Tíminn - 23.01.1934, Blaðsíða 2
14
TÍIIIITW
íhaldsstjórnin í Reykjayík.
Frh. af 1. síðu.
að á sama tíma, sem hinir
pólitísku trúðar íhaldsins hafa
borið níð á Framsóknarstjórn-
ina fyrir að auka byrðar ríkis-
sjóðs með lántöku íslands-
banka, sem þeir sjálfir eyði-
lögðu, hefir Reykjavíkuríhald-
ið aukið skuldir bæjarsjóðs um
113% vegna venjulegrar
eyðslu.
að á sama tíma, sem þeir
hafa hrópað um eyðslu annara
hafa þeir í engu sparað og
greitt starfsmönnum bæjarins
allt upp í 22 þús. kr. laun.
að á sama tíma, sem þeir
hafa krafizt skattalækkunar af
ríkissjóði hafa þeir hækkað
heildarupphæð útsvaranna í
Reykjavík um 77% og skatta-
byrðar manna þó ennþá meir
vegna rýrnandi tekna bæjar-
búa.
að framleiðslustarfsemin í
bænum er að leggjast í rústir
vegna dýrtíðarinnar, að fiski-
skipin í bænum eru ekki orðin
nema 28, þegar þau, miðað við
fólksfjölda, ættu að vera um
50 og íhaldið er ófáanlegt til
þess að hafa forgöngu til við-
réttingar
Línuritin, sem hér eru birt,
■ þurfa ekki mikilla skýringa. —
Þau tákna:
1. íbúatölu bæjarins, sem
stöðugt fer hækkandi, og var
30565 í árslokin 1932.
| 2. Fiskiskipaflotann í bæn-
! um árin 1925—32. Árið 1927
: voru í Reykjavík 40 fiskiskip,
og í hlutfalli við fólksfjölgun-
ina síðan, hefðu þau átt að
vera 50 í árslok 1932, en voru
28.
3. Fjárframlög til fátækra-
j framfæris og atvinnubóta í
i Reykjavík árin 1924—32. Þessi
| útgjöld fara hraðvaxandi jafn-
| framt því sem framleiðslan
minnkar og atvinnuleysið eykst
! og eru nú komin mikið á
i aðra miljón eins og línuritð
! sýnir.
| 4. Útsvörin, sem lögð hafa
j verið á bæjarbúa, árin 1924—
• 34. Útsvarsupphæðin verður
77% hærri í ár en hún var
1927.
5. Skuldir bæjarsjóðs Reykja-
; víkur. Þær voru rúml. 3y% milj.
; í árslok 1927 — hafa hækkað
j um 113% á fimm árum.
6. Útgjöld bæjarsjóðs 1924—
j 32. Þau fara líka hraðvaxandi
i og urðu nærri hálf fimmta
miljón á árinu 1932.
Fátækraframfæri og atvinnubót&vinza 1924- 32
(Jtsvórin í Bvk. 1924-’34. Skuldir bæjarsjóÖs 1924-’32. Utgjöld bæjarsjóds 1924-32
A —— ... • i -U-
J;1
!
Nl 1
:.j.
rt;
•i.
■ j
■ ■ I- —p-
i1 r4 • i .
Tölurnar,. sem línuritin eru byggð á eru teknar eftir skýrslum Fiskifélagsins, manntalsskýrslunum og bæjarreikn-
ingum Reykjavíkur. Þau hafa öll verið birt í Nýja dagblaðinu.
f
Skýrsla nm póstrekstur á ís-
landl er nýkomin út. Er þar
fyrst stutt yfirlit yfir póstmálin.
