Tíminn - 31.01.1931, Side 4
20
TlMINN
Utan úr heími. (Frh. s£ 1. síðu).
Lítið varð þó um efndir fyr3t
í stað, og stóð þetta í þófi árin
1917—1919. Þá voru samþykkt í
brezka þinginu lög þau um
stjómarháttu Indlands, er ná
gilda. Eru þau köUuð tvístjómar-
lögin. I stærri ríkjunum var svo
kveðið á að innlendir ráðherrar
hefðu með höndum uppeldis- og
heilbrigðismál og innanlands
féstjóra, og væri þeir ábyrgir
gagnvart löggjafarsamkomu síns
landshluta. Til löggjafarsamkom-
anna skal kjósa eftir ákaflega tak-
mörkuðum kosningarétti (3%)
og er þó mikill hluti kjósenda
ólæs. Örmur stjórnarstörf skyldu
unnin af ráðherrum, sem hefðu
umboð sitt beint frá hinni brezku
stjóm. Þjóðþing skyldi einnig
vera og eiga þar sæti 140 full-
trúar. 105 eru kosnir í geysi-
stórum kjördæmum.
En ekkert af þessum ráðstöf-
unum hefir reynst þess megnugt
að lægja ólguna í Indlandi. Ein-
mitt eftir að þessi lög náðu gildi,
hafa orðið blóðugar uppreisnir;
tilslakanir á fyma stjómarfari og
aukin íhlutun þjóðarinnar sýndi
einmitt betur en áður hvílík
geisi orka byltist um í óskum og
kröfum þessara manna. Samvinna
Breta og indversku þjóðarinnar
var grundvallarhugsun sú, er lög-
in byggjast á. Samvinnuleysið
verður nú heróp eins af áhrifa-
ríkustu mönnum í stjómmálum
indiands, klathatma Gandhi. Þessi
hugsjón að þybbast ofstopalaust
við Englendinga, vald þeirra, lög
og stoínanir greip geisilega um
sig á næstu árum, og kom þá
jaínframt til mannskæðra bar-
daga á ýmsum stöðum. Gandhi
virtist þá um skeið verða nokkuð
ágengt í því að koma sáttum á
með Muhameðsmöxmum og
Hindúum. En starf hans í þvi
elm beið mikinn hnekki vegna
þess aó ofsaíengnii- menn meðal
fylgjenda hans fengu ekki kom-
izt hjá blóðsútheilingum. Var
Gandhi fyrir þær sakir tekinn
fastur 10. marz 1922, dreginn
fyrir dómstói og borinn sökum
um það að stofna tii óeirða í rík-
inu og vinna að upplausn ríkis-
einingarinnar. Hann var dæmdur
til sex ára fangelsisvistar. Ekki
olli handtaka hans þá í bráð nein-
um verulegum óeirðum. Meira að
segja var engu líkara en að dreg-
ið hefði úr fylgi manna við
stjómmálastefnu Gandhi um
sinn.
En friður varð ekki fenginn
þó að Gandhi væri þokað úr
vegi um stundarsakir. Nokkrum
mánuðum eftir handtöku hans
brauzt út ægileg uppreist norð-
ur í Punjab. Áttu þær róstur
upptök sín 1 deilum tveggja trú-
flokka og urðu yfirvöldin að
skerast í leikinn. Sikkar, svo
nefnist annar trúflokkur sá, er
hér átti hlut að máli, þóttist
bera skarðan hlut í þeim skift-
um, og lét heita svo, að brezk
yfirvöld hefðu gengið á trú
þeirra. Varð það að hinu mesta
ófriðarbáli og varð stjómin að
kalla mikið herlið saman til þess
að kæfa uppreistina. 1923—24
og 25 gengur ekki á öðru en sí-
felldum óeirðum víðsvegar í rík-
inu, ýmist innbyrðisdeilum trú-
flokka og þjóðflokka, eða bein-
um fjandskap hvorutveggja við
brezk yfirvöld. Varð af þessu
öllu ljóst, að aldrei yrði til
lengdar tjóað við tvístjómarlög-
in og skipuð nefnd til þess að
gera álit um hag Indlands, stöðu
í ríkinu, sjálfstjóm þess og innri
stjómarháttu og yfir höfuð allt,
3em það varðaði. Nefndin hefir
verið kölluð Simon-nefndin eftir
forsetanum sir John Simon.
