Tíminn - 29.08.1931, Side 3

Tíminn - 29.08.1931, Side 3
TÍMINN 195 Gagnfræðaskólinn í Neskaupstað starfar í tveim deildum frá 1. okt. til 1. mai. Inntöku í eldri deild fá þeir, sem lokið liafa prófi upp úr yngri deild Unglingaskóla Neskaup- staðar og aðrir, sem hlotið hafa svipaða fræðslu. Umsóknir séu komn- ar fyrir 15. sept. næstk. Neskaupstað 2. ág. 1931 Jakob Jónsson settur skólastjóri. ♦ Húsgögn ♦ sem við höfum fyrirliggjandi í miklu úrvali þurfa allir að kaupa. Meðal annars: AfllllllQíf/Í(tn samsí;æö, sérstaka skápa, matborð og DUlUÖlUiUllUljgUgll mjög ódýra og fallega borðstofustóla. eftir nýjustu tísku, smíðuð eftir pöntun. Ennfremur dýnup og dívana af öllum gerðum. Barnavagnar okkar eru viðurkenndir þeir fallegustu og beztu, sem til landsins flytjast. Þeir eru djúpir og hlýir og seljast árið yfir. Ennfremur höfum við barnakerrur, barnarúm, vöggur og stóla, Auk þess höfum við mjög mikið úrval af körfustólum, skrifstofu- stólum, reykborðum, blómasúlum og stofuborðum o. m. fl. Vörur sendar með pöstkröfu út um land. Hósiiiiaverzlui leykjivlknr. Vitisstíg 3 Sími 1940 Jörðin Syðrasel í Hrunamannahreppi fæst til kaups og ábúðar í næstu fardögum. Hún er með bestu heyskaparjörðum í Arnessýslu, tún og engjar að mestu leyti véltækt og jörðin að öðru leyti mjög hæg. íbúðarhús úr timbri með miðstöðvarhitun. Hlöðu fyrir ca. 1000 hesta, fjós yfir 25 nautgripi, fjárhús fyrir 250 fjár. Komið gæti til mála kaup á jörðinni nú þegar, með heyjum og allri áhöfn. Borgunarskilmálar góðir. Upplýsingar gefa Skúli Ágústsson Laugaveg 42 Reykjavik eða Helgi Ágústsson Sigtúnum við ölfusá. ustu ára er sagan um alhliða framsókn þjóðar, sem er að vaxa og trúir á tilverurétt sinn og framtíð. Og í þessari marghátt- uðu umbótastefnu hefir Fram- sóknarflokkurinn hvarvetna haft forustuna og íhaldið verið drag- bíturinn, eftir því sem ástæður hafa frekast leyft. Nú síðustu vikur hafa mál- gögn íhaldsmanna predikað, að þjóðin hefði vei'ið betur farin, ef hún væri án þeirra stórfelldu framfara, sem orðið hafa á síð- ustu árum. Eftir því væri ólán að hafa fengið akfært milli flestra af helztu byggðum lands- ins, að hafa fengið góðar strand- ferðir, kælihús, rjómabú, stór- íelldar ræktunarumbætur, mynd- arleg og varanleg steinhús 1 sveit- um, góð sjúkrahús, skóla, réttar- far þar sem borgararnir eru jafnir fyrir lögunum, banka fyrir aðalatvinnuvegi landsins o. s. frv. Ihaldið getur sagt, að það vilji ekki framfarir. En í raun og veru meinar það ekld annað en að fá- tækari stéttir landsins eigi að fara á mis við gæði lífsins. Inn- an vébanda íhaldsflokksins eru allir þeir Islendingar, sem lifa miklu eyðslulífi. Og sá hluti þjóð- arinnar vill hafa góð hús fyrir sig, banka, góðar samgöngur, sjúkrahús ef veikindi ber að höndum, og skóla fyrir börnin til að lyfta þeim í mannvirðinga- stigann. En eins og Jón Þorl. sagði 1908, íhaldsmenn vilja ekki þessar framfarir handa efnaminni stéttunum. íhaldið skortir sam- úð með þeim, sem eiga harðari lífsbaráttu, og aflaklær íhaldsins vilja ekki bera þungann af skött- um, sem ganga til almennra um- bóta. Kjörtímabilið 