Tíminn - 01.02.1930, Qupperneq 1

Tíminn - 01.02.1930, Qupperneq 1
,<*. ©Jafbíeti 09 afgrei6sluma6ur íiman* tt Kannpctg þ o r s 111 n s1>6111 r, f>amt>an6ðþa&tnu. Srffjar>ií. 2tygrst5aía Cimant er i Sambanöðtjúsinu. ©pin ða^lega 9—(2 f. t). Stmi ^96. XIV. ár. Reykjavik, 1. febi'úar 1930. Úrslit kosninganna ihaklið á fallauda fæti f síðastliðnum mánuði fór fr»m kosning bæjarstjórna í öllum kaupstöðum landsins. Var gengið til þessara kosninga samkvæmt lögum frá síðasta þingi, en þar er svo fyrir mælt, að alla bæjar- fulltrúa skuli velja i einu, og á fjögurra ára fresti. Síðasta kosningin fór fram í Reykjavík laugard. 25. f. m. og úrslitin urðu kunn aðfaranótt þriðjudags s. 1. Þessar bæ j arst j órnarkosningai' eru ákaflega eftirtektai’verðar. f úrslitunum koma fraxn tvær stað- reyndir svo glöggar, að ekki verð- ur um villst: Að íhaldsflokkurinn er kominn í minnahluta í sjálfum kaupstöð- unum og Að Framsóknarflokkurinn á meira fylgi meðal bæjabúa en nokkur hefði þorað að vona fyrir- fram. Kaupstaðirnir átta velja alls 80 bæjarfulltrúa. Eftir kosningarnar skiftast þeir svo á milli flokk- anna: Framsóknarmenn . . 8 Jafnaðarmenn . . . . 86 íhaldsmenn........86 Af 80 bæjarfulltrúum á íhalds- flokkurinn aðeins 36. 10% af bæj- arfulltrúunum eru Framsóknar- menn. í kaupstöðunum átta hafa ver- ið greidd alls við kosningaraar 188355 atkvæði. Atkvæði skiptast SVO' Framsóknarflokkurinn 2066 atkv. Jafnaðarm.flokkurinn 7235 — íhaldflokkurinn 9029 — Utan flokka (á Sf.) 25 — Ihaldsflokkurinn hefir þannig fengið um 300 atkv. færra en andstæðingar hans samanlagt. Framsóknarmenn hafa fengið rúml. 11% af atkvæðunum eða heldur meira en sem svarar full- trúatölu flokksins. Þessi kosningaúrslit eru mikil tíðindi. Það var fyrirfram kunnugt, að íhaldsílokkurinn vai- orðinn í minnahluta í landinu. En að hann væri búinn að missa meirahluta í kaupstöðunum, hefir víst fáa grunað, jafnvel ekki andstæð- inga. íhaldsflokkurinn ei’ eins og kunnugt er, fyrst og fremst flokkur stórútgerðarmanna, efn- uðustu kaupsýslumanna og launa- hæstu embættismanna í kaup- stöðunum. Og meginþorra kjör- fylgis hefir flokkurinn hingað til átt í kaupstöðunum. Meirahluta- vonir flokksins hafa ávalt verið byggðai' á þeirri trú, að það kjörfylgi gæti ekki brugðizt. Vit- anlega á margt af því fólki, sem stutt hefir íhaldsflokkinn til kosninga, enga samleið með hon- um í raun og veru. Merkur borg- ai’i lét eitt sinn þau orð falla, að í Rvík væru einir 8 menn, er hefðu hag af því að vera íhaldsmenn. Þetta er sjálfsagt ofmælt. En hitt er víst, að mikið af verka- lýð og miðstéttum bæjanna hefir fylgt íhaldsflokknum í fullkom- inni blindni eða af því að milli öfga einna var að velja, þar sem Jafnaðarmennirnir voru annars- vegar en enginn miðflokkur. En af öllum kosningunum er þó kosningin í Reykjavík merki- legust. I Reykjavík býr fjórði hluti þjóðarinnar. Reykjavík hef- ir allt til þessa dags verið höfuð- vígi íhaldsflokksins hér á landi. Jafnvel þetta vígi er að falla. Eins atkvæðis meirahluta eiga íhaldsmenn nú í bæjarstjórn Reykjavíkur. Og sá meirihluti er þannig saman settur, að búast mætti við að hann sundraðist við fyrstu raun. Sigurinn, sem Framsóknarmenn unnu í Rvík á laugardaginn, er í raun og veru einhver stærsti kosningasigur, sem