Tíminn - 18.12.1933, Síða 1

Tíminn - 18.12.1933, Síða 1
(S)aíbbagt 6(«6sius er ). |úní. fÁrsangntíntt fostar )0 £c. XVII. ár. Reykjavík, 18. desember 1933. .S^fcjreifcsía 09 innbclmta á ÍLaugaocg )0. ©£mi 2353 — ?>6otí)ólf 96) 56. blað. Brot úr sögu Framsóknarflokksins I. Viðburðir síðustu daga. Þau tíðindi hafa gerst nýlega, að nokkrir þingmenn, sem áður hafa verið í Framsóknarflokkn- flokknum hafa ákveðið að mynda nýjan flokk, sem virðist eiga að keppa við og þá jafnframt að skaða Framsóknarflokkinn. Einn af þessum þingmönnum, Tryggvi Þórhallsson, hefir í dag birt langa greinargerð um afstöðu þessara manna. — Telur hann okkur, gömlu sámherjana, meirahluta þingflokksins og alla miðstjóm fiokksins vera á villigötum, og að við höfum yfirgefið stefnu Fram- sóknarmanna. Sérílagi eigum við að liafa reynst ótrúir málefnum sveitabænda. II. Frá upphafi Framsóknarflokksins. Þar sem þessir nýbyrjendur kveða svo fast að orði um eigið gildi og vanmátt gamalla sam- starfsmanna, þykir óhjákvæmi- legt að segja allítarlega frá nokkrum þýðingarmiklum atrið- um í sögu flokksins, til þess að samherjar og umbjóðendur þing- mannanna eigi hægra með að átta sig á hvort það er megin- flokkurinn eða klofningsmennirn- ir, sem hafa villst út af réttri leið. Framsóknarflokkurinn varð til eftir kosningar 1916, rétt áður en fyrsta þriggja manna stjórnin myndaðist. Runnu honum stoðir úr þrem áttum. Ungmennafélögin höfðu þá starfað alllanga stund í landinu og samstillt hugi mikils hluta af æsku landsins í frelsis- og framfaraátt. 1 öðru lagi voru samvinnufélögin komin á það stig, að leiðandi mönnum þeirra þótti nauðsyn til bera, að mál þeirra væru ekki varnarlaus á Alþingi. í þriðja lagi hafði mynd- ast á Suðurlandi, fyrir forgöngu Gests á Hæli, allmikil bændasam- tök. sem komu að einum manni við landkjör 1916. Ég vann nokk- uð með öllum þessum hreyfing- um. Af núverandi þingmönnum erum við Bjarni Ásgeirsson úr þeim hóp, sem vildi að ungmenna- félagar stæðu saman í lands- málaflokki. Þá starfaði ég með þeim bræðrum Hallgrími og Sig- urði Kristinssonum og Sigurði 1 Yztafelli um samvinnumálin, og loks unnum við Gestur á Hæli mikið saman að því að skapa hreyfingu óháðra bænda, sem síð- an rann inn í Framsóknarflokk- inn. Af þeim mönnum, sem blaðið Framsókn telur nú hafa yfirgef- ið málstað sveitanna, voru fjórir af fyrstu stofnendum Framsókn- arflokksins á síðasta þingi: Einar á Eyrarlandi, Þorleifur í Hólum, Bjarni á Reykjum og Jónas frá Hriflu. Okkur getur fundizt kyn- legt, að' heyra slíkar ásakanir frá mönnum, sem miklu skemur hafa unnið í flokknum. III. Tr. Þ. kemur í Framsóknarflokkimi. Þegar Tr. Þ. gekk í Framsókn- arflolckinn, hafði flokkurinn all- marga þingmenn, einn ráðherra í stjórninni, Sigurð í Yztafelli, átti tvö vikublöð, Tímann og Dag, og vaxandi fylgi bænda og fram- faramanna út um land. Guðbrand- ur Magnússon var fyrsti rit- stjóri Tímans, en að blaðinu stóð ■ þá, eins og síðar, sterkur hringur í áhugamanna, auk ritstjórans. Um veturinn 1917—18 var ég um tíma norður í Þingeyjarsýslu. Þá hringir vinur minn, Courmont ræðismaður, til mín fyrir Guð- brand Magnússon og spyr mig á frönsku, sem var dulmál fyrir l'lesta á stöðvunum, hvað mér sýnist um að fá son fyrverandi biskups sem ritstjóra Tímans. Ég tók vel á því, og bað samherj- ana, sem mest unnu þá við blað- ið, að taka ákvörðunina og það gerðu þeir. Guðbrandur og Tr. Þ. voru æskuvinir. Stóð þá svo á, að Tr. Þ. hafði verið prestur á Hesti um stund, en vildi gjarnan kom- ast að