Tíminn - 07.12.1929, Page 4
256
TÍMINN
r
r
•Til þess að hægt verði að haga flutningi tilbúins áburð-
ar til landsins næsta vor, á sem hagkvæmastan og ódýrast-
an hátt, verðum vér ákveðið að mælast til þess að
allar áburðarpantanir sáu komnar í vorar
hendur fyrir janúarluk 1930.
Eins og undanfarið tökum vér á móti pöntunum frá kaup-
félögum, kaupmönnum, búnaðarfélögum og hreppsfélögum
en alls ekki frá einstökum mðnnum.
Sanöand ísl. saiviBnatélaia
Reykjayík Sími 249
Niðursuðuvörur vorar:
Kjöt......11 kg. og 1/2 kg. dósum
Kæfa .... - 1 - - 1/2 -• -
Bayjarabjúgu 1 - - lh -
Fiskabollur -1 - - '/2 —
Lax.......- 1 - - 1/2 -
hljóta almennlngslof
Ef þér hafið ekki reynt vörur
þessar, þá gjörið það nú. Notið
innlendar vörur fremur «n erlendar,
með þvl atuðlið þér aö þvi, að
íslendingar verði sjálfum sér nógir.
Pantanir afgreiddar fljótt og
vel hvert á land sem er.
Höftun til:
Steypuskóflur, sænskar, sterkar og ódýrar.
Samband ísl. samvinnufél.
Höfurn til:
Fjárvigtir sem taka 150 kg.
R e i s 1 u r sem taka 15 kg.
Samband fsl. samvinnufél.
Jarðir til sölu
Þessar jarðir eru til sölu:
Straumur, ásamt nokkrum smábýlum. íbúðarhús og öll úti-
hús eru úr steinsteypu. Miðstöðvarhitun og vatnsleiðsla. Jörðin
ber rúm 400 fjár, 2 kýr og hest. Túnin eru slétt og í ágætri
rækt.
Þorbjamarstaðir, húsalausir. Jörðin ber 200 fjár og 1 kú.
Þýskabúð, vel hýst. Ber 80—100 fjár. Beitiland allra jarð-
anna er girt sameiginlega, með mjög vandaðri girðingu úr gaddar-
vír, 19 km. langri. Jarðimar verða seldar, hver fyrir sig, eða all-
ar í einu lagi, ef þess verður óskað. Þessar jarðeignir liggja Sþó
km. sunnan við Hafnarfjörð. Bílfær vegur heim á hlað. Allar
upplýsingar gefur eigandi jarðanna,
Bjarni Bjarnason
skólastjóri, Laugarvatn (símstöð).
sakar það ekki, þótt við höfum
engan her, heldur aðeins lög-
reglu á sjó og landi. Ekki sakar
heldur þótt önnur þjóð fari nú
sem stendur með utanríkismálin.
Ekki er heldur fámenni þjóðar-
innar til fyrirstöðu. En eins og
sést af grein dr. B. Þ. í And-
vara, er hlutleysisyfirlýsingin frá
4918 ekki að öllu samræmanieg
inntökuskilyrðinu í þjóðabanda-
lagið. En Sir Eric Drummond
benti á að þar sem við hefðum
undirskrifað Kelloggs-sáttmálann
með öðrum menningarþjóðum, og
þar með bannsungið öll árásar-
stríð, þá væru ástæður nú mjög
breyttar frá því sem var í stríðs-
lokin og áður en þjóðbandalagið
var stofnað.
Frá mínu sjónarmiði er það
með öllu óhjákvæmileg skylda
fyrir Islendinga, ef þeir á annað
borð ætla að verða alfrjáls þjóð,
að ganga í bandalagið. Kostnað-
ur við þátttöku í bandalaginu er
með öllu hverfandi í samanburði
við útgjöld af utanríkismálunum
sem allir þingflokkar hafa lýst
yfir, að tekin skuli í íslenskar
hendur. Og smáþjóð, sem eyddi
miklu fé til sendiherra í ýmsum
löndum, en þættist ekki hafa ráð
á að senda fulltrúa á þing þing-
anna, væri beinlínis hlægileg.
Sennilega er ómögulegt að aug-
lýsa sjálfstæði íslands eins vel á
nokkurn hátt eins og með varan-
legri þátttöku í bandalaginu. Með
þeim hætti væri ísland í augum
heimsins sett á bekk með öðrum
írjálsum þjóðum. Á hverju ári
ættu 1—3 fulltrúar hins íslenska
ríkis kost á að kynnast forgangs-
mönnum stjórnmála úr öllum
mentalöndum, mánaðartíma ár-
lega undir jafningjaskilyrðum,
en slíkt tækifæri hefir þjóðmála-
menn okkar algerlega brostið.
