Tíminn - 11.09.1934, Qupperneq 3
T I M I N N
þeim aðallínum, sem hér eru
markaðar, án nokkurrar skuld-
binding-ar til að halda því úti
lengur en fjárhagur blaðsins
leyfir'K
Ótíðin. Af Norður- og Austur-
landi berast hvarvetna hinar al-
\arl(>gustu fregnir um ástandið
af völdum óþurkanna. Engir
þurkar að verulegum notum síð-
an snemma í júlímánuði. Allra
tilfinnanlegast virðist þurkaleysið
hafa verið í ‘ norðaustursveitun-
fim, þ e. í Norður-þingeyjar- og
Norður-Múlasýslu norðan til. Á
Lunganesi og Austur-Sléttu, hafa
a sumum bœjum engin hey náðst
á þessu sumri, nema lítið eitt í
votheysgryfjur, og fyrri sláttur af
túnum talinn ónýtur að mestu.
Kr þetta eitt hið allra versta ó-
þurkasumar, í manna minnum á
þessu svœði.
Bráðabirgðalög um mjólkursöl-
una. I gœr staðfesti konungur
bráðabirgðalögin um mjólkursöl-
una. H.efir aðalatriöa þeirra laga
verið getið áður hér í blaðinu og
eru lesendum blaðsins þvi vel
kunn. Frá samning allra aðalat-
riða mjólkurlaganna hefir verið
gengið fyrir nokkru eins og skýrt
var frá hér i blaðinu, en seinustu
dagana hafa nokkur smáatriði
\erið til athugunar og endanleg
afgreiðsla þeirra því dregist þang-
að tii nú. það má fullyrða, að
þetta er langerfiðasta og vanda-
«
samasta málið, sem hin nýja
stjórn hefir tekið til meðferðar.
Má fyrst og fremst þakka það
festu og samtiingalipurð forsætis-
ráðherra, liversu vel hefir tekizt
um afgreiðslu þess.
Kveðjusamsæti var sr. Rögn-
valdi Péturssyni og frú hans
haldið i Oddfellowhöllinni í gær-
kvöldi. Eru þau á förum héðan i
kvöld.
Spellvirki á þingvöllum. Ein-
liverjir misyndismenn hafa fyrir
skömmu brotið tvöfalda hliðið á
þingvallagirðingunni. Hefir enn
ekki hafzt upp á spellvirkjunum.
En þeim, sem lesið hafa óhróður
íhaldsblaðanna um friðunina á
þingvöllum, eru auðskilin slík
óbótaverk sem þessi.
Skriða féll nýlega úr fjall-
inu upp af Sauðanesvita. Skriðan
er 200 metra breið sunnan við
vitann, og einn til einn og hálfur
metri á dýpt. Heyfengur er úti
var ónýttist. Vitinn er óstarfhæf-
ur eins og stendur. Svonefnt Her-
konugil milli Engidals og Dala-
bæjar, grófst svo niður, að það er
talið fyrst um sinn ófært meö
öllu.
Bærinn Búrfell i Grímsnesi
brann til kaldra kola nýlega. —
Fólk var á engjum, þegar eldur-
inn kom upp, nema ein stúlka og
2 börn. Gat hún komið boðum
til fólksins og kom það ásamt
fleira fólki á vettvang. en eldur-
inn var það magnaður, að ekki
varð við neitt ráðið. Talið er, að
kviknað hafi út frá reykháf. Tjón-
ið er mikið og tilfinnanlegt. Á
Búrfelli búa tveir bræður, Páll
og Halldór, Diðrikssynir.
í Miklaholtsprestakalli fór frarn
prestskosning fyrir stuttu siðan.
þorsteinn L. Jónsson fékk 131 at-
kvæði af 140 atkv. greiddum.
Kosningin er lögmæt.
Skólanefnd Reykjaskóla í Hrúta-
firði hefir ráðið Jón Sigurðsson
í Ystafelli skólastjóra næsta vet
ur, en 1. kennara síra Jón Guðna-
son á Prestsbakka. Er útlit fyrir
að skólinn verði vel sóttur.
