Tíminn - 05.03.1934, Side 3
TI M I N N
39
Fréttir
Hjónaband. í fyrrad. voru gefin
saman í hjónaband hjá lögmanni
un'gfrú Ásgerður Guðmundsdóttir
kennslukona frá Lundum í Staf-
holtstungum og Jón Guðmundsson
endurskoðandi í fjármálaráðuneyt-
inu og áður hjá Samb. isl. sam-
vinnufélaga. Brúðhjónin fóru utan
með Dronning Alexandriue.
Nýlátin er Ingibjörg þorsteins-
dóttir húsfreyja á Kaðalsstöðum í
Borgarfirði. Hún var af hinni góð-
kunnu Húsafellsœtt, systir sr.
Magnúsar, sem nú er starfsmaður
í Búnaðarbankanum, porsteins
bónda á Húsafelli og þeirra syst-
kina. Ingbjörg var vellátin kona
á bezta aldri.
Dánarfreyn. Nýlátin er á Lands-
spítalanum Ingibjörg Erlendsdótt-
ir frá Borgarnesi. Var hún ættuð
og uppalin í Vestur-Skaftafells-
sýslu, en giftist ung Bjarna Guð-
jónssysi verzlunarmanni í Borgar-
nesi og dvaldi þar síðan. — Ingi-
björg var sérstaklega dugleg kona,
ósérhlífin , hjálpsöm og vinsæl af
þeim, er bezt þekktu hana.
Tíniinn vi 11 benda mönnum á
að tryggja sér gulrófnafræið i
tíma, sem auglýst er á öðrum
stað í blaðinu.
Skákþingi Reykjavíkur lauk
íyrra föstudagkvöld. Úrslit urðu
þaú, að Jón Guðmundsson
sigraði i meistaraflokki . og varð
þar með skákmeistari Reykjavik-
ur. Er þetta í fyrsta sinn, sem
Jón vinnur titilinn. Hafði hann
6% vinning af 8 fáanlegum. 2.
varð Eggert Gilfer með 5 vinninga
og þriðji Baldur Möller með 3y2
vinning. Keppendur voru 5 og var
tefld tvöföld umferð. — í fyrsta
ílokki varð efstur Sigurður Hall-
dórsson með 6 vinninga af 8 fá-
anlegum. 2. varð Benedikt Jó-
hannsson með 5y2 vinning. Kepp-
endur voru líka 5 í þessum flokki
og einnig tefld tvöföld umferð. —
í 2. flokki kepptu 16 í tveim jöfn-
um flokkum. í öðrum flokknum
sigraði Áki Pétursson með 5 vinn-
inga, en í hinum sigraði Hösk-
uldur Jóhannsson' með 4vinn-
ing. Báðir efstu mennirnir flytjast
nú upp í 1. flokk og keppa þar
næst.
Árshátið samvinnumanna var
haldin að Hótel Borg 23. febr. s. 1.
Hátiðin. hófst með borðhaldi. Voru
margar ræður fiuttar undir borð-
um. Ræðumenn voru Gísli Guð-
mundsson ritstjóri, Jónas Jónsson
skólastjóri, Arnór Sigurjónsson
frá Laugum, Jörundur Brynjólfs-
son alþingismaður, Guðbrandur
Magnússon forstjóri, Sigurður
Baldvinsson póstmeistari og sr.
Sigurður Z. Gíslason prestur á
þingeyri. — María Markan söng
nokkur lög. A oftir borðhaldinu
var stiginn dans til kl. 4 um nótt-
ina. Var þetta hin ánægjulegasta
samkoma.
„Bræðumir“ nefnist karlakórs-
flokkur, sem Bjarni bóndi á Skán-
ey í Reykholtsdal hefir stjórnað sl.
