Tíminn - 03.05.1930, Blaðsíða 4
94
TÍMINN
Bréf Jónasar Jónssonar dómsmálaráðherra, Haralds Guðmundsson-
ar og Péturs Magnússonar.
I.
Þann 28. f. m. hefir Jónas
Jónsson, efsti frambjóðandi B-
listans, ritað efstu mönnum A~
og C-listans, þeim Haraldi Guð-
mundssyni og Pétri Magnússyni
á þessa leið:
Reykjavík, 28. apríl 1930
Einn síðasta þingdaginn átti
eg tal við yður og efsta mann
þriðja landskjörslistans um fundi
af hálfu okkar þriggja efstu
manna lista þessara nú í vor.
Eg álít að kjósendur eigi rétt
á, að fá að kynnast með sjón og
heyrn þeim frambjóðendum, ei
þeir fela umboð til 8 ára. Eg álít
.þessvegna að okkur beri skylda
til að koma sem allravíðast á
fundi með kjósendum þann stutta
tíma, sem eftir er fram að kjör-
degi.
Eg álít, að rétt sé, að hafa
marga fundi en stutta, og alloft
megi hafa tvo slíka fundi á dag,
þar sem skilyrði eru heppileg.
Vildi eg fyrir mitt leyti stuðla
að því, að svo gæti verið.
En eins og vegum er háttað
hér á landi, er erfitt um langar
landferðir í maímánuði. Hefir mér
því komið til hugar, að við ætt-
um í maí, eða einkum fyrri hluta
mánaðarins að fara á þá staði,
þar sem fólk getur auðveldlega
safnast saman í kauptún, þótt
landvegir séu slæmir, og er það
fyrst og fremst á Vestfjörðum.
Hefi ég álitið mögulegt,að við þar
gætum haft nokkum flutnings-
létti af varðskipunum, sem þurfa
að líta eftir þar einmitt á þeim
tíma. Hygg eg nálega ómögulegt,
að við getum komizt yfir hina
mörgu fundarstaði, sem þarf að
heimsækja, nema með því að
njóta einhvers flutnings með
þeim skipum, eftir því, sem at-
vik leyfa.
Samkvæmt þessu álít eg, að
gæti komið til mála að við fram-
bjóðendur heimsæktum nokkur
helztu kauptúnin á Vesturlandi
íyrra hluta maímánaðar. Bið ég
yður að láta mig vita skriflega,
ekki síðar en næsta þriðjudags-
kveld, hvort þér getið eða viljið
taka þátt í slíkri fundarferð.
Að lokirmi ferð á Vesturlandi
hefði eg helzt kosið að heimsækja
Austfirðinga, og að við frambjóð-
endur héldum þar fundi í kaup-
túnum og á Egilsstöðum, halda
síðan áfram norður í Þingeyjar-
sýslur, og ef unt væri hafa lokið
fundi á Akureyri rétt áður en af-
mælishátíð skólans byrjar, um
mánaðamót maí og júní. Eftir þá
hátíð fellur hraðferð til Reykja-
víkur með Esju, og væri þá hægt
um vik að halda fundi á landinu
sunnanverðu og vestanverðu og í
Reykjavík sjálfri og næstu kaup-
túnum.
Ég vildi megi óska þess, að
þér létuð mig á sama hátt vita
hvaða fundi þér kunnið nú þegar
að hafa ákveðið og hvaða ráða-
gerðir þér hafið um fundi og
fundarstaði.
Viðvíkjandi fundum þeim, sem
eg boða til, mun eg leggja til að
fullt jafnrétti sé milli flokkanna,
þeir hafi jafnan tíma hver fyr-
ir sig, að framsöguræður fram-
bjóðenda eða umboðsmanna
þeirra séu hálf stund eða ekki
meira, og þaðan af styttist ræð-
ur allra eftir því, sem frambjóð-
endur koma sér saman um.
Eg vænti heiðraðs svars yðar
eigi síðar en annað kvöld viðvíkj-
andi aðalatriðum þessa máls. Um
fyrirkomulagsatriði viðvíkjandi
einstökum fundum getum við tal-
að síðar.
