Tíminn - 12.08.1933, Blaðsíða 2

Tíminn - 12.08.1933, Blaðsíða 2
132 TtMlNN Columbia háskóla. Hann er aðal- ráðunautur forsetans í viðskipta- málum. Forystumaðurinn í land- búnaðarmálum, hagfræðingurinn Tugwell, var prófessor við sama háskóla. Loks er nefndur annar hagfræðingur, dr. Feis, rithöf- undur frá Cinncinnati. Spákaupmaðurinn B. Baruch, sem í stríðinu hafði það verkefni með höndum, að koma á vopna- framleiðslu í verksmiðjunum, en nú miðlar nýju stjórninni af reynslu sinni í fjármálunum, er maður af öðru sauðahúsi og sörpuleiðis Johnson hershöfðingi, sem annast framkvæmdimar á hinu nýja iðnaðarskipulagi. John- son er maður skjótráður og harð- ur í horn að taka. Er saga sögð um hann er hann í byrjun'stríðs- Hinir ,ofsóttu‘ i. íhaldsblöðin hafa verið talsvert kampakát yfir kosningaúrslitunum. Alveg sérstaklega hefir verið grobb- að af því, að Ólafur Thors og Magn- ús Guðmundsson skyldu komast að, að Lárus Jóhannesson skyldi fá 184 atkvæði á Seyðisfirði. — íhaldsblöð- in staðhæfa, að fylgi þessara manna sé því að þakka, að þeir Óiafur, Magnús og Jóhannes bæjarfógeti, fað- ir Lárusar, hafi verið „ofsóttir" af andstæðingum sínum. þessi séu svör kjósendanna við hinum „pólitísku ofsóknum". II. Með margendurteknum staðhæfing- um, þessum og þvilíkum, í öllum blöðum íhaldsins, er tilefni gefið til nýrra rökræðna um þessi mál. Fyrir hvað hafa þessir þrír menn verið „ofsóttir", og hvernig hafa þeir verið „ofsóttir"? Ólafur Thors hefir verið „ofsóttur" fyrir það, að hann lét nota of stór mæliker við kaup á síld og hafði þannig af sjómönnum um 60 þúsund krónur. það var höfðað mál gegrj honum og bræðrum hans fyrir þetta athæfi. þeir voru sýknaðir — en dæmdir í lítilfjörlega sekt fyrir að hafa ekki málin löggilt! þeir voru ekki dæmdir til að endurgreiða einn einasta eyri af þessum 60 þúsundum. Magnús Guðmundsson neitaði að á- frýja þessum dómi til Hæstaréttar. ins var starfsmaður í yfirstjórn hersins. Johnson lét þá prenta og senda út um allt land lagafyrir- mæli, sem ekki var búið að sam- þykkja, með því að hann þóttist sjá, að framkvæmd laganna yrði allt of sein ef bíða ætti eftir af- greiðslu þingsins, sem hann þótt- ist vita fyrirfram. Roosewelt og menn hans telja sig ekki byltingamenn. En þeir segja: Ef atvinnurekendur og auðmenn vilja ekki þola skyn- samlegar umbætur, kemur bylt- ingin og kommúnisminn. En skynsemin fer, því betur, vaxandi í Ameríku. Almenningsviljinn er með hinni nýju djarflegu stjórn- arstefnu Roosewelts og manna hans. \ Magnús Guðmundsson hefir verið „ofsóttur" fyrir Krossanesmálið al- þekkta, fyrir leppmennskuna í Shell- félaginu, fyrir að ætla að kaupa jörð af skrifstofustjóra sínum á 90 þúsundir úr opinberum sjóði, þótt jörðin væri í mesta lagi 30—40 þús- und króna virði og fyrir að hjálpa manni, sem var að verða gjaldþrota, tii þess að greiða einum skuld- heimtumanni allt, þannig, að aðrir skuldareigendur fengju ekki neitt. Fyrir þetta hefir M. G. verið „of- sóttur". Fyrir tvö þessara verka var höfðað mál gegn honum, og hann var