18 ár. Flokkinn skipa nú tuttugu
menn og hafa nokkrir þeirra verið
í honum frá byrjun. Elstu félag-
arnir eru nú flestir bændur, sem
dreifðir eru um fleiri sveitir
beggja megin Hvítár. Hefir þaö
oft verið harðsótt og mikið á sig
lagt, að sækja æfingar í vetrar-
byljum eða rosaveðrum, en það
hafa þeir löngum gert. Laugar-
daginn 9. f. m. efndu þeir til
skemmtisamkomu i Reykholti til
ágóða fyrir leikfimishús skólans,
sem byggt var fyrir lánsfé. Á
skemmtiskrá var söngur Bræðr-
anna, einsöngur Magnúsar Ágústs-
sonar læknis, „Eiginmennimir",
gamanleikur í einum þætti, upp-
lestur og dans. Skemmtunin var
fjölmenn, eftir því sem vænta
mátti og fór hið bezta fram.
Læknisbéraðið á Blönduósi. Um
það hafa sótt: Magnús Ágústsson
Kleppjárnsreykjum, Guðmundur
Guðmundsson Reykhólalæknis-
héraði, Páil Kolka Vestmannaeyj-
um, Lárus Jónsson Siglufirði,
Haraldur Jónsson Breiðumýri og
Einar Guttormsson kandidat, sem
nú er í Kaupmannahöfn.
Dr. phil. Björg C. porláksdóttir
andaðist í Kaupmannahöfn fyrir
rúmri vlkú. Hafði hún all-
Ódýrar bækur:
Grettisljóð Matth. Jochumss.,
Jón Arason, leikrit eftir Ind-
riða Einarsson,
Skipið sekkur, leikrit eftir Ind-
riða Einarsson,
Dulrænar smásögur,
Sagan af Hinriki heilráða,
Sagan af Hringi og Hringvarði,
Sagan af Huld drottningu,
Sagan af Vilhjálmi sjóð,
Ljóðmæli Jóh. M. Bjarnasonar,
Víglundarrímur,
Reimarsrímur,
Líkafrónsrímur,
Svoldarrímur,
Rímur af Jóhanni Blakk,
Rímur af Gísla Súrssyni,
Rímur af Álaflekk,
Rímur af Gesti Bárðarsyni,
Rímur af Stývarði og Gný,
Rímur af Hjálmari hugumstóra
Rímur af Gríshildi góðu,
Sagan af Ambales,
Þáttur Eyjólfs og Péturs.
Allar þessar bækur — bók-
hlöðuverð 25 kr. — fást send-
ar burðargjaldsfrítt hverjum
þeim, sem sendir 10 krónur til
P. O. Box 863, Reykjavík.
Aðrir, sem biðja um þær í
pósti, verða að auki að greiða
burðareyri og póstkröfugjald.
Upplagið mjög takmarkað.
Linoleum, fjölbr. úrval.
Linoleum-lím,
Kopalkítti.
Filtpappi.
Látúnsbryddingar
á borð, stiga og
þröskulda.
Þakpappi „Tropenol“
margar tegnudir.
Vírnet.
Saumur allskonar.
Vegg- og Gólfflísar.
Asbestsementplötur.
Hurðarhúnar, Skrár,
Lamir. Hurðarpumpur.
Skothurðarjárn ,Perko‘.
Loftventlar.
Handdælur,
Gúmmíslöngur
o. m. m. fl.
Ávalt fyrirliggjandi.
Góðar vörur. Lágt verð.
Á Einarsson &
Funk
Tryggvagötu 28.
iengi verið veik og var lögð á
sjúkrahús í Kaupmannahöfn fyrir
skömmu. Dr. Björg C. þorláksdóttir
var eini íslenzki kvendoktorinn.
Varð hún doktor við háskólann í
París fyrir nokkrum árum fyrir
ritgerð, sem hún samdi um sálar-
fræðileg efni.
Hey brennur. Fyrir skömmu brann
heyhlaða með nokkuð á annað
bundrað liestum af heyi til kaldra
kola á Stað i Súgandafirði. Engu
varð bjargað af heyinu. Fjós var
áfast við hlöðuna og bi-ann það
einnig, en kúnum varð bjargað.
