Tíminn - 08.12.1928, Blaðsíða 1

Tíminn - 08.12.1928, Blaðsíða 1
OQ aföteiöslumaður Cim ans er Xannoelg þ o r * I e 1 n *öó ttir, Stfmbanösljústnu, Seyfjaotí. ^fgtEifcsía Clmans er i Sambanösfjúsinu (Dpin öaglega ^—\2 f, i). Shni 49Ö- XII. ár. Reykjavík, 8. desember 1928. FnllYeldisafmælið Ræða Tryggva Þórhallssonar forsætisráðherra flatt af syöluin Alþingishússins 1. des. 1928 Góðir Islendingar! Tíu ár eru skammur tími í lífi þjóðar. Tíu ár hafa sjaldnast á um- liðnum öldum markað djúp spov 1 sögu okkar Islendinga. öðru máli er að gegna um ára- tuginn, sem við lítum yfir í dag — árin, sem líðin eru síðan á uý var viðurkent fullveldi Islands. Meiri hraði, meiri framsókn, • Fyrstu aldirnar fjórar, er sögur fara af, b.juggu alfrjálsir menn á íslandi. Hverju einasta okkai’ hlýnar í skapi er við minnumst þeirra alda, því að um alt er ljómi yflr þeim öldum: Um auð og afkomu fólks- ins, um þrek og drengskap kyn- slóðanna, um menningu og fræða- iðkanir. meiri gióska hefir verið í þjóðhfi okkar á þessum áratugi en á nokkurum tíu árum áður, í sogu okkar. Á þessum áratugi urðum við fyi'ir alvarlegum áföllum, óviðráð- anlegum að miklu — og þó hefir aldregi fyr verið eins farsællega að því unni$ að gera landið betra og byggllegra og að bæta kjör og aðstöðu iandsins bama. Á þeim hinum sömu farartækj- um, sem notuð eru á fáguðum strætum heimsborganna getum við nú farið um mikinn hluta fjallalandsins okkar. — Mikið meir en hálfnuð er leið að því maiki að allai- stórelfur landsins séu brúaðar. Með ströndum fram og landa í milli fljóta skrautbúin skip, fleiri en nokkru sinni fyr, ÍBlensk skip, undir íslenskum fána, er lúta íslenskri stjóm og flytja að landi og sækja 1 skaut Ægis meiri auð en nokkru sinni fyr. — Ræktuðu blettirair stækka miklu öi-ar en nokkru sinni áður, meir á einu ári nú en á ölduxn fyr. Við erum að taka í þjónustu okkar hina duldu krafta vatns og vamia, þá er móðir jörð hefir geymt og varðveitt í þúsund ár, en landsins böm eigi kunnað að hagnýta fyr. Nú þreifum við á því hvílík hagsbót, aukin menning og margföld lífsþægindi em þegar orðin og munu verða þessum framkvæmdum samfara. Glöggir gestir og góðgjarnir, þeir er sækja okkur heim þessi ái'in, og þetta árið ekki síst, hafa orð á því hversu hressandi blær fjörs og framsóknar leiki um þá hér norðurfrá. Þeir segjast sjá lífsgleði og stórhug á hverju and- liti nálega. Þeú' samfagna okkur að lifa á slíkum tíma þjóðarvors. Hveil einasta okkar finnur til þess, þó að við séum stödd sjálf í miðri hringiðunni, hve mikið er að gerast á lslandi þessi árin. — Hví að minnast þessa nú? Er nokkurt samband á milli þessa: framfaranna á Islandi þessi árin, einsdæmis að jeg hygg hjá hundrað þúsund sálum, þessa bjai'tsýnis og stórhuga þjóðariim- ar — og hins sem við nú minn- umst, að fyrir tíu árum vai- við- urkent í orði og í verki frelsi og fullveldi landsins? Því aðeins falla orð mín svo, að jeg er sannfærður um, að grósk- an í þjóðlífinu er bein afleiðing rneðvitundartnnar um og stað- reyndarinnar, að við erum frjáls- ir menn í frjálsu landi. Eg ætla að láta sögu þjóðarinn- ar tala, til þess að finna þeim orð- um stað. Þá gerðust íslenskir menn ósjaldan ráðgjafar og hollvinir hinna valdamestu og stórbrotn- ustu höfðingja erlendra. — Þá þótti