Tíminn - 23.10.1934, Síða 2
180
T í M I N N
tillögu til þingsályktunar um bann gegn því
að reisa nýjan bæ í hinu friðlýsta svæði
við Vellankötlu í Þingvallasveit.
Þorbergur Þorleifsson flytur frv. um
hafnargerð á Hornafirði.
Sigurjón Ólafsson og Ingvar Pálmason
flytja frv. um loftskeytastöðvar á flutninga-
skipum. Þau millilandaflutningaskip, íslenzk,
sem nú hafa ekki loftskeytastöðvar, era
fimm að tölu, Selfoss, Edda, Columbus,
Hekla og Khtla.
Gísli Guðmundsson og Bergur -Jónsson
flytja frv. um strandferðir. Er það að mestu .
leyti samhljóða frv. því, sem þeir Eysteinn
Jónsson og Bergur Jónsson fluttu í fyrra
og stefnir að því, að færa fólksflutningana
með ströndum fram yfir til íslenzku skip-
anna eftir því sem unnt er. Er ætlazt til,
að þeim tilgangi verði náð með því, að ríkið
hafi einkarétt til að flytja farþega, en veiti'
öðrum leyfi til farþegaflutnings gegn 20%
skatti af fargjöldum, þó þannig, að veita
megi undanþágu þeim skipum, er styrks
njóta úr ríkissjóði. Væri þá Eimskipafélagið
laust við þetta gjald. íhaldið í neðri deild
felldi frv. frá nefnd í fyrra, og nú greiddu
10 íhaldsmenn atkvæði gegn því, að málið
íæri til nefndar. Var allmikið um þetta deiit
við 1. umr. og m. a. komu fram frá flutn-
ingsm. upplýsingar um það, að ríkið væri nú
búið að greiða -á sjöttu miljón króna sam-
tals á síðustu 10 árum til samgangna á sjó,
þar af um IV2 milj. í styrk til Eimskipa-
félagsins, auk þess, sem félagið er skatt-
írjálst og nýtur hlunninda í „gegnumgang-
andi frögtum“ með ríkisskipunum.
Páll Zophiniasson, Bjarni Ásgeirsson og
Héðinn Valdemarsson flytja frv. um sölu á
eggjum eftir þyngd.
Sigurjón ólafsson flytur frv. um vigt á
síld. Gamalt deilumál frá fyrri þingum,
með því að Kveldúlfur hefir viljað komast
hjá að vigta síldiná.
Landbúnaðarnefnd nd. flytur frv. um
íorðagæzlu, þar sem ráðherra er heimilt að
krefjast, hvenær sem er skýrslu frá iorða-
gæzlumönnum um það, hverjar horfur séu á
íoðuröflun eða fóðurbirgðum í umdæmum
þeirra.
Jónas Jónsson og Jón Baldvinsson flytja
tillögu um skipun lögfræðinganefndar til að
undirbúa endurbætur á réttarfarslöggjöf-
inni.
Jónsa Jónsson flytur frv. um yfirstjórn
ríkiseignanna í ölfusi og að lönd, sem leigð
liafa verið af þeim, falli aftur til ríkisins.
Gísli Guðmundsspn flytur frv. um að á-
kvæði kreppulaganna frá 1933 um styrk til
frystihúsa bænda (allt að V4 stofnkostnað-
ar) verði framlengd, þannig, að styrkurinn
sé ekki eingöngu bundinn við hús, sem
reist voru áður en þau lög voru samþykkt,
heldur geti einnig þeir bændur notið hans,
tr síðar byggja. En í lögunum frá 1933 eru
mjög vafasög ákvæði um þetta efni.
I gær héldu íhaldsmenn uppi málþófi í
báðum deildum þingsins, í efri deild um
einkasölu á bifreiðum og mctorvélum og í
neðri deild út af endurgreiðslu síldartolls-
ins til sjómanna. Kjötlögin og mjólkurlögin
(jru hvortveggju í efri deild ennþá og gera
stjómarandstæðingar allt til þess að tefja
þau með því að halda hrókaræður hver upp
eftir öðrum. Jafnframt bera þeir fram hin-
ar og aðrar breytingatillögur málinu til
skemmda. Eru þeir Magnús Jónsson, Þor-
steinn Briem og Pétur Magnússon þar mest’
að verki.