háskólanum og keppti við þá Magnús Jónsson og Ásmund Guðmundsson. Var það mál allra kunnugra manna, sem óhlutdræg- ir voru, að Tr. Þ. hefði sigrað, en dómnefnd verið slysin í úrskurði. Hann var nú á vegamótum, kærði sig ekki meira en svo um brauðið á Hesti og búskapinn í Borgar- firði. Guðbrandur stóð upp frá blaðinu fyrir vini sínum, sem hann treysti í bezta lagi. Ef Tr. Þ. hefði ekki orðið fyrir rang- sleitni við háskólann, myndi hann hafa sinnt sagnfræðum með kennslustarfinu. Það má þess vegna þakka dómnefndarmönn- unum að talsverðu leyti fyrir þau starfsár, sem Tr. Þ. hefir gefið Framsóknai’flokknum. IV. „Allt er betra en íhaldið“. Tíminn hafði byrjað öfluga framfarastefnu í landsmálum, og lét til sín taka nálega alla þætti félagslífsins í landinu. Tr. Þ. var fastur starfsmaður Tímans, en ég var ólaunaður aðstoðarmaður við blaðið frá byrjun, og ritaði þó verulegan hluta af því, sem ekki var aðsent. Samvinna okkar var hin bezta. Stóðum við nú um mörg ár hlið við hlið undir stórskotum íhaldsins, og lifðum báðir, og raunar nálega allir sam- herjarnir utan þings og innan, eftir þeirri reglu, sem Tr. Þ. gerði að vígorði 1926: „Allt er betra en íhaldið'h Eyðslustéttin í kaupstöðunum og kyrstæðir aft- urhaldsbændur voru stöðugt and- stæðingar utan þings og innan í hverju umbótamáli, sem við beitt- um okkur fyrir. Ég rak mig á þennan gluggalausa vegg aftur- haldsins, er ég hóf baráttu fyrir Byggingar- og landnámssjóði og Tr. Þ. er hann flutti frv. sitt um að afla bændum tilbúins áburðar með góðum kjörum. Ottesen, og síðar Jón á Reynistað, voru í þeim efnum jafn hatramir fjand- menn umbótanna eins og speku- lantar kaupstaðanna. Framfaramenn landsins fundu að hér var stefnt rétt. Fylking þeirra varð með hverju ári þétt- ari utan um þann fána umbóta og framfara, sem Dagur og Tím- inn hófu á loft. Æska sveitanna studdi samvinnublöðin og flokk- inn eftir megni. Þannig líða mörg ár. Framsóknarflokkurinn efldist með hverju ári. En engar gælur voru gerðai' við hin tregu, blindu, kyrstöðuöfl, eða fjárplógs- menn þá, sem skattleggja hina iðjusömu menn í landinu. Tr. Þ. lifði á þeim árum vel og réttilega eftir því boðorði, að íhaldið væri h öf uðandstæðingurinn. V. Áhlaup eða sklpulag. Á þessum starfsárum kom frarn aðferðamunur í vinnubrögð- um okkar Tr. Þ. Hann vann mest í áhlaupum, en lagði litla álierzlu á skipulag. Ég vildi aftur á móti freista að gera flokksfélög út um allt land, sem hefðu sameiginlega stjórn, og að þingmenn og ráð- herrar stæðu í stöðugu sam- bandi um málefni við samherja sína í landinu. Lengi vel var erf- itt í dreifbýlinu að koma á og viðhalda skipulagi. Ýmsir mjög greindir menn sáu ekki, að án skipulags er ekki hægt að halda við sterkum flokki til lengdar. Flokkur án skipulags er alger- lega háður dugnaði, þreki og drengskap forystumanna sinna. Ef þeir bila, fer skipulagslaus flokkur í rústir. Tr. Þ. var á al- veg gagnstæðri skoðun. Hann vildi hafa hin skörpu átök, safna fylginu utan um ákveðna menn. Síðan færu þeir, þingfulltrúarnir, með urnboð sitt, án þess að nokk- urt skipulag væri á samstarfi þeirra við kjósendur. Margir aðr- ir þingmenn í öllum íslenzkum flokkum hafa sömu skoðun á þessum efnum. Og sumum þeim mönnum er beinlínis illa við eftir- lit kjósenda með gjörðum þeirra. Þeir vilja fara með þingmanns- umboðið eins og prókuru, nálega eins og persónulega eign. í hin- um nýstofnaða bændaflokki er beinlínis lýst yfir í sérlega óá- kveðinni stefnuskrá, að sá flokk- ur hafi ekkert skipalag. Hann