Presturinn á Stað er Halldór Kol-
iæins, og átti hann heyið.
Styrjaldir. í Englandi hefir pró-
fessor nokkur og liðsforingi í fé-
lagi reiknað út, hversu mörgum
styrjöldum Norðurálfulöndin liafa
tekið þátt í seinustu þúsund árin.
Frakkland er þar efst á blaði með
185 styrjaldir. Næst koma Eng-
land með 176, Rússland 151, Aust-
urriki 131, Spánn 75, Ítalía 32,
þýzkaland 24, Holland 23. Önnur
lönd eru þar fyrir neðan.
Tvennir tímar. Einn af þeim
mörgu, sem orðið hefir fyrir of-
Sóknum þýzkra nazista, er fyrv.
forsætisráðherra, Phillip Scheide-
mann. Hann er kominn um sjö-
tugt og býr sem flóttamaður í öðru
landi við aumleg kjör. Tvö af
börnum hans hafa framið sjálfs-
morð, til þess að kcmast hjá ógn-
um nazista. Um eitt skeið var
Scheidemarm einn valdamesti
Frakk&stíg 8 — Reykjavik
Bímar: 3060 & 3061
Framleiðir oé selur
margskonar prjónavörur, lopa og band.
Tekur til vinnslu
ull, hvort heldur er t lopa eða band.
Kaupir og tekur upp í vinnulaun
hreina og góða vorull.
Unnið er með fullkomnustu vélum. — Vörugæði eru viðurkennd
Afgreiðsla gegn póstkröfu, hvert á land sem erl
Stórbýli
í Rangárvallasýslu fæst keypt nú þegar og til ábúðar í næstu
fardögum. Á jörðinni er nálægt 2000 hesta heyskapur í með-
alári, allt véltækt land. Hús í sæmilegu ástandi og girðingar
miklar. Öll áhöfn getur fylgt, þar á meðal 10 valdar kýr, jarð-
yrkjuverkfæri o. fl. Eignaskipti á góðu húsi í Reykjavík,
gætu komið til mála.
Nánari upplýsingar gefur Helgi Bergs forstjóri Sláturfé-
lags Suðurlands og Pétur Magnusson hæstaréttarmálaflutnings
maður, Reykjavík.
Fóðurbætir
Munið að þér fáíð hvergi
betri fóðurbæti en hjá
Samband ísl. samvínnulélaga
Tilbúinn áburður
Munið að nú er tími tilkom-
inn að panta tilbúinn áburð;
látið ekki dragast að senda
pantanir.
Aburðarsala ríkisins
Ferðamenn
ættu að skipta við Kaupfélag
Reykjavíkur. — Þar hafa þeir
tryggingu fyrir góðum og ódýr-
um vörum.
maður þýzku þjóðarinnar og átti
góðan þátt í viðreisn hennar eítir
heimsstyrjöldina.
Landflótta visindamaður látinn.
Nýlega er látinn í Sviss einn af
merkustu vísindamönnum þjóð-
verja, Fritz Haber. Sína stærstu
uppgötvun gerði hann a stríðsár-
unum. Innflutningur var mjög lít-
ill til þýzkalandsins vegna hafnar-
hannsins. þýzkur landbúnaður var
því að sjá þjóðinni fyrir miklu
meiri neyzluvörum en á venju-
legum tíma. þaö var þá, sem Fritz
Haber tókst að finna upp nýja,
fljótvirka aðferð til þess að vinna
áburð úr loftinu. Er talið, að fátt
hafi hjálpað landbúnaðinum öllu
meira á þeim árum en sú upp-
götvun. þegar nazistar komust til
valda voru samstarfsmenn hans
reknir úr embættum. Sjálfur fékk
hann að halda sinni stöðu, en
hann lagði hana niður í mótmæla-
skyni Nú var hann staddur er-
lendis. Slíkar þakkir hafa nazist-
ar veitt mörgum löndum sínum,
er þjóðinni hafa reynzt þarfastir
á undangengnum árum.
