Tíminn - 11.09.1934, Qupperneq 1

Tíminn - 11.09.1934, Qupperneq 1
Ojaíbbagi Matoins e c I. )&ol. Áígangutliia £ootaz )0 íz. 2Kfgzeib&la ©8 Innþeltnta á íaugaoeg 10. ©imt 2353 - qp&atbólt 961 im Arg. Reykjavík, 11. sept. 1934. 41. blað. W Ofrelsi bænda i Búnaðarfélagi Islands Ég hefi nýlega sýnt hversu B. í. var svift frelsi og fjár- forræði af íhaldinu 1923, með jarðræktarlögunum. B. í. er sennilega eina félagið í heim- inum, sem ekki fær að kjósa sína eigin stjórn. Tveir póli'- tískir flokkar í þinginu senda félaginu tvo af þremur stjórn- endum sínum, og þessir að- komumenn hafa síðan 1925 haldið burtu úr óskiftri fram- kvæmdarstjórn manni, sem fé- lagsmenn og Búnaðarþing vildi hafa þar. Liggja margar sann- anir fyrir um þetta atriði og allar þær þúsundir bænda, sem að nafni til eru í félaginu, ráða engu um aðalmál félagsins, ekki einu sinni um stjóm þess eða framkvæmdastjóm. Fulltrúamir á Búnaðarþingi, sem að nafni til eru kosnir af bændum, mun nú vera 14 að tölu. Þeir koma saman annað- hvort ár. Þeir samþykkja ým- islegt á Búnaðarþingi, en það verða ekki bindandi ákvarðan- ii, nema hin aðsenda stjóm vilji. Búnaðarþingið hefir þann- ig í raun og veru ekki nema ráðgefandi vald síðan 1923. Bændur hafa kunnað þessu illa, og Framsóknarflokkurinn hefir tekið það á stefnuskrá sína að höggva hlekkina af B. í. og að gera það aftur frjálst og full- valda um sína eigin stjórn og málefni. Mikill meirihluti þeirra bænda, sem setið hafa á Bún- aðarþingi hafa kunnað illa ófrelsi félagsins. Þeir hafa hvað eftir annað skorað á stjórn sína að vinna að því að Alþingi gæfi félaginu frelsi. En íhaldið hefir barizt á móti því að gefa bændum aftur félag sitt. Og þeir menn sem í vetur yfirgáfu Framsóknarflokkinn til að vinna nieð íhaldinu eru og hafa verið á sömu skoðun «g íhaldið um þetta atriði. Mergur málsins er því sá, að íhaldið hefir svift B. í. full- veldi og fjárforræði 1923, og haldið þessari kúgun við með tilstyrk nokkurra fyrverandi Framsóknarmanna. Vegna áhrifa þessara fyrverandi sam- herja hefir Framsóknai'flokk- urinn ekki haft aðstöðu til, fyr en nú að hjálpa bændum lands- ins til að gera B. í. bæði frjálst og starfhæft. Ég vil nefna tvo dæmi um það hversu réttleysi bændanna og Búnaðarþings hefir komið fram. Búnaðarþingið hefir hvað eftir annað samþykkt með miklum m!eirihluta, að félagið skyldi aðeins hafa einn fram- kvæmdarstjóra, og þessi krafa liefir verið studd af allri bændastétt landsins. Til að gefa þessu atriði enn meiri þunga hefir Búnaðarþingið stundum aðeins sett ein búnað- armálastjóralaun á fjárlög sín. En hinn aðsendi meirihluti stjómarinnar hefir algerlega neitað að hlýða þessu, og ekki skipt sér meira af vilja Bún- aðarþings heldur en ef hrepps- nefndin í Grímsey hefði sent f élagsst j óminni fyrirlag um málefni félagsins. í öðru lagi hefir márgfaldur næirihluti búnaðarþingsmanna livað eftir annað skorað á stjóm félagsins að ráða ákveð- inn mann sem búnaðarmála- stjóra einan saman. í sömu átt hafa gengið mjög fjolmennar áskoranir frá bændum og ein- stökum búnaðarfélögum. En hin aðsenda stjóm hefir ekki haft þetta að neinu, en í þess stað byrjað pólitíska verzlun við þennan mann og notað hann á verksviði, sem öllum var ljóst, og líka þeim bændum, sem vildu hafa hann að ráða- manni í B. f., að hann var ekki maður til að starfa. En jafnvel þetta búnaðar- þing, sem hin aðsenda stjórn leikur svo grátt, er kosið á þann spaugilegasta hátt, sem hugsast getur og með því fyr- irkomulagi að bændastéttin í heild sinni hafi sem allra rninnst áhrif á val þessara valdalitlu fulltrúa. Þrjár sýslur sunnan lands, Árnessýsla, Rangárvallasýsla og V.