Virðingarfylíst
Jónas Jónsson.
1. landskjörinn þm.
II.
Bréf yðar, herra ráðherra, dag-
sett 28. þ. m. hefi eg fengið og
læt yður vita, að ég vil gjamar
hafa fundi með yður og fram-
bjóðanda C-listans á sem allra,
flestum stöðum fyrir landskjörið
næsta.
Ef þér gerið ráð fyxir að hafa
einhvem „fluttningslétti“ að ein-
hvierju varðskipanna milli fund-
arstaða, mun eg þiggja boð yð-
ar um að íljóta með, þar sem eg
sé ekki að mér verði fært að kom-
ast á alla íundarstaðina í tæka tíð
án þess.
Virðingaríyllst
Reykjavík, 24./9. 1930
H. Guðmundsson.
Herra 1. landskj. þm. Jónas Jóns-
son, ráðherra, Reykjavík.
III.
Reykjavík, 30. apríl 1930.
Herra dómsmálaráðherra
Jónas Jónsson
Reykjavík,
Mér hefir borizt heiðrað bréf
yðar, dags. 28. þ. m. þar sem þér
spyrjizt fyrir um, hvort ég vilji
taka þátt í ferð yðar í þingmála-
íundaleiðangui' til Vestfjarða í
næsta mánuði. Gjörið þér ráð
fyrir að nota varðskipin til flutn-
ingsléttis í þessum ieiðangri.
I samráði við miðstjórn Sjálf-
stæðisflokksins skal ég svara er-
indinu á þessi leið.
Enda þótt miðstjórnin telji eigi
rétt að nota varðskipin til slíkra
ferða tek ég boði yðar um að
fylgjast með í leiðangrinum, svo
framarlega sem þér eruð ráðnir í
að nota skipin. Sjálfstæðisflokk-
urinn óskar og eftir að einn mað-
ur úr miðstjórn hans geti fylgst
með í leiðangrinum.
Þátttaka mín í leiðangnnum er
bundin því skilyrði, að ég fái
leyfi atvinnumálaráðherra til að
fara frá Búnaðarbankanum, en á
því mun væntanlega ekki standa.
Mér er mjög erfitt að fara héð-
an úr bænum fyr en næstk.
þriðjudag 6. maí, og vil ég því
mælast til að þér boðið eigi fundi
fyr en eftir þann tíma.
Ég geri eigi ráð fyrir að geta
sótt fundi á Austfjörðum, en að
sjálfsögðu mun flokkurinn senda
einhvern fulltrúa á þá fundi, sem
þar verða haldnir.
Jeg mun láta yður vita jafn-
skjótt og einhver fundahöld eru
ákveðin af hálfu Sjálfstæðis-
flokksins.
Virðingarfyllst,
Pétur Magnússon.
IV.
1. maí 1930.
Hr. málaflutningsmaður
Pétur Magnússon
Út af heiðruðu bréfi yðar frá
30. apríl s. 1. vil ég taka þetta
fram:
1. Ég hefi útvegað samþykki
atvinnumálaráðherra til að þér
getið verið burtu eftir þörfum
frá Búnaðarbankanum fram að
kosningum og yrði þá að setja,
þann tíma, sem þér væruð fjar-
verandi.
2. Vegna þess, að ég ætla að
freista að koma sem víðast á
fundi og nú langt komið fram á
vor, get ég ekki biðið með burt-
för héðan úr bænum nema til
laugardagskvölds 3. þ. m. Vænti
ég að þér getið komið þá með í
umrædda Vestfjarðaferð.
3. Til að hraða förinni sem
mest hefi ég gert ráð fyrir tveim
fundum á dag, í kauptúnum sem
ekki er nema 2—3 tíma sigling
milli. Yrði þá hver slíkur fundur
ekki nema 3—5 stundir og alls á
hvem af hinum þrem frambjóð-
endum ein stund, ef gjört er ráð
fyrir einhverjum tíma til fyrir-
spurna frá kjósendum.
