Tíminn - 30.12.1930, Qupperneq 1

Tíminn - 30.12.1930, Qupperneq 1
©jaíbf eci og afgrci&sluma&ur Címans er Hanuueig £>orsteinsí>óttir, íafjar^ötu 6 a. SeYfjapíf. ^fgteibsía Círnans er i £asfjargötu 6 a. 0pin öagk§a fl. 9—6 Stmi 2353 XIV. ár. Reykjavík, 30. desember 1930. 73. blað. Tveir Morgunblaðspostular Jón Þorláksson. L \ Fyrir nokkru skrifaði J. Þ. grein um það, að eftir almenn- , um vöxtum á stuttum lánum í stórbönkum ytra hefði ríkið átt 'jj að fá betra lán en það, sem tekið var hjá Hambro nú í haust. Vitn- aði Jón mjög í, hve hagstætt lán hann hafði tekið í Danmörku 1926. Nú alveg nýverið hefir J. Þ. bætt við annari grein í Mbl. Vill hann þar sanna, að í saníbandi við lántökuna í haust hafi ís- lenzka stjórnin veðsett landið meir en M. Guðm. 1921. Mun þessi skilagrein J. Þ. tekin til at- hugunar. Eftir fyrri grein J. Þ. var nokkrum fyrirspumum beint til hans hér í blaðinu, og bent á, að ef hann gæti ekki svarað, væri það sama og játa vanmátt sixm. J. Þ. var spurður um gengis- hækkunina, og afleiðingar henn- ar, bæði fjárhrunið og hina óverð- festu pappírskrónu. Hvortveggja er verk hans og íhaldsins. Hvor- tveggja er vitaskuld stórskaðjegt fyrir traust landsins út á við. Þá var hann spurður hvort sú stað- reynd, að tolltekjurnar eru sér- stök trygging fyrir láninu frá 1921, í ofanálag á almenna ábyrgð þjóðarinnar myndi bæta traustið. Þögn hans er áfelling fyrir M. G. Hann er spurður hvað hann haldi um álit landsins í sambandi við dóminn um vaxta- tökuna, sem er skilin erlendis þannig að eignarrétturinn sé ekki lengur lögvemdaður á Islandi. Þögn J. Þ. er enn sama og viður- kenning þess óvenjulega ástands sem sá dómur skapar þjóðinni. Enn er J. Þ. spurður hversvegna J. Möllei* og Kn. Zimsen fá raun- verulega nærri 7% tilboð í raf- magsstöðina á sama tíma og ríkið tekur sitt lán og hversvegna E. Claessen fékk alls ekkert lán handa fasteignafélaginu, þrátt fyrir ferð um mörg lönd. Vitund- in um ósigur síns málsstaðar í þessu máli lokar líka munni J. Þ. Ekki tekur betra við með mál- færi Jóns þegar hann er spurður um hrun Islandsbanka, þessa óskabams Mbl.-flokksins, eða um róg Mbl. um traust landsins, sem að lokum var farinn að bergmála í „Finanstidende“. Og að lokum er J. Þ. sjálfsagt tregt um itungu, er haxm minnist þeirrar velvildar í Danmörku, er haim rómar svo mjög í fylgiblaði Mbl. 1926, og sem hann teiur ástæðu til þess að stjórn hans fékk þar veðdeildar- lánið það ár, og svo þegar haxm hinsvegar veit um þaxm urg og ótnú á Islandi, sem J. Þ. og klíka sú, er að honum stendur hefir, hefir skapað í Danmörku með stöðugum dylgjum þessaramanna um að Danh* sitji á svikráðum við sjálfstæði landsins. J. Þ. hefir eitt sinn sagt að „verkin skyldu tala“. Og verk hans hafa talað móti honum. Hinu mun hann sennilega síður hafa tekið eftir, að þögnin getur líka talað fyrir hann — líka sak- fellt hann og málstað hans eins og nú. J. Þ. telur að hækkun útgjalda í tíð núverandi stjómar séu for- dæmanlegt atriði. Honum gleým- ist að athuga hvað þjóðin hefir fengið fyrir ' peninga sína. Gott dæmi eru umbætur á vegum landsins. J. Þ. sagði á Sveins- stöðum 1925, að akfært yrði úr Borgamesi til Akureyrar 1940. En það varð akfært úr Rvík til Húsavíkur 1930! Annars gleymir J. Þ. því, að á árunum frá 1924—27 hækkuðu útgjöldin um 3V3 úr miljón, og að J. Þ. lækkaði sjálfur skatta á samherjum sínum um IV2 milj- ón, og að hann skildi við með tekjuhalla á tveim síðustu árun- um, alls nærri 2 miljónir króna. Tekjuhalli