-Skaftafellssýsla kjósa þrjá fulltrúa saman. Eins og gefur að skilja, koma aðeins fáir menn á kjörfund, þannig, að bændunum er raunverulega gert ókleift að sækja þennan kjörfund. Og svipað skipulag er annarsstaðar á landinu. Eitt dæmi sýnir glögglega hve lítið samband getur stundum, með þessu skipulagi, verið milli bændastéttarinnar og fulltrú- ans, sem kosinn er. Jón Þorbergsson á Laxa- mýri er nú búnaðarþingsfull- trúi fyrir báðar Þingeyjar- sýslur, kosinn af fáeinum mönnum, sem hann hefir hóað saman í þessu skyni. Jón er að vísu röskur maður og hefir áhuga á einstökum búnaðar- málum, en hann er hinsvegar alveg sannanlega í fullkomnu skoðanaósamræmi við bændur í Þingeyjarsýslu. Þetta sýndi sig vorið 1933, er hann b’auð sig fram til þings í héraðinu, með búnaðarmál sem aðalviðfangs- efni. Hann fékk liðlega lág- markstölu meðmælenda, og það var raunverulega öll sú félags- lega tiltrúa, sem hann átti í sýslunni„ Ástand B. í. er þá þann- ig, að hinir kjörnu fulltrúar eru oft kosnir af fámennum hóp, og sumir þeirra njóta lít- ils trausts í héruðum sínum, en vitaskuld eru á Búnaðar- þingi nokkrir fulltrúar bænda, sem hafa bak við sig örugt og verðskuldað fylgi í sínum hér- uðum. Sjálft skipulagið er því vel fallið til klíkumyndunar og óheilbrigðra kosninga, og þess- vegna miður heppilegt, af því að það tekur raunverulega valdið af sjálfum bændunum. En jafnvel þetta Búnaðarþing fær svo í framkvæmdinni raun- verulega aðeins ráðgefandi vald í hinum þýðingarmestu Hann var búinn að af almannafé fyrir Fjármálaráðherra, Eysteinn Jónsson, skrifaði Jakob Möller, þáverandi eftirlitsmanni banka og sparisjóða svohljóðandi bréf »4. september 1934. Hér m^d er yður vikið úr stöðu yðar sem eftirlitsmaður með bönkum og sparisjóðum vegna megnrar vanrækslu og brota á skyldum yðar í starf- inu. Eysteinn fónsson (sign) Torfi Jóhannsson (si£n) Til hr. alþm. Jakobs Möller Hólatorgi 2« Bréfið er ekki langt. Þess gerðist ekki þörf. Alþjóð manna er vel kunnugt, hversu megnan ódugnað og trassaskap Jakob hefir sýnt í starfinu. Mun óhætt að fullyrða, að þessari stjórnarráðstöfun verð- ur fagnað um allt land. Jafnvel nánustu pólitískir samherjar Jakobs Möllers hafa játað, að hann sýndi óverjandi van- rækslu og hirðuleysi í því trúnaðarstarfi, sem ríkið hafði falið honum. Fyrir óreiðuna og vanræksl- una í þessu starfi hefir Jakob hlotið jafnvel svo megnan ímugust sinna eigin flokks- manna, að þeir hafa hundruð- um saman strikað hann út af lista íhaldsins í bæjarstjómar- og Alþingiskosningum undan- farið. Blöð íhaldsins, Morgunblað- ið, Heimdallur og önnur slík, sem hafa tekið málstað manna eins og Einars fyrv. Barð- strendingasýslumanns, Helga Tómassonar, Oddgeirs Bárðar- sonar og Arnljóts