Tíminn - 23.09.1933, Síða 3

Tíminn - 23.09.1933, Síða 3
TlMINN 155 Tilkyxixxixig í tilefni af lögurn frá síðasta Alþingi um kjötmat o. fi. og reglum sem settar hafa verið skulu hér tilgreind nokkur ákvæði þeirra: Sömu reglur gilda nú sem áður giltu um mat, flokkun og meðferð á saitkjöti og frystu kjöti til útflutnings. Fryst eða kælt lcjöt má nú því aðeins flytja á erlendan markað að fenu hafi verið slátrað í löggiitu siáturhúsi og kjötið t'ryst eða kælt í lög- giltu frystihúsi. Útislátrun er nú bönnuð ef kjötið er ætlað til sölu á erlendum eða inn- lendum markaði. í kaupstað eða kauptúni þar sem eru þúsund ibúar eða fieiri, skal allt kjöt af skepnum, sem slátrað er þar eða flutt er þangað nýtt og ætlað er til sölu þar, skoðað og merkt af lækni þeim, er kjötskoðun annast þar á staðnum. Akvæði þetta tekur þó ekki tit kjöts, sem áöur hefir verið merkt til útflutnings í löggiltu sláturhúsi eða læknir heflt' skoðað og nterkt í slátur- húsi, sem er svo þrifalegt og svo rúmgott og þannig hagað að kjötið geti kólnað þar nægilega fijótt og þvi sé þar að öðru Ieyti ekki hætt við skemmdum. Kjöt sem fiutt er að nýtt, kælt eða frosið, skal flutt í þar til gerðum umbúðum; er læknir tekur gildar. ** Þai' sem sláturhús er í kaupstað eða kauptúni, getur kjötskoðun og merking farið fram í sláturhúsinu sjálfu, en bæjarfélag eða hreppsfélag skal sjá fyrir löggiltu húsnæði til skoðunar á aðfluttu nýju kjöti,’ gegn gjaldi, er eigandi kjötsins greiðir samkvæmt ákvæðuin í fyrirniælum um kjötskoðun, mei’king á kjöti o. fl. frá 27. júlí 1933, og skal öllum þeim, er flytja nýtt kjöt. ómerkt, til sölu í kaupstað, eða kauptúni sem heflr yflr 1000 íbúa, skylt að láta þar fram fara skoðun á kjötinu áður en þeir afhenda það kaupanda. I fyrgreindum kaupstöðum eða kauptúnum má eigi hafa ómerkt kjöt, nýtt eða frosið í kjötbúðum eða öðrum sölustöðum. Skilyrði fyrir því að kjöt geti orðið merkt til sölu í kaupstöðum þeim og kauptúnum, sem hafa yflr 1000 íbúa, er það, að skepnum þeim, sem kjötið er af, hafl verið slátrað í sláturhúsi, sem fullnægir þeim skilyrðum, sem sett eru í reglugerð um sláturhús og frystihús, útgeflnni 27. júlí 1933. Kjöt af stórgripum er þó undanþegið þessu ákvæði. Allt saltkjöt, sem selja á innanlands í kjötbúðum og öðrum opinberum sölustöðum skal fiokkað og metið. Stórhöggvið saltkjöt skal flokkað, metið og merkt eftir sömu reglum sem gilda um útflutningskjöt. En spaðkjöt skal flokkað og tunnur merktar sem hér segir: Tunnur með dilkakjöti, þegar skrokkarnir vega 12 kg. og yflr mei'kist: Spaðsaltað dilkakjöt. A. Tunnur með dilkakjöti þar sem skrokkarnir vega undir 12 kg. merkist: Spaðsaltað dilkakjöt. B. Heimilt er að meta sérstaklega holdmikla skrokka, sem vega 14 kg. og þar yfir og skulu tunnurnai' merktar: Spaðsaltað dilkakjöt. Úrval. Tunnur með kjöti af vænum algeldum ám og sauðum veturgömlum og eldri merkist: Sþaðsaltað sauðakjöt. S. Tunnur með kjöti af fullorðnu holdgóðu fé ef skrokkarnir vega 17 kg. og þar yfir mei'kist: Spaðsaltað ærkjöt F. I, en þær sem eru með kjöti af léttari skrokkum, merkist F. II. Turinar með kjöti af fullorðnum hrútum, ef það telst söluhæft, merkist: Spaðsaltað hrútakjöt. II. í matsvottorðum sé tilgreind kjötþyngdin í hverri tunnu. Auk þess skai kjötþyngdin tilgreind á hverri spaðkjötstunnu. Kjötmatsmenn varðveita merkiplöturnar og inega ekki aðrir nota þær. Atvinnumálaráðuneytið. mun hafa gætt hagsmuna Garðars við verzlun þessa af meiri samvizku- semi en þekkst hefir hjá ýmsum samherjum hans um meðferð á ann- ara fé. Eftir kosningu í sumar gerði Garðar þessum starfsmanni sínum og kjósanda Thor Thors þann greiða, að sparka honum frá starfi þessu, en s.etja í staðinn mág Thors, ein- hleypan pilt, sem