Tíminn - 21.08.1934, Page 3
T í M I N N
145
Fréttir
ÞjóðaratkvæSagreiðsla fór fram
i pýzkalandi sl. sunnudag um
það, livort sameina skyldi forseta-
og lcanzlaraembættið eftir dauða
Hindenburgs og Hitler gegna
hvorutveggja. Já sögðu 38 miij.
280 þús. Nei sögðu 4 milj. 275
þús. Ógild atkvæði 869 þús. Virð-
ist fylgi Hitlers fara rénandi,
eftir mótatkvæðafjöldanum nú að
dæma, samanborið við næstsíð-
ustu þjóðaratkvæðagreiðslu, er
fram fór undir stjórn Nazista.
ping vallaprestakall. Kirkju-
mólaráðherra liefir ókveðið, að
pingvallaprestakall verði ekki
veitt. Er því afturkölluð auglýs-
ing, sem búið var að birta um
prestakallið.
í kjötverðlagsnefndina hafa nú
verið skipaðir: Jón ívarson for-
maður útnefndur af ríkisstjórn-
inni, Jón Árnason framkvæmda-
stjóri tilnefndur af . Samb. ísl.
samvinnufélaga, Helgi Bergs for-
stjóri tilnefndur af Slóturfélagi
Suðurlands og Kaupfélagi Borg-
firðinga, Ingimar Jónsson skóla-
stjóri tilnefndur af Alþýðusam-
handi íslands og porleifur Gunn-
arsson bókbindari tilnefndur af
Iðnsambandi íslands. Nefndin hef-
ir ákveðið að umsóknir um slátr-
unarleyfi skuli vera komnar fyr-
ii 25. þ. m.
Norsk hvalveiðaskip hafa verið
nú um tveggja vikna tíma 5 að
tölu úti í Faxaflóa að veið-
um. Segja hvalfangararnir að all-
mikið sé af hval SV af Reykja-
nesi. Hafa þeir aflað milli 30—40
iivali.
100 ára almæli átti 17. þ. m. Ól-
iit'ur Árnason í Akurey í Land-
eyjum, áður bóndi í Bakka í
pykkvabæ. Hann hefir borið ald-
urinn svo vel, að hann gekk að
slætti fram að níræðu og hefir
haldið fullum líkams- og sálar-
kröftum fram á síðustu ár.
Dánarfregn írá Vesturheimi. 11.
júní s. 1. lézt ekkjan Jakobína
Jónasdóttir Jónsson 79 ára að
aldri. Hún var fædd og alin upp
í Mývatnssveit, dóttir Jónasar
Jónssonar og pórnýjar pórsteins-
dóttur frá Reykjahlíð.
Pálmi Loftsson forstjóri fór til
útlanda í fyrradag og dvelur er-
lendis fram í miðjan næsta mán-
uð.
Kjötverðlagsneíndin hefir skrif-
stofu í Fiskifélagshúsinu. Sími
4767.
Sildveiðin. Allmikil bræðslusíld
liefir komið til Siglufjarðar síð-
ustu daga. Síld er mest við Tjör-
nes. Einnig er síld sögð við
Húnaflóa og á Skagafirði. Norð-
austan stormur var í gær á
Siglufirði og engin veiði. Ríkis-
verksmiðjumar hafa nú tekið á
móti 169500 málum samtals ,eða
10600 meira en um sama leyti i
fyrra. — Verksmiðjuhúsinu nýja
á Siglufirði miðar vel áfram. Auk
verksmiðjuhússins er byrjað á
smíði nýrrar mjölskemmu 55X25
metra að stærð. Einnig er í smíð-
um stór smiðja fyrir verksmiðj-
urnar. — Uppfyllingu smábáta-
liafnar á Siglufirði er nú að
mestu lokið, og hafa verið gerðar
miklar uppfyllingar til mikjls
þrifnaðar og bæjarprýði. Mokst-
ursskipin Mary og Ida hafa
starfað að uppfyllingum þessum.
Arni Friðriksson fiskifræðingur
er nýfarinn frá Siglufirði, en þar
hefir hann starfað við síldarrann-
sóknir undanfarið. Hann telur
síldina stærri nú en undanfarið,
og minna af millisíld saman við
liafsildina nú en áður.
Raíveituneind Siglufjarðar hef-
ir ráðið um tíma Gunnar Snorra-
son til þess að deyfa útvarps-
truflanir á Siglufirði.
