Tíminn - 04.10.1930, Blaðsíða 3

Tíminn - 04.10.1930, Blaðsíða 3
TÍMINN 208 Bezta bók ársins: Tíðindalaust á vesturvígstöðvunum, eftir Erich Maria Remar- que, fœst hjá bóksölum' um land allt. — Einnig' má panta bókina burðar- ’ gjaldsfrítt hjá Bimi Bene- diktssyni, Tjarnargötu 47,1 Reykjavík. — Allir verða ’ aS eignast þessa góSu bók.1 Góðir gestir f ágústbyrjun voru á ferð yfir Húnavatnssýslur bræðurnir Sigvaldi Kaldalóns og Eggert Stefánsson og liéldu söngskemmtun og Blönduósi. þaðan var svo ferðinni heitið til Skagafjarðar og Akureyrar. Báðir eru þeir bræður vel þekktir um land allt, enda þótt þetta muni í fyrsta sinn, sem þeir ferðast saman út um land og gefa sveitum og fámennum kaup- túnum tækifæri til að njóta þess, er þeir hafa að bjóða. Einkum vo*u það lög eftir Kaldaíóns sjálfan, flest ný, er hér voru flutt, og höfðu víst fæstir áheyrendumir heyrt þau flutt áður af höfundinum sjálfum. Annars munu lög Kaldalóns vera til á hverju heimili að heita má, sem hljóðfæri hefir, og eigum vér nú áreiðanlega ekkert tónskáld jafn vin- sælt og hann. þau hafa líka hlotið góðan flutningsmann, bæði hér heima og erlendis, þar sem Eggert Stefáns- son er, og stendur íslenzka þjóðin tvimælalaust í mikilli þakklætisskuld við hann fyrir það, hve víða um heim hann hefir kynnt íslenzk tón- smíði á svo glæsilegan hátt. Aðsókn að skemmtun þeirra var góð á þessum áðurnefndu stöðum, og tóku áheyrendur þeim að makleg- leikum ágætlega. Einkum var stemn- ingin góð á ITvammstanga, enda söng Eggert þar ekki í kirkju eins og á Blönduósi, lieldur í samkomu- húsi, þar sem áheyrendur gátu látið hrifningu sína í ljósi með lófataki. Var það líka óspart notað, og auð- lieyrt að fólkið kunni að meta list þeirra bræðra og fagnaði hjartan- lega þessari ágætu ánægjustund. Hafi þeir þökk fyrir komuna. H. þeir bræður Eggert og Sigvaldi eru nú nýkomnir hingað til bæjarins úr för sinni um Norðurland. Hefir þeim hvarvetna verið tekið með miklum fögnuði. Hér i Rvík hafa þeir haldið hljómleika eitt kvöld, síðan þeir komu að norðan, og láta þeir vel af, er á heyrðu. — ■ ■■ Þakkarávarp þegar ég undirritaður heilsulítið og nærri sjónlaust gamalmenni, varð fyrir þeirri sáru sorg að missa mina ástkæru eiginkonu, Sigríði Jónsdótt- ur, sem andaðist 13. marz s. 1. eftir nýafstaöinn uppskurð á sjúkrahúsinu á Hvammstanga, varð ég var við svo mikinn mannkærleika, samúð og hlut- tekningu, að ég get ekki annað en minnst þess með hrærðu hjarta. Vil ég þá fyrst til nefna lækninn' á Hvammstahga, herra Jónas Sveins- son, sem gaf mér öll sín verk þessum uppskurði viðvíkjandi, auk ýmislegr- ar annarar fyrirhafnar, sem hann tók alt á sig, bæði með sending líkkist- unnar og íleira og fleira. Einnig votta ég hjúkrunarkonunni á Hvammstanga mitt alúðarfyllsta þakklæti, fyrir auðsýnda hluttekn- ingu i bréfi, sem hún skrifaði mér, eftir dauða konu minnar. þar næst vil ég nefna Björn hreppstjóra Halldórs- son á Smáhömrum hér í Kirkjubóls- hreppi, sem var hvatamaður þess að hafin voru samskot handa mér sem námu að upphæð um 170 kr. þessu góða fólki bið ég guð að launa. Jón Björnsson, Tind í Miðdal við Steingrímsfjörð. Samtaka! „Finanstidende“ (danskt viku- rit) birtir 17. f. m. grein um fjár- hag og atvinnulíf Islands. Þar er m. a. sagt frá >ví, að síðasta Al- þingi hafi gefið stjórninni heim- ild til þess að taka 12 milj. kr. að láni erlendis, að nokkrum hluta þeirra peninga eigi að verja tii að endurgreiða enska lánið („det saa ofte omtalte engelske Laan“), en að eftir því sem Morgunblaðið segi, hafi