Tíminn - 02.07.1934, Blaðsíða 2

Tíminn - 02.07.1934, Blaðsíða 2
116 T í M I I? N hegnt. Nú í vetur og vor hefir íhaldið gert 'aargþætt bandalag við illræmdan byltinga- | flokk. Aldrei hefir borgáralegur flokkur gert ! slíkt hneykslisbandalag. Afleiðingin er auð- sæ. Þroskaðir kjósendur sáu hættuna og fylktu sér undir merki þess flokks, sem harðast og einlægast berst fyrir því að út- rýma byltingarstefnum úr landinu. En það mikla átak, sem Framsóknarmenn þingmannaefni og kjósendur hafa nú gert í þessum kosningum, á auðvitað að marka spor í atvinnubaráttunni, skipulagning af- urðasölunnar er hið mesta áhugamál bænd- anna. Þeir eiga að fá auknar tekjur af fram- leiðslu sinni, án þess að varan hækki til neytenda. Unga fólkið á að fá tækifæri til heimilismyndunar, bæði til sveita og við sjó. Baráttan við atvinnuleysið, iðjuleysið og skortinn í bæjum og kaupstöðum áaðbyrja undir merki þekkingar og framsýni, en ekki með æðisgengnu byltingarbrölti. Framsóknarflokkurinn hefir sýnt lífsmátt sinn í þessum kosningum. Enginn flokkur hafði svo mörg mannvænleg þingmannsefni í boði. Enginn flokkur hafði slík stefnumál. Enginn jafn marga áhugasama kjósendur. Og enginn flokkur hefir unnið eins glæsi- legan sigur í þessum kosningum og hann. Þjóðin hefir enn einu sinni sýnt hvers hún metur umbætur Framsóknarflokksins og hvernig hún villl að áfram sé haldið. Hún hefir iíka sýnt hve hún fyrirlítur byltinga- skraf og ofbeldishótanir öfgaflokkanna. Framundan eru erfiðir tímar. En samein- aður vilji þúsunda manna um land allt, sem stælzt hefir og harðnað í kosningabarátt- unni, stendur á bak við- þá menn, sem Fram- sóknarkjósendur hafa trúað fyrir málstað sínum. Þessvegna munu þeir ganga glaðir og reifir að úrlausn þeirra verkefna, sem bíða. Flokksþing, fiokks' skipulag og kosn- íngaúrslit Framsóknarflokkurinn hefir boðað til og háð fjögur flokksþing. Hið fyrsta á Þingvöllum 1919. Hið næsta var kvatt saman í Reykjavík skömmu fyrir kosningar 1931, þegar ná- búaflokkarnir gjörðu bandalag um að gjör- breyta kjördæmaskipaninni. Á þessu flokks- þingi var í fyrsta sinn hafinn undirbúning- ur að skipulagi flokksins. Tr. Þ. hafði fyrir mörgum árum skrifaö merka grein um skipulag lýðræðisflokka, þar sem meginvaldið lægi í höndum kjós- enda, ekki aðeins á kjördegi heldur hvenær sem til þyrfti að taka. Þessu skipulagi hafði ekki verið komið á innan Framsóknarflokksins, enda var hið fyllsta samræmi milli starfa þingflokksins og vilja kjósendanna allt til þessa. Flokksþingið 1931 kaus fjóra menn í full- trúaráð, er ynni með þeim mönnum, er þingmennirnir kysu í stjórn flokksins, en fulltrúaráðinu var fengið fullt vald yíir einu #máli. Það skyldi geta kvatt saman flokksþing þegar þurfa þætti. Ennfremur voru ákvæði um það, að af þingmannahálfu skyldu ráðherrar flokksins sjálfkjörnir