þessi var við hlið- ina á tryggingunni í tolltekjun- um einn aðalþröskuldur í vegi lántöku fyrir ríkið núl Og þeir M. G. og J. Þ. báru þar aðalá- byrgðina hvor með öðmm. Það var svo langt frá því að fjárstjóm J. Þ. væri í góðu lagi, að hann hafði hækkað útgjöldin, lækkað tekjurnar, komið á tekju- halla, skildi við pappírskrónu, lamaði atvinnuvegina og Lands- bankann, en drap íslandsbanka með krónuhækkuninni Það voru rústir einar í fjánnálum, sem J. Þ. skildi eftir er hann lét af stjóm. ‘ n. Næst er að koma að lántökum J. Þ., sem hann er svo hreykinn af. Er þá fyrst að tala um 9 miljóna heimildina til lántöku í Ameríku, sem J. Þ. barði fram gegnum þingið. Islandsbanld hafði ekkert lánstraust og var að springa m. a. á gengishækk- uninni. J. Þ. þorði ekki að biðja um lánsheimild eða ábyrgð handa islandsbanka. En hann bað um lánsheimild handa Lands- bankanum, sem ekki þurfti þess með og engin lán vildi taka. Sið- an misnotaði J. Þ. húsbóndavald fjármálaráðherra yfir þjóðbank- anum til að láta hann lána Is- landsbanka þá einu miljón,. er hann notaði af láninu. Raunveru- legir vextir af þessu skyndiláni munu hafa orðið Landsbankanum a. m. k. 6%. Eftir eitt ár varð að borga lánið upp og það gerði þjóðbankinn. En Islandsbanki gat ekki borgað honum aftur nema í baugabrotum og skjalda- skriflum, og mikið af láninu stóð sem ógoldin skuld í íslandsbanka þegar bankinn strandaði í fyrra- vetur. öll þessi ráðsmenska J. Þ. var líkust fjármálaaðgerðum léleg- asta hrossaprangara. Þingið var blekkt, Landsbankinn misnotað- ur og svikinn, allt til að fresta gjaldþroti erlendrar braskstofn- unar. ' J. Þ. þykist standa föstum fótum, er hann minnist á veð- deildarlán þau, er hann tók 1926 og 1927, alls fram undir 8 milj. króna. Én ótrúlega margir agn- úar eru á þeirri lántöku. Fyrst er form hennar. Ef land- ið hefði notið æskilegs trausts, og haft iimleysanlega mynt, myndi veðdeildin hafa tekið þetta lán sjálf, með tryggingu í jarðeignum og húsum, sem lánað var út á. Þannig fara öll lönd að, sem njóta fullkomins fjármála- sjálfstæðis. Hér gerði J. Þ. tvennt rangt. Fyrir gengishrunið og pappírsmyntina varð hann að láta ríkið taka lán, sem það átti ekki að taka. Og til að dylja þetta eða reyna að gera það, setti J. Þ. landsreikninginn skakkt upp og gerði þjóðina að undri með því að telja ekki þessa skuld með skuldum ríkisins. Sví- ar hafa fordæmt þessa aðferð mjög kröftuglega og ótvíræct gefið í skyn, að þessi aðferð væri mjög vítaverð. Margir hér hafa vitað þetta og fordæmt þetta, en orðið út á við að halda sig að landsreikningnum. Nú bætir fjármálaráðherra úr þessu, og landsreikningurinn fyrir 1929 verður fyrsta útgáfa af L.R. hins „frjálsa Islands", sem þolir gagnrýni þeirra sem vit hafa á. Næst kom innihald og meðferð þessara miljóna. Núverandi for- sætisráðherra rannsakaði meðan hann var endurskoðandi Lands- bankans hvert féð fór; 95% af þessum miljónum fór 1 hús í kauptúnum og kaupstöðum, 5% fór í sveitimar. Um helmingur fjárins mun hafa farið í að festa verðhækkun gamalla húsaskrokka í Reykjavík, þannig, að hús, sem voru byggð fyrir striðið voru nú metin að nýju, miklu hærra og lánað út á þau. Að hinu leytinu fór lánið í ný stein- hús í kaupstöðunum og sem- entsverslun J. Þ. blómgaðist meir en nokkru sinni fyr. Ekkert skipulag var á nýbyggingum þessum, ekkert gert til að byggja góð og ódýr íbúðarhús fyrir starfanda lýð landsins. Mikið af fénu fór í „villur“ manna sem litlu síðar stóðu í óbættum sök- um