Tíminn - 12.03.1932, Qupperneq 2
40
TÍifflNN
haldast, þó að fiskurinn sé í lágu
verði.
En ólafur Thors biður um ann-
að. Fellum krónuna. Slítum hana
frá pundinu og krónum nábúanna
í austri. Þá getur framleiðslan
borið sig. Alþýðuflokkurinn er
ánægður, ef einhverjir halda
að nafni til sama kaupi og áður.
Að öllum líkindum taka verka-
menn vel í vinmál Ólafs og Ja-
kobs. Þá yrði flokkur verkamanna
eins og ofurlítil lagleg og vel hýst
hjáleiga í nánd við höfuðbólið.
íhaldið yrði náðugt. Það biður
ekki nema um lítilræði: Að verka-
menn hætti að vinna að umbót-
um með Framsókn. Svefn kyr-
stöðunnar á að koma eins og áður
var.
Gott dæmi um heilindin í þess-
ari nýju samsteypu má sjá af
deilunum um vigtun á síld. Vil-
mundur bar fram frv. Hann sann-
ar að svikin eru mikil. Hann stað-
hæfir að á einum togara frá ísa-
firði sé tap fólksins 50 þús. kr.
vegna sviknu síldarmálanna, mið-
að við verzlun undanfarinna 5
ára. Er til atkvæða kom gengu
allir íhaldsmenn í deildinni móti
frv. Þeir vildu láta leikinn geta
haldið áfram. En það var samþ.
til 3. umræðu með atkvæðum
samvinnumanna og verkamanna.
Hversu myndi frv. þessu hafa
vegnað, ef ólafur Thors hefði ver-
ið kominn í meirahluta? Hve mik-
ið tjón hefði sjómönnum verið að
því, ef íhaldið hefði kúgað Vil-
mund í þessu máli? Og þó er
þetta ekki með stærstu hags-
munamálunum. En það sýnir á
hverju verkamenn eiga von frá
sínum nýju flokksbræðrum. Auk
þess myndi íhaldið tæplega hafa
látið leita að sviknu mælikerun-
um uppi á hinu grunsamlega
rimlalofti. Ef til vill reyna verka-
menn á sínum tíma að blíðmæli
Jakobs Möllers og ólafs Thors eru
nærri því eins haldlítil, þegar á
reynir, eins og loftið var í hinu
dimma pakkhúsi, þar sem ólafur,
vinur verkamanna og sjómanna,
geymdi sín dýrmætu mæliker.
Gangleri.
-----0-----
Kosningar eru nýfamar fram í ír-
landi. Flokkur lýðveldissinna, sem
vilja skilnað við Breta, vann sigur.
Foringi þess flokks er De Valera.
Hann er nú orðinn forsætisrá'öherra
íra. - 'i'rTírJjUÍi
MDif i sveitun
Einn af bankastjórum Búnaðar-
bankans liitti mig á götu í Reykjavík
í fyrra. Af því að við vorum mál-
kunnugir tókst með okkur samræða.
Meðal annars segir bankastjórinn á
þessa leið: Nú verðið þið bygginga-
mennimir að finna nýjar og ódýrar
byggingaraðferðir fyrir bænduma,
þvi þrátt fyrir allar góðar ráðstafan-
ir, Bygginga- og Landnámssjóð og
Búnaðarbankann, þá eru nýju bygg-
ingamar í sveitum að sliga bænd-
uma og allan búskap þessa lands.
Eins og nærri má geta, gaf ég lítið
út á þetta mikilvæga atriði, en dá-
lítið hefi ég hugsað um það siðan.
Langar mig nú til að skýra banka-
stjóranum, öðrum valdhöfum búnað-
armálanna og þeim bændum, sem
enn eiga eftir að byggja upp bæina
sina, frá athugunum mínum og til-
lögum viðvíkjandi þessu máli.
Síðan um 1915 að farið var að
byggja upp sveittabæina, hefir það
fyrst og fremst vakað fyrir bændum
og þeim lánsstofnunum, sem hafa
hjálpað þeim til þess, að byggt væri
úr varanlegu efni, steinsteypu, og að
stærð og gerð húsanna væri sniðin
fyrir framtíðina. Annars hafa ekki
fengizt lán til bygginganna. Stund-
úm, þegar ég hefi viljað draga úr
stærð sveitabæja, sem ég hefi gert
uppdrætti að, hafa bændur sagt við
mig stór orð, er hafa hljóðað á þessa
leið: Við eigum að byggja stór og
góð híbýli í sveitunum. það sem
kostað er til húsakynna og ræktunar
landsins verður aldrei tekið paðan
Fulltrúar flokkanna í kjör-
dæmaskipunamefndinni bera fram
mismunandi tillögur um kjör-
dæmaskipunina. Er því von á
þrem nefndarálitum. Er álit
„Sjálfstæðis“-manna komið, en
ókomin eru enn álit Framsóknar-
manna og Jafnaðarmannsins, en
munu væntanleg von bráðar.