erlendum fræðaþulum helst til Islands vænlegt að leita til þess að fá sannar fregnir um stórviðburði hjó liðnum kynslóð- um. — Þó brann á Islandi só ar- ineldur menningar, sem aldrei mun slokna. — Þá var skráð hér nyrðra sagan um hina hollu siðu, drenglund og hreystilíf hinna fornu Germana, sem margir munu telja best kynjaða allra jarðarbúa. Tímabilið þó er Islendingar vom alfrjálsir heitir: Gullöld Islendinga. Þó að Island ætti nú ó þess- ari stundu að sökkva í myrkan mai', mundi aldrei gleymast hin glæsilega saga hins frjálsa ís- lenska þjóðveldis. Bjarmann íslenska fró fomöld- inni mun óvalt bei'a yfir hvar á jörðu, sem germanskur maður sest að. Þessi er svipurinn yfir hinu al- frjálsa Islandi. íslendingai' gengu erlendum konungi á hönd, en þeir afhentu ekki frelsi sitt skilmálalaust. Með mjög merkum sáttmála trygðu þeir rétt sinn. I næstu aldimar þrjár héldu þeir fast á þeim rétti sem sáttmálinn trygði þeim. Það er mjög annar svipur yfir þessum öldum en hinum, meðan Island var alfrjálst. En þó er bjarmi, hólfur bjarmi, yfír land- inu sem hélt enn frelsi og sjálf- stæði að nokkru. Þegar skráð verður saga mið- aldanna á Islandi mun sannast að í skjóli þeirrar innlendu stjóm- ar, sem enn gafst, var hagur landsins óumræðilega miklu betri en 8Íðar varð, og sagan miklu glæsilegri en flestir halda. Merk menning og um margt næsta glæsileg þróaðist innan vébanda hinnar þjóðlegu og víðfeðmu menni ngarstofnunar kirk j unnar. Enn mun Island þá hafa haldið sínum hlut fullkomlega, borið saman við frændþjóðimar á Norðurlöndum, og enn ó þessum öldum gerðu Islendingar sér heimilar ferðir hvert út í lönd, sem þeim bauð við að horfa og drógu að sér þekkingu og hvers- konar nægtir í ríkulegum mæli. Þjóðin er enn óbæld og þróttur hennar kemur skýrt í ljós gagn- vart þeim erendrekum erlenda valdsins, kóngs eða kirkju, sem ætla sér þá ofrausn að beita kúgun. Krók-Álfur var hræddur á Hegranessþingi, Smiður veginn á Gmnd, en Lénharður í Amarbæli, Jóni Gerrekssyni var drekt í Brúará og Diðrik veginn á sjálfu biskupssetrinu. I lok þessara alda lætur hvor- ugur forystumaðurinn hins inn- lenda valds, syðra og nyrðra, beygja sig. Báðir létu lífið held- ur en beygja sig: annar blindur og fangelsaður, í hafi, hinn með sonum sínum á höggstokki. Þróttur býr í þeirri þjóð, sem á slíka foringja. S6 er svipurinn, hálfrökkur, yfir þeim öldum er íslendingar höfðu að hálfu selt af höndum sjólfstæði sitt. Yfii' höfuðsvörðum ögmundar og Jóns gengur hún í garð, öldin þá er eiienda valdið ræður óskor- að ó Islandi. Þá dirfist enginn lengur að vega útlendan mann. Þá telja jafnvel bestu synir landsins sér ekki annað fært en að beygja höfuð mótmælalaust fyrir hinum mestu afarkostum. Þær aldir má og telja þrjár — til þess tíma er íslendingar aftur þorðu að mótmæla. Það verður ekki talið ósann- gjarat að segja að fullreynt hafi verið og af því megi úrslitadóm dæma um árangur hinnar erlendu stjórnar á Islandi — því að í þrjár aldir stjómuðu útlendir Is- landi, óskorað. Skýru, óafmáanlegu og ógleym- anlegu letri eru skráðir ávextir hins erlenda stjóraarfars. — Þeir em skráðir á fölvar kinnar kúg- aðrar og þrautpýndrar þjóðar. Við sem hér stöndum eigum öll, undantekningarlaust, forfeður og íormæður, fleiri og færri, sem hnigið