Tíminn hefir það eftir alveg áreiðanleg-
um heimildum, að hér í F.eykjavík hefir í
haust verið stofnað félag nokkurra íhalds-
manna, sem bundust samtökum um að
minnka til muna kjötneyzlu sína og fá aðra
til þess að gera það sama. Félagsskap þess-
um hefir þó lítið eða ekkert orðið ágengt.
En nú er þessi sama barátta gegn bænda-
stéttinni flutt inn á Alþingi í nýrri mynd
;\f íhaldsmönnum.
í neðri deild eru það einkum' fjórir menn,
sem nú ganga fram fyrir skjöldu af hálfu í-
haldsins við málþóf og fjandskap gegn um-
bótamálum. Má þar fyrst nefna Ólaf Thors,
sem hefir verið kosinn formaður flokksins.
Er Ólafur sæll í sinni nýju upphefð, en und-
ir nokkru eftirlíti hjá sumum flokksmönn-
um sökum hvatvísi og yfirlætis. Þá er Sig-
urður Kristjánsson, sá er forðum skrifaði
greinina um mennina „með mosann í skegg-
inu“, og nú þyldst vilja smjaðra fyrir bænd-
lun, m. a. með till. sinni um „fóðurskort
bænda“. Þriðji málskrafsmaðurinn er Garð-
ar Þorsteinsson, sem sérstaklega leggur sig
eftir því að tala illa um kaupfélögin. Sá
fjórði er Jakob Möller, sem nú ber þungan
hug til stjómarinnar af skiljanlegum ástæð-
um. .
Erlendir ferðamenn
til Islands
[Hér fer á eftir niðurlag á grein,
sem birtist í Nýja dagblaðinu 1
morgun, um erlenda ferðamenn á
íslandi].
Það sem þarf að gera hér, er
m. a.: að láta umheiminn vita
nógu rækilega, að hér er eitt
einkennilegasta land heimsins
og framtíðarinnar ferðamanna-
land og að hér er hægt að
ferðast og njóta sæmilegra
þæginda, líka fyrir þá, sem
ekki eru miklir auðmenn.
Það þarf að fjölga gistihús-
unum, en einkum þó að full-
komna þau og gera vegina
betri, sérstaklega til fegurstu
og sérkennilegustu staðanna.
Hafa fasta hæfilega taxta á
veitingahúsum og farartækj-
um. Það þarf að hafa góða og
trausta ferðaskrifstofu á bezta
stað í' Rvík með ítökum eða
smádeildum sem víðast um
landið. Og hún á ekki að vera
hálffalin deild úr annari ríkis-
stofnun, — kannske meira eða
minna þunglamalegri, með „ó-
intresseruðum“ starfsmönnum
á þessu sviði —, heldur sjálf-
stæð stofnun, hvort sem hún
væri rekin eða styrkt af rík-
inu.
Nú tíðkast meir og meir, að
hin stóru farþegaskemmtiskip
komi hér við, t. d. komu þau
14 sl. sumar. Það er gott að
þau komi og skilji hér eftir 20
—30 þús. kr. hvert á einum
sólarhring, eins og þau gera,
þótt sumt sé órýmilegt að taka
af þeim, eins og t. d. hið háa
vitagjald, þegar albjört er
nóttin (2500 kr. af 10000 smá-
lestaskipi og þar að auki 500
kr. í hafnsögugjald). Með
góðri túlkun og samkomulagi,
einkanlega við hin stóru1 er-
lendu félög, er gera skipin út,
býzt ég við að oft mætti koma
farþegum þeirra til að ferðast
nokkru meira um landið, ekki
sízt ef samgöngurnar væru
bættar. Og það þýðir auðvitað
meiri peninga eftir í landinu.
Skal ég aðeins nefna til tvö
dæmi. Væri vegur lagaður svo
um Lyngdalsheiði, að hann
yrði sæmilega góður fyrir bíla,
þá er lítill efi á að oft væri
auðvelt að koma stórum hópum
úr skemmtiferðaskipunum um
Hellisheiði, Grýtu, Gullfoss,
Fiskveiðar og fisk-
verkun Islendinga
Framh. af 1. síðu.
Er mjög auðvelt að skipuleggja
þessar fiskiveiðar og gera þær
miklu arðvænlegri en þær eru
nú með þeim veiðitækjum og
aðstöðu í landi, sem nú eru til.