Tíminn mun ekki ræða málið al-
mennt fyr en þau álit liggja fyr-
ir.
1 þingbyrjun héldu „Sjálfstæð-
is“-menn flokksfund hér í bæn-
um. Tillögurnar voru lagðar fyrir
hann. Reykvíkingarnir höfðu tek-
ið þessu vel. En fundarmenn utan
af landi höfðu tekið þessu mjög
illa. Urðu harðar umræður og er
fullyrt að höfundur tillagnanna,
Jón Þorláksson, hafi farið af
fundinum í reiði og ekki komið
þangað aftur. En fundurinn sam-
þykkti síðan mjög strangar at-
hugasemdir við tillögurnar og
koma þær í bága við það, sem
Jón Þorálksson telur aðalatriði
málsins: en það er það atriði, að
tala uppbótarsæta sé ótakmörkuð.
Tillögur Jóns Þorlkssonar skapa
kosningafyrirkomulag, sem hvergi
á sinn líka í heiminum. Að hafa
smákjördæmi samfara takmarka-
lausum uppbótarsætum er kjör-
dæmaskipun, sem engin þjóð hef-
ir hingað til látið sér detta í hug
að leiða í lög. Er það varla tilvilj-
un, heldur mun hitt valda, að
þetta mun óframkvæmanlegt án
óviðunandi annmarka.
Lætur Tíminn það bíða hinna
ókomnu nefndarálita að ræða
þetta fyrirkomulag í einstökum,
atriðum. Þess skal aðeins getið,
að ef þessar tillögur Jóns Þor-
lákssonar hefðu verið orðnar að
lögum er síðast var kosið' og ef
atkvæðatölu.r þeirrar kosningar
eru lagðar .til grundvallar með
þeirri einu undantekningu að gert
er ráð fyrir að Jafnaðarmanna-
flokkurinn á Seyðisfirði hefði
klofnað, þá hefði útkoman orðið
ærið eftirtektarverð. Ef gert er
ráð fyrir að kosningu hefði hlotið
það flokksbrotið, sem klauf sig út
úr Alþýðuflokknum — kallað sig
t. d. flokk óhiáðra jafnaðarmanna
— og frambjóðandinn hefði fengið
rúmlega helming þeirra atkvæða,
aftur. Og þó að við verðum gjald-
þrota vegna þess koatnaðar, þá kaupa
aðrir jarðimar fyrir lágt verð og
njóta framkvæmdanna. En hver
greiðir það sem framkvæmdamaður-
inn ekki getur greitt? Lánsstofnunin,
sem tapar fé á honum, verður að
taka tap sitt með háum vöxtum af
þeim, sem hún síðar lánar fé. Hafi
sú lánsstofnun einnig viðskipti við
aðra t. d. útgerðarmenn eða iðnaðar-
menn, flyzt tapið yfir á þá atvinnu-
vegi. Hið gamla góða orðtak verður
þá ekki lengur fullgilt: „Bóndi er
bústólpi, bú er landstólpi“.
Til þess að gera sér grein fyrir
því, hvaða áhrif byggingarkostnað-
urinn hefir á afkomu bændanna, vil
ég taka dæmi af tveim bændum.
Báðir hafa við lík búnaðarskilyrði að
búa og þurfa báðir að byggja upp
bæi sína. þeir hafa báðir fremur lítil
bú og i mesta lagi einn vinnumann
og eina vinnukonu. Hvor um sig get-
ur lagt fram í vinnu og peningum
til byggingarinnar 2000 kr. og fær
afgang byggingarkostnaðarins lánað-
an í lánsstofnun, sem lánar út á
jarðimar til 24 ára með 6% vöxtum.
Annar bóndinn byggir íbúðarhús
úr steini í líku sniði og nú tíðkast og
vandar til alls, svo sem verða má,
og ætlast til að húsið verði fram-
tíðarbygging fyrir bújörðina. Ég vil
hugsa mér að þetta hús kosti 10.000
kr. Annars munu flest hús i sveitum
kosta meira, þótt jörðin sé lítil og
fólkið fátt. Bóndi fær þvi 8000 kr.
lán og þarf að greiða árlega af því
640. kr. í vexti og afborgun, en á svo
húsið skuldlaust eftir 24 ár. Ég vil
hugsa mér að bóndi geti með dugn-
aði staðið straum af þessu láni. En
að hann geti ekki ræktað, nema að
fá lán til þess dg ræktuirarstyrk.
