Tíminn - 22.08.1931, Side 4
192
TlMINN
Þeir sem ætla að kaupa
Kalíáburð eða Superlosfat til
notkunar nú í haust, eru beðnir
| að senda pantanir sínar sem
allra fyrst.
ATH. Eins og að undan^
förnu er að eins tekíð á móti
áburðarpöntunum frá samvinnu'
félögum, kaupmönnum, búnað^
arfélögum og hreppsfélögum, en
ekki frá einstökum mönnum.
Reykjavík, 19. ágúst 1931
pr. Áburðarsala ríkisins
Samband ísl. samvinnufél.
4 %
Kjöttunnur,
L. Jacobsen,
KÖBENHAVN Símn.: Cooperage V A L B Y
allt til beykisiðnar, smjörkvartel o. s. frv. frá stærstu beykisamiðj-
um í Danmörku. Höfum í mörg ár selt tunnur til Sambandsina
og margra kaupmanna.
mest drepist aí ungu íé, lömbum
og veturgömlu.
Ýmsar fleiri hugleiðingar mætti
gera aí skýrslunum, en því skal
nú sleppt hér, enda geta menn
sjálfir gert sumar þeirra, er þeir
athuga skýrsluna.
Vafalaust verður búið til ís-
lenzkt bóluefni í haust. Annað
væri með öllu óverjandi. Menn
eiga vitanlega að reyna það, en
þó menn geri það, þá eiga menn
ekki að hætta að nota danska
bóluefnið. Það þarf að notast til
samanburðar. Og ég vil mælast til
þess að menn geri það sem flest-
ir, og muni að vetri að senda mér
skýrslur um árangurinn.
TJtlit er þannig með sprettu, að
ekki er líklegt að mikið verði sett
á af lömbum. En eitthvað verður
það, og veturgamalt fé þarf þó að
bólusetja. Menn þurfa því nú,
eins og venjulega, að fá sér bólu-
efni. Hvernig menn haga þeim
kaupum er misjafnt, og á því
getur verið og þarf að verða betra
lag en verið hefir.
Sumsstaðar ætlast menn til
þess að verzlanir hafi bóluefnið,
og vilja svo kaupa það þar, þegar
þeir þurfa. Þetta er ólán. Við
þeirri kröfu eiga verzlanir ekki
að verða og bændurnir eiga ekki
að gera þá kröfu til þeirra. Verzl-
anir geta ekki vitað, hvað mikið
viðskiptamennirnir þurfa, og því
getur svo farið, eins og mörg
dæmi eru til, að þær hafi ekki
bóluefnið alltaf. Menn geti því
ekki náð í það, þegar þeir vilja
bólusetja, og missi því fé úr pest
að óþöifu. Taki verzlunina aftur
mikið, getur hún legið með það
frá ári til árs, og það vill hún
helzt ekki, og þá er líka meiri
hætta á að bóluefnið geti
skemmst, enda þótt að það eigi að
vera hægt að geyma það óskemmt.
Á öðrum stöðum láta menn
sýslumennina hafa bóluefnis-
verzlunina. Úm það er alveg hið
sama að segja og um það, þegar
verzlun verzlar með bóluefnið.
Það fylgja því sömu annmarkar,
og enginn kostur annar en sá, að
fjáreigendur þurfa litla fyrir-
hyggju fyrir því að hafa að ná
í það.
Sumsstaðar panta bólusetjarar
í eins margt og þeir hyggja að
þeir muni bólusetja að haustinu.
Þegar ræða er um menn, sem
bólusetja fyrir marga, er ekki
gott fyrir þá að vita með vissu,
hve margt þeir munu verða látn-
ír bólusetja. Annars færist nú
meira og meira í það horf, að
hver bólusetji fyrir sjálfan sig,
og að því ber vitanlega að stefna,
að svo verði.
Nokkrir bændur panta fyrir sig
sjálfir. Gerðu allir það, þyrfti á
7. þúsund sendingar af bóluefni,
og burðargjaldið undir þær allar
yrði allmikið. Það væri fjársóun
að óþörfu.
Langsjáifsagðast er, að hver
oddviti panti fyrir si’nn hrepp. Á
vorhreppaskilum eða á mann-
fundi síðar að sumrinu tekur
hann þá á móti pöntunum manna,
iær að vita, hvað hver vill mikið
og hvers konar bóluefni, í hvernig
glösum hver vill, sem vill danska
bóluefnið, og pantar svo í einu
lagi fyrir allan hreppinn. Þá get-
ur pöntunin komið svo snemma
Mauser fjár- og stórgripa
byssur eru handhægar og traustar.
Verð kr. 18.50.
Haglabyssur, einhl. 90 cm. hlaup-
lengd. Kr. 65.00
Tvíhleypur 75 cm. hlauplengd.
Púður og högl, skotfæri alskonar.
Sportvöruhús Reykjavíkur
Bankastr. 11. Box 384.
Ritstj óri: Gísli Guðmundsson
Ásvallagötu 27 Sími 1245
Prentsmiðjan Acta 1931
til seljanda, að hann viti hve mik-
ið þarf að búa til, ef um innlent
efni er að ræða, en hve mikið
þarf að fá frá Danmörku, ef um
erlent efni er að ræða, en þetta
atriði er mjög mikilsvert. Ef
þessa er ekki gætt, þá getur far-
ið svo um erlenda bóluefnið, eins
og nokkrum sinnum hefir komið
fyrir, að það sé uppselt á miðju
hausti, og menn ekki geti náð í
það, þegar þeim hefir legið á, og
því misst fé að óþörfu úr pest.
