Tíminn - 15.02.1930, Page 2

Tíminn - 15.02.1930, Page 2
26 TlMINN eftir samkomulagi við banka- stjórnina. Nú hefir það sannast, að bankaráð Islandsbanka hefir samþykt þessa þýðingarlitlu skyndirannsókn, sem stóð yfir í tæpan sólarhring. Forsætisráð- herrann framkvæmdi aðeins á- lyktun bankaráðsins, af því, að hann, samkvæmt lögum, er for- maður þess, og ber bankaráðið en ekki hann, ábyrgð á þeinn ályktun. Ríkisstjórnin átti þar engan hlut að máli. VII. Bankastjóramir segja ennfrem- ur: „Hefir nú upp á síðkastið borið á hræðslu hjá innstæðu- eigendum í bankanum, en hann ekki fær um að standast óeðli- legar úttektir af innlánum og öðrum innstæðum". Nú er það komið í ljós, að ein- hverjir af bankastjórum Islands- bánka hafa, rétt áður en bank- anum var lokað, svarað fyrir- spurn frá Hambro’s Bank. Ham- bro’s Bank spurðist fyrii um það, hvernig stæði á verðfalli hlutabréfanna. Bankastjórar Is- landsbanka svöruðu á þá leið, að þeim væru ekki kunnar neinar orsakir til verðfallsins. Hér er ekki allt með felldu um fram- komu bankastjóranna. Hambro’s Bank er gefið í skyn, að allt sé með kyrrum kjörum, en fjármála- ráðherrann fær tilkynningu um það, að „borið hafi á hræðslu hjá innstæðueigendum". Þessar ósam- hljóða frásagnir koma báðar frá sömu bankastjóm og á sama tíma. VIII. Með því, sem nefnt er hér að framan, en það sannað, að banka- stjórar íslandsbanka hafa gefið skýrslu, sem er röng í mjög þýð- ingarmiklum atriðum. Fyrir þá skýrslugjörð verða þeir vitanlega að svara á sínum tíma. En við lestur þessarar miður áreiðanlegu skýrslu, liggur nærri að spyrja, hvort ekki muni vera fleiri rann- sóknarefni, en hingað til hefir verið vakið máls á, í sambandi við ráðsmennsku bankastjóranna í íslandsbanka. Myndi ekki vera eitthvað athugavert við sumar þær ráðstafanir, sem gjörðar voru síðustu mánuðina áður en bankanum var lokað. Sigurður Eggerz sagði í þingræðu 10. þ. m„ að oft hefði verið svo ástatt í bankanum, þegar bankastjóram- ir mættu þar að morgni, að þeir hefðu ekki vitað, hvort þeir gætu haldið bankanum opnum allan daginn. Þrátt fyrir þetta taka bankastjóramir við innlánsfé fram á síðasta dag. Og þeir gjöra annað enn verra: Þeir bjóða óeðli- lega háa vexti af innlánsfé. Hefir það m. a. sannast um innstæðu Reykjavíkurbæjai' í bankanum. Vitandi um hag bankans beita bankastjórarnir öllum ráðum, jafnvel vaxtahækkun, til þess að fá fólk til þess að fela honum fé til geymslu. Af þessu er það augljóst, að það er þögnin ein, sem verndað hefir starfsemi Is- landsbanka fram til 3. febr. s. 1. Hefði Sigurður Eggerz, jafnskjótt sem tilefni gafst, rofið þá þögn með samskonar yfirlýsingu og hann gaf í nefndri ræðu á Al- þingi, væri bankinn fyrir löngu hruninn. IX. Það hefir komið ótvírætt fram hjá þingmönnum íhaldsflokksins og í blöðum þeirra, að þeir telji stöðvun á starfsemi íslaiidsbanka Dansk-íslensk stjórnmálaviðskífti Danir og Islendingar hafa lot- ið sama konungi í margar aldir, og á þeim langa tíma átt að sjálf- sögðu margskonar stjórnmála- viðskifti. Stærðar- og orkumun- ur þjóðanna var mikill, og lengst af þessum sambúðartíma varð smáþjóðin í flestum efnum að sætta sig við sjálfdæmi hinnar stærri frændþjóðar, þegar hags- munir landanna rákust á. Þegar konungur sleppti einveldi sínu yfir ir Dönum og þingstjóm