R&yk j avikurannáll
Vetrarvinna.
Á hverjum vetri koma fram há-
værar raddir um hjálp í einhverri
mynd til verkamanna hér í bænum,
sem hafa litla atvinnu frá hausti til
vertiðar. Kröfur komu fram um
þetta á síðasta þingi og var ætlað
nokkurt fé úr ríkissjóði í því skyni.
Nokkuð eru skoðanir skiptar um
það, hvernig haga skuli hjálp til at-
vinnuleysingja. Er um þrjár leiðir að
ræða, 1. að veita einungis lán eða
styrk úr hlutaðeigandi sveitarsjóði,
2. að veita atvinnuleysisstyrk, sem
svo er kaliað, og 3. að veita mönnum,
sem þess þarfnast, einhverja atvinnu.
Sú skoðun virðist helzt ríkjandi hér
á landi, að verja því fé, sem ríki
og sveitarfélög leggja fram til hjálp-
ar atvinnuleysingjunum, til einhvers-
konar framkvæmda. Nú skyldi mað-
ur ætla, að borgarstjórinn í Reykja-
vík hefði haft einhverja fyrirhyggju
um vinnu lianda atvinnuleysingjun-
um i vetur, þvi bæði var strax í sum-
ar búizt við að slíka vinnu yrði að
i'ramkvæma liér í vetur, og svo hefir
bærinn undanfama vetur lagt fiam
nokkurt fé til atvinnubóta. En eins
og við er að búast ,er öll framlcvæmd
hinna svokölluðu atvinnubóta hinn
mesti skrípaleikur. Menn eru settir
í jarðabótavinnu um hávetur. Sú
vinna hefir gengið þannig, að verka-
mennirnir hafa orðið að byrja á þvi
á morgnana að moka veginn svo bíl-
fært verði út á akurinn! í verstu ill-
viðrunum komust verkamennimir
stundum alla leið, ,en urðu svo strax
að byrja að moka slóð til baka, ef
þeir áttu að ná háttum heim til sín
um kvöldið. Jarðabæturnar biðu,
enda hefði ekki gert betui' en menn-
irnir hefðu haft við að moka burtu
snjónum, þegar verst viðraði. Gatna-
gerð er lítið betur framkvæmanleg í
hríðum og illviðrum en jarðabætur.
fin þetta eru vinnuvísindi bórgar-
stjóra og íhaldsbræðra hans i bæjar-
stjórninni. Er hverjum heilskygnum
manni sjáanlegt að betra er að borga
verkamönnum einhvern lítilsháttar
styrk heldur en hrekja þá út i ófær
veður til að gera ekki neitt nema
stofna heilsu sinni í hættu.
Hvað á þá að láta vinna? Hér skal
bent á tvennt.
sem Haraldur Guðmundsson fékk,
þá varð sú atkvæðatala undir-
stöðutala um útreikning upp-
bótarsætanna. Og tala íslenzkra
alþingismanna hefði átt að verða
246 — tvö hundruð fjörutíu og
sex.
Grjótnáma bæjarins er rekin aðal-
lega á sumrin. Hana ætti að reka ein-
göngu frá hausti til vertíðar. Má auð-
veldlega búa svo um, að unnið sé
við mulning á grjóti og sandhreins-
un í skýlum, sem hlífa verkamönn-
um fyrir verstu illviðrum. í grjót-
námunni má einnig höggva grjót til
gatnagerðar og bygginga. Við þetta
gæti fjöldi manna unnið í 4—5 mán-
uði.
þá þarf bærinn að koma upp
vinnuskýli þar sem hann getur látið
steypa allar pipur í skolpræsi, hell-
ur og steina til gatnagerðar og bygg-
inga, og ýmislegt fleira. pessa vinnu
á eingöngu að vinna að vetrinum.
------------o---
F
A víðavangi.
Undirskriftirnar.
íhaldið í Reykjavík hefir nú und-
anfarna_ daga gengið bei’serksgang
um bæinn í þeim tilgangi að heimta
af mönnum, að þeir skrifuðu undir
áskorun til þingsins um að breyta
stjórnarskránni og knýja fram nýj-
ar kosningar í miðri kreppunni. Ein-
hverjir fávísir íhaldsmenn kunna að
ímynda sér, að kosningar, sem
stofnað er til út af breytingum á kjör-
dæmaskipuninni muni gjöra þá nægi-
lega vinsæla í landinu til að koma
þeim upp í stjórnarstólana. En ein-
kennilegt mætti það virðast, hve fast
er gengið að þessari undirskrifta-
smölun einmitt nú sömu dagana sem
togaramir eru að fara út á veiðar.
