Tíminn - 25.07.1931, Blaðsíða 3

Tíminn - 25.07.1931, Blaðsíða 3
TÍMINN 3 B v im. Mórgunsólin signir löndin Silfurlit á vötnin slær. Lágar bylgjur laðar ströndin. Loftið hrærir þýður blær. Lóur tifa á túnum slegnum. Tíminn líður — komið haust. Blöðin visna á bleikum teigmum. Bia'kta segl við iokuð naust. Sifja er yfir sænum breiðum, sveipar fjöllin móða blá. Dalalæða á lágum heiðum læðist yfir silungsá. Úti á skerjum kollur kúra. Kyrð er yfir flestu nú. En oft er milli skins og skúra skemmra en hyggur ég og þú. Það syrtir í lofti og suðar í hafi. Nú siglir að landi hvert fley. Það kembir í álinn og dimmir við djúpin. Það dunar í loftinu — þey. Tindarnir skjálfa í skarplegum vindum. Skýbólstrar þyrlast í ferlegum myndum. Geigvænleg stórhi’íðin gjögrana lemur. — Garðurinn kemur. Og bylgjumar velta með vaxanda hraða og verða að æðanda róti. Við járngreipta veggina hramminn þær hrista svo hrykktir í björgum og grjóti. Þær hækka, þær lækka — þær steypast og stynja, standa á öndinni — hvæsa og drynja. Það argar og* sargar. —Þær soga og toga um sanda og voga. Svo lagar um stund, en í djúpinu drynur. — Deyjandi öldurnar stynja. Svo ganga þær aftur og bölvandi byltast búnar til hörðustu víga. Þær hnyklast í brúnum og miklast í móði, magnaðar helkrafti — litaðar blóði. Þær æra og særa og ögra þeim veika í úthafið bleika. Þá rumskast hver vættur í brakandi björgum. Brúnirnar þyngjast og síga. Brandana skaka þeir skýjunum móti og skora á Hræsvelg til víga. — Já, hamist þið vindar og' blásið þið betur, í blágrýtið ristum við örlagaletur: Vort land skal um aldur og árdaga standa sem útvörður landa. — Sigursteinn Magnússon, ólafsfirði. „upptökur“ „urg“, því þær veita öllum þeim, sem á annað borð vilja hlusta á góð tónverk, hina mestu ánægju. Ég álít, að við íslendingar sé- um ekki, fremur en aðrar þjóðir, hafnir yfir það að nota grammó- fón við útvarpið. Við fáum með því móti tækifæri til að hlusta á ótalmargt nýtt og verulega gott, sem við ella færum algerlega á mis við, nema því aðeins að því værí endurvarpað frá útlöndum eða með beinu sambandi við er- lendar stöðvar, en þeir munu fæstir, sem hafa tök á því. Hvað endurvarp snertir, þá mun verða unnið að því að það komist á svo fljótt sem unt er. Hversu vel, sem til útvarps- dagskrárinnar er vandað, má á- valt gera ráð fyrir því, að þeir, sem semja hana, geti ekki gert allt svo öllum líki; en nú er það ávalt tilkynnt fyrírfram, hvað á 1 boðstólum er þann og þann dag- | inn, og virðist mér því, að mönn- [ um ætti ekki að verða skotaskuld úr því að velja það úr, sem þeir vilja heyi’a, og hlusta þá heldur ekki á það, sem þeir hugsa að þeir þreytist á að heyra. Smekkvísi manna er með ýmsu móti og mis- jöfn mjög, því nokkrir vilja helzt ekki heyra annað en danslög og þá helzt ilðein á harmoníku, aðrir aftur á móti vilja ekkert heyra af þessu tæi, teldur aðeins sígildar tónsmíðar, hinar beztu, sem völ er á. Hvernig á nú útvarpið að gera báðum þessum aðiljum full skil eða svo að öllum líki? Nei; það er ekki hægt að gera. Menn verða að læra að hlusta í út- varpið, kynna sér dagskrána, velja það svo úr, sem þeir hafa áhuga og smekkvisi fyrir að hlusta á, en hafna hinu. Gagnrýni er góð og nauðsynleg, en hún verður að byggjast á þekkingu og sanngirni, og þegar um jafn- nýtt og áður lítt þekkt menning- aratriði er að ræða, sem útvarpið er, a. m. k. hér hjá oss, verða menn að sýna því ofurlítið af góðvilja í dómum sínum, en ekki allt of mikla heimtufrekju. I við- tali við mig hafa ýmsir gagnrýnt tónlistarflutning útvarpsins í vet- ur og