Tíminn - 02.05.1931, Qupperneq 2

Tíminn - 02.05.1931, Qupperneq 2
108 TIMINN Það er eins og við fyrst nú á allra síðustu árum ihöfum fund- ið töfraorðið: „Sesam, opnist þú“ að hinum innri hvelfingum, sem sýna framtíðarmöguleika hins ís- lenzka landbúnaðar og afkomu- möguleikana fyrir fólkið, þegar hinum réttu aðferðum er beitt. Og þó er það trúa mín, að enn séu óopnuð hin allra veglegustu salakynni. í samræmi við þessa nýju opin- berun um nútíðar- og framtíðar- aðstöðu sveitanna, hefir nú á hin- um allra síðustu árum hafizt sú öld, að fara að beina fjfirmagni til sveitanna. Aldrei hefir jafnmiklu nýju fjármagni verið beint til hinna dreifðu byggða um landið, utan Reykjavíkur, eins og árið sem leið. Méð þessu er verið að snúa strauminum í þjóðlífinu. Skapa vaxtarmöguleikana í sveitunum og þar með undirstöðuna til stöðv unar fólksfækkunarinnar í hinum dreifðu byggðum, og til nýrrar fólksfjölgunar þar. Það er þvi hið hróplegasta ranglæti að stofna einmitt nú til gjörbreytingar ó kjördæmaskip- uninni, á grundvelli höfðatölunn- ar einnar, þegar af þessari ástæðu einni, að straumhvörf eru að verða í þjóðfélaginu einmitt að þessu leyti. Héröðin utan Reykjavíkur eiga kröfu til þess, að slegið verði á frest gjörbreytingu á kjördæma- skipuninni, sem reist er á höfða- tölunni einni, þangað til komið er í ljós hver verður árangur hinn- ar nýju öldu, sem nú er risin, sem stöðvar strauminn til Reyk- javíkur og beinir honurn aftur leið út um byggðimar. Höfðatölureglan skapar ranglæti. Eg hygg að óhætt sé að full- yrða, að í engu landi í heiminum sé kjördæmaskipuninni svo hátt- að, að höfðatalan ein eigi að ráða úthlutun þingsæta, eins og gert var ráð fyrir í leynisamningnum. í engu Norðurlandanna er hið pólitíska veldi höfuðborgarinnar neitt svipað því, sem veldi Reyk- javíkui' yrði samkvæmt þesaari k j ördæmaskipun. Aðstaða þeirra, sem í kaupstöð- um og kauptúnum búa, til að sækja kjörfund, er svo ólík að- stöðu sveitafóiksins til þess, að það, að úthluta þingsætum eftir höfðatölunni einni, skapar hið mesta ranglæti. 1 bæjunum keppast pólitisku flokkamir við að sækja fólkið í bílum á kjörstaðinn og flytja það aftur heim. En vegalengdir og hverskonar torfærur hindra kjör- sóknina í sveitum. Engum hefir og enn dottið 1 hug, eða a. m. k. ekki borið það fram opinberlega, að láta höfða- töluregluna gilda einhliða á öðr- um hliðstæðum sviðum, t. d. um kosning úr hreppunum «til sýslu- nefndar. Höfuðnauðsyn þjóðfélagsins. Sterkt og réttlátt bændavald. Hin mesta hætta, sem vofir nú yfir hinni íslenzku þjóð, stafar af ofvexti Reykjavíkur. Sú hætta er ekkert nýtt fyrir- brigði. Utan úr heimi hafa lengi borizt hersögumar út yfir Islands ála af átökum aðiljanna ytra í vinnudeilunum í hinum miklu iðn- aðarborgum. ófríðarhættan ó þessu sviði kemur með vexti bæjanna. Hún er þegar orðin allmikil hér á landi og langsamlega alvarlegust í Reykjavík. Það hefir tekizt til þessa að firra vandræðum, áður en hin allra alvarlegustu tíðindi yrðu. En skainmt var áreiðanlega orðið til meiri tíðinda er deilan stóð um