Tíminn - 27.11.1934, Qupperneq 3
f I » ! R R
205
sagt um, hvort sú upphæð er
hin sama og hr. Lárus Jóhann-
esson býðst til að taka sem
fullnaðargreiðslu (kr. 49.781,
Ég skal að endingu láta þess
getið, að í máli Guðm. Þórar-
inssonar gegn Áfengisverzlun
ríkisins kom það fram, að frá
öndverðu hafa verið virt vett-
ugi ákvæði laga um álagningu
á áfengi til lyfja. Án þess að
ég treysti mér til að láta í
ljósi nokkurt álit um, hvort sú
álagning, sem þar ræðir um,
muni endurheimtanleg, vil ég
benda á, að sjálfsagt væri æski.
legra fyrir rfkissjóðinn að
þurfa eigi að standa í frekara
málaþrasi út af því. En líklegt
má telja, að ef samkomulag
yrði við L. Jóh. í máli Rosen-
bergs mundu frekari málaferli
út af álagningu verzlunarinn-
ar niður falla.
Reykjavík, 9. júlí 1984.
Virðingarfyllst.
Pétur Magnússon“.
Og það er vitanlegt, að
hefðu stjórnarskipti ekki verið
í vændum, hefði verið farið
eftir tillögum Péturs,
Fréttir
Nýlega haía verið gefin saman í
hjónaband Jóhanna Pálsdóttir,
Rosenkranssonar frá Kirkjubóli í
Önundarfirði og Jón Brynjólfsson
frá Flateyri.
Tímaritið Jörð, 1., 2. og 3. hefU
yfirstandandi árg&ngs er nýlega
komið út. Flytur það greinar eftir
sr. Jakob Jónsson,, Amór Sigur-
jónsson, Snorra Halldórsson lækni,
Guðmund Einarsson frá Miðdal,
sögu eftir Albert Engström, kvæði
eftir ýmsa- höfunda, margar grein-
ar eftir ritstjórann, Bjöm O.
Bjömsson o. fL
Látin er 9. þ. m. frú Petrina
þorgrímsdóttir, kona porsteins
lireppstjóra þorsteinssonar á Daða-
stöðum í Núpasveit, eftir langa
vanheilsu.
Mannslát. Nýlega er látinn í
Fjallabyggð í North-Dakota, bænda-
öldungurinn Jakob Jónsson frá
Munkaþverá i Eyjafiröi, 86 ára.
Hann fluttist vestur um haf 1875.
Kirkjublaðið er nýlega komið út.
Flytur það m. a. lofgrein um
kristindómskúgarana þýzku eftir
Knút Arngrimsson, sem nú dvelur
í þýrkalandl. Segir þar að þeir
vilji „á engan hátt skerða sam-
vizkufrelsi þjóðarinnar" o. s. frv.
Virðast þetta nokkuð einkennileg
ummæli um þá menn, sem leynt
og ljóst hafa beitt ofsóknum, burt-
rekstrum, likamlegum meiðingum
og öðrum álíka aðferðum við þá
forvígismenn kirkjunnar, sem ekki
hafa talið rétt, samvizku sinnar
vegna, að beygja sig undir vald
þeirra. Greinin er öll á þessa leið.
Mun fæstum finnast hún geta átt
heima í islenzku kirkjublaði.
Nýlátinn er Vestur-íslendingur-
inn Ólafur Egilsson, ættaður frá
Tungugerði í Suður-þingeyjar-
sýslu, 73 ára að aldri.
Iðnaðarmannafélag Akureyrar.
Iiélt hátíðlegt 30 ára afmæli sitt.
24. þ. m. Félagið hefir starfrækt
iðnskóla síðan 1925, hélt merki-
lega iðnsýningu 1906 og reisti sér
gott skóla- og samkomuhús 1928.
í félaginu eru 86 félagsmenn.
Á Vopnafirði var slátrað i haust
alH að 9000 fjár, öllu hjá Kaupfé-
laginu. Fryst voru til útflutnings
um 7000 lömb. Meðalvigt dilka
var um 13Vs kg., og er þaö minni
þyngd en venjulega.
Vestnr-íslendingurinn dr. B. J.
Brandson hei'ir verið gerður doktor
í skurðlækningafræði við háskól-
ann í Manitoba.
Arngrimur BJömsson hefir verið
settur læknir í Flatey á Breiða-
firði.
Alþýðusambandið. Stjóm Al-
þýðusambandsins var kosin á þingi
þess sl. laugard. Jón Baldvinsson
er forseti áfram og Héðinn Valdi-
marsson varaforseti. Sú breyting
hefir orðið á stjóminni hér 1
Reykjavik, að Guðmundur R.
