Tíminn - 28.05.1934, Síða 3
T 1 M I N N
97
æðraskólinn
á Hallormsstað
Námstíminn er 2 vetur: Yngri deildar frá vetumóttum
til aprílloka, en eldri deildar frá 20. september til aprílloka.
Aðalnámsgreinar í yngri deild: Islenzka, reikningur, nátt-
úrufræði, danska, vefnaður og saumur, en eldri deildar: Is-
lenzka, danska, matarfræði matreiðsla og almenn eldhússtörf
og hannyrðir.
Aldurstakmark 18 ár.
Skólakostnaður ca. 450 krónur.
Gjalddagi 1. nóv. og 1. febrúar.
Umsóknir sendist forstöðukonu fyrir miðjan ágúst n. k.
Hallormsstað 8. maí 1934.
Sigrún P. Blönda!
Viðbætir við sálmabók
til kirkju- og heima-söngs
Gefin út að tilhlutuu
Kirkjuráds hinnar ísieuzku þjódkirkju.
Þessi viðbætir við sálmabókina er 196 blaðsíður í sama
broti og sálmabókin. Eru þar 144 frumsamdir sálmar og
76 þýddir, eftir 55 nafngreinda höfunda og 4 óþekkta.
Þarna eru sálmar eftir t. d.: Davíð Stefánsson, Einar
Benediktsson, Einar H. Kvaran, Freystein Gunnarsson, sr.
Fr. Friðriksson, Grím Thomsen, Guðm. Guðmundsson, Hall-
grím Pétursson, Hannes Hafstein, Hannes Blöndal, Bólu-
Hjálmar, Jakob Smára, dr. Jón Helgason biskup, Jón
Magnússon, Jónas Hallgrímsson, Ólínu Andrésdóttur, Svein-
björn Egilsson, Unni Benediktsdóttur, Valdimar Snævarr,
Þorst. Gíslason og marga fleiri.
Bókin kostar, í fallegu bandi, 2 krónur.
Fæst í öllum bókaverzlunum.
Það bezta er ekki of gott
Viljið þér fá reglulega gott og kröftugt súkkulaði,
þá drekkið einn bolla af
Pan- Liílu- Bellu- Fjallkonu- eða
Prímúla súkkulaði.
Þessar tegundir eru nærandi og styrkjandi og,fram-
leiddar úr kraftmiklum cacaobaunum.
------öllum þykirþað gott.
Súkkulaði-verksmiðja
H.f. EfnagerS Reykjavíkur
Ljóma
vitamin-smíörlíki
hefir lagt fram vísindalegar sannanir
Byggingarefni
Þér, sem ætlið að byggja eða endurbæta hús yðar at
hugið að þér getið fengið flest sem að byggingu lítur
, á einum stað.
Vér höfum ávalt fyrirliggjandi:
Sement, steypustyrktarjárn, steypumótavír, þak.
pappa, þakjárn, saum allskonar, kork, gluggatróð,
gólfdúka, veggfóður, flókapappa.
Eldtæri
miklar birgðir af eldavélum og ofnum
bæði svörtum og amaleruðum.
t
Miðstöðvar- og hreinlætistæki:
miðstöðvareldavélar, miðstöðvarkatla, miðstöðvarofna,
Baðker, fajance handlaugar, eldhúsvaska, saleani, jarð-
bikaðar skolppípur, vatnsleiðslupípur,
öllum fyrirspurnum svarað greiðlega.
J. Þorláksson & Norðmann
Símnefni: Jón Þorláks. Sími 1280 (4 línur)
frá Statens vitamín Laboratorium um
að Ljóma smjörlíki innihaldi
sóiskinsvitámínið - D vitamínið
Engin önnur smjörlíkísgerð á iandinu
hefir getað lagt fram slíkar sannanir
frá þessari þekktu, ströngu og viður-
kenndu vísindastofnun.
Fréttir
„Sendiherrann“ komlnn. Sendi-
herra Magnúsar Guðnaundssonar,
Gunnlaugur Jónsson, kom frá út-
löndum með Gulfossi seinast. Ekki
skal sagt um það, hvort för hans
hafi endað þannig, að Magnús
verði að halda einhverju eftir, þeg-
ar hann sendir hann út nœst. En
þá verður Magnús líka að hafa
hraðan á og gera það fyrir kosn-
ingarnar.
Frá Siglufjarðardoilunni. Rann-
sókn hefir staðið yfir út af þerk-
fallstilraun kommúnista á Siglu-
firði við Dettifoss. það voru konur,
sem gengu tiltölulega harOast
fram þar í ryskingunum.— Var
tekinn hamar af einni, sem hún
hafði beitt i slagsmálunum. Einn
aðalforsprakkinn, Aðalbjöm Pét-
ursson var um tíma settur í jám.
Var mikið af grjóti í vösum hans
og hníf tók lögreglan af honum,
sem hann játaði, að hafa haft til
að skera á vatnsslöngu.
Frambjóðendnr FramsóknarfL í
Rangárvallasýslu, Sveinbj. Högna-
son og Helgi Jónasson hafa afsal-
að sér rétti til uppbótarþingsæta.
Sama hefir gert Vilmundur Jóns-
son.
Skrlfstofa Framsóknarflokksins
er í Sambandshúsinu í Reykjavík,
s,ma 2979. Áhugamenn flokksins
em minntir á að hafa samband
við skriistofuna.