Bæjarstjómin á ísafirði hefir
nýlega samþykkt að skora á ríkis-
stjórnina að víkja bæjarstjóran-
um frá störfum og hefir stjórninni
verið send áskorun. Hefir tveim
úr bæjarstjórninni verið falið að
bera fram kröíur þessar við
stjórnina. Orsök þess mun vera
sú, að meiri hluti bæjarstjómar
telur að Jón Auðunn Jónsson
bæjarstjóri hafi misnotað og marg-
brotið erindisbréf sitt frá því
hann náði kosningu sem bæjar-
sjtóri á nasstliðnum vetri.
Tapast heflr foli
5 v., dökkrauður með stjörnu
í enni og rák úr stjörnu niður-
undir nasir, vákur. Mark:
sýlt og blaðstýft, óvíst hvernig
stendur.
Þeir, sem verða kynnu varir
við folann eru vinsamlega
beðnir að láta vita á símstöð-
ina í Grindavík.
Refatóðnr
Nú og framvegis hefi ég til
mjölblönduna „Vitafisk“ og
„Joð“ bætiefni.
Einnig alltaf birgur af alls-
konar unga og alifugla fóðri.
Vörur sendar gegn póst-
kröfu.
RETKID
J. GRUNO’S
ágæta holenzka reyktóbak
VERÐ:
AROMATISCHER SIIAG kostar kr. 0,90 i/20 kg.
FEINRIECIIENDER SHAG — — 0,95----
Fæst í öllum verzlunum
T- W. Bmclm
(Litaamiðia Bnchs)
Tietgensdáge 64. Köbenhavn B.
LITIR TIL HEIMALITUNAR:
Demantssorti, hrafnsvart, kastorsorti, Parisarsorti og
allir litir, fallegir og sterkir.
Mælum með Nuralin-lit, á ull og baðmull og silki.
TIL HEIMANOTKUNAR:
Gerduft „Fermenta** 1 og og „Evolin11 eggjaduft, áfengis-
lausir ávaxtadropar, soya, matarlitir, „Sun“-skósvert-
an, ,,ökonom“-skósvertan, sjálfvinnandi þvottaefnið
„Persil11, ,,Henko“-blæsódinn, ,,Dixin“-sápuduftið,
„Ata“-skúriduftið, kryddvörur, blámi, skilvinduolía
o. fl.
Brúnspónn.
LITVÖRUR:
Anilinlitir, Catechu, blásteinn, brúnspónslitir.
GLJÁLAKK:
„Unicum11 á gólf og húsgögn. Þornar vel. Ágæt tegund.
HOLLENSKT EXPORT KAFFI-SURROAT:
Bezta tegund, hreint kaffibragð og ilmur.
Fæst aUstaðar á Islandi
l-lllll
skilvindurnar eru ætíð
þær bestu og sterkustu,
sem fáanlegar eru Nýj-
asta gerðin er með
algerlega sjálfvirkri
smurningu, og skálar
og skilkarl úr riðfríu
efni.
Samðand
isl.
samviimufélaga.
P^bækjartorgi 1 Sfmi 4250
Forstjóri: Jón Ol&ísson
Býður yður hagkvæmar liftryggingar. —
Spyrjist fyrir um ýmsar líftryggingar á
skrifstofu félagsins eða hjá tryggingamanni
þess
Kristjáni Féturssyni
Yestnrgötn 67 Sfml i 1 6 0
Páll Hallbjörns
Sími 3448. Laugaveg 55.
Fríða Stelánsdóttir úr Ólafsvík
nú sundkennari . við gistihúsið á
Laugarvatni synti nýlega yfir
þvert Laugarvatn frá leikfimis-
húsinu og yíir að Útey. pað mun
vera rúmir 2 km. — Fríða tók
kennarapróf s. 1. vor í íþrótta-
skóla Björns Jakobssonar á Laug-
arvatni.
Sögufélagsbækumar fyrir 1934
cru nýkomnar út. Eru það fram-
iialdshefti af hinum góðkunnu
fræðibókum er félagið hefir verið
að gefa út, neínilega Alþingis-
bækur íslands, Landsyfiréttar- og
Hæstaréttardómar, pjóðsögur Jóns
Árnasonar, svo og Blanda og
skýrsla félagsins.
