Tíminn - 14.08.1934, Blaðsíða 4
142
T í M I N N
A að láta nautgripi
liggja úti aðsumrinu?
Víða á landinu tíðkast að láta nautgripi
liggja úti að sumrinu. Öllum, sem það gera,
ber saman um það, að ungviðum sé það
gött, og betra en að vera hýst, en aftur
eru skoðanirnar með mjólkandi kýr nokkuð
skiptar.
Ég hefi alloít verið spurður að því hvort
mundi vera betra að hýsa mjólkurkýrnar
að sumrinu eða láta þær liggja úti. Og mér
heíir vafizt tunga um tönn, og ekki getað
gefið ákveðið svar. Það get ég nú ekki held-
ur gert enn. En nýlega er komin út skýrsla
um beitartilraunir, sem gerðar hafa verið
um fleiri ára skeið í Danmörku og þar hef-
ir þetta atriði meðal annara verið tekið til
athugunar.
Nú er það svo, að með mikilli varasemi
verður að nota niðurstöður, sem fengnar
eru við aðra staðhætti, en þó hygg ég samt,
að þær geti nokkuð hjálpað þeim bændum,
sem eru að velta þessu fyrir sér, til að átta
sig á hvort betra er, og því íinnst mér rétt
að skýra frá niðurstöðum þeirra.
Kýrnar hafa verið vegnar kvölds og
morgna í fjögur ár. Alltaf hafa þær verið
þyngri að kvöldinu en morgninum. Þær, sem
hafa verið hýstar, hafa vegið að kvöldinu
554 kg\, en að morgninum 513; en hinar,
sem úti hafa legið, hafa vegið 551 kg. að
kvöldi, en 533 að morgni. Útilegan hefir því
aukið morgunþungan um 20 kg., en ekki
minnkað kvöldþungan nema um 3 kg. Það
cr því bersýnilegt, að með útilegunni hafa
kýrnar tekið til sín meira fóður, bitið meira.
Meðan kýrnar voru hýstar var þeim allt-
af geíið með beitinni og ætlast til þess að
það væri nægilegt til þess að þær héldu á
nytinni. Þrátt fyrir það þá fóru kýmar allt-
ar að græða sig, þegar farið var að láta
þær liggja úti, og bendir það til þess að
þeim hafi varla verið gefið nægilega með,
næturbeitin verið meira virði en menn ætl-
uðu. Hér á landi er kúm yfirleitt ekki gefið
með beitinni að sumrinu. Er því ólíku sam-
an að jafna. Verður að hafa það í huga,
þegar ályktanir eru dregnar af dönsku til-
raununum.
Að meðaltali mjólkuðu kýrnar 0,19 kg.
meira fyrstu 4 dagana, sem þær lágu úti,
en síðustu 4 dagana, sem þær voru hýstar.
Þó var beitartíminn þá, alltaf 10 til 12
tímar.
Útilegan á nóttunni hefir því bæði sparað
um 2 kg. af fóðurbæti og gefið meiri mjólk.
Það er að minnsta kosti óhætt að slá því
föstu, að beitartíminn megi ekki vera stutt-
ur, ekki 8—9 tímar eins og dæmi eru til
hér á landi. Öðru lagi er óhætt að fullyrða,
að séu tök á því, að mjólka kýmar úti að
kvöldinu, og látaj þær ekki inn fyr en um
seinan háttatíma, þá er alveg sjálfsagt að
gera það. Þetta virðist mér hvorutveggja
augljóst eftir tilraununum.
Þegar nú hver einstakur fer að reyna að
átta sig á því hjá sér, hvort haxm eigi að
láta sínar kýr liggja úti eða hýsa þær að
nóttunni, þá þarf han að athuga margt.
Hann þarf að athuga veðurfarið. í illviðra-
sömum sveitum og veðurblíðusveitum eru
staðhættirnir sitt hvað. Hann þarf að at-
huga, hvort haglendið er skjólasamt eða
ekki, því það hefir mikið að segja. Hann
þarf að athuga, hvort haglendið er loðið
eða ekki, því það hefir áhrif á hve fljótt
kýrin fyllir sig. Hann þarf að athuga, hvort
langt þarf að sækja kýmar að morgninum
eða ekki, og hvað það kostar. Hann þarf að
athuga hve mikils hann missir í við áburð-
inn, sem tapast o. m. fl.
Eftir þessu öllu verður hann svo að reyna
að gera sér ljóst, hvort hann á heldur að
gera að hýsa kýrnar eða láta þær liggja úti,
en séu þær hýstar á að reyna að hafa
beitartímann sem lengstan. P. Z.
Gísli SigurbjörnssoD
Söðlasmiðnr.
Laugavegi 72. — Sími: 2099
ainíðar reiðtygi fyrir konur,
karlmenn, telpur og drengi.
Beisli, töskur og ólar, aktygi
o. fl. — Vönduð vinna og efni.
Mjög lágt verð. Vörur afgreidd-
ar út um land.