hafa að velli eða kvalist óumi-æðilega af harðrétti, sem beinlínis stafaði af hinum erlendu stjómarháttum. — Þ*að ló við jafnvel að tækist að brjóta niður alla von þjóðarinnar um betri tíma og trú hennar á sitt góða land. — Sú óáran kom í mann- fólkið sjálft, sem aldrei hefir áð- ur orðið þvílík, og Guð forði að nokkru sinni gangi aftur yfir. Undir handarjaðri kúgunarinnar þróaðist slík hjátrú, hindui-vitni og' grimdaræði að bálkestir hleypidóma voru hlaðnir að al- saklausu fólki og ofsóknaæðið geysaði um endilangt landið. — Var það um sinn talið helsta bjargræðið að flytja fólkið burt — fró Islandi, á ófrjóasta staðinn í öðru landi. Þegar útlenda valdið tók alfarið við stjórainni, þá var Island enn — borið saman við önnur Norð- urlönd, svo vel auðugt og mann- að sem það varð ó liðnum öldum. — Þegar útlenda valdið fór aftur að skila af sér róðsmenskunni, þá vai- Island fátækara að fé og fólki og manndóð, en nokkru ainni, áð- ur eða síðar. Skammdegismyrkur hvílir yfir Islandi aldiraar sem útlendir fullreyndu sig á að stjóma Is- landi. Viðreisn Islands — sagan um þjóðarvorið — er svo ung enn, að hinir elstu menn núlifandi muna suma fyrri forystumenn- ina. Hún víkur öll að aama punkt sú saga. I hvert einasta sinn sem braut- ryðjendur sjálfstæðisins sóttu í greipar erlenda valdsins aukið frelsi á einu eða öðru sviði — sjó! jafnharðan kom í kjölfarið aukin hagsæld og margvíslegar framfarir, jafnörugglega og dag- ur fylgir nóttu. — Um leið og einn fjöturinn af öðrum var höggvinn af þjóðinni, óx henni ásmegin, bæði í verklegum og andlegum efnum, og trúin glædd- ist 6 eigin mátt og 6 gæði lands- ins. Þannig munu sagnfræðingamir benda á fjörkippi Islendinga: eft- ir endurheimt verslunarfrelsi, eftir heimflutning fjárveitinga- valdsins, eftir heimflutning fram- kvæmdavaldsins, eftir að fáninn fékst og eftir viðurkenningu fúllveldisins. Það eru ekki nema 80 ár síðan skáldið horfði á vorgyðjuna í skýjum bruna ó braut sunnan úr löndum heim til Islands. Hann sá i anda: „þjóðvorið fagra sem írelsi vort skal, með fögnuði leiða’ yfír vengi“. Bókstaflega hefír hún ræst spá skáldsins: „Þá vaxa nieiðir þar vísir er nú, svo verður ef þjóðin er sjálfri sér trú“. Dómur sögunnar er óljúgfróð- ur. Þúsund ára reynsla forfeðr- anna færir okkur nútímamönn- unum hinn skýlausa dóm: Afkoma og menning íslensku þjóðariimar hefir jafnan staðið í beinu hlutfalli við freisi hennar og sjálfstæði. Fyigjur erlenda valdsins hafa undantekningariaust verið: hnign- un, fátækt, ógæfa, víi og vesal- dómur, alt á hækkandi stigi, eftir því sem erienda vaioið hefir magnast. Ljómi fornaldarinnar atafar af frelsinu. Endurheimt frelsisins hefir borið í skauti sínu aliar framfar- ir nútímans, hina auknu manndáð og menningu, stórhug og bjart- sýni siðustu ára, alt á hækkandi stigi, eftir því sem fjötrar hrukku og írelsi óx. Freisi Isiands og sjálfstæði er undirstaðan undir farsæld og menningu — á þeim hyrningai- steini hvíla vonimar um þjóðar- vor i nútíð og framtíð — það er fjöregg þjóðarinnar. I hjarta hvers einasta Islend- ings á iærdómurinn að vera skráð- ur: Frelsið er fjöregg íslands. Með vaxandi frelsi munu enn íalla okkur í skaut meiri heillir. Og á tíu ára minningardegi frelsisviðurkenningarinnar send- um við alúðarkveðju