betur kann við sig í búð en við erfiðisvinnu. Verzlun- arstjórinn, sem er eignalaus fjöl- slcyldumaður, missti þarna atvinnu sína, og hyggur því helzt til að byrja eigin verzlun í Ólafsvík i „frjálsri samkeppni" við Garðai'. þegar „mátt- arstólpum" íhaldsins ferst svona við þá menn, er af trúmennsku hafa aflað þeim tjár í viðskiptum við hin- ar vinnandi stéttir í landinu, hvern- ig munu þeir þá reynast þeim verlca- mönnum og bændum, sem íhaldið hefir aldrei treyst til annars en að veita sér fylgi við kosningar, fyrir loforð um betri fjárhag og meiri at- vinnu í „frjálri samkeppni". S. KAUPFÉL. REYKJAVÍKUR, Bankastræti 2, sími 1245. Ferðamenn hafa bezta tryggingu fyrir góðum vörum með hæfilegu verði, verzli þeir við kaupfélagið. Komið í kaupfélagsbúðina, þegar þið — — komið til Reykjavíkur. — — rsuouoosir með þéttu loki fást eins og að undanförnu af ýmsum stærðum í heildsölu og smásölu hjá Guðm. J. Breiðfjörð. Blikksmiðja og tinhúðun. Laufásveg 4. Sími 3492. Tapad. Snemma í júlí tapaðist frá Goð- dal í Strandasýslu húnverskur hest- ur, sótrauður, tvístjörnóttur, efst við taglið eru nokkur hvít hár líkt og reiðafar. Mark: Heileyrt hægra, sneiðrifað framan, fjöður aftan vinstra. Finnandi heðinn að gjöra símstöðinni á Skarði í Stranda- sýslu aðvart. Mynda- og rammaverzlun Islenzk málverk. Freyjugötu 11. Sími 2106 Bruna- vátryggingar Framsóknarfélag fyrir Snæfells- ness- og llnappadalssýslu var stofn- að að Fáskrúðarbakka 3. þ. m. Var fundurinn fjölsóttur og mættu flokks- menn úr öllunÚ hreppum sýslunnai' nema tveimur og var þó hið versta veður um daginn, en sýslan stór og öi'ðug yfirferðar. í félagsstjórn voru kjörnir Jón Steingrímsson sýslu- inaður (formaður), Sigurður Stein- þórsson kaupfélagsstjóri og Stefán Jónsson skólastjóri, ennfremur var kosið fulltrúaráð, samkvæmt lögum flokksins. — Af hálfu miðstjórnarinn- ar voru mættir á fundinum Hannes Jónsson dýralæknir og Eysteinn Jóns- son alþm. — Annað Framsóknarfé- lag var stofnað i Vopnafirði 10. þ. m. Stjórn þess félags skipa Sigmar Jörgenson bóndi í Krossavík (form.), Sigurður Gunnarsson bóndi á Ljóts- stöðum og Jósef Jónsson bóndi í Skóg um, en varastjórnendur Ingólfur Eyj- ólfsson bóndi á Skjaldþingsstöðum. Ennfremur voru af hálfu félagsins kjörnir þríi’ menn í fulltrúai'áð Fram- sóknaiTnanna í Norður-Múlasýslu. — | Gísli Guðmundsson ritstjóri mætti á i stofnfundinum af hálfu miðstjórnar- innar. í Skeggjastaðahreppi i sömu | sýslu er hafinn undirbúningur að ! stofnun flokksfélags síðar í haust. j Ritstjóri Tímans kom lieim aö norð- au siðastliðið mánudagskvöld. Kom , hann landvog frá Akureyri. Norðan- j lunds eru vegir góðir enn. Nokkrar i torfærur eru á Holtavörðuheiði og á j Hvalfjarðarveginum og vom ]>eir þc farnir að þorna talsvert eftir sið- ustu stórrigningamar. í Norðurárdol ; liefir verið slegið upp tveim bráðo- , birgðabrúm úr timbri i stað stein- ; In'úa, sem brotnuðu í vatnsflóðinu. i Ei'u brýi' þessar á þverám sem falla í Norðurá oð vestan. Hafði vatnsflóðið ; grafið ur,dan endastöplunum. Hey- I skapur ei nú i bezta lagi um allt ■ Norðui'land og í Múlasýslum og nýt- • ing' heyja ágæt. Stuttur rigninga j kafli kom þó nyrðra siðast í ágúst- I mánuði og stóð nokkuö iram i sept- i embcr. En iaust fyrir 10. sept. kom ! sunnanvindur og þornaði þá allt hey I sem laust var. þorskafli við Norð- I Austurlandi var ágætur framan af í j sumar en tregur eftir miðjan\ágúst- j mánuð. Mun þó verða í meðallagi ' víðasthvar. Garðrækt á Norðausturl. hefir stórkostlega aukizt i mörgum sveitum, og er vöxtur í görðum þar mjög góður í sumar. þorpin í pingeyj arsýslum eru að verða ánægjulegur vottur um afkomu- möguleika samhýlisins, þar sem sam- an getur farið sjálfstæður smáútveg- ur og ræktun. 