komst á þar í landi 1849, tókst ekki að fá danska stjórnmálamenn til að láta af hendi samskonar frelsi til handa íslenzku þjóðinni. Nú- tímaframfarir Noregs hefjast um 1814, með þjóðfrelsi landsins. Framfarir Dana hefjast eftir 1850, en umbótaöld Islendinga byrjar ekki fyr en 1874, að Al- þingi fékk að talsvert miklu leyti undirtökin um stjóm lands- ins. Jón Sigurðsson var þá orð- inn gamall maður og andaðist litlu síðar. Hann hafði neyðst til að eyða mestallri æfi sinni í baráttuna- um það frelsi landinu til handa, sem átti að koma 1849, en fékkst fyrst að nokkru leyti 1874, og að ýmsu leyti ekki fyr en 1904. Ef Jón Sigurðs- son hefði mátt nota mátt sinn til að beitast fyrir hinni inn- lendu viðreisn, myndi þjóðin nú vera fjölmennari en hún er og framfarir og umbætur í landinu standa fastari fótum. Með réttu má segja að fram að 1918 sleptu danskir stjóm- málamenn ógjaman nokkru af valdi því, er þeir töldu Dani hafa yfir Islandi frá einveldistímun- um. En um leið og Danir endur- heimtu Suður-Jótland, að því leyti, sem það var danskt land, breyttist mjög viðhorf danskra stjómmálamanna til Islands. Á sama ári og Danir fengu aftur lönd þau með dönskum íbúum, er Þjóðverjar höfðu af þeim tekið 1864, gerðu þeir samning við Is- lendinga, þar sem viðurkennt var að löndin væru jafn réttháir að- ilar. Island var þá viðurkennt sjálfstætt ríki, en með samningi var Dönum falið um aldarfjórð- ung að fara með nokkur mál fyr- ir íslands hönd. I samningnum var beint gert ráð fyrir, að eft- ir 25 ár gætu Danir og íslending- ar tekið samninginn millí land- anna til meðferðar að nýju. Og það var samningslega tryggt, að ef íslenzka þjóðin óskaði þá að taka í sínar hendur þau mál, er um stund höfðu verið falin dönsk- um stjórnarvöldum, þá væri til þess fullnaðarréttur. Til þess að ísland yrði fullkomlega sjálfstætt ríki, þurfti eftir samningnum frá 1918 ekki annað, en að íslenzka þjóðin vildi slíka heimastjórn og væri sökum manngildis og menntunar fær um að stjóma sínum eigin málum. Sambúðin milli íslendinga og Dana hafði yfirleitt verið slæm frá 1830, að frelsishugur þjóðar- innar vaknaði og fram að 1918, er fullveldi landsins var viðurkennt. Danir höfðu yfirleitt kunnað illa sjáifstæðiskröfum Islendinga. Jafnvel tiltölulega frjálslyndur maður eins og Georg Brandes hafði verið þröngsýnn, ókurteis og ósanngjarn í garð íslendinga, af því hann þoldi ekki frelsis- kröfur þjóðarinnar. Að sama skapi var djúptæk óvild til Dana, og alls þess er danskt var í hug- um margra hinna þjóðræknustu manna á lslandi. Danir beittu á þessum tíma venjulega vopnum hins sterkara, en Islendingar sóttu á með úrræðum hins veika. Skorti ekki af hálfu íslendinga stóryrði og sífelda tortryggni í garð Dana, sem venjulega reynd- ist þó þróttlítil, er til verulegra átaka kom. En eins og áður er sag-t ger- breyttist viðhorf Dana til Islend- inga 1918, og má segja að sú breyting hafi orðið í allri hinni dönsku þjóð, frá hinum hæst- settu tl hinna umkomuminnstu. Danir höfðu viðurkennt þjóð- frelsi Islendinga og þeír vildu þjóðarógæfu og álíta að traust landsins út á við bíði við hana varanlegan hnekki. Nú væri ástæða til að ætla, að þessir sömu menn vildu ekki auka á þau traustsspjöll, sem ástæður Is- landsbanka valda að þeirra dómi. Ætla mætti, að þeir