vor, og hefir sumt af því, Bitafjölin og „Hásetaiöðin“ hans Árna. Frá Landeyjasandi hafa knáir menn bæði íyrrum og nú ýtt skip- um sínum, og róið til fiskjar, oft langt til hafs. Sýnist og svo, að eigi muni heiglum hent að ýta þaðan frá landi, þar sem ekki er aimað en ein hafnleysa með allri suðurströnd landsins og öldur At- lantsáls eru þar oftast í algleym- ingi. Enda er þar tíðum gæfta- leysi, en fiskur nógur ef út yfir brimgarðinn er komið. Og þess vegna máske stundum dregið á fiot, ef ekki var alveg ófæit í sjó- inn. Enda stundum orðið að slysi. „Ekki er ein báian stök út við Landeyjasand“ kvað Grímur Þor- grímsson — og er merivilegt að jafn rammur íslendingur og hann var, með jafn rammíslenzkt nafn; skyldi láta kalla sig „Thomsen“ mestan hluta æfi sinnar. Eldri menn, sumir sem nú lifa, munu minnast þeirra tíma þegai’ ónytsamt prjál var ekki til í hí- býlum fólksins til sveita. En þá var almennt að ýmsir nytsamir hlutir svo sem ýms búsáhöld, væru prýddir á margan hátt, t. ’d. munir úr tré útskomir, kistlar og- stol^ar, askai’, rúmfjalir o. s. frv. Og hver af þessum prýddu munum var jafnan til einhvers hæfur og oftast í daglegri notk- un. Nú er einnig skorið út á íslandi, en nú er naumast lengur um al- þýðulist að ræða og margir þess- ara nýju gripa einungis til þess hæfir að horft sé á þá, og varla það, t. d. hinir oft svo ósmekk- sem þeim fanst athugavert við hann, verið vel athugað og á rök- um byggt, enda hefi ég, að því leyti, sem það hefir náð til minna afskipta, gert mér far um að taka það til greina og ráða bót á því. Hefir og öll útvarpsstjórnin full- an vilja á því, að ráða sem bezt fram úr vandamálum útvarpsins. Reykjavík, 10. júlí 1931. Páll ísólfsson. Sigurður Einarsson: Átthagafræði. ]>að er nauðalítið, er ritað hefir verið á íslenzkri tungu i uppeldis- fræði, einkum hefir verið deyfð mik- il í þessu efni nú um stundir. Ekk- ert uppeldisrit h.efir nú um hrið verið gefið út á landinu, enda þótt í hverjum fjárlögum sé styrkur skráður tii þessarar útgáfu. — það er enginn hægðarleikur fyrir kenn- ura að alla sér aukinnar þekkingar í kennslumálum. Kennarar eiga ekk- ert l)ókasafn, og við harnaskólana liér í Rvík og kennaraskólann er lít- ill bókakostur á þessu sviði. í Landsbókasafninu er heldur ekki um auðugan garð að gresja. þótt leitað sé þai' með loganda ijósi finnst trauðla nokkur uppeldisfx-æðileg bók. Verða því flestir kennarar að láta sér nægja þá litlu fræðslu er kenn- araskólinn lætur þeim í té. — Kennarar munu þvi fagna hverri nýtri bók, er um grein þeirra fjall- ar. Mun því bók þessi verða þeim [ og öðrum, er láta sig uppeldismál J einhverju skifta, aufúsugestur næsta mikill. Bókin er ekki venjuleg kennslu- bók, heldur handbók fyrir kennara. Átthagafræði (Heimatlcunde, Hjem- stavnslære) er fremur ung fræði- grein og mun hafa verið svo að segja óþekkt á landi liér, þar til Steingrímur Arason tók að íást við kennslumál, en lítt mun hann hafa haft tækifæri til að raunnýta hana að ráði. Höfundur þessarar greinar er talinn yfirkennari í Frankfurt a. M., Finger að nafni. Gaf hann út, bók árið 1844, er hann nefndi „An- vveisung zum Unterricht in der Heimatkunde" (Leiðarvisir í átthaga- Iræðikennslu). Hún hefir það hlut- verk, að veita börnum þekkingu á byggðarlagi þcss, - en sú þekking er reist á eftirtekt barnsins sjálfs. í víð- legu og' langt um of skreyttu askar, sem hvergi nærri komast til jafns við fyrirmyndirnar sum- ar gömlu, vantar þann einfald- leiltans blæ, sem jafnan er feg- urstur. Eitt af því sem fyrrum tíðkað- ist, a. m. k. við