Það er með öllu ómögulegt að
meta á hagsmunavísu, þá þýð-
ingu, sem það hefir fyrir hina
fámennu íslensku þjóð, að skapa
sér slík kynningarsambönd, og
um leið eiga vísa og samnings-
trygða hjálp allra menningar-
þjóða, er nálægt búa, ef einhver
sterkari þjóð vildi granda frelsi
landsins.
Þátttaka í þjóðabandalaginu er
þannig hin besta vörn fyrir var-
anlegu sjálfstæði landsins út á
við. En gagnvart hinni innri
hættu, þeiri’i hættu sem á 13.
öldinni lagði lýðveldið í rústir,
ætti þátttaka í þjóðabandalaginu
að hafa nokkur áhrif. Ef Gissur
Þoi-valdsson og Sturlungar hefðu
átt kost á að kynnast árlega
mestu skörungum samtíðar sinn-
ar, er með öllu óvíst að þeir
hefðu búið hver að öðrum og
frelsi landsins, eins og raun varð
á. J. J.
----o-----
JOrðin Eystri-Hóll
í Vestur-Landeyjahreppi er til sölu,
ásamt húsum og mannvirkjum, og
til ábúðar í næstu faidögum.
Semja ber við eiganda og ábú-
anda jarðarinnar.
Þórð Tómaaaon
PFAFF - saumavélar
70 ára reynsla
hefir sannað að
v ^. \ \ „PFAFFU
( ^ Jké'-'h ) saumavélarnar
y þola allan sam-
jDéfm anburð hvað
endingu og gæði snerta.
3 Handsnúnu
vélarnar eru hentugar þar
aem lítil eru húsakynni. Stígnu
vélarnar með „pólereðu11 borðun-
um eru hreinasta stofuprýði.
Ilerðið sanngjarnt. Sendar pegn póstkrölu
hvert á land, sem er
(Útfyllið þennan seðil ef þér óskið
frekari upplýsinga uin „PFAFFU).
„PFAFFU umboðið fyrir ísland:
Magnús Þorgeirsson
Bergstaðastræti 7,
Pósth. 714 Reykjavík Talsími2136
Gjörið svo vel að senda mór
undirrituðum, myndaverðlista yflr
PFAFF saumavélar.
Nafn
Heknili
LITLA TÍMARITIÐ
flytnr nðalleg-a
stnttar sögnr
Utgefandi:
Jón H. Guðmundss
Annað hefti þess ev
nú komið Vit. T þvi
eru úrvals smásög-
ur eftir heimsfræga
snil]inga“'i skáld-
sagnager bJDosto-
jevski Maupússant
Samatov, Martin Andersen Nexö. -
Fyrsta heftið fékk'ágætar viðtökur. 1 þvi
voru meðal annars, sögur eftir Maxim
Gorki, Karoly Kisfaludi, Maupassant,
Edmond Privat. - -■ Besta dægrastytt-
ingin er lestur góði-a smásagna. ,Kaupið
því Litla’tímaritið frá hyrjun. Þótt brot
þess sé ekki stórt, er letrið svo þunnt og
þétt, að 'mikið'lesmál er i ritinu. Og fyr-
nefndir rithöfundar eru trygging þess, að
vandað er til efnisins. — Sendið 2 kr. og
þér munuð fá þessi tvö hefti eins fljótt
og unnt er.’- Nokkrir blaðadómar: M4
tclja það (Litla tímaritið)’nýjung i islensk-
um bókmentum. . . . Flytur aðallega smá-
sögur og eru sumar þeirra eftir bestu og
kunnustu rithöfunda erlenda" (Alþýðubl.)
„Sögurnar. er það birtir, 'eru vel valdar
og vel þýddar Er enginn vafi 4, að ritið
verður vinsælt af öllum almenningi“
(Island). — „Allar er sögurnar ’góðar. . . .
Má ætla af^byrjuninni, að timarit þetta
verði vinsælt og mikið keypt. Þvi auk
góðs innihalds, er~'ritið (hið snotrasta að
öllum ytri frágangi11 (Brúin, Hafnarfirði).
(Klippið þennan pöntunarseðil úr og
sendið hann sem fyrst).
Óska að gerast áskrifandi Lilta tímarits■
ins frá byrjun.
Nafn
Ileimili ...............................
Póstafgr.
(Sendist til afgreiðslumannsins:
Jóhannesar M. Zoéga
Ingólfsstræti 7 B, Reykjavik
Umsóknir
til Búnaðarfélags Islands um styrk til náms eða fræðsluferða
erlendis árið 1930 og til garðyrkj ukenslu næsta sumar svo og
um þátttöku í garðyrkjunámsskeiði í gróðrarstöðinni í Reykjavík,
1. maí til 15. júní n. k., skal senda félaginu fyrir 1. mars n. k.