Ársskýrsla Rauða kross íslands
fyrir árið 1933 hefir blaðinu verið
send. Aðalfundur félagsins var
haldinn 18. júní sl. og lagði for-
maður fél., dr. Gunnl. Claessen,
þá fram skýrslu þess. í ársbyrjun
voru í sjóði kr, 23.701.65. Tekjur
voru á árinu kr. 10.946,84, en gjöld
kr. 8.451.34. í árslok voru eignir
félagsins kr. 26.197.15. par að auki
á félagið blaðið „Unga ísland" og
var kaupverð þess, er það var
keypf 1932, kr. 3000.00. Ennfremur
átti félagið sjúkrabifreið, nokkuð
af hjúkrunargögnum og fleira
smávegis. Félagatala var í árslok
669.. — Félagið hefir helgað sér
öskudaginn til merkjasölu, en að
þessu sinni mistókst hún og kom
lítið inn — Sjúkrabifreið félagsins
i Reykjavík flutti á árinu 455
sjúklinga og sjúkrabifreiðin á Ak-
ureyri 127. Hefir því félagið ann-
ast flutning á nær 600 sjúkl., sumra
inikið veikra og oft um langan veg.
Fjögur námskeið í hjúkrun og
lijálp i viðlögum hefir félagið
haldið síðastl. ár og sóttu það 112
manns. Ennfr. stundaði ungfrú
Sigr. Backmann sjómannahjúkrun
í Sandgerði á vetrarvertíðinni og
gerði hún alls 786 hjúkrunarað-
gerðir á hjúkrunarstofunni og fór
í 170 sjúkravitjanir í sjóbúðir og
á næstu bæi. Félagið hefir deild
á Akureyri er telur 110 félaga
Sig. Skagfield söngvari er nú
kominn hingað til lands eftir
langa útivist. Hefir hann dvalið
undanfarin ár í Canada og sungið
þar viðsvegar um landið, m. a.
í Vancouver, Saskaton, Winnipeg,
Montreal og víðar. Hann dvaldi
langvistum i klaustri i Vestur-Can-
ada og nam þar ensku. Hann kom
við í London á heimleiðinni og
ei ráðinn frá næstu mánaðamót-
um til að syngja þar á ýmsum
leikhúsum fram á næsta sumar.
Eru samningar þegar gjörðir um
það. í Vesturheimi lagði Sigui-ður
sérstiiklega stund á þjóðlög Indí-
ána.
Óvenjuleg brunaorsök. í fyrra
mánuði geysaði eldur í Konstan-
tinopel og brunnu um 50 hús áður
( en hánn varð slökktur. Orsökin
til brunans var nokkuð óvenjuleg.
Maður nokkur hafði tekið eftir
höggormi í svefnherbergi sínu og
greip til þess örþrifaráðs, að hella
j yfir hann benzini og kveikti síð-
■ an i. Eldur varð strax svo mikill,
að hann réði ekki við neitt og af-
leiðingamar urðu þær, sem áður
er sagt frá.
Bókabann í JJýzkalandi. Nýskeð
var auglýst bann í pýzkalandi á
hinní merku nýútkomnu bók
„Will War Come in Europe",
eftir ameríska rithöf. H. R.
Knickerbocker. Einnig hafa verið
gerðar upptækar allar þýzkar |
þýðingar á verkum Uptons Sin-
clair.
Auk þessa hefir nýskeð verið
sett bann á ýms erlend blöð, s. s.
ensk, ungversk og checkoslovak-
| isk blöð.
Starfsöm stjórn
Undanfarin prjú ár hefir mikil kreppa
gengið yfir löndin. Hún heíir náð mikið til
Isiendinga. En þar að auki hefir þjóðin haft
sína eigin heimakreppu. Umbótaílokkurinn
rnesti í landinu hefir verið lamaður af
sambýli við íhaldið. . Kyrstöðumennimir
hafa lagt sína köldu hönd á málefni lands
og þjóðai'.
Þessu fargi var hrundið af landinu 24.
júní s. 1. Síðan þá hefir skift um vinnu-
bi'ögð í landinu. I stað svefns og aðgerða-
leysis hefir komið fjör og; manndómur í
þ j Óðlífið.
