Tíminn - 21.08.1934, Qupperneq 4
146
T í M I N N
Bánaðarfélagið og
sölufélög bænda
Vissu blaði hér í bæ, sem sjálfu finnst
að það sé málsvari bændanna, finnst það
fyrn mikil, að Búnaðarfélag Islands skuJi
ekki hafa verið látið tilnefna fulltrúa bænd-
anna í ket-nefndina. Því finnst Búnaðarfé-
lagið hafa verið einhver „hornreka“ og
„olbogabarn“ og séu „bændur 1 andsins
sameinaðir í því“.
Ekki veit ég hvort sá, er orð hefir fyrir
þeim, er að því blaði standa, er yfir-
borðsgutlai-i, sem enga hugsun nennir að
hugsa til enda, og ekkert mál að skoða nið-
ur í kjölinn, eða hann er leikinn loddari, og
]>á sérstaklega æfður í því að segja mönn-
um hálfan sannleika og láta hann þar með
verða að lygi, en ég býst við hinu fyrra,
því letin er oft fylgifiskur þeirra, sem mik-
il hirða launin fyrir lítið verk.
Sannleikurinn er nú sá um Búnaðarfé-
lag íslands, að um félaga þess hefir ekki
bii'zt skrá síðan 1920. Enginn utan við get-
ur því sagt hve félagar þess eru margir, og
það skyldi vera að stjórnin vissi það?
En svo skiftir það nú ekki miklu máli í
þessu sambandi, því þeir sem eru félagar
þess, hafa í engu álirif á gang mála félags-
ins nú orðið, og öðlast ekki önnur réttindi
en þau, við að greiða sitt 10 kr. inntöku-
gjald til félagsins, að þeir fá Búnaðarritið
alla sína æfi. Annars er félaginu jafnskilt
að gefa félögum og ekki félögum leiðbein-
ingar, engir fundir eru haldnir fyrir. félags-
. menn, félagsmenn hafa ekki rétt til að
hafa áhrif á kosningu til Búnaðarþings,
frekar en ekki félagar, og sem sagt, félag-
arnir eru algerlega óvirkir í félaginu.
Aftur má segja, að nýtt Búnaðarfélag
sé byggt upp af hreppabúnaðarfélögunum.
Þau kjósa fulltrúa á Búnaðarsambandsfund-
ina, en á þeim eru aftur kosnir fulltrúar á
Búnaðarþing og það á að ráða mestu um
gang mála hjá Búnaðarfélagi Islands.
Með lögum eru allir bændur, sem gera
jarðabætur látnir vera í hreppabúnaðar-
félögunum. Og tala jarðabótamanna er um
4800. Af þeim eru þó um 800, sem ekki
eru bændur heldur menn í kaupstöðum og
sjávarþorpum (sbr. Pálma Einarsson).
Bændur landsins eru yfir 6000. Það er því
mest hægt að segja að 2/3 af bændum
landsins standi bak við fulltrúa sem kosinn
væri af Búnaðarfélagi Islands.
En kjötnefndinni er nú sérstaklega ætlað
að vinna fyrir sauðfjáreigendur landsins og
kjötneytendur. Nú eiga fleiri sauðfé en
bændur (víða margir á einu og sama heim-
ili). Sauðfjáreigendur munu vera um
13000, eftir því sem ráðunautur Búnaðar-
félags íslands í sauðfjárrækt hefir tjáð
þeim er þetta ritar. Af þeim telur hann þó
að um 3000 slátri ekki sauðfé til sölu. Það
eru því um 10000 sauðfjáreigendur, sem |
þyrftu að standa á bak við þá fulltrúa, sem |
áttu að fara í kjötnefndina. I Sambandi ís- 1
lenzkra samvinnufélaga, Kaupfélagi Borg-
firðinga og Sláturfélagi Suðurlands eru yfir !
90% af þessum 10000 sauðfjáreigendum,
sem slátra sauðfé til sölu að haustinu. Og
blaðinu, sem um þetta var að skrifa, finnst
það miklu réttara að láta Búnaðarfélag Is-
lands, sem ekki er sölufélag, og sem ekki
er í helmingurinn af þeim, sem eiga kjöt-
skrokka, sem selja þarf að haustinu, til-
nefna fulltrúann, sem sæi hag þeirra borgið,
en, að láta félögin sem 90% af kjötfram-
leiðendunum eru í, kjósa þá.
I-Ivort fin-nst nú þeim manni réttara, sem
nennir að hugsa um málið? Og hvort var
eðlilegra? Ég geri ráð fyrir því, að hver
sem hugsar um þetta, viðurkenni að fleipur
hins ímyndaða fulltrúa bændanna, sem um
þetta hefir verið að skrifa, er staðleysa ein.
Fulltrúar í nefndina áttu að koma frá þeim
félagsskap, sem sameinaði fles^i kjötfram-
leiðendur, en ekki þeim er sameinaði flesta
jarðabótamenn.
Um hitt má svo deila, hvert rétt hafi
verið að láta kjötneytendur hafa 2 af 5
nefndarmönnum, en mér finnst að það hafi
í alla staði verið eðlileg krafa frá hendi
kjötneytenda, og rétt að verða við henni.
Búnaðarþingsmaður.
