Tíminn - 15.03.1930, Síða 3
TlMINN
49
Framsóknarfélag Reykjavíkur
heldur fund í Kaupþingssalnum, þríðjudaginn 18. marz n. k. kl. 8Vz
síðdegis.
Einar Árnason fjánnálai’áðherra hefur umræður um bankamálið.
Nýir félagar teknir inn í fundarbyrjun.
Félagsstjómin.
Hugheilar þakkir fyrir auð-
sýnda samúð við andlát og jarðar-
för Guðrúnar Loftsdóttur , Vestri
Holtum, er andaðist 5. febr. síð-
astliðinn.
Aðstandendur.
fram í manni, þá er geðveikin um
leið orðin veruleiki. Jafnvel
„grunur'* sérfræðinga um ókomna
atburði er sama og vissa. Svo
mikill er óskeikulleiki sérfræðinn-
ar að dómi íhaldsblaðanna.
Athugum nú óskeikulleik ann-
ara „sérfræðinga“ með samskonar
undirbúningi og Þórður og Helgi
á Kleppi hafa. Tökum lögfræð-
inga eins og Lárus Bjarnason og
Jóhaimes Jóhannesson, og verk-
fræðinga eins og Sigurð Thorodd-
sen eldra, Jón Þorláksson, Jón
ísleifsson, Geir Zoéga, Árna Páls-
son aðstoðarmann vegamála-
stjóra. Allir þessir menn standa
að skólanámi jafnfi-amariega „sér-
fræðingunum“ á Kleppi.
En um alla þessa menn er vit-
að, að sérfræði þeirra hefir ekki
reynst óskeikul. Lárus Bjarnason
kvað upp harðan sektardóm yfir
Skúla Thoroddsen. „Sérfræðingar“
iandsyfirréttar gjörbreyttu dómn-
um Skúla í vil og danskir „sér-
fræðingar“ í hæstarétti í Khöfn
kollvörpuðu gjörsamlega dómi
Lárusar. Almenningur á Islandi
hefir frá upphafi fordæmt undir-
dóm Lárusar, líkt og hæstiréttur
Dana. Hvar var þá óskeikulleiki
Lárusar, sérfræðings í lögum, er
hann á aldri Helga á Kleppi kvað
upp „dómmn“ í Skúlamálinu? Jóh.
Jóhannesson átti vel að vita af
„sérfræði" sinni í lögum, að hann
átti ekki að tæma sparisjóðsbæk-
ur erfingja í búum er hann hafði
til skipta, og geyma féð stundum
árum saman á vöxtum honum
sjálíum til gróða. En „sérfræði“
Jóh. Jóh. var honum ekki nóg.
Honum skeikaði á sérfræðissviði
sínu, svo sem mest mátti verða og
alþjóð er nú kunnugt.
Ekki hefir verkfræðingunum
gengið betur. Jón Þorláksson hefir
meðal margra annara stóryfir-
sjóna í verklegum efnum á sam-
vizkunni brúarstæðið á Gljúfurá
í Mýrasýslu, Kveldúlfsbúkkann,
sem kinkar kolli framan í Ölaf
Thors um stórsteaumsfjöru,
Norðurárbrúna, sem „heili heil-
anna‘ reiknaði ekki nógu vel út,
svo að áin tók hana. Sig. Thor-
oddsen og Jón ísleifsson hafa
reist óskeikulleika íslenzkrar verk-
fræði óbrotgjarnan minnisvarða
með því að finna ekki „óbilgjömu
klöppina“ á Skeiðunum. En þessi
hógværu og rökföstu ádeilu á H.
T. og framferði læknanna, gat
vitanlega ekki verið geðveikur.
Það þýddi ekkert að reyna að
telja nokkrum manni trú um slíka
fásinnu. Morgunblaðið og Vísir
þögðu, og lögðu sínum bágstadda
samherja ekki eitt einasta liðs-
yrði.