Kaupendum Tímans vat' sent það eintak
af Nýja dagblaðinu, sem skýrði frá og
ræddi úrslit hins svokallaða Kollumáls, en
svo stóð á í prentsmiðj unni, að ekki var
unnt sakir anna, að prenta Tímann, svo
menn fengju þá strax frengir af þessu póli-
tíska ofsóknarmáli íhaldsins á hendur Her-
manni Jónassyni.
Málið var sem kunnugt er hafið fynr
síðustu bæjarstjórnarkosningar hér í Rvík,
og var ætlað að hafa áhrif á úrslit þeirra,
þar eð Hermann Jónasson var aðalframbjóð-
andi Framsóknanuanna við þær kosningar.
Síðan liggur málið lengi í stjórnarráðihu
hjá Magnúsi Guðmundssyni, eftir að hinni
hjákátlegu rannsókn er talið lokið. En dag-
inn eftir að H. J. lagði af stað í kosninga-
leiðangur norður í Strandasýslu með Tr.
Þórhallssyni, er kveðinn upp dómur.
Til þess að gefa mönnum hugmynd um
hverskonar skrípaleikur þetta mál er, skal
hér birt orðrétt lýsing á einhverjum dular-
fullum manni, sem rannsóknardómarinn
Arnljótur Jónsson taldi sig þurfa að hafa
upp á. Geta menn af því markað hæfileika
dómarans og skerpu vitnanna, sem verið
er að styðjast við í þessu þokkalega máli.
Hér fer á eftir lýsingin:
„Maðurinn var þannig búinn, að hann var
í þunnri yfirhöfn, annaðhvort rykfrakka
eða þunnum súmarfrakka, og áferðin á efn-
inu ekki slétt. Efnið var að meiri hluta ljós-
ara, en í því var einnig dekkra með. Á höfð-
inu hafði maðurinn frekar ljós-blá-gráan
hatt. Um hálsinn hafði maðurinn ljósan
dúktrefil brugðinn í kross að framan yfir
hálslínið, og álítur vitnið að það hafi ekki
verið ull í þessum trefli. Maðurinn var
hærri en ég og þreknari, hakan á honum
var sterkleg og breiðleit, hann var ekki föl-
ur í andliti, hörundsliturinn í andlitinu var
jafn, hann skifti ekki litum og liturinn var
ljósbrúnleitur og ekki rjóður. Augun voru
grá, hörð, köld. Munnurinn var oft eins og
mjó lína þegar hann virtist vera að hugsa
sig um. Hann var skegglaus og húðin slétt,
og frekar var maðurinn feitlaginn í andliti.
Ég man ekki eftir háralitnum svo ég þori að
fara með það. Mér virtist andlitið sámsvara
sér vel. Málrómurinn var karlmannlegur,
ekki dimmur, og hann þurfti ekki að tala
hátt til að ég heyrði greinilega til hans. Ég
hygg eftir útlitinu að dæma, að maðurinn
hafi verið um þrítugt eða yfir þrítugt. Mað-
urinn gekk beinn í baki, en dálítið álútur
með höfuðið. Göngulagið var stillt og fall-
egt“.
Til hvers fitjar íhaldið upp á slíkum og
þvílíkum málum sem þessum?
Til þess að reyna að leiða athygli fólks
frá aðalatriðum, kjarna sjálfra málanna,
sem um er deilt.
Þetta er ryk í augu kjósendanna, enda
býr það svo um að „slík mál“ séu uppi um
hverjar kosningar.
Eymd þess og illur málstaður, lýsir sér
hvergi átakanlegar.
Pólitísk hólmganga.
Hinni dæmafáu ofsókn á Hermann Jón-
asson, sem íhaldið, með Magnúsi Guðmunds-
syni stendur fyrir, hefir nú verið svarað
mjög myndarlega. — Hermann Jónas-
son ætlar nú á opinberum og almennum
fundum í Skagafirði að leggja fyrir kjós-
endur M. G. sjálfs hans eigin feril í rétt-
árfarsstjórn þjóðarinnar.
M. G. veit um veilur sínar, vesalmennsku
og undirlægjuhátt við afbrotamenn lands-
ins, óstjórnina, fjársukkið heimildarlausa og
afglöp forn og ný. Honum er það áreiðan-
lega ekkert tilhlökkunarefni að eiga að
svara til þessara saka frammi fyrir kjós-
endum sínum.
Þetta er í rauninni hólmganga milli
tveggja stefna. Stefnu sem vill réttlæti, al-
menningshag, djarfhuga fraipsókn og um-
bætur; hinsvegar stefnu hins rotnandi í-
halds með misrétti og spillingu í óhófseyðslu
fárra en örbirgð almennings. 1 einu orði:
lífsskoðun Framsóknarmanna annarsvegar
en íhaldsins á hina hliðina.
Og Hermann Jónasson býður andstæðing
sínum fyllsta jafnrétti. Boð Hermanns er
í samræmi við drengskapartilfinningu í-
þróttamannsins. Leiksviðið hentar báðum.
M. G. hefir verið fulltrúi Skagfirðinga. Her-
mann er fæddur og uppalinn í Skagafirði.
Báðir hafa jafnan ræðutíma. Hér er ekki
neitt sem minnir á ódrenglyndi íhalds og
„bændavina“ um ræðutíma og fundarsköp.