Ritstjóri: Gísli Guðmundsson.
4
Roykjnvik. Simi 1249 (3 llnur)
Símnefni: Sláturfélag.
ÁskurOur (é brauO) ávalt
fyrirliggjandi:
Hoiígibjúgu(Spegep.)nr.l, glld
Do. — 2, —
Do. — 2, mjð
Sauöa-Hangibjúgu, gild,
Do. nijó,
SoÖnar Svína-rullupylaur,
Do. Kálfarullu-pylsur,
Do. Sauöa-rullupylsur,
Do. Mosaikpyisur,
Do. Malakofípylsur,
Do. Mortadelpylsur,
Do. Skinkupylsur.
Do. Hamborgarpylsur,
Do. Kjðtpylsur,
Do. Lifrarpylsur,
Do. Lyonpylsur,
Do. Cervelntpylsur.
Vörur þcssnr cru allar
búnar til á eigln vinnustofu,
og standast — aO dómi ncyt-
enda — aamanburO viö
samskonar erlend&r.
Varöakrár sendar, og pant-
anlr afgreiddar um allt l&nd.
Smásöluverð
á eftirtöldum teýundum af cigarettum er:
COMMANDER
ELEPHANT
MAY BLOSSOM
PLAYERS
DO.
DE RESZKE VIRGINA
CRAVEN A
CAPSTAN
WESTMINSTER TURIv. A.A
TEOFaNI
SOUSSA
MELACHRINO nr. 25
DERBY
PAPASTRATOS
20 stk. pk. kr. 1,20
10 — . — . - 0,60
20 — — — 1,30
10 — — - 0,85
20 — — — 1,60
20 — — - 1,30
10 - — — 0,80
10 — — — 0,85
10 — — — 0,75
20 - — — 1,35
20 — — — 1,35
20 - — __ 1,35
10 — — — 1,00
20 — — _ 1,50
Auk þess er verziunum utan Reykjavíkur og
Hafnarfjarðar leyfilegí að leggja á allt að 3°|0 að
auki fyrír flutningskostnaði.
Reykjavík, 13. ág'úst 1934
Tobakseínkasala Riikisins
Kolaverzlun
SIGURÐAR ÓLAFSSONAR
Síinn.: KOI.. Rcvkjnvik. Sími 1933.
Happdrætti
Háskóla Islands
Endurnýjuh tíl 7. fl. er byrjuð.
Vinningar i 7. flokki eru 400,
aamtals kr. 83,400,oo.
Endurnýjunarverð fjórðungsmiða kr. 1,50
Söluverð fjórðungsmiða kr. 10,50.
Dregið verður í 7. flokki 10. september.
Vinningar í 6. fl. verða greiddir á skrifstofu
happdrættisins í Vonarstræti 4, eftir 20. þ. m.
Vinningsmiðarnir skulu vera áritaðir af um-
boðsmanni happdrættisins.
s Co. 11
Tilkynning
frá Kjöiverðlags n efn d
Samkv. bráðabirgðalögum 9. þessa mán. um ráðstafanir til
þess að greiða fyrir viðskiptum nieð sláturfjárafurðir og á-
kveða verðlag á ])eim, má enginn slátra sauðfé til sölu né
verzla með kjöt af því í heildsölu án leyfis kjötverðlagsnefndar.
Umsóknir um leyfi þessi verða að vera komnar til kjötverð-
lagsnefndar fyrir 25. þessa mánaðar. I umsókn urn slátrunar-
leyfi skal taka fram sláturfjártöln, verkunaraðferð kjötsins,
hversu mikið er ætlað af því til útflutnings, og hve mikið til
sölu innanlands, svo og hversu mörgu fé umsækjandi slátraði
síðasta ár, og hvernig kjötinu þá var ráðstafað.
Jafnframt séu send skilríki uin að sláturhús þau, sem slátr-
un á að fara fram í fullnægi ákvæðum gildandi laga og reglu-
gerða.
Reykjavík, 17. ágúst 1934.
Swa.niield Flour Mills
Ediuhurg 6
Eftirtaldar vörur vorar eru alþekktar á íslandi:
HVEITI HEKLA,
HVEITI MORNING STAR,
MAÍSMJÖL FÍNMALAÐ,
MAÍSFLÖGUR SOÐNAR,
ásamt fleiri kom- og fóðurvörum. — Sendið pantanir yðar til
Samband ísl- samvínnufélaga
HAVNEM0LIEN
KAUPMANNAH0FN
mælir með sínu alviðurkennda RÚGMJÖLI OG H V E ITI
Meiri vörugæði ófáanleg
S.I.S. skiptir eingöngu við okkur.
Kjöivevðlagsnefrtdin.
INDIA TYRES
ERU BEZTU BÍLADEKKIN.
Notið India bíladekk og þér verðið ávalt ánægðir.
SMDm,
ISUPER TYRES
INDIA SUPER NONSKID:
Boztu bíladekkin, sem völ er á.
INDIA STANDARD:
Betri en öll önnur „standard"
bíladekk.
INDIA STERLING
kuupa þeir, sem vilja fá góð en þó
ódýr bíladekk.
. Pantanir annast
*fi Allt meö íslensknm skipum! *f»
Prentsmiðjan Acta 193 >