stjórninni þrátt fyrir mikla viðleitni ekki tekizt að út- vega neitt lán*) . Grein þessi er nafnlaus. En rit- gerðir um íslandsmái, sem áður hafa birst í „Finanstidende“ hafa jafnaðarlega verið eftir hinn al- þekkta danska kaupmann og Morgunblaðs-hluthafa, Aage Ber- léme, og ekki ástæða til að ætla annað en þessi sé það einnig. Má nú íhaidið vel við una, að Morg- unblaðs-rógurinn sé breiddur út um Norðurlönd af þessum dygga danska bandamanni stórkaup- mannaklíkunnar í Rvík. *) Á dönsku: „Efter hvad „Morg- enbladet" meddeler, er det imidlertid endnu ikke lykkedes Regeringen trods ihærdige Forsög at optage nog- et Laan“. Superfosfat Nokkrar smálestir af superfosfat verða seldar mjög lágu verði. Væntanlegir kaupendur gefi sig frarn og vitji áburðarins fyrir 15. október. pp. Áburdapeinkasala ríkisins Samband isl. samvinnufél. Við höfum fyrirliggjandi Vatnstúrbínur ásamt jafnspennuvél- um fyrir ýmsa mismunandi staðhætti. Af sérstökum ástæðum get- um við selt nokkrar af vélum þessum fyrir ca. hálft verð og er því alveg sérstakt tækifæri fyrir þá sem hafa læk nærri bænum að koma upp ódýrri en góðri rafmagnsstöð fyrir skammdegið. Auk þess viljum við vekja athygli almennings á smá vélasett- um okkar, sem fást frá 50—300 Wött, en þau höfum við einnig á lager og komum til að hafa fyrir mismunandi staðhætti. Þessar vélar eru ómissandi úti um land þegar nýja útvarpsstöðin er kom- in í gang. Auk þess eru þær nægjanlega stórar til ljósa og kaffi- fcitunar fyrir meðal heimili. Allar upplýsingar veittar samstundis endurgj aldslaust. Bræðurnir Ormsson • Reykjavík. Fréttlr Jónas Jónsson dómsmálaráðherra og Auður dóttir hans tóku sér far til út- landa síðastliðinn miðvikudag. pessum stúdentum hefir Mentamála- ráð íslands veitt styrk af fé því, sem ætlað er á fjárlögum fyrir árið 1931 handa íslenzkum námsmönnum er- lendis: Magnúsi Jónssyni stud. mag., Asgeiri O. Einarssyni stud. vet., Bimi H. Franzsyni stud. mag., Gísla Hall- dórssyni stud. polyt., Agnari Norð- fjörð stud. polit., Jóni E. Vestdal stud. chem., Valgarði Thoroddsen stud. polyt., Jóni Blöndal stud. polit., Sverri Kristjánssyni stud. mag., Áma V. Snævarr stud. mag., Jóni Ágústssyni stud. polyt., Símoni Jóh. Ágústssyni stud. mag. Kennslubók í frönsku, er nýkomin út, eftir Pál Sveinsson kennara við menntaskólann í . Reykjavík. Bókar þessarar verður nánar getið bér i blaðinu innan skamms. Valdemar Snævarr skólastjóri á Norðfirði og kona hans eiga silfur- brúðkaup 19. nóv. næstk. Valdemar er nú að byrja 28. skólastjómarárið og sennilega elztur í þeirri stöðu allra barnaskólastjóra í landinu. Athygli skal vakin á því, að af- greiðsla blaðsins er flutt úr Sam- bandshúsinu og er nú í Lækjargötu 6A (sbr. augl. á 1. síðu). En ekki vannst tími til að breyta heimilisfangi afgreiðslunnar í fyrirsögn blaðsins, í þetta sinn. Vélbáti frá Sleipnisfélaginu var ný- lega rænt hér á höfninni. Sá er bátinn tók heitirTryggvi Helgason, og hafði hann, að sögn, ætlað á honum vestur um haf, en náðist um síðustu helgi í Aðalvík og var fluttur til ísafjarðar til yfirheyi’slu. Erlent lán eru þjóðvei-jar í þann v.eginn að taka, 125 milj. dollara að upphæð. Hindenburg, foi-seti þýzkalands, vai'ð 83 ára í fyrradag. Frá þjóðabandalaginu. Tuttugu og sjö þjóðir, sem eru meðlimir þjóða- bandalagsins, þar á meðal Danmörk, Noregur og Svíþjóð, hafa ski’ifað und- ir samning um að tryggja þeim þjóð- um fjárhagslega aðstoð, sem knúðar eru út í styrjöld vegna árása frá öðr- um þjóðum. Kosningar eru um garð gengnar i Finnlandi. 