ætlar að „verzla“ um stefnu sína frá degi til dags. Dreifbýli landsins, og venja ísl. bænda að vinna einangraðir, varð til þess að stefna Tr. Þ. varð lengi vel einráðandi í flokknum á þingi. Á baráttuárunum 1923—27 stóð þingflokkurinn mjög vel saman móti íhaldinu, án þess að nokkurt fast form væri á vinnu- brögðum. Tr. Þ. hafði auk þess rnjög góða hæfileika til að nota þessa aðferð. lfann var áhrifa- mikill ræðumaður á stórum fund- um og létt um að sameina menn til átaka í þingflokknum, með frjálsu samkomulagi, meðan eng- inn vildi gera leik að því að sker- ast úr hópnum og ónýta starf allra hinna með sérgæðingsskap eða dutlungum. Þannig hugsa sumir menn að þjóðfélögin geti orðið, að ekki þurfi lög, dóma eða hegningar. Allir geri hið rétta af innri hvöt. En slíkt ríki er þó enn ekki til á jörðinni. Þetta góða samstarf helzt á þinginu 1928, ekki einungis í þingflokki Framsóknarmanna heldur og milli þeirra og fulltrúa verkamanna. Sjást þess merki á vinnubrögðúm þingsins. Þá voru samþykkt fjölmörg hin þýðingar- mestu lög fyrir almenning til sjávar og sveita, málefni, sem íhaldið hafði stöðvað meðan það gat. Lagabálkarnir frá því þingi eru margir og glæsilegir. Um- ræðuparturinn um samþykkt lög er stærri en frá nokkru öðru þingi, en kaflinn um fallin mál að sama skapi dvergvaxinn. Starf þingsins 1928 sýndi hver er hin rétta meðferð á íhaldinu. VI. Jón Jónsson í Stóradal kemur á þing. Þegar verið var að undirbúa landkjörið 1926 lét flokksstjórn Framsóknarmanna efna til próf- kosningar innan flokksins. M. Kr. fékk flest atkvæði sem efsti mað- ur, um 1000 að mig minnir. Jón í Ystafelli fékk um 800 sem ann- ar maður. Jón Jónsson í Stóra- dal fékk um 50 atkv. sem fyrsti maður. Framtakssamir sveitungar hans höfðu veitt honum þetta fylgi, í því skyni að aðrir gætu komið til greina sem eftirmenn Guðm. í Ási er hann hætti þing- mennsku. Hér var enginn vafi á um dóm kjósenda. M. Kr. og Jón í Yzt.afelli voru landskunnir menn og höfðu landsfylgi, en Jón Jóns- son hafði sveitarfylgi. — Ég lagði til að fylgja skipulaginu og að Jón í Yztafelli yrði annar á listanum. En Tr. Þ. ályktaði, að Jón Jónsson ætti að vera næst- efstur, og hans ráð sigraði. En skipulag og réttur var brotinn.. „Bændavaldið“ var hér brotið á bak aftur. Og það brot á vilja bænda landsins sýnist ætla að verða bændastétt landsins dýrt spaug. Við fráfall M. Kr. kom Jón Jónsson inn í þingflokkinn sem varamaður. Skipulagsbrot og skyndilegt fráfall merkismanns fluttu hann inn f þingið, en ekki vilji eða ákvörðun kjósenda. Jón Jónsson gerði straumhvörf í Framsóknarflokknum. Hann er fremur greindur maður, sæmilega menntaður, og stendur vafalaust sjálfur í þeirri trú, að hann sé alltaf að gera rétt. En samhliða þessu er' hann eljusamur undir- róðursmaður. Auk þess er hann dutlungafullur í mesta máta, og er það óhappamesti eiginleiki hans. Gott dæmi um vinnubrögð hans er það, að hann hefir um mörg ár unnið sem fastast með íhaldsmönnum í þinginu. Eftir stj órnarskiptin 1932 hældi hann íhaldsmönnum fyrir kæliskipið og ræktunarsjóð á flokksfélagsfundi í Kaupþingssalnum og talaði eins og íhaldsmenn eru vanir að gera. En eftir að þetta dekur við íhald- ið hafði fellt Guðm. í Ási í vor sem leið er Jón um stund sár- gramur íhaldinu, og vildi að allir flokkar gerðu bandalag móti því, j afnvel kommúnistar! Eftir stutta stund í Reykjavík er komin i hann gamli íhaldshugurinn, og í allan vetur hefir hann verið aðal- stytta M. G. í landsstjórninni. Jón Jónsson varð sá hnullungur sem