Timinn hefir frétt nolckur dæmi þess,
að mönnum, sem ekki vildu skrifa
upp á skjölin hjá íhaldinu, hefir ver-
ið neitað um skipsrúm á togurum,
þó þeir hafi verið þar lengi undan-
l'arið. Vísir birti nýlega áskorun um
að birt yrði opinberlega nöfn þeirra
manna, sem ekki vilja skrifa undir.
En sú ráðstöfun er sjálfsagt óþörf.
það er nóg að sýna útgerðarmönn
unum skjölin.
Mbl. og útgeröin.
Annað eins ráðaleysisfálm og for-
ystugrein Mbl. í gær mun vára eins-
dæmi hér á landi. Blaðið skýrir fiá
því, að l okkuð margir af togurun-
um í Reykjavík séu nú famir eða í
þann veginn að fara á veiðar. Jatn-
Iramt er skýrt frá því, að sjómenn-
irnir séu ráðnir fyrir sama kaup og
áður, þrátt fyrir ndkinn vilja út-
gcrðanniunanna til að f.e.’i knojnð
niður. Blaðtð barmar sér yfir þvf, að
sjómannaféiagið hafi ekki einu sinni
svarað bréfi útgerðarmannanna, og
þeir hafi orðið að láta sér það lynda.
Næst er það fullyrt, að útgerðin gcti
ekki borið svona hátt kaup, og því
hljóti að verða tap á atvinnurekstr-
inum. Hinsvegar minnist blaðið ekk
ert á, hver sé hin eiginlega orsök
þess, að sjómennirnir ekki sjá sér
fært að lækka kaupið, þ. e. hin
óbærilega dýrtíð í bænum. Og ráð-
stafanir til að draga úr dýrtíðinni
má íhaldið ekki heyra nefr.dar. M.
a. legst það nú sem fastast gegn
húsaleigufrumvarpi Jörundar Bryn-
jólfssonar og nýtur þar góðrar að-
stoðar frá bandamanni sínum, Héðni.
Niðurstaða Mbl. er svo sú, að úr þvi
að togararnir hafi farið á veiðar með
sama kaupi og áður, hljóti gengi
krónunnar að falla. Hafa þá útgerð-
armennirnir leyst togarana til þess
eins að tapa á þeim og fella krón-
una í verði? Eða er þessi grein í
Mbl. ekkert annað en sama ábyrgðar-
lausa óvitahjalið, sem verið er að
stagast á í því blaði dag eftir dag og
ár eftir ár?
Ólafur Thors og sviknu mælikerin.
Ut af Hesteyrarsvikunum hefir
Vilmundur Jónsson flutt frv. um að
framvegis skuli öll síld vegin en
ekki mæld. Menn skyldu halda að
Ólafur Thors hefði haft þá sómatil-
finningu að segja ekki eitt orð um
málið. Með því móti hefði hann gef-
ið i skyn, að honum þætti leiðinlegt,
að þessi svik hefðu komið fyrir og
hann óskaði að slíkt yrði fyrir-
byggt framvegis. En það var öðru
nær. Að vísu varð hann að játa yfir-
sjón sína, enda verður ekki um hana
deilt. En hann vildi reyna að sanna
sakleysi sitt með því að gróðinn af
þessum svikum væri of lítill til
þess að Kveldúlfur vildi l.eggja sig
að svo litlu. Til sönnunar því vildi
liann vitna um 25 ára kunningsskap
við Vilmund, sem myndi sýna veg-
legra innræti. Landlæknir svaraði
því á þann veg að fyrir 25 árum
liefði hann þekkt Ólaf að því að
„svindla sér í gegnum próf með
miklu monti og hundavaðshætti, en
ekki þekkt manninn neitt síðan. Ól-
afi þóttu þetta dauf meðmæli, sat
hnípinn og undirleitur, og því lik-
astur sem hann hefði helzt óskað
sér að vera niður á botni á vel stóru
mælikeri, með töluvert af síld ofan
á sér. Allir íhaldsmenn í nd. greiddu
atkvæði móti því að Ólafur þyrfti að
losna við kerin framvegis. En frv.
gekk samt gegnum aðra umræðu.
Magnús Torfason
og dýrtíSaruppbótin.