1 Húsavík, sem er fjölmennust, er nú búið að rækta og breyta í blómleg tún öllu næsta um- liverfi þorpsins, og hefir þetta veriS gert að mestu leyti á örfáum árum. Höfst ræktunin fyrir alvöru þegar á fasteignum og lausafé í sveitum. — Iðgjöld hvergi lægri. — Umboðsmenn í 1’ öllum kaupstöðum og kaup- túnum. — Aðalskrifstofa í Reykjavík. Ljósgráar gærnr silfurgráai* *) Nokkrar lögrgluþjonastöður eru lausar hér í Reylrjavílc. Eiginhandar umsóknir sendist lög'veglustjóranum í Reykja- vík fyrir 15. október n. k. og skulu fylgja þeim þessar upplýsingar: 1. Vottorð héraðslæknis um heilsu umsækjenda. 2. Mynd af umsækjenda. 3. Vottorð um aldur hans og hæð. 4. Hvar umsækjandi hefir unnið síðustu 10 árin og við hvaða vinnu. 5. Hverrar mentunar umsækjandi hefir notið og hvar. 6. Nöfn og heimilisfang tveggja manna eða fleiri, sem geta gefið upplýsingar um umsækjanda. Lögreglustjórinn í Reykjavík, 16. september 1933. Hermann Jónasson. Nýju víðtækin. Margar nýjar gerðir tækja fyrir bæjarstrauminn í Reykjavík eru nú komnar. Kaupendur. Snúið yður til útsölustaða vorra hór í Reykjavík hjá Raffækjaverzlun Islands h. f. Tryggvagötu 28, sími 4005 — og Verzlunin Félkinn, Laugavegi 24, sími 3670. mitikjiMizln iikisins. ( kaupir 20°/0 hærra ; verði, en almemit verð á gærum verð ur innanlands í { hau8t, Bergur Einarssoo, Vatnsstíg 7, Reykjavik. þorpsbúar fóru að hafa samtök uin að hU'ða og nota til áburöar hausa og annan fiskúrgang, sem áður var líont og einsivis virði. Hefir Sigurður Bjarklind kaupfélagsstjóri beitt sér mjög fyrir þessari menningarbót. Sama er að segja um þórshöfn. ]>ar liefir ræktuninni hraðfleygt fram síðan farið var að nota fiskúrgang til áburðar, og mun þar innan fárra ára verða álíka blómleg ræktun og í Húsavik, ef stefnt er í sömu átt með eigi minni áhuga en nú. Vél- bátaútvegur fer þar nú mjög vaxandi, enda hagkvæm aðstaða til fiskimiða. Væri þorpsbúum nú þörf á rafstöð og- nokkurri hafnarbót en aðstaða hentug til hvorstveggja. — Á Rauf- arhöfn hefir atvinnulif verið með lilómlegasta móti í sumar vegna ícksturs síldarverksmiðju þar. Einnig I ; þar er nú ræktunaráhugi vaknaður. Mynduðu þorpsbúar fyrir nokkrum árum ræktunarfélag og létu brjóta 10 hektara af mýrlendi, sem nú má heita komið í fulla rækt. þýzkt íisktökuskip, Diana, var að ferma hér við höfnina á þriðjud. var og hafði hakakrossfánann uppi. Ætluðu kommúnistar að fá verka- menn til að stöðva vinnu og tókst að skera niður hakakrossfánann. En Blár Lórdínn ■> j yj ♦. Srnjorl ikt verkamannafélagið lýsti yfir, að það tæki engan þátt í slíkri vinnustöðv- un, og var þá skipið afgreitt. — Nokkrar stympingar urðu milli lög- reglunnar og kommúnista og kom- múnista og nazistaskrílsins hér i Rvík. Athygli slcal vakin á tilkynningu atvinnumálaráðuneytisins, sem birt er hér á öðrum stað í blaðinu, um breytingar þær, sem orðið hafa á reglum um kjötmat og sölu á kjöti á erlendan og innlendan markað. Stúdentaijölgunin. Svo mikil er stúdentafjölgunin orðin og aðsóknin að háskólanum, að forsetar tveggja deildanna liafa orðið að gefa út svo- hljóðandi aðvörun: Vegna þess hve margir kandidat- ar hafa lokið embættisprófi í læknis- fræði og lögfræði undanfarin ár, og vegna þess live margir stúdentar eru enn við nám í þeim greinum, eru atvinnuliorfur lækna og lögfræðinga liér á landi fyrirsjáanlega svo slæm- ar um langt árabil, að lækna- og lagadeild Iíáskólans telja sér skylt að vara stúdenta, sem nú liafa i liyggju að byrja háskólanám, alvar- -iega við þvi að leggja út í nám ' þessnm tveimur fræðigreinum. Reykjavík, 5. sept. 1933. Jón Hj. Sigurðsson, forseti læknadeildar. Ólafur Lárusson, forseti lagadeildar.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.