Tvö námskeið hafa verið hald-
in við Laugaskóla i sumar, fyrir
böm á aldrinum 8—15 ára og
hafa »ótt þau milli 50—60 nemend-
ur. Námsgreinar voru: sund,
iþróttir og útileikir.
Kommylla. Nokkrir Vestur-ís-
lendingar og menn hér heima
hafa stofnað hlutafélag til að
koma upp kornmyllu í Reykjavík
og hafa þeir sr. Rögnvaldur Pét-
ursson og Ragnar E. Kvar&n sótt
um það til bæjarráðsins að fá
land undir mylluna á heppilegum
stað. Bæjarráðið hefir enga á-
kvörðun tekiö um þetta enn, enda
venjuiega seint að taka ákvarð-
anir, þegar um aukna atvinnu-
möguieika er að ræða.
Skipulagsnefnd atvixuiuveg-
anna liefir þegar hafið starf sitt.
Viðfangsefni sínu hefir hún skift í
sex aðalílokka: I. Landbúnað. II.
Sjávarútveg. III. Iðnað. IV. Verzl-
un. V. Flutninga og VI. Húsa
byggingar. Hafa verið gei’ðar ráð-
stafanir tii að afia' nauðsynlegra
upplýsinga, viðkomandi hvem
grein. Auk þess mun hún taka til
meðferðar ýms smærri mál og
er sennilegt að hún muni ieggja
fram frv. um sum þeirra á næsta
þingi. Steingrimur Steinþórsson
liefir verið kosinn ritari nefndar-
innar.
Ríkarður kennir Færeyingjum
iréskurð. í ágústmánuði siðastl.
var lialdið kennaranámskeið í
þórshöfn i Færeyjum og kenndi
Rikarður Jónsson myndhöggvari
þar tréskurð. Hann hafði 36 nem-
endur.
I
Héraðsskólinn á Reykjum
hefst fyrsta vetrardag og starfar í sex mánuði. Skólinri
starfar í tveim deildum og er samskóli.
Kennslugreínar: íslenzka, danska, enska, reikningur,
saga, náttúrufræði, söngur, handavinna, sund og leikfimi.
Skólahúsið er nýtt og gott, ágæt heimavistarherbergi
og rúmgóðar kennslustofur. Allt er húsið hitað með hvera-
hita. Innangengt í sundlaugina og leikfimishúsið.
Formaður skólanefndar, Skúli Guðmundsson, kaupfélags-
stjóri á Hvammstanga, tekur á móti umsóknum og gefur
allar upplýsingar um skólann.
Kj ö tverð
Fyrst um sinn, frá og með 10. september þessa árs, er
ákveðið að heildsöluverð til verzlana á nýju kjöti af dilkum,
sauðum, veturgömlu fé og algeldum ám, skuli vera:
Athuganir veðurstoíunnar. í ný-
komnu mán.yfirliti Veðurst. seg-
ir: í vor var róíufræi sáð frá 23.
mai til 8. júní, að meðaltali 1.
júni (12 stöðvar); hætt að gefa
kúm frá 6. júni til 6. júlí, að með-
aitali 15. júní (16 stöðvar), 11
dögum siðar en 5 ára meðaltai;
geinlingar rúnir irá 9. til 26. júní,
að meðaltali 16. júní (7 stöðvar),
6 dögum síðar en 5 ára meðaltal;
ær rúnar frá 14. júní til 5. júlí, að
meöaltali 27. júní (10 stöðvar), 3
dögum síðar en 5 ára meðaltal og
túnasiáttur byrjaði írá 2. til 12.
júli, áð meðaitali 8. júlí (16 stöðv-
ar).
Árbók Ferðafélagsins 1934 er
nýkomin út Efni hennar er leið-
arlýsing um þingeyjarsýslur. Eru
þar lýsingar af ýmsum fegurstu
stöðum landsins. Steindór Stein-
dórsson náttúrufræðingur ritar
um Mývatnssveit, og er ritgerð
bans prýdd ágætum myndum.
Hitt ritar dr. þorkell Jóhannesson.