Nefndin fór tvær ferðir til Ind-
lands á árunum 1928 og 29,
ferðaðist afar víða um landið og
ræddi um Indlandsmál við fjölda
málsmetandi manna. 1 júní s. 1.
gaf nefndin út álit sitt í tveim
stórum bindum. Fjallar hið fyrra
um hag landsins og ástand, en í
Hérmeð tílkynnist, að öll skip vor, sem koma við á
austfjörðum þetta ár, koma einnig við á Norðfirði, þótt
það ekki standi á áætlun.
Reykjavík, 24. jan. 1931.
H.f. Eimskipafélag Island
Kolasöngur.
Lagið er í „Æflntýri á gönguför“.
Skrifta-Hans syngur:
„Heyrðu, sko snáða“.
Radio gjallarhorn (hátaiarar)
MIKRO á kr. 45,00.
RUMOL á kr. 85,00.
Gegn póstkröfu hvert sem óskað er
Viljirðu eignast ágætust kol.
en átt ekki mikið kaupgetu þol,
til funa og bríma,
farðu í síma
fimtán þrjátíu og einn.
Kalt er 1 heimi, kol þurfa til
að koma sem fyrst í stofuna yl.
Til funa og bríma
færðu í síma
1531. Toboji.
Kolaverzl, B.F. SLElPNlR
Nýjar plötur
sungnar af Sig. Birkis:
Englasöngur (Braga)
Finst nokkur grund (Hflndel)
Svo undur kær (Caro mio Ben)
Saknaðarljóð (Elegie)
Sofðu unga ástin mín
Taktu sorg mína.
Sungnar af Pétri Jónssyni:
Nú legg ég augun aftur
Nótt (Þór. Jónsson)
Kveðja
Gissur ríður góðum fáki
Gígjan
Nótt (Á. Thorsteinsson)
Hér er kominn hoíFinn
Álfadansinn
í djúpið mig langar
ísland vort land.
Vörur sendar gegn póstkröfu um alt
land. — Biðjið um plötuskrá. —
Katrin Víðar
Hljóðfæraverzlun — Lækjarg. 2.
hinu síðara eni tillögur nefndar-
innar. Þetta nefndarálit hefir
verið hinn eiginlegi starfsgrund-
völlur hinnar nýafstöðnu Ind-
landsmálaráðstefnu.
Hér er ekki tími til að fara
mörgum orðum um tillögur
nefndarinnar, sem eru mörg
hundruð blaðsíður, né heldur
hverri meðferð þær sættu á ráð-
stefnunni. Tillögumar fela í sér
mjög aukinn íhlutunarrétt Ind-
verja um mál sín og stjórnar-
háttu innanlands og hefir verið
leitast við að tryggja minni-
hlutaflokkum einnig sæti á lög-
gjafarsamkomum, í ráðuneytum
og annarsstaðar þar, er máli
skiftir. Tillögurnar hvíla á mjög
samvizkusamlegri rannsókn, en
þykir skorta stjómmálalegt í-
myndunarafl. Ihaldssamari Eng-
lendingum þykir allt of langt
gengið í sjálfræðisáttina. Þjóð-
ernissinnar og sjálfstæðismenn i
Indlandi eru hins vegar sár óá-
nægðir og þykja réttarbætur
smáar. Merkilegasta hugmyndin,
sem fram kom á ráðstefnunni, er
hugmyndin um bandaríki Ind-
lands í bandalagi við England.