Oddsson hefir gengið úr henni og
Roykjavlk. Slmi 1240 (3 llnur)
Simnefni: Sláturfélng.
Áskurður (á brauð) ávalt
fyrirllggjanili:
Hanglbjúgu(Spegep.)nr.l, gild
Do. — 2, —
Do. — 2, mjð
Sauða-Hangibjúgu, gild,
Do. mjó,
SoOnar Svlna-rullupyUur,
Do. Kélfarullu-pylsur,
Do. Sauða-rullupyl »ur,
Do. Mosaikpylsur,
Do. MalakoffpyUur,
Do Mortadelpyl»ur,
Do. Skinkupylsur,
Do. HfimborgarpyUur,
Do. Kjötpylsur,
1)0. LifrarpyUur,
Do. Lyonpylsur,
Do. Cervelatpylsur.
Vðrur þese&r *ru a
búnar til á eigin vlnnustefu,
og ■t&nd&st — aO dðmf n«yt-
enda — aamanburð vfð
■amakonar erlendar.
Varðakrár undar, og pant-
anir afgreiddar um &)lt land.
Pétur Halldórsson komið í staö-
inn. Fyrir Sunnlendingafjórðung
var Kjartan Ólafsson kosinn 1 stað
Óskars Jónssonar og fyrir Norð-
lendingafjórðung var Jón Jóhanns-
son kosinn í staðinn fyrir Gunn-
laug Sigurðsson.
Lík Sigtryggs Friðriksson bónda
að Sellandi i Fnjóskadal, sem varð
úti í hríðinni aðfaranótt 1. vetrar-
dags, er fundið, þykir sennilegt,
að hann hafi farizt í snjóflóði.
Reykj avikurbær hefir fengið 35
þús. kr. lán í Útvegsbankanum
og 72 þús. kr. lán í Landsbankan-
um eða samtals 107 þús. kr. Lán-
inu verður varið til aukningar at-
vinnubótavinnunnar.
Helgi Guðmundsson og félagar
lians komu fyrra mánudag aftur
til Hornafjarðar á bílnum, er þeir
fóru með til Reykjavíkur. Voru
þeir 4 daga á leiðinni suður. Fengu
þeir stórrigningu á Breiðamerkur-
sandi, en sluppu yfir ámar áður
en þær urðu ófœrar.
Skýrsla Menntaskólans á Akur-
eyri 1933—34 er komin út. Um 200
nemendur-hafa sótt skólann á því
starfsári. 48 nemendur luku gagn-
fræðapróíi og auk þess þrir utan
skóla. 17 nemendur tóku stúdents-
próf. Heimavistarfélag starfaði við
skólann og voru í þvi 86 félags-
menn. Alls starfaði það 255 daga
og var allur kostnaður kr. 392,70
á félaga, eða kr. 1,54 á dag. Skóla-
meistari .skrifar góða frásögn um
ferðalag 6.-bekkinga í Húnaþing
og auk þess birtist þama eftir
hann: Ávarp til gagnfræðinga
1934, flutt í kveðjusamsæti 11.
apríl 1934 og ritgerð um framtíð-
arhorfur og þroslcakjör stúdenta
um síðustu aldamót og nú.
Fyrir skömmu synti folald úr
Akureyjum á Gilsfirði til lands að
Heiðnabjargi á Skarösströnd. —
Vegalengdin er talin vika sjáv-
ur og eru miklir straumar á leið-
inni. Folaldið var látið til haga-
göngu út í eyjarnar.
„Einn ai postulunum og fletri
sögur“, heitir ný bók eftir Guð-
mund Gislason Hagalin. Kemur
hún út fyrir jólin í vetur. Útgef-
andi er þorsteinn M. Jónsson.
Á hvaða aldri kvænast karlmenn-
irnir? Samkvæmt mannfjölda-
skýrslum 1926—30, sem Hagstofan
hefir nýlega gefið út, kvæntust 3455
karlmenn á þeim árum. 823 voru
yngri en 25 ár&, 2013 á aldrinum
Ódýrasta ljósid
Eldhúsdagurinn
Eldhúsdagsumræður á Alþingi hófust sl. föstu-
Tíl söln
Verzlun R. P. Riis, Hólmavík, er til sölu viS næstu ára-
mót, með eða án útistandandi skulda.
Húseignir miklar til móttöku land- og sjávarafurða.. —
Landrými mikið. — Greiðsluskilmálar aðgengilegir.
Steingrímsf jörður er talinn gullkista Húnaflóa.
Upplýsingar allar gefur undirritaður eigandi verzlunar-
innar.
p. t. Reykjavík 19. nóv. 1934.
