svo
stöddu, að miklu betur og karl-
mannlegar var tekið á fyrir-
hleðslumálinu af bændum í Rang-
árvallasýslu, heldur en af sumum
hinum landkjörnu og þingmönn-
um Reykvíkinga í jámbrautar-
málið. Jón Þorláksson hafði alt ilt
á hornum sér og þóttist ekki
skyldur til að koma á umræðu-
fund um jámbrautina, eftir
fundarboði í blaði. En nokkuð á
þriðja hundrað manna úr Rang-
árþingi komu á fundinn að Grjótá
eftir samskonar auglýsingu. Muu
það mála sannast, að viðhorfið tií
slíkrar fundarboðunar fer eftir á-
huga manna fyrir málinu. Þeir
sem hafa mikinn áhuga, grípa
hvert tækifæri til að vinna gagn
áhugamáli sínu. Þeir sem lítinn
áhuga hafa, nota tyllisakir til að
afsaka athafnaleysi sitt.
Bændur í Rangárþingi kusu
nefnd merkra áhugamanna til að
hrindamáli þessu í framkvæmd.
Það er spor í rétta átt. En fyrsti
þingmaður Reykvíkinga, Magnús
Jónsson, lýsti yfir þeim fullkomnu
ósannindum, að meiri hluti kjós-
enda í Rvík væri mótfallinn járn-
braut. Og þingmaðurinn virtist
harðánægður með þá niðurstöðu.
Sú leið, sem eg benti á, er hin
sama í báðum málunum. Það þarf
að skapa þor og manndóm til að
hrinda slíkum málum í fram-
kvæmd. Þeir landsmeim sem
mesta þörf hafa fyrir að leyst
séu bæði þessi stórmál, þurfa að
taka höndum saman eins og Ey-
firðingar í heilsuhælismáli sínu,
eins og landsmenn allir um stofn-
un Eimskipafélagsins, og þá mun
vinnast til viðbótar fylgi það og
traust er með þarf.
Rangæingar munu væntanlega
taka vatnamál sitt fastari tökum
en hingað til. Og kyrstöðumenn
landsins verður að hryggja með
því, að fundurinn um járnbraut-
armálið, í Alþingishúsinu, var
ekki haldinn ófyrirsynju. Þrátt
fyrir svefnmók og áhugaleysi
sumra þeirra manna, sem ætla
mætti að vildu vaka. Þá mun
einnig á þeim fundi hafa sést
fyrstu merki dagsskímu, sem er
að sigra næturmyrkrið.
J. J.
-----o----
Alþýðuflokkurinu boðar tii lands-
málafundar á Akranesi 10. okt. MiÖ
stjórnum Framsóknar- og ílialdsflokk-
anna boðið á fundinn.
enda fer af henni ilt orð um land
alt. Mörg vötnin eru reyndar stór-
um vatnsmeiri, en áin fellur bratt
um stórgrýtisurð, því að eigi helst
við sandur eða smámöl vegna
flugstraums hennar. Talið er að í
ánni hafi farist 41 maður svo sög-
ur fari af. Úr Mýrdalsjökli fell-
ur skriðjökull alla leið á sand nið-
ur. Fellur sporður hans vestur
yfir gilið, þar sem áin beljar fram
á sandinn. I göngunum undir
jökulsporðinum skorðast jakar, er
brotna úr jöklinum og stíflast við
það göngin en stöðuvatn myndast
ofan við jökulsporðinn. Þegar
vatnsmagnið ryður stíflunni úr
göngunum verður hlaup í ánni og
jakaferö. Er talið að jakarnir hafi
orkað þeim mörgu slysum, sem
fyr er getið. — Nú er öflug brú
á ánni og mun mega teljast eitt
hið mesta mannvirki á landinu.
Þegar við komum af Sandinum
hvörfluðum við forviðris heim að
Sólheimum til Ólafs bónda Jóns-
sonai'. Hann er bróðir þeirra
Hjörleifs í Skarðhlíð og Gissurar
í Drangshlíð. Leiddi Ólafur okkur
til stofu og veitti okkur góðan
beina. Áttum við nú yfir hæðir að
sækja að Vík og orðið áliðið dags.
Segir ekki af för okkar, það er
markvert geti talist, fyr en við
náðum áfangastað í Vík. Var þar
völ góðra gististaða. Dómsmála-
ráðherrann, sem var síumhyggju-
f samur leiðtogi fararinnar, hlaut
gistingu hjá Einarí Erlendssyni
Fréttir.