sýknaður í Hæstarétti. * Jóhannes bæjarfógeti var „ófsótt- ur" fyrir það að auðga sig um 60 þúsund krónur á því, að hirða sjálfur vexti af fé er hann geymdi fyrir ekkjur og munaðarleysingja. Hæstiréttur sýknaði hann af þessu en dæmdi hann í 800 króna sekt fyr- ir drátt á skiftum búa; Jóhannes fékk að halda 60 þúsundunum og fær nú 9 þúsund krónur í eftirlaun fyrir vel unnið starf! íhaldsmenn halda því fram, að þessir sýknudómar sýni, að það sé heiðarlegt að gjaldþrotar ívilni sum- um skuldheimtumönnum, að menn dragi sér vexti af því fé, sem þeir geyma fyrir aðra og noti svikín mál í verzlun. — En Tíminn hefir ávalt haldið þvi fram, að dómarnir séu rangir og öll þessi verk séu ó- heiðarleg og refsiverð. Tíminn er sannfærður um það, að ef snauður bóndi eða annar smæl- ingi hefði á laun, rétt fyrir gjald- um málið og fór ekkert eftir því hvað eigendur skipsins vildu vera láta. En sér í lagi hataðist íhaldið við Einar Einarsson fyrir dugnað hans á sjónum. Veiðiþjófar gátu aldrei um frjálst höfuð strokið fyr- ii' þessum manni, meðan hann stýrði góðu gæzluskipi. það var ekki nóg að Belgaum væri sýknaður. Einar varð að fara í land. Og það varð að reyna að of- sækja liann, óvirða hann, mann- skemma hann svo, að hann gæti ekki gegnt þeim tveim störfum, sem hann fiafði gert betur en nokkur annar ís- lendingur. íhaldið hafði lofað, að Einar skyldi veiða íyrsti opinberi starfsmaður- inn, sem það léti reka. pað stóð við heitið. Rétt eftir að hinn „sak- luusi málafærslumaður Bebrens var orðinn yfirmaður strandgæzlunnar um stundarsakir, var ofsóknin hafin. Einari var skipað í land. Mbl. var látið flytja um hann ádeilur í nokkrar vikur. M. Guðm. stefndi lionum fyrir dóm lögregluréttar í Rvik. þar fannst engin sekt á hend- ur honum. þá tók Magnús Guð- mundsson óbeðið málið og sendi það til lögnmnnsins í Rvík, þar sem það átti þó alls ekki heima, eins og til þess var stofnað. Lögmaðurinn fann heldur enga sekt hjá skipstjóra. Magnús tekur málið enn, líka óum- beðið af lögmanni, og setur það í sjódóm, þar sem voru tveir skip- stjórar, og a. m. k. annar þeirra einhver æstasti ihaldsmaður í bæn- um. Sjódómurinn fann heldur ekkert saknæmt hjá Einari. Magnús setur málið nú á fjórða staðinn, til Garð- ars þorsteinssonar. Garðar er að viti og þekkingu einna minnstur fyrir sér af öllum málfærslumönnum í bænum. Hann hefir lítinn áhuga sýnt um nokkra „grein" lögfræðinn- ar, nema að kaupa og innheimta skuldir þi'otabúa. Auk þess var hann á námsáruin sínum talinn heppinn spilamaður og hafði þá að leik- bræðrum þorkel Blandon, hinn ó- gæfusama gjaldkera hjá ■ Áma í Múla í Brunabótafélaginu, Magnús ritstjóra Storms, og fleiri þvílíka. Undirbúningur og gáfur Garðars þorsteinssonar er talið sambærilegt við sömu atriði hjá Lúðvig C. Magn- ússyni á sviði endurskoðunar. Til viðbótar má geta þess, að Garðar þorsteinsson er talinn einn hinn blindasti íhaldsmaður meðal þeirra, sem tekið hafa lögfræðispróf að nafni til. Málstaður íhaldsins sést bezt á því að velja Magnús Guðm. sem