Ég hefi gjört ráð fyrir að fara
einn fyrir minn flokk í þessa
ferð, og bæta engum liðskosti við
tilefnislaust. Mér er ekki kunnugt
um að frambjóðandi A-listans
hafi neinn mann sér til fylgdai'.
Eg álít að fullt jafnrétti eigi að
eiga sér stað milli flokkamia og
listanna og myndi telja það nokk-
urn ójöfnuð, ef í alvöru væri ætl-
ast til að einn flokkurinn færi á
slíka fundi fjölmennari en aðrir.
Auk þess er á svo stuttum fund-
um ekki hægt að koma við mörg-
um ræðumönnum frá flokkunum,
án þess að það geri örðugt fyrir
aðalframbjóðendur listanna að fá
viðunanlegt tækifæri til að skýra
frá áhugamálum sínum.
4. Á hinn bóginn býst eg við
að af hálfu okkar Framsóknar-
manna verði boðaðir nokkrir fund
ir í júní bæði í Gullbringu- og
Kjósarsýslu og á Suðurláglend-
inu, þar sem gert yrði ráð fyrir
að umræður yrðu langar og að
fundimir stæðu jafnvel fram á
nótt. Þar eiga flokkamir að geta
tekist á til þrauta um mál þau,
er skilja þá, og þar er með góð-
um árangri hægt að koma við
mörgum ræðumönnum frá hverj-
um flokki.
5. I samtali því er eg átti við
yður og efsta mann A-listans
laust fyrir þinglok, gerðuð þér
ráð fyrir að þér mynduð vegna
annríkis tæplega geta komið með
í umrædda Vestfjarðaför. Eg
skoraði þá munnlega á einn af
helztu leiðtogum flokksins yðar á
þingi að taka þátt í för þessari,
ef þér gætuð ekki komið, og
bjóst hann við að geta sint því.
Eg árétta það nú bréflega, ef svo
tækist til, sem eg álít að ekki
ætti að koma fyrir, að kringum-
stæður bönnuðu yður að hitta
kjósendur vestra nú í byrjun
pessa mánaðar.
Eg vonast eftir heiðmðu svari
yðar eigi síðar en 2. þ. m.
Virðingaifyllst
Jónas Jónsson.
V.
Hr. alþm. Sig. Eggerz.
Þar sem því miður getur far-
ið svo að hr. Pétui Magnússon
geti ekki komið á nokkra stjórn-
málafundi, sem eg hyggst að
boða í kauptúnum á Vesturlandi,
nú allra næstu daga og þar sem
eg og efsti maður A-listans ger-
um ráð fyrir að taka þátt í um-
ræðum um landsmál, leyfi^ eg
mér að endurtaka áður fram-
komna munnlega áskorun mína
til yðar, að þér komið á fundi
þessa og hafið rétt til að ráða
yfir þriðjungi ræðutímans fyrir
yður og yðar samherja, svo
framarlega sem hr. P. Magnús-
son getur ekki komið.
Eg geri ráð fyrir burtför úi
Reykjavík að kveldi 3. þ. m.
Áskorun mín til yðar byggist
á því, að við sambræðslu þá er
varð á flokki yðar og aðalandófs-
flokki stjómarinnar síðastliðið
vor, virðist þér hafa fenglð þá
aðstöðu í flokknum, að einna
helst megi snúa sér til yðar með
pólitíska forgöngu við hinar
fyrstu kosningar sem fram fara
eftir áðumefnda sambræðslu, svo
framarlega sem aðalframbjóðandi
flokks yðar getur ekki mætt.
Eg vonast eftir skriflegu svari
yðar eigi síðar en 2. þ. m.
Virðingarfyllst
Jónas Jónsson.
Prestafélag Islands
Ákveðið er, að aðalfundur Prestafélags Islands verði
haldinn föstdaginn 20. júní þ. á.
DAGrSKRA:
1. Skýrt frá g'jörðum og hag félagsins.
2. Prestafélagsritið og önnur bókaútgáfa.
3. Deildir félagsins.
4. Ræddar spurningar þær, er prestum hafa verið sendar.
5. Frumvörp kirkjumálanefndar.
6. Kosning stjórnar og endurskoðenda.
7. Önnur mál.