Má þar t. d. nefna, að í fjölda-
mörgum veiðistöðum eru til
frystihús, sem gætu geymt ís-
varinn fisk í kössum, svo að
bátarnir gætu haldið áfram
stöðugum veiðum, og flutninga.
skip eða togarar safnað fiskin-
um saman og flutt hann til
markaðslandanna.
Samtök. — Skipulag. —
Hcildarhagsmunir.
Ber allt að sama brunni um
það, sem nefnt hefir verið hér
að framan, að einstaklingun-
um verða umbæturnar ofurefli
nema með samtökum. Og höf-
uðskilyrði til þess, að hægt sé
að koma umbótum við fljótt og
vel, er það að framleiðendur
myndi öflug og varanleg sam-
tök með frjálsum félagsskap
að svo miklu leyti, sem| hægt
Geysi, Laugarvatn og til baka
um Þingvelli. Og verði byggt
hraðskreytt, ágætt farþega-
skip, sem fer á ca. 2 kl.tímum
frá Rvík til Borgarness eins og
ráðgert hefir verið að undan-
förnu, og þegar vegurinn batn-
ar jafnhliða norður yfir heið-
arnar, svo að hægt verði að
komast frá Rvík til Akureyr-
ar með sæmilegu móti á einum
degi — sem verður framtíðar
takmarkið —, þá er ekki ó-
sennilegt, að hópar af ferða-
mönnum úr skemmtiskipunum
vilji skreppa þvert norður yfir
landið. Eftir viðstöðuna í Rvík
færu svo skipin norður með
landi og tækju ferðamannahóp-
ana á Akureyri eða jafnvel
lengra norðurfrá, um leið og
þau héldu áfram til Norður-
Noregs, Spitzbergen eða annara
norðlægra staða, er þau ætluðu
að heimsækja.
Það er ekkert fráleitt, að
við gætum innan fárra ára
haft tekjur af erlendum ferða-
mönnum, er næmu 10% á
móts við Norðmenn eða Svía
og ætti það þá að vera tals-
verð búbót, að fá þar ca. 3
miljónir króna árlega inn í
landið. Og stærra hefir verið
hugsað í heiminum en það,
að við kæmumst upp úr 10%!
Við erum í vandræðum með
markaði fyrir afurðirnar. En
fyrst örðugt er eða lítt mögu-
legt að selja nema lágt og
takmarkað hinar góðu matvör-
ur, sem við getum framleitt
miklu meira af en við nú ger-
um, hvers vegna þá ekki að fá
sem flesta utan úr lönduni
hingað heim til að borða þær
hér, matreiddar af okkur sjálf-
um? Þó að fjölgi heimsóknum
af mönnum er njóta vilja feg-
urðar 0g sérkennileika þessa
lands, sem við búum á, þá
njótum við þeirra gæða sjálfir
eftir sem áður.
Sé vel tekið á móti gestum
er koma, eigmast þeir hér
helzt og fara með til heim-
kynna sinna: Góðar endur-
minningar. En það er ekkert
tap fyrír okkur Islendinga,
Iteldur er þvert á móti þekk-
ing, skilningur og þar af leið-
andi vinátta margra góðra
manna úti um víða veröld hinn
mesti ávinningur. V. G.
verður við að koma, en að öðru
leyti með aðstoð löggjafar-
valdsins.
Sölumiðstöð sú, sem slíkur
félagsskapur myndar, þarf að
stjómast af færum og víðsýn-
um mönnum, sem hafa hags-
muni atvinnuvegarins í heild
fyrir augum, en ekki sérstakra
atvinnurekenda.
Fámennustu hrepparnir. Samkv.
nýkomnum Mannfjöldaskýrslum
frá Hagstofunni, voru 1930 sex
hreppar, sem höfðu færri en 100
ibúa. það voru: Fjallahreppur í
N.-þingeyjarsýslu (65 íbúar), Loð-
mundarfjarðarhreppur í 'N.-Múla-
sýslu (76 íb.), Grafningshreppur í
Árnessýslu (82 íb.), Geiradals-
hreppur í Barðastrandarsýslu (93
íb), Skilmannahreppur í Borgar-
fjarðarsýslu (98 íb), og Óspalcs-
eyrarhreppur í Strandasýslu (99
íbúar).