Tveim dögum eftir að Timinn
birti „Stóru bombuna“ gefur H.
T. sína eftirminnilegu játningu í
Morgunblaðinu. Framkoma mín á
heimili J. J. „væri mér til mestu
vansæmdar bæði sem manni og
lækni, ef rétt væri frá skýrt“,
segir Helgi Tómasson.
Eftir heimsóknina í Sambands-
húsið átti II. T. eitt óheiðarlegt
vopn eftir ónotað gegn J. J. og
fjölskyldu hans. Til þessa vopns
grípur hann nú í neyð sinni.
Kona Jónasar Jónssonar hefir
sagt ósatt um það, sem fram fór
í Sambandshúsinu, segir Helgi
Tómasson.
Jafnskjótt sem svar H. T. birt-
ist í Mbl., skoraði Tíminn á H. T.
að skýra frá því undandráttar-
laust og tafarlaust, að hverju
leyti frásögnin í bréfi dómsmála-
ráðherrans um framkomu H. T.
væri röng.
Helgi Tómasson hefir aldrei
oi'ðið við þessari áskorun Tímans.
Hann hefir verið spurður þessar-
litli „skeikulleiki" hinna sérfróðu,
olli því að blómleg sveit var ger-
samlega eyðilögð unz landið hljóp
undir baggann. Yfirsjón bænda
á ‘Skeiðunum var ekki nema sú,
að þeir trúðu þá, en ekki nú, á
óskeikulleik svokallaðra „sérfræð-
inga“.
,,Sérfræði“ Geirs Zoéga hefir að
því er fullkomna alvizku snertir,
fengið lokadóm reynslunnar í
sambandi við „Sýkið“ hjá Ferju-
bakka. Þurfa Borgfirðingar eða
iandsjóður ekki frekari fræðslu
um það efni.
Árni Pálsson er talinn með
efnilegri yngri verkfræðingum.
Hann stóð aðallega fyrir brúar-
gerð á Skjálfandafljóti í sumar,
en Geir hafði yfireftirlit. En þeg-
ar allt var undirbúið með tvö-
faldri ,,sérfræði“, þá var ofurlítil
ályktunarvilla í „óskeikulleika“
Mbl.. Brúin vildi ekki hlýða, og
situr á öðrum bakkanum í allan
vetur, og bíður vors og þess að
„sérfræði“ íslenzkrar verkfræði
verði minna skeikul í ár en í
fyrra.
I hverri sveit á Islandi þekkir
fólkið nærtæk dæmi um rangar
ályktanir „sérfróðra“ manna,
verkfræðinga, lækna og lögfræð-
inga. Almenningur talar sín á milli
um fátt tíðara heldur en dýr og
háskaleg axarsköft, sem ýmsir
þessii' menn hafi framið, í beztu
meiningu, en fyrir vöntun á gáf-
um og þekkingu. En hvað á þá að
segja um Ilelga á Kleppi, þegar
hann vill „spá“ um heilsu manna
í framtíðinni. Ólíkt þarf meiri
skarpskygni til þess en að reikna
út brú eða mæla fyrir skurði.
Mönnum honum færari hefir
hraparlega skjátlast þar sem þeir
gátu þó komið við fullkominni
rannsókn um áþreifanleg efni.
Helgi á Kleppi vill vera „spá-
maður“ fyrir íhaldið um fram-
tíðarheilsufar dómsmálaráðherr-
ans. íhaldsblöðin telja hann
óskeikulan í „sérfræði" sinni. En
almenningur mun líta svo á, að
fyrst að íhaldsdómurum, íhalds-
skiptaráðendum og íhaldsverk-
fræðingum skjátlast svo oft -sem
raun ber vitni um, þá sé lítt að
marka „spádómsgrun" hins
grunnhyggna, kjarklitla, „yfir-
spennta" sendiboða íhaldsins á
Kleppi. R.