gættu þess að minnsta kosti að láta þjóð- bankann og starfsemi hans í friði og vöruðust að blanda honum inn í deilur, sem eiga sér stað í sam- bandi við útlendan hlutabanka. En þetta hefir orðið á annan veg. Annar aðalforingi íhaldsmanna, Sigurður Eggerz, hefir í þinginu staðið fyrir þrotlausum árásum flokks síns á hendur Landsbank- anum. I stað þess að gjöra til- raun til að afsaka framkomu sjálfs sín, flokks síns og með- stjórnenda við Islandsbanka hefir hann haldið hverja ræðuna eftir aðra til þess að ásaka Landsbank- ann. Ilann hefir hvað eftir annað með berum orðum leyft sér að skella á Landsbankann skuldinni fyrir lokun íslandsbanka, þó að hann hljóti að vita sjálfur, að sú staðhæfing er algjörlega rakalaus. Þvert á móti á Islandsbanki það beinlínis Landsbankanum að þakka, að. stöðvunin kom ekki fyr en raun varð á, þar sem Landsbankinn hefir veitt honum miklu meiri fjárhagslegan styrk en skylt var eftir lögum. Morgun- blaðið hefir jafnvel gengið svo langt að benda sparifjáreigend- um á að flytja fé sitt úr Lands- bankanum til útlanda. Jafnframt hafa verið breiddar út kviksögur um það, að sparifé sé tekið út úr bankanum í stórum stíl og jafn- vel, að bankinn væri að því kom- inn að loka. Óhróður þessi hefir jafnvel verið breiddur út um lands símleiðis. Vegna opinberrar standa við samninginn. Fyrir mjög mörgum hinna beztu manna í landinu mun hafa vakað sú hugsun, að þessar tvær frænd- þjóðir myndu geta lifað um langa stund við það jafnrétti, sem fengið var með þeim breyt- ingum, sem reynslan sýndi að við ættu. Leið svo að ekki bar fcil tíðinda í þessu máii, þar til Mbl. og ein- staka stjórmnálamenn nátengdir því, hófu að því er virtist til- efnislaust einskonar herferð á móti Dönum, og var tilefnið tal- ið það, að Danir sætu á svikráð- um við frelsi landsins, og vildu í verki innlima íslenzku þjóðina í danska ríkið. Menn eins og Sig- urður Eggerz, sem þegar hann átti sæti í landstjórninni hafði umyrðalaust fyrir landsins hönd haft yfirumsjón landhelgisgæzl- unnar, er dönsk skip fram- kvæmdu, ritaði nú hverja ádeilu- greinina af annari út af hinu samningsbundna starfi dönsku varðskipanna hér við land. Vinna dönsku varðskipanna hér við land var alveg hin sama 1922—24, eins og 1927—29. En á síðara tímabilinu var S. Eggerz farinn að nota íslenzkt utanríkismál sem kosningabeitu, og af því stafaði hið breytta viðhorf. Af íhaldsmönnum var hinn dansk- íslenzki blendingur, ólafur Thors, sá sem næstur stóð Sigurði Egg- erz um það að nota viðhorfið til dönsku þjóðariiínar, sem æsinga- mál innanlands. Blað það, sem Sig. Eggerz gaf út ól á stöðugri óvild til Dana, hræðslu við svo- kallaða danska innlimun, og tor- tryggni í garð Dana. Blaðið var nauðaómerkilegt, hafði eiginlega enga kaupendur, en var sent gefins á flest eða öll heimili í kjördæmi því, sem ÍS. E. er nú þingmaður fyrir. Svo lítið mark var tekið á S. E. og blaði hans að bví mun nálega aldrei hafa verið svarað, eða nokkurt mai’k tekið á orðum þess. Hinsvegar spillti blaðið fyrir Islandi erlendis, með því að erlendir menn, sem fengu einhverja vitneskju um það, sem var skrífað, töldu að maður, sem framkomu íhaldsflokksins verður ekki hjá því komizt að krefja hann til ábyrgðar á þessu atferli. Slík er umhyggja íhaldsmanna fyrir f jármálaheiðri