70% neyttu atkvæðisréttai’. Úrslit ei-u ókunn. Rannveig porsteinsdóttir afgreiðslu- m. Tírnans var meðal fai'þega á Goða- fossi hingað frá útlöndum 29. f. m. Hefir hún dvalið í Danmörku, Svíþjóð og þýzkalandi síðara liluta sumars. prír þýzkir stúdentar eru nýkomnir hingað i stúdentaskiptum, tveir mal- fræðinemar og einn náttúrufræðinemi, sem ætlar sér að kynnast íslenzku fuglalífi. Karl Jónsson læknir, bróðir Ríkarðs Jónssonar listamann kom hingað til lands á síðastliðnu vori eftir nærri fjögui-ra ára framhaldsnám erlendis, í Danmörku, þýzkalandi og Vínar- liorg. Lengst dvaldi liann í Danmörku og hafði þar fasta stöðu á heilsuhæli, þar sem lögð er stund á ýmiskonar lækningar með Ijósi, rafmagni, böðum og nuddi, þar á meðal gigtlækningar. Hefir lxann fengið sérfræðiviðui’kenn- ingu i þessum greinum. Karl er nú til heimilis í Reykjavík. þessari aðferð eins vel og kostur er með nokkurri annarri aðferð, er íullsörmuð staðreynd. Þegar varnarlagið, mosalagið, er tekið ofan af tóptinni, þá er efsta heylagið dökkt og blautt — þar pressast vatnið ekki úr því, — greinileg súrlykt af því og súrbiturt á bragðið; líkist með öðrum orðum dálítið súr- heyi, en vantar þó alveg þessa stækjulykt, sem allir, er með súr- hey fara, kvarta undan, að ekki verði losnað við og pesti öll hý- býli. Þegar neðar dregur verð- ur heyið grænna og þurrara, vel þvalt eins og nýslegið gras. Þó getur líka verið, að efsta lagið sé eins þurrt eða þurrara en neðar. Hvemig á því stendur, er erfitt að segja, en í því dæmi, sem ég þekki, þá var hitanum hleypt hærra (um 40°). Eins og af þessu má ráða, er heyið mjög þokkalegt til gjafar og virðist vera mjög gott, ljúf- fengt og lystugt fyrir skepnur og — það sem mest er um vert — þær þola það eitt sér, jafnt ung- viði sem fullorðnar skepnur. Hér í Reykjavík hafa verið aldir kálfar eingöngu á þessu heyi frá því fyrsta og fram á græn grös og hafa dafnað vel. Mjólkurkúm hefir verið gefið það eingöngu svo mánuðum skiptir, hafa mjólkað vel af því og ekk- ert óbragð komið að mjólkinni, eins og hætt er við, ef miMð súr- hpy er gefið. Þó er betra að gæta þess, að ekki sé gefið um leið og mjólkað er. Hér eru dæmi þess, að sá sami mjólkar, sem gefur heyið, og kemur ekki að sök. Eins og menn vita, voru hey mjög slæm eftir sumarið 1926, og fóðraðist peningur illa og drapst víða, einkum þegar kom fram undir vorið 1927. Á Loptsstöðum í Flóa voru ær mjög rýrar, þegar kom fram á, eins og víða annar- staðar. Var þá farið að gefa þeim gerhey, og tóku þær góðum bata og gengu vel fram. Eins er þetta hey sagt ágætt fyrir heysjúka hesta. Hvernig má nú þetta verða, að unnt er að verka hey á þennan hátt? Hvað er það, sem íram fer í heyinu við verkunina, sem gjörir það að góðu og ljúffengu fóðri, en auðvelt er að ráða við með því að bera vatn á það? Þegar lífsþráðurinn er slitinn, Jxá fara öll lífræn efni að taka breytingum, sem miða að því að leysa þau upp aftur í þau ein- földu sambönd, sem þau með lífs- starfinu eru gerð úr. I jurtarík- inu era þessi sambönd aðallega kolsýra, vatn, ammoniak og salt- péturssýra. Þessar efnabreyting- ar eru kallaðar gerð og rotnun. Rotnuninni valda ýmsir gerlar. Við rotnun myndast oft eitrað efni, og yfirleitt gjörir hún allt óhæft til nokkurrar notkunar, og getum við því sleppt henni hér.