----o-----
Bráðabirgðamat
á „drengskap“ Jónasar Krist-
jánssonar (sbr. yfirlýsingu íhalds-
þingmannanna í Mbl. í dag) mun
Tíminn láta fram fara svo fljótt
sem við verður komið.
ar sömu spurningar frammi fyrir
i'annsóknarrétti og þá neitað að
svara henni. Með þögninni hefir
hann játað það, sem öll þjóðin
hefir á tilfiningunni, að frásögn
Jónasar Jónsonar er rétt og að
II. T. hefir orðið „sér til van-
sæmdar bæði sem læknir og mað-
ur“.
VI.
Helgi Tómasson hefir aldrei
þorað að fullyrða það opinber-
lega, að Jónas Jónsson ráðherra
væri geðveikur. I greininni í Mbl.
segist hann aðeins hafa „látið í
ljós þann grun*), að vafi leiki á
um andlega heilbrigði dómsmála-
ráðherrans, og að ástæða geti
verið til að óttast ósjálfráðar at-
hafnir hans, ef sá gimnur er
réttur“.
I sama blaði, sem út kom 12.
marz s. 1., birtir H. T. þá yfirlýs-
ingu, sem hann þá einnig var
búinn að gefa fyrir rétti, að ráð-
herrann hafi aldrei verið undir
sinni hendi sem sjúklingur og að
hann (H. T.) minnist þess ekki
að hafa haft nein veruleg af-
skifti af ráðheri'anum önnur en
þau, sem af starfi sínu leiði (þ.
e. þau viðskifti, sem H. T. sem
*) Allar leturbr. í ummælum þeim,
sem höfð eru eftir H. T. eru gjörðar
af ritstjóra Tímans.
Fréttir
Tíðin. Norðanátt. og kuldatíð alla
þessa viku. BrA til norðanáttar fyrra
laugard, og var þegar komið 5 st.
írost um allt land næsta dag, og á
mánudaginn var frostið orðið 9—10
st. á Norðurlandi. Hefir það haldizt
síðan og suma dagana orðið 15—l2 * * * * 7
st. Grímsstöðum á Fjöllum var frost-
ið 28 st. á fimmtudagsmorguninn og
í Reykjavík hefir næturfrostið orðA
rúm II st. Er þetta mesti frostah.afli,
sem komið hefir á vetrinum.
Veður inátti iieita stillt fram el'tir
vikunni og suma daga mjög gott sjó-
veður. Á mánudagsmorgun gerði
snöggvast SA-storm i Vestmannaeyj-
um, en gekk brátt í noiðrið og
iygndi. Á fimmtudagskvöldið gjörði
loks norðangarð um ailt land er hólst
allan föstudaginn með 10—12 st.
frosti og hríðarveðri á Norður- og
Austurland, en norðanstormi og níst-
ingskulda á Vestur- og Suður-landi.
í dag er komið ágætt veður vestan-
lands og norðan, en ennþá hríðar-
veður austan lands.
Snjólaust má heita á Suðvestur-
landi, en nokkur snjór kominn á
Norðausturlandi.
Um Bretlandseyjar og Norðurlönd
er fremur stillt veðrátta og frostlítil.
Framsóknarfélag Reykjavíkur held-
ur fund í Ivaupþingssalnum á þriðju-
dagskvöld (sjá augl.). Einar Árnason
fjármálaráðherra talar um hanka-
málið.
Uppgripaafli á ísafirði og i Vest-
mannaeyjum.
„Burknar", heitir ljóðabók, sem
kom út fyrir skömmu. Höfundurinn,
Pétur Pálsson, er maður um fimm-
tugsaldur og hefir eigi gefið út ljóð
fyr en nú. Bók þessi mun vera með
betri ljóðabókum, sem út komu á
síðasta ári.
Líkbrennslufélagið danska gerir
Reykjavikurbæ tilboð um að lána
165 þús. króna, til þess að reist verði
bálstofa hér.