sjómannakaupið í ársbyrjun 1929. Síðan hefir verið friður að kalia á yfirborðinu, en það hefir vexið „vopnaður friður“ og óhugsandi er annað, en hin alvarlegustu á- tök hefjist innan stundar. Ef það yrði gert, sem stefnt er að með hinni nýju kjördæma- skipun, að draga svo einhliða hið pólitíska vald undir Reykjavík, þá vofir margföld hætta yfir þjóð inni af þeim kaupstyrjöldum, sem vafalaust munu dynja yfir Reyk- javík á næstunni. Þá munu Reykvíkingarnir ekki gera upp sakirnar „í bróðerni“, eins og nú, er þeir vilja hremma hið pólitíska vald úr höndum bænda og byggðamanna utan af landinu. Þá munu þeir ekki standa lilið við hlið á Bvölum Alþingis- hússins, Héðinn Valdimarsson og Ólafur Thors og tala um „einn flokk“. Þá mun Reykjavík, því miöur, standa í ljósum loga stéttabarátt- unnar — innbyrðis munu Reyk- víkingar þá heyja hina beizku baráttu. Sjálfir munu þeir ekki færir um að firra hinum verstu vandræðum. Þá er það höfuðnauðsyn, að til sé öflugt bænda- og byggðavald, sem semji sættir milli öfgaflokk- anna í kaupstöðunum og I Reyk- javík sérstaklega. 1 Reykjavík eru þær öfgai' a ferð í sambúð manna á meðal og eigi síður í skoðunum um það, eftir hverjum leiðum eigi að stjóima landinu og átök og svift- ingar verða þar svo harðar í ná- víginu, að við voðann sjálfan liggur, ef ekki er til þriðja vald, sem á styrk sinn utan Reykja- víkur. öllum þeim, sem ekki eru sjálf- ir þátttakendur í Hjaðningavíg- um andstæðanna í Reykjavík, er það ljóst, að þjóðíélaginu er það nauðsyn að þungamiðja hlns póli- tíska valds séhjáhvorugumöfga- fiokkanna reykvísku; heldur að þungamiðjan sé hjá þriðja aðilj- anum, sem hefir rólyndi til og réttdæmi að láta ekki blindast 1 stéttabaráttunni. Tilveruréttur núverandi kjördæma. Hin nýja kjördæmaskipun gjör- ir ráð fyrir, að niðui’ leggist öll núverandi kjördæmi nema Reyk- javík. Það á að svifta öll önnur nú- vei’andi kjördæmi landsins þeim æfagamla rétti þeirra, að eiga sér- stakan eða sérstaka þingfulltrúa. Er það þá svo, að þetta gamla skipuleg hafi reynst svo illa, að rétt sé að henda því frá sér og taka upp nýtt skipulag, sem samið er við skyndiráð Reykvíkinga, sem ekkert þekkja til út um land? Eg fullyrði að núveranda skipu- lag hafi flutt héröðunum út um landið hinar mestu hagsbætur. Þingmenn hinna einstöku kjör- dæma hafa í mörgum tilfellum verið hinir allra þörfustu for- göngumenn um hin brýuustu nauðsynjamál héraðsins. Hið nána persónulega samband sem verður milli kjördæmisins og þingmannsins, sem af alhug setur sig í fylkingarbrjóst um að fullnægja réttmætum kröfum frá héraðsins hálfu, það kemur miklu góðu til leiðar. Vitanlega ber þingmanninum að hafa fyrst og fremst heill og þarfir heildarinnar fyrir augum. En skipulagið sem nú er hefir beinlínis kallað á menn til for- ystu um að leysa vandamálin í hinum dreifðu byggðum. Fulltrúar héraðanna útávið hafa þingmennirnir verið í fjöl- mörgum tilfellum, og hefir sann- arlega ekki af veitt, svo rík sem tilhneigingin hefir verið, einkum hjá peningastofnununum, að draga allt til Reykjavíkur og undir