Jónssonar, hafa ekki treyst sér til að taka upp vörn fyrir Jakob Möller. Með þögninni hafa þau ját- að sekt hans, og viðurkennt hinar þungu, en réttmætu á- sakanir almennings. Það má vel vera, að Morg- unblaðið og önnur lík blöð reki nú upp einhverja kveinstafi, þegar búið er að framkvæma þann dóm, sem réttarmeðvit- und almennings hefir kveðið upp fyrir löngu, en íhaldið hingað til getað stöðvað, að yrði fullnægt. Jakob Möller verður nú að leggja niður það starf, á sjálf- sagðan, en þó miður skemmti- legan hátt, sem honum var falið að gegna fyrir réttum 10 árum síðan. málum sínum. Enginn maður hefir orðið meir fyrir óréttin- um af réttleysi B. í. en Sigurð- ur búnaðarmálastjóri. Það er þessvegna merkilegt, að hann skuli gerast til að reyna opin- berlega að fegra hina gyltu hlekki félagsins. J. J. birða 170 þús. kr. verra en ekki neltt Hann hafði verið einn af þeim, sem á þinginu áður l-.afði átt drjúgan þátt í að skapa þetta embætti. 1 nefnd, sem fjallaði um þetta mál, áttu þeir allir þrír sæti, Jón Auðunn, Magnús Guðmundsson og Jakob Möller. 1 nefndarálitinu sögðu þeir m. a.: „Aðalstarf eftirlitsmanns á, að áliti nefndarinnar, að vera það, að rannsaka raunveru- legt fjárhagsástand banka og sparisjóða, gera tillögur til stjórna þessara stofnana, ef honum þykir þurfa, koma skipulagi á bókhald sparisjóða, gefa ríkisstjórninni skýrslur og upplýsingar og vera ráðu- nautur hennar í þessum mál- um“. (Alþt. 1923, A. 900). Þetta lagði Jakob Möller sjálfur til, að eftirlitsmaður- inn ætti að gera. Og hvað hefir nú eftirlits- maðurinn Jakob Möller gert af þessu? Hefir hann kynnt sér „raun- verulegt fjárhagsástand banka og sparisjóða“? Svarið hljóð- ar þannig, að í stærstu stofn- unina, sem hann átti að endur- skoða, Landsbankann, hefir liann ekki komið í 3 ár, sam- kvæmt frásögn sjálfs banka- ráðsins. Hvað seinasta atriði snertir, að vera ráðunautur ríkis- stjórnarinnar í þessum málum, þá er mönnum það margkunn- ugt, að einu sinni hefir lands- stjórnin leitað áíits hans í þeim efnum. Það var þegar gjaldþrot Is- landsbanka vofði yfir og búið var að loka bankanum1. Jakob Möller var spurður að því, hvemig hagur bankans væri. Jakob svaraði, að bank- inn ætti fyrir skuldum. Það reyndist síðar, að bank- inn skuldaði margar miljónir umfram eignir. Slíkur ráðunautur var Jak- ob Möller. Starí Jakobs Möll- ers bankaeftirlitsmanns hefir verið þannig, að hann hefir vanrækt og svikizt um allt, sem alþingismáðurinn Jakob Möller ætlaði honum að gera, allt, nema eitt. Alþingismaðurinn Jakob Möller lagði til að bankaeftir- litsmaðurinn hefði 10 þús. kr. árslaun, dýrtíðaruppbót og ríf- legan ferðakostnað. Og laununum hefir banka- eftirlitsmaðurinn ekki gleymt. Fyrir enga vinnu, fyrir það eitt að heita bankaeftirlitsmað- ur, hefir hann fengið greidd- ar nál. 170 þús. kr. Alþingi hefir veriö kallað sam- an 1. okt. n. k. Héraðslæknisembœttið i Ólafs- vík er laust. Umsóknarfrestur til 20. þ. m. Hey skapurinn og koinandi yetnr Það er komið fram yfir höfuðdag. Sumri hallar og veturinn færist nær. Heyannimar og engjaverkin eru lengra eða skemmra á veg komin og einstaka bændur eru hættir heyskap — búnir —. Heyskapurinn hefir að þessu sinni gengið