Tíminn - 22.01.1935, Side 4
12
T í M I N N
H.F. EIMSKIPAFÉLAG tSLANDS.
Aðalfundur
Aðalí'undur Hlutafélagsins Eimskipafélags Islands, verðim
haldinn í Kaupþingssalnum í húsi félagsins í Reykjavík,
laugardaginn 22. júní 1935 og hefst kl. 1 e. h.
D AGSKRÁ:
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag >ess og framkvæmdum
á liðnu starfsári, og frá starfstilliöguninni á yfirstand-
andi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úr-
skurðar endurskoðaða rekstursreikninga til 31. desember
1934 og efnahagsreikning með athugasemdum endurskoð-
enda, svörum stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá
endurskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu
ársarðsins.
3. Kosning fjögra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra,
sem úr ganga samkvæmt félagslögunum.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og
eins varaendurskoðanda.
5. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins.
6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp
kunna að verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða. Að-
göngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og um-
boðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík,
dagana 19. og 20. júní næstk. Menn geta fengið eyðublöð
fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu fé-
lagsins í Reykjavík.
Reykjavík, 15. janúar 1935.
Stiórnin,
John Inglis Co.L-
Millers,
Leith Edinburgh 6.
Vörur vorar eru alþektar á íslandi F^n^M^G^EÐI:
INGLIS — blandað hænsnafóður.
INGLIS — alifuglafóður.
INGLIS — maísmjöl.
INGLIS — maís kurlaður og fleiri fóðurvörur.
Alt í „Blue Star“-sekkjum.
Pantanir annast.
Samband isl. samvinnufélaga
INDIA TYRES
ERU BEZTU BlLADEKKIN.
Notið India hfl*iteklr og þér verðið ávalt ánægQtr.
INDIA SUPER NONSKXD:
Beztu bíladekkin, sem völ er á-
INDIA STANDARD:
Betri en öll önnur „stand&rd"
bíladekk.
INDIA STERUNO
kaupa þeir, sem vilja (4 góð en þó
ódýr bíladekk.
Pantanir annast
I t I
Guðm. Einarsson
frá Holti í Þistilfirði.
Okkur reynast örlög bitur
oft um megn.
öllum finnst svo ótrúleg
þín andlátsfregn.
Á dagsbirtuna dregur skugga
dauðans nótt.
Yfir byggðina andvarp líður
undurhljótt.
1 fjarlægðina frændahugir
fylgja þér.
Sorgin fyllir sérhvert hjarta
og sárast er
að sjá þig hverfa úr samfylgd
svona flj ótt. [okkar
Með ótal vonir, áform björt
og- æskuþrótt.
Af umhyggju og alúð vannstui
öll þín störf.
Og ætíð varstu einlægur
af innri þörf.
Athvarf hjá þér eigingirnin
aldrei fann.
En vemdað gaztu viðkvæmnina
og vorhugann.
Sem bam þú hafðir bundið
við bernskusveit. [tryggð
Og æfilangt þér una vildir
í þeim reit.
Með viðtökunum vill hún þakka
verkið þitt.
Og breiðir hvíta blæju yfir
barnið sitt.
En hvort sem jörðin klæðist
af hvítum snæ. [hjúpi
Eða á vori angar móti
yl og blæ.
Þá tala mörgu minningamar
málið sitt.
Og líða eins og ljúfur bjarmi
um leiði þitt.
Einar Kristjánsson.
Ihaldið sýnt
í skaggsjá
Útvarpsnotendum hefir, síðan Útvarpsstöð
íslands tók til starfa, fjölgað mun örar hér
á landi, en í nokkru öðru landi álfunnar.
Einkum hefir fjölgunin verið ör nú að
undanförnu.
ísland hefir nú þegar náð mjög hárri hlut-
fallstölu útvarpsnotenda og mun, eftir því
sem nú horfir, bráðlega ná hæstu tölu út-
varpsnotenda miðað við fólksfjölda.
Verð viðtækja er lægra hér á landi en í
öðrum löndum álfunnar.
Viðtækjaverzlunin veitir kaupendum viðtækja
meiri tryggíngu um hagkvæm viðskipti en nokkur
önnur verzlun mundi gera, þegar bilanir koma
fram í tækjunum eða óhöpp bera að höndum.