Reykjavík. Ég gæti nefnt fjölmörg dæmi um það hve núveranda skipulag hefir reynst byggðunum um land- ið vel í þessu efni. Þau dæmi má finna innan vébanda allra stjórn- málaflokka. En mál mitt verður nógu langt þótt ég lengi það ekki með slíkum dæmum. Enda munu þau dæmi liggja laus í hugum rnanna um allt land, ef um er hugsað. Þau misstu spón úr askinum sínum, héröðin víða um land, ef þau misstu réttixm itil þess að eiga sérstakan þingmann. Gerið ykkur allra ljósasta grein fyrir þessu atriði bændur og kauptúnabúar í hinum dreifðu byggðum um allt land. ókostir stóru kjördæmanna. í stað hinna mörgu sjálfstæðu núverandi kjördæma eiga að koma þessi stóru og sum gríðar- stóru kjördæmi og hlutfallskosn- ingar í öllum. Hið nána samband milli þing- mannsins og þess kjördæmis sem er kjördæmi hans eins, er alveg horfið. Aðstaðan yrði nánast eina og til núverandi landkjörinna þingmanna. Hvötin fyrir þingmanninn að gerast forystumaður framfara- mála héraðsins er að miklu leyti horfin. Hann kemst ekki yfir að fylgjast með um allt í hinu víð- lenda kjördæmi. Þingmaðurinn hverfur inn í það að verða aðeins einn skák- maðui’ á taflborði flokksins. Hver kemst yfir það að fylgj- ast náið með um þarfir fólksins frá Trékyllisvík og alla leið norð- ur á Tjörnes? Hver leggur sig að því að beitast í einstökum at- riðum fyrir mál Vestur-Skaftfell- inga, Rangæinga, Ái-nesinga, Vestmannaeyinga, Reyknesinga, Hafníirðinga og Kjósai'sýslu- manna allra í einu? Hvaða verk- lag verður á þessu? Þetta nýja skipulag mundi svifta héröðin^þeim mjög marg- víslegu gæðum sem gamla skipu- lagið færði þeim • I allra ríkustum mæli myndi þetta koma í koll bændunum í stóru kjördæmunum — kjósend- unum þeim sem erfiðast ciga um að lóta til sín taka á kjördegi, og erfiðast eiga um að ná tah af þingmönnunum. Valdið yfir framboðunum. Alvarlegustu afleiðingamar- af hinni nýju kj ördæmaskipun, ekki einungis fyrir bænduma, heldur og fyrir allar hinar dreifðu byggðir, kaupstaðina og kauptún- in utan Reykjavíkur, eru þó þær, að valdið um það hverjir yrðu í kjöri á hlutfallskosningalistum flokkanna í hinum stóru nýju kjördæmum, það mxmdi dragasí með meiri og meiri þunga til Reykjavíkui'. Hliðstæða dæmið eru framboð- in á landkjörslistana. Valdið um það er alveg í höndum flokk- stjórnanrxa í Reykjavík. Það er enginn vafi á því að það færi eins er ákveða ætti flokkslistana í þessum stóm kjör- dæmum. í allra fyrsta skiftið yrði eitt- hvext itillit tekið til núverandi þingmanna héraðanna. En meir og meir mundi valdið dragast í hendur flokkstjómanna í Reykjavík. I þessum stóru kjördæmum yrði ómögulegt að koma á sam- eiginlegum fundum til þess að styrkja áhrif héraðsbúanna. Úr héraðanna höndum drægj- ust völdin meir og meir yfir því hverjir eiga að veia frambjóð- endur og samband þingmannanna við héraðsbúana yrði æ ófull- komnara. Gífui’leg aukning Reykjavíkur- valdsins. Það fer ekki milli mála hverjar afleiðingai’nar yrðu af hinu nýja skipulagi um kjördæmin. Hið pólitíska vald Reykjavíkur myndi vaxa gífurlega, ekki ein- ungis á kostnað