ákaflega misjafnlega um landið. Sunnanlands byrjaði sláttur of seint — eins og venjulega —. Vaninn er ákaflega ríkur, og einn af' erfiðleikunum, sem allar umbætur þurfa að stríða við. Spretta var góð og heyskapurinn hefir þar gengið sæmi- lega. Að vísu velktust töður nokkuð og aðr- ir hirtu of djarft og því hitnaði mikið í töðunum hjá þeim. Þetta allt gerir að töður sunnanlands munu þrátt fyrir það þó tíð hafi verið sæmileg, ekki vera nema rétt í meðallagi að. gæðum og varla það. En þær eru miklar að vöxtum. Vestanlands hefir tíð verið óþurkasam- ari, en þó hefir engin neyð verið með hey- slfapinn þar, nema á norðvestur hominu á landinu. Þar hafa verið miklir óþurkar og gengið n-jög illa að þurka. En vestfirzkir bændur verja hey betur í hrakningum og misjafnri tíð en bændur annarsstaðar á landinu. Þeir fanga oftar, þeir setja í smásæti þó ekki sé fullþurt og þeir nota nokkuð almennt hærur. Allt styð- ur þetta að því, að töður þeirra munu nú sízt vera verri en sunnlenzku töðumar, þó líðin þar hafi verið óhagstæðari. Spretta á Vestfjörðum hefir verið ágæt og hey eru l>ar mikil, þó tafiy við þurkinn hafi verið miklar. Norðanlands hefir heyskapurinn gengið illa og því ver því norðar sem komið er. Eyfirðingar byrjuðu fyrstir slátt eins og þeirra er vani. Náðist þá nokkuð af óhröktu. En annars er öll taða Norðanlands meira eða minna hrakin. Vegna óþurkanna gengu sumir úr túnunum hálfslegnum og fóru á engjar og varð afleiðingin sú, að taðan spratt úr sér. Töður norðanlands era því yfirleitt lélegar og langt undir méðallagi að fóðurgildi. Austanlands er þó ástandið verst. Þar hafa óþurkarnir verið lang mestir. Þeir, sem farnir voru að slá fyrir Jónsmessu, (Jón í Firði, Karl Finnbogason o. fl.), náðu löðunum lítt eða ekki hröktum, en margir . sem ekki byrjuðu fyrr en komið var franf í júlí lentu í óþurkunum og hjá þeim hraktist taða mikið. Sumstaðar sama sem engri töðu farið að ná inn enn. Og taðan, sem inn er komin, er stórlega skemmd að fóðurgildi. Af þessu yfirliti má það vera ljóst, að það er margur bóndinn sem kvíðír kománda vetri. AHir vita það, að þá þurfa skepnurnar fóður og margföld reynsla er búin að sýna mönnum það, að þegar skepnur eru fóðrað- ar á hröktum og lélegum heyjum, eins og nú verður víða, þá er þeim kvillahætt og þá verða vanhöldin mikil. Annars er það atriði í búskap okkar, hvað lítið öryggi er í jöfnum afrakstri af skepn- ! unurn frá ári til árs og það atriði, hve van- | höldin eru geypilega mikil, eitt af því sem 5 hvað mest lamar búskapinn og sem hvað fyrst þarf að ráða bót á. Þetta er mikið al- •l i varlegra mál en margur gerir sér í hugar- lund. Má í því sambandi benda á það, að það er ekki svo óalgengt að sjá það tvennt í skattaframtölum, að tala sláturlamba að haustinu svarar ekki nema til þess, að lamb hafi fengizt undan 2/3 til 1/2 af ánum, og að ærtalan í árslok og tala ánna, sem slátr- að var á árinu, svarar hvergi nærri til tölu ánna og gemlinganna, sem til voru í árs- byrjun. Þess eru dæmi, að hér munar um tugi, og sýnir það glöggt, hve vanhöldin eru mikil á stundum. Þegar hey nú eru hrakin eins og þau Framh. á 3. síðu.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.