1927—1931 tákn- ar stórfellda framfarabaráttu hér á landi, og á þeim árum hefir verið lagður grundvöllur að fram- tíð nýrra tíma, þegar frjáls og starfsöm þjóð byggir landið og bætir það með fórn og iðju hverr- ar kynslóðar. I bili getur verið að forkólfum kyrstöðunnar takist að blekkja sjálfa sig með harma- tölum út af bættum lífsskilyrð- um í landinu. En það mun ganga erfiðlega að telja þeim stéttum hér á landi, sem háð hafa erfið- asta lífsbaráttu, trú um það að kyrstaðan sé betri en framfarir. Það var gifta þjóðarinnar að orku hennar hefir á undanfömum árum verið beitt til að skapa grundvöll að þróttmiklu starfi og menningarlífi á Islandi. Verkefni næstu ára verður nokkuð annað. Umbótabaráttan kemur fram í nýjum myndum. Verkefni næstu ára verður að lækna hina óeðlilegu dýrtíð í landinu. Þar er líka að ræða um gamlar syndir íhalds- stefnunnar. Þar verða að gerast ný átök við kyrstöðuöflin í land- inu. Verður vikið nánar að því máli í næsta blaði. J. J. -----o---- Gagnfræðaskólinn í Neskaupstað tekur til starfa í haust. Hafa þá kauptúnin á Austurlandi eignast menntastofnun út af fyrir sig, sem svarar til gagnfræðaskólanna í Reykjavík og á Akureyri. Má það vera metnaðarmál Austfirðingum að hlúa að þeirri stofnun. Skólastjóri í vetur verður sr. Jakob Jónsson í Neskaupstað og kennari, auk hans, Eiríkur Sigurðsson. í pingvallanefnd voru kosnir í sam einuðu þingi Jónas Jónsson, Jón Baldvinsson og Magnús Guðmunds- son, allir endurkosnir. Samsteypustjóm í Englandi. pau eftirtektarverðu tíðindi liafa orðið í Englandi í síðustu viku, að ráðu- neyti Mac Donalds (jafnaðarmenn) liefir beðist lausnar, en í þess stað hefir Mac Donald myndað samsteypu stjórn, sem skipuð er mönnum úr þrem aðal stjórnmálaflokkunum. I þessari nýju stjórn eiga sæti m. a. Baldwin, foringi íhaldsflokksins og Sir Herbert Samuel, sem er foringi Frjálslynda flokksins í forföllum Lloyd George, sem nú er veikur. Bú- izt er við nýjum kosningum bráðlega. „Of miklar samgöugnr" I íhaldsdagblaðið Vísir birti 22. þ. m. grein með ofanritaðri fyr- irsögn. Úti um land er þetta blað, sem þó er annað höfuðmál- gagn íhaldsins, og aðallega hefir flutt byltingakenningar Jakobs Möllers, í fárra manna höndum. Tímanum þykir tilhlýðilegt að prenta nokkra kafla orðrétta upp úr þessari grein, til þess að sveitafólkið geti séð, hvernig „tónninn“ er í „byltingarmönn- unum“ núna um sláttinn. Þar stendur m. a.: „Samgöngurnar á sjó eru sem sé komnar í það horf, að þær eru alt of miklar á móts við gagnið sem þær gera“. Og þá þetta: „Lítið á strandferðaáætlun ríkis- sjóðsskipanna. Viðkomustaðirnir eru orðnir 60, og þar af um 20 á Vest- fjarðakjálkanum einum". Það er svo sem auðséð, að þær sömu þjóðhetjur íhaldsins, sem, eftir að kosningaúrslitin urðu kunn, ætluðu að hefja við- skiftastríð við Árnessýslu, hafa nú snúið reiði sinni á fleiri en bændurna á Suðurláglendinu. — Barðstrendingar felldu líka Há- kon frá þingsetu og það mun nú eiga að koma þeim í koll! 20 viðkomustaðir „á Vestfjarða- kjálkanum einum“ sýnist íhald- inu allt of mikið 1 landshluta, þar sem það á ekki nema eitt kjördæmi af