sambands- þjóðinni, sem í orði og verki sýndi þá réttlæti I ljósi þessa lærdóms berum við fram þá bæn að aldrei gangi aft- ur yfir þetta land þau tíðindi, sem diegið geti í áttina til þess að. fjöreggi Islands verði aftur í hættu stofnað. Hefjist aldrei, á nálægum tíma eða fjarlægari, sá styrr Islend- inga í milli, sem valda megi þjóð- arbúskapnum því tjóni, eða kveiki þann eld bræðra í milli að ný öld Sturlunga hefjist. Slíðrist sverð, áður en að vígi verður, vegna hins mikla sem sameinar: heill ættjarðarinnar. Hefjist aldrei aftur hið erlenda vald á íslandi, í neinni mynd. Hinn stóri heimur fær augun opin betur og betur hversu mikl- 58. blað. ar eru auðlindir íslands og nátt- úrugæði. Meðan þjóðinni er að vaxa físk- ur um hrygg, um mannfjölda og auðlegð og getur eigi enn sjálf tekið þessi gæði til notkunar nema að litlu, verða þau litin hýru auga. Verði það aldrei að Fáfni hin- um erlenda verði afhent náttúru- gæði og auðlindir Islands, hverj- um kufli sem hann skrýðist með- an hann er að komast inn úr gættinni. Þá hina æðstu skyldu á nútíma- kynslóðin að rækja, að afhenda bömunum landið með gæðum þesa ófjötrað af erlendu valdL Til einskis hafa feðumir liðið og barist, ef á ný verður gengið á Iiönd erlendu valdi. Hér bjó, í Reykjavík, sá er fyrstur bygði Island. Hér mun hafa búið sonur hans er fyrstur setti þing á íslandi. Hér mun hafa búið hans sonur, Þorkell máni lög- sögumaður, „er einn heiðinna manna hefir best verið siðaður, að því er menn vita dæmi til“. Þorkell máni lét í banasótt bera sig „i sólargeisla“, „og fal sig á hendi þeim Guði, er sólina hefði skapað“. „I sólargeisla“ frelsis og fram- fara búum við nú afkomendur og eftirmenn Þorkels mána. Felum það á hendi þeim Guði, sem sólina hefir skapað, að jafn- an megi íslenska þjóðin búa í sólargeisla sívaxandi frelsis og framfara. Isiand lengi lifí og blómgistl Ritfregn Árin og oiliíðin IL Prédik- anir eítir Harald Níelsson prófessor i guðfræði. Rvik 1928. Útgefandi Aðalbjörg Sigurðardóttir. Fyrri hluti þessa prédikana- safns kom út árið 1920. Hafði séra Haraldur Níelsson áformað að gefa út áframlialdið á sextugs- afmæli sínu nú í vetur. Og er hann lá banaleguna, tók hann það loforð af konunni sinni, að sjá um útgófu bókarinnar á tilteknum tíma. Nú birtast hér 34 prédikan- ir á 408 bls. í stóru broti. Ná þá predikanir þessa safns til allra helgidaga ársins og eru í þessu síðara bindi helgaðar tilteknum dögum. Bókin er tileinkuð söfn- uði séra Haralds hér í Reykja- vík. Hefir og söfnuðurinn stutt fjárhagslega að útgáfu hennar. Húslestrar eru því miður, að mestu leyti fallnir niður á íslensk- um heimilum. Mun að eigi litlu leyti valda skortur á hentugum húslesti’abókum. Bækur þær, er á sinni tíð voru mikill fengur fyr- ir þjóðina, fullnægja ekki lengur. Með þessu prédikanasafni er því bætt úr vöntun, svo að ætla má að verði til styrktar guðs kristni í landinu. Það mun vera viðurkent og óumþrætt mál um alt land, að Haraldur Níelsson hafi verið víð- sýnasti, andríkasti og mælskasti kennimaður, sem uppi hefir verið í landinu, síðan Jón biskup Vída- lín leið. Og um víðsýni og djúpa lotningu fyrir sannleiksleit mann- anna tók hann öllum fram, enda sjálfur öruggur forystumaður

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.