Er þar m. a. lýst hinum fögru
sveitum, Kelduhverfi og Öxarfirði,
í Norður-þingeyjarsýslu vestan-
verðri. Mun margan fýsa að
kanna þessar leiðir, eftir að hafa
lesið um Ásbyrgi, Dettifoss, Jök-
úlsárgljúfur, Hljóðakletta, Grettis-
hæli o. fl. í ritgerð þessari, og
þá eigi síður, er menn minnast
þess, að á þessum stöðvum og
um þær hefir þjóðskáldið mikla,
Einar Benediktsson orkt ýms sín
dýrðlegustu ljóð. Er þetta áreiðan-
lega ein bezta árbókin, sem út
hefir komið. En skaði er, og raun-
ar óverjandi, að útgáfan skuli
haía dregist þangað til nú, að
sumarferðum er að mestu lokið.
En ráð mun að tryggja sér ritið
í tima. þvi að sennilega verður
það uppgengið á næsta vori. Hef-
ir svo fai'ið um sumar Árbækurn-
ar, að þær eru nú lítt fáanlegar.
Byrd bjargað. Tekizt hefir nú að
ná heimskautakönnuðinum Byrd
úr kofa þeim, er harm hafði vetr-
arsetu 1. Sem kunnugt er, lagði
Byrd af stað með leiðangur sinn
til suðurheimskautsins í septem-
ber í fyrra. Skyldu þar rannsök-
uð og kortlögð áður órannsökuð
svæði. í janúar settust þeir að í
Iivalaflóanum, en þá var orðið of
áliðið sumars, tii þess að hefja
rannsóknir. Yfirgaf Byrd þá fé-
laga sína, og bjóst þá einn til
vetursetu í kofa, sem var 123 míl-
ur frá höfuðstöðvunum. Ætíaði
hann að gera veðurfræðilegar at-
huganir yfir veturinn, og gerði
ráð fyrir dvöl þar þram í septem-
ber eða október. Er slik einvera
mánuðum saman í heimskauta-
myrkrinu ekki heiglum hent. 20.
júli neyddist hann til að senda fé-
lögum sínum skeyti, og biðja um
lijálp. Brugðu þeir við óg gerðu
út leiðangur. Mistókst hann og
sömuleiðis annar, en í þriðja sinn
var heppnin með, og 8. ágúst kom
Byrd til félaga sinna aftur. Var
liann þá orðinn lasburða, en
kjarkurinn óbrotinn.
Bækiu Halldórs Kiljans Laxncss
á dönsku. í haust eru væntanleg-
ar á dönsku bækur Halldórs Kilj-
ans Laxness „þú vínviður hreini"
og „Fuglinn í fjörunni". Gunnar
Gunnarsson skáld hefir gert þýð-
inguna og eiga þær á dönsku að
bera nafnið „Salka Valka“.
Bandaríkjastjóm hefir gert ráð-
stafanir til þess að ríkið kaupi
hey frá Canada, til að bæta úr
Á 1. verðlagssvæði kr. 1,25 kgr. nema í Hafnarfirði,
Reykjavík og Vm.eyjum 1,30 —
A 2. verðlagssvæði kr. 1,20 —
A 3. „ kr, 1,20 —
A 4. „—„ kr. 1,20
Siglufirði . . . kr. 1,25
A 5. verðlagssvæði kr. 1,20
Norðfirði . . kr. 1,25
nema á Akureyri og
uema á Seyðisfirði og
Hámarksálagning í smásölu má hvergi vera meiri en
20% að meðaltali á hvern kropp. — Nefndin leggur ríka á-
herzlu á, að álagning í smásölu á hverjum stað sé ekki meiri
en brýn nauðsyn krefur.
Reykjavík 8. sept. 1934.
Kjötverðlagsnefndin.
Dfralækningaáhöld íyrir bændur
Bólusetningasprautur
cem,
5
10
rumar
með bóluefni í
10 kindur
20 —
í nekkelhulstfi
með 2 nálum
Kr. 10,00
— 15,75
sprautan sjálf
lau8 án nála
Kr. 7,00
— 8,75
Bólusetningarsprautur, 5 ccm, rúma bóluefni í 10 kindur, . með
fingurfangi, í nikkeleruðum stokk, með 2 nálum .. .. kr. 15.50
Sama, án stokks og án nála......................... • • — 12.00
Lausar nálar.. .. frá kr. 9.75 Doðasprautur........kr. 12.00
Mjólkurstílar .. .. á — 1.50 Geldingatengur, Burdizzo.