suðurströnd landsins, var að hafa bitafjöl útskorna á bátunum. Var hún fest aftan á bitann fyrir framan „bitarúmið“. Sátu þar jafnan, í bitarúminu reyndustu og gætnustu mennirnir, svo að formaður gæti ráðgast við þá ef vanda bæri að höndum. Þótti þar jafnan virðingarsæti. — Þegar ég var í Austur-Land- eyjum, fyrst í desember síðast- liðnum, á bændanámskeiði á Ivrossi, þá gekk ég einn dag vest- ur að Hallgeirsey til að kveðja gamlan góðkunningja, Guðlaug bónda Nikulásson, sem þá lá á banasænginni. Var hann þá mjög aðframkominn, gamli maðurinn og þráði burtför sína héðan úr heimi. Hann var á níræðisaldri og hafði víst búið í Hallgeirsey í hálfa öld, stundað land og sjó, og var vel metinn af öllum, enda prúðmenni í raun og sjón. — Skömmu eftir nýárið, var ég aft- ur á ferð þarna og var þá við jarðarför Guðlaugs heitins, en hann var grafinn að Krossi. — Við Guðlaugur heitinn gátum lítið talast við, er ég sá hann í síðasta sinn, en ég hafði áður hitt hann, bæði eystra og hér syðra, þegar hann var í fullu fjöri. Hann hafði áður verið for- maður við Landeyjasand og átt bát, sem hét „Farsæll“. Báturinn mun fyrir nokkuð löngu liðinn undir lok, en bitafjölina af hon- tækara skilningi teljast hér til st.aðir, menn, hlutir, jurta- óg dýralíf, skyld- ur og.réttindi íbúanna og loks sagnir og saga héraðsins. Erlendis er mikil stund lögð á átthagafræði í smá- barnadeildum. Er hún uppistaðan i kennslu þeirri,. er þjóðverjar nefna | „Gesamtunterriclit". En sú kennsla er undirstaða námsgreinakennsiunnar. Aðferð þessi er notuð í hinum neðri deilduin barnaskólanna. Engin stundaskrá er viðhöfð. Er mest áherzla lögð á, að börnin noti skyn- færin og læri að vinna meö hug og hönd. Bókin er vel samin og virðist standa jafnfætis bókum þeim, er ég hefi átt kost á að sjá á útlendum máluin um þetta efpi. Er enganveg- inn létt að semja sllka bók, þar eð engin bók var til á máiinu i þessari grein og brjóta þurfti brautina. Ber hún vitni . skýrieika höfundar og næmleika hans og skilnings á sálar- lífi barna. Eftir inngang bókarinnar koma um, hafði Guðlaug-ur geymt í mörg ár; og notað fyrir rúmfjöl. Bitafjöl þessa gaf gamli maður- inn mér að skilnaði er ég kom til hans síðast og kvaddi. Bitafjölin er tæpir 150 cm. á | lengd, 14,45 cm. á breidd. Hún er prýdd fagurlega með útskurði til endanna en á miðri fjölinni stenur skorið með upp- hafsstöfum, latnesku letri: „FARSÆLL bigður 1871 — Náð Drottins vors Jesú Ch. veri með oss öllum“. Bitafjöl þessi er skorin af Kjartani Ólafssyni bónda á Þúfu í Landeyjum, en hann var tengdafaðir Skúla bónda á Mó- eiðarhvöli. Á Farsæl réru jafnan 8 menn. Byggður var hann víst upp oftar en einu sinni og fylgdi fjölin hon- um jafnan; þar til hann var ekki gerður upp að nýju, en þá hirti Guðlaugur heitinn fjölina og geymdi vel. Þegar ég var á ferðinni í Aust- ur-Landeyjum, fyrir jólin, reiddi ég bitafjölina með mér upp í Fljótshlíð, að Múlakoti. Þar býr í austurbænum frú Þórunn ólafs- dóttir, kona Árna Einarssonar, en bæ; gremd kona og góð. Faðir hennar var eitt sinn á Farsæl. Var þá Þorbjörn í Kirkjulands- hjáleigu formaður, en hásetar hans þessir: Ólafur í Múlakoti, Sigurður á Kirkjulæk, Jón í Hellishólum, Þorsteinn í Hlíðarendakoti, Jón í Kirkjulækjarkoti, Oddur í Suðurhjáleigu og Árni á Kirkjulæk. kaflar tveir, annar um vinnubrögð og aðferSir, en hinn um efnisval. í fyrri kaflanum er gerð grein fyrir starfsháttum barna, á meðan að þau eru sjálfráð og hveniig kennslan á að vera í samræmi við þá í smá- barnaskólunum, því næst um tæki þau er nota þarf. I síðara kaflanum