við bankana og erlenda lán- ardrotna, og sem enginn hefir nú efni á að búa í. Tæplega var hægt að nota lán- ið ver, ganga framhjá sveitun- um; velta því í verðhækkun gamalla húsa, og láta það að miklu leyti renna í óhófsbygg- ingar skaðræðismanna í fjármál- um. En alt þetta var að skapi J. Þ. Verzlun með sement og jám blómgaðist. Iðjulausa stéttin í landinu dafnaði. Ihaldið græddi á öllu saman, en dugnaðarmenn og skilamenn landsins stóðu í á- byrgð fyrir þessu heimskulega lánsfargani. Framkvæmd lánsins var yfir- leitt hin aumasta af hendi J. Þ. Hami virðist hafa verið jafn þreklaus og úrræðalaus eins og M. G. 1921. J. Þ. virðist ekki einu sinni hafa getað leitað fyrir sér í Danmörku. Það liggur fyrir í grein eftir J. Þ. frá því 1926 í fylgiblaði Mbl. bein yfirlýsing um að Jón Krabbe hafi útvegað lánið, og þakkar J. Þ. réttilega ráðsnilld hans og ekki síður vel- vild Dana, jafnt stjómmálamanna sem fjármálamanna,, að lánskjör- in urðu ekki lakari en raun bar vitni um, eða tæplega 6%. J. Þ. virðist hvergi hafa komið nærri þessum málum. Eina dyggð hans, samanborið við M. G. 1921, er sú, að hann hafði hinn prýðilega mann Jón Krabbe til framkvæmd- anna, þar sem M. G. beitti fyrir anna, þar sem M. G. notaði Kúlu- Andersen og Pál Torfason. Hr. J. Krabbe tókst með lagi að fá lán þetta í smápörtum, stundum V2 miljón, stundum 2 miljónir í einu, hjá vátryggingar félögum, sem beint eða óbeint höfðu hagsmuna að gæta á Is- landi. Útboðsgengið var býsna lágt, frá 90 til 93 hvert hundrað. Á þetta lagðist enginn skattur, eins og 2 %, sem nú þarf að greiða af föstum lánum til út- landa, sem tekin eru í Englandi. Bak við veitingu þessaara smá- lána, sem hvergi voru auglýst eða boðin út með kostnaði, eins og virkileg ríkislán, lá velvild Dana til íslands og heppileg fram koma kunnugs manns, þ. e. J. Krabbe, sem nýtur sérstaklega mikils trausts allra er hann þekkja. En slík lán koma vitan- lega alls ekkert við heimsmark- aðinum um peninga, allra síst vöxtum af nokkurra vikna skyndi innlögum i banka. Allar skýrslur J. Þ. um vexti af slíkum innstæðum þá, koma máli þessu alls ekki við. Sem dæmi þess hve heimilislega var gengið frá þessu máli má geta þess, að eftirsótt heiðursmerki mun hafa bætt kjör in á verulegum hluta þessa láns um V2 %. En ekki var það snjall ræði J. Þ. að þakka frekar en annað sem betur horfði í þessu máli. Um hitt geta kunnugir dæmt, hvort slík smáglaðning getur orð- ið að gagni við sölu lánsskulda- bréfa á opnum markaði í heims- borg. IH. \ Veðdeildarlán J. Þ. er þess- vegna sízt honum til sóma. ó- dugnaður hans við að útvega það, formið, að láta landið taka það, og feluleikurinn með það í LR. vai* hans verk. Sömuleiðis er það, vitanlegt, að hann beitti áhrifum 3 kúgunarátt til að láta nota fjár magn þetta jafn gálauslega fyr- ir sanna þjóðarhagsmuni eins og raun var á. En þetta lán, tekið í smáum einingum hjá tryggingarfélagi, sem vildi halda í viðskipti sín á Is- landi, hafði þó einkennilegan eft- irbát, sem sé lán, sem Jón lét taka handa sjálfum sér í bygging- arstofnun í Danmörku, í hús það er hann reisti hér við Austurvöll. Út úr braski sínu við dönsk byggingarfélög, var „sjálfstæðis- hetjan“ J. Þ. orðin dálítið rugl- uð um sitefnumörkin. Reykjavík- urbær hafði endurtiyggt í dönsk- um félögum. En um þetta leyti kom í ljós, að bærinn gat fengið endurtryggt í Þýzkalandi, þannig að spara mátti bænum í þessum útgjöldum 60 þús. kr. á ári. En er um þetta var rætt, umhverfð- ist Jón með öllu