Tetraklórkolefnl á 1 líters ilátum.....................kr. 5.00
Sama, á Vz líters ilátum..............................\ — 2.75
Allar þessar tegundir verða sendar gegn eítirkröfu hverjum
sem óskar. Skrifið okkur hvaða tegundir þér þurfið og greinl-
legt nafn yðar og hetmkynni. — Utanáskrlft okkar er:
Laugavegs Apótek, Reykjavík.
hinum tilfinnanlega fóðurskorti,
sem horfur eru á meðal bænda
vegna þess tjóns, er þurkarnir
hafa valdið í Bandaríkjunum í
sumar.
Úrkoma í Júlí. Samlcv. mánað-
aryfirliti Veðurstofunnar fyrir
júlí síðastl. hefir úrkoman verið
20% yfir meðallag á öllu landinu.
’ Mest var ltún mæld á Hrauni )
‘ Fljótum 312% yfir meðallag.
Rigningar voru miklu meiri norð-
anlands, en austan.
Alltaf pláss í Kreppulánasjóðil
þegar „einkafyrirtækið'* hafði
fengið reynslu fyrir því, að Árni
þórðarson myndi vera ónothæfur (
til þess að vera ritstjóri Fram-
sóknar, var hann látinn fara. í
þess stað var hann látinn koma
í Kreppulánasjóð og taka laun
þar En þar hefir virzt óþrjótandi
pláss fyrir alla gæðinga „einka-
fyrirtækisins".
Nýr skattstjóri. Fjármálaráð-
herra hefir sett Halldór Sigfússon
ondurskoðanda til að vera skatt-
stjóra í Reykjavik. Halldór hefir
áður gegnt varaskattstjórastörf-
nm.
Gistlhúslnu á Laugarvatuf var
lokað um fyrri helgi. Gestir hafa
verið þar með mesta móti í sum-
ar. — Laugarvatnsskóla hafa bor-
ist 200 umsóknir, en skólinn get-
ur ekki tekið nema 130 nemendur.
Lumaperumar, sem samvinnu-
félögin sænsku búa til í hinum
myndarlegu verksmiðjum sínum
við Stockholm, eru nú nýkomnar
hér á markaðinn og fást í Kaup-
félagi Reykjavíkur. Eru þær bæði
sérstaklega vandaðar og ódýrar
eins og flestar þær vörur er
sænsku samvinnufélögin fram-
leiða.
Atviunuleysi í kaupstöðum. 1.
ágúst síðastl. voru skráðir 33 at-
vinnuleysingjar á Seyðisfirði og
31 á ísafirði. Á Akureyri, Siglu-
firði og í Vestmannaeyjum mun
skráning ekki hafa farið fram. I
Réykjavík voru 390 atvinnuleys-
ingjar.
Viðskiptajöfnuður í júlllok. —
Verðmæti útflutningsins í júlílok
nam 19.7 milj. kr., en verðmæti
innflutningsins 28.2 milj. kr. Hall-
inn á verzlunarjöfnuðinum hefir
því verið þá 8% milj. kr. Út-
flutningurinn á þessum tíma hef-
ir verið svipaður og í fyrra, en
innflutningurinn 32% meiri.
Ásgeir Einarsson hefir verið
skipaður dýralæknir í Austfirð-
ingafjórðungi.
Kaupfélag
Revkjavíkur
selur allskouar nýlenduvörur, kryddvör-
ur, hreinlætisvörur, snyrtivörur, tóbaksvör-
ur, sælgæti o. m. fl.
Brauðgerð
kaupfélagsins selur í heildsölu
tvlbökur, kringlur og skonrok
Góðar vörur. Sanngjarnt verð
Samvinnumenn hvaðanæfa af landinu!