Dánardægur. Látnir eru mcrkis-
bændurnir Daníel Jónsson á Eiði á
Langanesi og Ólafur Stefánsson í
Kalmanstungu i Borgarfirði.
Hreindýr hafa í vetur gengið niður
í byggð í Fljótsdalshéraði, sökum
harðinda á öræfum.
Amundsen hefir verið reist minnis-
merki á Kyrrahafsströnd. Er það
granitsúla.
Blliheimilið í Reykjavík er rm nær
fullgert. Mun það kosta um þó milj.
króna.
Siðastliðið ár voru reist 154 hús í
Reykjavik, 132 úr st.ein og 22 úr
timbri. Húsin munu hafa kostað
samtals um 7y2 milj. króna.
Skálda- og listamannastyrk, sam-
kvæmt ákvörðun Menntamálaráðs
hafa hlotið: Halldór K. Laxness og
Guðm. Kamban 1500 kr. hvor. María
Markan söngkona 12*0 kr., Guðni
Kristjánsson söngvari 1000 kr., Jón
embættismaðui' ríkisins þurfti að
eiga við hlutaðeiganda ráðhei'ra).
Þó að ekki væri annað við að
styðjast en játningu H. T. sjálfs,
liggur það alveg í augum uppi,
að hann hafði enga aðstöðu til
að geta vitað neitt um heilsufar
ráðherrans. Yfirlýsing H. T. í
Mbl. 28. febr. segir heldur ekki
neitt um það efni, sem um er
að ræða. Það má náttúrlega segja
um hvaða mann, sem er, að „vafi
leiki á um andlega heilbrigði
hans“, svo lengi sem það gagn-
stæða er ekki beinlínis sannað.
Ilitt, að ástæða „geti verið til að
óttast ósjálfráðar athafnir"
manna, sem ekki eru andlega
heilbrigðir!, er speki, sem ekki
þarf að sækja til „sérfræðinga“.
VII.
Því hefir verið mjög á lofti
haldið í blöðum íhaldsmanna nú
upp á síðkastið, að H. T. einn
væri bær að dæma um andlegt
heilsufar manna, af því að hann
sé „sérfræðingur“. H. T. hefir
þó ekki sjálfur haft meiri trú á
sérfræðinni en svo, að hann virð-
ist hafa ráðgast við nokkra „col-
lega“ sína, sem ekki eru sérfræð-
ingar, um það, hvaða stefnu bæri
að taka gagnvart Jónasi Jónssyni.
Á læknafundi, fundi fáeinna hörð-
ustu andstæðinga J. J„ sem, að
Leifs tónskáld 1000 kr., Eggert Guð-
ímmdsson og Óskar Scheving málar-
ar og þórarinn Jónsson tónskáld 600
kr. hver.
Norski konsúllinn í Leith, sem
jafnffamt er afgreiðslumaður Eim-
skipafélags íslands, hefir gefið f 250
(rúmlega 5500 kr.) til væntanlegrar
dómkirkjubyggingar í Reykjavík.
Vitaver3inum á Reykjanesi hefir
atvinnumálaráðherra vikið frá em-
bætti, sökum óreglu.
Olynipisku leikarnir fara fram í
Caleforniu í Bandaríkjunum árið
1932. íþróttasambandi íslands er boð-
in þátttaka í leikjunum. Einnig er
íslendingum boðið að senda fulltrúa
á minningarhátíð enska íþróttasam-
bandsins í sumar.
Hallæri hefir verið j Kína á þessu
ári. I einu héraði, þar sem neyðin
er einna mest, er talið að 2 milj.
manna hafi orðið hungurmorða árið
sem leið, en þar voru 6 milj. íbúa.