fjórum — og það jafnvel þó að kjósendur Jóns Auðuns í Norður-Isafjarðarsýslu eigi líka í hlut. En hugsunarháttur þeirra manna, sem helzt vilja setja allt landsfólkið niður á Seltjarnar- nesi, kemur þó bezt fram í því, sem hér fer á eftir. I blaðinu seg- ir svo: „það sem verst er af öllu er þó þetta: — Með þessu samgöngukerfi er verið að hlaða undir staði á landinu, sem engan tilverurétt eiga, íyr en þjóðin er komin í þröng með landrými eða með öðrum orðum: orðin miljónaþjóð. — það eru gerðar ráðstafanir til að negla niður byggðir og bú á afskektum stöðum, festa þar fé og vinnukraft, sem eykur þjóðinni endalaus gjöld og fyrirhöfn — það er verið að dreifa þjóðinni og þynna út afl hennar, í stað þess að nota heldur fjármagn landssjóðsins til þess, að stuðla að heilbrigðri samþétting á hentugustu stöðunum'1. Hugsunin er greinileg. Það á ekki að gefa fólki undir fótinn til að „negla niður byggðir og bú á afskekktum stöðum“. Og þessir „afskekktu staðir“ eru við- komustaðir strandferðaskipanna (væntanlega þó ekki allir!) og byggðirnar þar í kring. I stuttu máli: Eftir kenningu „byltingar- mannanna“ á blátt áfram að neyða fólkið til að flytja úr sveit- unum, með því að láta það ekki hafa neinar samgöngur á sjó. Þá stendur í greininni þessi eftirminnilega klausa: „Ef menn nú ekki beinlínis óska þess, að hagur landsins stöðvist í | því öngþveiti, sem þjóðræðið hefir sett hann í, þá verður nú að fara að ganga á milli bols og höfuðs á skaðlegustu þjóðlyginni, sem nú þjakar heilbrigðri hagsýni í land- inu, og hún er þessi — að allir þegnar ríkisins hafi Jafnan rétt til landssjóðsins*) Þessi er „heimspeki byltingar- innar“ eins og hún kemur fram í blaði Jakobs Möller sjálfs, að það megi með engu móti lengur verða þolað „að allir þegnar ríkisins hafi jafnan rétt til lands- sjóðsins"! Myndi það ekki vera íhaldið í Reykjavík, sem aðallega á að hafa þennan „rétt til landssjóðs- ins“, þegar „byltingarmennirnir“ fá meirahluta á Alþingi? Þannig talar íhaldið í Reykja- vík í sinn hóp. Einmitt nú, þegar *) Auðkennt í Vísi. atvinnukreppan steðjar að í höf- uðstaðnum, á að kúga bændurna til að flytjast til Reykjavíkur. Ennþá hefir Framsóknarflokk- urinn meirahluta á Alþingi. Svo lengi sem það helzt, verður í- haldið sjálfsagt að horfa upp á það, að strandferðaskipin flytji vörur fyrir fólkið á „Vestfjarða- kjálkanum“ og aðra, sem líkt stendur á um. En hitt væri hugsanlegt, að greinar eins og sú, sem drepið hefir verið á hér að framan, gætu orðið til þess, að byggðir eins og „Vestfjarðakjálkinn“ hættu alveg að sjá sér hag í því að láta strandferðaskipin flytja íhaldsþingmenn til Alþing- is. ---o--- Fréttir Tryggvi pórhallsson forsætisráS- herra fór ásamt konu sinni og dótt- ur utan með Brúarfoss, s. 1. mið- vikudagskvöld. Ásgeir Ásgeirsson fjárráðherra veitir atvinnu- og sam- göngumálaráðuneytinu forstöðu í fjarveru hans. NorSlenzku þingmennirnir fóru að þessu sinni landveg heim í bifreið- um yfir Kaldadal og lögðu af stað á miðvikudagsmorgun. Austfjarðaþing- menn fóru með Esju í fyrrakvöld. Fyrsti fundur í kjördæmaskipun- arnefndinni var haldinn á