Umsóknum um nám erlendis skal fylgja skólavottorð og með-
mæli kennara, svo og vottorð um námsdvöl þar, sem styrkinn á
að nota. Umsóknum um styrk til garðyrkjukenslu skulu fylgja
upplýsingar um kennara.
Búnaðarfélag Islands
Höftiðbólið Narfeyri
í Skógarstrandarhreppi í Snæfellsnessýslu fæst til kaups og ábúð-
ar frá næstkomandi fardögum. Á jörðinni eru steinsteypt íbúðar-
hús, að stærð 15XH áln., ásamt útbyggingu 4X6 áln., hey-
hlöðu yfir 5—600 hesta, og peningshús fyrir 250—300 fjár, 20
hross og 8 nautgi’ipi. Túnið gefur af sjer 350—400 hesta, út-
heysslægjur eftir þörfum. Afargóð skilyrði tií túnaukningar.
Mótak er mikið og mjög gott, ennfremur nokkurt æðarvarp.
Mjög gott sumarland fyrir stórgripi og ágæt vetrarbeit fyr-
ir sauðfé og hross. Jörðin liggui stutt frá Stykkishólmi og eru
aðdrættir mjög hægir á sjó.
Væntanlegir kaupendur snúi sér til undirritaðs eiganda jarð-
arinnar sem allra fyrst.
Narfeyri, 14. nóv. 1929.
Jón Guðmundsson.
r r
verður háð á Iþróttavelli Reykjavíkur 17. júní 1930. Umsóknar-
frestur auglýstur síðar.
Kept verður í þessum íþróttagreinum:
I. íslensk glíma
í tveim þyngdarflokkum (und-
ir og yfir 70 kg.).
II. Hlaup:
100, 200, 400, 800, 1500, 5000
og 10000 m.; boðhlaup:
4X100 m. og 1500 m. (800+
400+200+100); — grinda-
h 1 a u p 110 m.
V. Köst:
a. Spjótkast, beggja handa.
b. Kringlukast, beggja handa.
c. Kúluvarp, beggja handa.
VI. Reipdráttur
(8 manna sveitir).
VII. Kven-íþróttir:
a. 80 m. hlaup.
b. Hástökk nteð atrennu.
c. Spjótkast.
III. Kappganga
5000 m.
IV. Stökk:
a. Hástökk með atrennu.
b. Langstökk með atrennu.
c. Stangarstökk.
d. Þrístökk.
VIII. Sund (karla):
a. 100 m. frjáls aðferð.
b. 100 m. baksund.
c. 200 m. bringusund.
d. 4+50 m. boðsund
(frjáls aðferð).
(Sundið verður háð við sund-
skálann í örfirisey).
Þátttaka er heimil öllum íþrótta- og ungrnennafélögum innan
vébanda I. S. I., og er þess fastlega vænst, að þau sendi sem
flesta og best að sér gerva íþróttamenn á leikmótið, — nú frem-
ur en nokkru sinni áður.
Mótið er um leið meistaramót, þ. e. a. s. sigurvegarar á mót-
inu í íþróttagreinum þeim sem taldar eru upp í ákvæðum I. S. 1.
um meistaramót, teljast meistarar fyrir árið 1930.
Allan undirbúning og framkvæmd mótsins hefir I. S. I. falið
Glímufél. Ármann, íþróttafél. Rvíkur og Knattspyrnufél. Rvíkur,
en umsóknir og fyrirspumir viðvíkjandi mótinu stílist til Hátíð-
armótsnefndar I. S. I., Pósthólf 394, Reykjavík.
Hátíðarmótsnefndin
F.B. sendir fréttafélögum yfirlitsfréttir
af þinginu, eins og undanfarin ár. Þókn-
un fyrir skeytasendingarnar er íi kr. á
mánuði eða lð kr. yfir þingtimann. Frétta-
félögum má senda fréttaskeyti fyrir blaða-
skeytataxta (2>/2 eyrir orðið).' - Frétta-
fólög, sem ætla að fá þingfréttir frá F.B.
að þessú sinni, eru beðin að gera for-
stöðumanninum víðvart hið fyrsta og til-
taka á hvaða dögum skeytin óskast
og orðafjölda Forstöðumaðurinn verður
til viðtals i talsima F.B. þessum málum
viðvikjandi kl. 9-11 f.h. daglega i janúar
Skeytafé og þókunu greiðist fyrirfram.
Fréttastofa Blaðam.f. IslaMs Rvík.
Talsimi: 1558 Simskeyti: F.B.
Gúmmístígvél
fyrir karlmenn, há og lág; sér-
staklega sterk og ódýr.
Sendum gegn póstkröfu um
(alt land.
Skóbúð Vesturbæjar.
Vesturgötu 16.
Ritstjóri: Jónas Þorbergsson.
Asvallagötu 11. Sími 2219.
Prentsmiðjan Acta.