Jóh. Þorsteinsson
Jorð
Hálf jörðin Kotnirönd í ölfusi með húsum
og kúgildum, fæst til kaups og ábúðar í næstk.
fardögum eða nú þegar.
Nánari upplýsingar gefur
Landsbanki íslands
Útbúið á Selfossi
Skuldlausir
kaupendur Tímans, sem ekki
hafa enn fengið kaupbætirinn,
er auglýstur var í blaðinu s. I.
vor, geri svo vel að gera af-
greiðslunni viðvart eða helzt
að vitja kaupbætisins þar.
25—34 ára, 519 frá 35—49 ára og
80 voru komnir yfir fimmtugt.
Aldur 14 var ótilgreindur.
SmásöluverS í Reykjavik hefir í
sl. októbermánuði verið sem hér
segi á eftirtöldum vörutegundum:
Rúgmjöl kr. 0,31 pr. kg., hveiti nr.
1 kr. 0,40 pr. kg., bankabyggsmjöl
kr. 0,62 pr. kg., hrísgrjón kr. 0,46
pr. kg., hafragrjón kr. 0,47 pr.
kg., baunir kr. 0,83 pr. kg., sykur
kr. 0,60 pr. kg., strásykur kr. 0,50
pr. kg., kaffi, óbrennt, kr. 2,58 pr.
kg., kaffi, brennt, kr. 4,07 pr. kg.,
smjörlíki kr. 1,66 pr. kg. Sam-
kvæmt nýútkomnum skýrslum
Hagstofunnar.
Dánardægur. Nýlátinn er á
Blönduósi Lárus Erlendsson, á
bundraðasta og fyrsta aldursári.
Ilann var fæddur á Kindilmessu
- eða 2. febrúar — 1833, að Engi-
hlíð í Langahlíð. Hann var kvænt-
ur Sigriði, dóttur Bólu-Hjálmars,og
bjuggu þau í Holtastaðakoti í
Langadal. þau áttu 10 böm, og eru
fimm þeirra enn á lífi. þrjátíu og
, þrjú síðustu ár æfi sinnar var
, Lárus hjá dætrum sínum á
Blönduósi, Guðnýju og Ingibjörgú,
og lézt á heimili þeirra. Hann
hafði legið rúmfastur i þrjú ár.
Lárus las bæði blöð og bækur, og
fylgdist með í daglegum viðburð-
um til þess síðasta.
S A G A N af Samsoni fagra
og Kvintalín kvennaþjóf óskast
til kaups. Eiríkur Benediktz,
Pósthólf 16, Reykjavík.
Kolaverzlun
SIGUBÐAB ÓLAF8SONAB
Simn.: KOL. Roykjavík. Simi 1033
TRYGGINGU
hafa menn fyrir að fá góðar
vörur með góðu verði, með því
að verzla við
Kaupfélag Reykjavíkur.
Qskilahestar
Dökkrauður hestur. Mark:
Fjöður aftan vinstra.
Grár hestur. Mark: Tveir
bitar aftan vinstra.
Upplýsingar á Hálsi í Kjós
(sfmastöð).
f sumar tapaðist
jarpur foll
Mark: sneitt aftan, biti fram-
an hægra; blaðstíft framan
vinstra.
JÓN B. JÓNSSON,
Laugaveg 69, Reykjavík.
Sím'i 1869.
Prentsm. Acta.
dagskvöld og héldu áfram kl. 1 í gær og fram
yfir miðnætti. En önnur umræða fjárlaganna
liefst nk. fimmtudag. Er fjárveitinganefnd klofin,
cg skila íhaldsmenn sérstöku áliti. — Ræðutima
var skipt jafnt milli flokka, og fékk ,,bændafl.“
sérstakan tæðutíma. Umræðum var útvarpað.
Einna mesta eftirtekt í þessum umræðum vakti
það, hve glögglega l'jármálaráðherra sannaði
hið glæfralega ábyrgðarleysi stjórnarandstæð-
inga í tillögum þeirra um fjármálin, sem nánar
er að vikið á öðrum stað í blaðinu. Af öðru
minnisstæðu úr þessum umræðum má nefna
iatningu íhaldsmanna um, að þeir vilji minnka
kaupgetu almennings í landinu, hina eftirminni-
legu hirtingu, sem foi'sætisráðherra veitti þor-
steini Briem fyrir aðgerðaleysi hans í máluin
landbúnaðarins meðan hann var ráðherra, og
umræðurnar um fisksölumáliu.
Yfirleitt mun það vera sannmæli þeirra, er á
Idýddu, að ríkisstjórnin hafi gengið með glæsi-
legan sigur af hólmi úr þessari viðureign.