íslenzku þjóð- arinnar, lánstrausti ríkisins í út- löndum og hagsmunum þeirrar peningastofnunar, sem er lands- ins eigin eign. En þetta er ekki í fyrsta sinn, sem íhaldsflokkurinn sýnir hug sinn í garð Landsbankans. Þegar bankinn var tekinn út í hendur bankaráðsins, voru til þess valdir íhaldsmenn einir og meðal þeirra sá maður, sem bankanum hefir reynst allra núlifandi íslendinga óþarfastur, Björn Kristjánsson kaupmaður. En nú heimta ólafur Thors og samherjar hans, að rannsókn íslandsbanka sé falin þeim mönnum einum, sem ekki hafi komið nærri stjórnmálum. Sú viðkvæmni var ekki til stað- ar, þegar banki þjóðarinnar átti í hlut. Væri hagur Landsbankans ekki svo góður og traust hans svo öi'Uggt, sem raun er á, gætu slíkar árásir verið honum mjög hættulegar. Ef bankinn ætti ekki 8 milj. kr. innstæður erlendis og auk þess ríkisábyrgð að baki sér, gæti ábyrgðarleysi andstæðinga hans haft alvarlegri afleiðingar út á við en nokkurn mann grun- ar, En bankinn stendur föstum fótum. Hér á landi hafa árásirn- ar á hann sem betur fer ekki haft meiri áhrif en svo, að innlög í bankann hafa stórum aukizt, síð- an íslandsbanka var lokað. Nú má alþjóð vera það ljóst, að meira hermdarverk yrði ekki unnið en ef tækizt að skerða traust Landsbankans á þeim al- varlegu tímum, sem nú standa yfir. Og lítil hannabót væri það gegnt hefði þrívegis störfum í landsstjórn íslands gæti ekki með öllu verið utan við líf þjóð- arinnar. Næsta sporið í sömu átt var það, er þeir Sig. Eggerz og Ól- afur Thors sameinuðu fiokka sína. íhaldsflokkurinn vildi allt til vinna að komast í meirihluta á þingi, og fá stjóniaistöðu í land- inu. Lið Sig. Eggerz var að vísu lítið, en þó taldi íhaldið að með sameiningu mætti vinna 1—2 sæti á Alþingi. Jóni Þorlákssyni og hinum ráðsettari mönnum íhaldsflokksins var sameining þessi ógeðfelld, með því að hann ól í brjósti sér rótgróna fyrir- litningu á S. Eggerz og glamri hans og yfirborðsframkomu. En Jón Þorláksson skorti þá for- ingjahæfileika, sem á þurfti að halda. Hann lét bugast af straumnum, sætti sig við að vera ekki lengur formaður flokksins, heldur í ráði eða nefnd við hlið Sig. Eggerz. Sig. Eggerz og Ólafur Thors réðu því að hinn nýi flokkur var skírður sjálfstæðisflokkur, og nafnið átti að helgast af því að nú væri barizt móti dönskum yfirráðum og danskri kúgun. Á hitt var ekki minnst, að í þess- um nýja flokki var nálega enginn maður, sem hafði með rögg og myndarskap tekið í deilumálin með íslenzka málstaðnum fyrir 1918, meðan á í’eyndi, heldur að í þessum svokallaða sjáifstæðis- flokki voru nálega allir þeir menn á Islandi, sem í raun og veru voru ki'öfulágir og lítilþægir um allt er laut að raunverulegu sjálf- stæði landsins. En því minm sem sjálfstæðisandinn var hjá hinum sjálfskírðu „sjálfstæðismönnum", því meira og háværai'a var glamr- ið og yfirlætið í orði. Aðalblað Ihaldsmanna Mbl. ól á tortryggninni í garð Dana. Eitt hið sorglegasta dæmi í þeim efn- um er grein sú er blaðið birti í sumar í tilefni af för Jóh. Jó- hannessonar á lögjafnaðarfund í Danmörku. Þrátt fyrir þá aug- ljósu annmarka, sem á því voru fyrir þann mann að mæta sem þeim, sem valdið hafa óförum ís- landsbanka, þó að skammsýni þeirra og forsjárleysi yrði til þess að draga þjóðbankann út í þann sama ófaraað. ----o-- Innlendar