Menn höfðu búist við að sjálf-
stæðir þjóðhöfðingjar í Indlandi
snerust svo við því máli, að ekki
væri neinnar slíkrar úrlausnar
að vænta. En það virðist hafa
farið allt á aðra leið. Hinir
merkustu þeirra, sem sæti áttu á
ráðstefnunni, lýstu yfir fylgi
sínu við þá hugmynd. Endanleg-
ar ákvarðanir voru ekki teknar
um það né annað, en störfum
haldið áfram.
Beinn árangur ráðstefnunnar
varð ekki mikill, þó ýmislegt hafi
verið fagurt mælt í skilnaðar-
veizlum eins og siður er til. Ind-
landsmálin eru eim óráðin, þrátt
fyrir allar bollaleggingar og á-
Sportvöruhús Reykjavíkur
Box 384).
FerCamenn,
sem koma til Reykjavíkur, geta
fengið ódýraata gistingu á Hverf-
isgötu 82.
Beybjavlk Síml 249
Niðursuðuvörur vorar:
Kjlit......11 kg. og >/l kg. dósUHi
K«ofo . .... 1 - - 1/2 — -
BsjjanibJAfu 1 - - >/i -
Flgfeabollur - 1 - - »/a — -
1UX........- 1 - - 1/2 -
hljótfl almenniupglof
Ef þór hafiB okki royut TÖrur
þeasar, þA gjöriB það nú. Notíð
lnnlendar rörur fremur en erlendar,
með þyi atuðliö þór að þvi, að
lilendingar rerði ajálfum sér négir.
Pantanir afgreiddar fljótt og
vel hvert á land sem er.
Sjálfs er hðndin
hollust
Kaupið innlenda framleiðslu,
þegar hún er jafngóð «rlendri og
ekki dýrari.
framlelðir:
Kristalsápu, grænsápu, stanga-
sápu, handsápu, raksápu, þvoíta-
efni (Hreins hvítt), kerti aUs-
konar, skósvertu, skógulu, Ieður-
feiti, gólfáburð, vagnáburö, fægi-
lög og kreólínsbaðlyf.
KaupiS H R EIN S vörur.
Þær eru löngu þjóðkunnar og fást
í flestum verzlunum landsins.
H. í. Hreinn
Skúlagötu. Reykjavík. Sími 1825.
reynzlu. Mun tíðindamaður út-
varpsins bráðlega skýra frá ráð-
stefnunni og því, er einkum varð
framkvæmdum hennar að fóta-
kefli. Mætti þá svo fara, að
þetta stutta yfirlit yrði til nokk-
urs skilningsauka.
Sigurður Einarsson.
Ritstjóri: Gísli Guðmundsson.
Ásvallagötu 27. Sími 1245.
Prentsmiðjan Aeta.
Jarðír tíl sölu.
Tvær samliggjandi jarðlr, Hlíðarendi og Litlaland í ölfusi, eru til sölu,
og lausar til ábúðar nú þegar.
Jarðir þessar eru einhverjar beztu beitijarðir í Árnessýslu.
Væntanlegur kaupandi snúi sér til Kristins Jónssonar vagnasmiðs, Reykja-
vík, sem gefur allar nánari upplysingar.
og
©r ammóf ónmúsikin
Spyrjist fyrir
VIÐ HÖFUM ALT
^en^tvai^aðe^^
Hljóðfærahúsið
Simnefni: HLJÓÐFÆRAHÚS
Simi 656.
Auglýsingar í Tímanum fara Yíðast og eru mest lesnarí
Trygglð aðeíns hjá íslensku fjelagi,
Pósthólf:
718
Símnefni:
Incuranee
BRUNATRY GGINGAR
(hús, innbú, vörur o.fl.). Sími 264
SJÓVATRYGGINGAR
(skip, vörur, annar flutningur o.fl.). Sími 542
Framkvæmdastjöri: Síml 309
Snúið yður til
Sjóvátryöáíngafjelags Islands h.f.
Eimskipafjelagshúainu, Reykjavík