miðviku- dagsmoi'gun s. 1. Jón Baldvinsson bar þar fram tillögu þess efnis, að þing- mannatala í réttu hlutfalli við kjós- endatölu, yrði iögð til grundvallar fyrir starfi nefndarinnar. Frestað var að taka ákvörðun um tillöguna og fundum nefndarinnar jafnframt frest- að fyrst um sinn vegna brottfarar forsætisráðherra og fleiri nefndar- manna. Reykholt. Ilinn stóri og myndar- legi alþýðuskóli á höfuðbóli Snorra 1 Stui'lusonar er nú nærri fullgerður og tekur til starfa í haust. Skóla- stjóri verður Kristimi Stefánsson cand. theol., sem í fyrra var kennari á Laugarvatni. Aðrir kennarar við skólann verða, eftir því, sem blaðið hefir heyrt, sr. Einar Guðnason í Reykholti, þórir Steinþórsson bóndi í Reykholti og JJorgils Guðmundsson, hinn góðkunni íþróttamaður, áður kennari á Hvanneyri. Mun hann annast sundkennsluna. Verður sund- laugin í Reykliolti sú glæsilegasta, sem enn er til í landinu. Slcólahús- ið stendur rétt við Snorralaug. það er hitað með vatni úr hv.ernum Skriflu, þannig, að hveravatninu er veitt i þró utan við liúsið, en ferskt vatn er leitt í pípum gegnum þróna, liitnar þar og rennur síðan i hita- leiðslu hússins. — í Reykholti mun i vetur vei'ða veitt viðtaka um 60 nemendum, og mun nú vera hver síð- astur að tryggja sér þar aðgang. — Síðan i júlibyi'jun hefir skólahúsið verið sumarbústaður fyrir kaupstaða- fólk, sem leitar hvíldar i sveitinni, og gististaðui' fyrir ferðamenn. Eru þar veitingar á boðstólum allan dag- inn fyrir þá, sem um veginn fara. En Reykholt er alveg í leiðinni þegar Kaldadalsvegurinn er farinn milli Norður- og Suðurlands. Næst Laug- arvatni er hið nýja skólahús í Reyk- holti vafalaust bezti gististaður, sem völ er á i sveit yfir sumartímann. PrófessorsembættiS í sögu við há- skólann liefir af konungi verið veitt Árna Pálssyni bókaverði. Er þar far- ið eftir tillögum nefndar þeirrar, er liáskólinn setti til að dæma um sam- keppnisprófið. Eins og áður hefir verið drepið á hér í blaðinu er úr- skurður nefndarinnar um próf þetta mjög undarlegur, þar eð Ami Páls- son hafði ekki lokið nema hluta af ritgerðinni og gat því í raun og veru ekki komið til greina. Veitingarvald- inu mun þó ekki hafa þótt rétt aö ganga móti tillögum háskólans að þessu sinni. Hinsvegar gefur frammi- staða nefndarinnai' fullt tilefni til að íhuga, hvort sá vandi sé eftirleiðis leggjandi á herðar háskólanum sjálf- um, að ráða mannavali í kennara- stöður. Má það valda áliyggjum, þeim er hag háskólans unna, hvemig nú er skipað starfsliðið í aðal vísinda- stofnun þjóðarinnar. — Hinsvegar ber ekki að saka Árna Pálsson um það, þó að annar maður honum fær- ari, væri settur hjá af nefndinni, þeg- ar dæmt var um úrslitin. Félag ungra Framsóknannanna í Reykjavík fór um fyrri helgi skemmtiferð í þjórsárdal. Um 50 manns tóku þátt í förinni. Var lagt af stað úr Reykjavík síðara hluta laugardags og komið aftur á sunnu- dagskvöld. Gisti unga fólkið í hlöðu á Ásólfsstöðum um nóttina. Ásólfs- staðir eru nú næstinnsti bær í þjórs- árdal, en áður var dalurinn byggð- ur lengra fram, en sú byggð eyddist af öskufalli á 14. eða 15. öld. í þjórs- árdal