fréttir Tíðaríarið vikuna sem leið hefir verið milt en stormasamt. Vestan- lands hefir verið úríellasamt en flesta dagana þurrt og bjart austan lands. Hlákan sem byrjaði fyrir síð- ustu helgi, hélst að mestu óslitin til miðvikudags, oftast með 6—7 st. hita. Á fimtudag gekk á með útsynnings- éljum vestan lunds og norðan, en að- faranótt föstudags brá til norðanáttar með 5 i sl. frosti á Norður- og Austurlandi, en 2—3 st. frosti sunnan lands. Eftir hlákuna var snjór að miklu leyti horfinn af láglendi en með norðanáttinni hefir gert dálítið löl um allt Norður- og Austurland. Gæitir liafa verið mjög slœmar alla vikuna. í Sandgerði mun t. d. aldrei hafa verið sóttur sjór Jæssa viku. Hefir ýmist úfinn sjór eða stormur hamlað. Sigurður Skagliold söngvari fór héðan með Gullfossi í fyrradag á- leiðis til útlandu. Síðan Sigurður kom að norðan hefir hann sungið tvisvar sinnum iiér í fríkirkjunni og hlotiö lof að venju. Er Sigurður jafn- an aufúsugestur, þar sem hann læt- ur til sín heyra. Væntanlega kemur liann altur hingað til lands á sumri komanda. Helfli P. Briem skattstjóri hefir af skattamáladeild þjóðabandalagsins \erið kvaddur til þess að standa í bréfaviðskiftum við þjóðabandalagið um skattamál. Er Helga Briem með þessu rnikill sómi sýndur og ís- lenzku þjóðinni viðurkenning. Priygja manna nefnd hefir fjár- málaráðherra skipað tii þess að fulltrúi þjóðar hjá annari þjóð, eins og' þá stóð á, þá fullyrti Mbl. að nærvera Jóh. Jóhannes- sonar á íundinum væri lífsnauð- synleg fyrir frelsi Islands. Blaðið taldi að á þeim fundi yrði tekið tii meðferðar sá liður sambands- laganna, sem ræðb' um gagn- kvæman rétt þegnanna. Að Dan- ii- sæktu þar á væri sjálfsagfc. En fáir væru til varnar ef ekki næð- ist til Jóh. Jóh. Fulltrúi verka- manna íslandsmegin, Jón Bald- vinsson væri fyrirfram fastur liðsmaður danskrar yfirdrotnun- arstefnu á Islandi, vegna þess að danskir socialistar hefðu látið fjárstyrk til flokksbræðra sinna á íslandi. Og um fulltrúa Fram- sóknarflokksins í nefndinni, þann sem þetta ritar, fullyrti Mbl., að hann væri gersamlega á valdi Jóns Baldvinssonar, sökum hlut- leysis verkamanna gagnvart nú- verandi landsstjórn. Út frá þess- um forsendum fullyrti Mbl., að báðir fulltrúar íhaldsmanna þyrftu að fara á fundinn til að verja land sitt og rétt gagnvart hinum áleitnu Dönum. Þetta dæmi sýnir aðferð í- haldsmanna, eftir að þeir gerðu kosningafélag við Sig. Eggerz. Síðan þá hafa þeir gert ímynd- aða yíirgangsstefnu Dana gagn- vart Islandi að megininnihaldi flokksbaráttu sinnar. Bai’dagaað- ferð Mbl.-flokksins verður í þessu efni enn broslegri, þegar þess er gætt, að umræður í lögjafnaðar- nefnd hafa ekkert ályktunargildi og að Jóh. Jóhannesson sat einis og skuggi á fundinum, og tók ekki til máls, nema um eitt at- riði, sem reyndist þá strax byggt á ókunnugleika og misskilningi. Nú hófst fundur sá í Khöfn sem Mbl. gerði ráð fyrir að Jóh. Jóhannesson þyrfti að sækja til að stöðva yfirgang Dana. Liðu svo nokkrir dagar, að ekki bar til tíðinda. Var lokið venjulegum fundarefnum á venjulegan hátt. En er leið að fundarlokum kvaddi Kragh fulltrúi vinstrimanna sér hljóðs, og óskaði eftir að fram kæmu frá hálfu íslendinga skýr- ingar á því, hvað Danir hefðu

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.