Tekjumar vom mestar 1930, en
hafa síðan minnkað, sökum fjár-
hagslegra örðugleika. Starf póst-
málaskrifstofunnar hefir þó auk-
izt að töluverðum mun. — Um
áramót 1931 voru laun starís-
manna póststofunnar í Reykjavík
lækkuð um 15%. Póststöðvum hef-
ir fjölgað í lok ársins 1931. Eru
póststöðvar orðnar 533 á landinu.
f lok sama árs er tala póststarfs-
manna 860. Póstsendingum milli
fslands og útlanda hefir aftur á
móti fækkað töluvert. Sömuleiöis
hafa verðsendingar til útlanda og
frá útlöndum minnkað mikið.
Loks er skýrsla um póstrekstur
ýmsra landa árið 1931.
Bæjarstjórnarkosning á Seyðis-
firði fer fram 27. þ. m. — paö er
síðasta bæjarstjómarkosningin,
sem fram fer ftð þessu sinni.
Framsóknarfélag Reykjavfkur
heldur fund í kvöld kl. 8% 1
Sambandshúsinu. Umræðuefni:
Bæjarstjómarkosningin.
Úrslit bæjarstjórnarkosnlnganna
í Reykjavík: A-listi (Alþfl.) 4675
atkv., © fulltniar. B-listi (komm.)
1147 atkv., 1 fulltrúi. C-listi (Sjálf-
st.fl.) 7043 atkv., 8 fulltrúar, D-
listi (Framsfl.) 1015 atkv., 1 full-
trúi. E-listi (pjóðemissinnar) 399
atkv., enginn fulltrúi.
Strandferðimar. Áætlun fyrir
strandferðaskip ríkisins er ný-
komin út. Sú nýbreytni hefir ver-
ið gerð, að hraðferðir til Aust-
fjarða hafa verið teknar upp. Eins
og kunnugt er, hafa Austfirðir
verið mjög afskiptir af samgöng-
um við Reykjavík, en nú verður
mikið bætt úr þessu á næsta ári,
með hraðferðum sem Skipaútgerð
ríkisins tekur upp. Verða 3 hraö-
ferðir til Austfjarðanna, snúið við
á Seyðisfiröi og Vopnafirði. prjár
hraðferðir verða næsta sumar
austur um land til Siglufjarðar
og til baka. Veröa samgöngur vlð
Austíirðí og Norðausturland þá
mikið betri en áður. Viðkomur á
pórshöfn veröa t d. 27 og á Seyð-
isfirði 33.
Nýlátlnn er á Landsspítalanum
Hildur Haraldsdóttir frá Austur-
görðum í Kelduhverfi í Noröur-
pingeyjarsýslu, eftir langa van-
heilsu.
Dánarfregn. Nýlega andaðist á
sjúkrahúsinu í Hafnarfirði Ólafur
Marteinsson mag. art. Banamein
lians var heilablóðfáll. — Nýlát-
inn er ennfremur Kristján por-
kellsson, áður bóndi og hrepp-
stjóri í Álfsnesi. Hann var fyrir
sköinmu fluttur hingað til bæjar-
ins.
Uppreltn f Argentínu, Frá Arg-
etntínu koma fregnir um upp-
reisnartilraun, er þar hafi verið
gerð. Miðstöð uppreisnarmanna
virðist hafa verið Rosario, þar sem
þeir réðust á skála riddaralög-
reglunnar. En árás þeirra var
hrundið með skothrið. Uppþotið,
wm einnif var gert á Santa F«
lauk með ósigri uppþotsmanna.
Kngar óeirðir urðu 1 Buenos
Ayres, með því að lögreglunni
barst vitneskja um, hvað á seiðl
væri, og lét taka nokkra for-
sprakka uppþotsmanna íasta. —
pessi uppreisnartilraun á rætur
sínar að rekja til almennrar óá-
nægju með hina íhaldssömu stjóm
Husto forseta.