unninn hefir verið hér á landi. Aldrei fyr hef- ir flokkurinn haft menn í kjöri við kosningar í Rvík. Og langsamlega mestur hluti Reykvíkinga hefir ekki átt kost á annari fræðslu um starfsemi Framsóknarflokks- ins en hlutdrægum og miður ráðvandlegum frásögnum í Morg- unblaðinu. Svo að segja vamar- laus hefir Framsóknarflokkurinn staðið gagnvart árásum bæjar- blaðanna á hverjum einasta degi í heilan áratug. Framsóknarmenn hafa aldrei dregið neina dul á það, að þeir væru fyrst og fremst flokkur landbúnaðarins. Dag eftir dag og ár eftir ár hafa bæjarblöðin notað þá hreinskilni til þess að telja kjós- endum þessa bæjar trú um, að flokkurinn væri Reykjavík fjand- samlegur. Úrslit bæjarstjórnarkosning- anna í Reykjavík sýna það, að góður málstaður má sín meira en illt umtal. Og þau úrslit sýna það, að a. m. k. 12% reykvískra kjósenda kunna að meta við- leitni þeirra manna, sem innan hinnar æðisgengnu veraldarsam- keppni berjast fyrir lífi íslenzku þjóðarinnar og íslenzkrar menn- ingar. Hitt sýna þau vitanlega ekki hversu mörgum sinnum 12% myndu hafa fylgt Framsóknar- flokknum, ef þeir hefðu átt kost á að kynnast stefnu hans og starfi eftir öðrum heimildum en blöðum andstæðinganna. Ósigur Ihaldsflokksins verður enn meir áberandi, þegar gætt er þess aðstöðumunar, sem hann nýtur fram yfir aðra flokka við undirbúning kosninga. thalds- flokkurinn á í sínum hópi þá menn, sem mest fjárráð hafa í þessu landi, menn, sem flestir eru ótrauðir til að leggja fé í kosningasjóði, þegar um það er að ræða, að vemda hagsmuni þeirra í þjóðfélaginu. Og þessir menn hafa áreiðanlega einskis látið ófreistað til að vinna kosn- ingarnar. En úrslitin eru ósigur íhaldsflokksins. Úrslitin eru greinileg viðurkenning til þess flokks og- þeirrar stjórnar, sem íhaldsflokkurinn hefir varið mestu fé og fyiirhöfn til að af- flytja frammi fyrir kjósendum. Skýring þessara eftirtektai'- verðu úrslita er ein: Ihaldsflokkurinn er á fallanda fæti. Sá flokkur kemst aldrei framai’ í meirahluta á Islandi. -----o---- Stórslysin I æfintýrunum var það svo að tvö slys máttu manninn henda, án þess að yfir lyki, en ef hon- um slysaðist í þriðja sinn, þá var öll sagan hans. En í æfintýranum lig'gur gjarna fólginn sannleikur. Árið sem leið mun jafnan talið hið mesta merkisár í sögu aftur- haldsins á íslandi. Slysin, sem yfir það hafa dunið eru svo al- varleg, og þó öll sjálfskaparvíti, og þess vegna alvarlegust, og munu lengi í minnum höfð. Er þess þá fyrst að minnast, sem fyrst bar að. I þinglokin í fyrra, eftir að Ihaldsflokkurinn hafði leikið þann leik, sem áður var óþekktur á landi hér, að stofna til óendanlegra málaleng- inga á þingi, í þeim tilgangi ein-. um að eyða fé ríkisins og tíma þingsins — og mun það óyndis- úrræði stjórnmálaflokks lengi á honum hvila sem svartur blett- I ur — þá greip flokkurinn til ann- \ ars óyndisúrræðisins frá, sem var það að: týna nafni flokksins. Af ótta við sína pólitísku for- tíð, af ótta við að missa völdin í bæjarmálum Reykjavíkur gerði íhaldsflokkurinn þann kaupskap við eiganda Vísis, Jakob Möller og við Sigurð Eggei'z, að þeir skvldu fá styrk til þingsetu frá íhaldinu, gegn því að þeir og Vísir styddu íhaldið til áfram- haldandi valda í Reykjavík. Og samningurinn var innsiglaður með þessu, að