í miðstjórnina, ef flokkurinn færi með stjórn. Að afstöðnu þessu flokksþingi fóru fram alþingiskosningamar 1931 og hlaut þá Framsóknarflokkurinn meirihluta eða 23 þingmenn. En þessi sigur notaðist illa. — Undan- hald varð í aðalmálinu sem um var kosið, og ofan á bættist að gengið var til stjórn- armyndunar með höfuðandstæðingnum, í- haldsflokknum. Stjórn flokksins var veik, hún kvaddi lítt til funda og þá kom það sér vel að flokksþingið 1931 hafði búið svo um að full- trúaráðið gæti kvatt til flokksþings. Þetta var gjört, og áður en Alþingi lauk, var efnt til þriðja flokksþings Framsóknar- manna á útmánuðum 1933. Samgönguörðugleikar voru miklir, far- sóttir í landi, en samt varð sóknin á þetta flokksþing svo mikil, að mikið skorti á, að því nægði fundarsalur sá, sem því upphaf- lega hafði verið ætlaður. Á þessu flokksþingi var m. a. gengið frá því skipulagi á flokknum, sem tryggir það lil fullnustu, að kjósendur flokksins sjálfir hafi hið æðsta vald yfir málefnum hans. Kjósendurnir og flokksfélögin í kjördæm- unúm ráða til dæmis framboðum, flokksfé- lögin velja menn á flokksþing, sem ekki Framh. á 3. síðu. m Urslit kosninganna í einstökum kjör- dæmum Framh. af V síðu. Austur-Húnavatnssýsla: Kosningu hlaut: Jón Pálmason S með 454 atkv. Jón Jónsson B fékk 334. Hannes Pálsson F ' fékk 219. Jón Sigurðsson A 1 ; fékk 33. Erling Ellingsen K fékk 17 atkv. Skagaf jarðarsýsla: Kosnir voru: Sigfús Jónsson F. 911 (með hlutkesti milli hans og j Jóns Sigui'ðssonar). Magnús Guðmundsson S. 934 Aðrir fengu: Jón Sigurðsson S. 911 Steingrímur Steinþórsson 898 Magnús Gíslason B. 56 Pétur Jónsson A. 34 Kristinn Guðlaugsson A. 32 Pétur Laxdal K. 51 Elísabet Eiríksdóttir K. 47 Akureyri: Kosningu hlaut: Guðbrandur Isberg S með 921 atkv. Einar Olgeirs- j son K fékk 649. Árni Jóhanns- i son F fékk 336. Erl. Friðjóns- j son A fékk 248 atkv. Landlisti Bændafl. fékk 9 atkvæði. Ey jaf jarðarsýsla: Kosnir voru: Bernhaið Stefánsson F. 1319 Einar Árnason F. 1251 Aðrir fengu: Garðar Þorsteinsson S. 917 Einar Jónasson S. 905 Barði Guðmundsson A. 371 Halldór Friðjónsson A. 303 Stefán Stefánsson B. 348 Pétur Eggerz B. , 301 Gunnar Jóhannsson K. 262 Þóroddur Guðmundsson K. 237 Suður-Þingey jarsýsla: Kosinn var Jónas Jónsson F. 1090 Aðrir fengu: Kári Sigurjónsson S. 304 Aðalbjörn Pétursson K. 172 Hallgrímur Þorbergssop B. 95 Sigui’jón Friðjónsson A. 83 Jónas Jónsson fox-m. Fram- sóknarfl. er hinn eini af for- ystumönnum stjórnmálaflokk- anna í landinu, sem kosinn hefir verið á Alþing í kjör- dænxi. Hinir allir hafa ýmist fallið eða horfið frá framboði. En einn þeirra, Jón Baldvins- son, náði kosningu sem upp- bótarþingmaður. Norður-Þingey jarsýsla: Kosinn var: Gísli Guðmundsson F. 46-1 Aðrir fengu: Sveinn Benediktsson S. 298 Benjamín Sigvaldason A. 32 Ásgeir Blöndal K. 32 