og kunni sér ekki hóf á fundum í fasteigna- eigendafélaginu. Þótti honum hin mesta goðgá, að flytja trygging- ar frá dönskum til þýzkra félaga, þótt svo mikill munur væri á til- boðum, eins og nú er skýit frá. Talaði Jón svo herfilega af sér um fjármálagetu Þjóðverja, að hættulegt var fyrir álit landsins hjá hinni stærstu af frændþjóð- um okkar. Er það fullyrt að Jón hafi og fyllilega með réttu orð- ið fyrir þeirri alveg einstöku lífs- reynslu, að vera áminntur um sannsögli og drengskap í milli- ríkjaskiftum, af umboðsmanni þeirrar þjóðar, sem hann hafði móðgað svo stórlega. Sem betur fór hirti bæjarstjóm Reykjavíkur ekkert um rógmælgi J. Þ. um Þjóðverja, heldur not- færði sér hin góðu boð þeirra og sparaði bænum þannig tugi þúsunda árlega. Jón hafði nú í smíðum hús það sem áður er nefnt og sem er svo ljótt, hvar sem á það er litið, að einn af flokksbræðrum J. Þ„ — Valdimar Hersir — hefir ekki getað orða bundist um smekkleys- ið og kauðaskapinn, sem skín út úr hverri línu í veggjum þess eða þakgluggum. Jóni varð féfátt við að koma því upp, sem ekki er í frásögur færanda. Hann gat vita- skuld tekið lán í veðdeild Lands- bankans. Og það var ekki heimskulegra að lána í slíkt hús heldur en í hallir almennra gjald- þrotamanna. En Jón vildi það með engu móti. Hann vildi endilega taka lán í dönskum krónum til að geta innbyrt 20% í illa fengnum gengisgróða, þegar búið væri að hækka íslenzku krónuna í jafn- hæð við danska krónu. J.Þ. reyndi töluvert sjálfur, en fekk engu á- orkað erlendis, þrátt fyrir bar- áttu sína við að halda skiptum við byggingar í óeðlilegum skorð- um í Danmörku. Loks fekk Jón annan til að útvega lánið í Dan- mörku og tókst það eftir langa mæðu. Nú bíður J. Þ. eftir færi til að eyðileggja síðustu stofna íslenzks atviimusjálfstæðis með nýrri- gengishækkun. En um leið græðir hann á danska láninu, sem hann tók handa sjálfum sér, al- veg eins og veðdeildin 1926 og ’27 varð blessunarrík fyrir sem- entsverzlun hans. IV. Lýsingin af framgöngu J. Þ. í sambandi við ríkislánin, er saga um andlega dvergvöxtinn, þrek- lausan og úrræðasnauðan mann, sem gerir flest nokkum veginn allt eins lítilfjörlega og hægt er. En J. Þ. átti þó eftir eitt skref niður á við. Það skref hefir hann stigið nú í sambandi við lántök- una 1930. J. Þ. hefir í því efni gert það sem einn fyndinn borg- ai’i lýsti hnyttilega, er hann sagði að nú hefði J. Þ. „riðið út í auða vök“. J. Þ. sá nýlega í ensku blaði út- drátt úr upplýsingum sem Ham- bros Bank lét fylgja útboðinu á láninu íslenzka frá í haust. Þar er tekið fram, að ísland sé í á- byrgð fyrir láninu, eins og lög gera ráð fyrir, en að engin önn- ur sérstök trygging sé fyrir því. Fari hinsvegar svo, að íslending- ar veðsetji síðar eignir eða tekj- ur fyrir nýju láni, öðru láni, þá gildir sú trygging jafnframt fyr- ir láninu frá 1930. Út af þessum eðlilegu og óhjá- kvæmilegu skilyrðum, kemst J. Þ. að tveim mjög skökkum niðurstöðum. Fyrst, að hér sé um samskonar skuldbindingu að ræða og þá, sem M. G. gaf 1921, og í öðru lagi að með þessu sé ís- landi bannað að veðsetja eignir sínar eða tekjurí Hvorttveggja er alrangt, eins og nú mun sýnt verða. Ábyrgðarskjöl M. G. 1921 0g E. A. 1930 byrja bæði svo að segja alveg eins, og þannig byrja lánsskjöl allra fjárhagslega sjálf- stæðra landa. I báðum tilfellun- um lýsir lántakandinn því yfir, að hið íslenzka ríki sé í ábyrgð fyrir láninu, bæði að höfuðstól og vöxtum.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.