bjó Hjalti Skeggjason. Sér enn í dalnum ýms merki byggðarinnar og hyggja ýmsir þar elztan kirkju- garð á íslandi á bæ Hjalta. í þjórs- árdal er fagurt mjög, svo að fágætt er kallað af mörgum. Hefir Páll bóndi á Ásóifsstöðum nú komið upp sumargistihúsi og dvelur þar nú mai'gt fólk á sumrin. — Almenn ánægja er meðal þeirra, sem þátt tóku í förinni, enda var veður ágætt, glaða sólskin og hlýtt. Vafalaust efn- ir félagið til fleiri slíkra ferða, með því fyrirkomulagi, að vel sé kleift fjárhagslega, efnalitlu fólki. Myndu slíkar ferðir vænlegri til hollra áhrifa en þær pólitísku dansskemmt- anir fyrir kaupstaðaunglinga, sem nú tíðkast í sumum stjórnmálaflokkum. Dómur í máli kommúnistanna, sem sakaðir voru um forgöngu í upp- þotinu, sem varð á bæjarstjórnar- fundi í vetur, var kveðinn upp í undirrétti 24. þ. m. þorsteinn Péturs- son hlaut 60 daga, Guðjón Benedikts- son 30 daga og Jónas Guðmundsson 15 daga einfalt fangelsi skilyrðis- bundið. Magnús þorvarðsson hlaut 60 daga og Georg Knudsen 30 daga fangelsi, báðir dæmdir áður. Haukur Björnsson var dæmdur í 100 kr. sekt eða 7 daga einfalt fangelsi. GuSmundur Hlíðdal liefir verið settur landssímastjóri. í verðlaunanefnd „Gjafar Jóns Sig- urðssonar" voru kjörnir á Alþingi Hannes þorsteinsson, Ólafur Lárus- son og Barði Guðmundsson. Sr. Vilhjálmur Briem var endur- kosinn framkvæmdastjóri Söfnunar- sjóðs íslands til næstu 6 ára, en gæzlustjóri Bjarni Ásgeirsson alþm. ----O----- AJLþingi Deildafundum á Alþingi lauk nokkru eftir hádegi á mánudag. Kl. 5 var fundur settur í sameinuðu þingi. Var þar lokið afgreiðsiu nokk- urra mála, þ. á m. kosningum i nefnir o. fi., og þinginu slitið. Einar Árnason var á laugardag kjörinn foi’seti sameinaðs þings í stað Ásgeirs Ásgeirssonar fjármála- ráðherra. Hiaut E. Á. 22 atkv. en Jón þorláksson 14. Milliþingaforsetar voru kjörnir í efri deild og sameinuðu þingi. Mæia iög svo fyrir, er forsetar eru búsettir fjarri höfuðstaðnum. Var Magnús Torfason ltosinn milliþingaforseti i efri deild en Bjarni Ásgeirsson i sameinuðu þingi. Yfirskoðunarmenn landsreikning- anna voru kosnir Hannes Jónsson alþm., Pétur þórðarson bóndi í Hjörsey og Magnús Guðmundsson alþm. í útflutningsnefnd síldareinkasöl- unnar voru kosnir Einar Árnason alþm., Böðvar Bjarkan og Bjöm Líndal, en til vara Ingimar Eydal, þormóður Eyjólfsson og Stefán Jón- asson. í menntamálanefnd voru kosnir Ragnar Ásgeirsson, Barði Guð- mundsson, Stefán Jóh. Stefánsson, Ingibjörg II. Bjarnason og Ámi Pálsson. Sigurður Nordal, sem dvel- ur erlendis næsta ár, hafði beðist undan endurkosningu. Kemur Barði Guðmundsson i hans stað, en að öðru leyti er ráðið eins skipað og áður. í kjördæmaskipunarnefndina hafa verið tilnefndir: Af hálfu Framsókn- arflokksins: Tryggvi þórhallsson forsætisráðherra og Bergur Jónsson alþm. Af hálfu íhaldsflokksins: Jón þorláksson alþm. og Pétur Magnús- son alþm. Af hálfu jafnaðarmanna: Jón Baldvinsson alþm. Hefir ríkis- stjómin samkvæmt útnefningu flokk- anna, skipað þessa menn í nefndina og Berg Jónsson alþm. formann nefndarinar.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.