Fjölda mörg þorp ha.fa eyðst algjör-
lega. Rán og ofbeldi er samfara hall-
ærinu og ástandið ömurlegt á allan
hátt. Ujipskerubrestur hefir verið
undanfarin ár í ýmsum héruðum,
þar sem neyðin er mest. Alþjóðafé-
lag hefir verið stofnað í því skyni að
bæta úr þessu ástandi, með fjársöfn-
un o. s. frv., en aðstaðan til þess er
erfið að ýmsu leyti. Við allt þetta
bætist að nú er óvenju harður vetur
i Kína.
í Kóreu biðu hundrað manns bana
af gassprengingu. Voru það flest
skólabörn, sem voru viðstödd kvik-
myndasýningu skamt frá.
-----o----
íhaldið sér að sér.
Þingmenn íhaldsflokksins, allir
17 með tölu, hafa séð þann kost
vænstan að afneita Helga Tómas-
syni opinberlega í Morgunblaðinu
í dag.
Það er alveg vafalaust, að af-
neitun þeirra íhaldsmannanna er
knúin fram af ótta við þá sterku
andúðaröldu, sem risið hefir meðal
almennings um land allt út af
framferði læknisins á Kleppi.
En þó að íhaldsflokurinn kunni
að telja það skynsamlegt að láta
Helga Tómasson standa einan og
yfirgefinn, þegar á reynir, dregur
það á engan hátt úr ábyrgð þeirra
manna sem hótu H. T. því fyrir
mánuði síðan oð sprengja „stóru
bombuna“ á Alþingi.
2 undanteknum, hafa enga sér-
þekkingu á geðveiki, er aðíörin
ráðin. Og þegar H. T. fer að
þræta fyrir söguburð sinn og
réttlæta „gruninn“, ber hann fyr-
ir sig ummæli pólitísks óvildar-
manns ráðherrans, manns, sem
ekki er „sérfræðingur“ í geðveiki,
en hefir íramið læknisaðgjörðir,
sem eru nægilega vafasamar til
þess að vera orðnar að dóm-
stólamáli.
VIII.
Þeirri ljótu sögu, sem rakin
hefir verið að nokkru í þessari
grein, mun nú að mestu lokið.
Tilraun rökþrota andstæðings til
þess að ráða niðurlögum vinsæl-
asta stjórnmálamanns Islendinga
hefii' mistekizt og hlotið verð-
skuldaðan dóm. Atburðirnir skilja
eftir óþægilega minningu um lítil-
sigldan mann, sem varð verkfæri
í höndum ógöfugrar þjóðmála-
stefnu, og galt sjálfur óhappa
sinna. Eftir eina öld eða svo,
verður svar Helga Tómassonar í
Mbl. álíka sögulegt plagg og
morðbréfin frá dögum Jóns Sig-
mundssonar eru nú, og heimsókn
geðveikralæknisins í Sambands-
húsið, verður þá talin hliðstætt
sýnishorn af menningu 20. aldar-
innar, og Sauðafellsför er af sinni
öld.
Alþingi s
Frumvörp og þál.
Frv. um gagnfræðaskóla, frá Ing-
vari Pálmasyni og Erlingi Friðjóns-
syni, flutt að tilhlutun kenslumála-
ráðherra. í Vestmannaeyjum, Hafn-
arfirði, Reykjavík, ísafirði og Akur-
eyri skulu vera gagnfræðaskólar.
Ennfremur er landsstjórninni heimilt
að láta efna til gagnfræðaskóla á
Sigiufirði og Norðfirði, þegar þeir
kaupstaðir óska þess og uppfylla sett
skilyrði. Stofnkostnaður gagnfræða-
skólanna greiðist að þrem fimmtu
hlutum af hlutaðeigandi bæjarfélagi,
en að tveim fimmtu hlutum úr ríkis-
sjóði. Ríkið leggur skólunum til
rekstursfé, sem svarar 100 kr. árlega
fyrir hvern nemanda, gegn framlagi
úr bæjai'sjóðum, 150 kr. fyrir hvern
nemanda. Ríkið leggi fram 90 þús.
kr. samtals á næstu 3 árum til að
¥
reisa gagnfræðaskóla í Rvík. Fyrir-
komulag gagnfræðaskólans á Akur-
eyri helzt óbreytt fyrst um sinn.