flokkui'inn týndi nafni sínu og stofnaði til mjög stórfelldrar nafnfölsunar. Þetta var fyrsta slysið. En ekki var þess langt að bíða að fleiri tíðindi bærust líks efnis, enda er sjaldan ein báran stök. Það gerðust önnur tíðindi ná- lega samtímis. Það var augljóst opinberlega að jafnframt því, sem búið var að týna nafni flokksins, þá vai' jafnframt búið að: týna foringja flokksins. Við eigi lítinn gust hafði Jón Þorláksson verið foringi Ihalds- flokksins — „heili heilanna“ var hann kallaður, það mátti ekki minna kosta! Nú var „heili heilanna“ ekki lengur nógur til forystu aftur- haldsins. Það var auglýst að for- ystan væri nú fengin í hendur þriggja manna nefnd. Tvo þurfti nú til viðbótar til að bæta upp „heila heilanna“. önn- ur bótin var Magnús Guðmunds- son, hin var Sigurður Eggerz. Hversu mikið var það, sem þurfti til að bæta upp „heila heilanna“! Og nú var um að gera að ekki kæmi fyrir þriðja stórslysið, enda mun afturhaldsliðið hafa treyst því að hin mjög endurbætta for- menska, hjá hinum svo plástraða og þríeflda „heila heilanna“ myndi forða þriðja stórslysinu. En í svartasta skammdeginu voru enn ein ráð ráðin hjá for- ystumönnum Ihaldsins — feigðar- ráð. Þeir bættu við sig þriðja stórslysinu. I viðbót við það að týna nafni flokksins og að týna foringja flokksins, var það nú sameiginlega ákveðið að: týna blaði flokksins. Að vísu átti hann ekki úr hár um söðli að detta, Varðar-tetur Keppnin um kol&markaðinn Kolaframleiðslan í heiminum og keppnin um kolamarkaðinn eru meðal þeirra viðfangsefna, sem talið er að ekki verði leyst á ann- an hátt en með alþjóðasamkomu- lagi. Vinnumáladeild þjóðabanda- lagsins hefir haft málið til með- ferðar. Og um miðjan síðastl. mánuð var kvödd saman í Genf nefnd, sem á að taka það til frek- ari íhugunar og koma fram með tillögur. Er nefnd sú skipuð full- trúum kolanámulandanna, þeirra, sem þátt taka í starfsemi þjóða- bandalagsins. Kolaframleiðsla Norðurálfunnar er aðallega í fjóram löndum: Englandi, Frakklandi, Þýzkalandi og Póllandi. I öllum þessum löndum hafa nú á síðustu árum komið fram miklir erfiðleikar í sambandi við rekstur kolanámanna. Framleiðslan er of mikil. Vaxandi notkun steinolíu og rafmagns dregui- úr kolanotk- uninni. Framboð kolanna er meira en eftii’spui'nin á markaðinum. Af þessu mikla framboði leiðir taumlausa samkeppni milli ein- stakra framleiðenda og þó eink- um milli kolalandanna út á við. Þessi harða samkeppni liefir hvað eftir annað haft í för með sér breytingar á atvinnu- og skatta- löggjöf þeirra þjóða, sem hlut eiga að máli. Þannig tók stjórn íhaldsmanna í Englandi upp það ráð, að veita námueigendum ríkisstyrk til þess að styðja þá í baráttunni við hina útlendu keppinauta. Þótti þá mörgum langt gengið, er farið var að styrkja einn aðalatvinnuveg landsins af opinberu fé, án þess þó að með því væru sköpuð nein varanleg verðmæti. Þvílík ráð eru heldur ekki nein framtíðarúr- lausn. Ivilnanir í löggjöf eins lands leiða ekki af sér neitt annað en tilsvarandi ívilnanir í löggjöf hinna landanna, er um markaðinn keppa. Kauplækkun eða lenging vinnutíma í einu landi er heldur ekki nema bráðabirgðalausn, af því að hin löndin fara nákvæm- lega eins að — verða að gjöra það, til þess að verða ekki undir í hinni blindu, æðisgengnu