dóms- málaráðherra. Og gildi Magnúsar sést á því er hann velur menn til trúnaðarstarfa eins og Lúðvig C. Magnússon, til að endurskoðá og Garðar til að fara með metaskálar réttvísinnar. Garðar hafði nokkrar málamyndar yfirheyrslur móti skipstjóranum nú þrot, afhent einum skuldheimtu- manni eigur sínar — á kostnað allra hinna, þá hefði hann verið dæmdur í Hæstarétti og kaupunum rift. — Ef einhver umkomulítill maður ' liefði notað svikna vog við kaup eða sölu og grætt á því — eitthvað minna en 60 þúsund krónur — halda menn að hann yrði sýknaður í Hæstarétti og fengi að halda því sem hann hefði grætt á rangri vigt? Og hugsum okkur að einhver hefði geymt sparisjóðsbók fyrir Jóhannes bæjarfógeta og tekið út úr bókinni árlega vextina og dregið sér þá, — mundi sá maður hafa verið sýknað- ur í Hæstarétti? Menn geta sjálfir myndað sér skoðun á þe^su — en Tíminn hefir hiklaust haldið því fram, og fært rök að því, að þessir menn mundu hafa verið dæmdir þunglega fyrir þau sömu verk sem Magnús, Ólafur og Jóhannes liafa verið sýknaðir. það eru þessi skrif Tímans, sem í- haldsmenn kalln „ofsókn“. III. En íhaldsmenn kjósa ekki að ræða þessi mál með rökum. Ef liöfðað er mál gegn háttsettum íhaldsmanni og írá því er sagt í blöðum, þá heitir það „ofsókn“ í íhaldsflokknum. Dæm- in eru deginum ljósari. Dómarar sem taka til rannsóknar mál háttsettra íhaldsmanna, eru lagðir i einelti til þess að venja menn, af því að drýgja slíkan ósóina! Árásirnar á Hermann Jónasson eru mönnum í fersku minni. í sumar og höfðaði síðan sakamál gegn lionum .íhaldinu varð ekki full- nægt með minna en því, að dugleg- asti og frægasti strandgæzlu- og lijörgunarmaður þjóðarinnar yrði sakaður um glæpi, hvað sem svo kæmi á daginn. Garðar mun ekki hafa tilkynnt sakarefni. Ef til vill á að finna það hér eftir. En Mbl. h.efir talið sakar- giftina á hendur Einari, að arm- bandsúr eins stýrimanns á Ægi hafi eitt sinn við skipstöku verið, um 8 mínútum frábrugðið réttri klukku. Stýrimaðurinn færði síðan tíma sinn með 8 mínútna skekkju í afrit aí skýrslunni, sem áður var farin til dómarans, þar sem tilfærður var tím- inn, bæði eftir skipsklukkunni og úri stýrimanns. Undirdómur og hæstiréttur höfðu þess vegna fyrir sér liina réttu frumskýrslu um þetta at- riði og byggðu aldrei á öðru. En af- ritið fylgdi skipinu. Nú segir íhaldið, að einhverntíma síðar hafi skekkjan verið leiðrétt í afritinu, röngu breytt í rétt. Enginn veit liver hefir gert þessa leiðréttingu. íhaldið vill að Einar skipstjóri hafi leiðrétt, en hann hefir þverneitað því. Margir aðrir menn hafa haft afrit þetta undir höndum, þar á meðal menn, sein gátu haft hagsmuni af þvi að Einar væri flæmdur af skipi sínu, auk f'jölmargra annara, sem gátu gert þessa breytingu fyrir óvini góðrar landhelgisgæzlu, til þess að hún yrði ofsóknarefni á móti öndvegismanni íslenzkra gæzlu- og björgunarmála. Einar skipstjóri stendur að því leyti ilia að vígi, að fjöldi manna hefir liaft afritið milli handa. Hann liefir verið í frii burtu af skipinu og aðrir menn hafa í