Félagsstjórnin
Samband ísl. samvinnufél.
International
Deering
diskaherfin eru komin.
Frá Sig. Eggerz barst munn-
legt svar á þá leið, að Pétur
Magnússon myndi fara á fundina
og félli þar með niður ástæða til
nánara svars af sinni hálfu.
VI.
Reykjavík, 2. maí 1930
Herra dómsmálaráðherra
Jónas Jónsson, Reykjavík.
Heiðruðu bréfi yðar dags. 1.
þ. m. svara eg á þessa leið.
Eg verð efth' atvikum að sætta
mig við að leggja af stað næstk.
laugardagskvöld, 3. þ. m. og
vænti að þér látið mig nánar vita
burtfarartíma skipsins. Leyfi eg
mér jafnframt að mælast tii, að
þér látið mig fá lista yfir fund-
arstaði og fundartíma, áður en
héðan er farið.
Að sjálfsögðu er eg samþykk-
ur, að hver flokkur hafi jafnlang-
ann ræðutíma á hverjum stað.
Hinsvegar get eg eigi séð neina
ástæðu til, að flokkamir fái eigi
sjálfir að ráða, hvernig þeir nota
ræðutíma sinn. Er mér eigi kunn-
ugt um annað en svo hafi jafn-
an verið, hingað til. Fyrir flokks-
ins hönd vil eg því óska eftir að
Ólafi Thors alþingismanni, sem á
sæti í miðstjórn Sjálfstæðisflokks
ins, gefizt kostur á að vera með
í förinni. Óska eg skriflega svars
um það í dag.
Virðingarfyllst
Pétur Magnússon.
VII.
Reykjavík, 2. maí 1980
llr. málafærslumaður
Pétur Magnússon.
Út af heiðruðu bréfi yðar frá
í dag vil ég taka það fram, að
eg mun síðar tilkynna yður burt-
för skipsins héðan, sem að öllu
forfallalausu verður annað kvöld.
Eg hafði hugsað mér fund á
Sandi fyrra hluta sunnudags, en
síðari hluta sunnudags í Ólafs-
vík. Næsta fund á Bíldudal á
mánudag og ef unt væri á Pat-
reksfirði sama dag. Að öðru leyti
hefi eg hugsað mér að við fram-
bjóðendur kæmum okkur saman
um nánara fyrirkomulag á fund-
unum, en fara þó ekki lengra
norður en á Isafjarðardjúp, og
reyna jafnan að koma af tveim
fundum þar sem. unt er sama
dag.
Eg get ekki samþykkt, að neinn
af flokkunum komi fjölmennari
til þessa leiks, en aðrir, og álít
það ekki með öllu kurteisi af
samherjum yðar, að fara fram á
forréttindi vegna yðar flokks,
sem aðrir ekki njóta. Eg býst
við að gefa hv. 2. þm. Gullbringu-
og Kjósarsýslu tækifæri til ítar-
legra umræðna á fundum í hans
eigin kjördæmi síðar í vor.
Að öðru leyti vil eg taka fram,
að þar sem eg ræð yfir skipskosti
! mun eg nú við undirbúning þess-
ara kosninga bjóða jafn mörgum
1 far af hverjum flokki. Ennfremur
að þar sem þér ekki getið mætt,
sökum anna, að þér sendið í stað-
inn aðra frambjóðendur af lista
yðar, eða flokksbræður yðar af
þingi. Þó get eg ekki tekið með
sem gesti á varðskip ríkisins
menn, sem orðið hafa brotlegir
við landhelgislögin, og er það
einföld velsæmisástæða, enda mun
slíkum mönnum auðsóttur annar
farkostur hér við land, ef þeir
þurfa milli hafna.
Virðingarfyllst
Jónas Jónsson
----©-----
Ritstjóri: Gísli Guðmundsson.
Hólatorgi 2. Sími 1245.
Prentsmiðjan Acta.