Auglýst eftir konu. í Tyrklandi
býr maður að nafni Ali Ismael,
sem er merkilegur fyrir það að
vera 320 cm. hár. Nýlega hefir
hann auglýst það í mörgum blöð-
um, að hann skyldi veita há verð-
laun hverjum þeim, sem gæti út-
vegað sér húsfrú, er væri jufnhá
og hann. Fáir munu gera sér von
um að vinna verðlaunin.
MTNDA. 09 RAMMAYERZL.
Freyjugöta 11. Sími £106
ISLENZK MÁLVERK.
Kol averzlun
SIGURÐAR ÓLAFSSONAR
Slinn.: KOL. Reykjavík. Bfml 1933.
Fyrir vorid
Hversvegna hjálpuðu Eiríkur
Einarsson og Pétur Magnússon
íhaldinu til að framlengja dýrtíð-
aruppbót á hæstu laun? Ætli fá-
tæka fólkið á Suðurlandi heimti
þetta? Vilja kjósendur svara fyrir
þingmenn sína?
Sömu menn, Eirikur, P. M. og
Jón í Stóradal felldu á þingi í
vetur tillögu Jónasar Jónssonar um
að launanefndin setti föst ákvæði
um hámarkslaun embættismanna.
Hvort voru þessir menn þama
háðari kjósendum sinum, eða há-
launamönnum kaupstaðanna?
Hákon er farinn að biðja sér
liðs fyrir litla íhaldið vestra. Aft-
ur á móti býður sá flokkur engan
fram móti Ottesen. Hann vei'ður
þannig fyrir bæði íhöldin. Gunnar
á Selalæk kvað eiga að verða i
kosningabandalagi við Pétur
Magnússon, og frambjóðandi litla
íhaldsins á sama hátt með Eiríki
í Árnessýslu.
Flestallir unglingar frá íhalds-
heimilunum í Reykjavík, sem nú
eru að búa sig undir embættastörf
fyi-ir landið, eða kaupmennsku,
hallast að ofbeldisstefnu þeirri,
sem afnemur kvenfrelsi, frið
heimilanna, trúfrelsi, prentfrelsi,
atvinnufrelsi og allar teguixdir af
pólitísku frelsi.
Ræktun 10 siðustu ára.
Framh. af 2. síðu.
Heildarlækknuin á dagsverkatölunni, mið-
að við árið 1932 er 15% og miðað við há-
marksárið 1.931 26,4%.
Tala jarðabótamanna árið 1938 var 4683.
Dagsverkatalan er hæst í Gullbringu- og
Kjósarsýslu að meðaltaldri Reykjavík 76118
dagsverk, og er það hærra en 1932, þá er
það 75150 dagsverk. Næsthæst er Árnes-
sýsla með 64123. Lækkunin frá í fyrra er
lítil í þeirri sýslu eða rúm 2000 dagsverk.
Skagafjarðarsýsla er þriðja í röðinni með
45090 dagsverk, en þar er þó lækkunin frá
árinu áður um 20000 dagsverk.
Sé aftur litið á hinar einstöku umbætur,
sést að nýræktin er mest í Skagafjarðar-
sýslu, 153 ha., næst kemur Árnessýsla með
114 ha. Árnessýsla er aítur hæst með túna-
siéttur 50 ha. og Rangárvallasýsla og Skaga-
fjarðarsýslur næstar með 45 ha.
Aukning matj urtagarðanna er mest í Ár-
nessýslu 11 ha. Rangárvalla- og Skaga-
fjarðarsýslur eru næstar með 6,4 og 5,2 ha.
Ámessýsla er hæst með safnþrær 1485 m3.
Gullbringu- og Kjósarsýsla kemur næst með
842 m3. Þar hefir verið byggt mest af safn-
þróm, 1345 m3.