Ritstjóri: Gísli Guðmundsson.
Prentsmiðjan Acta 1934
Trúlofunarhrisigar
ávallt fyrirliggjandi
Haraldor Hagan
Austurstr 3
Sími 3890
Kolaverzlun
SIQURÐAR ÓLAFSSONAR
Símn.: KOL. Reykjavlk. Sími 1933.
Seitdid
oss nafn yðar og heim-
ilisfang og við sendum
yður ókeypis sýnishorn
af Vikurltinu og Sögu-
saíninu.
Vikuritiö,
Reykj&vik.
TRYGGINGU
hafa menn fyrir að fá góðar
vörur með góðu verði, með því
að verzla við
Kaupfélag Reykjavíkur.
Ný tegund vátrygginga.
vátrvííflM
Vátrygging þessi bætir yður það óbeina tjón, sem
þér verðið fyrir þá, er bruna ber að höndum.
Nauðsynleg fyrir allap verzlanir, verksmiðjup og
iðnfyrirfæki, sem gela sföðvasl um lengri eða skemri
ííma þá er bruni verður, viðskiftaveltan minkar,
ágóðinn minkar eða hverfur alveg, en margir kostn-
aðarliðir (t. d. laun fastra starfsmanna) haldast óbreyttir
Leitið nánari upplýsinga hjá oss nm þessa nauðsyn-
legu vátryggingu.
Sjóvátryggingarfélag Islands h. f.
Brun&deild.
Eimskip, 2. hæð.
Sírni: 1700
BEZTU CIGARETTURNAR í 20 Btk.
PÖKKUM, SEM KOSTA
kr. 1.20
— ERU
C 0 M M n fl B [ R
WESTMINSTER.
VIRGINIA.
CIOARETTUR
Þessi ágæta cigarettutegund fæst ávalt
í heildsölu hjá
TÓBAKSEINKASÖLU RÍKISINS
Búnar til af
Westminster Tobaoeo Oempany Ltd.
LONDON.
Ull * Ull
I sumarkauptíðinni þurfa bændur að ráða við sig
hvernig þeim verður ullin notadrýgst.
Klæðaverksmiðjan Gefjun,
Akureyri
framleiðir beztu ullarvörur, sem fáanlegar eru hér á
landi, af þvi hún notar eingöngu úrvalsull. Allskonar fata-
dúkar, band og lopi alltaf fyrirliggjandi hjá verksmiðj-
unni og flestum umboðsmönnum hennar út um land.
í Reykjavík er alltaf hægt að fá vörur verksmiðj-
unnar í Gefjunarútsölunni á Laugaveg 10.
Tökum ull við háu verðl uppi vinnulaun, og I skiftum
fyrir vörur.
Spyrjið um ullarverðið hjá umboðsmönnum.
Klæðaverksm. Gefjun.
P. I. Jacobsen & Son
Timburverzlun
Símnefni: Granfuru.
Stofnoö 1824.
Carl Lundsgade Kðbenhavn.
Afgreiðum frá Kaupmanntihöfn bæði stórar og litlar pantanir og
heila akipsfarma frá Svíþjóð. — Sís og umboðssalar annast pantanir.
EIK OG EFNI í ÞILFAR TIL SKIPA.
fbrá
á Laugarvatni starfar frá 1. okt. til júníloka. Hann
tekur til náms kormr og karla, sem húa sig undir
íþróttakennslu og er námið bæði bóklegt og verklegt.
Mest áherzla er lögð á fimleika og sund.
Vegna fjarveru minnar eru umsækjendur beðnir að
snúa sér til skólastjóra Bjarna Bjarnasonar á Laugar-
vatni, sem gefur nánari upplýsingar. Umsóknir þurfa
að vera komnar fyrir miðjan september.
Björn Jdkobsson.
si
Lækjartorgi 1 Sími 4260
Forstjóri: Jón Ol&tsson
Býður vður hagkvæmar líftryggingar. —
Spyrjist fyrir um ýmsar líftryggingar á
skrifstofu félagsins eða bjú tryggingamanni
þess
Kristjáni Péturssyni
Vegturgötn 67
^SOSOSOilíCö)
John Inglish <s Sons
Millers,
Leith Edinburgh 6.
Vörur vorar eru alþektar á Islandi FYRIR GÆÐI:
INGLISH — blandað hænsnafóður.
INGLISH — alifuglafóður.
INGLISH — maísmjöl.
INGLISH — maís kurlaður og fleiri fóðurvörur.
Alt í „Blue Star“-sekkjum.
Pantanir annast.
Saœband isl. Samvinnnfílaga.
FREYJil kaffibæiisduftii
— nýtilbúið — inniheldur aðeins ilmandi kaffibæti, ekkert vatn
eða önnur efni til uppfyllingar. Þess vegna er Freyju kaffibætis-
duftið drýgst, heilnæmast og bezt. Og þó er það ódýrara en kaffi-
bæti í stöngum.
Notið það bezta, sem unnið er í landinu