Síðan urn stjórnarskiptin hefir rignt lög-
um, sem miðuð eni við það, að rétta við
lífsbaráttvi hinna vinnandi stétta. Það hafa
\erið gefin út bráðabirgðalög um skipulag
á sölu léttsaltaðrar síldar, eftir ósk fram-
leiðandanna, sem flestir eru íhaldsmenn. í
aðalatriðum er þar vafalaust stefnt í rétta
átt, en vafasamt er að þeir síldarspeku-
lantar sumir hverjir, sem þar standa að,
séu menn til að vinna fyrir almennings-
heill. Yfirleitt spáir það sjaldan góðu með
þvílíkar framkvæmdir, þegar Mbl. lýsir á-
nægju yfir fyrirtækinu. En sjálfsagt standa
síldarlögin til bóta.
Framsóknarráðherrarnir hafa líka starf-
að að bráðabirgðalögum. Eysteinn Jónsson
hefir lagað þann ágalla Kreppulánasjóðs,
sem auðveldast var að fást við. Pétur
Magnússon, Þorsteinn Briem og Jón í Dal
hafa sjálfsagt brúkað allt sitt vit við
kreppusjóðinn. En það reyndist ekki meira
en svo, að vextir og afborganir á hjálpar-
iánurn bændanna gátu oft orðið 6þ^%
fyrstu árin og jafnvel meira. Allir sjá hve
heppileg slík vaxtakjör voru. En „bænda-
vinirnir11, sem voru svo óheppnir að gera
Jiessi lög, treystust ekld til að laga þau.
Það beið þessvegna eftir' Eysteini Jónssyni
að höggva af bændum. þennan vaxtafjötur,
og hann hefir gert það fljótt og vel.
Þá lét Ilermann Jónasson fljótt til sín
taka kjötsöluna. Framsóknarflokkurinn
hefir unnið að þeirri - löggjöf í heilt ár.
Nú er hún komin í framkvæmd. Einn af
þekktustu kaupfélagsstjórum landsins, Jón
ívarsson, tekur að sér forustu um fram-
kvæmd málsins.- Það verða vafalaust marg-
ír erfiðleikar við lausn þess máls, en það
verður leyst, og engin trygging er betri í
því efni, en sú, að allir þeir menn í sam-
vinnufélögum landsins, sem mesta reynslu
og þekkingu hafa í þeim efnum, vinna að
því að tryggja bændastétt landsins fastan
og öruggan rnarkað fyrir helztu framleiðslu-
\öru landbúnaðarins.
Menn búast við að næstu daga komi
bráðabirgðalög um mjólkursöluna. Tak-
markið er hið sama og með kjötsöluna, að
try ggj a neytendum og framleiðendum
réttlát og heppileg viðskipti.
Hið nýkosna þing fær mörg mikilsverð
atvinnumál til meðferðar. íhaldið hefir
skilið við hag þjóðarinnar í rústum. Alls-
staðar þarf átök, mikla vinnu, mikla fram-
sýni og ráðdeild í úrræðum. Kjósendur um-
bótaflokkanna hafa ástæðu til að fagna því,
að þó að víða á landinu hafi rignt of- mik-
ið um sláttinri, þá hefir lagaregnið bætt úr
nokkru af erfiðleikum þeim, sem þjóðin
hefir átt við að búa. J. J.
Ivjötveröið á heimsmarkaðinum.
Síðasta „Framsókn11 er með bollalegging-
ar um það, að kjötverð muni vera hækkandi
á heimsmarkaðnum og muni það hafa áhrif
á innanlandsmarkaðinn hér. Er helzt • að
skilja, að þarna sé verið að taka undir með
hinum íhaldsblöðunum um það, að skipu-
lagning afurðasölunnar sé óþörf og að „líf-
ið eigi að hafa sinn gang“ viðkomandi af-
urðaverði landbúnaðarins.
Það er rétt, að í sumuní erlendum fregn-
um er gert ráð fyrir hækkandi kjötverði í
sambandi við kornuppskerubrest í Ameríku.
En ýmislegk bendir líka á það, að slátrun
muni verða mikil í sumum löndum vegna
íóðurskorts í haust. Myndi það hafa áhrif
til lækkunar.
En sannleikurinn er sá, að jafnvel þótt
kjötverðið færi hækkandi á heimsmarkaðn-
um, þá skiptir það ekki neinu máli nemá
fyrir þann hluta ísl. kjötsins, sem hægt er
að flytja út. En á útflutningnum eru eins
og allir vita ákveðnar takmarkanir. Hækk-
andi verð á heimsmarkaðnum getur því ekki
bjargað við verðinu á þeim 2/3 kjötsins,
sem selt er innanlands. Til þess þarf lög-
gjöf, sem hindrar óeðlileg undirboð.