Og með innlenda efnið getur
þá farið svo, að eftirspurnin að
haustinu verði svo ör, að ekki
vinnist tími til að prófa styrkleik-
ann á sauðfé, áður en gengið er '
frá því í sendingar-glösin, en það
er vitanlega alveg nauðsynlegt.
Því ríður á að bóluefnið, bæði
það innlenda og danska, sé pant-
að í tíma, svo hægt sé að full-
nægja pöntunum manna.
Margir hafa látið pöntun fylgja
skýrslum þeim, er þeir sendu mér
um reynsluna á bóluefninu i
fyrra. Síðan hafa ástæður breytzt,
og ekki víst að lambalíf verði eins
mikið og menn þá bjuggust við.
Ég hygg því að það væri réttast
að menn endurnýi þær pantanir,
og þá helzt gegnum oddvitana
fyrir allan hreppinn í einu. Með
því móti þarf ekki nema 200 send-
ingar út um landið, og við það
vinnst tími og burðargjald.
Pantanir sínar á innlenda efn-
inu ættu menn að senda beint til
rannsóknarstofu Háskólans, en á
því danska til frú Ástu Einarson,
Túngötu.
Það virðist eins og pestin sé
3hL á: á: dc, æ ác á; X. á; ;fc :fc :fc & & át
^JtLSfeSftífeJli5fe5fe5fe*fe5fe5fe5feflR5fe5fe5fe5fejfc5fe5fe5fe5fe5feSfe:
Tgyggið aðeins hjá íslensktt fjelagi.
Pósthólf:
718
Símnefni:
Incurance
BRUNATRY 6 G I N G A R
(hús, innbú, vörur o.fl.). Sími 254
SJÓVATRYGGINGAR
(skip, vörur, annar flutningur o.fl.). Sími 542
Framkvæmdastjóri: Síml 309
Snúið yður til
Sjóvátryggtng&ljelags Islands h.f.
Eimskipafj elagshúsinu, Reykjavík
HyííöI frá ÞÓR ernú
kjördrykkur oröið
konan pað skamtar með
matnnm á borðið.
farin að drepa fyr á haustin en
áður.
Fyrir réttir drap hún sumsstað-
ar í haust (Eyjafirði, Hornafirði
og víðar), og meðan sláturtíð
stóð yfir drap hún margt víða.
Því eiga menn að bólusetja líf-
féð snemma að haustinu. Þá er
tíð líka venjulega betri og hlýrri
en seinna og þá verður fénu
minna um, en þegar veður eru
orðin misjöfn og fé byrjað að
leggja af.
Ég vil endurtaka það og biðja
bændur að athuga vel, að hafa
nú, og í framtíðinni, samvinnu
um það innan hrepps, að panta
bóluefni og panta það í tíma, þá
er vissa fyrir, að þeir geta feng-
ið það danska, og að hægt er að
senda þeim innlent efni, sem búið
er að reyna á fé hvað styrkleika
snertir.
Þá er rétt að benda mönnum á
það, að bólusetningarsprauturnar,
sem menn nota, eru misstórar,
það er að segja milli marka á
sprautunum eru mismargir ten-
ingssentimetrar.
Þetta hefir þau áhrif á bólu-
setningu með danska efninu, að
það verður úthrært í mismiklu
vatni, en að öðru leyti fær hver
kind sinn skammt.
íslenzka efnið er aftur á móti
vökvi, og því fá kindurnar mis-
marga skammta eftir stærð
sprautanna. I fyrra átti að endast
úr glasinu í 50 kindur. En þeim,
sem áttu stærst inndeildu spraut-
urnar, entist ekki nema í 25 kind-
ur úr glasinu, öðrum í 36, enn
öðrum í 50, enn öðrum í 75 og
einstaka í 100 kindur. Það var
því bæði til, að kindin fékk tvö-
faldan skammt og hálfan skammt.
Hvort þetta kann að eiga ein-
hvern þátt 1 því, að meira hafi
drepist úr pest þar, sem kindin
fékk hálfan skammt, og af bólu-
setningu þar, sem hún fékk tvö-
faldan skammt, er ekkert hægt
að fullyrða um, því þótt ég á
flakki mínu -hafi séð sprauturnar,
þá veit ég ekki hvernig sprautu
hver einn af þeim hundruðum
bænda, sem hafa sent mér skýrsl-
ur eiga. En hver einn ætti að
prófa stærð sinnar sprautu, og
það er auðgert rueð vatni úr
meðalaglasi af ákveðinni stærð.
Athugið sprauturnar, rannsakið
livað þær rúma milli strika.
Eg ber þá íon í brjósti, og eg
vil láta það verða að vissu, að
okkur megi takast það hér heima
að búa til gott bólusetningarefni,
og til þess eigið þið bændur lands-
ins að lijálpa, með því að gera á
því samanburð og danska bólu-
efninu, sem þið hafið notað og
eigið að nota jöfnum höndum við
það íslenzka.
Og ég vona að þá heppnist að
leysa ýmsar getgátur, er standa í
sambandi við pestina, eins og það,
hve fé þolir bólusetninguna mis-
jafnt, hve fé er mismóttækilegt
íyrir pest, hve lengi kindin verð-
ur ómóttækileg eftir bólusetningu
o. m. fl., sem maður veit lítið eða
ekkert um ennþá.
Reykjavík, 12. júlí 1931.
----o-----