Framh. af 2. síðu.
við það átt, þar sem lántakendur hafa þeg-
ar tekið á sig þann hlutann. Ársgreiðslur
þeiiTa lána eru 6,23% á 40 ára lánum og
6,88% á 30 ára iánum.
2) Veðdeild Búnaðarbankans. Þar eru
vextir 61/2%, en þau lán voru veitt affalla-
laus, eins og áður er sagt. Sú leið, sem okk-
ur hefir helzt dottið í hug til að létta þau,
cr að láta stofnsjóð veðdeildarinnar (við-
lagasjóð) taka á sig nokkum hluta vaxta-
lækkunarinnar, eins og síðar mun bent á.
Leggjum við því til, að það verði xh%—1%
af þeim lánum, sem veitt hafa verið úr 1.
flokki deildarinnar.
3) Ræktunarsjóður. Þar eru vextir 6% og
lánstími 5—25 ár. Ársgreiðslur eru þar
23,4% af 5 ára lánum, 13,58% af 10 ára
lánum, 10,3% af 15 ára lánum, 8,72% af
20 ára lánum og 7,82% af 25 árá
iánum. Undantekning eru aðeins þau
lán, sem eftir eru af Ræktunarsjóði hin-
um eldra, að upphæð röksk hálf miljón kr.
með 4%. Leggjum við til, að lánavextir
líæktunarsjóðs hins nýja lækki um 1%. Til
þess að ná því, verður að lækka vexti af
bréfum Ræktunarsj óðsins, öllum sem eru í
opinberri eign, um hið sama, eða 1%, og
sömuleiðis af höfuðstól Ræktunarsjóðs. Nú
eru í umferð 2740000 kr. í bréfum. Af þeim á
ríkissjóður 904000, Landsb. 735000, Búnað-
arb. 136000, Brunabótasjóður 100000. AIls
1875000 kr. Það, sem þá «r eftir, ca.
700000, er eign annara tryggingarfélaga, og
teljum við ekki fært að lækka vexti af bréf-
um þeirra, og yrði sjóðurinn að taka á sig
þá vaxtalækkun. En á þennan hátt mætti
lækka vexti af lánum sjóðsins um 1%. Eins
og áður er sagt, er lánstími Ræktunarsjóðs
hæst 25 ár, þar sem veðdeildarlán Búnaðar-
bankans og Landsbankans eru 30—40 ár.
Þetta gerir ársgreiðslur sjóðsins þyngri en
ef lánstíminn væri lengri. Þess vegna leggj-
um við til, að gefin verði heimild tl að lengja
hann á öllum höfuðlánaflokkunum um allt að
10 ár, og sömuleiðis af lánum þeim, sem
þegar eru veitt, ef lánþegar óska, þó þannig,
að útdrætti verði lokið innan þess tíma, sem
ákveðinn er í jarðræktarbréfum samkv.
reg'lugerð sjóðsins. Sú breyting ein gæti haft
j för með sér nokkra lækkun á ársgreiðslum,
og gætu þá ársgreiðslur af 25 lánum Rækt-
unarsjóðs lækkað um 1,7% við báðar þessar
breytingar, og yrðu þá 6,12%.
Um áframhaldandi starfsemi sjóðsins er
þetta að segja: Nú er að mestu lokið þeim
tekjumöguleikum, sem Ræktunarsjóði eru
ætlaðir samkv. lögum sjóðsins frá 1925.
Til þess að tryggja honum áframhaldandi
tekjur, höfum við lagt til að skylda nokkra
• opinbera sjóði til bréfakaupa fyrir nokkum
• hluta árstekna sinna, eftir ákvörðun land-
búnaðarmálaráðh., með tilliti til aðstæðna
sjóðanna og þörf Ræktunarsjóðs til bréfa-
kaupa. Bréf þessi gerum við ráð fyrir að
gæfu 41/2% í vexti. Það, sem þá vantaði á
til að fullnægja þörf sjóðsins til starfsfjár,
yrði að fá með sölu vaxtabréfa á frjálsum
markaði. En þar sem búast má við, að sú
sala yrði óhagstæðari sjóðnum, eins og nú
er háttað með bréfasölu, má gera ráð fyrir,
að það yrði að ganga út yfir höfuðstól
sjóðsins, til þess að lán hans þyrftu ekki að
fara yfir 5%. Vegna þessa leggjum við til,
að Ræktunarsjóður fái til fullrar eignar
þann hluta Viðlagasjóðs, er Bústofnslána-
deild er ætlaður samkv. lögum um Búnaðar-
banka íslands. Sú deild er ekki starfrækt
enn og litlar líkur til, að nokkumtíma verði
horfið að því að starfrækja hana. Fyrst er