Krónprinz fæddur i Japan. Jop-
önsku keisarahjónin eignuðust son
um jólaleyti. Aður voru þau búin
að eignast þrjár dætur, og olli
það mörgum keisarahollum Jap-
ana ekki lítillar áhyggju, ef svo
færi, að þau eignuðust ekki son
til ríkiserfða. pað varð því
mikii gleði í Japan, þegar sú
fregu barst út, að drotningin hefði
alið son. Og þegar drengurinn var
skirður nokkrum dögum seinna,
var mikið um dýrðir. FólkiÖ í
höfuðborginni þyrptist saman á
götunum og síðan var farið í
skrúðgöngu til keisarahallarinnar
til nð árna þessum tilkomandi
kedaara allso. kvilla.
rH
QfD
a
Maífundur
miðstiórnar Framsóknarflðkksins
Aðalfundur miðstjómar
Framsóknarfl. hefir verið kall-
aður saman af formanni flokks-
ins, Sigurði Kristinssjmi, og
verður settur í Reykjavík
fimmtudaginn 22. marz n. k.
Á aðalfundi miðstjórnar eiga
sæti og atkvæðisrétt samkv.
11. gr. flokkslaganna 25 aðal-
menn, og auk þeirra 10 vara-
menn búsettir utan Reykjavík-
ur. — Þannig eiga sæti á
fundinum alls 35 menn með at-
kvæðisrétti. Þeir eru þessir:
Aðalsteinn Kristinsson fram-
kvæmdastj óri,
Bergur Jónsson alþm.,
Bjarni Bjarnason, skólastj.
Laugarvatni,
Bjarni Runólfsson bóndi
Hólmi,
Björn Konráðsson ráðsmað-
ur, Vífilsstöðum,
Björn Kristjánsson alþm.,
Einar Árnason, alþm.,
Eyjólfur Kolbeins bóndi
Bygggarði,
Eysteinn Jónsson alþm.,
Gísli Guðmundsson ritstj.,
Guðbrandur Magnússon for-
stjóri,
Guðgeir Jóhannsson kennari,
Gunnar Þórðarson bóndi,
Grænumýrartungu,
Halldór Ásgrímsson, kaupfé-
lagsstjóri Borgarfirði,
Hallur Kristjánsson bóndi
Gríshóli,
Hannes Jónsson dýralæknir,
Hannes Pálsson bóndi Undir-
felli,
Hermann Jónasson lögreglu-
stjóri,
Hervald Bjömsson skólastj.
Borgamesi,
Ingþór Bjömsson bóndi ó-
spaksstöðum,
Jón Árnason framkv.stj.,
Jón Fjalldal bóndi Melgras-
eyri,
Jón Hannesson bóndi Deild-
artungu,
Jón Ivarsson kaupfélagsstj.
Homafirði,
Jónas Jónsson alþm.,
Kristinn Guðlaugsson bóndi
Núpi,
Markús Torfason bóndi ól-
afsdal,
Páll Zophoniasson ráðunaut-
ur,
Sigurður Kristinsson forstj.,
Sigurþór ólafsson bóndi
Kollabæ,
Steingrímur Steinþórsson
skólastjóri,
Séra Sveinbjöm Högnason
Breiðabólsstað,
Sveinn Jónsson bóndi Egils-
stöðum,
Vigfús Guðmundsson Borg-
amesi,
Þórólfur Sigurðsson bóndi
Baldursheimi.
Aðalfundurinn og verkefni
þau, er fyrir liggja, hafá af
formanni verið bréflega boðuð
í þessum mánuði. En eftir
flokkslögunum er skylt að boða
aðalfund með a. m. k. mánað-
ar fyrirvara.
Jttrð til sðlu.
Jörðin Höfðahús við Fá-
skrúðsfjörð er til sölu og laus
til ábúðar á næstu fardögum.
Leiga getur komið til mála.
Ferkari upplýsingar gefur
Stefán Þorsteinsson, Höfða-
húsum.
Frímerki.
Notuð íslenzk frímerki kaup-
um við hæsta verði.
Umboðsmenn óskast.
Frímerkjaverzl., Lækjargötu 2.
Sími 2386. Pósthólf 612.