um efnisval er skýrt frá þvi, hversu velja skuli námsefnið. En það verð- ur að takast úr nánasta umhverfi barnsins og síðan sjónhringúrinn smátt og smátt víkkaður. þá koma ellefu kaflar með fjölda dæma og spurninga úr hinum ýmsu sviðurn lífsins. Eru þar lagðir hornsteinar að hagrænni þekkingu, er hver maður verður að öðlast í hinu daglega lífi og hinum ýmsu fræðigreinum. Er iiöf. furðu hugkvæmur að velja spurningar og dæmi eftir íslenzkum staðháttum. það er galli allmikill, að engar skýringarmyndir eru í l)ók- inni ,en úr því verður væntanlega bætt í nœstu útgáfu. Síra Sigurður Einarsson er einn Árni á Kirkjulæk var Einars- son. Hann var hagmæltur vel og orkti um skipverjana, sem þá voru á bátnum. Vísurnar þær skrifaði ég upp, eftir frú Þórunni, síðast er ég kom að Múlakoti. Byrjar Árni á þeim fremsta í skipinu, en endar á formanninum. — En „Hásetaröð“ eftir Árna á Kirkjulæk er svona: Okkar knör þá er á floti Ólafur frá Múlakoti, barka situr borði á. Fiskinn vel og fylgismaður, fáorður, en tíðum glaður; úrtölur ei iðkar sá. A sömu þóftu sæti hefir Sigurður, og ekki gefur þorski taum, þó togist á. Allt í standi hann vill hafa, hirðumaður er án vafa, Kirkjulæk er kominn frá. Andófsmaður annar valinn okkar er á juli talinn, Hellis- sá er -hólum frá, Jóni getinn, Jón sem heitir jafnan dug og skemmtun veitir bæði lög og landi á. vonum framar virðist mér. Glaður þegar gengui' betur, girndum sínum takmörk setur, mesti sómamaður er. í austurrúmi, einatt glaður, allra bezti fiskimaður Kirkjulækjarkots er Jón. Á sjó og landi sér ei hlífir; sinni vel í áíri dýfir; margra gjörir manna bón. hinn framsæknasti og glæsilegasti hinna yngri skólamanna voi-ra. Leið- beinir hann nú kennaraefnum í kennaraskólanum og kennir jafn- framt í einni deild barnaskólans nýja. Gefst honum þar væntanlega kostur á að raunnýta þar kenningár sínar. Jóhann Sveinsson. Pierre Loti: Á íslandsmiðum. Páll Sveinsson þýddi. Menn- ingarsjóður gaf út. — Rvík 1930. Sjálfsagt er þessi bók nú þegar orðin landsmönnum nokkuð kunn. það er skáldsaga, eftir frakkneskan höfund. Efnið er tekið úr lífi frakk- neskra sjómanna um það leyti sem Frakkar stunduðu mest fiskveiðar við Islandsstrendur. þýðingin er sýni- lega gjörð af vandvirkni en of ná- kvæm. Bókin er frá hendi höf. ágætt listaverk, og er vel farið, að stjórn Menningarsjóðs skuli hafa stuðlað að útgáfu hennar. Háseta á hlunna dýri, hönd þó sjaldan leggi á stýri; einhvem bezta Odd eg tel. Fylginn sér og fylgismaður framsýnn og til greiða óstaður öllum látinn af er vel. Einn á bita Árni situr ég held þetta hver sem flytur, greiði fyrir góðan mann. Skipsáróður skjaldan þiggur, skrafinn er, en lyndisstyggur. Aðgætinn um of er hann. Þorbjörn stýrir þóftu valnum; það má svona lýsa halnum: hagur margt á höndum ber. Hugaður og heppinn líka, hygg ég ekki margra slíka, sem hann var, og enda er. Farsæl út á flyðru móa fýrðar þessir átta róa, upp sem taldir eru hér. Ég bið Drottinn að þeim gæti, engum svo að slysum mæti; á hann treystum allir vér. Bitafjölin af Farsæl og Háseta- röðin hans Árna, mega vel geym- ast, sem minningar um gamlan sið og liðinn tíma. Því bað ég „Tímann" fyrir þessar línur. Hafi j svo Guðlaugur þökk, sem varð- j veitti fjölina og Þórunn, sem vís- unum hélt til haga. Sjálfsagt gætu Landeyingar sagt margt fleira um Fai’sæl, en þetta er allt sem ég veit um hann. Læt ég því hér staðar numið. R. Á. ----o---- systir Sigurþórs bónda í Kolla- | Þorsteinn gamli, Einars arfi andæfir á súðar skarfi,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.