fjarveru hans haft full umráð yfir afritinu. Óvinir haiis og hatursmenn hafa getað kom- ið út í skipið á þeim tima og þukl- að á skjölunum. Og svo á Einar að bera ábyrgð á allri hugsanlegri með- ferð á plagginu! Aldrei áður hefir'svokölluð dóms- málastjórn ílutt sakargift þrem sinn- um og óumbeðið frá dómara til dómara, milli manna, sem fundu að skipstjórinn var saklaus, þegar „vald- stjórnin" vill að liann sé sekur. Málinu er að lokum fleygt í mann, algerlega óvanan dómarastörfum, en æstan pólitÍ3kan fylgismann þeirrar stjórnar, sem stóð fyrir hinni hneykslanlegu árás. (Niðurl.) J. J. -----O------ Jón ívarsson kaupfélagsstjóri í Hornafirði er staddur hér í bænum. Kveður hann veðráttu eigi hafa ver- ið eins votviðrasama þar eystra og í nágrenni Rvíkur, enda nýting heyja allgóða að þessu. Baldvin Jóhannsson kaupfélags- útbússtjóri á Dalvík og fleiri Eyfirð- ingar hafa dvalið hér í bænum und- anfarna daga, en leggja af stað land- veg heimleiðis í dag. þá hafa menn tæpast gleyint fádæma rógi, sem birtist í blöðum í- haldsmanna uin Berg Jónsson sýslu- mann eftir að hann tók að sér mál Jóhannesar bæjarfógeta. Sami leikur- inn var hafinn við þórð Eyjólfsson eftir að hann tók að sér mái þórð- ar Flygenring. þegar Ólafur þor- grímsson lögfræðingur tók að sér málið út af sviknum síldarmálum Kveldúlfs, var þegar hafinn rógur um hann hér i bænum. Félagi hans | við lögfræðisstörfin, Gústaf Sveins- son, fyrv. formaður i Varðarfélaginu, neitaði að vinna með honum, og Ól- afur var flæmdur úr stjórn Strætis- vagnafélagsins, sem hann sjálfur hafði stofnað. Eftirminnilegast er þó málið út af kosningasvikunum í Hnífsdal. Fjórir alþýðumenn kæra Hálfdán Hálfdán- arson í Búð út af fölsun á atkva«ð- um þeirra. íhaldið var fljótt á sér. það sendi mann úr sjálfu dóms- málaráðuneytinu vestur, til þess að taka þessa alþýðumenn fasta og setja þá i tugthúsið. þar með átti málinu að vera lokið. Framsóknar- flokksstjórnin tók svo málið upp og leiddi til lykta svo sem kunnugt er. Rógurinn um þann dómara, sem tók málið að sér, er jafnvel enn í fersku minni. En af hverju koma slíkar herferð- ir íhaldsmanna gegn vitnum og dóm- urum, sem gera skyldu sína? Til- gangurinn er ofur augljós. Ef þáð tekst að eyðileggja mannorð eins eða fleiri dómara, sem rannsaka með samvizkusemi mál háttsettra íhalds- Fréttir Friðrik ríkiserfingi íslands og Dan- mei'kur kom til Reykjavíkur með Islandi á miðvikudaginn var. Tók forsætisráðherra á móti lionum við skipsfjöl, að viðstöddu miklu fjöl- menni. Um allan bæinn voru fánar dregnir að hún. í fyrradag var ríkis- erfinginn á þingvöllum. En nú er hann farinn norðui' í land, en kem- ur svo aítur til Rvíkur, sjóveg eða landveg, eftir veðráttu. Kosningalaganefnd. Dómsmálaráð- herra hefir ritað miðstjórnum ílokk- anna og óskað eftir, að þær tilnefndu einn mann hver til að vinna að undirbúningi nýju kosningalaganna. Hefir rniðstjórn Framsóknarflokksins fyrir sitt ieyti tilnefnt Eystein Jóns- son aljnn. og til vara Hermann Jón- asson lögreglustjóra. Vilmundur Jóns- son