Mbl. hefir nýlega ráðizt á Magnús
Torfason sýslumann fyrir að hafa
að þessu sinni óskað að vera í færri
nefndum en stundum áður, og fyrir
að taka ekki dýrtíðaruppbót af þing-
kaupi sínu. það er áreiðanlega ó-
Hinn bóndinn byggir sér ódýran
bæ, og minna að rúmmáli en stein-
húsið, en hlýjan og bjartan eins og
það. Hann er byggður úr tré, torfi og
sementsplötum. Bónda finnst hann
fullnægjandi og að hann muni
áreiðanlega endast í 24 ár. En hann
kostar helmingi minna en hinn, eða
aðeins 5000 kr. parf því þessi bóndi
ekki að fá nema 3000 kr. að láni.
6% vextir og afborgun til 24 ára
verður af því 240 kr. Bóndi gerir
ráð fyrir að bærinn endist ekki nema
24 ár. Hann vill því leggja 200 kr.
árlega í sjóð, sem hann á sínum tima
geti byggt fyrir framtíðarbæ. Með
41/2% vöxtum v.erður þetta orðinn 1
9000 kr. sjóður eftir 24 ár. þrátt fyrir 1
þetta háa sjóðsgjald á þessi bóndi
samt eftir 200 kr. til þess að hafa
jafnhá árleg útgjöld og hinn vegna
húsnæðisins. Noti hann það fé til
þess að rækta fyrir ár hvert, er hann
búinn að rækta um 50 dagsláttur eft-
ir 24 ár, fái hann ræktunarstyrk sem
svarar áburði og fræi í landið, eins
og nú er veitt úr ríkissjóði. Rækti
hinn bóndinn jafnmikið árlega og
taki það fé, sem til þess þarf, að láni
með 6% vöxtum, er liann búinn að
greiða um 3500 kr. í vexti og skuld-
ar 4800 kr. eftir þessi 24 ár. Viðhald
á báðum bæjunum| vil ég leggja að
jöfnu. Ódýri bærinn eyðilegst alveg í
eldsvoða, og dýri bærinn, þótt úr
steini sé, mun eyðileggjast að hálfu
leyti. Tryggingargjöldunum er þann-
ig fyrirkomið, að menn verða að
tryggja jafnt það, sem getur ekki
brunnið eins og það sem getur brunn-
ið, eigi menn að fá skaðann bættan
að fullu. Annars væri fullkomin þörf
á því að taka til sérstakrar athug-
unar eldsvoðatryggingar í sveitum.
það virðist mjög ljóst af þessu
dæmi, að sjálfsagt er að byggja bæ-
ina svo ódýrt sem hægt er, á meðan
bændur eru að rækta landið og safna
fé til varanlegra bygginga. þetta hafa
líka aðrar þjóðir orðið að gera. T. d.
þegar Svíar um 1910 lögðu allt kapp
á að fátækt fólk byggði sér nýbýli,
heldur en að flýja landið til Amer-
íku, var byggingarkostnaðurinn örð-
ugastur viðfangs. En öllum ráðum
var beitt til þess að draga úr honum,
og menn létu sér nægja lítil húsa-
kynni.
Næst er þá að færa líkur að því,
að hægt sé að byggja viðunandi hí-
býli í sveit, fyrir 5000 kr. Ég bið
menn að athuga meðfylgjandi upp-
drátt. Herbergjaskipun gétur vel ver-
ið á fleiru vegu. En einföld þarf hún
að vera. Vinnukonunni ætla ég að
sofa í „slagbekk" í stofunni. En hafi
bóndi vinnumann, verður hann að
þilja lítinn svefnklefa af geymslunni,
frammi við bæjardyrnar.þetta er einn-
ar hæðar hús, 10X8 m. að utanmáli.
Undir því gæti verið dálítill kjallari
til matvælageymslu, en ég geri ráð
fyrir ca. 1 m. þykkri grjótfyllingu í
hans stað, og að geymslan sé útbúin
í sjálfu húsinu. Útveggirnir eru
þannig gerðir, að grind úr 2X5”
plönkum er reist. Utan á hana eru
negld langbönd 2X2” og þar á skrúf-
aðar „Etemit“-bylgjuplötur, sem eru
sterkar, eldtryggar og vatnsþéttar.
Upp í grindina sé hlaðið þurru og
veltu góðu torfi og mosa. Innan á
séu negldir renningar, 1X2” og á þá
þiljað með „Masonite“-plötum, sem
eru sterkar og brenna ekki, eða öðr-
um ódýrum plötum, t. d. krossvið.
Gólfið sé úr venjulegum furuborðum,
olíuborið, og neglt á 2X5” planka er
hvíla á gólffyllingunni. Milli plank-