Látið Kaupfélag- Reykjavíkur sitja fyr-
ir viðskiptum yðar, þegar þér komið
til Reykjavíkur
Kaupfélag Reykjavíkur
Bankastræti 2 Sími 1245
Rit Steingríms Thorsteinssonar,
sem undirritaBur hefur gefið út, sel
eg framvegis fyrir 10 krónur, ef keypt
eru öll i einu, og’ sent burðarg'jalds-
fritt á næstu höfn við pantanda eða
þangað sem hægt er að senda pakka
með bilum. Bækurnar eru þessar:
Ljóðabók I, m. mynd. Ljóðabók II,
m. mynd. Sawitri, saga m. mynd.
Sakúntnla, saga. Æfintýrabókin. Sugu
frá Sandhólabygðinni, eftir H: C. And-
ersen. R.H. ríma. Sagan af Trölla-
Elínu og Glensbúðlr og Sankti Pétnr.
Sagan af Kulaf og keisaradóttnrinni
kínversku. AIls tæpar 1000 bls. prent-
aðar á góðan pappir, innheftar í sterka
kápu. Nú á einhver, sem vildi eign-
ast þessar bækur, eina þeirra eða fleiri.
Getur þá sami getið þess viö pöntun
og fengið eina eða fleiri af eftirtöld-
um bókum i stað þeirra, sem hann á:
Æflntýri Islendings, Heiin er hanstar
og nokkrar smásögnr aðrar, eða af
eldri árgöngum Rökknrs, eftir sam-
komulagi og eftir því hve mörg af
ritum Stgr. Thorsteinssonar eru und-
anskílin. Pantanir sendlst fyrir i. okt.
Bókaversluu Kirkjnstr. 4, Reykjavík
(Axel Thorsteinson)
Opin 4-6 virka daga. Pósthólf 956.
Heyskapnrinu og komandi vetur
Framh. af 1. síðu.
erii víða í ár, er ekki að undra þó menn
óttist um afraksturinn og að vanhöldin á
búfénu verði mikil á komanda ári. En við
því mega bændur illa nú, eins og allt er í
pottinn búið.
Því er alveg nauðsynlegt að reyna nú í
haust að gera það sem mögulegt er til að
hafa áhrif á það, að vanhöldin verði sem
minnst. Mest koma vanhöld og afurðamiss-
ir á búfénu fram á sauðfénu og’ í lágri nyt
hjá kúnum.
Ýmislegt má nú gera af hverjum einstök-
um til að reyna að draga úr vanhöldunum
á sauðfénu, og skal ég reyna að minna á
| nokkuð af því, ef ske mætti, að einhver
| gleymdi því þá síður.
j Fyrst vil ég þá benda á það, að í haust
j er sérstök ástæða til að setja nú ekki á
vetur gamalær, sem aldi'ei er hægt að fóðra
nema með dekri og aukakostnaði, en ó-
mögulegt er að fóðra á hrakningi. Allar
þær kindur, sem menn hafa hugmynd um
að vangæfar muni reynast í fóðri, á að
(irepa í haust á þeim svæðum landsins, sem
lieyin eru mest hrakin á. Nú er það að vísu
svo, að ærkjöt er í lágu verði og raunar
varla seljanlegt, en þá er að reyna að nota
það sem fóður, t. d. handa kúm, með hrökt-
um töðum. Þarf þá að gefa það soðið. Kýr
eru nokkuð vangæfar á að læra á því átið,
en það gengur, og það er sæmilegur fóður-
bætir. Handa refunum er það tilvalið og
sjálfsagt, sérstaklega þar sem ekki er um
að ræða hrossakjöt, eins og er í stórum
hlutum af landinu.
1 öðru lagi vil ég benda á það, að þó allt-
af ríði mikið á því að láta féð halda heils-
unni, þá ríður aldrei meira á því en nú,
því allar veilur, sem til staðar eru í fénu,
koma miklu fremur fram í vetur, er hröktu
heyin eru gefin, en á venjulegum tímum
með skaplegu fóðri.
Vegna þessa eiga menn almennt að
hreinsa ormana úr meltingarfærum fjárins
í haust og það verður ekki betur gert með