hefir verið útnefndur af hálfu Alþýðuflokksins og Stefán Jóh. Stef- ánsson til vara, en íhaldsflokkur- inri hefir lagt fyrir M. G. að skipa sjálfan sig í nefndina, segir Mbl. Óvænt björgun. Togaranum Gustav Meyer, sem strandaði í vetur við Meðallandssanda, hefir nú verið bjargað á flot, reyndist fullkomlega sjófær og er kominn heilu og liöldnu tii Reykjavíkur. Skipið var löngu talið ónýtt, og keyptu nokkrir Skapt- fellingar þaö fyrir 560 krónur. það er Einar Einarsson skipstjóri, sem nú liefir komið Skaptfellingunum að liði við björgunina. þessi reynsla. sýnir, að Einar dugir betur varð- skipslaus en allur floti Magnúsar Guðmundssonar. Smásöluverð i Reykjavík. Hagstofa Islands birtir i hverjum mánuði yfirlit um smásöluverð helztu nauð- synjavörutegunda i Reykjavik. í sið- astliðnum mónuði hefir smásöiuverð- ið verið sem liér segir á eftirtöldum vörutegundum: Rúgmjöl .. .. .. kr.0,33 pr. kg. Hveiti nr. 1 .. .. — 0,44 — — Bankabyggsmjöl . —0,50 — — Hrísgrjón......... — 0,54----- Sagógrjón .. .... — 0,79------- Hafragrjón...........— 0,51 — — Baunir, lieilar ... — 0,89 — — Baunir, hálfar ... — 0,76 — — Högginn sykur .. — 0,63 — — Strósykur .. ..... — 0,52 — — Púðursykur .. .. — 0,83 — — Kaffi, óbrennt.... — 2,62 — — Kaffi, brennt .. .. — 4,25 — — Verðið sem skráð er í hagtíðindun- um, er meöaltal af verði hinna ein- stöku verzlana í bænum. þinymaimaveiting var á skólameist- araembættinu á Akureyri, er Sigurður skólameistari kom þang- að. Sendu allir norðlenzkir og aust- firskir þingmenn áskorun á Jón heit- inn Magnússon að bjóða Sigurði em- bættið og varð það til þess að Sig urður fluttist norður. Hefir skólinn manna eins og annara, þó er það til viðvörunar eftirfeiðis og elcki líklegt, að dómarar leiki sér að þvi framvegis; þá er tilganginum nóð. Ef málið út af kosningasvikunum í Hnífsdal hefði endað eins og íhald- ið ætlaðist til (skildi við það, með því að láta vitnin fara í tugthúsið og aðra ekki), þá var vísast að flokkurinn hefði getað falsað at- kvæðaseðla í friði áfram. Menn hefðu ekki hætt sér i það að kæra aðeins til þess að komast sjálfir í tugthúsið! I Bandaríkjunum hafa svona að- ferðir tekizt prýðilega. Vitni, sem borið hafa gegn háttsettum mönn- um í málum þeirra og dómarar, sem dæmt hafa öðruvísi í mólum mikilsmegandi manna, en þeim hef- ir líkað, hafa verið ofsóttir svo gegndarlaust, að nú er talið, að mjög erfitt sé að fá þann mann dæmdan í Bandaríkjunum, sem á eina miljón dollara, — enginn dóm- ari vogar sér að dæma hann og c-kkert vitni þorir að bera gegn hon- um. En ýmsum áhrifamönnum í Bandaríkjunum líkar þetta ástand illa, sem ekki er að undra. Hoover varð lítið ágengt í baráttu feinni gegn réttarfarsspillingunni. Og nú hefir Roosvelt tekið upp réttarfarsmálin,. sem einn veigamesta þáttinn í við- reisnarbaráttu landsins, . f* * ' IV. En íhaldið notac fleiri vopn sér til varnar en þau, sem nú eru tal- in. þegar mól hóttsettra íhalds- Hefir fallið „gnðsdómor“ nm ib.ald.id? Fyr ó öldum var réttarfar sumra þjóða oft þannig, að