Jón Sigfússon B. 22 N orður-Múlasýsla: Kosnir voru: Páll Hermannsson F. 457 Páll Zóphoníasson F. 441 Aðrir fengu: Ámi Jónsson S. 385 Árni Vilhjálmsson S. 350 Halldór Stefánsson B. 254 Benedikt Gíslason B. 219 Skúli Þorsteinsson A. 64 Sigurður Ámason K. 42 Áki Jakobsson K. 38 Seyðisf jörður: Kosningu hlaut: Haraldur Guðmundsson A með 288 atkv. -f- 6 á landlista. Láras Jóhannesson S. fékk 215 +4 á landlista. Jón Rafnsson K fékk 26-f á landlista. Landlisti Bændafl. fékk 2 atkv. Landlisti Framsóknarfl. fékk 3 atkv. Suður-Múlasýsla: Kosnir voru: Eysteinn Jónsson F. 1062 Ingvar Pálmason F. 949 Aðrir fengu: Magnús Gíslason S. 679 Ámi Pálsson S. 603 Jónas Guðmundsson A. 566 j ólafur Þ. Kristjánsson A. 381 I Amfinnur Jónsson K. 141 Jens Figved K. 116 Sveinn Jónsson B. 84 ; Ásgeir L. Jónsson B. 49 j A.-Skaf taf ellssýsla: Kosinn var: Þorbergur Þorleifsson F. 299 Aðx-ir fengu: Pálmi Einarsson B. 155 Stefán Jónsson S. 96 Eiríkur Helgason A. 40 V.-Skaf taf ellssýsla: Kosinn var: Gísli Sveinsson S. 422 Aðrir fengu: Lárus Helgason B. 229 Guðgeir Jóhannsson F. 143 Óskar Sæmundsson A. 40 ; Rangárvallasýsla: Kosningu hlutu: Jón Ólafsson S með 856 atkv., og Pétur Magnússon S. með 850 atkv. — Sveinbjörn ; Högnason F fékk 836. Helgi j Jónasson F. fékk 808. Svafar j Guðmundsson B fékk 35. Lár- us Gíslason B fékk 34. Guðm. j Pétursson A fékk 34. Nikulás , Þórðarson U fékk 15 atkv. Véstmannæyjar: Kosningu hlaut: Jóhann Jósefsson S með 785 atkv. + 21 á landl. j Páll Þorbjarnarson A fékk 388 ; +10 á landlista. Isl. Högna- : son K fékk 301+3 á landl. Óskar Halldói'sson Þ fékk 64 i atkvæði. Landlisti Bændafl. fékk 3 átkvæði. Landlisti Framsóknarfl. fékk 18 atkvæði. Árnessýsla: Kosnir voru: Jörundur Brynjólfsson F. 891 Bjarni Bjarnason, F. 888 Aðrir fengu: Eiríkur Einarsson, S. 836 Liiðvík Nordal, S. 726 1 Magnús Torfason, B. 422 Sigurður Sigurðsson, B. 283 Ingimar Jónsson, A. 230- Jón Guðlaugsson, A. 168 Magnús Magnússon, K. 44 Gunnar Benediktsson, K 33 Gullbr.. og Kjósarsýsla: Kosinn var: Ólafur Thors S. 1240 Aðrir fengu: Sigfús Sigurhjartarson A. 309 Klemens Jónsson F. 187 Finnbogi Guðm.son Þ. 84 JJjörtur Helgason K. 48 j Jónas Björnsson B. 31 Haf narf jörður: Kosningu hlaut: Emil Jónsson A nxeð 1019 atkv. + 45 á landl. Þórleifur Jónsson S fékk 719+ 62 af landlista. Björn Bjarnar- son K fékk 30+1 á landlista. Landlisti Bændaflokks fékk 3 atkv. Landlisti FramsóknaxTlokks- ins fékk 7 atkv. Atkvæðatölur flokkanna eru nú sem hér segir: Framsóknarfl. 11310 Alþýðuflokkurinn 11223 Bændaflokkurinn 3195 Sjálfstæðisfl. 21924 Kommúnistafl. 3092 Þ j óðemissinnifl. 