bændavaldsins, lxeldur einnig á kostnað kaup- túna og kaupstaða utan Reykja- víkur. Auk þess sem Alþingi vafa- laust yrði áfram háð í Reykja- vík, með þeirn miklu áhrifum á þingstörfin sem því eru samfara af hálfu Reykvíkinga, og sem því miður eru oft og tíðum lítt holl eða til þjóðþrifa. — Auk þess sem það er þegar með núveranda skipulagi svo að helmingur þingsins er Reykvík- ingar, sem þó hafa þann hita í haldinu, að þeim ber skylda til að vera sérstakir útverðir þeirra kjöi’dæma sem þeir — flestir — eru einir þingmenn fyrir. — Auk þess sem höfðatölureglan mundi gífurlega styrkja aðstöðu kaupstaða og kauptúna en þó allra helzt Reykjavíkur. — Auk þessa alls, mundi niður- lagning einmennings- og tvi- menningskjördæmanna og stofn- un stói’u kjördæmanna, sem flyttu valdið að ákveða fram- bjóðenduma að mestu fyrst og öllu siðar til Reykjavíkur, gjöra alræði Reykjavíkur í þjóðmálum lslendinga óskorað og óraskan- legt. Reykjávíkxu'valdið í algleymingi. Eins vissulega og nótt fylgir degi og dagur nóttu — eins vissulega mundu afleiðingar hinnar nýju kjöi’dæmaskipunar koina í ljós. III. Framsóknarflokkur: Endurskoðun k jör dæmaskipunai'. Eins og áður segir þá lít ég svo á að það væri fullkomið ranglæti að stofna til gjörbreyt- ingar á kjördæmaskipuninni nú, áður en betur er séð um hina nýju starfsöld sem hafin er út um landið og einkum í sveitun- um. En hitt er sjálfsagt að játa að endurskoðun á kjöi’dæmaskipun- inni, og nokkurar breytingar til bráðabirgða mega skoðast í’étt- mætai’. En jafnvel þó aðeins sé að ræða um endurskoðun til bráða- birgða, þá er þó alls ekki sæmi- legt að hlaupa í það verk og af- ljúka í skyndingu mitt í þing- önnum. Breytingar á kjördæmaskipun- inni sem nokkru nema, verða á- vallt að teljast það stórmál, að til þess á vel að vanda um allan undirbúning. En til þátttöku í »líkri vixmu, alvarlegri vinnu til undirbúning* bráðabii’gðalausnai’, erum við Framsóknarmeim reiðubúnir. Réttur héraðanna óskertur. Við endui-skoðun kjördæma- skipunarinnar teldi ég það alveg ófrávíkjanlegt að áfram héldist réttur hinna einstöku héraða til þess að eiga sérstaka þingmexm. Hefir verið hér að framan gerð grein fyrir því hvex*su vel það skipulag hefir reynst fyrir héröðin. Ég hygg að Framsóknai’meim yfirleitt myndu beinast einhuga gegn því að stofna í þess stað hin stóru kjördæmin, sem myndu draga þann dilk á eftir sér að draga allt vald yfir vali fram- bjóðendanna itil flokksmiðstjórn- anna og valda einveldi Reykja- víkur í þjóðmálum. Sjálfstæði héi’aðanna í þessum efnum og rétt til að halda því IV. Þingrofid og Hversvegna voru leynisamning- anxir gjörðir nú? Jafnaðarmenn hafa alltaf óskað eftir að fá gjörbreytingu á kjör- dæmaskipuninni — eins og á öðr- um sviðum þjóðfélagsins. Þeir hafa viljað ganga enn lengra en nú stendur til, því að þeir vilja helzt að landið verði eitt kjör- dæmi með hlutfallskosningu. Af hálfu hins íhaldssama flokks hafa einnig undanfarið heyrzt ákveðnar óskir um breytta kjör- dæmaskipun. Mest umtal hefir orðið um tímaritsgrein, sem Thór Thórs cand. jur. ritaði