skipulagsleysisaðferð Tr. Þ. beið skipbrot á. Hvað eftir ann- að lét hann einstaklingsdutlunga sína ráða atkvæði sínu og gerð- um. Eitt fyrsta tilfellið var mót- staða hans gegn lögbókinni. Mál- ið var komið gegn um 5 umræð- ur í tveimur deildum. En við 3. umræðu í e. d. segir hann mér að hann ætli að drepa lögbókarmálið með íhaldinu. Mér tókst í það sinn að fá hann til að þyrma frv., ef gerð væri á því sú breyting, að málið heyrði undir forsætis- ráðherra. Eins og allir vita er lögbókin hinn mesti kjörgripur fyrir almenning og er það nú viðurkennt. Mér tókst þrátt fyrir andóf Jóns að koma bókinni út með aðstoð Menningarsjóðs og í'íkisprentsmiðj unnar Gutenberg. En honum mun hafa fundizt eðli- legt, að eyða þessari framkvæmd. Annað dæmið er fimmtardóm- urinn, sem Jón Jónsson sýndi sama fjandskap og’ íhaldið og er hann frægastur af því verki. Þingflokkurinn var annars, að ein- um öðrum manni undanteknum, mjög fylgjandi málinu. Jón hirti ekkert um vilja ílokksbræðra sinna, eða hina djúpsettu löngiin allra þroskaðra manna í landinu að nema burt af lokadómstólnum kunnustu gall- ana. Jón gekk svo langt í sam- starfi við íhaldið í þessu efni, að hann flutti eitt sinn „fleyg“ við frv., sem var miðaður við fæð- ingardag eins af dómurum hæsta- réttar til að reyna að lengja dómaratíð hans! Þriðja dæmið hefir þó orðið örlagaríkast. — Á þingi 1931 kom Tr. Þ. með stjórnarskrárbreyt- ingu, sem var miðuð við það, að ihaldið hefði ekki stöðvunarvald í e. d. ef það var minni hluti þings. Þá voruin við Tr. Þ., með samningum, á góðri leið með að fá samkomulag um kjördæma- rnálið við verkamenn, með því að fjölga þm. í kjördæmum án grund vallarbreytingar á kjördæmaskip- un og kosningalögum. Jón Jónsson og Hannes Jónsson risu gegn þess- ari málamiðlun. Samningalipurð Tr. Þ. mátti sín einskis hér. Lítill minnihluti réði hér fyrir meiri- hlutanum. Eftir þetta féll íhaldið í fang sósíalista í þessu máli. Sú samvinna leiddi til þess að málið var leyst á öðrum grundvelli og óhagstæðum Framsóknarflokkn- um. Síðan kom þingrofið og öll sú barátta, sem kunn er frá síðustu missirum. Ef flokkurinn hefði haft fast skipulag svo að meiri- hlutinn réði, myndi Jón Jónsson anaðhvort hafa beygt sig í þess- um málum og mörgum öðrum hliðstæðum, eða farið. Skipulagið var að skapast, en var á eftir þörfinni. íhaldið gladd- ist yfir hverjum dutlung slíkra manna, sem eyðilagði vinnubrögð, álit og tiltrú flokksins. Jón í Stóradal var af og til hækkaður upp í að vera nýr Jón Sigurðsson. Fleiri runnu nú sömu slóðina, helzt nánustu kunningjar Jóns Jónssonar. Fór nú svo, að mál, sem heita máttu sjálfsögð, voru stöðvuð af einstökum mönnum. Þannig viðhéldu þeir Hannes Jónsson og Halldór Stefánsson embætti Jakobs Möllers, bæði á þingi 1932 og 1933, og á þingi í fyrra tókst „bændavinum“ úr Framsóknarflokknum að eyði- leggja frv. mitt um að fella nið- ur útflut-ningsgjald af landbúnað- arafurðum, sem þó var komið gegn um e. d., en í n. d. var flokkurinn í meirihluta. Og ekki var verðið á útfluttum landbún- aðarvörum svo hátt, að vanþörf væri að fella niður þennan ósann- gjarnasta toll, sem lagður er á landsmenn. Tr. Þ. var fonnaðui’ þing- flokksins. Hann reyndi enn að- ferð sína um samkomulag, en tókst nú sjaldan að ná nokkrum úrslitum hin síðustu ár. Ein- þykkni og dutlungar fáeinna þing- rnanna, helzt þeirra, sem telja sig ætla að mynda „bændaflokk“, eyðilagði flokksstarfið. Aldrei hefir þó gengið lakar en á þing-

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.