sam- keppni. En n ú er það að verða almennt viðurkennt, að binda þurfi enda á þessa blindu samkeppni milli þjóðanna, að hún muni, ef hún verður látin óhindruð, leggja kolanámurekstur Evrópu í rúst- ir, að námueigendurnir muni tapa fé sínu, og að þær miljónir manna, sem í námunum vinna, neyðast til að leita á náðir hins opinbera. Úrræðin sem bent er á til þess að koma viðunanda skipulagi á námureksturinn og kolasöluna eru einkum þessi: Að lógfesta jafn langan vinnu- tíma í kolanámum allra landa. Að greiða námuverkamöimum alstaðar sama kaup. Að námulöndin skifti milli sín markaðinum og gjöri fasta samn- inga um þá skiftingu. Að komið verði á nýjum og hagkvæmari vinnuaðferðum í námunum. Vinnutími verkamanna í nám- unum er víðast hvar ákveðinn að nafninu til og má eigi fai'a fram úr átta stundum daglega. Þó er þessi átta stunda vimm- dagui' reiknaður á ýmsan hátt Mun t. d. ekki alstaðar eins á það litið, hvað telja beri vinnu og hvað ekki. Laun verkamannanna eru mjög mismunandi í námulöndunum. Hæzt eru þau í Englandi, en lægst í Póllandi. Samkvæmt skýrslum vinnumáladeildar þjóða- bandalagsins var vísitala verka- launanna, sem hér segir (miðuð við England): I Englandi . . 100 I Hollandi .. 96 I Þýzkalandi . . 62—75 1 Belgíu . . . . 68 1 Frakklandi . 65 1 Póllandi . . 50 u laun námumannanna Póllandi þannig helmingi lægri en stéttarbræðra þeirra i Eng- landi. Vegna þess eru pólsk kol mjög ódýr og mikið notuð t. d. í Danmörku. Sú aðferð að skifta markaðin- um milli seljenda, er ekki óþekkt nú á seinni árum. Tíðkast hún mjög hjá gróðahringum, sem vilja forðast samkeppni, en ekki er hún þá til hagsbóta fyrir neytendurna. Er skammt að minnast á „kjötstríðið" í Eng- landi, sem skall á fyrir rúmum 2 árum. Enska kjötstríðið kom af því, að samningar nokkurra am- erískra verzlunarfélaga um skift- ingu enska markaðarins rofnuðu, og buðu félögin þá verðið niður hvert fyrir öðru. 1 Englandi a. m. k. hafa verið uppi háværar raddir um það, að vinnuaðferðir í námunum væru úreltar og óhæfilega dýrar. Mun réttmæti þessara ásakana nú al- mennt viðurkennt. En námueig- endurnir sem leggja alla sína orku í hina hörðu samkeppni, segjast ekki hafa efni á að kaupa nýjar vélar og koma á vinnu- brögðum í sami*æmi við kröfur tímans. Námueigendurnir kvarta um bága rekstursafkomu. Verka- mennirnir draga fram lífið á allra naumustu þurftarlaunum. Ríkis- fjárhirslurnar standa tómar af því að einn stærsti atvinnuvegur álfunnar getur ekki greitt skatta. Svarið við kvörtunum og ásökun- um hinna óánægðu er að verða ótvírætt: Lausnina er að finna í 1 samkomulagi milli þjóðanna. Veg- urinn til nýtísku atvinnurekstrar í kolanámunum liggur yfir höfuð- svörðum hinnar óhindruðu sam- keppni. — en þetta var þó hið opinbera málgagn afturhaldsliðsins. Og nú var ákveðið að láta Varðartetur týnast og deyja — og það hví- líkum dauðdaga! Isafold — viku- útgáfa Morgunblaðsins, virðinga- minnsta og vesælasta blað lands- ins, sem endurprentar úrkastið úr Morgunblaðinu og sem því næst er útbýtt ókeypis um allar bygð- ir — Isafold var látin gleypa Vörð, með húð og hári. Slík tíðindi eru áreiðanlega einsdæmi í sögu stjórnmálanna — ekki aðeins hér á landi heldur og um víða veröld. Slíkt hefir

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.