um þetta Reykjavíkurvald í algleymingi mun sigla í kjölfar hinnar nýju kjördæmaskipunar. Stefnubi-eyting í löggjöf og stjórnarfari verður hin óhjá- kvæmilega afleiðing þess. Til þai*fa Reykjavíkur verður fyrst og fremst tillit tekið en þá verður allt þyngri róðurinn um áhuga- og hagsmunamál sveit- anna, kauptúna og kaupstaða sem dreifð eru um allt land. Að sjálfsögðu yrðu hinii’ dreifðu bændur allra harðast úti. Kröfumar um fullnæging Reykjavíliurþarfamia, við mesta dýrtíðarástand og skipulagsleysi, sem sennilega er til í nokkurri borg í Norðurálfunni, fengju sinn greiða gang í gegnum Alþingi. Þá mun verða þröngt fyrir dyrum hjá einhverjum kotkarlin- um og sjómanninum út um land- ið, um það bil sem búið er að láta landið standa um hríð undir Reykj avíkurdýrtíðinni. Þá mun verða skáhnöld á Is- landi er „hinir sameinuðu“ hafa dregið til sín allt pólitíska valdið og heyja svo innbyrðis vægðar- lausa stéttabaráttu um kaup- gjaldið. m og kjördœmaskipunin skipulagi sem borið hefir ríku- lega ávexti um allt land, viljum við varðveita meðan »vo v«l reynist. önnur einstök atríði. En á ýmsum öðrum sviðum standa opnar leiðir til umbóta. Flestir munu nú orðnir »am- mála um að (landkjörið á engan tilverurétt. Samfara niðurlagningu land- kjöx’sins mætti að einhverju koma við umbótum þar sem me*t er talin þörf í bili, og þó koma a nokkurri fækkun þingmanna. Af reynslu annara þjóða má einnig læra nokkuð. Danir hafa t. d. telcið upp svo- nefnda „uppbótarþingmenn“, til þeirra flokka, sem ekki fá þing- menn í tiltölu við atkvæðamagn. Þá er hið nýja fyi’irkomulag, sem fi-jálslyndi flokkurinn enski og verkamannaflokkurinn hafa al- veg nýlega orðið ásáttir ixm, sem ég því miður veit ekki um með fullri nákvæmni hvemig er hátt- að, en aðalatiiðið mun vera það, að gefa kjósendum í einmennings- kjördæmum rjett til að setja at- kvæði til vara á annan frambjóð- anda en þann sem fær aðal- atkvæðið. Fái enginn fi’ambjóð- endanna fullan meirahluta þá koma þessi varaatkvæði einnig til greina er úrslita er leitað. Þessi og fleiri atriði munu koma til athugunar við rólega og flausturslausa athugun kjördæma- skipunarinnar. Við Framsóknax'menn ætlum ekki í þessu máli frekar en öðr- um að berja höfði við steininn og neita allri samvinnu. Við höfum staðið og stöndum með útrétta hönd til samvinnu um þetta mál, á þeim grundvelli að tryggja réttlátlega byggða- valdið gegn ofurmagni Reykja- víkvu’. kj ör dæmaskipunin efni. Og er það mjög eftirtekta- vert að hið nýja skipulag, sem nú var samið um milli flokkanna, er í flestum aðalatriðum í sam- ræmi við tillögur Thórs Thórs. Ástæðan til þess að hinn íhalds- sami flokkur nú fyx’st hefir stigið skrefið til samkomulags við jafn- aðarrnennina er auðfundin. Þeir voru farnir að óttast að Fram- sóknarflokkurinn yrði ofsterkur við núveranda skipulag. Þeir vissu að fylgi Framsóknarflokks- ins út um land var sífellt að auk- ast og að því var nú hver síðast- ur að forðast fullan meirahluta- sigur Framsóknar með því að

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.