dómstólarnir voru háðir ofbeldismönnum og af- brotaseggjum, og dæmdu þeim í vil, en ekki eftir réttum málstað. þá kom það ekki ósjaldan fyrir, að sak- lausir menn, sem fyrir ranglætinu urðu, stefndu hinum seku fyrir dóm æðra valds — fyrír guðsdóm. Hér á landi liefir, meðal margra annara atburða sem gerst hafa síð- an íhaldið tók aftur við stjórn rétt- arfarsmólanna, einn vakið sérstaka eftirtekt. það er níðingsskapur sá, sem sýndur hefir verið Einari Ein- arssyni skipstjóra á Ægi. Menn vita tilefnið. Einar liafði sýnt afburða dugnað og áhuga við að verja landhelgina, og við björgun skipa. Hann hafði sýnt stórkostlega yfirburði við þessi störf, fram yfir alla aðra menn innlenda og útlenda, sem þau störf hafa stundað hér við land. Vegna yfirburða hans hafði landið fengið tekjur sem námu hundruðum þúsunda bæði í sektum og fyrir björgun. Hann hafði einn allra íslendinga fengið mikið frægð- arorð erlendis fyrir dugnað við björg- un skipa. Með byggingu Ægis, sem gæzlu- og björgunarskips undir stjórn Einars Einarssonar byrjaði nýr þáttur í sjó- mennsku íslendinga. Strandgæzlan og björgunarmálin komust þá í það horf, sem samboðið var frjálsri og menntaðri þjóð. Svo tók Einar íslenzkan togara, Belgaum, að landhelgisveiðum við Snæfellsnes, fyrir þrem árum. Ýmsir íhaldsmenn áttu hlut í togaranufn. þeir hétu á félaga sína og flokks- menn, að duga nú vel. Og íhaldið gerði mál Belgaums að sínu móli. í Ekki dró það úr nauðsyninni, að í- haldið hafði árið 1924 látið falla nið- ur mál á móti sama skipstjóra, þeg- ar þór tók hann við landhelgisveið- ar við sanda Rangárvallasýslu. Góð- verkin þurftu að halda áfram, Belgaum var dæmdur í fulla sekt fyrir undirrétti Rvíkur. Sannaniniar virtust vera ærið sterkar. Mælingar varðskipsins sýndu að skipstjóri var sekur. Skipstjórinn sjálfur játaði við E. E., fyrst eftir að hann var tekinn, að hann hefði verið i landhelgi. Sjó- menn á Sandi sáu skipið við land- helgisveiðar, rétt áður en varðskipið kom. Nefnd reikningsfróðra manna, sem hæstiréttur óskaði eftir að segði álit sitt um staðinn, sannaði, að skip- ið var rétt innan eða rétt utan við landhelgislínuna, þegar það stanzaði, eftir að það var, að vitnisburði skips-' hafnarinnar á Ægi, búið að sigla sem svaraði einni mílu til hafs, frá því að það sást fyrst frá varðskipinu. Hæstiréttur þvældi málið hjá sér í þrjú ár (en lauk Magnúsi Guðm. og Behrens af á liðlega þrem vik- um). Og að lokum kvað rétturinn nú í sumar upp sýknudóm yfh Belgaum, talið vera sökum ónógra sannana. En af einhverjum óskiljan- legum ástæðum tók rétturinn eklu upp í dóminn nema sumt af þeim alviðurkenndu sannindum viðvíkj- andi sekt skipstjórans, og helzt er að sjá sem rétturinn hafi m. a. ekki álitið framburð sjónarvotta, sjó- mannanna á Sandi, þess verðan, uð hann kæmi með til álita. íhaldinu þótti ekki nóg að Hæsti- réttur sýknaði skipstjórann. Ef til vill hefir flokksmönnunum þótt veriu að almenningur í landinu hafði myndað sér alveg ákveðna skoðun

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.