Ólaísfirðingar hafa nú lokið við
bátabraut sína. Hún rúmar 10
báta, en hægt er með litlum til-
kostnaði að stækka hana til
muna. Hún getur tekið allt að 30
smál skip. Alls hefir hún kostaö
16 þús. kr. Sveinbjöm Jónsson
bvggingafrœðingur sá um frain-
kvæmd verksins.
Enn um tekjuskattinn
ölafur Thors ritar greinar-
stúf í Mbl., sem á að vera
svar við grein minni í Nýja
dagblaðinu og Tímánum um
tekjuskattsfrumvarp stjórnar-
innar. Að vísu gefur grein þessi
ekki mikið tilefni til framhalds-
umræðna um málið frá minni
hálfu, þar sem hún er að mestu
útúrsnúningar, sem tiltölulega
auðvelt er fyrir lesendur, sem
með málinu fylgjast, að sjá í
gegnum. Þó vil ég taka fram
nokkur atriði í tilefni af grein
Ólafs.
Það, sem bezt sýnir undan-
hald Ólafs í greininni er tilraun
hans til þess að færa rök að
því, að rétt sé að sýna breyt-
ingar þær á skattgreiðslu
manna, sem frumvarpið fer
fram á, með því að miða við
skattskyldar tekjur.
Þetta hyggst Ólafur að sýna
fram á með því að benda á, að
I frumvarpinu séu útreikning-
arnir miðaðir við skattskyldar
tekju'r! I frumvarpinu eru eng-
ir útreikningar, nema ef skatt-
er staðreynd viðurkennd af Al-
| þingi, og stendur ómótmælt í
1 grein minni um þessi mál, að
■ við afgreiðslu fjáriaga fyrir
! yfirstandandi ár var af þáver-
! andi stjórnarflokkum, Fram-
sóknarfl. og Sjálfstæðisfl.,
! beinlínis reiknað með tekjum
i af 40% skattaukanum á þessu
ári.
Sjálfstæðisflokkurinn hefir í
samræmi við það ekki gengið
á móti 40% skattaukanum fyr-
ir yfirstandandi ár á þessu
! þingi og þarf því ekki framar
! vitnanna við í þessu máli, hvað
1 sem Ólafur Thors vill vera
! láta.
j Að lokum vil ég aðeins talta
i það fram, að ég sakna þess, að
. Ól. Thors gerir ekki að umtals-
’ efni í grein sinni hina fyrri
fullyrðingu sína um tvöföldun
! skatts á lágtekjum í sveitum
af skattskyldum tekjum. Leik-
ur þó vafalaust mörgum for-
vitni á að vita á hvaða rökum
sú fuUyrðing hans er reist, að
! 5000—9000 króna hreinar tekj-
stiginn sjálfur á að nefnast því
nafni, 0g við hann mun Ólafur
eiga.
Nú vita það allir, og Ólafur
einnig, að 'það er ekki skatt-
stiginn einn, sem hefir áhrif á
skattgreiðslu manna. Persónu-
frádrátturinn hefir þar einnig
sín áhrif, eins og ég sýndi
fram á í fyrri grein minni. I
frumvarpi stjómarinnar er
þessum frádrætti breytt frá
því sem nú er, og hefir það
áhrif á skattgreiðsluna til
lækkunar. — Þess vegna er
allur samanburður um skatt-
greiðslur af skattskyldum tekj-
um samkv. núverandi ástandi
og samkvæmt frumvarpinu al-
gjörlega út í bláinn. Tilvitnun
Ólafs í frumvarpið sér til
stuðnings í þeim vandræðum,
sem hann nú hefir ratað í, er
honum því síður en svo til
bjargar. Hún sýnir aðeins það,
sem menn raunar áður vissu,
að Ólafur er einkennilega þrár
og seinn til að viðurkenna yfir-
sjónir sínar. Það er engin
önnur leið til, sem sýnir áhrif
þau, sem tekju_ og eignar-
skattstillögur hafa á skatt-
greiðslur manna en sú, að taka
til greina bæði hinn ákveðna
„persónufrádrátt" og skatt-
greiðsluna samkvæmt skatt-
stiganum. Verður þá að miða
við hreinar tekjur.