*) öðru máli er að gegna um gerðina. Hún hefir reynzt mann- kyninu til ýmissa hluta nytsam- leg, og þess vegna verðum við að athuga hana nokkuru nánára. Hér verður aðeins talað um gerð í efnum úr jurtaríkinu. Allri gerð valda ýmsir sveppar og gerlar, og getur hún verið með ýmsu móti, eftir því hvaða sveppar og gerlar eru að verki og hvaða efni er um að ræða til gerðarinnar. Gerðin ber venju- lega nafn þess efnis, sem mest ber á við gerðina. Edikssýru- gerðinni valda gerlar. Mjólkur- sýrugerðinni valda líka gerlar. Vínandagerðinni valda gersvepp- ar. Vínandagerð er mjög marg- brotin, eftir því hvað er tilgang- urinn með henni, hvort framleiða skal vínanda, ýmisleg vín, öl o. s. frv. Þær efnabreytingar, sem verða, era í aðaldráttum í því fólgnar, að gersveppamir kljúfa sykur- og mjölefni í vínanda og kolsýru (C6H1206 (sykur) — 2CoH5OH (vínandi) + 2C02 (kol- sýra)). Einnig myndast ýmis önnur efni (glycerin, barksýra, *) Minnast má þó í þessu sam- bandi hákarlsins íslenzka. íslending- ar eru ef til vill sú eina þjóð, sem liefir hagnýtt sér rotnun. þó eru þær breytingar, sem verða á hákarlinum við kösunina, alv.eg órannsakaðai’. rafsýra o. fl.), sem náð er burt með ýmsu móti, ef þau eru ekki æskileg, en önnur þeirra eru líka bragðbætandi og setja hið sér- kennilega bragð á ýmsar vín- og öltegundir. Gerðin fer fram með tvennu móti: yfirgerð og undir- gerð. Yfirgerðin fer fram við hærra hitastig, sem er mismun- andi hátt, eftir 'því hvaða vín er verið að framleiða (vínandi 8— 28 stig, öl 12—25 stig). Þá er gerðin svo ör, að gersveppamír Ixerast með kolsýrunni upp á yfir- borðið og myndast froðuskán ofan á vökvanum. Takmarka verður, hvað mikið lopt kemst að vökvan- uiii rneðan á gerðinni stendur. Undirgerð fer fram við lægra hitastig (öi 5—6 stig), er miklu hægari og tekur margfalt lengra tíma. Aftur á móti þolir t. d. undirgert öl miklu betur geymslu. Gersveppar og gerlar eru til í óteljandi afbrigðum og alstaðar í náttúrunni. Ef þessi stöðuga ■hringrás efnanna ætti sér ekki sífellt stað, þá væri allt líf ó- mögulegt. Alstaðar þar, sem líf- ræn efni safnast saman og hæfi- legur raki er, myndast gerð. Greinilegasta merki hennar er hit- inn. Fyrir þessu er dagleg reynsla þeirra, sem fást við heyverkun. Ef heyið er ekki þurkað nógu vel, þá hitnar í því. Ef þessi raki er ekki of mikill, þá ryðja þau sig og verkast vel. Oft er rakinn í heyinu misjafn, og þá koma fram mygluskánir eða forblautar skánir, sem orðnar eru með öllu ónýtar. Ef rakinn er meiri og jafnari í heyinu, þá getur hitn- að svo í því, að það brenni eða verði ónýtt. Oft sjást í heyjum svartar heyflyksm’, sem eru orðn- ar að koli. Þar hefir elduriim ekki náð að brjótast út vegna loptleysis og þrýstings. Ráð til að kæfa hita í heyjum er að fergja þau (sæthey). Annað ráð er að láta standa svo mikið vatn á hey- inu, að það geti ekki hitnað nema að vissu marki (súrhey, vothey). Við þá aðferð, sem hér er um að ræða, genheyið, er vatnið ekki látið standa á heyinu, heldur lát- ið síga burt, en hæfilega miklu vatni allt af bætt í það, svo að hitinn fari aldrei yfir ákveðið mark. Reynslan bendir til, að heyið verði því betra, sem gerðin fer fram við lægra hitastig. Síð- astliðð sumar er mér sagt, að á Loptsstöðum hafi verið reynt, vegna vatnsleysis, að láta ekkert vatn í heyið. Heyið reyndist illa, en mér er ekki kunnugt, í hverju það liggur eða hvernig heyið er. Allir, sem með súrhey hafa far- ið, vita, hvað það er msjafnt, hvernig það verkast. Þessi galli við verkunina getur varla legið 1 öðru en mismunandi gerð, feftir því, hvort það eru góðir og heppi- legir gersveppir, sem ráðandi era við gerðina, eða vondir. Að þessu geta verið áraskifti, eins og gefur

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.