363 Utan flokka 506 ! Mstfiðm | til amiarra bjéða i j Meðan stóð á kosningabar- áttunni voru að gerast merki- leg tíðindi viðkomandi Islandi úti í löndum. Spánverjar til- kynntu öðrum þjóðum seint í vetur, að þeir myndu byrja með vorinu að takmarka inn- flutning á saltfiski frá öðrum þjóðum og binda innflutnings- leyfi við gagnkvæm skipti í landinu. Spánn er aðalnxarkaður ís- i lendinga fyrir stærstu útflutn- J ingsvöruna, saltfiskinn. Það er elzta og stærsta markaðs- landið. Sendinefnd fór til Spánar að freista að bjarga því sem bjargað yrði uixx sölumálin. Þegar hún kom til Madrid, voru þar fyi'ir seixdinefndir frá Dönunx, Norðmönnum og Englendingum. Allir vildu selja fisk, og allar þessar þjóð- ir höfðu betri aðstöðu en við. Englendingar höfðu á sinni könnu allan fiskinn frá Ný- fundnalandi og 100 íxxiljónir peseta meiri kaup á Spáni heldur en innflutningur frá Englandi þangað. Aðalkrafa Spánvei'ja til alli-a þjóða var í byi'jun hin forna í’egla: auga fyrir auga og tönn fyrir tönn. Þeir létu það al- mennt í ljós, að hver útlend þjóð yrði að kaupa jafnmikið af spönskum vörum eins og hún seldi þar af sinni fi'am- leiðslu. Ef þessi krafa hefði verið framkvæmd myndi það hafa verið rothögg á þjóðarbúskap íslendinga. Við höfum keypt vörar frá Spáni fyrir 1 krónu á sanxa tíma og þeir keyptu af okkur fyrir 22. Það má vitan- lega kaupa ýmsar nausynja- vörur á Spáni handa íslending- unx, en í heild sinni ei'u löndin of ólík og- öll lífsskilyrði til þess að Spánn geti orðið það land, sem býður okkur bezt kjör til innkaupa. íslendingar hafa fábreytta framleiðslu, en margbi'eyttar þarfir. Veðdeild- in, bankarnir, ríkið og einstök kaupsýslufyrirtæki hafa fengið peninga erlendis til margskon- ar þarfa. Vextir og afborganir af þessu fé eru árlega greiddir með peningum, sem koma fyr- ir útfluttar afurðir, og þá ekki sízt því sem kemur frá stærsta markaðinum, Spáni. Sem betur fer halda Spán- vei'jar ekki við þessa almennu frumkröfu gagnvart íslending- um/ Samningar eru fullgerðir, en ekki undirskrifaðir. Þeir minnka tilfinnanlega sölu þangað, en jafníramt má bú- ast við að verðið hækki. Mesta hættan er liðin hjá að þessu sinni,- og einhver hulinn verad- arkraftur hefir bjargað ís- lenzku þjóðinni um stund frá bersýnilegum voða. En víðar eru sker og hættulegar leiðir. Bæði á Ítalíu og Portúgal er lxætta á ferðum með markað- inn, og í Svíþjóð vex hin inn- leixda framleiðsla og þi'engir að bezta markaði íslendinga með þá vöru. Það eru.allar líkur til að verzlunar- og • viðskipta- málin muni gerbreytast á fá- einum missirum í það horf, sem engan myndi hafa grunað fyrirfram. J. J. Nýlátiim er hér i bænum Einar Pétursson timbursmiður, rúmlega íimmtugur. I-Iafði hann numið iðn sína erlendis og ferðast sem „sveii>n“ víða um Evrópu. Ilann var um mörg ár starfsmaður við Reykjavíkurhöfn. Helgi á Ketilstöðum Nýlega lézt á Dunkárbakka í Dölunx Helgi Guðmunds- son hreppstjóri frá Ketilstöð- um. Helgi var einn af þessum ranxmíslenzku sveitabændum, þéttur á velli og þéttur í