Er hart að þurfa að standa
í deilum við alþingismenn' um
staðreyndir. Slíkt er ekki til
þess fallið að gera almenningi
auðveldara að átta sig á mál-
um. Enda vitanlegt að skraf
Ólafs um skattgreiðslur af
skattskyldum tekjum, sem
hann í öðru orðinu kallar að-
eins „tekjur", til þess að menn
skuli halda, að þar sé átt við
laun manna eða tekjur af at-
vinnurekstri, er fram komið
eingöngu til þess að rugla menn
í málinu og reyna að fóðra
andstöðu forkólfa Sjálfstæðis-
flokksins, sem vitanlega er
mjög illa séð hjá mörgum kjós.
endum þeirra.
Þá segir Ó. Th. að ég hafi
sagt rangt frá í grein minni,
þar sem ég taldi að allir hefðu
gengið út frá framlengingu
40% álags á tekju_ og eignav-
skattinn. Færir hann fram til
stuðnings þessu, að þingmenn
Sjálfstæðisflokksins hafi verið
óánægðir með skattaukann.
Það skiptir ekki miklu máli í
þessu sambandi, hvort þeir
væru ánægðir með skattaukann
eða ekki. Hitt skiptir máli, og
sýnir bezt, hvort ég hefi ekki
rétt fyrir mér í þessu, að það
ur í sveitum séu lágar eftir
því sem gerist hér á landi. 1
því sambandi er rétt að geta
þess enn, að áður en fundnar
eru hreinar tekjur, er dreginn
frá allur kostnaður við öflun
teknanna, vaxtagreiðslur 0 g
skatt- og útsvarsgreiðslur. Býst
ég við að bændum og sjómönn-
um yfirleitt þætti vænkast ráð
sitt ef þeir ættu kost á að afla
sér „lágteknanna“, sem Ólafur
kallar því nafni (5000—9000
kr.), og það alveg eins þótt
þeir þyrftu að greiða af þeim
skatt samkvæmt frumvarpi
stjómarinnar.
Eysteinn Jónsson.
Fréttir
Framsóknarlélag Rvíkur hélt
íund í Kaupþingssalnum í gær-
ltveldi. Ilermann Jónasson for-
sætisráðherra flutti erindi um af-
urðasölumálin og Eysteinn Jóns-
son fjármálaráðherra um skatta-
mál þau, er þingið hefir nú til
meðferðar.
Lögregluréttardómur var kveð-
inn upp 20. þ. m. 1 ávísanasvika-
málinu í Reykjavík. Guðmundur
Guðmundsson fyrv. aðalgjaldkeri
Landsbankans var dæmdur í 0
mánaða fangelsi, Steingrimur
Björnsson aðstoðargjaldkeri í 4
mánaða fangelsi og Eyjólfur Jó-
hannsson forstjóri Mjóllcurfélags
Reykjavíkur í 2ja mánaða fang-
elsi. Sigurður Sigurðsson aðstoðar-
gjaldkeri var sýknaður. Dómamir
eru skilorðsbundnir. — Málinu
mun verða áfrýjað af hálfu rétt-
vísinnar
Undirréttardómur er nýfallinn 1
máli, sem Rosenberg eigandi Hó-
tel ísland í Reykjavílc höfðaði
gegn Áfengisverzlun ríkisins út
af skiptingu álagningar á Spánar-
vín meðan hann hafði vínveitinga-
ieyfi í Reykjavík. Vann Rosen-
berg þetta mál fyrir undirréttin-
um og voru honum dæmdar rúml.
60 þús. króna. Málinu hefir verið
áfrýjað til hæstaréttar.
Vélbáturinn Æskan strandaði
við Siglufjörð í ofviðri 14. þ. ra.
og. brotnaði í spón, en menn
björguðust. Vélbáturinn var 27
smál. að stærð og óvátryggður.
Á Fiskiþinginn hafa m. a. kom-
ið til alvarlegrar meðferðar kvart-
anir, sem borizt hafa um óvand-
að mat og sviksamlega vigt á
fiski á ýmsum stöðum á landinu.
Virðist þetta vera næsta athyglis-
vert mál og þörf strangra að-
gerða.
Leikféiag Reykjavikur sýnir nú
liið gamalkunna leikrit Holbergs,
Jcppi á Fjalli.
Fegurðardrottning Evrópu. 8. f.
m. fór fram í Hastings á Eng-
landi barátta, sem vakti athygli
um alla Evrópu. Sú barátta var
i'aunar ekkert iik þeirri, er geya-