Ágóða Viðtækjaverzlunarinnar er lögum samkv.
eingöngu varið til reksturs útvarpsins, almennrar
útbreiðslu þess og til hagsbóta útvarpsnotendum.
Takmarkið er: Víðtæki ínn á hvert heimíli.
Viðtækjaverzlun ríkisins
Lækjargötu 10 B. — Sími S823.
Happdrætti
Háskóla Islands
Sala hlutamiða 1935 er byrjuð
í haust sem leið birtist grein
í Mbl., sem orðið hefir rit-
stjórum þess og íhaldinu til
mikils hugarangurs.
Þessi grein var um manninn,
sem bláðið segir að hafi lifað
á skepnufóðri í 16 ár.
Þegar sláturtíðin var að
hefjast, kjötframleiðslan að
koma á markaðinn og bændur
eygj a nokkra von þess, að
þeir fái vöru sína með þolan-
legu verði, þá dregur Mbl.
fram Sigurjón á Álafossi,
bendir lesendum á hann: Sjáið
manninn, sem hefir ekki bragð-
að kjöt í 16 ár og heldur þó
„heilsu og kröftum“.
Svo rekur blaðið garnirnar
úr Sigurjóni. Honum! „líður
prýðilega“ án kjöts, meira að
segja líður ver en ella, ef hann
smakkar það, segir að það sé
engin þörf á að borða það,
en mælir með að borða heldur
„ýms grös“ o. s. frv.
Allt þetta er vesöl viðleitm,
en augljós til þess að benda
sem flestum á, einmitt nú,
þegar kjötið var að koma á
markaðinn, að það sé þarf-
laust að kaupa það, það eigi
ekki að gera það, bændur eigi
ekki skilið að Reykvíkingar
kaupi af þeim framleiðsluvör-
ur þeirra.
Nýja dagbl. tók þessa grein
til athugunar. Það rakti efni
hennar sundur, sýndi anda
hennar, tilgang og innræti.
Það brá yfir hugarheim íhalds-
ins og veslinganna sem skrifa
Morgunbl., sterku og dálítið
skoplegu ljósi. Það sýndi í-
haldinu inn í þess eigið hug-
Gefnir eru út 1/1, 1/2 og 1/4 miðar.
Fyrirkomulag að öðru leyti sama sem síðastliðið ár.
Umboðsmenn happdrættisins gefa nánari upplýsingar.
skot, inn í óheilindi þess,
heimsku þess, illgirni þess og
fals.
Og Mbl. emjaði við. Nýja
dagbl. hefir, eins og oft áður,
brugðið upp skuggsjá fyrir á-
sjónu íhaldsins og lofað al-
menningi um leið að sjá smetti
þess, grímulaust. En með
þeirri mynd, sem þar kemur
fram, segir Mbl. að verið sé
„að ráðast á Reykvíkinga af
hinni mestu heift'.
Og hér kemur enn fram
hinn dónalegi hroki. Ef
sagður er kostur og löstur á
íhaldinu, segir það ávalt, að
verið sé að tala um alla Reyk-
víkinga. íhaldið er . Rvík, að
þess dómi, svona eins og Lúð-
vík 14. var franska ríkið, að
hans áliti.
Mbl.-ritstjórarnir sjá nú
blóðugum augum eftir frum-
hlaupi sínu og útstillingunni á
Sigurjóni.
íhaldsleiðtogarnir hafa hellt
sér yfir Valtý og Jón fyrir
flónskuna, að hafa til þess orð-
ið, að þeir yrðu leiddir fram
fyrir allra augu, ofurlítið skop-
legir í frumstæðri illgirni
sinni, óvildarhug og nekt.
Það svíður mörgum sárast
að vera gerður skoplegur —
og eiga það skilið.
FREYJU kaffibæfisduftið
— nýtilbúið — inniheldur aðeins ilmandi kaffibœti, ekkert vatn
eða önnur efni til uppfyllingar. Þess vegna er Freyju kaffibætis-
duftið drýgst, heilnæmast og bezt. Og þó er það ódýrara en kaffi-
bæti í stöngum.
Notið það bezta, sem unnið er í landinn