— Með þessu frv. er gjörð tilraun til
að samræma löggjöfina um alþýðu-
skóla kaupstaðanna á svipaðan hátt
og áður hefir verið gjört i sveitun-
um með lögunum um héraðsskóla.
Frv. um járnbrautarlagning frá
þingmönnum Árnesinga og Rangæ-
inga og Magnúsi Jónssyni.
Frv. um heimild fyrir ríkisstjórn-
ina til nokkurra ráðstafana vegna
Alþingishátíðarinnar 1930, fré alls-
herjarnefnd efri deildar. Alþingis-
hátíðinni er tileinkað sérstakt stimp-
ilmerki, sem ríkisstjómin hefir
einkarétt á. Verzlanir, sem óska að
setja merki þetta á vörur sínar,
greiði fyrir það allt að 15% af inn-
kaupsverði vörunnar. Gjaldi því er
inn kemur á þennan hátt skal vai'ið
upp i kostnað við hátiðina. í frv. er
ríkisstjórninni ennfremur heimilað,
að ákveða, að undangenginni skoð-
un, hvaða bifreiðar megi vera í
notkun á þingvallavegum dagana 25.
til 29. júní og er það gjört til að
koma í veg fyrir að lélegar bifreiðar
verði notaðar til mannflutninganna,
og draga á þann hátt úr slysahættu.
Loks er stjóminni heimilað að láta
loka búðum í Rvík dagana 26.—28.
júní, en leyfa að þær séu opnar að
einhverju leyti sunnudaginn 29.
Frv. um tekjuskatt og eignaskatt,
frá Halldóri Stefánssyni og Magnúsi
Guðmundssyni, flutt samkv. tillögum
meirahluta milliþinganefndarinnar í
tolla- og skattamálum. Milliþinga-
nefndin var kosin á þinginu 1928 og
hefir nú lokið störfum. í henni voru
í upphafi Halldór Stefánsson, Har-
aldui’ Guðmundsson og Jón þorláks-
son, en síðan tók Magnús Guðmunds-
son sæti í henni i stað J. þorl. Hefir
Haraldur Guðrnundsson borið fram
tillögur sinar í sérstökum frumvörp-
um, sem einnig liggja fyrir þinginu.
Frv. um verðtoll, flutt af sömu
mönnum, og einnig samkv. tillögum
meirahluta milliþinganefndarinnar.
Sú nýbreytni felst í frumvarpi þessu,
að i stað vörutolls og verðtolls, er
nú gilda, komi verðtollur eingöngu. Er
gjört ráð fyrir, að tekjur af verð-
toili samkv. frumvarpinu, verði á-
líka miklar og nú eru af báðum toll-
unum til samans, en innheimtan
hinsvegar einfaldari og ódýrari. Enn-
fremur kemur verðtollur með meira
réttlæti niður en þungatollur. Verð-
tollurinn er tvennskonar. Tollskyld-
um vörum er eftir frv. skift í fjóra
flokka og tollurinn 5—30%. Allmarg-
ar vörutegundir eru undanþegnar
tolli þessum. En auk hans gjörir frv.
ráð fyrir iy2% verðtolli, sem leggst
á allar vörur jafnt, nema sérstakar
undantekningar séu gjörðar.
Frv. um ágang búfjár, frá Bern-
harði Stefánssyni og Jörundi Bryn-
jólfssyni.
Frv. til ábúðarlaga, frá Jörundi
Brynjólfssyni og Bemharði Stefáns-
syni. Frumvörp þessi eru bæði samin
af milliþinganefnd í landbúnaðar-
málum og voru flutt á þingi i fyrra,
en urðu þá eigi útrædd og eru flutt
nú nálega óbreytt.