lund, gestrisinn, traustur og sjálf- stæður. Var hann jafnan áhugamaður um landsmál og öruggur Framsóknarflokksmað- ur allt frá stofnun flokksins. Engin áhrif hafði það á hann í þeim efnum, þótt árin væru farin að verða mörg að baki. Hann var ætíð æskunxaður í anda og gekk því ekki í lið með hinpi „öldruðu sveit“ eins og svo nxörgum hættir við að gera þegar aldur færist yfir þá og lífsfjörið dvínar. Það er ánægjulegt að koma á sveitabæi, þar sem gest- i'isni góðra húsbænda „hlakk- ar og hlær“ á móti vegfarand- anum, en óvíða hefir sá, er þessar línur skrifar, komið, þar sem eins hefir verið ágætt að koma og til Helga bónda á Ketilsstöðum, konu hans og barna. Þar var íslenzkt sveitaheim- ili xxf beztu tegund. V. G. Fréttir Iunflutninguriim. Fyrstu fjóra mánuði ársins liefir innflutning- Urinn nunxið 13.1 millj. kr. Á sama tíma í fyrra var hann 10.3 milLj. kr. Dýravemdarinn, 3. tbl. yfir- standandi árg. er nýlega komið út. það flytur þýdda sögu, frá- sögn um dýravenidunarfélög bama og nokkur smáljóð. Skarlatsóttin. í maímánuði voru 122 skarlatssóttartilfelli á öllu iandinu. í Reykjavík einni voru þau 59, og vikunni 27. maí til 2. júní voru hér 18 skarlatssóttar- tiifelli. Kornrækt í Reykholti. Um 40 dagsláttur hafa verið afgirtar í Reykholti til kornræktar. Á að sá i 15 dagsláttur í vor og er þegar húið að sá i 12 þeirra. Síldarbræöslustöð á Seyðislirði.Á nýafstöðnum sýslufundi Norður- Múlasýslu var samþykkt að skora á ríkisstjórn og Alþingi að reisa sildarbræðsíustöð á Seyðisfirði. Skólaskýrsla Eiðaskóla fyrir vet- urinn 1932—33 hefir blaðinu ný- lega borizt. í eldri deild skólans þann vetur voru 5 nemndur og i yngri deild 19 nemendur. Höfðingleg gjöf. Samband ísl. samvinnufélaga hefir gefið tíu þúsund krónur til bágstadda lólksins á jarðskjálftasvæðinu. Konur presta halda fund á pingvölium í hyi’jun júlímánaðar, og aðalfundur Prestafélags ís- lands verður haldinn þar um sarna leyti. Danir eru svo sem kunnugt mikil landbúnaðarþjóð, 31,7% 'af þjóðinni heyrir landbúnaðinum til. Búpeningseign Dana er þessi: Svín........ 4.390.000 Nautgripir .. . 3.141.400 Hestar....... 496.000 Sauðfé ............. 192.657 Geitur........ 20.981 Kanínur...... 194.212 Hæns........ 26.953.000 Endur........ 690.583 Gæsir........ 332.535 Kalkúnhæns . .. 71.365 Bíflugnabúr . .. 94.027 Svfn, nautgripir og hæns eru hér talin samkv. skýrslum frá 1933. iiestar 1932, en. aðrar tölur eru miðaðar við árið 1929. gerð á Skagaströnd vinna nú um ítalskir formenjafræðingar, sem verið hafa við fornmenjagröft í grísk-rómversku fornborginni Teb Tunis, skamnxt sunnan við Kairo í Egyptaiandi, hafa rétt nýskeð fundið um 1 þúsund pergament- skjöl og handrit á grísku. þau voru í ágætu ásigkomulagi. Talið er að þau séu frá annari öld eftir Krist.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.