Árnessýsla, Skagafjarðar- og Gullbr.- og
Kjósársýsla, svo og Borgarfjarðarsýsla, hafa
mesta framræslu, en miklar líkur eru fyrir
því að mjög skorti á, að það land, sem
ræktað hefir verið á árinu í mörgum sýsl-
um sé nægilega framræst.
Lækkunin á jarðabótunum nemur 87.324
dagsverkum miðað við árið 1932 eða 15%.
Eftir því sem viðhorfið um afurðasölu land-
búnaðarins veturinn 1932—33 var, þá er
þessi aftur kippur minni en vænta mátti,
einkum þegar það er athugað, að frá há-
marksárum jarðræktarframkvæmdanna 1930
—31 er hækkunin einkum vegna mikilla at-
hafn aí ýmsum kauptúnum, s. s. Hornafirði,
Vestmannaeyjum, Akranesi, Eyrarbakka og
víðar. Ilin tvö síðustu ár hefir dregið úr
umbótum hjá mörgum kauptúnum og bæj-
um að undanskilinni þó Reykjavík. En þess
má aftur vænta, að á þessu ári taki nokkur
kauptún, sem nú eru að ná föstum umráða-
rétti yfir landi, til rækturfár í stærri stíl.
(Samkv. uppl. frá Pálma Einarssyni).
Ræktunarmenning
Frh. af 1. síðu
að dómurinn að búskapur vor sé yfirleitt
rekinn með menningarsnauðum hætti, sem
barbarí, verði lítið annað en slumpur og
sleggjudómur þótt nokkuð geti verið hæft
í honum ef leitað er á garðinn þar sem hann
er lægstur. Það er gaman að frétta af hinni
risavöxnu tækni sem tíðkast nú orðið í bú-
skapnum eins og öðru, sumstaðar hjá stór-
þjóðunum. En menn skyldu varast að láía
slíkar fréttir villa sér sýn. Það er hægt að
gera of mikið að því að einblína á sína eigin
smæð, og miða við slíka mælikvarða.
I fyrra skoðaði ég túnræktarfyrirtæki þai'
sem 1200 ha. tún nýræktað lá sem ein heild.
Á vori komandi verður bætt við 600 ha. og
sennilega öðru eins 1935. Eg ók á j ámbraut
út um túnin og athugaði þá tækni sem var
viðhöfð við framkvæmd þessa mikla fyrir-
tækis. Það undarlega skeði, mig svimaði ekki
af að sjá og athuga það sem fyrir bar.
Eg fann ekki að það verkaði neitt verulega
öðruvísi á mig að aka þama langar leiðir á
járnbrautinni, en ef eg hefði brugðið mér á
Fordinum hans Halldórs á Hvanneyri niður á
Hvanneyrarfitina og inn bakkana með Ilvítá.
Tæknin minnti mig prýðilega vel á það þeg-
ar eg sjálfur ásamt öðrum fyrir fáum ánim
vann örast að ræktunarframkvæmdum hér
í nágrenni Reykjavíkur, á Vífilsstöðum,
Korpúlfsstöðum og víðar. Eg fann að það
var umhverfið og eftirspurnin eftir árangr-
inum, ef svo mætti að orði komast, sem
mótaði stærð fyrirtækisins, víðáttu túnanna.
Eg fann ekkert til þess að það sem bezt
er nú gert í íslenzkri jarðrækt væri menn-
ingarlaust barbarí.
Nei, sem betur fer erum við búnir að stíga
og erum að stíga sæmilega drjúg og örugg
spor frá barbaríinu og hinni frumstæðu
tækni í búskapnum, í áttina til sigursællegs
og menningarlegs búskaparlags. Engin
kreppa má blinda oss svo að við sjáum þetta
ekki. Enginn barlómur æra oss svo að vér
viljum ekki vita þetta og að án þessara
heillaspora hefði kreppan sennilega knúið
oss flata niður í barbarí og vesaldóm. Það
er engin ómenning þótt tæknin sé frumstæð
ef hún er notuð í eðlilegu umhverfi og með
fullum dug. Það þarf ekki að vera nein