Embættn veitingar. Atvinnumála-
ráðherra hefir skipað menn í stöður I
sem hér se-gir: Forstjóri Trygginga- j
stofnana ríkisins er skipaður Halldór j
Stefánsson alþm., en meðstjórnendur |
við Slysatrygginguna þeir Vigfús Ein-
arsson skriistofustjóri og Héðinn
Valdemai'sson alþm. Skólastjóri á
Hólum er skipaður Steingr. Stein-
þórsson kennari frá Hvanneyri, en i
hans stað er settur kennari Guðrn.
Jónsson frá Torfalæk.
Bankahrun í Danmörku. í gær
morgun flaug um bæinn sú fregn,
að Privatbankinn í Kaupmannahöfn
væri iiættur útborgunum. þótti það
tíðindum sæta, með því að kunnugt
er að hann hefir verið aðalviðskifta-
banki íslandsbanka og ýmsir liorgar-
ar íslenskir hafa liaft þar viðskifti.
Um tap það er einstakir menn kunna
að bíða, er vitanlega ekkert hægt að
segja. En samkvæmt skýrslu beggja
bankanna í viðtali við Alþbl. í gær,
bíða þeir engan hnekki við lokun j
bankans. Um orsakir þessa banka-
hruns verður ekki sagt að sinni.
Viðgerð Mentaskólans. í fyrradag
komu nokkrir blaðamenn saman í
Mentaskólanum, til þess að líta á við-
gerð þá er framkvæmd hefir verið.
Á neðstu hæð hafa gólf öll verið dúk-
lögð, veggir á kenslustofum striga-
lagðir og hæðin máluð í liólf og gólf.
Ein stofan hefir verið tekin til fata-
geymslu. Er gangur eftir miðju en
þrjár stúkur til hvorrar handar. Eru
þar um 220 snagar. Borð kennara og
nemenda hafa fengið gagngerða við-
gerð. Skolpfatan horfin úr stofu
kennaranna og komin mundlaug
með skolpræslu. Fjórum vatnssalern-
um liefii' verið bætt við þau þrjú, di'
fyrir voru. Á efstu liæð hefir verið
rýmt til og gerð góð kenslustoía til
náttúrufræðiskenslu. Áður var sú
kensla dreifð um alian skólann og
henni samfara látlaus flutningur .4
náttúrugripunum. Ennfremur verður
i haust gert við leikfimisliúsið. Hefir
skólinn tekið miklum stakkaskiftum
við þá viðgerð sem þegar er fram-
kvæmd.
Sláturhús Kf. Eyf. Kf. Eyf. hefir i
sumar látið reisa nýtisku sláturhús á
lóð sinni á Oddeyrartanga. Er húsið
reist í sainbandi við íshús félagsins.
Húsið er 25X20 me.trar, tvílyft. Á
efri liæð fer fram slátrun og venju-
leg kæling á ketinu. Neðri hæð er
skift í fjórar deildir. par fer fram
hreinsun innýfla, gærusöltun og
ketsöltun. Miklu þykir skifta að ket-
ið sé sem minst handleikið. Enda
gengur það á rám ait frá gálga og
inn i söltunarrúm og íshús. Er það
\egið á þeirri leið. Húsið fullnægir
öllum lireiniætiskröfum. Er þar rúm-
góð forstofa, snyrtistofa, vatnssalerni
o. s. frv. Fram af .húsinu er hafskipa-
bryggja, sem félagið á.
Landsmálafundir. Ólafur Thors
alþm. liélt leiðarþing á Reynivöllum
í Kjós á miðvikudaginn. Sóttu fund-
inn nokkrir menn úr Reykjavík af
öllum flokkum og varð þar allhörð
starfsmanni hjá K.f. Skaftfell-
inga. Ásgeir og Bjarni gistu hjá
Þórði Pálmasyni kaupfélags-
stjóra þeirra Skaftfellinga. Eg
hlaut gistingu hjá Sigiu-jóni
Kjartanssyni starfsmanni kaup-
félagsins. Hann er kvæntur Höliu
Guðjónsdóttur. Hefi eg hvergi
fengið alúðlegii né rausnarsam-
legri viðtökur þar sem mig hefir
borið ókunnugan að garði. — Jóri
og Haraldur fengu gistingu hjá
Stefáni lækni Jónssyni.
Á Mýrdalssandi.
I Vík kom til móts við okkur
Lárus alþm. Helgason í Kirkju-
bæjarklaustri og skyldi reiða okk-
ur yfir Mýrdalssald. Við lögðum
af stað laust eftir kl. 9 árdegis
þann 14. Var nú skift um veður
og komið sólskin og fagurt um að
litast. Vík er lítið þorp í þröngum
hæðafaðmi. Vestan megin þorps-
ins rís hátt bj arg, þar sem Reynis-
fjall gengur í sjó fram, en stakir
drangar rísa úr sænum utan við
fjöruborð og halda vörð um
þorpið.
Okkur, sem könnuðum þarna
ókunna stigu, hafði verið sagt
nokkuð um Múlakvísl. Hún spýt-
ist fram úr þröngu gljúfri vestast
á Mýrdalssandi og breiðir sig um
feiknar svæði. Yfir hana mun
vera hálftímareið og er hún hið
agalegasta vatnsfall, þar sem hún
veltur fram þykk af jöklaleir.
Okkur hafði verið sagt við Bakka-
V e r k f æ r i
Plógar,
Herfi,
Forarkranar,
Forardreifarar,
Kernir,
Ken-uhjól,
Kerrukjálkar,
Jánikarlar,
Hakar,
Skóflur,
Gaflar,
Sköft allskonar
o. m. fl.
Samband ísl. samvhmufélaga.
senna. Annan sunnudag verður lands-
málafundur haldinn á Skeggjastöðum
í Flóa og hefst kl. 3 síðdegis. Boðar
miðstjórn Framsóknarfl. til fundar
ins og býður til viðtals miðstjómum
Jafnaðarmanna og Ihaldsmanna.
----O---
Fra útlöndum.
Krassin, ísbrjóturinn rússneski, sem
hefir getið sér mikinn orðstýr við
leitina i norðurhöfum, er nú i þann
veginn að hætta og mun hverfa heim
í byrjun október.
— þann 23. þ. m. brann leikhús í
Madrid á Spáni. Varð bruninn skjót-
ur og liastarlegur. Slösuðust margir í
troðningnum er fólk ruddist til dyra
og fjöldi manna fórust. Hafa um eða
yfir 80 lik fundist í rústunum.
— A 6. norræna verslúharfundin-
um í Osló talaði Rygg forstjóri Nor-
egsbanka um nauðsyn þess að stjórn-
ir Norðurlanda hefji tilraunir um
nýjan myntsamning. Áleit hann þó
að best væri, eins og sakir standa,
að halda skiftimynt utan við samn-
inginn. Sænski bankastjórinn Ryd-
berg tók dauflega í þessar tillögur
og kvað endurreisn myntsambands-
ins vera uppgjöf á sjálfsákvörðunar-
rétti þjóðanna í peningamálum. — á
fundinum var samþ. tiliaga þess efn-
is að skora á stjórnir Norðurlanda að
láta undirbúa endurskoðun mynt-
samningsins.
— Stórráð Fascista hefir enn gert
nýja ákvörðun um sitt eigið vald!
Samkv. henni er ákveðið að æðsta
stjórnarfarslegt vald á Ítalíu skuli
vera í höndum ráðsins, enda konii
öll stjórnarfarsmálefni til þess kasta,
þar á meðal ákvarðanir um rikis-
erfðir, vald konungsins, störf þings
ins, framkvæmdavald stjórnarinnar,
samningar við önnur ríki og afstaða
ríkisins til páfakirkjunnar. — í sam-
þyktinni eru ákvæði um, að ekki
megi handtaka eða lögsækja meðlimi
stórráðsins nema með leyfi þess
sjálfs! Ilöfuðpaur stórráðsins er vit-
anlega Mussolini. Bætist hér enn við
nýstárlegur kapituli i stjórnarfars-
sögu heimsins.
kotsá, Hafursá og Klifanda, a8
þetta væru nú lítilsverðar spræn-
ur, en Múlakvísl! Það væri vatns-
fa.ll! Við Jón Baldvinsson vorum
nógu hreinskilnir, til þess að trúa
hvor öðrum fyrir því, reyndar
meira í heiðarlegri varkárni en í
beinum orðum, að okkur væri ekki
vel við Múlakvísl og hlökkuðum
ekkert til að kynnast henni.
Dómsmálaráðherrann, sem er
nokkuð vanur vötnunum, reið
fram í Múlakvísl með vetlinga á
höndum. Þótti okkur Jóni það há-
mark fífldirfsku, þó það gerðu
reyndar fleiri í förinni. Múlakvísl
var í foráttu, en „lá vel“, eins og
Lárus kallaði það. Urðum við því
hugrakkari sem lengra dró í
Kvíslina, því þó straumstrengirn-
ir væru úfnir og hryggháir tókst
Lárusi að finna vel fær vöð hvar-
vetna. Mun það reynast holt fyr-
ir sálarstyrk hvers manns í Múla-
kvísl að hafa Lárus að fylgdar-
manni. Enda er hann reyndur að
öryggi í margri vatnaraun eins
og fleiri Skaftfellingar. I Múla-
kvísl reið fram á okkur Bjarni
Runólfsson á Hólmi á Síðu. Kom
hann frá því að setja upp eina af
‘sínum nafntoguðu rafmagnsstöðv-
um. Slóst hann ásamt 3 samferða-
monnum í förina yfir Mýrdals-
sand. (Meira).
----o----